Heimskringla - 04.11.1915, Síða 2
BLS. 2
HEIMSKRINGLA.
WINNIPEG, 4. NóV. l'Jiö.
Styrjöldin í landi hinna
fyrstu manna.
Þar sem sagan er líklega elzt, eða
vér höfum fyrst fregnir um mann-
inn, er í landinu forna milli fljót-
anna Euphrates og Tigris. Þar eru
nú Bretar að halda upp frá Persa-
flóanum, meðfram fljótunum miklu
og viðkunnu Euphrates og Tigris.—
Stríðið er ekki eins stórkostlegt þar
og í Evrópu; það eru að eins smá-
skærur i samanburði við hina hroða
legu bardaga á Rússlandi og Frakk-
landi. Og menn skyldu ætla, að þar
væri ekki mikið að berjast, þar sem
er einlægt sól og sumar og hiti nóg-
ur. En það er nokkuð öðruvísi, þvi
þrautirnar og erfiðleikarnir eru þar
líklega meiri en nokkursstaðar ann-
arsstaðar.
Fyrir nokkrum vikum síðan skrif-
aði brezkur herforingi um þrautir
þær, sem hermennirnir urðu að
þola, og sagðist honuin á þessa
leið:
“Það er ekki orð til í málinu nógu
sterkt til þess, að skýra fyrir mönn-
um hinar voðalegu þrautir og kval-
ir, sem hermennirnir hafa orðið að
þola. Hitinn er 123 gráður i skugg-
anum, — það er að segja í svalasta
tjaldinu, sem við höfðum og stærstu.
í minstu tjöldunum er hitinn 130
gráður. Majórinn i liði okkar hafði
hitamælir, sem ekki tók nema 120
gráður, og svo sprakk hitamælirinn
einn daginn.
Hinn 9. þessa mánaðar áttum við
í hreðum nokkrum við Arabana, og
máttum þá reyna allar þær skelfing-
ar, sem eyðimörkunum fylgja; —
en það er með einu orði: þorsti.
Hershöfðinginn sagði oss, að við
myndum bráðlega koma að lækjar-
sprænu.--------En þegar við kom-
um þangað, þá var þar alt þurt og
enginn lækur. Sólin skein yfir hiifð-
um vorum, með brennandi, steikj-
andi hita, og vér voruin alveg út-
gjörðir og uppgefnir. Oss var skip-
að að hefja göngu ofan að fljótinu.
Þakkaði eg þá guði fyir það, að eg
var á hestbaki. Og eg kendi svo mik-
ið í brjósti um indversku hermenn-
ina (sepoys), sem urðu að ganga í
steikjandi sólarhitanum. Það fór að
líta illa út fyrir oss: mennirnir voru
að uppgefast og hnigu niður á göng-
unni, og hvert hundrað jarðs, sem
vér komumst áfram, varð útlitið
Ijótara og Ijótara. En svo voru ridd-
ararnir látnir ríða áfram á undan að
sækja vatn. En eg fór að sjá ofsjón-
ir og hélt að eg myndi deyja. Þetta
land þarna er víti sjálft og kvala-
staður fyrir hvíta menn.
En alt fyrir þetta erum vér hægt
og hægt að siga áfram norður eftir
landinu, og verður fótgönguliðið
stundum að fara yfir eyðimerkur og
stundum að ösla fenin og flóana
meðfram Tigris fljótinu. Það skiftist
á vatnið og sandurinn; steikjandi
hiti á daginn, og suddakuhlinn á
nóttum, þegar vér erum alblautir frá
hvirfli til ilja.
En þegar herferðinni er lokið, þá
verður landið þetta alt eign Breta.
Borgin heimsfræga Bagdad, þar sem
hann ríkti kalifinn Harún-Al-Ras-
chid, sem vér þekkjum af Þúsund-
og-einni-nótt. Haugarnir miklu, þar
sem borgin Babýlón stóð fyrrum.
Kurna, þar sem sumir segja að aldin-
garðurinn Eden hafi verið. Kaldeu-
Lorgin Úr, ættborg Abrahams. Rúst-
■ir hinnar miklu og fornu borgar
Ctesiphon, sem var höfuðborg Par-
tha á hæsta stigi veldis þeirra, en
féll fyrir Rómverjum fyrir tvö þús-
und árum. ()g svo er þar Mosup og
Ninive, með ölluni hinum afarmerku
fornleifum, leturspjöldunum og let-
urkólfunum úr steini og steyptum,
bökuðum leir, sem segja æfisögur
konunganna og skýra mentun landa
þessara — tvö, þrjú og fjögur og
alt að fimni þúsund árum fyrir
Krist. Þar er bókasafn konunganna,
kennarabækur skólanna, samningar
um kaup og sölu á löndum og lausum
aurum, ljóð og sagnir-eldri en nokk-
ursstaðar í heimi.
— Alt þetta kemur á vald Breta og
litlar likur til að þeir sleppi þvi
fljótlega aftur. Enda þurfa Bretar að
hafa umráð yfir landi þessu, þar
sem það er á Jeið þeirra til Ind-
lands, og gæti verið óþægilegt fyrir
þá, að hafa þar vohlugar ræningja-
þjóðir. Og ineð því að halda land-
inu, þá taka þeir fvrir hinar marg-
itrekuðu tilraunir Þjóðverja til að
Þyggja járnbrautina til Bagdad, sem
hefði verið svo hættuleg fyrir Tnd-
land; og þarna ætluðu Þýzkir að
slá eign sinni á landið alt, og kljúfa
hinn gamla heim i sundur í tvent, og
taka^siðan hvern partinn af öðrum.
Og þegar Bretar eru búnir að fá land
þetta, þá megum vér vera vissir um,
að farið verður af kappi að leita að
fornleifum í hinum miklu, gömlu
borgum. , „
Hin elzla menning heimsins.
Þarna var áður fyrrum einhver
hin elzta menning heimsins. Þar
voru þeir Kaldearnir, Assyríumenn-
irnir, Babýlónsmennirnir, Medar,
Persar, Grikkir og Rómverjar, hver
af öðrum, og börðust og féllu og
vökvuðu landið með blóði sínu. —
Sagt er, að hinn mikli kappi og
veiðimaður Nimrod hafi reist þar
borgina Babýlón fyrir 4200 árum,
og þaðan héldu Semítar 300 árum
seinna norður á við til þess að flýja
undan harðstjórn Cush-flokkanna.
Seinna héldu Assýrar burtu úr Kal-
deu, og bygðu stórar og frægar borg-
ir upp með Tigris-fljótinu og urðu
þar svo auðugir og öflugir, að þeir
sigruðu hina fyrri kúgara sína
Kaldeana og drotnuðu yfir þeim í
000 ár. Náði ríki Assýríumanna alla
leið vestur að Miðjarðarhafi. Þar
ríkti Nebúchadnezzar, sem vér þekkj
um allir af sögunni, og þaðan kom
hann og settist um Jerúsalem. Sat
hann um borgina í 13 ár, áður en
hann náði hanni. Hann tók einnig
hina miklu borg Tyrus á Phönicíu-
ströndum. ,
Hafa menn fundið frá sögn um
konung þenna letraða á stein, er
hann fór herferð á hendur Elamit-
um fyrir 3000 árum síðan, og er hún
þannig: —
1 janúarmánuði lagði hann af
stað. Klettarnir og steinarnir voru
steikjandi heitir og brendu sem log-
andi eldur. Úr görðunum var allur
gróður brunninn, og þurrar voru
iindir og uppsprettur allar og hvergi
var hægt vatn að fá. Magnlausir
urðu hinir sterkustu hestar.
Þannig er frásögnin. Virðist nú
sem sagan endurtakist þarna i land-
inu milli Tigris og Euphrates, þar
sem Bretar eru að halda norður með
f'jótum þessum með hina indversku
liðsmenn.
Breytileg hernaðaraffferð.
En býsna breytileg er nú hernað-
araöierðin frá Jiví, er var á hinuni
fvrri tíinum. Nú hafa menn mask-
i.’ubyssur, sprengikúlur, sem dre.
járnarusli um höfuð óvinanna, er
Jiær springa, og hinar voðastoru
tröllabyssur sem skjóta í loft upp
og svo þegar kúlan kemur niður, þá
smýgur hún mörg fet í jörðu niður
og sprengir svo alt frá sér, molar
björgin og klettana og sendir alt í
háa Ioft upp. Og fallbyssum þessum
er skotið Jiaðan, sem skotmaðurinn
sér ekki inarkið, en getur [)ó hitt á
hvaða stað sem hann vill, ef alt er
rétt útreiknað og menn vita fjar-
lægðina. En Asshurbanipal fór til
bardagans standandi með skjaldbera
sínum í kerru sinni og með honum
var hópur manna, er héldu sólhlíf
yfir höfði hans; bogmenn og kylfu-
menn og spjótberar og herinn, sem
honum f.vlgdi var stálgrár fyrir járn-
um. Þar var sem á sjó að líta, er
menn litu yfir hjálmklæddar rað-
irnar, og báru mennirnir skjöldu
mikla og höfðu sverð og stórar axir
og spjót, og voru allir brynjum
klæddir
Og svo báru þeir þar með konung-
inum hásæti hans, og sat konungur í
hásætinu á herðum þeirra eftir unn-
inn sigur, er fangarnir gengu í lest-
um framhjá, og þar voru ætíð með
honum hinar mörgu konur hans. —
Og öllum brögðum var beitt til þess
að vinna sigur. — Það er sagt um
Cambyses, son Kýrusar Persakon-
ungs hins mikla og fræga, að hann
vann Egyptaland alt í einum bar-
daga og þó með klókinduin; J)ví að
hann lét safna saman hinum ótelj-
andi kattahjörðum og hundum lands
ins, sem hann fór yfir, og reka þá
á undan fylkingum sinum, er berj-
ast skyldi, og fleiri dýrum, sem öll
voru heiliig haldin af Egyptum. —
Vildu Egyptar heldur láta deyða sig,
en gjöra nokkurt mein dýrum |)ess-
um, og allra sízt köttunum. Þeir
reyndu þvi ekki að skjóta örvum sín-
uin á hermenn Cambysesar, því Jieir
héldu að þeir kynnu að meiða ein-
hvern köttinn. Vann Cambyses þar
léttan sigur á þeim, og gafst alt
Egyptaland á hans vald. Voru þeir
þó hermenn miklir Egyptarnir.
ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ.
um heimilisréttaríönd í Canada
NorÖvesturlandinu.
Hver, sem heflr fyrtr fjölskyldu at
sjá eöa kartmaöur eldrl en 18 ára, gat-
ur tekið helmlllsrétt á fjóröung úr
sectlon af óteknu stjórnarlandt I Manl-
toba, Saskatchewan og Alberta. Um-
sækjandl veröur sjálfur aó koma 4
landskrtfstofu stjðrnarlnnar, etSa und-
Irskrifstofu hennar t þvt héraöl. f um-
boöt annars má taka land á ðllum
landskrlfstofum stjórnartnnar (en ekkt
á undlr skrtfstofum) metl vlssum sktl-
yrðum.
SKYLDDR. —Sex mánaöa ábútt og
ræktun landslns á hverju af þremur
árum. Landneml má búa mett vtssum
skllyröum lnnan 9 milna frá helmllts-
réttarlandt sínu, á landt sem ekkl er
minna en 80 ekrur. Sæmllegt tvöru-
hús veröur aö byggja, aó undanteknu
þegar ábúðarskyldurnar eru fullnægtt-
ar tnnan 9 mítna fjarlægtt á öttru landl,
etns og fyr er frá grelnt.
1 vissum héruttum getur góttur og
efnllegur landneml fengitt forkaups-
rétt á fjórttungl secttonar metSfrara
landt sínu. VertS $3.00 fyrlr ekru hverja
SKYLDUR—Sex mánatSa ábútS á
hverju htnna næstu þriggja ára eftlr
atS hann heflr unnltS sér inn elgnar-
bréf fyrir hetmlttsréttarlandt stnu, og
auk þess ræktatS B0 ekrur á hlnu setnna
landi. Forkaupsréttarbréf getur land-
nemi fengitS um leltS og hann tekur
hetmtlisréttarbréfit5, en þó metS vlssum
skilyrtSum.
Landneml sem eytt hefur helmttls-
réttl sínum, getur fengttS helmlllsrétt-
arland keypt í vlssum hérutSura. VertJ
$3.00 fyrlr ekru hverja. SKYLDUR—
VertSur atS sltja á landtnu 6 mánutst af
hverju af þremur næstu árum, rækta
50 ekrur og retsa hús á tandlnu, sem er
$300.00 virtSt.
Bera má nltSur ekrutal, er ræktast
skat, sé landitS óstétt, skógl vaxttS etta
grýtt. Búpentng má hafa á landlnu 1
statS ræktunar undir vtssum sktlyrtSum.
W. W. CORY,
Deputy Mtnlster of the Interlor.
BlötS, sem flytja þessa auglýslngu
leyftslaust fá enga borgun fyrlr.
Fall Novo-Georgievsk.
Borg sú eða vígi var unnið af
Þjóðverjum seint í ágústmánuði
síðastliðnum, eftir langa atsókn og
stranga og mannfall svo mikið af
liði Þjóðverja, að talið var nær 240
þúsund manns. Vörn Rússanna hins
vtgar er talin svo fræg, að verða
rr.un uppi meðan saga er skráð.
Herstöð Jtessi hin mikla, er talin
tin hinna mestu í veldi Rússlands,
og vígi J)ar svo gott til varnar, að
inikill liðs- og voþnamunur varð að
vera til þess að Rússar töpuðu þvi.
Og víst er um J)að, að svo varð sig-
urinn Þjóðverjum dýrkeyptur, að
þegar fregnin um hann barst til
Berlínar, þá bar þar ekkert á þeim
fögnuði, sem þjóðin er vön að láta
i ljósi, J)egar óvinaborgir vinnast.
Miklu fremur færði sigurfregnin
>>orgarblæ á andlit manna, þvi að
það var áður ljóst orðið af fregnum,
sem borist höfðu til Berlínar hve
örðug Þjóðverjum hafði reynst um-
sátin og hve dýrkeyptur þeim
mundi verða sá sigur, sem falli víg-
isins fylgdi. Það var eins og þjóðin
beygði höfuð sitt í sorg og auðmýkt
og af meðlíðan með þeim aragrúa
mæðra eiginkvenna, barna og ann-
ara skyldmenna og ástvina, sem alt
sitt höfðu mist við þennan stað, og
tilfinningin fyrir því, að þessi hrika-
leikur við Novo-Georgievsk rétt-
lætti ekki J)au útlát fyrir Þýzkaland,
sem honum fylgdu, og Jrað því síður
sem það var vitanlegt, að vígi þetta
var sigurvegurunum að engu liði,
þegar það var unnið.
Einn maður í varnarliði Rússa
ritar um Jienna bardaga á þessa
Teið:
Það er verkefni fyrir annan Ver-
estchagin, að mála myndir af þessu
stríði Rússa og þýzkra. Vígvöllur-
inn er þakinn ryki. — ryki, sem
ckki myndast af reyk úr skotkúlum
vorum, heldur þvi, sem rís upp af
inannlegum líkömum við hristing
Jiann, sem verður, J)egar hundruð
þúsunda af byssukúlum vorum
snerta völluna.
Yfir einn hluta vígvallarins koma
hinir sigurvegandi Þjóðverjar í stór-
um, þéttum fylkingum og drepa
ntörg hundruð vorra særðu manna,
sem eru á Ieið til þeirra. Á öðrum
stað á völlunum eru smáhópar vorra
manna; Jieir eru særðir, en J>ó með
þrautum færir um að ganga; þeir
standa þarna og signa sig. Einbeitn-
in skín úr andlitum J)eirra, þó J)eir
fái ekki vopnum beitt. Þeir eru all-
ir drepnir, hver. einasti })eirra. *1ín
nú berst atlagan að oss.
Setulið Novo-Georgievsk hefir með
þrautseigju varið hvern einasta
J)umlung vígisins; hermenn vorir
biðu með rósemi, þar til að þeim
kæmi. Vígi vor höfðu hér 10 og 12
þumlunga fallbyssur og skotfæri
voru yfirfljótanlega nóg, en setulið-
ið vissi að varnardagar þess voru
taldir, og að það var því engin þörf
á að spara skotfærin. Þess vegna
var skothriðin uppihaldslaus bæði
dag og nótt. Úr sumum af fallbyss-
um vorum var skotið meira en 15
hundruð kúlum, þar til byssurnar
sprungu af sinum eigin skotum,
þegar þær voru orðnar rauðheitar.
Skothæfni manna vorra var ágæt.
Þjóðverjar gjörðu öll áhlaup sin í
þéttum fylkingum, þó J)eir væru
innan mílu vegar frá fallby'ssum
vígisins, og sprengikúlur vorar
lentu allar á Jiessar fylkingar, þar
sem þær voru þéttastar, og breyttu
þannig á svipstundu heilum her-
sveitum óvinanna upp í smátætlur
holds og beina. Gæzlumenn vorir,
sem einatt höfðu sjónauka sína mið-
aða á áhlaup Þjóðverjanna, sögðu
,að vigvöllurinn líktist mest maur-
þöktu loðskinni, sem verið væri að
berja rykið úr úti í sterkum vindi.
Við hverja kúlusprenging þeyttust
ský af mannatætlum upp í loftið.
Jafnvel hinir æstu Þjóðverjar hikuðu
,við að gjöra áhlauþin móti slíkum
hvirfilbyl elds og ógna. En svo
hafði verið utnbúið, að hermenn
Þjóðverja höfðu verið fyltir af víni,
óður en þeim var skipað til fram-
sóknar. Ekki einn einasti þeirra
Þjóðverja, sem vér tókum til fanga,
af þeiin, sem áhlaupin gjörðu, var
ódrukkinn.
Meðan hersveitir óvinanna voru
að gjöra áhlaupin og yfirmenn
þeirra að örfa J)á til framgöngu,
voru byssur þeirra til taks fyrir aft-
an fylkingarnar, að skjóta á vígi
vort; hermenn þeirra gátu því und-
ir engum kringumstæðum hörfað til
baka; þeim var annaðhvort að gjöra
að sigra Rússana, sem voru fyrir
framan þá, eða deyja. l)ag eftir
dag og nótt eftir nótt komu Þjóðverj-
arnir í storum, þéttum fylkingum,
eins og haföldur, sem köstuðust af
ofsa vindi upp að kletti, og eftir því
sem fylkingar þessar voru tættar
sundur af skotfærum vorum, komu
aðrar nýjar fylkingar i þeirra stað.
Mannmergðin var óþrjótandi. A
eina hlið vígisins gjörðu Þjóðverjar
slík uppihaldslaus áhlaup í sam-
fleyttar 24 klukkustundir, frá dögun
eins dags til jafnlengdar næsta
dags.
,Ekki að eins menn vorir, heldur og
byssurnar líka örmögnuðust af
þreytu. Fallbyssurnar rauðhitnuðu
og sprungu. Oft urðum vér að skifta
um byssur og raða óþreyttum inönn-
um á skotgarðana. En einatt sóttu
Þjóðverjar Jieim mun fastara fram,
sem lengur leið á timann. Sumir ó-
vinanna, sem hepnaðist að komast
,nógu nálægt okkur, köstuðu rifflum
SÍnum, með styngjunum áfestum,
inn í hóp vorn, steyttu hnefana og
með orgi og óhljóðum og blótsyrð-
Gullbrúðkaupsljoð til hjónanna
Valdísar og Símonar Símonarsonar.
Nú er eg fjarri góSu gamni í kvöld
gullbrúSkaupsins rausn og veizlu-sölum;
ÞaS eru sjaldgæf svona töSngjöld
í sjóplássum og kotbygS fram í dölum;
og því er þaS, þó langt sé millum landa,
eg leiSist til aS senda fleygan anda.
Nú sitjiS þiS á brúSarbekk í kvöld
og bandiS virSist hvorki teygt né slitiS,
sem tengdi ykkar hjörtu um hálfa öld;
svo hugfró getiS þiS nú bæSi litiS
á liSna tíS og lífsins stríS og gaman,
á langri braut. er þiS hafiS gengiS saman.
ÞiS minniS mann á aldnar eikur tvær,
sem ungar höfSu greinum saman fléttaS,
svo vindar gátu' ei beygt né brotiS þær.
ÞiS bæSi voruS sómi ykkar stéttar,
og studdust vel, þótt einatt áfall kæmi,
og öSrum jafnan gáfuS fagurt dæmi.
Á ykkar harSa, langa landnáms-stríS
nú lítiS þiS meS sigurbrosi aftur.
Bezt dugSi ykkur æ, á þeirri tíS,
íslenzk seigja, þrek og viliakraftur.
ÞiS hafiS skeiSiS heiSarlega runniS,
haldiS velli, fríSan sigur unniS.
Hve fríS er ykkar liáa aldurs-hacS,
um haustkvöld lífs meS snævarfald á brúnum.
I skýjarofi stjarna skín einstæS
og stafar hana friSar-geisla rúnum.
En Argyle fagra geymir gæfu sporin
þar grænkar jafnan hveitiS fyrst, á vorin.
MeS hélu-hvítan elli sigur-sveig
þiS samleiS haldiS fram, á lífsins vegi,
og drekkiS bæSi langan, Ijúfan teig
af lífsins bikar, sem á nýjum degi,
og nemiS land í Argyle, æSri og betri;
því eilíft sumar fylgir jarSlífs vetri. ,
Erl. Gíslason.
X
»C
i
Ábyrgstar vörur
Maður heyrir talsvert nú á dögum um að “kaupa pakkað-
ar nauðsynjar”—vörur ábyrgstar. Ágætt ef ábyrgðin
Jiíðir nokkuð.
BLUE MBBON
TEA
er þrefaldlega ábyrgst.
Á bak við það stendur félag með tuttugu ára orðstýr
fyrir varmensku og ærlegheit í verslun.
Hin nýja tvöfalda umbúð er ábyfgð þess að teið tapi
ekki krafti vegna loftslags eða annara orsaka.
Og svo er hin reglulega ábyrgð að hver sem kaupir og er
ekki ánægður þó það sé ekki nema ímyndun ein fær
peninga sína til btrka ef hann aðeins fer þess á leit.
Gæti nokkur ábyrgð verið áreiðanlegri.
um skipuðu oss að gefast upp og
fara heim.
“Fáiff okkur Novo-Georgievsk! —
Farið heim! Látiff okkur komast i
vigið!’’ — hrópuðu l)eir.
Þegar dagaði næsta morgun og
jnenn vorir litu yfir vígvöllinn, and-
vörpuðu þeir þungt. Bardagasvæð-
ið, sem var 5 milna langt og hálf-
önnur míla á breidd, var J)akið
þykku lagi fallinna hermanna. Þjóð-
verjar lágu þar í röstum og haugum,
og yfir Jjenna akur fallinna sam-
landa sinna þrömmuðu nýjar og aft-
,ur nýjar stórfylkingar, hver á eftir
annari og allar að sama markmiði,
— að mæta dauðanum, sem inætti
þeim frá óteljandi eldtungum úr
byssukjöptum vorum. Hundruð —
J)úsundir dauðra inanna stóðu þar
uppréttir, eins og þeir væru lifandi,
milli stórhauganna af þeim föllnu
félögum þeirra. Þeir, sem lengst
voru frá víginu, voru tættir sundur
af fallbyssukúlum vorum; þeir sem
nær voru*féilu fyrir haglhrið kúlna
úr riflum vorum og vélabyssum;
röð eftir röð af aðvífandi óvinum
téll og líkin lágu i röstum. En ein-
att voru nýjar fylkingar bak við til
,að sækja fram. Þessar fylkingar
urðu að klifrast yfir stóra hauga af
þeim föllnu, áður en þær gátu kom-
ist áfram meira en fáein skref. En
einatt komu fylkingar Þjóðverjanna,'
fleiri og fleiri, og nýjar rastir fall-
inna manna, og margir gátu ekki
fallið fyrir þrengslunum, en stóðu
uppréttir eins og þeir væru lifandi.
Þegar hlé varð milli áhlaupanna,
sögðu foringjar vorir oss, að hinir
dauðu Þjóðverjar virtust miklu
þræðilegri en þeir lifandi. Þegar
loks Þjóðverjarnir, þrátt fvrir hið
afskaplega mannfall þeirra, komust
nogu nálægt okkur, þá ruddust þeir
bein.t upp að byssukjöptunum, svo
að ekki varð unnið með þeim, af
Jiví að líkamir óvinanna urðu sem
J'éttur veggur fyrir framan hlaupin.
Aðrir hópar ruddust að oss með
byssustingi sína. Hinir druknu Þjóð-
verjar steyptust eins,og stórflóð yf-
ir skotgarða vora og hentu sér ofan
á menn vora, sem voru í skjóli garð-
anna. Óvinirnir voru algjörlega
æðisgengnir og rifu og bitu Rúss-
ana í andlit og hendur, eða hvar,
sem þeir fengu tennur á fest. En
Rússar tóku fast á móti og héldu
velli meðan þeir máttu.
“Fariff þiff heim, Þjóðverjar!”
hrópuðu þeir. “Þaff má vera, aff
yffur takist aff sigra oss á þessum
stað. En þér miinuff jafnan muna
eftir okkur, og þvi, aff Novo-Georgi-
evsk kostaffi yður meira en einn
kopeck.”
Það bar sjaldan við, að menn vor-
| ir gjörðu áhlaup á Þjóðverjana. Þeir
j vissu, að ekki var mögulegt, að
hrinda öllum þeim mikla manngrúa
frá víginu. Og hvers vegna skyldu
J)eir þá eyða kröftum sínum að á-
rangurslausu? Þeir hlifðu því liði
sínu við óþarfa hættum, með því
Jíka, að þeir höfðu ekkert aflögu af
vopnum, hvorki fallbyssum né rifl-
um. Méðan stóð á þessum mikla
bardaga fundust engin tök til að
annast um þá særðu eða koina þeim
:• spitala.
Þegar Irensonski, rússneski mál-
arinn frægi, var 'eitt sinn spurður
um, hvaða verð hann setti á eitt af
ínálverkum hans, svaraði hann:
“Mitt vanalega verð”. En það var að
raða 100-rúbla seðlum yfir mynd-
j ina, Jiar til hún var öll þakin. Á lík-
,an hátt hefir varnarlið Novo-Georgi-
,evsk sett verðið, sem Þjóðverjar
,urðu að borga fyrir J)að vígi í fölln-
um herinönnum.
Það var af þessum ástæðum, að
engin gleði varð á Þýzkalandi yfir
falli borgarinnar.
“Margt smátt gjörir eitt stórt”
segir gamalt orStak, sem vel á viS
þegar um útistandandi skuldir
blaSa er aS ræSa. Ef allar smá-
skuldir, sem Heimskringla á úti-
standandi væru borgaSar á þessu
hausti, yrSi þaS stór upphæS og
góSur búbætir fyrir blaSiS. ------
MuniS þaS, kæru skiftavinir, aS
borga skuldir ySar viS blaSiS nú
í haust.
ISf D0MINI0N BANK
Hornl Notre Domt ob Sherbrooke
Street.
HUfutSMðll uppb............ 46,000,000
VarasjtStSur .............. 47,000,000
Atlar eigrnlr..............478,000,000
Vér ðskum eftlr vttSsklftum verz-
lunarmanna og ábyrgjumst atS gefa
þeim fullnægju. SparlsjótSsdellcl vor
er sú stærsta sem nokkur bankl hef-
lr f borglnnl.
Ibúendur þessa hluta borgartnnar
óska ats skifta vltS stofnum sem þelr
vita atS er algerlega trygg. Nafn
vort er fulltrygglng ðhlutlelka.
ByrjitS spari innlegg fyrlr s jálfa
ytSur, konu og börn.
W. M. HAMILT0N, RáSsmaíur
PHONE GARRY 34.10
Þegar þú þarfnast bygginga efni eía eldirfS
D. D. Wood & Sons.
-------------------Limited--------------------
Verzla með sand, möl, mulin stein, kalk,
stein, lime, “Hardwall and Wood Fibre”
plastur, brendir tígulsteinar, eldaðar pípur,
sand steypu steinar, “Gips” rennustokkar,
“Drain tile,” harð og lin kol, eldivið og fl. ,
Talsími: Garry 2620 eða 3842
Skrifstofa: Horni Ross og Arlington St.