Heimskringla - 07.10.1915, Page 7
WINNIPEG, 7. OKTÓBER 1915.
HEIMSKRINGIA.
BLS. r.
Beztu Matarkaupin.
Ræða Guðm. Björnssonar landlækn-
is i efri deild 18. úgúst.
Eg hefi engu við það að bæta,
sem hv. framsögum. -K. E.) nú hefir
sagt um breytingartillögurnar. En
þó þykir mér hlýða að fara nokkr-
um orðum um þetta mikilsverða mál
við þessa umræðu.
• Það ‘er að visu gott og sjálfsagt,
að landsstjórninni og útvöldum
mönnum, sem skipaðir eru henni
við hlið, sé heimilað vald til þess,
að gjöra allar þær ráðstafanir, sem
nauðsynlegar kunna að verða á þess
um háskalegu tímuin. En hitt er eigi
siður nauðsyn, að alþingi íhugi
vendilega fyrir sitt leyti, hverjar og
hve víðtækar þessar ráðstafanir
skuli vera.
Þetta eitt er víst, að hættan er
ekki minni nú en í fyrra, — eg hygg
að í raun og veru sé útlitið ískyggi
legra nú en þá. Það hefir komið á
daginn, að þessi ófriður hefir orð-
ið miklu víðtækari og illkynjaðri,
en nokkur gat rent grun í. Eg hygg
því, að allir hér á þingi muni sam-
mála um, að óumflýjanlegt sé, að
lieimila landsstjórninni vald ti'
slikra ráðstafana, sein nauðsyn kref-
ur. En hvers krefst nauðsyn lands-
manna nú? Hvað á að gjöra? Un
það hafa þegar orðið talsverðar um-
ræður og skiftar skoðanir í háttv.
neðri deild. Og ef til vill eru heldur
ekki allir á eitt mál sáttir i háttv.
efri deild.
Hingaðtii hafa menn mest talað um
þá hættu, sem stafa kynni af kjöt-
skorti og hafa því háværar raddir
heyrst um, að banna ætti að ein-
hverju leyti útflutning á kjöti. En
aðrir hafa þó bent á, að háskalegra
væri, ef skortur yrði á kornmat i
landinu. Það er einkum þetta tvent,
kjötið og körnið, sem mönum hefir
orðið tíðrætt um. Og eg hefi nú
kvatt mér hljóðs aðallega til þess að
lýsa skoðunum mínum um það efni.
Eg vil þá taka það fram þegar,
að höfuðnauðsynin virðist mér
þetta eitt: að tryggja landinu næg-
an kornmat. Þegar allar lifsnauð-
synjar hækka í verði, verður byrðin
þyngst á herðum fátæklinganna, og
er þvi lifsspursmál að athuga sem
vandlegast, hvernig hœgt sé að gjöra
bezt matarkaup. En mér hefir fund-
ist á skorta, að þessari spurningu
væri slikur gaumur gefinn sem
skyldi. f slikum efnum kemst al-
þýðan oft á rétta leið af sínu eigin
kyggjuviti, og eg vil leyfa mér að
benda á, að á síðustu árum hafa
bændur meir og meir tekið upp
þann sið, að selja kjöt og smjör, en
kaupa í staðinn korn og smjörlíki.
Þetta hafa þeir vitanlega gjört vegna
þess, að þeir sáu, að þetta voru góð
matarkaup. Menn kunna að ætla, að
munurinn á saðningsgildi þessara
matartegunda sé ekki mikill eftir
verði þeirra; en hann er geysimik-
ill. Eg hefi reiknað út, hvað mikið
næringargildi er i einnar krónu
virði af ýmsum matvælum, sam-
skvæmt núgildandi verðlagi.1) Mér
telst svo til, að 5-föld næring sé í
rúgmjöli á móts við saltkjöt, og að
ferfalt meiri næring sé í saltaðri
sild en kjöti. Ennfremur er næstum
þvi tvisvar sinnum betra matarkaup
að smjörpundinu fyrir 90 aura,
heldur en að kjötpundinu fyrir 50
aura. Og um tólgina er það að segja
— ef pundið af henni er selt á 50
aura — þá fæst margfalt meiri nær-
in(J fgi’ir þá peninga, heldur en ef
kcypt væri fyrir þá saltkjöt eða salt-
fiskur.
Mennirnir þurfa að halda á nær-
ingarefnum bæði úr dýraríkinu og
jurtaríkinu. Og fyrsta lífsnauðsyn
okkar er sú, að tryggja oss þær mat-
vörutegundir, sem við ekki getum
framleitt sjálfir. Korn vex ekki hér
á landi, og þurfum vér því að flytja
geysimikið af kornmat frá útlönd-
um. Undanfarin ár höfum við flutt
inn 9% þúsund smálesta af korn-
vörum, eða fyrir 2 millíónir króna.
Eg get ekki betur séð, en að fyrsta
ráðstöfun stjórnarinnar hljóti að
verða sú, að útvega landinu nægi-
legan kornforða. Þar með er auð-
vitað ekki sagt, að stjórnin eigi að
kaupa alt það korn. Hún gæti og
ætti að hafa þá aðferð, að grenslast
vandlega eftir, hvað verzlanir og
kaupfélög landsins hafa gjört til
þess, að birgja sig að kornvöru. —
Vera má, að verzlanir og kaupfélög
sjái sér fært, að útvega af eigin
ramleik alt það korn, sem þarf;-en
hitt gæti lika komið í ljós, að svo
væri ekki, og þyrfti þá stjórnin
samstundis að hlaupa undir bagga.
Þess vegna er slik eftirgrenslan af
stjórnarinnar hálfu bráðnauðsyn-
leg.
Eg vil annars leyfa mér, að vekja
athygli manna á því, að fyrir tveim
árum var þvi hreyft hér á alþingi,
að nauðsyn bæri til að þing og
stjórn sæju svo um, að á hverju
hausti væri til hér á landi ársforði
af kornvöru. Því var þá haldið fram
af minni hálfu, að annaðhvort ætti
landsstjórnin að hafa alla korn-
verzlun í sínum höndum eða þá alls-
herjar kaupfélag fyrir alla þjóðina.
Eg hygg að það hafi nú þegar sýnt
sig, að talsvert vit var i þessari til-
lögu. Svo sem kunnugt er, gjörðist
það í fyrra haust í fyrsta sinn, að
landsstjórnin beittist fyrir korn-
kaupum í stórum stil frá fyrstu
hendi. Þessi fyrsta tilraun hepnað-
ist prýðilega, varan var ágæt og
verðið var ágætt. Eg er sannfærð-
ur um, að mörgum hefir orðið þetta
ljós bending þess, að þetta væri
rétta framtiðarbrautin: að gjöra
alla kornverzlim að landsverzlun,
sem þó helzt ælti að vera i höndun-
um á allsherjar kaupfélagi. — Mér
finst rangt, að minnast ekki á þessa
þjóðarnauðsyn við þetta tækifæri.
Þá vil eg minnast litið eitt á önn-
ur matvæli. Það er betra matar-
kaup í saltfiski en kjöti, og ef nóg er
til í landinu af góðu fiskæti, þá er
lítil þörf á kjöti. Að eins verður
þess að gæta, að í öllu kjöti er tals-
vert af fituefnum, en mjög lítið í
fiski. Þess vegna þarf miklu meira
viðbit með fiski og verður að setja
undir þann leka. Það vill nefndin
gjöra með seinni br.till. á þskj. 295,
sem fer fram á að banna allan út-
flutning á mör og tólg. Árið 1912
voru flutt héðan úr landi 27 þús-
undir tvípunda af tólg; en svo mikil
er feitmetisþörfin og svo afkáralegt
er verzlunarólagið, að talsvert af
þessari tólg varð að flytja inn í
landið aftur, eða 8600 tvípund. Nú
er það vist, að feitmetisþörfin eykst
með þverrandi kjötnautn,- en vax-
andi fisknautn. Eg þori því ekki að
fullyrða, að feitmetisþörfinni verði
fullnægt, þó að allri tólg sé haldið í
landinu; en hins vegar býst eg við,
að mikið muni falla til af tólg í
haust, því að sjálfsagt verður slátr-
að í langmesta lagi, vegna hins háa
kjötverðs.
Loks vil eg minnast á sildina. —
Söltuð síld er ein hin bezta fæða,
bæði holl og næringarmikil. Það
er (eftir verði) ferfalt meiri saðning
í henni en kjöti, og í henni er mik-
ið af feiti. Menn kunna nú að segja,
að síldin geti samt ekki orðið að
fullu liði, því að alþýða manna
kunni ekki ennþá að eta hana. Þetta
er að vissu leyti satt; en það er nú,
finst mér, einmitt liin fyrsta skylda
stjórnarinnar og væntanlegrar vel-
ferðarnefndar, að fræða alþýðu um,
livernig hún geti aflað sér hollrar
og ódýrrar fæðu fyrir sem minst
verð — hvaða matarkaup séu hent-
ust. Þessu næst er hitt, að sjá um,
að beztu og ódýrustu matvæli séu
liöfð á boðstólum og allstaðar fáan-
leg.
Eg skal nú ekki fara fleirum orð-
um um þetta efni. Mér finst að það,
sem eg nú hefi sagt, hafi hingað til
verið látið liggja um of í láginni.
Eg held að ekkert vit sé í, að fara að
banna útflutni.ng á einhverju af salt-
fiski og saltkjöti, en vanrækja hitt,
að útvega hentugustu og ódýrustu
matvæli. Eg vona að gjörlegt verði
að ráða fram úr vandræðum þeim,
sem að höndum kunna að bera, án
þess að grípa til þess óyndisúrræð-
is, að stórskaða framleiðendur lands
ins. Og þessu vil eg að lokum bæta
við: Ef hægt verður að búa svo um
hnútana, að ekki verði kornmatar-
skortur og sjávarútvegurinn geti
haldið áfram, þá er sennilega ekk-
ert að óttast. Þess hefir verið of lít-
ið gætt, að meiri háski gæti ekki
dunið yfir landið, en sá, ef aðflutn-
ingur á kolum og steinolíu teptist.
Þá mundu togarar og vélabátar
verða gð liggja aðgjörðalausir uppi
í landsteinum og sulturinn sækja að
hverju heimili á ötlu landinu. En á
meðan við getum aflað oss nægilegs
kornforða og haldið úti okkar fríða
fiskiflota þá verður aldrei mikil
þröng í búi hjá alþýðu manna, hvað
sem öllu kjötinu.líður.
— tsafold.
Rasmus (heimsækir Pétur, sem er
nýlega orðinn ekkjumaður. Þótti
konan hans nokkuð tunguhvöss með-
an hún lifði. Ljósastjaki hangir á
veggnum): Því hangir þessi stjaki
hérna á veggnum?
Pétur: Hann á að minna mig á
hana Jóhönnu mina sælu. Hann var
það seinasta, sem hún kastaði í ber-
an skallann á mér.
Pétur Jónsson söngvari.
Það er ekki nema rúm hálf öld
síðan, að nokkuð fór að bóla á is-
lenzkri sönglist. Skólapiltar námu
reyndar alloft útlend sönglög, en al-
þýða manna þekti ekki annað en
rímnalög, tvísöng og slæman kyrkjú-
söng. Um nokkra sjálfstæða ís-
lenzka sönglist eða söngment var
ekki að ræða. Og það kvað svo ramt
að því, að útlendir fræðimenn, sem
komu til landsins. meðal annara
Konráð Maurer, héldu fram, að ís-
lendingar enga sönghæfileika hefðu.
En sem betur fer hefir reyndin orð-
ið önnur á. Um miðja siðustu öld
fóru menn að vakna, og þá urðu
einnig ýmsir til að glæða áhuga
manna á fögrum söng. Má þar fyrst
og fremst nefna menn eins og Pétur
Gudjohnsen, sem mikið bætti ís-
lenzkan kyrkjusöng og með góðri
söngkenslu kendi mönnum að meta
góðan söng, og síðar Jónas Helga-
son, sein með söngheftum sinum
fyrstur manna opnaði eyru alþýðu
fyrir útlendum söng. Hefir hann
með þessu gjört meira fyrir is-
lenzka sönglist en margan kann að
gruna. Nú áttu menn ekki að eins
kost á að kynna sér útlend lög með
islenzkum textum, «n gátu nú einnig
iðkað söng sjálfir, eftir söngreglum.
Það kom þá líka brátt i ljós, að ís-
lcndingar áttu ekki að eins marga á-
gæta raddmenn, heldur einnig að
margir þeiira voru söngnæmir og
flestir söngelskir. Og þegar alt kem-
ur til alls, eigum við ef til vill, að
tiltölu, fleiri raddmenn en nokkurt
annað land. Síðan hefir íslenkri
söngment smámsaman miðað áfram.
Jafnframt því, sem útlend lög urðu
kunn, þá höfum við einnig eignast
íslenzk tónskáld, sum ágæt, sem
mikið hafa gjört fyrir sjálfstæða is-
lenzka sönglist. Má þar fyrst og
fremst nefna snillinginn Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, sem enn lifir við
góða heilsu í Edinborg, og síðar
ýmsa aðra. Alt þetta hefir leitt til
þess, að íslenzkri sönglist hefir óð-
fluga rleygt áfram.
Og vitanlega hlaut svo að fara.
Það gat ekki náð nokkuri átt, að ís-
lenzka þjóðin væri ósöngvin. Lit-
um nánara á. Sönggáfur manna
standa venjulega i nánu sambandi
við staðháttu. Þar sem þjóðflokkar
mætast, eins og til dæmis í Mið-
Evrópu, á mörkum Germana og
Rómverja, hafa fæðst flest öll mestu
tónskáld jarðarinnar. Og þar sem
mikil náttúrufegurð er, einkum
nærri sjó, hafa fæðst mestir og bezt-
ir söngmenn. Ekkert land hefir alið
jafnmarga ágæta söngmenn og ítalia
og engir hafa mýkri né blæfegurri
raddir. Þær bera blæ af bláma Mið-
jarðarhafsins og töfrum ítalskrar
náttúru.-----Og hvernig hagar nú
til hjá okkur? Höfum við ekki sömu
skilyrði? Ætli við ættum ekki jafn-
marga ágæta söngmenn, ef við vær-
im eins gömul og fjölmenn þjóð og
ítalir? Eg efast ekki um þáð. Is-
land er ekki síður litskrúðugt land.
íslenzk náttúra er ekkert annað en
litir. Alt verður að sjást í fjarska.
Það eru litir og aftur litir. Þúsundir
lita, þúsundir tóna; því það eru
engir litir án tóna, engir tónar án
lita. ísland er litanna land! Island
er hið syngjandi landl Það er um-
girt af voldugasta tónhafi jarðarinn-
ar. Það talar tungum undirdjúp-
anna, og ber kveðjur frá leiðum lið-
inna veralda. Ströndin stynur undir
nmga þess. Steinarnir tala. Straum-
jungar ár streyma úr hjarta þess,
sem bundin blóðrás tímans, og fimb-
ulháir fossar mæla á flugtungu hinn-
ir ósýnilegu sálar jarðarinnar. En
lagið liggur ekki alt af jafn þungt á,
stundum er það létt, — leikandi!
Bláir lækir liðast með léttum nið
lifsins, og bláar tjarnir, eins og
barnaangu, speigla bláma himinsins
og syngja honum þegjandi lofgjörð.
Og jafnvel fram til fjallanna, þar
sem eyðiþögn eilífðarinnar ríkir,
cr eins og náttúran hvisli og ósýni-
legar raddir hljómi. ísland er feg-
ursta tónsmíð jarðar, en þó yfir-
gnæfir myndin, móðir okkar allra,
þetta ljómandi víða haf. Hún syngur
í tónum og talar i litum. Hún talar
i tónum og syngur í litum. Hún er
liið “syngjandi land”.----
Við erum blóð af hennar blóði og
bein af hennar beinum. Og við ætt-
um ekki að geta sungið! Okkur væri
') Næring í krónuvirði af helztu matvælum.
) 5 10 15 20
Saltkjöt
Saltflskur
Söltuö stld
Rögmjöl
Smjör
Tólg
1 pd.
kr. 0,50
kr. 0,28
kr. 0,14
kr. 0,18
kr. 0,90
kr. 0,50
Columbia Grain
Co., Limited
242 Grain Exchange Bldg.
WINNIPEG
TAKIÐ EFTIR!
Vér kaupum hveiti og aðra
kornvöru, gefum hæsta verð og
ibyrgjumst áreiðanleg viðskifti
Skrifaðu eftir upplýsingum.
TELEPHONE MAIN 1433.
þá illa úr ætt skotið. Blóðið væri þá
farið að þynnast. En sem betur fer
er það ekki svo. Við höfum átt og
eigum enn marga ágæta söngmenn.
Hver hefir ekki heyrt getið um Ástu
Ilallgrímsson, Geir Sæmundsson,
Jón Jónsson, Valdimar Steffensen o.
s. frv.? Þessa söngmenn af guðs
náðl Þessar sönnu listasálir, sem
lifðu listinni einni og létu sér nægja
að syngja fyrir hið “syngjandi
land”. Það er eitthvað svo göfugt og
fallegt í þessu, en þó svo grátlegt
um leið. Því sungu þau ekki landið
lit, borg úr borg, og hvísluðu inn í
livert eyra: ísland, tsland, ísland!
I>au hefðu getað það. En eg ásaka
þau ekki. Eg skil þau alt of vel til
jiess. En við sem heyrðum þau, þökk
um þeim, blessum þau. Og eg veit,
að yfir leiðum þeirra ómar um ei-
lífð: “hið syngjandi land!”-------
Hinir gömlu falla, og nýir menn
koma í þeirra stað. Við lifum á
hinni nýju öld, þegar allir vilja fyrst
og fremst syngja landið út. Það er
eins og það liggi i blóðinu. Og fyrst
er þá að nefna prinsinn í hinu
“syngjandi landi”, óperu-söngvara
Pétur Jónsson. Hann lagði af stað
eins og undrabarnið í æfintýrinu.
Hann átti ekkert nema stafinn og
malinn. Allstaðar sem hann kom,
söng hann, bara söng og söng. Og að
lokum barst orðstír hans til konungs
ins og hirðarinnar. Og vitanlega
varð hann að syngja fyrir konung-
inn. Og af því að konungurinn
liafði aldrei heyrt svona fallegan
söng, kysti hann hann og spurði
hann, hvaðan hann væri. “Og eg er
nú frá Islandi”. “Og hvar er það nú
góðurinn” “Og það er nú norður í
Atlantshafi” svaraði Pétur og hló.
“Já, einmitt það, það er þarna norð-
ur undir pól, þar sem hann Einar
minn Arnórsson bakaði stjórnar-
skrána; eg held eg verði þá að gefa
þér hana dóttur mína og hálft ríkið,
og haldir.ðu áfram að syngja svona
í tuttugu ár enn, held eg að eg verði
að gefa þér það alt”. Og það er til
þess, að færa löndum mínum þessi
gleðitíðindi, að eg sendi ísafold
þessar línur. Það er svo sjaldgæft,
að íslendingar vinni lönd, að þess
ber að geta, hvenær sem það er
gjört.
Eg gjöri ráð fyrir að flestir hafi
heyrt Péturs getið. Þegar hann hafði
lokið stúdents-prófi sigldi hann til
Kaupmannahafnar og iðkaði þar
tannlækningar um hríð. En hann
hætti því von bráðar og lagði nú
alla stund á söngnám, fyrst i Kaup-
mannahöfn og siðan í Berlín. Hann
hefir oft átt við ýmsa erfiðleika að
striða, en hann hefir nú sigrast á
þeim öllum og hefir nú búið svo i
haginn, að framtíð hans er fullráð-
in. Hann var í fyrra haust ráðinn
að óperunni i Kiel, sem er talin ein
hin bezta í öllu Þýzkalandi og hefir
árlegan styrk, svo þúsundum skiftir,
úr keisarasjóði, af þvi að Kiel er
berskipastöð. Hann söng að eins
minni lilutverk framan af vetrinum,
en hlaut alt af góða dóma. Blöðun-
um kom öllum sainan um, að hann
hefði ágæta rödd og færi ágætlega
ineð texta. Að eins væri sá hængur
á, að hann syngi með útlendum mál-
blæ, sem þó engan veginn væri til
baga. Næsta markmið hans yrði þó
að vera það, að ráða bót á þessu til
hlítar. Sömuleiðis kom þeim saman
um, að hann væri söngnæmur, en
því hafa fáir viljað halda fram áður.
En það var þá fyrst, er hann hafði
sungið i “Radamés” í “Aida”, að
þvi var slegið föstu, hvilíkur af-
burða söngmaður hann væri. Enda
var það fyrsta aðalhlutverkið, sem
hann söng. Um það stendur meðal
innars i Volkzeitung:
“Pétur Jónsson söng og andaði
með svo mikilli leikni, að það var
Linun að hlusta á hann. Það er ó-
hætt að spá honum glæsilegri fram-
tíð. Röddin er guðdómleg og hann
getur beitt henni, hvernig sem haiu.
vill. Hann leikur einnig mjög vel;
ii hann gæti þó veriö fastari á svell |
inu. Hann vantar ekki annað en að i
s.mnfæra sjálfan sig um, að ekkert
sc að leik hans. Þá væri hann óað-
finnanlegur. Allir, sem unna fögr-1
um söng, ættu að fara að hlusta á
hann”.
Þegar hann hafði unnið þennan
sigur var skrifað um hann í helztu
söngbæjum á Þýzkalandi, og ágæt
tilboð drifu nú að honum allstaðar
að, að minsta kosti frá óperunum í
Frankfurt' a. Main, Hamburg, Dres-
den oc Berlín. En þvi miður gat
hann migum þeirra tekið, þvi hann
var ráðinn að Kielar-óperunni til
næstu tveggja ára. En ekki bagar
tð eiga þau að. Nú hlaut hann hvert
aðalhlutverkið eftir annað, og eru
þetta hin helztu þeirra: Rudolf i
Bohéme, Canio i Bajazzo. Turiddu í
Faust, Hans i Verkaufte Braut, Octa-
vio í Don Juan, Hugo í Undine og
Troubadourinn i Troubadourinn. 1
óperum Wagners: Lohcngrin i Loh-
engrin, Erik i Der fliegende Hollæn-
der, og Walzer i Tannhauser.
Eins og menn sjá, er þetta ekkert
smáræði fyrir byrjanda á einum
vetri. En harfn hefir leikið sér að
leysa það af hendi. Dómarnir hafa
allir verið góðir, en ef eg ætti að
þýða þá alla yrði það of langt mál.
Að eins vil eg bæta við broti af þvi,
Með innstæði í banka
geturðu kepyt með
vildarverði.
Þú veist að hvað eína
er dýrara verðurðu að
kaupa í lán—Hversveg-
na ekki að temja sér
sjálfsafneitun um tíma ef nauðsyn ber til, má opna spari-
sjóðsreikning við Union Banka Canada, og með peninga
í höndum má kaupa með peningaverði. Sá afsláttur
hjáipar til að auka bankainnstæðu þína, og þú hefir
gert góða byrjun í áttina til frjálslegs sjálfstæðis.
LOGAN AVE. OG SARGENT AVE., 0T1B0
A. A. Walcot, bankastjóri
sem stendur um söng hans i “Trou-
badouren” i Kielerzeitungs
“Pétur Jónsson söng Manrico
mjög vel. Hann hefir þegar náð á-
gætum tökum á háa-c. Honum lét
jafnvel að syngja Ariutia og Roman-
cen, — og er þó langt stökk á milli.
Röddin er mikil og málmkend. Loft-
ið titrar í kringum mann, þegar
hann syngur. Hann söng Ariuna svo
vel, að hann varð að syngja hana
tvisvar”.------Svo mörg eru þessi
sein
von:
í anda og sannleika ól þessss
“Er eg lít þig, tigna móðir mín,
þá magnast min unga löngun, —
að bera’ út um löndin hrósin þin,
og bjarmann, er kringum þitt enni
skin,
svo lúti þér þjóðir i lotning,
sem tjóskrýndri fjallanna drotning”.
heilögu orð.
Gæfa Péturs hlýtur að gleðja alla
listelska Islendinga. Ekki sízt af þvi,1 honum til æfiloka.
Hann er skilgetinn sonur hins
“syngjandi lands”. Ástir þess fylgja
lionum, og við vitum, að það vaggar
að hann er sannur listainaður. List-
in er honum alt. Hann syngur af því
að hann þarf að syngja. Hann varð
ekki listamaður af hégómagirnd,
eins og sumir af nýrembingum okk-
ar, sem gala sjálfum k sér lof með
hrokafullri sjálfsdýrkun, — og mið-
ar þó furðanlega áfram. Honum hef-
ir alt af verið ljóst sem stendur í
vísunni:
“Sjálfri list að lúta fyrst,
listanámið vígi.
Hrokinn til þess liáa í list,
henlar ei sem stigi”.
Hann er einn af vormönnum í hópi
íslenzkra listamanna. Hann er ekki
citt tif maurildunum, sem lýsir i
skugga þeirra. Hann er einn af þeim,
London, 27.
ísafold.
júlí 1915.
H. Hamar.
Sextíu manns geta fengið aðgang
að læra rakaraiðn undir eins. Til
þess að verða fullnuma þarf aðein»
8 vikur. Áhöld ókeypis og kaup>
borgað meðan verið er að læra.
Nemendur fá staði að enduðu námí
fyrir $15 til $20 á viku. Vér höfum
hundruð af stöðum þar sem þér
getið byrjað á eigin reikning. Eftir-
spurn eftir rökurum er æfinlegs
mikil. Til þess að verða góður rak-
ari verðið þér að skrifast i'it tr&
Alþjóða rakarafélaginu.
INTERNATIONAL BARBER
COLLEGE.
Alexander Ave. Fyrstu dyr vestan
við Main St., Winnieg.
Islenzkur ráðsmaður hér.
Skrá yfir Verzlunarmenn og Sérfræðinga
J. J. BILDFELL
FASTEIGNASALI.
Unlon Ilnnk 5th. Floor No. 520
Selur hús og lótSir, og annatJ þar a?J
lútandi. Útvegar peningalán o.fl.
Phone Main 26S5.
Talslml Mnln 5302
Dr. J. G. SNÆDAL
TANNLÆKNIR
Suite 313 Enderton Block
Cor. Portage Ave. og Hargrave St.
PAUL BJARNASON
FASTEIGNASALI.
Selur elds, lífs, og slysaábyrgU
útvegar peningalán.
og
WYNYARD,
SASK.
E. J. SKJÖLD
DISPENSING CHEMIST
Cor. Simcoe and Wellington Sts.
Pbone Gnrry 436S W’INNIPEG
J. J. Swanson
H. G. Hinriksson
J. J. SWANSON & CO.
FASTEIGNASALAR OG
lieniiiiin inlhinr.
Talsími Main 2597
Cor. Portage and Garry, Winnlpeg
Vér höfum fullar bir*rölr hreinn-tn lyfja
og meOala, KoraiO meO lyfseöla yöar hiug-
aO vér gerum meönlin nákvmmleKa eftir
ávtsan lieknisins. Vér sinnum ntansveita
pönnnnm og selium ariftinuraleyfi.
COLCLEUGH & CO.
Niitre Dniue Ave. <t ^herhriMihe St.
Phone Garry 2690—2691
Graham, Hannesson & McTavish
LÖGFR.EÐINGAR.
907—908 Confederation Llfe Bldg.
Phone Matn 8142
WISMPEO
FlNASTA SKÓVIÐGERÐ.
Mjög fín skó Vitigerts á metian þú
bítiur. Karlmanna skór hálf botn-
aöir (saumah) 16 mínútur, gútta-
bergs hælar (don’t slip) etia lebur,
2 mínútur. STEWART, li»:( Pnclfle
Ave. Pyrsta búb fyrir austan abal-
strætt.
Arnl Anderson
E. P. Garland
GARLAND & ANDERSON
LÖGFRÆÐINGAR.
Phone Main 1561
S01 Electric Railway Chamberi.
SHAW’S
Stærsta og elsta brúkalira fata-
sölubúSin i Vestur Canada.
479 Notre Dame Avenue
Dr. G. J. GISLASON
Physlclan and Snrgeon
Athygll veltt Augna, Eyrna og
Kverka Sjúkdómum. Asamt
lnnvortls sjúkdómum og upp-
skurhl.
18 Sonth 3rd St., Grand Forka. Pf.D.
GISLI GOODMAN
TINSMIDVR
Verkstætil:—Hornl Toronto St.
Notre Dame Ave.
o*
Phone
Garry 2088
Helmtlle
Garry 809
Dr. J. STEFANSSON
401 BOYD BUILDING
Hornl Portage Ave. og Edmonton St.
Stundar eingöngu augna, eyrna,
nef og kverka-sjúkdóma. Er aö hltta
frá kl. 10 tll 12 f.h. og kl. 2 tll S e.h.
Talslml Matn 4742
Helmtll: 105 Oltvla St. Tals. O. 2515
A. S. BARDAL
selur llkklstur og annast um útfarlr.
Allur útbúnaöur sá bestl. Ennfrem-
ur selur hann allskonar mlnnisvaröa
og legsteina.
813 Sherbrooke Street.
Phone Garry 2162
WINNIPBQ.
Sérstök kostaboö á lnnanhúes
munum. Komlö tll okkar fyrst, hitS
munlö ekkl þurfa aö fara lengra.
Starlight New and Second Hand
Furniture Co.
503—505 NOTRE DAMB AVENUB.
Talelml Garry 5884.
MARKET HOTEL
146 Princess St.
á mótl markaölnum
Bestu vfnföng vlndlar og aöhlyn-
lng góö. Islenzkur veltlngamaV-
ur N. Halldorsson, lelöbelnir Is-
lendlngum.
P. O’CONNBL etgandl WINNIPRQ