Heimskringla - 07.10.1915, Page 2
Bl-S. 2
HEIMSKRINGLA.
WINNIPEG, 7. OKTÓBER 1915.
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI.
Steinolía.—Fiskifélag Islands hefir
gengist fyrir þvi, að fá steinoliu-
farni sendan til Islands frá Banda-
ríkjunum. Eiga ýms félög í farmin-
um, þar á meðal verkamannafélagið
Dagsbrún og Iðnaðarmannafélagið.
Fréttir úr ölfusi.—Maður þaðan
sagði Vísi þetta i fréttum úr sinni
sveit: Töðuheyskapur ágætur. Star-
arheyskapur í Arnarbælisiorum hef-
ir hepnast með langbezta móti. I
sumar voru þær svo þurrar, að farið
var um þær með vagna og heylestir.
Enda eru þær nú næstum alteigað-
ar. Eru bændur því orðnir vel byrg-
ir fyrir kýr. Mikið hey liggur úti.
Slægjulönd öll næstum alslegin. —
Heilsufar gott.
Fréttir frá Húsavík, símaðar þaðan
28. ágúst: Hér hefir ekki gefið á
sjó í nokkra daga sökum hvassviðra.
Lítill afli, þó á sjó gefi. Tvo báta
vantar héðan — hvorn með þrem
raönnum — og er i dag verið að leita
þeirra. Sláttur gengur all-vel, en
íremur illa sprottið. Annars tiðinda
laust.
Trúlofun. — Nýtrúlofuð eru Dóra
Þórhall6dóttir biskups og guð-
fræðiskandídat Ásgeir Ásgeirsson.
Kolin á íslandi.—Þeir komu að vest-
an 1. sept. á skipinu íslandi kola-
nemarnir úr Stálvík. Segja þeir, að
kolalögin í námunni fríkki eftir því,
scm innar dragi, séu fastari í sér og
leirlögin á railli þeirra skiljist betur
frá þeim en áður.
Frá Blönduósi, 2. sept.—Bryggjuvið-
bótarbyggingin er komin langt á
leið og gengur ágættega. Verður
bryggja þessi til ómetanlegs gagns
fyrir staðinn og héraðið. Tíð er á-
gæt og ágætur fiskafli.
Cr fíangárvallasöslu er sögð önd-
vegistíð. Heyskapur ágætur, jafn-
vel meiri en undanfarin ár. Sigurður
á Selalæk búinn að heyja á þriðja
þúsund hesta.
170 dilkum austan úr Flóa var slátr-
að hér í sláturhúsinu núna í vik-
unni. Slátrin voru seld á kr. 1.20.
Flokkaskifting á þinginu segja fróð-
ir menn að sé þannig: Heima-
stjórnarflokkur 15 þingm., Stjórnar-
flokkur 9, Sjálfstæðisflokkur 8, og
Bændaflokkur 7, og 1 þingm. utan
flokka — þ. e. Skúli Thoroddsen,—
segir Vísir.
Síldarverðið á erlendum mörkaði
er nú komið upp í 48 aura kgr.
Fiskur var nýlega seldur í Reykja-
vík fyrir 15 aura pundið; en eftir
að nokkuð hafði verið selt með því
verði var hann færður niður í 10 au.
pundið, þar eð fiskurinn var ekki
nýr.
Sildarafli fgrir norðan er nú orðinn
tregur; þó kom Skallagrímur ný-
lega með góðan afla og mun vera
búinn að fá nær 7000 tunnur. Alls
hafa skip félagsins Kveldúlfs fengið
um 19,000 tunnur.
Skyrkyllar.—Sveitamaður var ný-
lega með stóra og mikla skyr-
kylla við búðardyr í Reykjavík. Bar
þar að daglaunamann. Sá, sem að
kom, innir að því, hvað skyrið kosti
núna. Sveitamaðurinn svarar því
engu. Hann þrifur kyllana með
Grettismóð og vindur sér upp húð-
artröppurnar. Hikar svo á þrep-
skildinum og segir: “Það er selt.
Annars er það svo dýrt nú, að al-
menningur mun ekki kaupa það”.—
Með það skildu þeir.
Hafnarvörður fíeykjavíkur er kos-
inn af bæjarstjórninni Guðmund-
ur Jakobsson trésmiður, eftir marg-
ítrekaða kosningu.
Kássuferðir.—Samgöngurnar eru nú
ekki betri en fyrri daginn. Gufu-
skipafélögin láta skip sin koma til
Reykjavíkur því nær á sama tíma.
Um miðjan ágúst komu 4 póstskip
sama daginn og Island fáum dögum
síðar. En nú koma engin skip til
Rvíkur fyr en um miðjan sept. og
þá 4 í röð: Pollux 10., Sterling 12.,
Ceres 14. og Gullfoss 16.
Bifreiðataxti i fíeykjavik.—Eftirfar-
andi fyrirspurn og svar fræðir um
bifreiðataxta í Reykjavík: Getur
Vísir frætt mig á. hvort bifreiðarnar
hér í bænum hafa ákveðna taxta
fyrir ferðir til staða hér í nánd, og
hvort eftirfarandi gjald sé honum
samkvæmt? Eg fór í gær — sunnu-
dag — ásamt 3 persónum öðrum
(við vorum 4) í bifreið (frá Gunn-
ari Gunnarssyni, að eg held) upp í
Baldurshaga. 4 manns er fullfermi í
bifreið. Mikið er um ferðalag upp í
þetta svæði á sunnudögum, svo að
bifreiðar eru á þeysingi fram og aft-
ur. Við spurðum ekki fyrirfram um
það, hvað farið kostaði (upp að
Baldurshaga og til baka) og þótt-
umst því til knúðir að borga það.
sem bifreiðarstjóri krafði okkur um,
er við komura aftur til bæjarins, en
það var tuttugu krónur — fimm kr.
fyrir manninn! — Svar. Bifreiöafé-
lag Reykjavíkúr tekur 9 kr. fyrir
bifreið upp að Baldurshaga, fram og
aftur, viðdvalarlaust; en 4 kr. um
klukkutímann meðan staðið er við.
Ef menn vilja dvelja um lengri tíma
á staðnum, geta menn látið bifreið-
ina fara til Reykjavíkur og sækja
rig seinna og kostar ferðin þá 14 kr.
— Þetta er taxti bifreiðafélagsins;
en hvort nokkur almennur taxti er
til, er oss ókunnugt um.
Símastarfsmenn á tslandi hóta verk-
fulli.—Þann 26. ágúst barst stjórn-
inni bréf frá öllum símritum og
símameyjum landsins þess efnis, að
þessir starfsmenn heimta 30 prósent
kauphækkun á núverandi launum;
en fáist það ekki, hótar þetta fólk
verkfalli að tveim dögum liðnum,
eða 28. ágúst. — Stjórnin kvaðst
ekki geta bætt úr þessu upp á sitt
eindæmi, en lofaði að leggja til við
þingið, að þessum kröfum yrði sint
r<ð nokkru; og samdist svo um, að
símafólkið héldi áfram starfi i von
um að þingið hækkaði laun þess.—
Mannalát. —
Halldór Jónasson, sonur sira Jón-
asar á Hrafnagili, dó á Vífilsstaða-
hælinu þann 27. ágúst.
Þórður inagnússon, bóndi í Haga-
vík í Grafningi, andaðist úr lungna-
bólgu 28. ágúst. Var hann velmet-
inn bóndi og starfmaður mikill.
Jóhanna ólafsdóttir, kona í Hellna
hóli í Rangárvallasýslu, réði sér
bana nýlega með því að skera sig á
háls með rakhníf. Hafði verið geð-
veik undanfarið.
Guðrún Ámundadóttir, 76 ára að
aldri, andaðist í Reykjavík 2. sept.,
inóðir Ámunda kaupmanns og
'1 ryggva trésmiðs.
— (Frettirnar hér að framan eru
að mestu tcknar eftir síðustu ágúst-
og fyrstu september-blöðum Vísis).
Gjafir til kirkna. — Sóknarnefnd
Grindavíkurkyrkju beður þess
getið, hve myndarlega sóknarmenn
hafa gefið til hinnar nýju kyrkju
sinnar, auk vígslugjafarinnar, er
Finar Jónsson, kaupmaður í Garð-
húsum, gaf fé til altaristöflunnar,
sem Ásgrímur málaði: Kaupmaður
Einar G. Einarsson í Garðhúsum gaf
vandað harmóníum; Dagbjartur Ein
arsson á Velli gaf messuskrúða. Þá
gáfu safnaðarmenn með almennum
samskotum tvo Ijósahjálma og sex
vegglampa; og nokkrar konur í söfn
uðinum gáfu altariskJæði með altar-
isdúk og tvo altarisstjaka og flösku
á altari.
Eins biðyr sóknarnefnd Breiða-
bólsstaðarkvrkju í Vesturhópi þess
getið, að Kristófer bóndi Pétursson
á Stóruborg hafi gefið kyrkjunni
vandað harmóníum, sem átt hafði
látin kona hans, Steinvör Jakobs-
dottir—(Nýtt kyrkjublað).
Landsspítali er víst tvímælalaust sú
stofnun til þjóðþrifa, sem nú er
beðið eftir ineð mestri eftirvænt-
ingu. Mun öllu, sem gjört er til að
ýta undir það mál og halda því vak-
andi, tekið með fögnuði. — Það er
skemst á að minnast, að Geir Zoega
gaf stórgjafir til Heilsuhælisins á
Vífilstöðum, þar sem hann ásamt
öðrum erfingjum Kristjáns sál. Jóns-
sonar gaf 10,000 kr. sjóð til styrktar
sjúklingum þar. Sá sjóður mun nú
vera rúmar 11,000 kr., og hefir þó
mörgum hjálpað síðan hann var
stofnaður. Þá gaf hann og c. 5,5c,
kr. til útbúnaðar (húsgagnakaupa o.
s. frv.) á iii herbergjum á Heilsu-
hælinu. — Nú hefir þessi sami mað-
ur stofnað nýjan sjóð á afmæli sínu
26. maí í vor til styrktar fátæku
fólki, sem heilsubótar þarf að leita
á væntanlegum landsspitala, einkum
þeim Reykvíkingum, sem þurfa
ineiri háttar skurðlækninga. Aðrir
landsmenn þó ekki útilokaðir. Verði
landsspitali ekki tekinn til starfa 26.
mai 1920, má verja % af árstekjum
sjóðsins á sama hátt til styrktar
sjúklingum á öðrum spitala í Rvík.
Sjóðurinn er nú 2000 kr. með rent-
um frá 26. maí þ. á. — Sjóðurinn
verður i vörzlum gefanda meðan
hans nýtur við og þangað til
að byrjað verður að nota tekjur
hans samkvæmt tilætluninni, og
grunar kunnuga, að hann rnuni á-
vaxtast drjúgum, rúmlega um vext-
ina, næstu árin, ef gamla manninum
auðnast að lifa nokkur ár enn, sem
vér vonum allir.— (fsafold).
Skotfærafalsanir í Danmörku.—Það
hefir komið upp, að skotfæri hafa
verið fölsuð allmikið í Danmörku.
Varð þess vart í birgðum stórskota-
liðsins, að púðrið hafði verið tekið
úr skothylkjunum, en þau fylt með
sandi og ýmsu rusli i þess stað.
Skyndirannsókn var gjörð á skot-
hylkja birgðunum og kom þá í ljós,
að því er hermt er í dönskum blöð-
um, að um “mjög ískyggilega fölsun
sé að ræða”. — Þó tr þess ekki get-
ið, að fundist hafi meira en 20—50
skothylki, en af þvi lciddi, að mjög
nákvæm rannsókn á öllum birgðun-
um var látin fara fram.
Engum getum er að því leitt, af
hvers völdum þessi svik séu, eða á
hverri hátt þau hafi orðið fram-
kvæmd.
PlSTLAfí FfíÁ VESTUfítSLEND-
INGUM t “NÍ'JU KlfíKJU-
BLADI.
Um skilnað ríkis og kyrkju.—Vest-
ur-fslendingur ritar blaðinu: Þaö
væri auma glapræðið, ef íslending-
ar tækju upp á þvi, að skilja ríki og
kyrkju. Ekkert annað en .ækkingar-
leysi á svokölluðum fríkyrkjum,
sem kemur þeirri flugu inn, að þar
blómgist kristindómslífið betur.
Böndin verða þar rammari, en nokk
ur ríkisbönd. Prestarnir verða þar ó-
frjálsir vinnumenn safnaðanna, háð-
ir dutlungum einstakra manna, sem
miklu ráða. Kyrkjuþingin miklu af-
skiftasamari uin hagi safnaðanna,
heldur en til dæmis alþingi. Ein-
stakar stefriur verða rammari, skoð-
í.namunur allur gjörir klofninga.
Kostnaður gífurlegur, að uppihalda
söfnuðum, máske tveim til þrem á
sama staðnum, vegna einhverrar
stífni. Prestsþjónusta engin á öðr-
um stöðum. — Erfiðleikar neyða
menn til að “snöggsjóða” presta
handa sér, og þeir prédika svo allan
hleypidómagróður hálfmentunarinn
ar, sem vex upp í þeim sjálfum. Eg
er viss um að ekki að eins kyrkja og
kristindómur hefði stórskaða af
skilnaði ríkis og kyrkju, heldur líka
þjóðin, skoðað frá algjörlega “ver-
aldlegu” sjónarmiði — peninga-
skaði, félagsskaði og menningar-
tjón.
Barlómurinn. — Ritað vestan um
haf: Hér kemur það ekki í blöð-
um, þó að eitthvað slettist á bátinn
með tíðarfar eða annað slíkt. Það
mundi illa skemma auglýsinguna,
rétt eins og kaupmaður laumaði því
inn í kornauglýsingu, að ormur
hefði i þvi fundist. Það er öðruvísi
að sjá blöðin að heiman með allan
barlóminn. Það er kvöl að taka upp
blað vegna þess. Við sem erum að
reyna að stríða við að halda fram
gamla landinu okkar, fáum ávalt
blöðin að heiman á móti okkur: Á
hverju vori kveður við um lamba-
dauða, hverju sumri um grasleysi,
hverju hausti um hey sem hafi orðið
úti og hverjum vetri um jarðbönn
og yfirvofandi horfelli. Eg held að
þetta sé eitt af stórmeinunum heima,
og þarf að komast í fjarlægð til að
sjá það. Menn segja að nafnið ‘^s-
land” spilli fyrir landinu, og það^r
máske ekki fjarri sanni. En helmingi
meira spillir þessi óslitni barlóms-
jarmur, sem ár og síð gnauðar frá
íslandi. Einhver, sem á er hlýtt,
ætti að taka ofan í blöðin og þjóð-
ina fyrir þetta. — Ef ekki þarf ann-
að en að venja sig á silalegt göngu-
lag til að verða silalegur í skapi, og
hratt göngulag til að verða ör og
framgjarn, þá má nærri geta, hvaða
heilbrigði þjóðin syngur inn i sig
með þessum sultarsöng, auk áhrif-
anna sem það hefir á aðra út í frá
sem lesa.
Frá Alþingi.
fíÝfíTÍBAfí-VOFAN.
Siðan Hkr. kom út síðast hafa oss
borist blöð að heiman (ísafold og
Vísir). Bera þau ineð sér, að frekar
hafi verið róstusamt á þingi um
mánaðamótin ágúst og september,
sem stafað hefir á yfirborðinu aðal-
lega út af frumvörpum, sem “vel-
ferðarnefndin” (sem ísafold nefnir
einnig “bjargráðanefnd”) hefir lagt
fyrir þingið, til að ráða bót á hinni
yfirvofandi hættu, sem verkafólk og
lægst launuðu embættismenn eru i
út af dýrtíðinni, sem orðin er í
landinu. í síðasta blaði skýrðum vér
frá kosningu nefndar þessarar, sem
á að starfa með stjórninni til að af-
stýra ýmsum vandræðum, sem land-
inu stafar af Norðurálfustriðinu
mikla. í nefndinni eru: Guðm. land-
læknir Björnsson, Jósef Björnsson,
Jón Magnússon, Sveinn Björnsson
og Skúli Thoroddsen. Nefnd þessi-
lagði fyrir þingið (neðri deild), frv.
sem stefna að því, að láta framleið-
cndur landsins (landbændur og
fiskiútvegsmenn) borga nokkuð af
hinu óeðlilega háa verði, sem þeir fá
íyrir afurðir sínar, til landssjóðs í
útflutningstollum, en stjórnin átti
svo aftur að verja þeim peningum
til dýrtíðarhjálpar handa þeim íbú-
um landsins, sem ekki verða þessa
gróða aðnjótandi, en verða að kaupa
öllar lifsnauðsynjar með mjög mikið
hærra verði, en að undanförnu. í
i’æðu sinni í þinginu um þetta efni,
sýnir Sveinn Björnsson fram á, með
skýrum töluhi, að allar fæðutegund-
ir, sem landsmenn nota, hafi hækk-
að sem svarar 40 prósent, og hækk-
un sauðakjöts muni nema um það er
vetrar um 50—60 prósent; kol hafi
liækkað um 73 prósent, og öll vefn-
aðarvara til mikilla muna; en kaup
verkamanna hafi lítið hækkað hlut-
fallslega. Eftir að hafa skýrt itar-
lega alla málavöxtu, endar þingmað-
urinn ræðu sína á þessa leið:
“1. Allar nauðsynjar hafa á síð-
astliðnu ári hækkað um 40 prósent
eða meira.
2. Kaup alls almennings, sem ekki
framleiðir sjálfur, hefir annaðhvort
ekkert hækkað, eða þá um litilræði
eitt.
3. Framleiðendur hafa grætt stór-
kostlega fram um tilkostnað sinn við
framleiðsluna, án nokkurrar sér-
stakrar vinnu eða fyrirhafnar, svo
mjög, að þá munar ekkert um, að
missa af dálitlu af gróða sínum til i
að hjálpa hinum til að standast dýr-
tiðina.
Löggjafarþingið situr á ráðstefnu
og er jietta alt kunnugt. Og það get-
ur bætt úr þessú. Hverja aðferð skuli
hafa, má deila um. Aðferðin er eigi
mér né öðrum kappsmál.
Nú vil eg spyrja :
Getum vér skilist á þessu þingi án
þess að leysa úr þessu vandamáli,
því langstœrsta og alvarlegasta, sem
fyrir þinginu hefir legið?
Getum vér það sámvizkunnar
vegna? Getum vér það skyldunnar
vegna? Getum vér það sóma þings-
ins vegna? Getum vér.það vegna vel
ferðar þjóðarinnar?
Mitt svar er nei við öllum þessum
spurningum. Eg vona að svar hins
háa alþingis verði hið sama, er það
tekur mál þessi til rólegrar en fljótr-
ar yfirvegunar og ályktana”.
En neðri deild tók þessu máli
þannig, að hún feldi frumvarpið um
útflutningstoll á afurðum framleið-
cnda strax við 1. umræðu og neitaði
að setja nefnd í það. ísafold fer um
þetta hörðum orðum og kveður það
ganga þing-hneyksli næst, og ásakar
Bændaflokkinn, sem staðið hafi í
þéttri fylking gegn frumvarpinu. —
Þetta gjörðist í þinginu 31. ágúst.
Daginn eftir hélt velferðarnefndin
fund og samþykti eftirfylgjandi til-
lögu: —
“Út af undirtektum þeim, sem
urðu í neðri deild í gær undir til-
lögur nefndarinnar um tekjuauka
handa landssjóði í einhverju formi,
jjá sér nefndin sér ekki annað fært
en að segja nú þegar af sér starfi
jiví, sem alþingi hefir falið henni,
samkvæmt 1. gr. laga 21. f. m.”
Fjórir nefndarmenn skrifuðu und-
ir samþyktina, þeir Guðm. Björns-
son, Jón Magnússon, Jósef Björns-
son og Sveinn Björnsson. En fimti
nefndarmaðurinn, Skúli Thorodd-
sen, hefir aftur tekið jiað ráðið, að
mótmæla aðförunum í neðri deild
með því að segja sig úr Sjálfstæðis-
flokknum.
En 4. sept. var fundur haldinn i
sameinuðu þingi og lýstu þá flestir
sem töluðu (nema Sig. Eggerz, sem
sagði að sinn flokkur hefði nú mist
málsvara sinn i nefndinni, þar sem
Sk. Th. hefði sagt sig úr flokknum,
og kvaðst enga ástæðu sjá til, að
lýsa yfir velþóknun sinni á nefnd-
inni) — yfir trausti sínu á velferðar-
nefndinni og óskuðu að hún héldi á-
fram starfi sínu, og var að lokum
samþykt tillaga í þá átt. Lýstu þá
nefndarmenn því yfir, að þeir tækju
aftur uppsögn sína að vilja þings-
ins.
Lagafrumvarpið, sem þessu upp-
þoti olli, er í aðalatriðunum á þessa
leið:
“1. gr. Af öllu kjöti, ull gærum,
hestum og lifaudi sauðfé, er flyzt út
á skipum, sem afgreidd eru frá ís-
lenzkri höfn, skal greiða í lands-
sjóð útflutningsgjald, sem hér segir:
Af hverju kgr. af kjöti 8 a., af hverju
kgr. af ull 20 au., af hverri gæru 10
au., af hverjum hesti 10 kr., og af
hverri sauðkind 3 kr.
“2 gr. Af öllum fiski og fiskiaf-
urðum, er útflutningsgj. skal greiða
af samkvæmt lögum 1881, 1894 og
1896, skal gjalda í laudssjóð fimm-
falt það gjald, sein ákveðið er í
nefndum lögum; þo skal flutnings-
gjald af hvers konar lýsi vera 5 au.
fyrir hvert kílógramm.
“3. gr. Af hverri síldartunnu (108
-•-120 litra), í íhverjuin umbúðum,
sem hún flyzt, skal útflutningsgjald
vera ein króna”.
Áætlaði nefndin að tekjurnar af
þessu gjaldi til landssjóðs yrðu 889
þús. kr., sem skiftust þannig, að á
sjávarútveginn kæmu 450 þús. kr.
og á landbúnaðinn 439 þús. kr.
Miklu af tekjum þeim, sem frv.
þetta veitti landssjóði, skyldi varið
til (Jýrtíðarhjálpar, samkv. frumv.
Sveins Björnssonar, sem er í aðal-
atriðunum á þessa leið:
“l..gr. Dýrtíðarhjálp veitir lands-
sjóður heimilisframfærendum, sem
hafa síðastliðið ár haft 2000 króna
tekjur eða minna, og fá fyrirsjáan-
lega ekki hærri árstekjur á komandi
ári, 1. okt. 1915 til 30. sept. 1916, ef
þeir ekki þigja af sveit.
“2. gr. Dýrtíðarhjálpin skal vera
sem hér segir: Fyrir kvongaðan
mann 50 kr. og auk þess 10 kr. fyrir
hvert barn undir 15 árum, sem er
hjá foreldrunum, þó svo að upphæð-
in fari aldrei fram úr 10 prósent af
árstekjum, nema börnin séu fleiri en
4. Upphæðin getur þó aldrei farið
fram úr 120 kr. til eins heimilisfram
færanda. Ef hvorttveggja hjónanna
hafa tekjur á árinu, skal leggja sam-
an tekjurnar, og eiga þau því að
eins rétt á dýrtíðarhjálp, að tekjur
beggja samtaldar séu undir hámarki
BLUE RIBBON
KAFFI
OG
BAK/NG POWDER
BLUE RIBBON fullkomnun hefur
fengist mecS harSri vinnu og lærdómi
í fleiri ár. ÞaS er ekkert sem er rétt
eins gott. HeimtaSu BLUE RIBBON
Kaffi, Baking Powder, Spices, Jelly
Powders og Extracts. Þetta er ábyrgst
aS vera ágætt og fullnægjandi.
því, er umræðir í 1. gr....1 sveit-
um er hjálpin helmingi minni en i
kauptúnum.........”
Áætlar flutningsm. að hjálpin sam-
kvæmt þessu frumv. mundi nema
600,000 kr.
Einnig hefir komið fram frv. um
dýrtíðaruppbót til embættismanna
landsins, sem miðast við launahæð
þeirra: Þeir, sem hafa í árslaun
undir 500 kr., fái 30 prósent uppbót
af launaupphæðinni, og lækkar svo
prósent-upphæðin eftir því seni að
launin eru hærri, unz hún er komin
niður í 5 prósent af 2800 kr.. Einnig
borgist 15 kr. árlega fyrir hvert barn
innan 16 ára, en ekki meira en 75 kr.
á ári.
Þar að auki hefir komið fram frv.
um lækkun á aðflutningsgjaldi á
kaffi, sykri og korni, einnig i sama
tilgangi: að firra hina fátækari
vandræðum.
Og að síðustu hefir Bjarni Jóns-
son frá Vogi* lagt fyrir þingið frv.
til að afla landssjóði fjár til dýrtíð-
arhjálpar, sem er á þessa leið:
“1. gr. Hver maður, sem hefir
rrieiri hreinar tekjur en 3000 kr.,
skal gjalda dýrtíðarskatt af þeim
tekjum, sem hann hefir fram yfir þá
upphæð.
“2. gr. Af fyrsta hálfu þúsundi kr.
fram yfir þrjár skal gjalda 10 pró-
sent. Af fyrstu heilli þúsund fram
yfir þrjár 15 prósent. Af annari
heilli þúsund fram yfir þrjár 20 pró-
sent. Af þriðju heilli þúsund fram
yfir þrjár 25 prósent. Af fjórðu heilli
þúsund fram yfir þrjár 35 prósent.
Af hverri heilli þúsund þar yfir 45
prósent.
“3. gr. Hreinar tekjur teljast laun
starfsmanna og tekjur af fyrirtækj-
um að frádregnum kostnaði. Fram-
færslukostnaður heimilisins verður
ekki dreginn frá”.
Af öllu þessu framansagða sézt,
að helztu menn þjóðarinnar heima
álíta ástandið alvarlegt, þrátt fyrir
það þó allar afurðir landsins séu í
afar háu verði.
Hvernig þessum frv. reiðir af, eða
liver ráð verða tekin til að vernda
hina efnaminni fyrir yfirvofandi
hættu, er enn ófregnað.
Strandferðanefnd beggja deilda al-
þingis leggur til að landsstjórn-
inni sé falið að semja við Eimskipa-
félga íslands um strandferðir næsta
fjárhagstímabil. í nefndarálitinu
stendur meðal annars: “Sem stend-
ur er strandferðunum hagað svo, að
Björgvinjarfélagið hefir 2 skip í för-
um og fær 30,000 kr. styrk, og Thor
Tulinius eitt skip með sama styrk.
En samningur við Tulinius er út
runninn núna í árslokin og við
Björgvinjarfélagið í apríl 1916. En
ráð var fyrir þVí gjört, að þá tæki
Eimskipafélag íslands við strand-
ferðunum. Var svo til ætlast, að
smiðaðir væru 2 hentugir strand-
ferðabátar í þessu skyni. öll þessi á-
form hafa kollvarpast vegna ófriðar-
ins. Eimskipafélagið hefir ekki get-
að fengið bátana smíðaða í tæka tíð
og eigi nema fyrir afarverð.......
Urðu lyktir þeirra bollalegginga þær
að Eimskipafélagið gjörði alþingi
þetta tilboð: 1) Félagið býðst til að
taka að sér strandferðir árin 1916 og
’17 með leiguskipum, eins hentug-
um að stærð og gjörð til slíkra ferða
sem félagið getur fengið, enda sam-
þykki stjórnarráð íslands skipin.—
......3) félagið fái likan styrk til
ferðanna og í fyrra var talinn hæfi-
legur, 75,000 kr. hvort árið, en ef
tekjuhalli verður á útgjörð strand-
ferðaskipanna vegna auka-vátrygg-
ingargjalda, og vegna þess, að skipa-
leiga, kol og annað, er eða verður í
hærra verði sakir stríðsins heldur
en venjulegt er, þá bætir landssjóð-
ur félaginu hallann”.
Verkfallsbannlög.—Þeir Jösef Björns
son, Magnús Pétursson, Karl Finn-
bogason og Björn Þorláksson flytja
frumvarp um verkfall opinberra
starfsmanna. Tilefnið til frv. þessa
er að líkindum verkfallshótun síma-
þjónanna. Leggur frv. þungar sektir,
fangelsi og embættismissi, eftir at-
vikum, við að taka þátt í verkfalli
embættismanna landsins. Og einniff
skal hver sá embættismaður, sem á
nokkurn hátt stuðlar til þess að
koma á verkfalli meðal embættis-
rnanna, sæta sektum, misjafnlega
þungum eftir atvikum.
Fjölgun ráðherra.— Nefndin i því
máli leggur til, að engin breyting
á æðstu umboðsstjórn landsins verði
gjörð á þessu þingi, þó hún að hinu
leytinu áliti nauðsyn til bera að
fjölga ráðherrum, þar eð störfin séu
svo margbrotin, að ofætlun sé einum
manni að kynna sér þau öll svo vel,
sem æskilegt og nauðsynlegt væri.
Telur nefndin, að ef breytt yrði til á
annað borð, að ráðherrarnir ættu
fremur að vera 3 en 2, og vill að
stjórn og þjóð hugsi nánara um það
til næsta þings, á hvern hátt heppi-
legast væri að breyta fyrirkomu-
laginu.
Þegar þú þarfnast bygginga efni eða eldivií
D. D. Wood & Sons.
-------------------Limited--------------------
Verzla með sand, möl, mulin stein, kalk,
stein, lime, “Hardwall and Wood Fibre”
plastur, brendir tígulsteinar, eldaðar pípur,
sand steypu steinar, “Gips” rennustokkar,
“Drain tile,” harð og lin kol, eldivið og fl.
Talsími: Garry 2620 eða 3842
Skrifstofa: Horni Ross og Arlington St.