Heimskringla - 11.05.1916, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 11. MAÍ 191«.
HEIMSKRINGLA.
i.
*------------------------------*
Islands fréttir.
•t---------------------—-------*
(Lögréita 29. márz).
Norðangartiur í fjóra daga. Síðast-
liðinn föstudagsmorgun, 24. marz,
var hér bezta veður, sólskin, logn
og heiðríkt yfir hverjum tindi. En
nokkru fyrir hádegi skall á grenj-
andi norðanstormur, svo sviplega,
að fá dæmi munu til annars eins.
Með storminum fylgdi hörkufrost,
hélzt þetta veður látlaust allan dag-
inn, og svo áfram, lltlu vægara, alt
til mánudagskvelds. En l>á kyrði al-
veg. Sama var veðrið austanfjalls og
hér suður um Reykjanesið, einnig á
Vcstfjörðum og i Húnavatnssýslu,
en þar fylgdi því snjókoma. Lengra
að fréttist ekki, því að síminn hefir
verið 'slitinn ausfcan við Blönduós.
Vélbátar margir og róðrarbátar
frá veiðistöðunum hér suður með
flóanum voru á sjó og urðu menn
mjög hræddir um þá. Hafa fréttir af
þeim verið að berast alt til þessa
og nú hefir frézt til þeirra allra,
nema vélbátsins “May” frá ísafirði,
er fór út héðan fi'á Reykjavík rétt
fyrir rokið. Hann var eign Helga
Sveinssonar, bankastjóra á ísafiiði
o. fl., skipstjóri Elías Magnússon.
Einn af vélbátunum héðan úr
bænum, sem haldið er út í Sand-
gerði, “17. júni”, eign Öl. G. Eyjólfs-
sonar kaupmanns, misti út mann,
er druknaði, Magnús Guðmunds-
son frá Eistabæ á Akranesi. Bátur-
inn strandaði svo, er hann koru á
land í Sandgerði, en er þó sagður lít-
ið brotnn.
Vélbáturinn “Hermann” frá Vatns
leysu er sagður hafa farist með
þeim mönum, er á voru. Aðaleigandi
hans vár Bjarni Stefánsson, en skip-
stjóri Sigurður L. Johnson, báði" á
Vatnsleysu. Hafði vélbáturinn “Vin.
dy” frá ísafirði komið hingað í gæv
og flutti þær fregnir, að skipverjar
hefðu séð bátinn Hermann farast á
föstudaginn. Hafði stórsjór hvolft
honum við línudrátt og var Vindy
þá þar skamt frá, en tókst ekki að
bjarga mönnunum.
Hinn vélbáturinn, sem farist hef-
ir, hét “Guðrún”, frá Bolungarvík,
eign Péturs Oddssonar kaupmanns.
“Guðrún sökk undir Krisuvíkur-
bjargi; en vélliáturinn “Freyja” frá
ísafirði, skipstjóri Guðm. Jónsson,
bjargaði mönnunum, er voru 10, og
kom með þá hingað í gænnorgun.
Hafði leki komið að skipinu úti á
hafi og vélin bilað aðfaranótt laug-
ardagsins.
Ejórum róðrarbátaskipshöfnum
úr Grindavík bjargaði fiskiskipið
“Ester” héðan úr Reykjavík, eign
P. J. Thorstenssonar, en skipstjóri
er Guðmundur ólafsson. Koin “Est-
er” inn hingað í gær. Hún hafði
bjargað skipshöfnunum öllum á
föstudaginn, 38 manns, og voru þá
sumir af mönnunum orðnir illa til
reika eftir hrakningana. Lagði síð-
an til drifs, en gat skilað mönnun-
um af sér í Grindavík á sunnudags-
kveld. Eru önnur eins verk og þetta
hvortttveggja mikilsverð.
Fjórir vélbátar komust á Hafnar-
leir og lágu þar af sér veðrið, en
aðrir þrír undir Hafnarbjargi, og
var einn þeirra “Víkingur” frá Akra-
nesi, með brotna vél. Hefir flóabát-
urinn Ingólfur verið fenginn til að
ná honum þaðan.
Austur f Þoriákshöfn varð það
slys, að botnvörpuskipið “Ymir”,
frá Hafnarfirði, eign Aug. Flygen-
rings kaupmanns o. fl., rakst á sker
og brotnaði nokkuð, er það leitaði
þar hafnar í stórviðrinu. Kom sjór
í lestina. En vatnsheld skilrúm eru
í skipinu og komst það hjálparlaust
af skerinu og lá síðan 1 Þorlákshöfn,
þangað til björgunarskipið Geir var
sent héðan til að sækja það, og
komu þeir Geir og Ymir til Hafnar-
fjarðar f fyrrakveld. Er lítið gjört
úr skemdunum á Ymi, og búist við
að hahn geti lagt út á veiðar eftir
fáa daga.
önnur slys urðu ekki austanfjalls,
og f Vestmannaeyjum urðu þau eng-
in. Á Vestfjörðum eigi heldur, að
því er frézt hefir, nema að lítinn vél-
bát rak á land í Hnífsdal.
— Húsbruni í Reykjavík. Aðfara-
nótt sfðastliðins mánudags, 27. þ.
m., fóru brunakallar hérna um göt-
urnar. Hafði einn af næturvörðun-
um orðið var við eld í húsinu 10C
við Lækjargötu, Waagesliúsinu
gamla, kl. rúmlega hálfþrjú. Grenj-
andi noTðanstormur var og grimd-
arfrost. Húsið, sem var að brenna,
stendur á bakióð frá Lækjargötu, f
þéttri húsaþyrpingu, og var því eld-
urnn ægilogur þarna í öðru eins rok
veðri.
Tvær fölskyldur bjuggu í húsinu,
Magnús Blöndal verzlunarfulltrúi
niðri, en- Lárus Fjeldsted yfirdóms-
lögmaður á cifri hæð. Vöktu nætur-
verðirfnir fólkið, og var það að eins
svo, að það gat tekið á sig eitfchvað
af fötum áður það flýði út, því hús-
ið fyltist fljótt af reyk. Tengdamóð-
ir M. Bl., sem er á nfræðisaldri, hafði
! verið veik að undanförnu, og var
hún borin burt frá eldinum. Hann
kom upp í austurenda hússins, en
þar voru forstofurnar á báðum hæð
um, og niðri var þar svefnherbergi
frk. Ragnheiðar Blöndal. Var for-
stofan í báli, er næturvörðurinn
vakti hana, en hún vakti sfðan for-
eldra sfna, er sváfu í vesturenda
liússins. Hár hennar hafði sviðnað
og hún fengið brunasár á andlit og
liendur. Uppi vaknaði L. F. við há-
vaðann niðri fyrir. Var ]>á komin
reykjarsvæla í herbergi hans, og
forðaði hann og fólk hans sér þegar
út bakdyramegin, að vestafiverðu.
En svo fór, að brunaliðinu tókst
að slökkva í húsinu áður það félli
og náði eldurinn engu af húsunum
í kring. Iiúsið var járnklætt. Er
eystri hluti þess allur mjög brunn-
inn, en vesturendinn minna. Allir
húsmunir eru auðvitað eyðilagðir,
en ekkert af þeim náðist út. Var alt
vátrygt hjá báðum. Brunaliðið hef-
ir sýnt þarna mikinn dugnað, og
hafði alveg slökt kl. 6 um morgun-
inn. En ekki vita menn, hvar eldur-
inn hefir komið upp.
Húsið mun hafa verið cign D.
Thomsen konsúls.
— Anton Bjarnasen, kaupmaður f
kaupmaður í Vestmannaeyjum, er
nýlátinn. Hann andaðist 22. þ. m.,
rösklega fimtugur að aldri.
Banamein hans var heilablóðfall,
hafði hann fengið aðkenningu af
þvf í fyrra vor, og náði sér aldrei eft-
ir ]>að
Anton fæddi'st í Vestmannaeyjum
7 desember 1863, og var faðir hans
Pétur Bjarnason, forstjóri Brydes-
verzlunar, er lézt hálffertugur árið
1870 . Hafa l>eir frændur fleiri orðið
skammlífir. En kona Péturs og móð-
ir Antons, er frú Jóhannæ, f. Ras-
mussen, og var faðir hennar skip-
stjóri; er frú Jóhanna nú enn á lífi
og vel áttræð. Börn þeirra hjóna
Péturs og Jóhönnu, eru, auk Ant-
ons, frú .Júlíana, kona Jóns Árna-
sonar kaupmanns, Nikolai kaup-
maðúr og Fr'iðrik trésmiður, öll f
Reykjavík, Jóhanri, er áður var for-
stjóri Brydes-verzlunar bæði í Vík
og í Vestmannaeyjum, en fluttist til
Ameríku fyrir nokkrum árum, og
Karl (dáinn).
Anton ólst upp í heimahúsum,
þar til hann var áfcta ára, en þá var
honum komið til síra Gfsla Thorar-
ensen á Eyrarbakka og dvaldist
hann þar í 4 ár; mun hann hafa
átt að læra þar undir skóla; en er
síra Gfsli dó, fórst þetta fyrir, og
hvarf Anton þá aftur til Eyjanna,
og settfst að hjá móður sinni, er nú
var grft öðru sinni, Thomsen verzl-
unarstjóra þar; tók hann þá að
gefa sig við verzlun þaðan í frá. Var
hann lengstum f þjónustu Brydes,
og stýrði verzlunum hans um langt
skeið, bæði í Vík og Vcstmanna-
eyjum, og fórst það prýðilega, enda
átti hann jafnan miklum vinsæld-
um að fagna. En nú fyrir nokkrum
árum tók hann sjálfur að reka verzl-
un þar á Eyjunum.
Anton var kvæntur Sigríði, dótt-
ur síra Guðm. Johnsens, prests að
Arnarbæli; varð þeim tveggja sona
auðið, er báðir lifa, Axel og ólafur.
Anton sál. var hár maður vexti og
þrekinn að sama skapi, kominn á
sig manna bezt, frfður sýnum og
svipgóður og að öllu hinn gervileg-
asti; var hann og hið mesta afar-
menni að burðum. Á uppvaxtarár-
um hans voru glímur algeng skemt-
un meðal sjóróðrarmanna í Eyjun-
um landlegudaga; sótti Anton sál.
leika þessa kappsamlega, og þótti
garpur mikill við glímurnar; fór ]>ó
vel með afl sitt.
Anton sál. var drengur hinn bezti,
glaðlyndur og skemtilegur í við-
ræðu, prúðmenni utan heimilis og
innan, góðgjarn og hjálpfús við þá,
til hans leituðu, en annars ekki í-
hlutunarsamur; manna áreiðanleg-
astur í viðskiftum.
Er hin nmesti skaði og harmur í
fráfalli Antons sái., og munu Eyjar-
skeggjar og aðrir læir, cr kyntust
honum, lengi muna liann; er og
jafnan vandfylt skarðið, er slfkir
drengir hníga— (B).
— Aflabrögð. Bæði botnvörpung-
ar þeir, sem hingað liafa komið und-
anfarna daga, og eins skúturnar,
hafa haft mikinn afla.
— Slys. Morgunbl. flytur þá fregn,
að 23. marz hafi hvolft báti við
Landeyjasand, sem var að koma úr
fiskiróðri. Mennirnir, sem á voru,
komust allir í land; en tveir af þeim
meiddust mikið, og dó annar litlu
síðar, Sigurgeir Einarsson bóndi í
Hlíð, kvæntur maður og tyeggja
barna faðir.
— Guðmundur Magnússon pró-
fessor fór til Khafnar ásamt frú
sinni með Islandi nýlega og ætlar
að láta gjöra á sér skurðlækning við
gallsfceinaveiki. Hann rar mikið
sjúkur, er hann Mn
— Dómur féll nýlega í yfirrétti f
máli Sigurðar Hjörleifssonar gegn
Isafold út af samningsrofi, er hon-
um var sagt upp ritstjórnarstarfi
við blaðið 1913, og voru honum þar
dæmdar 1650 kr. skaðabætur, en
undirréttur hafði dæmt honum
2800 kr.
— Hafís. Hrafl af honum hefir sást
úti á ísafjarðardjúpi nú eftir stór-
viðrið, en ekki mi'kið. Úr Norður-
landi er sagt, að þar hafi verið svo
mikið brim í norðanveðrinú, að ís
geti ekki verið nærri landi.
— Frú Kristjana Hafstein varð
fyrir því slysi nýlega að hún datt á
götu og fótbrotnaði.
— Skipasmíðastöð í Reykjavík. —
Það er nú sagt, að Sweitzers björg-
unarfélagið, sem haft hefir hér skip
á undanförnum árum, vilji koma
hér upp viðgjörðarstöð fyrir botn-
vörpunga, eða jafnvel skipasmíða-
stöð, og er í orði, að það félag kaupi
Slippinn, eða fari í eitthvert sam-
band við félagið, sem nú rekur
hann. Verkfræðingur frá Sweitzer-
félaginu er hér í þessum erinda-
gjörðum.
inu Hermanni frá Vatnsleysu, voru
þessir: Sigurður L. Jónsson, 38 ára,
kvæntur og átti 3 börn; Helgi Jón-
asson, 33 á ra, kvæntur, átti 2 börn;
Jón, bróðir Helga, 23 ára; Jón Run-
ólfsson, 23 ára: Sigurður Gíslason,
kvæntur, 58 ára, frá Kletti í Borg-
arnesi; Sveinbjörn sonur hans, 21
árs, og Guðbrandur Árnason, 20 ára,
frá Miðdalskoti í Laugardal. Einnig
druknaði maður af vélbátnum Sæ-
borg frá Vatnsleysuströnd, ög-
mundur að nafni, úr Barðastrand-
arsýslu.
— Skipakaup Eyfirðinga. Þcss var
nýlega getið hér í blaöinu, að Ásg.
Pétursson kaupm. á Akuereyri hefði
keypt auk gufuskip«ins “Kristjáns
9”, 4 vélskip til síldveiða; en Vísir
segir að liann hafi keypt 3 vélskip
og einn botnvörpung, er kostaði 160
þirs. kr., og séu fleiri í félagi með
honum um hann. Áður átti Ásgeir
2 fiskigufuskip. Ennfremur segir
blaðið, að Höfðabræður hafi keypt
tvö vélskip og ætli að byggja
brygggju á Kljáströnd og reka það-
an síldveiðar með hringnótum, og
einnig hafi Böðvar Jónsson yfir-
dómslögmaður o. fl. keypt vélskip
til síldveiða.
verið eftir kúlur, því að hann var
skotinn af sfnum eigin mönnum
eða undirforingjum. Seinasta fregn-
in segir, að það hafi verið tyrknesk-
ur foringi ilr sveitum Tyrkja f Litlu-
Asfu, Ali Abdullah að nafni, sem
skaut á hann, er Goltz setti ofan í
við hann. Tyrkinn tók upp skamm-
byssu og hleypti af á Goltz þremur
skotum og hittu öll, og þurfti Goltz
ekki meira.
Roosevelt vill veita konum at-
kvæðisrétt.
Roosevelt lýsir því nú yfir opin-
berlega, að hann sé cindreginn með
því, að veita atkvæðisrétt öllum
konum og fullaldra stúlkum í
Bandaríkjunum. — Engin vissa er
fyrir því, að hann verði í kjöri við
næstu forsetakosningar, en ekki er
það ólíklegt.
Til Sölu
— Maður druknar. Morgunblaðið
flytur þá fregn frá Yestmannaeyjum
að 4 menn þaðan hafi verið að flytja
fé á báti út í Alsey, en báturinn hafi
fylst af sjó, er hann var að leggja
þar að, og einn maðurinn, Guðm.
Þórarinsson, 65 ára gamall bóndi,
fallið útbyrðis og druknað.
(Lögrétta, 5. apríl).
— TíS og aflabrögð. Síðan norðan-
garðinum lauk hefir verið óstilt
veður. Eftir miðja síðasl. viku snjó-
aði, en síðan kom austanveður rok-
livast, einkum fyrir sunnan land, og
hleyptu þá þilskipin mörg inn liing-
að. Kom svo aftur norðanátt með
frosti, en í dag er hláka og rigning.
— í Norðurlandi er tíð vond og hag-
leysur, og látið illa yfir heybirgðum
manna í Skagafirði og Húnavatns-
sýslu, ef þessu heldur lengi áfram.
Þilskipin, sem inn hafa komið,
hafa aflað vel, hæst Ása (Duus) 15(4
þúsund og Sigríður (Th. Th.) 14
þús. Botnvörpungar hafa einnig afl-
að vel.
— Fyrirlestur flutti Har. Nfelsson
prófessor um afstöðu sína til kyrkj-
unnar síðastliðinn sunnudag. Taldi
hann sig nær frumkristninni en
presta nú alment, og voru það fróð-
legar skýringar, sem hann gaf í því
sambandi á ýmsum stöðum í Nýja-
testamentinu, en margir kaflar fyr-
irlestursins ljómandi fallegir. Hús-
ið var fult, Bárusalurinn, og urðu
margir frá að hverfa.
— Slys á “Rán”. Bötnvörpuskipið
Rán kom inn hingað síðastliðinn
mánudagsmorgun með einn af skip-
verjum örendan. Hafði vörpuvírinn
hrokkið upp úr skorðum sfnum, er
skipið var að veiðum á sunnudags-
kveldið í sjógangi, lent á höfði
mannsins og lostið hann til bana.
Maðurinn hét Benedikt Jóhanns-
son, frá Lindargötu 4 hér í bænum,
ungur maður og efnilegur.
— Skipatjón Vestanlands. Mrg.bl.
segir þá fregn frá Þingeyri 2. þ. m.,
að þar sé þá aftakaveður á norð-
austan og hafi slupp-skipið “Christ-
ian”, eign Poppésbræðra, slitið
upp og rekið í land og sé líklegt tal-
ið að það sé gjörónýtt. Einnig hafi
þilskipið Tjalfinn rekið í land á
Bíldudal, en það kvað vcra lítið
skemt. Á Suðureyri við Tálknafjörð
strandaði þilskipið Sigurbjöi-g, og
kútterinn Talisman frá Eyjafirði
rak á land í Bíldudal, og er hann
talinn mikið skemdur.
— Mannskaðinn í norðanveðrinu.
Mennirnir, isem druknuðu á skip-
Maskínubyssa strýkur.
Það var ítalskur drengur einn 16
ára gamall í liði Rússa austurfrá á
Rússlandi. Hann hét Constantin
Zepolli, og þó hann sé ungur, þá er
hann nú búinn að fá 2 heiðurs-
krossa fyrir hugrekki sitt.
Hann heyrði einu sinni foringja
sinn í skotgröfunum tala um það,
að það væri nauðsynlegt að ná
þessari maskinubyssu, sem einlægt
var að ónáða þá, þarna skamt frá
þeim; eða þá á einhvern liátt að
koma henni til að þagna. Hún var
búin að særa og bana mörgum
Rússum byssan sú.
Zepolli fór nú að hugsa um þetta,
og áður en nokkurn varði læddist
hann upp úr gröfunum og skríður
svo liægt og hægt, eins og ormur, á
maganum, eitthvað hundrað yards
í áttina til maskínúbyssunnar, og
sá núvel, hvar hún var og hvernig
landslagi var háttað: svo snýr lmnn
heimleiðis aftur, og fer nú að segja
íélögum sínuin, hvað sér hafi dottið
í hug. Þeir verða hálf forviða, en sjá
þó,að þetta kann að lukkast, ef að
lánið er með, og fara þeir svo skjót-
lega að búa sig undir.
Svo skríður di'cngurinn á stað aft-
ur og dregur nú sterkan kaðal á
eftir sér. Hann kemst að byssunni
og getur hnýtt kaðlinum um hana,
án þess að nokkur Þjóðverji vcrði
hans var, og fer svo að skríða á
kviðnum beim í grafirnar Rússa
aftur. En þegar hann er heim kon^
inn, þá fara Rússar að taka í kaðal-
inn og byssan fer á stað. Þýzkir
taka ekki eftir þessu undir eins. En
svo tekur einhver eftir því, að byss-
an er lögð af stað frá þeim. Stund-
arkorn skilja þeir ekkert í þessu;
en svo sjá þeir, að þetta er alvara:
byssan er að yfirgefa þá. Þá stökkva
þeir upp og ætla að stöðva hana.
En Rússar voru einmitt við þessu
búnir og láta kúlurnar dynja á
þeim, svo að þeir fáu scm lifðu voru
fegnir að komast í grafir sínar aft-
ur, hvað sem byssunni liði. En fyrir
þetta fékk drengurinn St. Georges
krossinn sinn, annað heiðursmerk-
ið, sem lmnn hafði.
ágætt hús i vesturbænum. Framstofa,
borðstofa, eldhús og skrifstofa niðri,
— 4 svefnherbergi, sumarherbergi
og baðrúm uppi. Efni og smíði alt
vandað (hard wood og lincrust fin-
ishing niðri; bezta finishing og bur-
lap uppi). Allir söluskilmálar eins
sanngjarnir og hugsast getur. Hkr.
vísar á.
™ DOMINION BANK
Hornl Notre Dome og Shrrbrooke
Strrrt.
HtlfullattUl uppl>..
Varnojftflur........
Allar elKulr.......
,.... * (1,000,000
.....»7,000,000
.....»78,000,000
Vér óskum eftir vlósklftum verz-
lunarmanna og ábyrgjumst aB gofa
þelm fullnægju. Sparlsjóósdelld vor
er sú stærsta sem nokkur bankl hef-
lr 1 borglnnl.
Ibúendur þessa hluta borgarlnnar
óska ab sklfta vtb stofnum sem þelr
vtta atS er algerlega trygg. Nafn
vort er fulltrygging óhlutlelka.
ByrJttS spart lnnlegg fyrlr sjálfa
ytsur, konu og börn.
W. M. HAMILTON, RáísmaSur
PHONB GARHY 34M
Columbia Grain
Co., Limited
242 Grain Exchange Bldg.
WINNIPEG
TAKIÐ EFTIR!
Vér kaupum hveiii og aðra
kornvöru, gefum hæðsta verð
og ábyrgjumst áreiðanleg við-
skifti. Skrifaðu eftir upplýs-
ingum.
Von der Goltz.
Yér vorum búnir að segja, að Von
der Goltz, hershöfðingi Þjóðverja
hjá Tyrkjum í Asíu, hefði dáið úv
flekkusótt. En hún liefir víst verið
þýzk fregnin, eða flekkirnir liafa
223rd Canadian
Scandinavian
Overseas Battalion
Lieut.-Col. Albrechtsen O.C.
HEADQUARTERS: 1004 Union Trusl 8ldg„ Winnipeg
Æðri og lægri (oringjar og hermenn verða Scandinavar.
Sveitina vantar hermenn. Skrifið yður í hana.
MARKET HOTEL
146 Prlneoss Street
á. móti marka?5inum
Bestu vínfðng;, vindlar ogr at5-
hlyning góð. íslenkur veitingra-
maður N. Halldórsson, leiíbein-
ir Islendingum.
P. O’CONNEL, Eigandi Winnlpegr
Sérstök kostabob á innanhúss-
munum. Komib til okkar fyrst, þib
munib ekki þurfa at5 fara lengra.
Starlight New and Second Hand
Furniture Co.
503—505 XOTIIE DAME AVEXl'E
Talsfml: Garrj 3884.
Shaw’s
Stœrsta og elsta brúkaðra fata
sölubúð í Vestur Canada.
479 Notre Dame Avenue
GISLI GOODMAN
TINSMIÐIIR.
Verkstœ'ði:—Horni Toronto St. og
Notre Dame Ave.
Phone IfelmillA
Garry 2988 Garry 89»
LlNASTA skóviðgerð.
MJög ffn skó vttSgerb á metan þú
bítSur. Karlmanna skór hálf botn-
aöir (saumaö) 15 mínútur, gútta-
bergs hælar (don’t sllp) eba leöur,
2 mínútur. STEWART, 183 Paciflc
Ave. Fyrsta búö fyrir austan aöal-
strætl.
J. J. BILDFELl
FASTEIGNASALI.
Unlon Dank f»th. Floor No. 520
Selur hús og ló?5Ir, og annab þar aU lútandi. Útveg&r peningalán o.fl.
Phonc Maln 2683.
PAUL BJARNASON
FASTEIGNASALI.
Selur elds, lífs, og slysaábyrgT5 og
útvegar peningalán.
WYNYARD, - SASK.
J. J. Swanson H. G. Hlnrlkasoa
J. J. SWANSON & CO.
FASTEIGNASALA R OG
penlnKH ratftlar.
Talsimi Main 2697
Cor. Portage and Garry, Winnipeg
Graham, Hannesson & McTavish
I.ÖG FR.F.ÐI NGAR.
215—216—217 CURRIE BUILDING
Phone Main 0142 \VI*\1PEG
| Arni Anderson E. P. Garland
GARLAND& ANDERSON
LÖGFR ÆÐIN G A R.
Phone Maln 1561
<01 Œlectric Railway Cbambera
Talsími: Main 5302.
Dr. J. G. Snidal
TANNLÆKNIR.
614 SOMEItSET ULK.
j Portage Avenue. XVINNIPEG
Dr. G. J. Gislason
I’li Y.HÍ4-ÍII n and Siirg'eon
Athygli veitt Augna, Eyrna og
Kverka Sjúkdómum. Ásamt
innvortis sjúkdómum og upp-
skurtii.
18 8outh 3ril St., Grand Forka, N.D.
Dr. J. Stefánsson
401 IIOYD BUILDING
Horni Portage Ave. og Edmonton St.
Stundar eingöngu augna, eyrna,
nef og kverka-sjúkdóma. Er aö hitta
frá kl. 10 til 12 f.h. og kl. 2 til 6 e.h.
Phonc: Main 3088.
Heimili: 105 Olivia St. Tals. G. 2315
Vér höfum fullar birgöir hrein-
ustu lyfja og mebala. Komið i
meb lyfsebla yöar hingab, vér 9
gerum mebulin nákvæmlega eftir i
ávísan læknisins. Vér sinnum
utansveita pöntunum og seljum i
giftingaleyfi. : : : :
COLCLEUGH <fc CO. >
Notre Dnme & Sherhrooke Sta. ^
Phone Garry 2690—2691 »
A. S. BARDAL
selur likklstur og annast um út-
farir. Allur útbúnaöur sá bestl
Ennfremur selur hann allskonar
mlnnlsvaröa og legstelna. :
813 SHEKBROOKE ST.
Phoae G. 215» WINDUPBG