Heimskringla - 03.02.1916, Side 8
BLS. 8
H E I M S K H I N G L A.
WINNIPEG, 3. FEBRÚAR, 1916.
This week Marguerite Clark in “STILL WATERS”
Chas. Chaplin and Travelogue.
Next Wednesday and Thursday
Pauiine Frederick in “BELLA DONNA”
COMING:----Mary Pickford in “MADAM BUTTERFLY”
Fréttir úr Bænum.
Mr. H. F. Danielsson, District
Representative, frá Árborg, hefir ver
ið nokkradaga á General Hospital
hér í bænum, seni afleiðingar af
litluni uppskurði. Honum líður eftir
vonum vel, og býst við að fara l»að-
an heimleiðis eftir næstu lielgi.
í vikunni sem leið voru hér á ferð
S. A. Stefánsson, Mountain og Swan-
ey Sveinsson, Akra, N. D. Þeir segja
velliðan þar s.vðra. Snjófall með
mesta móti. Þeir eru á skemtiferð
vestur um bygðir, Candahar og þar
i grend. — Vernharður bróðir
'Sveinssonar gekk i herinn í vetur.
í Lagði * af stað til Englands fyrra
ifiiánudag. Hann er gullsmiður að
iðn. Sonur Sveins Kristjánssonar
frá Bjarnastöðuni í Bárðardal í S.-
Þingeyjarsýslu.
Milli jóla og nýárs dó Mrs. H. Ole-
son úr hjartaslagi. Hún var dóttir
Jóhanns Jóhannssonar bónda við
Akra.
Mrs. Stefán Sigurðsson, 394 Tor-
onto Street, hér i borg, biður Heims-
kringlu að bera fram þakklæti sitt
til stúkunnar ísafold, Indepcndent
Order of Foresters, fyrir fljóta og
skilvisa afgreiðslu á lífsábyrgðar-
upphæð manns hennar, sem hún
fékk eftir hann látinn.
Þess var getið í síðasta blaði, að
verið væri í undirbúningi með að
sýna hið stórmerka leikrit Ibsens
“Afturgöngur”, og þá getið lauslega
um, hvernig því var tekið fyrst er
það kom út. Mætti geta þess að eftir
að það var búið að vinna sér stað
við leikhúsin í Norðurálfunni, var
það sýnt hér fyrir vestan ogþá fyrst
i bænum New York. Það var í janú-
ar 1894. Þóttu það mikil tíðindi. Og
getur Mr. W. D. Ifowells þess, einn
með merkustu leikhússtjórum Banda
ríkjanna, “að það hafi mátt heita
stórkostlegur viðburður i sögu leik-
húsanna hér í landi. Það er einhver
áhrifamestur sjónleikur, sem eg hefi
horft á”, sagði hann. Fimm árum
síðar var farið með leikinn á ýmsa
staði hér í Ameríku. Og árið 1902
til 1903 sýndi hin fræga ameriska
leikkona, Mary Shaw, leikinn í öll-
um lielztu borgum þessa lands. I.ék
hún frú Alving.
Efni leiksins er að ýmsti leyti á-
deila á mannfélagið fyrir fasthcldni
þess við fornar venjur og skoðanir,
aðhitandi hegðan og siðferði. Allir
meginviðburðirnir snúast um erfða-
kenningtina, það að vont tré fær
ckki borið góðan ávöxt, og að synd-
ir feðranna kotni niður á börnun-
um. En ýmsu er svo háttað i félags-
lifinu, að það komur sér ekki ætið
sem bezt, að minna á það. Þeirra
hluta vegna mætti lcikurinn mót-
spyrnu í fyrstu. Sti skoðun hefir ver-
ið ríkjandi, að ekki bæri að taka
sama tillit til framferðis karla sem
kvenna. En á móti þessari skoðtin
gengur vel flest í leiknum. Siðalög-
málið tekur jafnt til allra. og la*tur
engu frernur að sér hæða, hvað kari-
menn en konur snertir.
Nokkru eftir að Ibseij dó, var
Björnstjerne Bjnrnson spurður að,
hvaða rit Ibsens hann áliti vera inest
og svaraði hann því, að það væri
“Afturgöngur”. — Kcmur það lika
heima við skoðanir annara rithöf-
unda. Þó eru niargir, sem álita, að
það sé ekki. Enski rithöfundurinn
góðkunni, William Areher. er þýtt
hefir mest ús Norðurlandamálum á
ensku og þar nieð “Afturgöngur”,
segist ekki geta verið Rjéirnstjerne
sammála; en hitt scgist hann játa,
I að leikur þessi sé Ibsens þarfasta
| rit, og með þvi hafi hann lagt leik-
húsin i þjónustu hinnar miklu um-
hóta-hreyfingar, er náð hafi mikl-
um þroska á siðasta mannsaldri.
Leikurinn verður sýndur hér í
ba*num miðvikudagskveldið þann
16. j». ín., og ættu engir aðkomugest-
ir að missa af að sjá hann. Ilann
verður sýndur að eins eitt kveld, og
er sennilegt, að það þyki, þegar til
keniur, helzt til lítið.
Landinn í Hockey-leiknum.
Landinn stendur sig ágætlega í
“Hockey”-leiknum. Ensku blöðin
segja, að þeir aldrei hafi gjört betur
og aldrei haft jafn góða menn á
svellinu sem nú. Þeir eru reyndar
flestir hinir sömu og í fyrra, en þeiin
fer einlægt frarn. Þeir leika nú á
móti “Winnipegs”. Þeir Frederick-
son, Jóhannesson, Jónasson og Bor-
land eru ágætir á skautuiiuni, bæði
snarir í snúningum og fljótir á svell-
inu, og Capt. Walker og Benson og
Byron voru sem fiðrildi i mollu-
veðri. augun festust varla á þeim;
en þeir létu boltanú renna á markið
hvað eftir annað.
Hafi þeir allir þökk fyrir dugnað
sinn og snarræði. Vér óskum þeim
allra heilla.
FYRIRSPURN.
Mr. Sigurður Kristófersson, Riv-
erton, Man., vill fá að vita, hvar Jó-
hannes Kristófersson, bróðir hans,
er niðurkominn. Hann er sonur
Kristófers Jóhannessonar, sem lengi
bjó i Winnipeg og dó fyrir nokkr-
um árum síðan. Jóhannes þekkist
einnig undir nafninu Joe Johnson.
Upplýsingar sendist til Hkr.
WONDERLAND.
býður fólki sérstaklega góða skemt-
un um þetta leyti. Einkanlega má
geta þess, að þar verða sýndar nú
um tíma hreyfimyndir, þar sem per-
sónurnar eru nafnfrægir leikarar,
svo sem : Marguerite Clarke, Pauline
Frederick og Mary Pickford, og fl.
Svo má ekki gleyma hinum nafn-
fræga Chas. Chaplin.
Mr. Snjólfur Austmann fékk ný-
lega bréf frá syni sínum á Þýzka-
landi, og lætur hann hið bezta yfir
sér.
Til Mr. G. Eyfords, Winnipeg.
Dog Creek P.O., 15. jan. 1916.
Kæri vinur Guðmundur Eyford!
Iig held eg hafi gefið þér ranga ut-
anáskrift Mr. Haraldar Freemans í
haust. Iif þig langar til að hafa við
hann bréfaviðskifti, þá er þctta hin
rétta Adressa hans; Mr. Haraldur
Freeman, Glenboro P.O., Box 25.
Eg hefi ekki getað skrifað þér,
Mr. Eyford, af því eg hefi ekki ad-
ressu þina í Winnipeg.
Virðingarfylst,
II. fíreiðfjörð fírandsson.
TVO KENNARA VANTAR
fyrir Norður-Stjörnu skóla No. 1226,
annan með 2nd, en annan með 3rd
Class Certificale.
Kenslutiiininn er sjö mánuðir, frá
1. apríl til 1. des. næstkomandi. Frí
yfir ágústmánuð.
Tilboðum, sem tiltaki kaup og æf-
ingu, verðtir veitt móttaka af undir-
rituðuin til 1. marz.
G. Johnson, Sec’y-Trcas.
18-22 Stony Hill, Man.
Fargjald lágt og ferðamannavagn-
ar til Kyrrahafsstrandar.
í sambandi við hið lága verð á
farseðlum lil Vancouver og Victoria j
8., 9., 10. og 11. febrúar, hefir það
opinberlega verið gjört kunnugt
ferðamönnum með Canadian North-
ern járnbrautinni, að félag þetta
ætlar að hafa Tourist Cars á bráut-
inni frá Winnipeg til Vancouvcr, ’—
alla leið 9. og 11. febrúar. Lestir,
sem mæta þessum, fara frá Regina
og Saskatoon 1Ó. og 17. febrúar; en
frá Edmonton 11. og 13. febrúar.
Þessi auglýsing ætti að vekja at-
hygli þeirra, sem gjarnan vilja ferð-
ast þægilega og ódýrt.
Að ferðamanna vagnarnir liafi
ennjrá aðdráttarafl fyrir alþýðu, er
ferðast, sést bezt á því, að umliðna
viku, liafa menn komið í hópuin til
að kaupa sér far með vögnuni þess-
um, sem nú ganga milli Winnipeg
og Toronto.
Það er sannarlega ánægjuefni fyr-
ir cmbættismenn félagsins, að vit;
það, að ferðavagnar þessir eru al-
menningi eins kærkomnir, eins og
reynsjan sýnir; enda hefir félagið
Iagt sig fram til að útbúa þá að öll-
tim þægindum, og eru þeir hin æski-
legasta viðbót við hið o.rðlagða
Eastern Express. Canadian
Biblíufyrirlestur
verður hahlinn í 804% Sargent Ave.
(niilli Arlington og Alverstone St.)
fimtudaginn 3. febr. kl. 8 e. h. Efni:
Er bibllan skáldskapur eða cr hún
ábyygjanleg?. — Sunnudaginn 6.
febr kl. 4 e. h. verður umræðuefnið:
llið nivsta veraldurriki. llvenwr mitn
það verða stofnsetl? Hver nwn verða
kpmingur?
Inngangur ókeypis. — Allir vel-
komnir.
Davíð Gttðbrandsson.
Stúdentaféjagsfundur verður hald-
inn næsta laugardagskveld (5. þ.
m.) í sunnudagaskólasal Fyrstu lút-
ersku kyrkju. Þar fcr fram kapp-
ra*ða: “Ákveðið, að setja tvlti á her-
skyldu i Canada nú þegar’’. Meðmæl-
endur: Miss J. Hinrikson ög Miss
Á. Austmann; mótmælendur: E. .1.
Skafel og K. Backmann. Fleira verð-
ur og einnig til skemtunar. Meðlim-
ir eru vinsainjega beðnir að fjöl
menna.
Mælsku-samkepni Stúdentafélags-
ins fer fram 10. j». m., klukkan 8 að
kveldi i efri sal Goodtemplara. A-
góðinn af samkomu þessari gengm*
til styrktar Rauðakross reglunni, og
ætti fólk að styðja gott málefni með
því að sækja samkomuna og konia
með kunningja sína með sér. Good-
templarar hafa góðfúslega Jeigt sal-
inn fyrir hálfvirði og eiga þeir því
heiður skilið. Aðgöngumiðar fast
hjá stúdcntum c»g cinuig hjá Birni
Methúsalemssyni, á horninu á Vie-
tor St. og Sargent Ave. Nánar a ig-
lýst í næsta blaði.
Heiðurslisti íslendinga.
Jón Magnússon, með 79. Manitoba
herdeildinni i Brandon. Fæddur 29.
inaí 1890, á Gröf í Grimsnesi i Ár-
nessýslu. l'oreldrar: Magnús ólafs-
son og Eygerður Egilsdóttir, frá
Hjálmsstöðum í Laugardal. Fluttust
til Manitoba frá Gröf árið 1900; liafa
síðan að mestu leyti dvalið J»ar sem
þau eru enn búsett, við Lundar P.
O., Man.
Pétur fíreiðfjörð. Var til heimilis
að 699 Elgin Ave., Winnipeg. Aldur
30 ára. Foreldrar: Guðmundur
Sveinsson og María Pétursdóttir í
Templarasundi 2, Reykjavík á ís-
landi. Hann er ókvæntur og tré-
smiður að iðn.
Fyrir skönimu komu liingað til
borgarinnar og gengu í herinn pilt-
ar þeir, sem hér eru taldir. Allir
frá Lögberg P.O.: Jón Þórarinsson,
Þorsteinn Suðfjörð, Guðmundur
Reykjalín og Pélttr Anderson, sem
er sagður 3 áliiir og 3 þumlungar á
hæð og þrekinn að J»ví skapi. Ajlir
eru piltar þessir rúmt tvitugir og
fæddir og uppaldir hér í landi og
hinir myndarlegustu menn.
KENNARA VANTAR
á Laufás skóla, Bifröst, í 3 mánuði,
frá 1. marz. óskað er eftir að hann
hafi Normal Certificate. Tilboðum
verður veitt móttaka til 11. febrúar
þetta ár.
Geysir, Man., 24. jan. 1916.
fí. Jóhannsson.
KENNARA VANTAR.
fyrir Lowland Scliool, No. 1684, uin
þriggja mánaða tima, frá 15. inarz til
15. júni 1916. Umsækjendur Jjurfa að
hafa í það minsta Third Class Pro-
fessional Certificute. Tilboðum, sem
tilgreina mentastig, æfingu og hvaða
kaup óskast verður veitt móttaka
til 20. febrúar af
S. Finnsson,
Sec’y-Trcas. Lowland S. D. 1684.
17-19 Vidir P.O., 10. jan. 1916.
Lögleg forföli.
Þá leiðinda fregn er Heimkringla
beðin að flytja lesenduni sinum, að
fstvnzki Konservalive klúbbnrinn
hefir nú aftur orðið fyrir þvi slysi,
að verða að fresta skemtifundi sin-
uin. - Sira Rögnvaldur Pétursson,
sem ætlaði að kappræða öðru meg-
in, verðtir önnum kafinn við gift-
ingu einmitt þetta kveld og getur
þvi ekki komið á hólminn, enda
v.eri j»að ekki samkvæmt oss að
vilja nokkuð tefja fyrir slíku. Ogi
svo i öðru lagi er liitinn og ákafinn
svo mikill í doktornum, að það gæti
verið hættuspil að hleypa þeim sam-
an að svo stöddu.
Kn annan fimtudag, 10. febrúar,
verður þessi fundur áreiðanlega
haldinn, og þá verður prógrammið
Jjeini niun betra, sein lcngri tími
gafst til undirbúnings. OG ÞAl■)
VERDVR ÓKEYPIS. Þar verður
til skemtunar:
Kuppricða- Dr'. Sig. Júl. Jóhatin-
esson og síra Rögnvaldur Pétursson.
Kartakórið huns herra Sigttrðar
llelgasonar með nokkttr lög.
Samsöngur Mr. og Mrs. Atv.r
Johnson.
Og fleira.
Allir eru velkomnir, karlar og
konur. Það verður enginn reykur né
önnur loftþyngsli. en bezta skcmtun
ókeypis.
Prógrammið verður ítarlegar aug-
lýst i næsta blaði.
Prógramsnefndin.
Ráóskona óskast.
Bóndi á kornræktarlandi óskar
eftir ráðkonu. Gott kaup, létt vinna.
Frekari upplýsingar gefur ritstjóri
Heimskringlu. 19-23p
Fréttabréf.
Spanish Fork, Utah.
Á Bóndadaginn 1916.
Herra ritstjóri!
Hafðu blessaðar þakkir fyrir
Jólablaðið og alt annað gott, sem
Kringlan færir oss, til fróðleiks.
skeintunar og upplýsingar. Vér er-
um hér hæðst ánægðir með hana, og
óskuni bæði ]»ér og blaðinu til árs
og friðar á þessh nýbyrjaða ári.
Yfirleitt er fremur tiðindafátt i
bygðarlagi voru; tíðarfarið var hið
ákjósank-gasta í alt síðastliðið
haust; hélzt það fram til hátiða, en
þá skifti um; liafa siðan verið kalsa-
veður öðru hverju, og talsverður
snjór fallið; Jíklega nálægt 20 þml.
að öllu samtöldu, niður i sveitum;
en inikið meira til fjalla; svo útlitið
með gnægð af vatni fyrir næsta
sumars uppskeru, er hið bezta, og
eru menn þvi yfirleitl ánægðir og
gjöra sér góðar vonir uni framtíð-
ina.
Heilsufar er bærilegt nú sem
stendur. Kvef það og hósti, sem
gekk hér frainan af í vetur, og nokk-
urir dóu úr, er nú víst fyrir það
mesta um garð gengið; svo nú gota
allir sungið og eg sjálfsagt lika.
Eins og vant er að vetrarlaginu
til. er atvinna fremur dauf, en útlit-
ið hcldur gott og riög er ra*tt og ráð-
gjört um ýirasar framfarir, sem talið
er víst að liggi fyrir nieð framtíð-
inni.
Rétt fyrir Jólin brá eg mér í “or-
lofs-túr” upp til Winterquarters, að
heimsækja vini mína og skyldfólk,
sem þar býr. Var eg tíu daga þar
efra og hafði hinn bezta tíma. At-
vinna og liðan fólks í J»ví bygðarlagi
sýndist veríi i góðu meðallagi, og
öllum leið vel. í Winterquarts búa
að eins fáeinir landar og stunda
flestir þeirra náma-vinnu, sem oftast
nær er vel borguð, einkuin þegar vel
lætur i ári. Atvinna var J»ar frekar
dauf síðastliðið sumar; en nú í vet-
ur talsvert betri, og útlitið gott mcð
fraintíðina.
í þessari ferð minni kom eg við i
Castle Gate, og dvaldi þar í tvær
nætur. Þar býr landi vor og vinur
Jón Hreinsson, og líður vel. Hafði eg
þar hinar yndælustu og beztu við-
tökur hjá þeim Hreins hjónum, er
bæði sýnast samvalin i glaðværð,
myndarskap og hinni alþcktu gest-
risni.
Mrs. Hreinsson er af enskum ætt-
um; fædd og uppalin á Englandi.
Eg hafði ekki fyrri notið þeirrar á-
nægju að sjá hana. Hún er hin
mesta myndarkona; motherly like
and intclligent; en ekki kann hún
íslenzku, sem mér í svipinn fanst
dálítið óviðkunnanlegt; J»vi aldrei
lætur íslenzkan mér betur í eyrum
en á hátíðum, og í góðra vina sam-
fundutn. Samt gjörði Jiað nú engan
tilfinnanlegan baga. Alt heimilis-
fólkið: Jiau hjónin, dætur þeirra
tvær og sonur, var samtaka í, að
gjöra mér heimsóknina sem ánægju-
legasta. Mér fanst árið byrja þar svo
undur alúðlcga, og líkast því, er oft
átti sér stað heirna, á voru kæra
föðurlandi.
Hér hjá löndum vorum gjörast
engin söguleg tíðindi; þeim liður
ölluni heldur bærilega, og gjöra sér
lífið létt og skemtilegt eftir föngum,
með því að halda við og við smá-
gleðisamkoinur og fleira til upplifg-
unar og hressinga, bæði fyrir sál og
likama.
Þetta verður svo alt, sem eg hefi
að segja í dag. En aftur vil eg end-
urtaka þakkiæti vort fyrir Jólablað-
ið, og óska bæði þér og öllum lönd-
um voruin til heilla og hamingju á
Jiessu nýbyrjaða ári.
Þinn með vinsemd,
E. II. Johnson.
Citizens’ League.
f Winnipeg hefir nú fjöldi hinna
merkustu borgara gengið í félag, er
nefnir sig Citizens League; og er
augnainið þess félags, að vinna að
því af öllum kröftum, að fá menn í
herinn eða til að fylla þessar sveitir
hermanna, sem nú eru þegar stofn-
aðar.
Var fundur haldinn af verzlunar-
nefndinni (Committee of the Board
of Trade) hér í borginni hinn 1.
febrúar og lagði hún fram eftirfylgj-
andi ákvarðanir:
1. Að halda opinbera fundi i leik-
húsunum á sunniidögum og öðr-
um dögum, og víðar, ef tiltæki-
legt þætti, og skyldu þar flytja
ra*ður kaupmenn, iðnaðarmenn,
embættismenn, herforingjar og
hcimkoninir hermenn, fyrst og
fremst til þess, að fá menn til að
ganga i herinn, og svo til þess að
upplýsa fólkið og hvetja alla
verkveitendur og verkþiggjendur
og foreldra og alþýðu til að íhuga
og skoða skyldu J»á, sem la*gi á
herðum þjóðarinnar og hvcrs
einstaks manns.
2. Til að útvega ræðumenn til að
tala í kyrkjunum, leikhúsunum,
og á öðrum opinberum stöðum,
og sjá um, að Jjeir fengju tæki-
færi til að flytja stuttar tölur á
•þessum stöðum.
3. Að ráðgast um J»að við verkgef-
endur alla, hvernig bezt va*ri að
vinna að þessu meðal verka-
manna þeirra.
4. Að koma á fót nefndum hér og
hvar utti fylkið, þar sem bygð
væri þéttust, svo að nefndir
Jjessar hjálpuðu til J»ess að fá
ungu mennina í herinn i bygð-
um Jjeirra.
5. Að láta prenta og útbreiða ritl-
inga uin Jjetta efni.
6. Að vinna í sameiningu við yfir-
herforingja i hverju héraði og
foringja aðra að J»ví, að fá sem
flesta til að innrita sig i eina
eða aðra herdeild.
Starf borgara-sambands þessa
(Citizens League) nær Jjví yfir alt
fylkið, og verður nú Jjegar farið að
vinna að J»essu eftir því sem föng
eru á.
Samsæti mikið héldu konur í Win-
nipeg stjórnarformanni Norris og
öllum ráðgjöfum hans i heiðurs-
skyni fyrir framkomu þeirra alla, |
að veita konum jafnrétti við karl-
menn. Voru þar ræður fluttar af
inælsku mikilli og lagafrumvarpið
um jafnrétti kvenna talið hið Jjýð-j
ingarmesta lagafrumvarp, sem um j
langa hríð hefði verið samþykt af
Jiinginu. Alt fór þar snildarlega fram
og skein gleðin af hverju andliti,
enda var atburðurinn merkur og úr-
slitin góð.
Sextíu manns geta fengið aðgang
að læra rakaraiðn undir eins. 'i’I!
þess að vcrða fullnuma J»arf aðelns
8 vikur. Áhöld ókeypis og kaup
borgað nieðan vevið er að læra
Nemendur fá staði að enduðu náml
fyrir $15 til $20 á vfku. Vér höfum
hundruð af stöðum þar sem þéi
getið byrjað á eigin reikriing. Eftir
spum eftir rökurum er æfinlega
mikil. Til Jiess að verða góður rak
ari verðið þér að skrifast i'it frá
Alþjóoa rakarafélaginu.
Internationai Barber College.
Mexandcr Ave Fvrstu dyr vestan
við "rionieg.
----íslenz* pír5,maður hér.-------
Flokksþing Conservatíva
Foam Lake, 27. jan. 1916.
M. J. Skaptason, Winnipeg.
Kæri vinur! Eg held þú hafir
ekki frétt neitt af þessari stóru Con-
vention, sem við Korascrvatívar held-
um j»ann 19.—20. í Saskatohewan
fylkinu, — annars hefðum við sjálf-
sagt séð eitthvað um það í Heims-
kringlu.
Með þessu flokksþingi byrjar nýtt
tímabil í framfara baráttu Konser-
vatíva flokksins í Saskatchewan, —
með þvi að tvö áhrifamestu þjóð-
heila rnál nútímans voru tekin upp
á stefnuskrá flokksins. Nefnilega:
Jafnrétti kvenna, — þessi réttarbót,
sem konur hefir dreymt fyrir siðan
fyrst fara sögur af mannkyninu.
Þessir hlekkir bresta af öllum kon-
um í Saskatchewan hvenær sem
Konservativar komast til valda.
Annað merkisatriðið í þessari
nýju stefnuskrá, er algjört vinsölu-
bann (Prohibition), sem verði lög
óðara ,og Konservatívar ná völdum;
og ennfremur beitir flokkurinn öll-
um sinum áhrifum á sambands
stjórnina til að fá algjört bann á inn-
flutningi áfengis inn í ríkið.
Mörgum fleiri smærri atriðum var
bætt inn i stefnuskrá flokksins, sem
iniða til franifara og reynast heilla-
vænleg fyrir almenning.
Mr. Willoughby, leiðtogi flokksins
hélt langa og skörúlega ræðu, og
ým-Sir aðrir færðu rök fyrir sinum
áhugainálum, og yrði það alt of
langt mál hér.
Öllum fulltrúum flokksjjingsins
var boðið á leikhús borgarinnar, að
kveldi þess 19.
Annars sýndist vera friður og véí-
þóknun yfir niönnum á þessum
fundi.
Jæja, vinur, ef tiini leyfði, þá
skyldi eg hafa þetta lengra; en svo
má enginn sköpum renna, segir
málshátturinn.
Með virðingu, þinn
John Veum.
Konstantin Grikkja-
konungur.
Dylgjur allmiklar eru nú um það,
•að Konstantín Grikkja konungur
muni bráðlega verða að hrökkva
burtu úr Grikklandi. Hann krafðist
þess nýlega, að herréttur væri sett
ur yfir alt landið; en þingmenn
snörust með miklum ineiri hluta á
móti honuin og fékk hann því ekki
koinið Jivi fram. En svo er það orð
ið sannað, að hann hafi verið i vit
orði með starfi hinna Jjýzku neðan
sjávarbáta í Miðjarðarhafinu, og
hefir jafnvel lijálpað þeim til að fá
olíu sjálfur og leynt þeim bæði i
Corfu og við Pinerus, rétt hjá Aþenu
borg.
Þjóðin er Jjess albúin, að gjöra
stjórnarbyltingu, reka konung, en
setja Venizelos í staðinn.
f Rómaborg eru margir á þvi, að
þeir sjái hann þar bráðum og muni
hann fara til Frakklands á eftir
Nikulási Svartfellingakonungi.
Hann ætti nú að rcyna að gjörast
kaupamaður hjá Nikulási, ef hann
vildi hafa hann, Jjví nú er fátt um
verkamenn lijá Nikulási; og Kon
stantin mætti Jjakka fyrir, ef Niku-
lás vildi nota hann, —aðrir vilja
hann ekki.
Eins og getið er um á öðrum stað
í blaðinu liefir íslenzki Konservatíve
Klúbburinn orðið að fresta skemti-
fundinum, sein áformað var að hald-
inn yrði á fimtudagskveldið í Jiess-
ari vilcu. Það verður Jjví eins og vant
er spilafundur í fundarsal klúbbs
ins nú á fimtudagskveldið (3. febr
úar). — Mcðlimir klúbbsins eru
vinsamlega beðnir að minnast J»essa.,
SpUanefnditi.
GRAND CONGERT
Undir stjórn Hra. Brynjólfs Þorlákssonar, organista.
Miðvikudagskveldið, 2. Febrúar, 1916
í Islenku Onítarakyrkjunni.
PROGRAMMBt
1. Trio—2 Violins: Miss Clara Oddson, Mr. M. Magnús-
son, Mr. W. Kinarson...........M. Magnússon
2. Morgunsönjijur: Söngflokkur (blandaöur kór(....Gade
3. Solo: “Dagur er liöinn”, SigurÖur
Helgason ...................Árni Thorsteinsson
4. (a) Solo: L»ulaby, Mrs. S. K. Hall ...Cary Jacobs Bond
(b) L.onging, Mrs. S. K. Hall.Cary Jacobs Bond
5. (a) “Vor Guö oss lýsa lát þitt orö”, Söng-
flokkurinn, .................Jón Friöfinnsson
(b) Um Sumardag: Solo og kór, Söng-
flokkurinn .......................Franz Abt
(Soprano Solo: Mrs. S. K. Hall; Bass-Solo Mr. Alex
Johnson.
6. Víolin Solo: Uegende, Miss Clara
Oddson, ......... ............... Wieniawski
7. Solo: Mr. Alex Johnson ..............Selected
8. Solo: Paul Bardal....................Selected
9. Duet: Awake; Mr. og Mrs. Alex John-
son ...........................H. G. Pellssier
10. Solo. “Knowest thou not that fair land*', (from
Mignon); Mrs. S. K. Hall.............Thomas
11. Hiröingjar: Solo og kór; Söngfl. .. Schumann
Soprano-Soio: Mrs. Alex Johnson; Alto-Soio Míss S.
Hinriksson;Tenor-Solo: Mr. Jónas Stefánsson
Bass-Solo: Mr. Alex Johnson.
Accompanists: Miss S. Fredericksson and Professor S. K. Hail
Samkotnan byrjar kl. 8.15 inngangur 35c
Aðgöngumiðar til sölu víðsvegar um bæinn, og í verziun
Björns Péturssonar, Horni Simcoe og Wellington.