Heimskringla - 04.11.1915, Qupperneq 8
BLS 8.
HEIMSKRINGLA.
WINNIPEG, 4. NÓV. 1915.
wsrtffflc cágt
COATS. AT
WELL
MiSvikudaginn og Fimtudaginn
BLANCH SWEET IN
THE CLUE
Kemur innan fárra daga “CAMP SEWELL”
FÁHEYRT TILBOÐ
Á gæ'ðum, Mismunandi tegundum og Prís
FYRIR VESTUR-CANADA
EATON’S sannarlega bjóSa sérstök kaup þetta haust og
vetur á fötum og klæSnaSi.
Einmitt þegar þörfin er mest—þegar framleiðsla er lítil
og verS hátt—VerSa EATON’S verSgæSi best.
EATON’S TilboS merkir stórkostlega varninga byrgSir til
þess aS velja úr, þannig gefst fólki tækifæri til þess aS fá
einmitt þaS sem því er hentugast, besta tegund af vörum sem
eru keyptar af okkar eigin innkaupsmönnum, sem þekkja þarfir
Vestur landsins og sanngjarnir prísar, sem eru mögulegir
vegna þess hvaS keypt er í stórum slumpum og vegna þess aS
viS seljum fyrir peninga út í hönd, en aukum ekki nema lítiS
verSiS.
4\ A
t PRJCES
Y*
■ \ ’-J
í
\ %
<c
»**# B«o»
'*T íftAv- f
wxt-u*
Sérstaklega á fatnaöi, sem varöar miklu í vetur.’ Margt
af þeim fatnaSi fyrir menn, konur og börn, sem er sýnt í
EATON HAUST OG VETRAR VERÐSKRÁNNI er ó-
kaupanlegt í dag fyrir nokkuS í nánd viS þaS verS sem þar er
sýnt og þetta stendur þér enn til boSa.
NáSu í EATON Vöruskrá og vertu aSnjótandi EATONS
kjörkaupanna. ÞaS verSur þér til sparnaSar og ánægju.
T. EATON C°u
■ ■ | LIMITED
WINNIPEG - CANADA
Fréttir úr Bænum.
Mr. Sigurður Sölvason frá West-
bourne, Man., var hér á ferð í borg-
inni nýlega. Lét hann vef af liðan
manna þar vestra. Hveiti betra en
nokkru sinni áður. Skemdir af rign-
inguin minni, en flestir hafa búist
við, en tafið hefir ]>að fyrir þresk-
ingu stórum. Þó hélt hann að flest-
ir myndu búnir að þreskja þessa
\ iku.
Bráðkvödd varð á fimtudagskv.
i síðustu viku á Winnipeg Beach,
Mrs. Harry Anderson, dóttir Magnús-
ar Guðlaugssonar á Gimli. Hafði ver-
ið veik í fæti, en var á flakki við
dagleg störf og fékk svo hjartaslag.
Mr. E. J. Skjold, lyfsali, er nýkoin-
inn til bæjarins úr ferð sinni til
fornra stöðva i Norður Dakota. Mr.
Skjold lét vel yfir öllu þar syðra.
Þreskingin var búin og hlöðurnar
svignuðu iindir hveitinu. Þeir kæra
sig ekki mikið um að selja það, Þyk-
ir verðið nokkuð lágt; og svo eru
menn'önnuni kafnir að plægja akr-
ana meðan frostin konia ekki, og
mega þvi ekki verá að því að keyra
hveitið til markaðar.
Þann 28. október voru Jiau Árni
S. Halldórsson og Christina Good-
man, hæði til heimilis á Winnipeg
Beach, gefin saman í hjónaband að
391 Hargrave St., Winnipeg, af síra
F. J. Berginann.
Mr. Hannes Kristjánsson. kaup-
maður á Gimli. kom til borgarinnar
á mánudaginn var i verzlunarerind-
uin. Hannes segir, að það sé inikill
áhugi á Gimli fyrir bindindislöggjöf-
inni. Hann fór ofan eftir á þriðju-
daginn og ætlar eins og fleiri norður
að Fljóti, til þess að verða viðstadd-
ur hina miklu afmælissamkomu ]>ar.
Islenzki Konservutíve Klubburinh
ætlar nú að fara að halda hina vana-
legu vetrarfundi sína, og á hinn
lyrsti að verða á fimtudaginn í
næstu viku, 11. nóvember, í hinum
venjulega ftindarsal klúbbsins, sam-
komusal Únítara, horni Sherhrooke
og Sargent. Þeir hafa oft verið fjör-
ugir og skemtilegir ]iessir fundir og
verða það vonandi ekki síður í vet-
ur.— Meðlimir klúbbsins eru ámint-
ir um að sækja vel fundinn, og koma
með sem flesta nýja meðlimi með
sér. íslenzkir Konservatívar utan úr
bygðum, sem staddir kunna að
verða i bænum um það leyti, eru
boðnir og velkomnir á fundinn.
Athugið auglýsingu í næsta blaði.
Þakklætis samkoma verður hahlin
i Tjaldbúðarkyrkju þann 18. nóvem-
ber. Prógram auglýst síðar.
Mr. John Heidmann, Skálholt P.
0., Argyle, kom til bæjarins með
konu sína, að leita henni lækninga
við sjóndepru. Hafði I)r. Jón Stef-
ansson góðar vonir um. að henni
gæti batnað. Heidmann sagði þresk
ingu að miklu leyti búna. En snjór-
inn, sem nú kom þar seinast, stöðv-
cði þá sem eftir voru, og ætlar hann
að stöku maður eigi viku þreskingu
eftir enn.
Auglýst var við guðsþjónustu í
Tjaldbúðinni á sunnudagskveldið
var, að umræðuefnið við guðsþjón-
ustu næstkomandi sunnudagskveld
yrði: Kenningarnar, sem hrundu
striffinu af staff. — Mrs. Dr. Fit Pat-
rick, ein helzta söngkona bæjarins,
s.vngur í Tjaidbúðinni sama kveld-
ið.
Borgið Heimskringlu bændur—
MuniS eftir Heimskringlu þegar
þér seljiS uppskeru ySar þetta
haust. — Þetta er líka uppskeru-
tími hennar.
Miðvikudaginn 27. október and-
aðist að heimili sínu, 961 Garfield
St., Winnipeg, ekkjan Anna Abra-
hamsson, fullra 90 ára að aldri; eft-
ir fulla 6 mánaða sjúkdómslegu.
Banameinið var hjartabilun. Hún
fluttist hingað vestur fyrir 30 árum
síðan frá Eyjafirði á íslandi, ásamt
inanni sínum, Jóni Abrahamssyni,
sem andaðist hér i Winnipeg síðast-
l’ðið sumar. Jarðarförin fór fram
niánudaginn 1. nóv., frá heimilinu
og Skjaldborgarkyrkju, framkvæmd
af síra Rúnólfi Marteinsssyni.
Dáin i Piney, Man., Mrs. Katrín
Iiinarsson, móðir Einars Einarsson-
ai ]>ar í bygð. Hún dó 2. þessa mán-
ur; var öldruð kona. Meira síðar.
Vinur vor Marteinn Jónsson hefir
gefið oss frekari upplýsingar um
Ragnar Johnson, sem nýlega fór aust
ur til að berjast með Bretum. Hið
fulla nafn hans er Jóhann Ragnar:
fæddur 1888 í Suður-Múlasýslu á ls-
iandi. I’aðir hans er Marteinn Jóns-
son, Framnes P.O., Man. En móðir
hans er Helga Jóhannsdóttir, systur-
dóttir Benedikts sýslumanns Sveins-
son.ar. Hann hefir átt heima síðast-
liðin 10 ár í Winnipeg og er útlærð-
ur tinsmiður. — Utanáskrift óskast.
Siðan vér birtum bréf frá Serg.
J. V. Austmann hefir faðir hans
fengið 2 bréf frá honum og 1 póst-
spjald. Lætur hann allvel af sér og
virðist fá með góðum skilum það,
sem honum er sent héðan, bæði af
mat og peningaávísunum. — Hann
biður um, að senda sér ekki meira
af tóbaki; segist ekki neyta þess,
nema lítilsháttar; en vinir sinir hafi
sent svo mikið, að 6 mánaða forði sé
nú fyrirliggjandi.
Rausnarlegar gjafir.
Merid, Sask., 28. okt. 1915
Herra ritstj M. J. Skaptason.
Kæri herra! Innan i þessu bréfi
vonast eg til að þú finnir $22.00 —
tuttugu og tvo dali —, sem eg bið
þig að koma til skila fyrir mig
þannig;
$2.00 til Heimskringlu frá mér.
$5.00 til samskotasjóðs Canada i
larfir stríðsins.
$5.00 til Rauða-krossins.
$5.00 í samskotasjóð til hjálpar
Belgíu.
$1.00 frá mér í jólakassa handa
blessuðum hermönnunum.
$1.00 frá Stephen Kolbeinsson.
1.00 frá J. T. Kolbeinsson.
$1.00 frá S. J. Kolbeinsson, og
$1.00 frá Þorsteini Ingimarssyni.
Ofangreindir $4.00 eiga að ganga
til jólagjafanna til íslenzku hermann-
anna.
Konan mín sendi i dag til skrif-
stofu Heimskringlu 3 pör sokka og 3
pör vetlinga til hermannanna.
Ekki neitt að frétta. Góð uppskera
og þresking langt komin hér í kring,
en óinögulegt að koma hveitinu frá
sér.
Vinsamlegast,
Þórffur Kolbeinsson.
• * *
Aths.—Vér setjum bréf þetta hér í
blaðið. Það sýnir svo vel göfugan
bugsunarhátt landa vorra. Þeir ætla
ekki að liggja sem ormur á gulli því,
sem jörðin gefur af sér, heldur láta
aðra njóta góðs af. Hjartað er á rétt-
um stað. Tilfinningin er svo vakandi
að gjöra gott með þessari miklu upp-
skeru, sem menn hafa fengið: að
gleðja þá, sem fjarri eru sinum, og
ef til vill í hörmuiig og þrautuin.
Heiður sé öllum þeim, er þannig
b.ugsa.—fíitstj.
Leiðrétting.—Stefán Sigurðsson,
er 394 Toronto St. hér í borg dó að
heimili sínu á laugardaginn 16. okt.,
kl. ‘8 að kveldi, úr maga-blóðspýt-
ingi. Stefán sál. varð 57 ára gamall;
ættaður af Jökuldal og fluttist hing-
að fyrir 28 árum. Hann lætur eftir
sig konu, Guðnýju Einarsdóttur, og
fjögur börn : Guðrúnu Pálínu, konu
Sigurðar F. Magnússonar í Keewat-
in, Ont.; Mrs. Sigríði Bergmann hér
í borg; Rósu, ógifta stúlku, og Karl
Óskar, 12 ára. Þau þrjú síðasttöldu
voru hjá foreldrum sínum. Jarðar-
förin fór fram 19. október. Hús-
kveðja frá heiinili hans og likræða i
Tjaldbúðinni. Útförin fór fram und-
ir umsjón herra A. S. Bardals.
Andlátsfregn þessi var að ýmsu
leyti ranghermd i siðasta blaði, og
prentum vér hana því upp aftur.
Miss Ástriður Johnson, 16 ára
gömul stúlka, dóttir Mr. og Mrs. John
son, 624 Beverly St. er nýdáin. Jarð-
arförin fer fram í dag 3. nóv. Síra
Björn Jónsson jarðsyngur
Tímaritið Iðunn ekki enn komið
hingað vestur til útsölu, og veit eng-
inn hvað veldur.
VANTAR.—Mrs. L. J. Hallgrímsson,
að 548 Agnes St., vantar vinnu-
konu.
HEIÐURSLISTI ÍSLENDINGA.
Johnson Thory (Þórhallur).—Hann
er frá Innisfail, Alberta. Er móð-
ir hans Mrs. J. Björnsson (Sigur-
ást Daðadóttir); faðir hans Þór-
hallur Johnson var fyrri maður
hennar. Þórhallur sonur þeirra
er fæddur í Hörðudal i Dalasýslu
á lslandi 20. júní lö97. Hann
gekk i herinn i sumar og fór til
Calgary og var þar við æfingar
þangað til 6. sept. siðastl. Þá fór
hann með 23rd Reserve Batt. til
Englands. Áður var hann með
móður sinni og fóstra á Tinda-
stól í Alberta Utanáskrift:
Pte. Thory Johnson (A35457).
50th Draft, attached to
23rd Reserve Batt.
West Sandling,
Shorncliffe, Kent, England.
Jchnson, Guðmundur G., smiður.—
Gekk í 66th Batt. hér í Edmon-
ton á öndverðu sumri. Er hann
sonur Gisla Jónssonar, frá Veðra-
móti í Skagafjarðarsýslu. Fædd-
ur í Dakota 2. sept 1882. Giftur
maður og dvelja kona hans og
börn hér í bæ í fjarveru hans. —
Skömmu eftir að hann gekk í
herinn var hann gjörður að eft-
irlitsmanni deildar þeirrar, er
hann heyrir til (police) og hefir
gengt þeirri stöðu síðan. Guð-
mundur cr Vestur-íslendingur í
húð og hár, fastur fyrir og ein-
beittur. Áritun hans er nú:
9332 lsabella St., Edmonton.
Loptsson, Sveinbjörn.— Frú Edmon-
ton, Alta. Hann er 21 árs gamall.
Móðir hans er Mrs. O. Loptsson,
10946 83rd St., Edmonton. Var
stúdent á Alberta University áð-
ur en hann gekk í herinn.
Utanaskrift:
Pte. S. Loptsson, Mc G 227
P. P. C. L. I. 80th Brigade,
27th Division.
B. E. F’., France.
Eða má láta:
No. 5 Co., llth Reserve Batt.
P.P.C.L.I., England
Sölvason, fíútur Sigurffui^ frlá West-
bourne.— Gekk í 44th herdeild-
ina B. 2 . maí, i Port. la Prairie;
fór héðan 18. okt. til Englands.
Rútur er 25 ára gamall. Foreldr-
ar: Sigurður Sölvason og Guð-
rún Pétursdóttir í Westbourne.
Hann á 2 bræður lieima, 4 syst-
ur, 2 hjá foreldrum sínuin, eina
hér í Winnipeg og eina heima.—
óskast utanáskrift.
Tryggvi Thorsteinsson er bróðir
Kolskeggs Thorsteinssonar, eins
og sagt var í síðasta blaði, og eru
þeir synir Tómasar Thorsteins-
sonar og Guðrúnar Jóelsdóttur
konu hans, til heimilis í Sturgeon
Creek, Man. 1 föðurætt eru þeir
bræður náskyldir Tómasi Sæ-
mundssyni, fræðimanninum al-
kunna. í móðurætt eru þeir 4. af-
koinendur sira Gísla konrectors
Hólum í Hjaltadal, sonar Jóns
biskups Teitssonar og Margrétar
Finnsdóttur, systur Hannesar
biskups Finnssonar í Skálholti.
Utanáskrift:
No. 423102,
Pte. Tryggvi Thorsteinsson.
44th Oversea Batt.
c.o. Officer in charge Canadian
Records.
Willbank, London, England.
I| ’ "" -
QUEEN ESTHER
(ESTER DROTNING)
Hinn fagri hljómleikur, eftir Bradbury, verður sunginn af
söngflokki Skjaldborgar-safnaSar meS aSstoS annara söng-
krafta í Skjaldborg, þriðjudaginn,
9. NOVEMBER, 1915
Byrjar kl. 8 aS kvöldinu. Inngangur 25c.
í»essi hljómieikur fylgir efni Esterarbókar. Sagan um Ester,
fátæku Gybinga stúlkuna, sem varb drottning Persalands, hefir ætíb
þótt ein hin tilflnningarríkasta saga mannkynsins. í hljómleiknum
eru þessar tilfinningar færflar í hinn dýrblega búning söngsins svo
meistaralega ab allir hafa dást at5, sem heyrt hafa. Allur undir-
búningur þessarar samkomu hefir veriö mjög vandaöur.
BIXSÖJTGVA SYNGJAt
MÍS8 E. Thorvaldsson Miss S. Hinriksson
Miss M. Hermann Mr. H. Thórólfsson
Miss M. Anderson Mr. P. Bardal
Miss Ollver Mr. W. Albert
Mr. B. Methúsalemsson
Gleymið ekki níunda Nóvember. Fyllið húsið.