Heimskringla - 26.08.1915, Síða 6
BLS. 6.
HEIMSKRINGLA.
WINNIPEG, 26. ÁGÚST 1915.
og fá hana til þess að losa sig við ofsóknir föður
síns með því að giftast mér. Víggirðing, sem sam-
anstendur aðeins af vilju ungrar stúlku, er svo veik
uð hún þolir ekki árásir mínar og barúnsins. —
Uelen verður heitbundin mér, áður en þér eruð
orðinn fær um að leggja út í hernaðar-leiðangur.
Við höfum háð stuttan en alvarlegan bardaga —
og eg sigraði. Þegar þér sjáið mig næst, verður
fallega konan mín hjá mér. Verið þér sælir’.
13. KAPÍTULI.
Annar til hverfur.
Bréf jarlsins, svo hrokafult og sigri hrósandi, —
^jörði Ronald hræddan. Áður hafði hann ekki verið
hræddur um Helenu; en nú sá hann að hún var i per-
sónulegri hættu, ef hún héldLáfram að neita þessum
•vclkomna biðil.
Jarlinn hafði ekki hikað við, að reyna að myrða
Ronald; hann var ekki sá maður, sem léti smámuni
hindra sig í uppfylling óska sinna. Ungi maðurinn
fékk nú vondan grun um ókomna tímann.
Hann rétti Harton bréfið, sem las það„ og að þvi
búnu fylgdu margar ráðagjörðir milli þeirra, og svo
töluðu þeir um ásigkomulag Helenar undir mörgum
kringumstæðum.
‘Það er satt, að við vitum nú ekki, hvar Helen
er’, sagði Harton; ‘en það hlýtur að vera auðvelt að
finna hana. Það er líklegt að hún sé hjá föður sínum
á einliverju hóteli, og eflaust hefir jarlinn sezt þar að
lika og gjörir alt hvað hann getur til að vinna hylli
hcnnar. Það er undarlegt að hún skuli ekki hafa skrif-
að yður; en henni er máske kunnugt um, að þér eruð
veikur og vill ekki láta bréf sitt bíða, þar til þér eruð
orðinn friskur. Hugrakka, unga stúlku með auð og
tign er ekki jafn hægt að fela og dauða myndastyttu’.
‘Hún hefði skrifað mér, ef hún væri ekki svift
frelsi sínu’, sagði Ronald. ‘Eg held hún hafi ekkert
heyrt um veikindi mín. Hún hefir ef til vill skrifað,
en bréf hennar verið stolið. Eg held að jarlinn segi
satt, að hún sé á afskektum stað, en hvar?’
‘Já, eftir því verðuin við að komast’ sagði Har-
ton og las bréfið í íannað sinn. ‘Þér getið rétt til, Ron-
ald; í þessu bréfi felst hrokafull og sigri hróiindi
meining, sem bendir á að það hafi sannleik að geyma.
Helen er einhversstaðar lokuð inni af föður sínum, og
barúninn og jarlinn reyna að þvinga hana til að gift-
ast gagnstætt vilja sínum’.
‘Og eg er bundinn hér af veikindum’.
‘Að hálfum mánuði liðnum verðið þér orðinn al-
hcill, Ronald. Þér megið engu kvíða. Þér verðið að
reyna að ná heilsu og kröftum eins fljótt og þér getið,
og á meðan skal eg leita Helenar, svo að eg geti sagt
yður, hvar hún er, þegar þér eruð orðinn ferðafær’,
sagði Harton i huggandi róm; ‘og svo getum við orðið
samferða til að frelsa hana. Helen lætur aldrei und-
an þessum ógeðþekka biðii sínum, og hún getur ekki
gifst neinum manni á móti vilja sínum. Verið þér því
hugrakkur. Við skulum finna hana og verði það nauð-
synlegt fyrir framtíðarga'fu hennar, getið þér farið til
Skotlands og gifst þar. Lögin þar eru frjálsari en hér
i því efni’.
Lögmaðurinn talaði með þeim öruggleik, sem hann
átti til; — og hann náði tilgangi sinum — Ronald
varð kjarkmeiri og svipléttari og i kinnar hans kom
dálitill roði.
Strax á eftir lagði lögmaðurinn af stað, til að
byrja á rannsóknum sínum um týndu stúlkuna og jarl-
inn. '
Stóra byggingin í Charlewick le Grand,
lokuð í fyrsta sinni í tvo mannsaldra. Til eftirlita var
gamall garðyrkjumaður, sem um nætur svaf í kvist-
herbergi, en vann úti á daginn. Ráðskonan, kjallara-
vörðurinn og 25 þjónar aðrir — alt var farið.
Harton spurði garðyrkjumanninn, en fékk litið að
vita. Jarlinn hafði farið til London; en barúninn,
dótttir hans og herbergisþerna hennar, voru farin
hálfum mánuði fyr. Harton sneri sér þá að ráðsmann-
inum Graham, sem bjó í litlu en laglegu húsi i Litia
Charlewick. Graham var sá eini maður, sem enn var
kyr, af þjónum hins framliðna jarls; og orsökin ti
þess að hann var kyr, murv hafa verið sú — að hann
var ærið þverlyndur og fátalaður; og þó hann væri
Ronald hlyntari en nýja jarlinum, gætti hann þó starfa^
síns samvizkusamlega, því hann var heiðarlegur mað-
ur; og það var ekki auðvelt að finna annan jafn hæf-
an honum.
Graham vissi ekki hvar jarlinn, barúninn og dótt-
ir hans voru, og gat því ekkert sagt.
Harton spurði nú ýmsa af hinum fyrverandi þjón-
um en árangurslaust.
Morguninn eftir ók hann til Crediton, og spurði
sig fyrir á járnbrautarstöðinni. Þar fékk hann að
vita, að barúninn og dóttir hans höfðu keypt farseðil
til London, og það hafði jarlinn einnig gjört tveim vik-
um síðar.
‘Eg held að þau séu öll í London’, hugsaði Harton;
‘og þetta rugl um afsiðis verandi stað er aðeins til að
villa. Þau eru liklega í húsi jarlsins í London’.
Hann skrifaði fáeinar línur til Ronalds, sendi þær
og fór svo með fyrstu lest til London. Hann fór til
húss jarlsins; en það var lokað og auðséð að hann
hafði ekki þangað komið. Hann leitaði fyrir sér í hót-
elunum, og fann eitt þar sem barúninn, dóttir hans og
þerna hennar höfðu gist á fyrir þrem vikum síðan.
Þar höfðu þau dvalið aðeins í 3 daga, og að líkum
f.ir ð þaðan til Dorset, þar sem Helen átti jörð.
Harton fór strax til Dorset; en leiguliði Helenar
vissi ekkert um hana né barúninn.
Lögmaðurinn skihli nú, að frásögn barúnsins um
að hann ætlaði til Dorset, var aðeins til að dylja eitt-
hvert þrælslegt fyrirtæki. Helen var flutt í eitthvert
skúmaskot og jarlinn hefði auðvitað elt hann þangað.
En hvar var það skúmaskot?
Harton sneri aftur til gistihússins í London, þar
sem hann var vanur að dvelja; gekk til herbergis síns
og fór að skoða landabréfin. Hann þekti nöfnin á öll-
um jarðeignum Helenar, og vissi að þær voru allar
leigðar, og að hún gat því ekki farið þangað. Hann
hafði líka skýrslu yfir allar eignir jarlsins, og athug-
aði hana nákvæmlega.
^ ‘Það eru tvær eða þrjár af Charlewick jarðeign-
unum, sem eru leigðar; en leigutíminn er annaðhvort
liðinn eða bráðum á enda’, hugsaði Harton. ‘Þá er
nú Racket Hall á Yorkshire heiðinni, sem er svo ein-
manalegt, að erfitt verður að fá leigjanda. Neshit^
skuldaði tveggja ára leigu; svo Graham rak hann'
burt samkvæmt ráðleggingu minni. Þetta hús er tómt
og allar líkur til að barúninn sé þar’.
Hann þaut strax af stað með fyrstu lest til að fá
vissu sína um þetta. 1 Hebden Bridge fékk hann sér
vagn til að aka til Racket Hall; en kom við í Moor
End. í bæ þessum hvíldi hann hestana og lenti i sam-
ræðum við hinn fjasgjarna greiðasölumann, er svar-
aði spurningum Hartons, og sagði um leið sögu um
burtflutning þeirra, er búið höfðu á Racket Hall, tals-
vert ýkta.
‘Nesbit var siðasti leigjandinn þar. Eruð þér
kominn hingað til að sjá, hvort hann hefir skilið eftir
nokkurn húsbúnað? En hann er lítils virði’.
‘Eg trúi því. En Nesbit er mér óviðk^mandi. Eg
er hvorki ráðsmaður né sendisveinn jarlsins’.
‘Þér eruð ekki. Nesbit skuldaði öllum þegar hann
fór. Mér skuldaði hann fyrir 20 bjórkúta. Hann drakk
allmikið, og var þó magalaus, lifrarlaus, meltingar-
laus og nærri lungnalaus, sagði hann mér oft. Máske
þér séuð kominn til að sjá ungrú Brend, sem kölluð var
frænka Nesbits, þó hún væri það alls ekki?’
‘Eg veit ekkert um ungfrú Brend. Eg kom hingað
til að vita, hvort nokkur væri í Racket Hall’.
‘Þar er enginn núna’, svaraði gestgjafinn. ‘Það
verður enginn hægðarleikur, að fá leigjanda að þeirri
jörð; hún er svo afskekt og einmana. Mér er sagt,
að gainli jarlinn sé dauður. Nýji jarlinn má líklega
nota.húsið fyrir veiðihús. Er það satt að Odo Charl-
ton hafi ekki verið myrtur fyrir 20 árum siðan, og sé
nú kominn aftur til að taka við föðurleifð sinni?’
Harton játaði þessu og með þvi að spyrja nánar
var honum sagt að enginn ókunnugur hefði komið til
Moor End um langan tíma, og að enginn gæti gefið
honum upplýsingu um þá, sem hann leitaði að.
Hann hélt nú samt áfram til Racket Hall.
Honum voru gefnar góðar leiðbeiningar, svo að
hann fann húsið viðstöðulaust. Þar var algjörð
kyrð og dyrnar lokaðar og hlerar fyrir gluggum. '—
Gripahúsin tóm og sjáanlega ekki notuð um langan
tíma. Harton barði að dyrum, en enginn ansaði. Loks
komst hann þó inn um eldhússglugga, og svo rann-
sakaði hann húsið nákvæmlega.
Engin manneskja var í húsinu. Húsmunirnir
stóðu þar, sem Nesbit hafði skilið við þá, allir gamlir
og slitnir. 1 kjallaranum voru óteljandi vín- og brenni-
vínsflöskur, allar tómar. Búrið var tómt. Allar voru
stofurnar óhreinar. Harton fór upp á loft.
Þegar hann kom inn í litla kolkþvegna herbergið,
ineð beru gólfi, litlu rúmi og mjóum glugga, datt hon-
um í hug að Helen hefði verið þar.
Á borðinu lá ljósrautt hárband og hjá því lá lítill
glófi, hvorutveggja eign kvenmanns. Bandið var gam-
alt og slitið og glófinn margstagaður, svo að ekki var
hægt að endurbæta hann lengur.
Klæðaskápur var í herbergi þessu og leit Harton
inn í hann. Þar sá hann brúnan bómullarkjól, útslitna
skó og gamlan hatt; alt var þetta eign Eddu, sem hún
hafði skilið eftir, þegar hún fór til London.
Af öðru lofti gekk hann upp i kvistherbergið, en alt
var tómt.
‘Nú, jæja’, sagði hann, þegar han ngekk ofan stig-
ann; ‘eg hefi komist að einu: að þau eru ekki hér. —
Eg hefði átt að vita að jarlinn mundi ekki senda Hel-
enu hingað; Graham eða eg hefðum rannsakað þenn-
an stað. Þau hafa máske farið til írlands, Skotlands
eða Wales’.
Hann ók aftur til Hehden Bridge og hélt svo áfram
til London.
Hann hélt áfram rannsóknum sínum með ákafa;
en jafnframt með varkárni. Þar eð hann hélt sig vera
á réttri leið, fylgdist hann með öðru ferðafólki til Skot-
lands og kom til Dundee; en þar fékk hann að vita,
að maðurinn sem han nvar að elta, var kaupmaður frá
London ásamt dóttur snni; en ekki barúninn og
Helen.
Aðra gagnslausa för fór hann til Wales.
Næst heimsótti hann járnbrautarstöðvarnar i Lon-
don. Hann talaði við stoðvarstjórana og umsjónar-
menn járnbrautanna en varð einskis visari. Svo heim-
var nu hann gufuskipa skrifstofurnar, — þeirra skipa,
sem gengu frá London til bæjanna við sundið milli
Frakklands og Englands; en alt árangurslaust. Bar-
únnn, Helen og jarlinn voru algjörlega horfin.
Harton var nú orðinn vonlaus; hann var búinn að
leita árangurslaust í tvær vikur, — og þegar hann tók
tillit til sigurhróssins í bréfi jarlsins til Ronalds, leizt
honuin illa á ástæður Helenar.
Ekki virtist Harton viðeigandi, að fá spæjara til
að komast eftir verustað barúnsins og Helenar; hún
var hjá föður sínum og þar urðu menn að álita hana
óhulta. Enda vissi hann að Ronald mundi ekki vilja
leyfa slíkt, nema nauðsyn krefði.
‘Ronald er ekki sá maður, sem mundi segja nokk-
rum manni — jafnvel ekki spæjara — að faðir heit-
meyjar hans væri hrakmenni’, hugsaði Harton einn
morguninn, er hann sat í herbergi sínu í hótelinu í
London og var vondaufur. ‘Eg veit ekki, hvar eg á
nú að byrja. Eg hefi skrifað Ronald huggunarorð
annanhvern dag; en hvað á eg nú að skrifa?’
Hann opnaði bréfahylkið og ætlaði að fara að
skrifa. ,
En hann var naumast búinn að skrifa dagsetning-
una, þegar barið var að dyrum. Harton leit upp og
sagði: ‘Kom innl’ Dyrnar voru opnaðar og inn kom
Ronald lávarður.
Glaður og hissa þaut Harton upp af stólnum og
rétti honum hendi sína.
Ronald var fölur og magur; en hreyfingar hans
rösklegar og sama fjörið og áður logaði í augum hans.
Kvíðinn um líðan Helenar hafði tafið fyrir bata hans,
og þess vegna hafði læknirinn bannað honum að yfir-
gefa verustað sinn fyrr en þenna dag. Þegar hann
mátti, fór hann strax til London og heimsótti Harton.
‘Mér þykir vænt um að sjá, að þér lítið vel út’, sagði
Harton. ‘Fáið þér yður sæti í hægindastólnum þarna.
Eg var að byrja á bréfi til yðar’.
‘Með góðum nýjungum vona eg, Harton’, sagði
ungi maðurinn kvíðafullur.
‘Mér þykir leitt, að eg hefi engar nýjungar af
neinu tagi’, svaraði Harton. ‘Eg hefi enga vitneskju
getað fengið um barúninn, og heldur ekki um jarlinn.
Við höfum þar við menn að eiga, sem eru óvanalega
skarpskygnir og slægir’.
‘Jarlinn og barúninn, eigið þér við? Já, eg veit
það. En það er ekki hægt að fela unga stúlku svo að
hún finnist ekki, Harton. Þér hafið skrifað mér um
allar rannsóknir yðar í Yorkshire, Skotlandi og Wales,
á járnbrautastöðvunum og á gufuskipa skrifstofunum.
Hefir yður komið til hugar, að ungfrú Clair getur ver-
ið í London? Barúninn hefir getað leigt hús í útjöðr-
um bæjarins’. - w
‘Mér hefir ekki komið það til hugar’, sagði Har-
ton. ‘Eg taldi alveg vist, að farið hefði verið með ung-
frú Clair til einhvers afskekts staðar í landinu. En
það sem þér bendið á er ekki ólíklegt, og við getum
hagað okkur eftir því. Þér eruð þreytulegur eftir
ferðalagið, lávarður Ronald. Eg ætla að fá kognak og
vatn handa yður. Komuð þér einsamall til London?’
‘Nei, eg hefi mjög dyggan fylgdarmann með mér',
svaraði Ronald, meðan lögmaðurrinn hringdi og bað
um hressinguna. ‘Eg held hann sé ágætur þjónn. Þér
munið ef til vill eftir honum; hann heitir John Diggs’.
‘Diggs’, sagð Harton alveg hissa. ‘Þér hafið þó
ekki tekið John Diggs i yðar þjónustu, vona eg, lávarð-
ur Ronald? í Devonshire er enginn maður - óhæfari
sein þjónn yðar en jiessi Diggs’.
‘Hvers vegna, Harton?’
‘F'aðir hans var kjallaravörður í Charlewick le
Grand á undan Delany; hann var fáskiftinn, ískyggi-
legur, dularfullur maður og vondur i Iund. Móðir hans
var spönsk og var barnfóstra fyrir móður núverandi
jarls Odo, sem hún hreint og beint tilbað meðan hann
var barn. Hún lifir enn, en maður hennar er dauður.
Hún er til húsa hjá elzta syni sinum í Ingle býlinu. —
Sé sonur hennar í þjónustu yðar, má búast við að hann
sé spæjari og aðstoðarmaður jarlsins, föðurbróður
yðar’.
Ronald brosti á meðan hann smakkaði á kognak-
inu og vatninu, sem honum hafði verið fært.
‘Það er gott að vera varkár’, sagði hann; ‘en það
er ekki gott, að aðgætni manns breytist í vondan grun,
Harton. Diggs hefir ekki verið heima síðan hann var
drengur, og hann og móðir hans hafa átt í þrætum út
af eftirlátnum fjármunum föður hans, og við bræður
sína vill hann einu sinni ekki tala. Meðan eg lá veik-
ur hlynti hann að mér, og eg held hann sé mér vin-
veittur. Eg hefi þekt John Diggs alla æfi mína, og eg
held að hann sé tryggur. Eg hefi hjálpað honum á
ýmsan hátt, þegar hann hefir leitað hjálpar minnar,
sem hann oft hefir gjört. Nei, Harton, traust mitt á
Diggs getið þér ekki veikt. Hve mikið ilt, sem inenn
eigna móður hans og bræðrum, þá á hann engan þátt
í því’.
Þar eð Harton treysti skarpskygni og dómgreind
Rolands hélt hann ekki sinni skoðun fram lengur, en
ánægður var hann alls ekki með þjón Ronalds.
‘Hvar er Diggs núna, Ronald?’ spurði hann.
‘í mínu herbergi rétt hjá þessu. Eg bað um her-
bergi en fór ekki inn i það, af því mig langaði til að
finna yður strax. Eg er alfluttur til London, Harton;
og ef Helen er hér ekki, hefi eg mitt aðsetur hér meðan
eg leita hennar. Mig langar til að byrja strax. ‘Betur
sjá augu en auga’, segja menn. Meðan þér leitið i ein-
um hluta bæjarins — leita eg í öðrum. Og Diggs, sem
er skarpvitur og hygginn, leitar í hinum þriðja. Eg er
sannfærður um, að Helen er annaðhvort í London eða
í nánd við borgina, og við skulum finna hana, — það
er að segja, ef þér getið varið meiri tíma til þess mál-
efnis, sem þér græðið lítið á’
‘Eg hætti ekki að leita fyrri en ungfrú Clair
er fundin’, sagði Harton ákveðinn. ‘Eg er fús til að
hvíla mig frá störfuin og þess utan er eg hræddur um
hann. En hvar eigum við að leita hennar? Þar er
nærri því eins og að leita títuprjóns í heystakk’. ,
Þeir töluðu heila klukkustund eða lengur um,
hvernig þeir skyldu haga störfum sínum í þessu efni.
Þá kom þjónn Ronald og sagði, að nú væri hann búinn
að koma herbergi húsbónda síns í gott ásigkomulag.
Harton horfði fast og rannsakandi á þjóninn, og
óánægja hans með hann breyttist í tortrygni.
John Diggs var 10 árum eldri en húsbóndi hans;
hann var hár vexti og grannur, með svart hár, sem lá
slétt við höfuðið; augun voru dökk og lítil og horfðu
ávalt niður; hörundið var dökt, varirnar þunnar og
kreistar saman. Hann var í svörtum fötum og hreyf-
ingar hans voru hávaðalausar og kyrlátar eins og hjá
ketti. Röddin var lág og ismeygileg og ávalt gaut hann
hornauga til annara.
Maður, sem kunnað hefði að lesa lundareinkunnir
af andlitsfallinu, mundi hafa forðast John sem eitur?
nöðru; en Ronald var einlægur, hreinskilinn og grun-
laus. Hann hafði þekt Diggs alla æfi sína; gjört hon-
um margan greiða, og jafnframt fengið fullvissu hans
um það, að hann væri honum jafn tryggur og hundur.
Og þrátt fyrir hið ógeðslega útlit hans, hélt Ronald að
hann væri trúr og heiðarlegur, og hann — Ronald —
hefði fyrirlitið sjálfan sig, ef hann hefði lagt trúnað
á orð Ilartons.
Ronald fór til herbergis síns; fékk sér dálitið að
borða og að því búnu leigði hann sér vagn og ók af
stað til að byrja á rannsóknum sínum.
Seint um kveldið kom hann heim, þreyttur, upp-
geifnn og óheppinn.
Diggs hjálpaði honum i rúmið, færði honum hress-
andi drykk og hlynti svo vel að honum, að Harton fór
að geðjast betur að þjóninum, og Ronald var mjög þakk
látur. Hendi Diggs áenni Ronalds var bæði mjúk og
svalandi; hreyfingar hans hávaðalausar og aðhlynn-
ingar hans á réttum tíma.
‘Eg hefi gjört honum rangt til’, hugsaði Harton,
sem var nýkominn inn, þreyttur og vondaufur, ‘og
náttúran hefir gjört honum meiri rangindi. En það er
líklega ekki í fyrsta sinni að eðallynt hugarfar felst
undir fantalegu útliti'.
Ronald svaf vel um nóttina og vaknaði næsta
morgun með endurnærðum kröftum.
Þenna dag ók han naftur burt til rannsókna, og
kom heim um kveldið, þreyttur og vondaufur.
Þriðja daginn gekk hann út til Maida-Hill, dvaldi
þar eina stund og heimsótti þá, sem leigðu öðrum hús;
fór svo heim aftur, tók vagninn sinn og ók um stræti
borgarjaðarsins, og veitti öllum, sem hann mætti, nána
eftirtekt.
Það var ætlun hans, að barúninn hefði leigt sér
í nánd við borgina, og héldi Helenu þar sem fanga. —
Harton var samþykur þessari skoðun hans, og á með-
an Ronald rannsakaði Maida-Hill, talaði Harton við
húsaleigjendur i Kentish Town og grendinni.
F’jórða daginn leitaði Ronald um norðurjaðarinn,
og um kveldið talaði hann við Harton og Diggs um
rannsókn sina og þeirra. Diggs lét mikið af dugnaði
sínum við að rannsaka Camberville og önnur héruð að
sunnanverðu við Thems ána.
Fimti, sjötti og sjöundi dagurinn urðu einnig á-
rangurslausir. Stundum fanst þeim, að þeir hefðu nú
fundið slóðina; en það reyndist ávalt vanhugsað. —
Þetta hefði þreytt Ronald mikið, ef Diggs hefði ekki
istundað han nsvo vel.
Áttunda daginn kom fyrir tilviljun. Harton fór
fyrstur út um morguninn og hélt áleiðis til New Brom-
pton. Þegar hann var farinn tók Ronald kortið sitt
yfir London og fór að skoða það; og Diggs sneri sér
að honum og spurði með virðingu mikilli, hvert hann
ættti að stefna í dag.
‘Harton og eg höfum rannsakað norðurjaðarinn
nákvæmlega’, sagði Ronald og stundi. ‘Mér er orðið
þetta næstum óþolandi. Eg lagði svo fyrir, að mér
yrðu send öll bréf frá Litla Charlewick; og þó að
komnir séu stórir bunkar af bréfum frá kunningjum
mínum sem segja frá hluttekningu sinni i sorg minni
yfir þvi að hafa mist afa minn, og bjóða mér að heim-
sækja sig, — þá hefi eg ekkert bréf fengið frá henni.
Þér verið að haldá áfram að leita í suðurjaðrinum,
Diggs’.
‘Já, lávarður — og ef mér leyfist að gefa yður vis-
bendingu, þá hefi eg skoðun, sem yður máske likar lá-
varður. Þér hafið rannsakað alla. heldri borgarjaðr-
ana; en ef barúninn og jarlinn vildu af alvöru forð-
ast yður, þá mundu þeir hafa leitað sér hælis í ein-
hverju húsi i fátækari deildunum, Hackney til dæmis.
Ef eg mætti ráðleggja yður, þá mundi Hackney —’
‘Bending yðar er mjög góð — þó eg gjöri mér ekki
von um neinn árangur af henni. Eg held við höfum
tekið ranga stefnu. Þeir eru ef til vill alls ekki i Lon-
don, og ef mér mishepnast í dag, verð eg að taka aðra
stefnu eftirleiðis’.
Ronald stakk kortinu sínu i vasa sinn og fór sv>
ofan og út, settist i vagninn sinn og ók til Hartney.
Diggs fór til Surrey, smjúgandi og læðandi eins og
köttur, en ánægjulegur á svipinn.
Loksins kom Ronald til Hackney, þar sem hann
ætlaði að leita þenna dag. Hann fann nokkra menn,
sem’ leigðu öðrum hús; en fékk engar upplýsingar. —
Siðari hluta dags sendi hann vagninn sinn til London
aftur, og kvaðst mundi koma með kveldlestinni, og
gekk svo í hægðum sínum eftir fáförulu götunni í átt-
ina til Hackney Downs.
En það kveld kom han nekki aftur á hótelið, og
engin orðsending kom frá honum heldur. Harton var
mjög kvíðandi og Diggs virtist einnig sorgbitinn.
Næsti dagur leið og ekki kom Ronald.
‘Þjófar hafa ráðist á hann’, sagði Harton og reyndi
að sýnast rólegur. ‘Getur vel verið að þeir hafi myrt
hann. Þvi fór eg ekki með honum? Vitið þér i hvaða
átt hann fór, Diggs?’
‘Nei, hr. Harton’, svarai hann; ‘en eg held að hann
hafi farið i áttina til Kensington. Hann sagðist vera
að byrja á nýrri aðferð ef lánið yrði ekki strax með
sér. ó, hvað ætli hafi orðið af honum? Minum vesal-
ings Ronald lávarði — mínum vesalings húsbónda?’
-Einn dagur ielð enn og engin fregn kom um týnda
unga manninn.
Innköllunarmenn Heimskringlu:
1 CANADA.
F. Finnbogason..................Árborg
F. Finnbogason..................Arnes
Magnús Teit.....................Antler
Pétur Bjarnason.................St. Adelaird
Páll Anderson...................Brú
Sigtr. Sigvaldason..............Baldur
Lárus F. Beck.........................Beckville
F. Finnbogason..................Bifrost
Ragnar Smith....................Brandon
Hjálmar O. Loftson..............Bredenbury
Thorst. J. Gíslason.............Brown
Jónas J. Húmfjörd.....-...............Burnt Lake
B. Thorvordsson.................Oalgary
Óskar Olson.....................Churchbrigde
J. K. Jónasson........................Dog Creek
.1. H. Goodmanson.....................Elfros
F. Finnbogason........................Framnés
Jolin Januson...................Foam Lake
Krlstmundur Sæmundsson.....'...'...'..Gimli
G. J. Oleson....................Glenboro
F. Finnbogason..................Geysir
Bjarni Stephansson..............Hecla
F. Finnbogason........................Hnausa
J. H. Lindal....................Holar
Andrés J. Skagfeld..............Hove
Jón Sigvaldiason................Icelandic River
Árni Jónsson....!...............ísafold
Andrés J. Skagfeld..............Ideal
Jónas J. Húnfjörð...............Innisfail
G. Thordarson...................Keewatin, Ont.
Jónas Samson..........................Kristnes
J. T. Friðriksson...............Kandahar
Thiðrik Eyvindsson..............Langruth
Oskar Olson.....................Lögberg
Lárus Árnason...................Leslie
P. Bjarnason....................Lillesve
Eiríkur Guðmundsson Lundar
Pétur Bjarnason
Eiríkur Guðmundsson Mary Ilill
John S. Laxdal
Jónas J. Húnfjörð Markerville
Paul Kernested
Gunnlaugur Hclgason Nes
Andrés J. Skagfeld
St. O. Eirikson Oak View
Pétur Bjarnason Otto
Sigurður J. Anderson Pine Valley
Jónias J. Húnfjörð Red Deer
Ingim. Erlendsson Reykjavík
Wm. Kristjánsson Saskatoon
Snmarliði Kristjánsson Swan River
Gunnl. Sölvason, Selkirk
Runólfur Sigurðsson Semons
Paul Kernested Siglunes
Hallur Hallson Silver Bay
A. Johnson
Andrés J. Skagfeld
Snorri Jónsson
J. A. J. Lindal...............Victoria B.C.
Jón SigurðsSon.................Vidir
Pétur Bjarnason................Vestfold
Ben B. Bjarnason...............Vancouver
Thórarinn Stefánsson...........Winnipegosis
ólafur Thorleifsson............Wild Oak
Sigurður Sigurðsson............Winnipeg Beach
Thidrik Eyvindsson.............Westbourne
Paul Bjarnason..................Wynyard
í BANDARÍKJUNUM.
Jóhann Jóhannsson..............Akra
Thorgils Ásmundsson............Blaine
Sigurður Johnson...............Bantry
Jóhann Jóhannsson..............Cavalier
S. M. Breiðfjörð...............Edinborg
S. M. Breiðfjörð...............Gardar
Elís Austmann..................Grafton
Árni Magnússon..................Hallson
Jóhann Jóhannsson..............Hensel
G. A. Dalmann..................Ivanhoe
Gunnar Kristjánnson___________Milton, N.D.
Col. Paul Johnson...............Mountain
G. A. Dalmann..................Minneota
Einar H. Johnson____________________Spanish Fork
Jón Jónsson, bóksali___________Svold
Sigurður Jónsson...............Upham