Heimskringla - 11.05.1916, Side 1
Royal Optical Co.
Elztu Opticians i Winnipeg. Við
höfum reynst vinum þinum vel, —
gefðu okkur tækifœri til að reyn-
ast þér vél. Stofnsett 1905.
IV. R. Fowler, Opt.
XXX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN, 11. MAI 1916
NR. 33
Stríðs =f réttir
Það er sagt, að Trakar hafi lent
herliði 50 míluin suður af Mikla-
garði, við borg þá sem Makri heltir;
en sú borg er þar ekki til og œtti
eftir fjarlægðinni að vera í miðju
Marmarahafi. En 300 mílum suður
af Miklagarði er borg, sem Makri
eða Makry heitir, á suðurströnd
Litlu-Asíu, við fjörð einn með sama
nafni upp af eyjunni Rodes, og þar
voru Frakkar búnir að lenda eða
gjöra strandhögg áður. Er nú mjög
líklegt, að þeir séu að launa Rúss-
um liðveizluna á Frakklandi, með
því að senda herlið á iand að baki
Tyrkja í Litlu-Asíu.
VERDUN ORUSTAN BÚIN.
FRAKKAR SIGRA.
Loksins er það nú viðurkent yfir
allan heim, að Verdun orustan sé
búin með algjörðum sigri fyrir
Erakka og algjörðum ósigri fyrir
Þjóðverja. Telja menn hana harð-
asta bardagann og mesta, sem
nokkru sinni háður hafi verið f
heimi þessum. Og aflciðingar hcnn-
ar svo miklar, að þær hafi langvar-
andi áhrif á mannkynið, alt eins
mikil og þegar Bretar og Frakkar
stöðvuðu Þjóðverja við Paris og
hrundu þeám norður yfir Marne.
Larna við Verdun beittu Pýzkir
öiium trölldómi sínum, allri sinni
herkunnáttu, öllum sínum trölla-
byssum, öllu sínu bardaga hug-
rekki; allri þeirri harðneskju og
grimd, að ota og reka tugi þúsunda
sinna eigin manna út í opinn dauð-
ann. En alt kom fyrir ekki. I*eir
mættu mönnum jafn hraustum sér
og jafn hugrökkum. En Frakkar
höfðu það fram yfir, að þeir börð-
ust fyrir föðurland sitt, fyrir frelsið,
fyrir konur og börn. Þarna ætluðu
Þýzkir þó að sigra, í marga mánuði
voru þeir búnir að búa sig undir.
Þangað söfnuðu þeir hinum hraust-
ustu hersveitum sínum. Þeir treystu
sigrinum svo, að þeir voru búnir að
gjöra opinbert, hvað þeir myndu
gjöra, þegar sigur væri unninn, —
hvernig þeir myndu haga sigur inn-
reið Vilhjálms í Verdun; hvernig
l>eir myndu velta frá sér íierskörum
Frakka á leiðinni til Parísar. — En
hamremman dugði ekki; Frakkinn
var hraustari, frönsku byssurnar
hraðskeytari, herforingjar Frakka
betri og vígkunnátta þeirra meiri.
þess vegna var það, að sigurinn
hlaut að verða þeim megin.
— Síðan hafa Þýzkir hamast bæði
&ð austan og vestan við Verdun;
en hvergi hefir gengið. Þeir hafa
gjört harðar og grimmar hrfðar
bæði á Frakka og Breta og Canada
menn, en æfinlega fengið ófarir og
ekkert unnið á, því að þó að þeir
hafi náð frönsku gröfunum á stöku
stað, þá hafa þeir óðara verið rekn-
ir þaðan aftur, oft tmeð mannfalli
miklu.
flugdrekar skotnir niður
í aprflmánuði skutu Frakkar
niður 31 flugdreka Þjóðverja og
féllu 9 þeirra niður milli herflokka
Frakka, en 22 sáust falla logandi
niður Þjóðverja megin. Á þcssum
tíina töpuðu Frakkar 6 flugdrekum,
sem allir féllu niður milli herflokka
og skotgrafa Þjóðverja.
—Þrjá Zcppelina sprengdu Banda
menn eða ónýtt, einn við Salonichi,
annan við Slésvíkur strendur og
þriðja nálægt Stavangri í Noregi.
RÚSSAR 1 ASÍU.
Siðan Trebizond féll liafa Rússar
smásigið áfram til Baiburt, sunnan
við strandfjöllin meðfram Svarta-
hafinu; til Erzingan, beint vestur
af Erzerum og til Diarbekar, suður
í Eufratsdal.
Hermönnum sinum öllum, sem
heima voru og í Litlu-Asíu, hafa nú
Tyrkir safnað l>ar saman á móti
Rússum. Þarna er ákaflega fjöllótt;
en þó að fjöllin skilji fylkingar
Rússa, þá passa þeir einiægt, að
ckkert af liðinu fari harðara en þeir
flokkar, sem næstir eru. Þctta gjöra
þeir, svo að ekki sé hægt að komast
á milli þeirra eða kljúfa þá í sund-
ur. Hægt en óstöðvandi fara þeir yf-
ir sveitir þessar, og þó að Tyrkir
herjist á hverjum hól og liæð, og í
hverju fjallaskarði, þá verða þeir þó
undan að láta. En það er sem leng-
ist línan, þegar Rússar koma nær
Diarbekr, því l>á þarf mikill hluti
liðsins að stefna suður, meðan
hægri armurinn heldur vestur. En
það er sem Tyrkir hugsi inest uin að
verja þessa þrjá staði: Baiburt, Er-
zlngan og Diarbekr. Hafa þeir
vopnabúr og víggirðingar á öllum
þessum stöðum. En Rússar liafa
tekið viggirtar borgir fyrri, og eru
engar líkur til, að Tyrkir geti meira
en þvælst fyrir þeim og seinkað
þeim.
Seinustu fregnir frá strfðinu.
í fjórða sinni reyna nú Þýzkir að
brjótast áfram við Verdun. Yfir 70
daga má segja að Verdun bardag-
inn hafi staðið; því þó að dag og
dag hafi orðið hlé á áhlaupunum
Þjóðverja á sjálfa Verdun og víg-
girðingarnar umhverfis borgina, þá
hafa þeir reynt aftur og aftur á
næstu grösum að segja má, á næstu
hólum og hæðum. Þeir gjöra hroða-
áhlaup og halda áður uppi látlaus-
um sprengikúlnahríðum í einn eða
tvo daga.
Á sunnudaginn var gjörðu Þýzkir
hroða-áhlaup vestur við Meuse ána,
sem Verdun stendur við, á veginum
frá Betincourt og til Esnes; liggur
hann um skógargljúfur eitt nálægt
“Dauðs manns haug”, sem Þýzkir
hafa lengi verið að berjast um. —
Segja þeir, sem þar voru nærstadd-
ir, að skothríðin á undan hafi kari-
ske verið hin grimmasta, sem nokk-
uru sinni hafi verið á Frakklandi.
En Frakkar tóku svo á móti, að
10,000 Þýzkir lágu eftir og urðu
Þýzkir frá að hverfa allstaðar, nema
á litlum spotta í gilinu, sem þeir
lialda. Annarsstaðar gengur þeim
ekkert, hvernig sem þeir hamast.
Svar Vilhjálms keisara.
Loksins kom það, svarið frá Vil-
hjálmi til Bandaríkjanna, eftir eina
10 daga, þó að forseti Bandaríkja
hemtaði svar innan 48 klukku-
stunda.
Um svarið voru í fyrstu mjög svo
skiftar skoðanir. Bandarfkin heimt-
uðu, að þeir tafarlaust hættu að
sökkva skipum hlutlausra þjóða og
myrða þannig sakiausa menn og
konur. En því svöruðu Þjóðverjar
engu.
Þeir kendu Bandaríkjunum um
líftjónið og eignatapið; sögðu, að
Bandaríkjamenn hcfSu ekki þurft
að senda skipin, og ekki þurft að
láta menn og konur og börn ferðast
á þeim. Þeir neita því, að Bandarík-
in liafi sannað, að þeir liafi sökt
sumum þeirra, svo sem skipinu Sus-
sex. Þeir hóta að lialda áfram neð-
ansjávar-herskap sínum, nema Bret-
ar leyfi skipum annara ]>jóða að
færa þeim mat og aðrar nauðsynj-
ar, — þá segjast þeir kunna að
hætta að sökkva öðrum skipum en
skipum Breta og Bandamanna ann-
ara. Samt ætla þeir að gjöra það fyr-
ir Bandaríkin, að bjóða neðansjáv-
arbátum sfnum eða kapteinum
þeirra, að sökkva ekki vopnlausum
skipum hlutlausra þjóða, nema þeir
gjöri þeim aðvart fyrst, — svo fram-
arlega sem þau veiti ekki mótstöðu
eða reyni að komast undan.
— En svo ásaka Þjóðverjar Breta
harðlega fyrir óinannúðlega hern-
aðaraðferð, og segjast nú vera að
berjast fyrir lífi sínu, og því verði
þeir að nota öll þau vopn, sem þeir
geti. .
— Eiginlega verður hugsunin sú
hjá Þjóðverjum, að þeir séu sak-
lausir af öllu þessu. Barnamorðin
eru Bretum og Bandaríkjamönnum
að kenna. Þetta er svo einkennileg-
ur hugsunarháttur mannanna, sem
réðust óvörum á saklausa Belgi, og
stálu, ræntu og myrtu þvert ofan í
svarna eiða; ---mannanna, sem
brendu Pólland og Serbíu og Kúr-
land og Lithauen. — Þetta eru sið-
gæðis-hugmyndir hinna þýzku vís-
indamanna, og hver, sem tekur vís-
indi þeirra eða kenningar heim-
spekinga þeirra góðar og gildar, —
hann verður að taka þetta gott og
gilt líka. Og meðan þeir eru að
semja þetta skjal, eru neðansjávar-
bátar þeirra að sökkva skipum
lilutlausra þjóða; sökkva skipum
frá Bandaríkjunum , sem eru að
flytja fæðu og læknislyf til Belga,
sem þeir hafa svift eignunum, frels-
inu og fæðunni, sem þeir liafa tckið
handa hermönnum sínum.
Til skýringar málunum viljum vér
nú geta um atburði þá, sem valdir
voru að skriftum liessum á milli
Bandaríkjanna og Þýzkalands.
þessar skriftir hafa staðið yfir nú
meira en iieiit ár.
4. febrúar 1915 lýstu Þjóðverjár því
yfir, að sjórinn allur í kringum
Bretland væri orustuvöllur (war
zone) eftir 18. febrúar, og myndu
þeir sökkva hverju verzlunav-
skipi, sem þar væri á ferðuin.
10. febrúar 1915 sendu Bandaríkin
þjóðverjum aðvörun, og sögðu að
þeir væru ábyrgðarfullir fyrir lífi
og eignum Bandaríkjamanna, er
þar væru á ferðum.
16. febrúar 1915. Þýzkir svara og
segja, að hergarður Breta á sjón-
um sé ósanngjarn og ranglátur:
en til að vernda sjálfa sig, þá
neyðist þeir til að halda fast við
stefnu þessa og sökkva skipum
öllum, sem þeir geti.
30. apríl 1915. Gufuskip Bandaríkja
“Gulf Light” sekkur af völdum
Þýzks neðansjávarbáts.
1. maí 1915. Þýzkir láta auglýsa í
New York blöðunum aðvaranir
til Bandaríkjamanna, að þeir
skuli ekki fara sjóferðir um svæði
þetta. Mörg hundruð manna, er
búnir voru að kaupa sér far með
Lúsitaníu, fengu aðvaranir bréf-
lega áður en skipið lagði af stað.
7. maí 1915. Lúsitaníu sökt. 1200 far-
ast, af þeim 115 Ameríkumenn.
13. maí 1915. Bandaríkin mæla á
móti, og lýsa því yfir, að þau
muni ekki láta undanfalla orð
eða verk, sem nauðsynleg séu til
að framfylgja sinni heilögu og
háleitu skyldu, að vernda rétt-
indi borgara Bandaríkjanna.
30. maí 1915. Þýzkir svara og scgja,
að þeir hafi varað skipið við
þessu, og svo hafi það flutt vopn
og skotfæri.
8. júní 1911. Bryan neitar að skrifa
undir næsta bréf Wilsons forseta
og verður svo að segja af sér.
10. júní 1915. Wilson forseti sendir
Þjóðverjum aðvörun á ný.
9. júlí 1915. Þýzkir svara og segja,
að þeir hlífi ekki skipum Breta,
þó að Bandaríkjamenn séu inn-
anborðs.
21. júlí 1915. Wilson sendir Þýzk-
um bréf: endurtekur það, sem
hann hafði ságt í seinasta bréfi
og heimtar svar. ,
19. júlí 1915. Gufuskipinu “Arabic”
sökt. Þar drukna tveir Banda-
ríkjaborgarar.
5. október 1915.. Bernstorff lofar af-
sökun og skaðabótum fyrir “Ara-
bic”.
8. janúar 1916. Þýzkir lofa að gjalda
bætur fyrir Bandaríkjamenn, er
týndu lífi á “Lusitania”; að rann-
saka, hverjir liafi sökt skipinu
“Persia” og halda alþjóðalögin f
Miðjarðarhafinu.
25. janúar 1916. Lansing utanríkis-
ráðgjafi Bandaríkjanna, lýsir þvf
yfir,' að Þýzkir hafi neitað að
efna loforð sín, að gjöra afsakan-
ir þær, sem þeir hafi lofað, eigin-
lega bera af sér, að ’þeir hafi unn-
ið verk þessi.
26. janúar 1916. Wilson sendir Bern-
storff sendiherra Þjóðverja sitt
seinast a bréf um “Lusitaniu”
morð Þjóðverja.
4. febrúar 1916. Þjóðverjar svara
enn.
15. febrúar 1916. Þýzkir iýsa þvf yfir
fyrir öllum heiini, að þeir muni
sökkva aðvörunarlaust öllum
vopnuðum skipum Breta o
Bandamanna. En Bandaríkin
heimta, að Þýzkir afturkalli yfir-
lýsingu þessa.
25. marz 1916. Bandaríkin heyra um
ófarir gufuskipsins “Sussex”, og
sfðan hvað af öðru um “Eagle
Point”, “Manchester”, “Engineer”
og “Benvindvale”.
Þetta eru aðalatriðin, sem voru
orsök til bréfaskriftanna milli Wil-
sons Bandarfkjaforseta og Þýzka-
lands. Þýzkir fremja hverja skömm-
ina á fætur annari. Wilson skrifar
þeim, ávftar þá og lieimtar skaða-
bætur. Þýzkir fara undan f flæm-
ingi; kenna þetta sumpart Brct-
um, sumpart Bandaríkjamönnum
sjálfum, og vilja draga alt á langinn
og eyða þessu þannig. Þeim finst,
að það vera svo lítils virði, þó að
þeir drepi nokkur hundruð eða l>ús
und Bandaríkjamcnn. Sjáifsálitið
og sjálfselskan keyrir svo feykilega
úr hófi, að það er mörgum erfitt að
skilja þá. Þeir sjá ekkert nema
sjálfa sig. Þeir einir hafa réttinn.
Hitt mannkynið er eitt samansafn
hunda eða annara dýra, sem lítinn
eða engan rétt eiga á sér, nema í því
eina tilfelli að þeir séu auðmjúkir
þjónar eða þrælar hinna voldwgu,
hámentuðu Þjóðverja, einu mann-
anna, sem svo geti kallast, á hnetti
þessum.
Upphlaup Iranna.
í sjö daga stóð upphlaupið í Dýfl-
inni, og var barist á strætum borg-
arinnar meira og minna. Er sagt, að
þar hafi fallið af upphlaupsmönn-
um full 500, en 1500 verið særðir, og
munu tölurnar heldur vera lágar en
liáar.
En nú eru uppreistarmcnn fluttir
f hundraðatali sem fangar yfir til
Englands, og eru margir fanganna
konur í karlmannafötum. Hér um
bil alt eru þetta menn og konur úr
Sinn Fein félaginu.
. Þrír af foringjum íranna (sumar
fregnir segja fjórir), sem upp gáfust,
voru skotnir eftir dómi herréttar-
ins.
Voru þeir þessir: Patriek H.
Pearse, bráðabyrgðarforseti hins
nýja írlands; Thomas Clark og
Tliomas Macdonagh. Ilöfðu þeir all-
ir skrifað undir uppreistarskjalið.
James Conolly var hinn 4, sem sagt
er að dæmdur hafi verið og skot-
inn. Var hann hershöfðingi upp-
reistarmanna.
Alt Irland er sem höggdofa yfir
tiltæki þessu.
Fullyrt er, að fáeinir óvandaðir
menn hafi æst upp hina - yngri
menn í Sinn Fein félaginu til óynd-
isúrræðis þossa. Þeir voru búnir að
glæða hjá þeim hatur til Bretlands,
og á því ólu þcir. Segir frcgnriti einn
svo frá, sem var þar staddur og tal-
aði við upprcistarmennina, þcgar
uppreistin stóð sem hæst:
Þeir voru algjörlega sannfærðir
um, að þeir væru búnir að ná öllu
Irlandi undan \-eldi Brcta; Bretar
myndu aldrei til eilífðar ráða yfir
Irlandi eftir þenna dag. Það væru
að cins 3000 enskra hermanna á ,;
landi. En 50 þúsundir Þjóðverja
(sögðu þeir 1 Dýflinni), að væru ein-
mitt á þessari stundu að lenda í
Tralee, á suðvesturströndinni, og
60 þýzkir neðansjávarbátar væru í
írska sundinu milli Irlands og Bret-
lands, og þeir myndu banna Bret-
um allar ferðir um sundið, svo að
þeir kæinu engum her yfir.
Ein auglýsing uppreistarmanna
var ]>annig:
Standið fastir fyrir.
“Vér höldum óvinunum allstað-
ar, svo að þeir geta ekkert. Standið
fastir fyrir. Hjálpin er á leiðinni.
Lengi lifi þjóðveldið írska!”
Þetta og margt annað sýnir það,
að þeir hafa staðið í sambandi við
Þjóðverja. Enda kemur það upp
meira og meira undir yfirheyrslu
fanganna.
Á þriðjudagskveldið 4. maí var
farið að verða óhætt, að ganga á
flestum strætum Dýflinnar, og þann
dag var gefið út eitt morgunblað
og eitt kveldblað í borginni. Þá
fóru og hópar manna að skrfða upp
úr kjöllurum húsanna. Hafði fólk-
ið falið sig þar meðan upphlaupið
var f borginni. Margir voru þar
svangir, þvf að matarforði var lítill
og aðflutningar allir að mestu heft-
ir. En þogar hermenn Breta náðu
yfirhöndinni, þá fór það að iagast.
Canadiskt hjúkrunarlið kom með
hermönnunum ,og fær það liið
mesta lof fyrir framkomu sína.'Var
að sækja og bera burtu særða menn
nótt og dag og oft undir sjálfri skot-
hríðinni.
Þýzkir kafbátar á leið
hingað.
Og núna einmitt, Jiegar skrifin
stóðu sem hæst milli Vilhjálms og
Wilsons forseta, þá kemur fregnin
um, að tveir kafbátar þýzkir hafi
verið á ferð yfir Atlantshaf, og ]>að
svo sunnarlcga, að þeir virðast hafa
verið á lciðinni til New York.
Það var skipið “Venezia", sem varð
vart við ])á hinn 29. apríl. Það fór
frá Bordeaux á Suður-Frakklandi
og iiélt beina leið til Ne\v York. En
þogar það var komið 120 mílur frá
landi og átti eftir 1800 mílur til New
York, þá urðu þeir bátanna varir og
var eitt lierskip Þjóðverja með þeim
og annað skamt í burtu.
Segja brezkir foringjar f New York
að herskipin inuni vera ránskip,
sem Þýzkir hafi sent út, og gátu 3
þeirra sloppið í gegnum hergarð
Breta hinn 28. febrúar; en einu
þeirra, herskipinu “Grief”, náðu
Bretar í Norðursjónum og söktu.
Sjómaður einn á “Venezia” segir
söguna, er þeir hittu skip þessi:
“Það var um liádegi hinn 29. aprfl,
að við sáum tvímastrað gufuskip
með cinuin rcykháf, éitthvað 4 míl-
ur frá okkur, og stcfndi það í veginn
fyrir okkur. Nokkrum mínútum
síðar sáum við reykinn úr fallbyssu
þeirra framan á skipinu, er þeir
skutu í veginn fyrir okkur, til merk-
is um að stöðva skipið. Vorum við
búnir að frétta það áðiír en við
logöum frá Bordeaux, að ránskip
nokkur hefðu sloppið i gegnum her-
garð Englendinga, og höfðum við
því einlægt menn á verði til þess að
fá auga á þeim, ef að þau væru á
ferðinni, eða önnur skip grunsöm.
Þegar skip þetta kom nær, virtist
það vera kaupfar, 3000 ton að stærð.
Ekkert hafði það flagg uppi og enga
rafþræði á möstrunum. Alt var skip-
ið svart.
En þegar þetta var að gjörast, sá-
um við reykinn af öðru skipi á
stjórnborða. Var það miklu stærra
og stefndi á okkur mcð hraða mikl-
um. Nokkrir af kyndurum okkar
voru þá uppi á þiljum að hvíla sig,
og fóru þeir undir eins ofan til katl-
anna, og var þá kynt þar niðri alt
sem skipið þoldi. Fór þá að koma
skrið á skip okoar “Venezia”, en
stóra skipið stefndi fram hjá okkur
til hins skipsins, sem skotið hafði
til okkar og hcimtað að við stönz-
uðum. Seinna skjpið var um 8000
tons á stærð. Þau komu nú svo ná-
lægt hvort öðru, að þau gátu tal-
að saman, og tók það nokkrar mín-
útur. Síðan skildu þau og hélt hið
stærra skipið burtu, en smærra
skipið hélt á eftlr okkur, og fór
hart og sendi okkur 12 sprengikúl-
ur, sem þó ekki hittu. Við vorum
búnir að sjá 2 kafbáta, sem með því
voru. Stromparnir á þeim voru of-
ansjávar og liðlega bláhryggurinn.
Þcir fylgdu skipinu, sem lömb elta
móður sína.
Þeir ætluðu að komast fyrir okk-
ur, en skipið okkar var fljótara en
þeirra og dróg í sundur. Gekk þetta
mikinn hluta dags, þangað til
rökkva tók. Fóru þeir þá að skjóta
til okkar í 3—4 mílna fjarlægð, en
aldrei gátu þeir hitt okkur. Um
nóttina breyttum við stefnunni og
urðum ekki varir þeirra framar”.
— Þetta á víst að vcra eins og á-
herzlumerki við svarið sem Vil-
hjálmur sendi Wilson, og svo ætla
þeir sér náttúrlega að sökkva skip-
um Breta og Canadanianna, hvar
sem þeir geta hér með ströndum
fram. Það er einnig lítill efi á því,
að þeir geta sent liingað marga kaf-
báta, og þeir eru miklu ólmltari hér
en við strendur Evrópu. — En ]>að
er eitt, sem þeim er nauðsynlegt:
þeir þurfa einliversstaðar hér við
strendur að hafa vini, sem geta selt
þeim oliu, — annars geta þeir ekk-
ert. Þessu haia þeir óefað treyst áð-
ur en þeir fóru. En hvar eru þessir
vinir? Og hverjir eru þeir?
Shackleton viú suðurpólinn.
Bretastjórn liefir nú afráðið, að
senda von bráðar skip og menn til
að leita Shackletons foringja, sem
eftir varð við suðurpólinn, þegar
l>eir mistu frá sér skipið. Engar á-
reiðanlegar frcgnir höfum vér séð af
honum, síðan vér gátum hans fyrir
nokkru. Þetta er mjög umhyggju-
samlegt af Bretum. Þeir vilja líta eft-
ir sfnum mönnum, og ekki láta l>á
farast ef þeir gcta að gjört, og von-
um vér þeim takist að finna liann
lieilan á húfi.
— Landi vor Vilhjálmur Stefáns-
son situr nú við norðurpól, eða ein-
hversstaðar nálægt honum, og er
enginn um hann hræddur. Reynd-
ar búumst vér ekki við því að hann
sitji'heldur sé á kreiki og heill og
hraustur, og mun honum ekki setu-
gjarnt. Ætlum vér að hann hafi
hendur fullar að starfa, að mæla
lönd og taka stjörnuhæðir, skjóta
birni og rostunga, kanna lönd og
hann hefir fundið sjálfur, eða finna
ný. — Heill komi hann heim!
BANDARÍKIN VILJA KAUPA
VESTUREYJAR DANA.
Sagt er að Bandaríkin séu nú að
semja um kaup á Vestureyjum
Dana fyrir $5,000,000. Tvisvar áður
hafa þeir verið langt til búnir að
afgjöra kaup þessi við Dani, en
Þýzkir hafa ónýtt það, því að þeir
ætluðu sér eyjarnar sjálfir. Væru
]>eir þar hættulegir bæði Bretum og
Bandamönnum og öllu meginlandi
Suður- og Norður-Ameríku. — Eru
Bandaríkin nú að reyna að hraða
kaupunum, svo að þau verði um
garð gengin meðan Þjóðverjar eru
í kreppu þessari.
Til kjósenda í 4. deild.
MRS. A. G. HAMPLE.
Enn á ný sækir kona f skólanefnd
Winnipeg borgar. Hún heitir Mrs. A.
G. Haraple, og hefir fyrir áeggjan
frarasýnna manna og kvenna gefið
kost á sér í 4. kjördeild.
Mrs. Hample staðhæfir einbeitt-
lega, að hún bjóði sig ekki fram af
því hún treysti sér betur en nokkr-
um karlmanni til að leysa þetta
verk af hendi svo vel fari, — alls
ekki; en hún fylgir því fram, að al-
veg eins og sameiginlog samhygð
föður og móður er nauðsynleg til
uppeldis barnsins innan takmarka
heimilisins, elns sé þessi föður og
móður samhygð nauðsynleg, þegar
farið sé að gæta upplýsingar fyrir
barnið.
f stuttu máli: að tii þess að barn-
ið fái sem fullkomrtasta og upp-
byggilegasta þekkingu, þurfi bæði
karlar og konur að leggja fram sitt
bezta af orku og viti. Það er ein-
ungis ein kona, er situr í skóla-
nefnd bæjarins, — Mrs. Brown; —
hún hefir rcynst ágætlega. Aftur á
móti er nefndin skipuð þrettán
körlum, og þykir ótilhlýðilega skift.
Mrs. Hample cr kona vel gáfuð,
stilt í lund og hagsýn. Hún hefir
liðið súrt og sætt með Winnipeg
borg í yfir 30 ár. Utan þess að ala
upp sín eigin börn, ])egar mann
hennar brast heilsa, tók hún að sér
og annaðist aðra fjölskyldu, sem
líkt stóð á fyrir; hafði hún mat-
söiu um hönd og rak ]>á verzlun svo
sköruglega, að hún veitti mörgum
vinnu og stendur ein í sinni röð
sem “business” kona.
Það væri æskilegt, að landar, sem
atkvæði eiga í fjórðu kjördeild,
greiddu ]>au með Mrs. Hample. llún
hefir reynst “drengur góður” í alla
staði og alt af verið í fararbroddi,
þegar umbótamál hafa verið á dag-
skrá.
Stórbruni í Winnipeg.
Aðfaranótt hins 3. maí brann
Stovel byggingin, á horninu á Mc-
Dermot Ave. og King St„ til kaldra
kola. Stovel félagið er alþekt hér í
Manitoba. Hefir það fengist við
prentun og litmyndasmfði og letur-
gröft. Þar unnu 300 manns, sem
margir töpuðu atvinnu sinni í bráð.
Skaðinn talinn 400 þúsund dollarar,
en vátrygt fyrir 265 þúsund dollara.
Eldurinn kom upp 11.30 kveldið
2. maí.og voru því einir fjórir menn
í byggingunni. Milli kl. 12 og 1 um
nóttina stóð hún í Ijósum loga. —
Slökkviliðið kom auðvitað og gjörði
alt sem hægt var, cn ekkert dugði.
Byggingin var úr tré að innan, en
veggir úr múrsteini og brann alt
nema steinninn. Ekkert manntjón.
Sagt er, að Stovel félagið ætli að
byggja aftur, meiri og dýrari bygg-
ingu, upp á 250 þúsund dollara eða
meira, og verður hún á horninu á
Bannatyne Ave. og King St. Og á
undir eins að fara að byrja. Formað-
ur félags þessa, var á Englandi þeg-
ar brann, og var liann ekki fyrri bú-
inn að heyra um brunann, en hann
sendi rafskeyti hingað, og bað l>á
að farajlindir eins að byggja upp
aftur. Gat hann ]>ess og, að hann
þess og, að hann iegði af stað frá
Englandi hinn 12. maf.