Heimskringla - 07.10.1915, Síða 1
RENNIE’S SEEÐSJ
_ HEADQUARTERS FOR SEEDS, PLANTS.y4J
• BULBS AND SHRUBS ViKJ
PHONE MAIN 3514 FOR CATALOOUE
Wm. RENNIE Co., Límited
394 PORTAGE AVE. - - WINNIPEG
Flowers telegraphed to all parts of
the world.
THE ROSERY
FLORISTS
Phoi\es Main 194. Night and Sun-
day Sher. 2667
2N0 DONAI.D STREET, WINNIPEG
XXX. AR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 7. OKT. 1915.
Nr. 2
Fréttir frá Stríðinu
Hálf millíón fallinna særðra og
fangaðra á 7 dögum.
Frá París kemur sú fregn, að sein-
ustu vikuna fyrir þann 29. sept. eða
frá 21.—27. sept., hafi tala fallinna,
særðra og fangaðra verið 500,000 —
«ða hálf millíón — á öllu svæðinu,
sem barist er á; en það er á 1500
niilna svæði, nefnilega frá Belgíu til
Svissaralands eða á vesturkantin-
um; á ítaliu frá Trent til Trieste;
meðfram Dóná á landamærum Serb-
anna; á Gallipoli skaga; i Armeniu
fjöllum, og Rússamegin frá Bukó-
vína og norður að Riga við Eystra-
salt.
Stórkostlegir bardagar á Frakk-
landi.
Hvað orusturnar snertir á Frakk-
landi, þá hafa þær verið miklu harð-
ari en fyrstu fregnir sögðu, einkum
á Campagne hæðunum. Þar stýrði
Joffre gamli öllu áhlaupinu; ekki
svo að hann riði með hersveitum sín
um eins og foringar i fyrri daga.
Hann var í búð einni við eldhúss-
borðið á bak við hergarðinn og
hópur aðstoðarmanna hans i kring-
um hann, og hélt hver þeirra hlust-
arpípu telefóns stöðugt við eyra sér,
og einlægt kallaði hver til Joffre,
livar þessi og þessi hersveitin væri
og hvað hún gjörði og hvernig henni
liði. En Joffre sat á stól við borðið
og einblíndi á kort stórt, sem þeir
höfðu fest á vegginn. Steinþegjandi
og rólegur sat hann þar og sagði
ekki orð, nema þegar hann skipaði
fyrir um hersveitirnar: hvað þær
skyldu gjöra, halda áfram eða vera
kyrrar eða hörfa undan, sem sjaldan
var. Enginn maður sá honum
bregða; en öllu stýrði hann þarna
og hreyfði herflokkana eins og tafl-
maður hreyfir peð á skákborði, og
sá liann þó engan.
I.íkt var þetta alt víti Dantes, þeg-
ar út var litið.
En mílum saman í skotgröfunum
og á allri bardagalinunni var leik-
iirinn nokkuð sóoalegur. Uin há-
nóttu stukku tugir þúsunda af blá-
klæddum hermönnum upp úr skot-
gröfunum, þegar skipunin kom frá
Joffre, og fóru á harða hlaupi í átt-
ina til skotgarða óvinanna. Var þó
óslétt leiðin, þvi að rigningar hinna
voðalegu sprengikúlna höfðu rótað
um öllu landlaginu, svo þar var
gjóta við gjótu og haugar á milli.
En þegar Þýzkir litu upp úr gröf-
um sinum, brotnum og sundurtætt-
um af sprengikúlnahríðinni, þá sáu
þeir við ljós sprengikúlnanna þykk-
ar og langar þústur manna koma æð-
andi að sér og blikaði á spegilfagra
byssustingina, — andlit sáu þeir
engin heldur ófreskjur einar, þvi að
allir höfðu grímur fyrir andliti og
voru draugalegir i hálfbirtunni. —
Þetta voru gas-grímur til að verja
Bandamenn fyrir eiturspýju Þjóð-
verja. Þarna voru Bandamenn lík-
astir illum öndum neðra heims, og
hart fóru þeir, svo að skjótt bar þá
að gröfum Þjóðverjanna.
En Þýzkir urðu að taka á móti og
þarna lenti vöðvunum saman. Um
grið var ekki að spyrja. Þeir hnoð-
uðust þarna um völluna og hröktu
livorir aðra, og einlægt féllu menn-
irnir; Skotin og köllin og ópin
blönduðust þarna saman og flokk-
arnir riðluðust; en Þýzkir urðu und-
an að láta, og gjörðist það á skömm-
um tíma, 10—20 mínútum. Þá lágu
þar hrúgur og hnappar dauðra og
deyjandi manna og hópar Þjóðverja
stóðu þar vopnlausir hér og hvar.
Þeir höfðu gefist upp; en Frakkar
voru í óða önn að búa um sig i gröf-
unum, sem þeir höfðu unnið, og
hlaða garða á þá brúnina, sem sneri
að Þýzkum. En í loftinu voru þykk
ský af púðursvælunni, sem lág yfir
öllu.
Þarna sem áhlaupin í Campagne
voru gjörð, réðist hægri og vinstri
fylkingararmur Joffre litlu fyrri,
kanske 2 til 3 mínútum, upp úr gröf-
unum; en þegar þeim var lent sam-
an við óvinina, fóru mið fylkingarn-
ar allar af stað.
Eitt af því átakamesta við þetta,
segir fréttaritari einn, að hafi vcrið
að sjá fjölda af stórskotaliði Þjóð-
verja. Þeir voru orðnir tryltir og
ærðir af dunum og dynkjum stór-
skotanna. Margir Frakkar, sem særð-
ir voru, sögðu svo frá, er þeir komu
aftur til Parísar til lækninga, að þeir
liefðu séð heila hópana af Þjoðverj-
um utan um fallbyssur sinar. Þeir
reyndu ekki til að skjóta af þeim.
Sumir voru heyrnarlausir og mál-
lausir; sumir nístu tönnum; aðrir
skulfu sem hríslur; en aðrir orguðu
og hljóðuðu í sifellu, — þeir voru
gengnir af vitinu.
Bandamenn hefðu getað komist
lengra áfram þarna, ef að Þjóðverj-
ar hefðu ekki verið búnir að byggja
hin rammbyggilegustu vigi á öðrum
hergarðinum. En fallbyssur Frakka
voru ekki búnar að brjóta þær með
skothríðinni. Þær voru búnar að
sópa virkin og grafirnar alt upp að
þeim. Nú þurfa þeir að taka til víg-
girðinga jiessara og fara með þær
eins og hinar fyrri; en það hlýtur
að taka nokkra daga, að fletja út
þessi virki og brjóta.
Þessa hina mestu hreðu gjörðu
Frakkar á einum 15 til 20 mílum.
En rétt austan við það svæði sendi
krónprins Þjóðverja 100,000 manna
á móti öruggum skotgröfum Frakka
í Argonne hæðunum; ruddust þeir
fram að sið.Þjóðverja í þéttum skör-
um og varð þá voðalegt mannfall i
liði þeirra, og lyktaði því svo, að
þeir voru hraktir heim til sin aftur.
— Sézt það nú fyrst, að skotfærin
cru farin að koma að gagni, sem
Bandamenn hafa haft svo mikið fyr-
ir að búa til í sumar.
Bretar taka Loos.
Bretar gengu svo hraustlega fram,
er þeir tóku Loos, þorp eitt norður
af Lens í Norður-Frakklandi, að það
mun lengi í minnum haft.
Það var á laugardaginn þann 25.,
þegar að eins var farið að skíma, að
þeir stukku upp úr gröfum sínum og
hlupu af stað. óvinirnir gátu ekki
stöðvað þá. Fyrst komu þeir að skot-
gröfum Þjóðverja utan við bæinn
Loos. Þeir óðu í gegnum þær og yfir
þær á augabragði; svo komu þeir í
bæjinn Loos á hælum Þjóðverja, er
uppi stóðu af þeim, sem í gröfunum
höfðu verið; þar varð hardagi á
strætunum og í húsunum með hyssu
stingjum og sprengikúlum, sem
inenn báru í höndum sér og hentu
livorir að öðrum. Þá tók við slétta,
þegar út úr bænum kom, hálf míla
upp á hæð eina, sem nefnd er liæð-
in 70. Þegar þeir.voru búnir að taka
bæjinn, þá héldu þeir á hlaupi yfir
sléttuna, jiví að þeir vildu ná hæð-
inni líka; enda komust þeir upp á
hana og voru farnir að fara niður
hinum megin. Einlægt hafði skot-
hriðin dunið á þeim; en jiegar þeir
komu yfir háhæðina, þá dundi sá
eldstraumur á þá, að þeir gátu ekki
komist lengra. Þjóðverjar höfðu
rutt þar upp garði úr leir og grjóti
og stóðu þar á bak við með raðir af
maskínubyssum, og skýtur hver af
þeim 500—600 skotum á mínútunni.
En svo þegar Bretar komu yfir liæð-
ina, blasti við þeim garðurinn og
straumur kúlnanna lék um þá og
hrundu þeir unnvörpum niður.
Þeir voru kallaðir aftur og tóku
undireins að grafa sig niður þarna,
Breta megin við hæðina. Þarna voru
með Bretum nýjar hersveitir, sem
aldrei höfðu í orustu komið fyrri.
En þeir reyndust sem alvanir her-
menn. Þeir liirtu ekkert, þó að kúl-
urnar þytu um eyru þeim og eld-
strokurnar úr fallbyssunum og liin-
um smærri byssum stæðu í augu
þeim; þeir stukku á gaddavirsnetin
og kliptu þau rólegir í sundur, þó að
félagar þeirra féllu helsærðir við
hlið þeirra.
1 sumum skotgröfum Þjóðverja
lá ferföld röðin Þjóðverja, —- allir
dauðir hver ofan á öðrum. í borg-
inni Loos hröktust Þýzkir inn í hús-
in og ofan í kjallarana. En Bretar
fóru á eftir þeim og fleygðu sprengi-
kúlum ofan um kjallaraopin. Húsin
þurftu þeir oft að brjóta, því að
Þýzkir skutu út um gluggana og um
göt á hurðum og veggjum. 1 einni
gröfinni þar fundu þeir þýzkan her-
foringja með telefón-hlustarpipu við
eyrað. Hann var að skipa félögum
sínum, hvar þeir skyldu skjóta.
Eftir orustuna við Loos, sem i
rauninni hélt áfram i fleiri daga,
voru Bretar dag eftir dag að grafa
Þýzka út úr rústum húsanna í bæn-
um og kjallaranna og úr skotgröfum
og holum, sem þeir höfðu grafið sér.
Þar voru líka hinir fyrri ibúar bæj-
arins, sem höfðu haldist við i kjöll-
urunum alt sumarið, þó að bardag-
inn stæði jafnt og þétt yfir höfðum
þeirra. Hinn 29. sept. voru þeir
búnir Bretarnir að grafa upp 23 fall-
bysssur þar, auk þeirra, sem þeir
fundu fyrst.
Einlægt voru flugmennirnir á
ferðum allan timann yfir höfðum
Þjóðvcrjanna, og er þeim mikið að
þakka, að Þýzkir gátu ekki sent lið
vinum sinum til hjálpar, þegar mest
lá á. Þeir flugu yfir járnbrautunum
suður af I.ille og sendu þar niður
sprengikúlur hvað eftir annað, en
eftir þeim brautum fluttu þýzkir að
lið og vopn úr Belgiu. Hinn 25. sept-
ember sprengdu þeir upp heila lest
þar, og daginn eftir eyðilögðu þeir
járnbrautina á fleiri stöðum. En á
laugardaginn sprengdu þeir járn-
brautarlest fulla af hermönnum og
aðra af matvælum og skotfærum. —f-
Stundum rendu þeir niður að Þýzk-
um, þar sem þeir voru í stórum hóp-
um og settu sprengikúlu í miðjan
liópinn, og urðu þær furðu raahn-
skæðar því að þær viktuðu 110 pd.
hver. Og svo kveiktu þeir i járn-
brautarstöðinni við Valenciennes og
var það meira mein Þýzkum en
nokkuð annað, því að þar var meg-
instöð þeirra, þar sem margar lestir
urðu að fara um.
Oft urðu flugmenn Breta að mæta
Þýzkum í loftinu og einlægt var
skotið á þá að neðan. En þeir flugu
hátt, 6000—7000 fet i lofti. Og stöð-
(Framhald á 5. bls.)
Kelly handtekinn.
Það var á laugardagsmorguninn,
að fregnin kom í blöðunum, að nú
væri hann loksins tekinn, þessi
listamaður í löstunum, hann gamli
Kelly, sem grunaður er um, að hafa
t'Iekað og féflett stjórn eftir stjórn,
liberala sem konscrvativa, og nú er
sakaður um 800,000 dollara fjár-
drátt, — eða hvað sem menn nú vilja
kalla það, þetta stórþjófamál út af
þinghússbyggingunum.
Hann var sakaður um: Meinsæri,
samsæri lil að svíkja út peninga og
að fá peninga undir fölsku yfirskitii.
Ilann hefir forðast Winnipeg nú
um langan tíma og verið mest í
Minnesota, og einkum í Detroit. En
nú var hirauni víst ekki farið að lit-
ast á blikuna og var á leiðinni, að
sagt er, að komast á öruggari stað,
þar sein hann yrði ekki framseldur,
þó að eftir honum væri leitað. Spæj-
arar stjórnarinnar i Manitoba voru
einlægt á eftir honum og mistu ald-
rei sjónar á honum, hvert sem hann
fór. Nú var hann kominn til Chi-
cago, og var sterkur grunur á, að
hann mundi ætla að komast til Suð-
ur-Carolina í Bandarikjunum, þvi að
þar eru lögin svo rúm, að tæplega
er hægt að fá þar nokkurn inann
framseldan, þó að glæpi hafi frainið.
Þarna var nú Kelly i Chicago og
var að bíða eftir lest, er færi suður,
og var á gangi á strætum borgarinn-
ar, og hefir kanske haldið, að nú
væri öllu óhætt, hann væri að
minsta kosti bráðum úr allri hættu.
En þá reið honum þruman að eyra.
Stjórnin hér sendi telegram suður
og heimtaði að hann væri tekinn
fastur fyrir sakir þessar þrjár, sem
hér eru að ofan greindar. Þetta var
gjört og kom hann engri ábyrgð fyr-
ir sig og var tekinn i hald þangað
til lögin gjörðu út um það, hvort að
hann skyldi framseldur eða ekki.
Þeir fóru undir eins suður: R. A.
Bonnar, lögmaður og sækjandi í
málum þessum, og J. C. McRae, Com-
missioner of Police fyrir Manitoba.
En það er ætlan manna, að þeir
liafi jafnharðan farið suður lög-
mennirnir W. A. T. Sweatman og
Edward Anderson; þeir hafa verið
lögmenn fyrir Kelly í málunum alt
til þessa. — Þessir menn fundust
hvergi í borginni á föstudagskveld-
ið, og var það ætlun manna, að þeir
hefðu suður farið.
Búast má við, að þarna verði
harður og langur bardagi um að fá
Kelly norður. Hann fer ekki hingað
af fúsum vilja og verður ekkert til-
sparað í sókn eða vörn. Kelly haftSi
verið prúðbúinn, er hann var tekinn
og lét þetta ekkert á sig fá. Hafði
hann verið skrafhreyfinn og talað
um alla heima og geima við þá, er
gættu hans, nema um mál þetta. —
Undireins fékk hann lögmenn og
ráðgaðist um málin við þá.
Sagt er að Kelly hafi nú 8 lögmenn
sér til hjálpar í Chicago. Búist er
við, að það taki eitt eða tvö ár, að fá
Kelly framseldan, ef hann á annað
borð verður skyldaður til að koma.
PENINGARNIR FENGNIR.
Lánið stóra, sem Bretar og Frakk-
ar komu til að fá hjá Bandarikja-
mönnum er nú gengið i gegn. Hinn
4. október lýsti Morgan því yfir, að
engin tilboð yrðu tekin til greina
eftir kl, 10 fyrir hádegi hinn 5. okt-
óber. Og hinn 5. október að morgni
sögðu blöðin, að þeir liefðu ekki get-
að þegið öll tilboðin, Bandamenn,
svo að munaði um 50 milliónir. Alls
var lánið 500,000,000 dollara. —
Þetta sýnir, að peningamennirnir
búast ekki við því, að Frakkar og
Bretar verði gjaldþrota bráðlega.
Um Vilhjálm Stefánsson
Blaðið New York Post segir: Á
fyi'ri dögum fóru menn í landaleit
á skipum, og þá réði stýrimaður
(kapteinn) ferðinni. En nú fara
11109111 á landi, og þegar landaleitar-
maðurinn kemst af isnum upp á
þurt land, þá er hann öruggari og
óhultari. Nú gctur Stefánsson haft
stöðvar sinar á landi og getur því
farið eins langt og fljótara, en með-
r* hann var á ísunum seinustu tvö
;®n. Hann hefir nýtt skip (‘Potar
Ilear’), og hann hefir bætt við sig 5
mönnum, og hefir vistir, sem nægja
honuin til 1917. Og með atorku
þeirri og dugnaði, sem hefir gjört
hann heimsfrægan mann, þá ætti
hann að geta komið furðu miklu til
leíðar og hæta nýjum löndum við
hin gömlu á heimskortinu og flák-
um miklum við Canada-veldi.
Skall hurð hælum nærri
Herforingi einn nýkominn af vig-
völlunum til Parísar segir Prinsinn
at Wales hafa verið hætt kominn.
Hann var að keyra í autó nálægt
I.oos, þegar gauragangurinn varð
þar mestur núna um daginn. Orust-
an stóð sem hörðust og nam prins-
inn staðar við hól einn litinn og
sté úr autófírtt og gekk upp á hólinn,
þvi hann var forvitinn og vildi sjá,
hvernig slaguiHin gengi. Hann stóð
þar stundarkorn og horfði á bardag-
ann og hefir verið í skotmáli, ef ó-
vinirnir hefðu vitað af honum. En
alt í einu kom þar sprengikúla og
féll á autóið, rétt fyrir aftan prins-
inn og muldi það mélinu smærra og
með þvi ökumanninn, sem sat í sæti
Sást hvorki tugga né tætla
eftir af honum.
Svo var farið að ávíta prinsinn
fyrir dirfsku þessa, að stofna sér
þannig í hættu. En hann var fljótur
að svara: “ó, það gjörir ekkert til,
— eg á nóga bræður'.”
Synir Kellys reiðir.
Blöðin segja, að synir Kelly séu
einnig i Bandarikjunum. Þeir komu
til St. Paul og fundu þar fréttarit-
ara og lásu óspart yfir stjórninni
hinni nýju i Manitoba.
Þeim fórust meðal annars þannig
orð við fréttaritarann:
Lögsóknin á móti föður okkar er
hlægileg. Það er ofsókn en ekki lög-
sókn. Ibúarnir í Mexico njóta fyllra
og meira réttlætis af hendi Carranza
og morðingja lians, heldur en íbúar
Manitoba.
Ástæðan til þess, að Thomas Kelly
og við synir hans erum nú ekki i
Manitoba eða Canada er sú, að við
höfum ekki viljað mæta fyrir Math-
crs nefndinni fyrri en lögin eru bú-
in að skera úr því, hvort nefnd sú er
lögum samkvæm.
Það er uppspuni einn, að við sé-
um að fela okkur. Faðir okkar hefir
aldrei reynt að leyna þvi, hvar hann
væri og ekki heldur við. Eða er það
líkt því að maður sé að fela sig, —
þegar faðir okkar fór til NewYork og
Chicago og skráði nafn sitt á beztu
hótelum borganna?
Sakirnar, sein á oss eru bornar,
koma frá pólitiskum óvinum okkar,
sem algjörlega eru sainvizkulausir.
Faðir okkar sagði A. B. Hudson,
Attorney-General fyrir Manitoba, að
hann skyldi koma til St. Paul með
24. stunda fyrirvara, reiðubúinn að
verja framsal sitt til Manitoba, eða
hverja sök sem á hann væri borin.
Hann gjörði enga tilraun til að fela
sig.
Ástæðan til þcss, að hann var tek-
inn í Chicago var sú, að þar var
hann fjarri vinum sínum. Hann á
eignir i Minnesota og vildi heldur
kjósa að verja sig i St. Paul, þar sem
alt var undir það búið. Það var
yfirlagður prettur þeirra að láta
taka hann i Chicago.
-—--------------------_®næ^jörn OJson jan ____
Eox 453 ' ----
Kitchener segist taka mennina í herinn
hvort þeir vilji það eða ekki.
“EG VEIT, HVE MARGA MENN EG ÞARF”, sagSi
Kitchener viS verkamannaforingjana, sem komu aS finna
hann rétt nýlega.
“EG VEIT HVAÐ ÞEIR HEITA OG EG ÞEKKI
TÖLURNAR Á DYRUM HÚSA ÞEIRRA, OG EF AÐ
ÞEIR KOMA EKKI AF FRJÁLSUM VILJA, ÞÁ FER
EG OG SÆKI ÞÁ”.
LÁTIÐ ÞIÐ MIG FÁ SVO MARGA MENN, SEM
EG ÞARF OG SKOTFÆRI NÓG, ÞÁ LEIKUR SIG-
URINN i HÖNDUM VORUM”.
Það var sagt, að hans hluti af
fjárdrættinum við Jiinghússbygging-
arnar hefði verið 81,200,000 á einn-
ar millíón doll. verki. Skal fljótlega
sýnt fram á, að þessi ákæra nær alls
engri átt.
Þegar byggingaméistari stjórnar-
innar fór að meta verkið, sem við
höfðum látið vinnafþá mat hann alt
vitlaust. Hann sagði að alt verkið
væri einnar millión dollara virði.
En þó að svo hefði nú verið, þá gat
fjárdrátturinn ómögulega verið yfir
600 þúsundir dollara. En á sínum
tima skulum við sýna, að verkið var
$1,600,000 virði, og við unnum þar
fvrir liverju centi.
Þeir beittu þarna við okkur hinni
skitnustu og grimmustu aðferð, með
lögin og valdið að þaki sér. Og okk-
ur er ómögulegt að jafna á þeim. —
Hudson og flokkur hans stendur nú
í skjóli laganna, verndaðir af þeim
eða sínu cigin valdi (The Crown).
Við getum ekki lögsótt þá, — getum
ekki náð rétti vorum.
Við erum að berjast út af yfir-
heyrslu Mathers nefndarinnar fyrir
leyndarráði Breta (Privy Council),
og hyggjum sókn málsins á stjórnar-
skránni. Mathers nefndin hefir liald
ið áfram starfi sinu, án þess að taka
nokkurt tillit til reglu og viðtekinni
venju, þegar sannanir eru fram
hornar.
1 nefndinni eru þrír leikmenn, er
Attorney-General Manitoba hefir til
jiess kosið. Hún er engin dómstóll
(Court) og getur ekki tekið sér
dómsvald.
Mótstöðumenn okkar hafa leyni-
lega gefið út á kontrakt að ljúka við
byggingu þinghússbygginganna. —
Kontraktinn fékk félag eitt í Winni-
peg, þrátt fyrir það, að við höfum
góðan og gildan samning á þessu, að
öllu leyti lagalega fenginn. — Þeir
veittu félagi þessu kontraktinn, án
þess að sýna, að okkar samningur
væri ólöglegur eða ónýtur.
En hvenær sem þeir vilja finna
oss, þá skulum við ekki hlaupa frá
þeim, heldur biða.
Sprengikúlur smíðaðar í
Canada.
Brctar eru að panta 50 millíón
dollara virði af fallbyssum hér i
Canada; og að auki segja blöðin að
útgjört sé nú um það, að fá héðan
80 millíón dollara virði af sprengi-
kúlum. Þarna koma 130 millíónir
dollara inn i landið.
Canadamenn smíðuðu töluvert af
sprengi'kúlum í vetur, og dugðu þær
Bretum svo vel, að þeir fóru að kalla
Canada: “Our Lady of the Shells”
(Skeljafrúna okkar). Þær hinar
fyrri sprengikúlur voru samt miklu
minni. Þessar eiga að vera stórar
nokkuð, 9—12 þumlunga skeljar
(sprengikúlur). Hafa verksmiðjurn-
ar austurfrá aukið svo mannafla og
áhöld, að þær geta smíðað 200,000
fleiri á mánuði en áður. Alls geta
þær nú smíðað 800,000 á mánuði.
F.n til þess að smíða sprengikúlur
þessar, sem nú eru pantaðar, þurfa
þær 170,000 tons af stáli. Um 150
verksmiðjur fást nú við þetta hér í I
landi.
Loftskeyti.
Það hefðu þótt lygar eða skáld-
skapur fyrir nokkrum árum, ef
menn liefðu farið að segja einhverj-
um, að tala mætti þráðlaust við
irenn yfir þvera Ameriku, þar sem
hún er breiðust. En nú hafa menn
þó gjört iniklu bctur, því að menn
hafa talað saman gegnum loftið —
þráðlaust — frá Arlingtonsstöðvun-
um við Washington og vestur yfir
alla Ameríku og vestur til Hawaii
eyja. En það eru 4,600 milur. Áður
þótti furða hin inesta, að manns-
röddin skyldi flytjast á svipstundu
frá Arlington til Mare Island i Cali-
forniu og voru það 2,500 mílur. —
Nú var það um kveldið hinn 1)0. sept
að menn töluðu saman frá Arlington
í Virginíu, sunnan við Potomac-
fljótið, rstt a móti Washington, og
til Pearl Harbor á Havaii eyjum.
Þetta er lengri vegur, en þó talað
væri ífó New York til Lundúna,
Parisar, Berlínar eða Rórns. Manns-
röddin þyrfti fyrst að ferðast yfir
fjöll og dali, fljót og sléttur Banda-
rikjanna og siðan yfir hið geysi-
niikla haf frá Californiu til Havaii.
lJetta er gjört, þó að fáir skilji. Og
fljótt gengur það sem hugur manns.
Loftskip og flugdrekar.
Nú er mikil eftirspurn eftir flug-
drekum af öllu tagi, smáum og stór-
um flugdrekum, sem bera 10 menn
og 20 menn. Flugdrekum með 80
milna ferð, 100 mílna, 120 og 140
milna ferð á klukkutimanum. Flug-
drekum með einföldum, tvöföldum,
þreföldum vængjum. Allstaðar fer
þörfin óðfluga vaxandi. 1 öllum
heiminum heimta menn fleiri flug-
dreka, og þó að farið sé að smíða þá
hjá smáum þjóðum sem stóruin, þá
er svo langt frá að hægt sé að smíða
IiÓg.
Mr. Lawson, forseti flugmannafé-
lags í New York, sem hefir verið að
tela um, að stofnsetja verksmiðjur
til þess að smiða flugvélar hér, seg-r
að áður en ár sé liðið þurfi þjóðir
þær, sem nú eru í striði, 50,000
nýja flugdreka; og innan 5 ára hálfa
millíón, eða 500,000. Og þetta er
alt vígdrekar til að berjast á.
Vefnaður steinaldar-
manna.
Einhverjar hinar elztu leifar af
bústöðum manna, að undanteknum
liellrum, hafa fundist í Svissara-
landi, i vötnum úti. Þeir höfðu rek-
ið staura niður í vötnin ‘á Ieirum,
þar sein var mátulega djúpt, og svo
hundu þeir með tágum þvertré ofan
a staurana og lögðu palla á. Þetta
gjörðu þeir til þess að vera óhultari
fvrir óvinum sinum, viltum dýruin
og mönnum, og svo var það svo
lundhægt fyrir veiðimennina. Þeir
bundu eintrjánings og barkarbáta
sína þarna við stólpana. Þakmynd
höfðu þeir yfir bústöðum þessum.
Þarna bjó heill hópur manna saman.
Leifar steinrunnar hafa fundist
af bústöðum þessum, bæði í Sviss-
aralandi og viðar, jafnvel norður 1
Svíþjóð ekki fyrir löngu. Þetta vita
menn að hefir verið á steinöldinni,
af leifum þeim, sem menn hafa fund
ið í bústöðum þessum.
En nú hafa menn nýlega í vatn-
inu við Robenhausen i Svisslandi
fundið bindi eftir þá af þráðum úr
flaxi og þræði úr grófu lini, og eru
strengirnir sumir snúnir. Þar var og
prjónles og spunasnældur og vefjar-
steinar cða lóð og lijól til að snúa
strengi eða þætti i kaðla eða reipi.
Þetta sýnir, að fólkið, sem bjó á
staurum þessum, kunni að spinna
og vefa hör og hamp til klæða og
c'.úka sér til skýlis, þó að vefnaður-
inn væri einfaldur. Þetta var á
liinni yngri steinöld, og er afarlang-
ur tími síðan, svo að það skiftir
tugum þúsunda ára.