Heimskringla - 03.02.1916, Qupperneq 5
WINNIPEO, 3. FEBRÚAR, 1916.
II E I M S K R I N G L A.
BLS. 5
Þegar Ancona sökk
Eftir Dr. Cecile Greil.
(Niðurlag).
Alt til þessa hafði eg ekki orðið
vör við voða nökkurn. Iig hélt, að
það kynni svo að fara, að okkur yrði
kalt i opnum bátutn, að flækjast uin
sjóinn, þangað til önnur skip hittu
okkur og björguðu okkur af bátun-
um. Og eg var laus við æðisgang-
inn, sem var á flestum. Eg stoð
þarna grafkyrr til þess að átta mig.
og fá vald yfir sjáifri mér og hugsa
um það, hvað heppilegast væri fyr-
ir mig að gjöra. Skipið Ancona var
alveg stansað, það var eg viss utn,
og eins unt hitt, að skipið hlaut að
farast.
Enn hófust brestirnir voðalegir
aftur; hver drunan tók við af ann-
ari i ýmsum pörturn skipsins og
fylgdu þeini sprengingar, og allra
handa rusl var að hrynja niður á
þilfarið. beir voru að eyðileggja
loftskeytamöstrin. á skipinu. — En
þetta var ennþá engin dauðans
hætta!
En nú heyrði eg alt í einu voða-
leg vein og angistaróp. Allir voru
nú orðnir hræddir.
En eg sá það fljótt, að það mundi
ekkert um bæta, að verða æstur og
hræddur. Eg fór ofan i káetuna
mina eins stilt og rólega, sem eg gat,
eg var fastráðin í því, að bjarga eins
miklu af eigum ínínum eins og nter
væri mögulegt. Eg lét peninga og
seðla i beltið mitt. Eg tók kvittun
frá bryta skipsins fyrir 20.000 lir-
um, sem eg hafði fengið honum til
geymslu, og stakk henni einnig í
björgunarbeltið. Svo lór eg niður
tröppuna ofan á aðra káetu, á leið
til brytans. En þar var búið að
skjóta burtu mikið af tröppunum,
og þegar eg leit þar niður, sá eg svo
hryllilega sjón, að cg gleymdi alveg
erindinu. Þarna 'lágu þrir eða fjor-
ir kvenmenn, fjögur eða fimm börn
og nokkrir karlmenn. Sumir voru
dauðir, en allir hinir með stórum
sárunt. Eg skoðaði börnin og sá að
tvö þeirra voru steindauð.
Brytinn lá fram á skrifborðið sitt
tnagnlaus, rétt eins og malsekk heioi
verið fleygt niður og liggur hann
þar með sömu ummerkjum og við
hann var skilið. Hann hafði verið
skotinn í höfuðið. Blóðið rautt rann
niður eftir bakinu á honum, eins og
rautt mál, og hár hans var í klepr-
um af blóðinu, sem var farið að
storkna.
Fyrstu skotin höfðu brotið þenna
part skipsins og farið alveg í gegn-
um það, og molað alt sem var á leið-
in.ni. Eg reyndi að snúa við aftur
og fara upp stigann, En á meðan
eg var þarna niðri höfðu sprengi-
kúlurnar einlægt dunið á skipinu og
tröppurnar voru nú allar orðnar
mölbrotnar.
Eg sá, að þetta var ekki það, sem
þjóðirnar kallu “lögmæta striðsað-
ferð”, heldur morð og slátrun sak-
lausra manna í stórum stýl. — En
þegar eg gat ekki snúið aftur þenna
reg, þá fór eg eftir annari káetu og
ætlaði að fara upp miðtröppurnar,
til þess að koirtast upp á þilfarið.
En sjón sú, sem eg sá þar, var svo
voðaleg, að mér er ómögulcgt að
lýsa henni. Allir farþegarnir úr
þriðju káetu höfðu þotið upp á aðra.
Þeir höfðu algjörlega gengið af vit-
inu. Hin eina vitglóra, sem þeir
höfðu eftir, var óljóst hugboð um, að
reyna að bjarga lífi sinu, og voru
margar tilraunirnar eintóm vitfirr-
ing. Menn og konur og börn höfðu
Ekta Bjór er bezti drykku þú getur fengið — x sem
D' UfWRY í r
Er hreinasti bjór sem til er búinn Hálf merkur, merkur etta Pott hylk- jum. — Einnig 1 kvartelum. Kauptu af verzlunarmanni þínum et5a rak- leitt frá— E. L. Drewry, Ltd., Winnipeg.
NYVERKSTOFA
Vér erum nú fœrir um taka á
móti öllum fatnaöi frá yöur tll
aö hreinsa fötin þín án þess aö
vœta þau fyrlr lágt verð:
Suits Cleaned and Preased....%Oc
Pants Steamed and Pressed. .
Suits Dry Cleaned.........$2.00
Pants Dry Cleaned ..........ROc
FáiÖ yöur verðlista vorn á öllura
aðgjörðum skófatnaðar.
Empress Laundry Co
-------- I.IMITKO ---------
l'biinr S*. Jokn :MK)
Cor. AlKBNS A.\D DI'FFBIUN
skriðið á fjórum fótum undir bekki,
borð og stóla, og virtist þeim ann-
ast um, að fela höfuðið. Eg sá mann
einn liggja þar með andlitið á grúfu
á gólfinu og var hann að mjaka sér
undir stól einn til að fela sig undir
honum og einiægt var andlitið á
grúfu.
En einlægt heyrðust drunurnar
og hvellirnir og brakið, eins og sam-
feldar þruinur, og jók það stórum
ótta fólksins. Kvenfólkið kraup á
kné í angist sinni og örvæntingu, og
var hver og ein að lesa bænir til
hinna heilögu manna, sem dýrkaðir
voru í sveitum þeim eða löndum,
sem þær komu frá, — biðja þá að
bjarga nú lífi sínu. Eg þreif i axlir
þeirra og barði þær til að reyna að
koina sér á fætur og bjarga Jífi sínu.
Eg tók i fæturna og handleggina á
þeim og i fötin og skipaði þeiin á
ítölsku að komast á fætur og ná sér
i björgunarbelti og komast sem fyrst
burtu »f skipinu. Og eg sagði þeim,
að þ.ær væru engu betur komnar
undir borðunuin og be-kkjunuin eða
stólunum; spi*engikúlurnar naiðu
þeim þar alt að einu, eins og þó þær
væru uppi á þilfari.
Eg fann gamla konu eina neðst
við tröppurnar; hún lá á bæn.
Gráa, þunna hárið hennar flaksnð-
ist laust um axlir liennar. Eg þekti
hana þá; hún var sama fconan, sem
eg hafði kynst, þegar eg var að leita
um skipið að kvenmanni, sera væri
fædd í Bandaríkjunum eins og eg, og
ætlaði að taka hana upp i herbergi
min, ef eg findi hana. Hún var (55
ára göinul þessi kona, að J»ví er lu'm
sagði mér. Tveir synir hennar höfðu
farið í stríðið, og nú var hún á leið-
inni lil hins þriðja, sem flutt hafði
til Ameríku og bjó i Pennsylvaniu.
Það var i fyrsta sinni, sem hún fór
út á hafið. Hún var dauðþreytt af
að liugsa um striðið. f Ameríku bjóst
hún við að finna frið og ró á sin-
um ellidögum hjá “bambino” (barn-
inu) sínum, svo kallaði hún þá full-
vaxinn son sinn. En þegar eg sá
hana liggja þarna, þá fór eg að
hugsa um J»að eitt, — að reyna að
koma hcnni lifandi burtu. Eg sagði
henni að koma með mér, eg skyldi
bjarga henni. Hún gjörði það, en
hræðslan var svo mikil, að hún hékk
máttlaus á handlcgg mér, eins og
bak hennar væri brotið, og varð eg
að draga hana upp á þilfarið.
Bátur einn hafði verið losaður.
Það var verið að láta liann síga nið-
ur. Hann var ein iðandi kös af fólki.
Og fjöldi karla; kvenna og barna var
þar i Jiéttum hóp, að hljóða og kalla
og veina, og hrinda og berja livert
annað, til að komast í bátinn, þegar
verið var að renna honum niður. —
Karlmeimirnir voru svo miklu
sterkari en konurnar og börnin, og
J»eir gátu því rutt liinum frá sér eða
troðið undir fótum sinum,- Aldur
manna eða kyn hafði J»ar enga þýð-
ingu. Hið dýrslega afl réði öllu.
Þegar gamla konan við lilið mér
sá Jjetta, varð hún óð, og jókst henni
niáftur, sem ung væri. Hún sleit sig
af mér áður en mig varði og liljóp
í ofurmagni óttans eða tryllingsins
að borðstokknum og stökk útbyrð-
is. Aðrir stukku eða köstuðu sér
niður á höfuð þeirra, sem voru i
bátnum. En i ofboðinu liit-tu sumir
ekki bátinn og fóru beint í sjoinn
niður. En þá vildi svo til, að kað-
allinn á öðrum enda bátsins, festist
uppi á hjölinu, sem liann rann á, en
hinn endi bátsins rann i sjó niður.
Steyptist þá alíur liópurinn úr bátn-
um ofan i sjóinn, og voru það «v»—
100 manns. Hékk J»ar hvcr i öðrum
og hélt dauðahaldi, og fóru óðara í
kaf. Sumir syntu; sumir busluðu ögn
og sukku svo. Sumirhöfðu björgun-
arhringi, en druknuðu saint; þeir
cða J»ær höfðu ekki vit á, að halda
höfðinu upp úr sjónum.
Eg reyndi að tala við farþegana á
þilfarinu. En það var ekki til neins.
Ilver og einn talaði sína eigin mál-
lýzku og var óðamála. Þá fór eg að
sjá háskann, sem eg var sjálf stödd
í. Eg var þarna eini útlendingurian,
og þeir mundu hispurslaust láta niig
farast, en bjarga fremur eigin lön.l-
um sinum. Ef að eg hefði haft ji i-
steinana mina, þá hefði eg kanskc
getað keypt mér pláss í einhverjum
hátnum.
Eg fór J»ví aftur ofan í káetuna
niína. Það voru bæði dauðir og
deyjandi menn á þilfarinu. Eg sá
mann einn hlaupa upp tröppurnar
upp á pallinn, þar sem • yfirmenn-
irnir voru; en hann kom hrapandi
niður; það hafði koinið kúla aftan
i höfuð hans. — Þrátt fyrir alt þetta,
sem cg sá þarna, fanst mér ein-
hvernveginn, að ininn tiini væri
enn eklci kominn. Og sú hugsun
styrkti mig, að lvalda viti mínu ó-
skertu.
Þegar eg kom i káetuna, reif cg
upp lokið á kistunni minni. Og með-
an eg var að leita að hinu fémætasta,
sem eg átti, þá kom herbergisþern-
an í dyrnar. Hafði eg mætt henni
áður hvað eftir annað og var hún þá
æðisgengin á liarða lilaupi fram og
aftur, án þess að hún vissi nokkuð,
hvert hún ætlaði.
“ó, frú mín! Frú mínl— Við deyj-
um, — við deyjum, við töpum öll
saman lífinu!”
“Marial” mælti eg rólega og reis
ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ um
heimilisréttarlönd í Canada
og Norövesturlandinu.
Hver, sem hefir fyrir fjölskyldu a8
já effir karlmaSur eldri en 18 ára, get-
ur tekiö heimilisrétt á fjóröung úr
section af óteknu stjórnarlandi í Mani-
toba, Saskatchewan og Alberta. Um-
srekjandi eröur sjálfur aö koma á
landskrifstofu stjórnarinnar, eöa und-
irskrifstofu hennar í þvi héraöi. í um-
boöi annars má taka land á öllum
landskrifstofum stjórnarinnar (en ekkl
á undir skrifstofum) meö vissum skil-
yröum.
SKVI.Dl'H:—Sex mánaöa ábúö og
ræktun landsins á hverju af þremur
árum. Landnemi má búa meö vissum
skilyröum innan 9 mílna frá heimilis-
réttarlandi sínu, á landi sem ekki er
minna en 80 ekrur. Sæmilegt íveru-
hús veröur aö byggja, aö undanteknu
þegar ábúöarskyldurnar eru fullnægö-
ar innan 9 mílna fjarlægö á ööru landl,
eins og fyr er frá greint.
í vissum héruöum getur góöur og
efnilegur landnemi fcngið forkaups-
rétt, á fjóröungi sectionar meöfram
landi sínu. Verð $3.00 fyrir ekru hverja
SKVI.DUH:—Sex mánaöa ábúö á
hverju hinna næstu þriggja ára eftir
aö hann hefir unnið sér inn eignar-
bréf fyrir heimilisréttarlandi sínu, og
auk þess ræktaö 50 ekrur á hinu seinna
landi. Forkaupsréttarbréf getur land-
nemi fengiö um leiö og hann tekur
heijnilisréttarbréfiö, en þð meö vissum
skilyröum.
handnemi sem eytt hefur heimilis-
rétti sínum, getur fengiö heimllisrétt-
ariand keypt í vissum héruöum. Verö
$3.00 fyrir hverja ekru. SKYLDi'R:—
Veröur aö sitja á landinu 6 mánuöi af
hverju af þremur næstu árum, rækta
50 ekrur og reisa hús á landlnu, sem er
$300.00 virði.
Bera má niöur ekrutal, er ræktast
skal, sé landiö óslétt, skógi vaxiö eöa
grýtt. Búpening má hafa á landlnu i
stað ræktunar undir vissum skilyróulli.
\\ . W. CORY,
Deputy Minister of the Interlor.
Blöö, sem flytja þessa auglýsingu
leyfi'slaust fá enga borgun fyrir.
og rólegan, eins og Þjóðverjar væru
að yfirlíta þetta frægðarverk sitt,!
og geta sér til, hvað margar orður!
eða titla þeir fengju nú fyrir þetta
frægðarverk. Svo hafði hann sig á
kreik og hvarf okkur í þokunni. Það
létti af okkur þungri byrði, þegar |
hann hvarf.
Þeir voru 6 bátarnir ineð fólkið, j
sein eftir lifði, og allan seinni hluta
dagsins voru þeir þarna, svo að hver
sá til annars. En þegar myrkrið kom
var kveikt á stórum, gulum luktum,
og við og við senduin við upp smá
“rockets”, bengölsku ljósin. Var
þetta líkast bátaferðum á undir-
heimafljótinu Styx, i goðasögnum
Forn-Grikkja. Sjómennirnir urðu
þreyttir að róa, og settum við þá upp
segl, sem við bjuggum til úr ábreið-
um og brekánum. En yifir farþegum
þessum ölium, sem bjargast höfðu,
hvíldi nú einhvcr doðadrungi, mátt-
leysi og tilfinningarleysi.
Um klukkan 6 um kveldið fór bát-
ur einn á eftir okkur að gefa okkur
merki um, að þeir væru í háska
staddir. Mcnnirnir fóru úr skyrtun-
uin og veifuðu þeim til okkar á ára-
blöðunum. En sjómennirnir i bátn-
um okkar vildu ekki snúa aftur. og
sögðu, að báðir bátarnir myndu
sokkva, ef að við færum að hjálpa
þeim. En yfirvélastjórinn, Carlo
Uatnberti, var hjá okkur, og tók
hann þá til máls með rólcga tillitinu l stórblaðinu þýzka Berliner
hinna heiðbláu augna sinna og ein-\ Kreuzzeitung er nýlega ástandinu
CANADIAN NORTHERN RAILWAY
EITT FARGJALD
FRAM OG TIL HAKA
WINNIPEG frá öllum brautarstöðvum í Ontario (Port
Arthur og þaðan vestur) Manitoba og Saskatcheis'an
Farseðlar til sölu 12. til 16 Feb. að þeim dögum meðtöldiyii.
Stærsta “B0NSPIEL” í heimi.
Winnipeg, Feb. 8. to 19. 1916
18 stórfundir og þing veröa haldinn í Winnipeg meöan ' Bonspiel”
þetta stendur yfir. AUar tegundir leikja veríia sýndir. Sérstakir
leikir á leikhúsunum. Opinberar samkomur og
heilaóska fundir.
Allir veröa á “Bonspiel” þessu. I>ú sér þar gamla vini. Kf að
synir þínir e$a vinir hafa gengið í herinn þá komdu aU sjá þá á
hermannasýningunum stóru.
Upplýsingar um iestagang o.s.frv. fæst hjá öllum <?anadian
Northern umboðsmönnum.
Þeir gefa þér sécmtalista ef þú óskar. K. CREKL3I
General Passenger Agent,
Winnipeg.
Voðalegt siðleysi
á Þýzkalandi.
ekki upp frá kistuuni, “vertu ekki
svona æðisgengin, en fáðu þér björg-
unarbelti og komstu burtu héðan”.
En eg var varla búin að sleppa
orðinu, þegar hún var steinclauð.
Kúla ein hafði komið inn uin káetu-
gluggann og skar af henni efri part
höfuðsins. Þetta var sprengikúla og
hélt hún áfram leið sinni og sprakk
á hinni hlið skipsins. Hefði eg ekki
verið þarna hálflHigin yfir kistunni
minni, þá hefði eg aldrei skrifað
sögu þessa.
Eg greip upp litla gimsteina kass-
ann minn og fór i peysuna mína og
setti húfuna á höfuð mér. Og þegar
eg kom upp á þilfarið sá eg neðan-
sjávarbátinn vera i hægðum sínum
að fara í kringum skipið og skjóta
á það frá öllum hliðuni. Eg liljóp eft-
ir þilfarinu. Sjórinn var þakinn af
píönkum úr borðstokknum, hurðum
og dyrastöfum og ótal öðrum hlut-
um af skipinu. Þar flutu einnig
dauðir menn og lifandi og héngu
þeir lifandi á hinu og þessu og yoru
að kalla um hjálp. Það hafði annar
hátur á framhluta skipsins steypst á
endann og helt úr sér öllu fólkinu
niður i sjóinn. Eg gægðist yfir borð-
stokkinn, og sá þar bát einn, sem
liafði verið látinn siga niður. Einn
af yfirmönnum skipsins, Carlo Lam-
herti, vélameistari, var í bátnum.
Hann sat við stýrið. hJg kallaði lil
hans og bað hann að taka mig.
"Stöktu!” kölluðu þeir til mín.
lig kastaði litla kassanum minum
niður. Það voru góð 20 fet niður í
bátinn. En eg var góð og vön að
synda, og sá að ef að eg stykki ofan
í bátinn fullan af fólki, seglum,
vatnskútum og hinu og öðru, þá
kynní eg að hvolfa honum en meiða
mig. og sagði cg þeim því að fara
dálitið frá; þeir g;vtu dregið íig
upp úr sjónum.
Svo stökk eg. og henti mig ekki
annað en að eg fór i kaf.
En innflytjenda stúlka ein kom á
eftir mér og reyndi að stökkva, en
braut báða fætur á skipshliðinni.
Við gátum nú ekki bjargað fleir-
um. Þeir kunnu þá og iþá að senda
skipinu seinustu torpedóna frá neð-
ansjávarbátnum. Sjómennirnir réru
þvi burt þaðan eins hratt og þeir
gátu.
Svo reið torpedóiu að skipinu.
Hún þyrlaðist beint á hliðina á skip-
inu ineð halann á eftir sér," likt og
halastjarna. Þegar hún kom að skip-
inu. stakk hún sér, sem hún hefði
djöfullega vizku úr neðriheimum og
svo kom voðalegur, drynjandi hvell-
ur. Báturinn okkar kastaðist hingað
og þangað á æstum öldunum. En
Ancona hallaðist fyrst til vinstri
hliðar, rétti sig svo aftur, eins og
nötraði litla stund, og svo reis fram-
stafn skipsins hátt í loft upp, eins og
dauðskotið dýr á sundi; svo seig
skipið niður i hyldýpið með sogi
miklu og varð svelgur mikill, þar
sem það fór niður, og dróst þar nið-
ur alt sem laust var á sjónum i
kring.
Kapteinninn og nokkrir yfirmenn
voru hinir seinustu. sem fóru af
skipinu i litlum hát. En farþegarnir
liéngu á borðstokkmnn, helzt á fram-
skipimi, eins og niaurar á rekaspítu,
og fóru þeir allir niður með skipinu.
Margt var þar og af særðum mönn-
um, seni ekkert gátu komist lijálpar-
laust; einnig þeir fóru niður í hyl-
dýpið.
Nú var sem vöndur hefði sópað
sjóian. Alt, sem á floti var, sogaðist
niður í djúpið með skipinu. Og þa
létti þokunni ögn og við sáum neð-
ansjávarbátin liggja þar svo kyrran
hverju kæruleysis-brosi tók hann
skaimnbyssuna upp úr vasanum,
miðaði á nfæstu sjómennina og sagði
þeim ofur rólega að snúa við. Þcir
gjörðu það undir eins, án þess að
segja nokkurt orð.
Þegar við konium til bátsins, sá-
um við að sprengikúla hafði hitt
hann og var hann töluvert lekur.
Þýzkalandi lýst á þessa leið:
Almenningur á Þýzkalandi lifir
nú við svo mikið og viðbjóðslegt
siðleysi og opinbera svívirðingu, að
hermennirnir, sem lieim úr striðinu
koma til að láta sár sin gróa, geta
þ-að ekki augum litið, en snúa sér
frá i hryllingi og spyrja sjálfa sig,
hvers vegna þeir hafi verið að
úðara og við komum að honum,! fórna lifi sinu og heilsu fyrir annan
vildu allir fara úr honum upp í okk-
ar bát. En þá kom Lamberti aftur
til sögunnar með skammbyssuna og
brosið, svo að þeir hægðu á sér.
Tókum við þá úr bátnum þá sem
særðir voru, og konurnar og börnin.
Bundum við svo leka bátinn aítan i
okkar bát, og fóru þá hinir ósærðu
karlmenn að ausa hann og áttu létt
með að halda honum á floti.
“Við skulum bjarga ykkur eða
sökkva með ykkur”, sagði Lamberti.
“En þið verðið að hlýða”. Og þeir
sönsuðust á J»vi. Var Lamberti eini
inaðurinn á skipinu, sem eg varð
vör við að sýndi af sér hugrekki og
ráðdcild.
Einn af særðu mönnunum, sem
voru á leka bátnuin, var Marquis
Serra Cassano, sein setið hafði að
borðum með mér á Aneona. Hann
var ekkert ákafur að hlaupa af hin-
um leka bát, og voru þó skotnar af
honum <1 tærnar. Stóð hann í bátn-
uni á heila fætinum og var að hjátpa
hinum særðu úr honum áður en
hann fa>ri sjálfur. Og þegar hann
kom, þá settist hann tignarlega hjá
mér, og hið fyrsta, sem hann spurði
um var það, hvort enginn hefði cig-
arettu. Þær voru þá einar i til i
bátnnm og gengu þær á inilli maiina.
Ein móðir
eins é»þokkalýð. — En væri þeim
fullkunnugt um alt það, sem daglega
skeður um alt landið, þá niundu þeir
sannfærast uni það, að þó að mynd-
in daglega lífsins sé ljót og svört við
fyrsta álit, þá er liún þó ennþá
svartari og hryllilegri undir niðri,
ef vel er skoðað.
Og vér erum að tala uni endur-
vakningu trúarinnar og siðgæðisins
lijá þjóðinni, og að þýzki menning-
arandinn eigi að endurskapa og
endurleysa heiminn! Er ekki.þarf-
ara, að vér reynum að endurfæða
og endurlcysa oss sjálfa’? Það er
sannarlega koniinn timi til þess!
j Þvi ef að vér ekki ná nndir eins
hættum þessu glæpsamlega fram-
1 ferði, þá geta allar sigurvinningar
hermannanna, hversu miklar sem
þær eru, eða kunna að verða, ekki
frelsað oss frá hinni yfirvöfaiHli
glötun, sem þjóðin þýzka stefnir nú
óðfluga að.
Hinn heimskunni blaðamaður
Maximilian ltarden, skrifar i þýzka
blaðið Znknnft, og fullyrðir þar, að
í Berlin einni sén nú 30 þúsund kon-
ur skiklar við menn sína.
Þetta <’>heilla-kerfi Þjóðverja,
þetta þýzka hugsana-, siðgæðis-.
sljórnar- og menningar-kerfi nagar
SérstÖk kostaboð á innanhúss*
munum. KomiT5 til okkar fyrst, þið
munií ekki þurfa aÖ fara lengra.
Starlight New and Second Hand
Furniture Co.
59»—595 N'OTRE IIAMH AVENTE
TalMlnti: l.nrry 3984.
. nú sem krahbi Iijarta hinnar þýzku
var þar með barn sitt.j jjjóðar og cyðileggur alla von um
og var óráð á herríii, svo að hún j komantli endurvakning þjóðarinnar,
meðan þeir, sem eru
menn. eru að úthella
misti barnið sitt í sjóinn. lig stökk | t.jnmitt nú
úl og bjargaði barninu. Seinna varðj sannarlegir
hún fráskila því, en eg tók að inér, [jióði
barnið og sá uin það i nokkra daga.j
En þeirri sögu er hér ofaukið.
Við höfðum stöðugt gát á liinum
bátunum um daginn, þangað til að
dimma tók; þá fór hver báturinn á
eftir öðruin að hverfa sjónum vor-
um, fyrst við og við, en svo sáum
við þá aftur.
Það var vist komið um miðnætti,
þegar einn sjómaðurinn sagðist sjá
ljós á skipi einhverju. En lengi var
það, sein við hin gátum ekki greint,
hvort það var stjarna eða heilaspuni.
Og þegar það fór að verða skýrara.j
fóru margir ao halda, að það værij
herskip óvinanna. Loksins kom skip!
ið svo nærri, að það steypti á ossj
geislaflóðnu, og sáum við þá hinaj
bátana vera að róa að þvi.
Skipið. sem bjargaoi okkur, varj
franska skipið “Pluton”, namuskip
eitt, sem var að leggja sprengidufl j
um sjóinn á vissurn stöðum.
Þetta er nú sagan um það, hvernigj
eg bjargaðist af skipinu Ancona.
slnu á vigvöllununi.
Afleiðingin er þessi: ( Berlin eru
30 þúsund ungar konur skildar frá
tnönnum sinum!
Þetta er þjóðarsvivirðing, þjóðar-
smán, seni hrópár til yfirvaldanna
um að taka þurfi i taumana, tafar-
laust, - það megi ekki dragast vit-
undarögn. Að nema hurtu þessa sið-
spillingu og smán sé fult eins árið-
andi eins og að reyna að bjarga
þjóðinni frá hungurdauða og sulti;
þvi að annað lýtur að likamlegri
velfcrð, en hitt andlegri siðspill-
ingti og eyðilegging allrar þjóðar-
innnr.
Þetta segir einhver viðkunnasti
btaðamaður allra Þjóðverja, Maxi-
inilian Harden. llcfir það heyrst
að hann sé nú enn á ný að hrökkva
burtu úr Þýzkalandi og ætli suður
til Svissaralands og stofna þar. blað
aftnr.
illa, hvcrnig hún flutti það; ekki
beint framburðurinn, heldur til-
burðirnir; hefði það verið myndin
af 'skáldinn Hallgrími Péturssyni,
sem hún var að leika fvrir (eða
hvað maður á að kalla það), þá var
það ekki sem verst; en að flytja
kvæðið með þessum tilburðum til
þess, sem hafði ort það, nær engri
átt. En hitt annað, sem Mrs. OLJohn-
son gjörði á þessari snmkomu, var
fullboðlegt hverjum seni þar var
inni.
Aftur er eg á sömu skoðun og Mrs.
M.J.B., hvað Mr. I.índal snertir, að
hann flvitti kvæðið úr “Grettisljóð-
um” ágætlega; og eg hefi heyrt
mann segja, sem þekkir siravM. J..
að framburðurinn liafi verið injög
likur og þá skáldið flntti kvæði sin
i heyranda hljóði. En Mrs. M.J.B.
minnist ekki á sira S. úlafsson, sem
var sá eini, sem sagði mest og bezt
frá skáidinu, lífclega af oigin þekk-
ingu og lalaði ágadlega, eða hún
sjálf (Mrs. M.J.B.), sem las upp
kvæði og talaði frá sími eigin, að
mér fanst prýfflisvel. Samt hefir hún
einn galla og hann er sá, að hún er
of fljótmælt, svo það fer alt í einn ó-
slitinn straum, scm hún segir, og
verður þá ill að heyra f\ rir þá. sem
eru á aftari sætuin.
Hitt annað,. sem hún minnist á, I.
d. með Magm’i.s Jónsson, þá fanst
| mér það vcra það sama og hann hef-
: ir ætið sagl hér á samkonuini, og
það, sem maður getnr lesið i “I.ifs-
skoðun” M. .1.. sem prenluð var hér
um áriffl, eða svo fin.st mér.
Aftur vil eg gjqra svolitla atliuga-
semd við, þar sem liún minnist ;i
samkomuna á Gamlaárskveld. Mér
fínst að hún iiefði átt að segja, að
ungfrú Tryggvi Jónasson liefði les
ið upp kvæðið af snild, því það var
það, og það- er »'ftir minum
smekk tilvinnandi. að borga 25c
f.vrir inngang á sanikomu, ef inaður
á von á að heyra til hennar, og þótt
ekkert væri ineira.
Eins var með Sig. Magnússon;
það var ágætt hjá honum.
Svo slæ eg i botninn, læt bitt af'-
skiftalaust, sem i fréttunum stendur.
Ef einhver finnur lijá sér sting, þá
svarar hann fyrir sig. Samt vil eg
spyrja Mr. “Herjan”. sem skrifaði í
Kringlu i vetur: Var þetta “Blót”?
E'ða var það eftir ]»vi, srm gjörðist
i fornölit? Og i hverju þá Hverju
var fórnað.
Og hið eg hcrra ritstjora Iteims-
kringlu að gjöra svo vel og taka
þessar linur i blaðið Heiinskringlu.
Svo óska eg öllum islendingum
góðs árs.
Virðingarfylst.
Blaine, Wash.. 25. jan. I!)16.
I einu sári.
Læknir einn við enska herinn
hefir sagt frá því, hvað hann hafi
fundið í einu sári:
Eftir orustuna við Loos var mað-
ur einn borinn inn#á skurðarborðið,
hafði hann fengið sár í hægra nár-
ann, og skeytið tætt holdið frá slag-
æðinni, sem liggur niður í lærið, en
ekki skaddað hana; siðan hafði það
farið á kaf i lærið. Læknirinn skar
frá því og fann þessa hluti í sárinu:
Blað af vasahnif mannsins.
Hluta af hnífskaftinu.
Buxnatölu og
Sjálft skeytið,
sem reyndist að vera flís af þýzkri
sprengikúlu.
Manninum vegnar vel.
í>ar kom það.
Þjó&verji merkur innibyrgðu
í
fréttabréfi frá 15. janúar 1916. |
frá Mrs. M. J. Benedictsson, scm
prentað er i Heiinskringlu No. 11,
er sagt frá samkomunni, sein haldin
var á afmælisdag lárviðarskáldsins
Matth. Jochumssonar hér i Blaiue.
Eg var að undrast yfir, ef cnginn
skyldi verða til nð skrifa um þá
samkoinu. — En þar kom það!. Eg'
hefi ekki skrifað i ljlöðin, en mér
finst þessi frásögn svo skrítin, að eg'
tek nú ritblý i hönd, til að láta i
Ijósi mina skoðun á þvi, sem Mrs.
M.J.B. dáist mest að. Ekki er það af
þvi, að mig langi til að komast i
þeirra tölu, sem skrifa i blöðin, —
heldur af hinu, að eg hefi heyrt
marga, sem voru á þessari samkoimi,
hafa sömu skoðun og eg, og hún er
sú, að Mrs. úlinu Johnson hafi ekki
tekist vel, er hún las upp kvæðið:
“Atburð sé eg”, o. s. frv. Það er ekki
ofsagt. þótt eg segi: Það fór mjög
r.
Sagt er að marskálkur Þjóðverja
von iler Goltz sé fyrir Tyrkjahern-
um, sem byrgður er inni i Erzcrum.
og hafi Tyrkir scnt þcini sveitir til
liðveizlu; en þær komast ekki þang-
að fyrri en eftir hálfan mánuð. cf að
Nikulás bannar þeiin ekki alveg
leiðina og hleypir Kósökkum sínum
á þá. En mat skortir Tyrki i borg-
inni.
Rússar halda áfram.
Norður við Svartahafið heldur
hægri fylkingararnnir Hússa áfram
eftir ströndinní og er nú skamt til
Trebizond. Eii uppi á hálendinu eru
Rússar komnir yfir fjöllin verstu og
má nú licita að þeir hafi sól og sum-
ar siðan þeir konnist ofan af heið-
unum, hryggjunum og tindunum og
er þvi ekki furða þó að tif sé i þeim.