Heimskringla - 11.05.1916, Page 8
BUS. 8.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEQ, 11. MAI 1916.
Fréttir úr Bænum.
“Mounted Polioe" er nú sett á
landamærin frá stórvötnunum og
aila leið vestur að fjöllum.
Inspector Wood, R.N.W.M.P., frá
Regina, var hér á ferðinni og sagði
fréttaritara einum á mánudaginn,
að hér f Winnipeg og grendinni
væru 17,000 útlendingar á bókum
fylkisins fyrir utan l>á, sem tekið
hefðu borgararétt: allir innan 20
mílna hrings frá Winnipeg og hefðu
]ivf 35 af R.N.W.M.P. verið sendir til
að líta eftir þeim við landamærin
hér sem annarsstaðar. Fara sumir
þessara manna til Emerson, en aðr-
ir til Boissevain.
Mr. Númi J. Snædal og Gunn-
steinn Jónsson, báðir frá Hnausa,
Man., komu nýlega til borgarinnar.
Þeir búast við að fara norður á vatn
til fiskjar hinn 27. þessa mánaðar.
ísinn kominn allur af suðurvatn-
inu og kominn á rek á norðurvatn-
inu. Það er með fyrsta móti að vatn-
ið losnar, viku fyrri en vanalega,
enda var ísinn þynnri en menn
muna til. Alt í bezta lagi þar neðra:
mcnn eru búnir að plægja bletti
sína, og fara nú að sá, þegar ísinn
er farinn af vatninu.
Messað verður í Únftara kyrkj-
unni á sunnudagskveldið kemur kl.
7 að kveldinu eftir bæjartíma. Safn-
aðarfundur eftir messuna. Áríðandi
að allir félagsmenn komi; mikils-
varðandi málefni fyrir fundi. Áttu
mál þau að afgreiðavst á sunnudags-
kveldið var; en vegna þes^, hve fá-
ir komu, varð að frcsta fundarstörf-
um um viku.
Mr. R. Sigurðsson, sem undanfarið
hefir átt heima að Raymore, Sask.,
hefir nú flutt búferlum þaðan tii
Mozart, Sask.
Miðvikudaginn 26. apríl vom þau
Eirfkur Solberg Sigurðsson og Sig-
ríður Bergsson, bæði frá Hnausa,
Man,, gefin saamn í hjónaband af
síra Rúnólfi Marteinssyni, að 493
Lipton St.
Leiðrétting.—I seinasta lista nýju
hermannanna, sem gengið hafa í
223. herdeildina. er talinn Thos. O.
Johnson, Lundar, Man., en átti að
vera Theodor O. Johnson. Hann er
sonur Odds Jo'hnson, bónda að
Lundar, Man.
Á fimtudagskveldið kemur, þann
11. maf, verður haldin samkoma
Sunnudagaskóla Únítara í kyrkju
safnaðarins, eins og áður hefir til-
kynt verið f blöðunum. Samkoman
byrjar kl. 8 að kveldinu eftir bæjar-
tíma, og inngangur kostar 15 cents.
Til skemtana verður, söngur, ræðnr,
upplestrar, tveir smáleikir og þjóð-
sýningar. Allur arður samkomunn-
ar gengur til barnanna aftur, og
ættu því foreldrar og annað safn-
aðarfólk, að hjálpa til að samkom-
an yrði vel sótt. Má fyrir margt eyða
15c, er minna er virði en skemtun
sú, sern samkoma þessi mun veita.
Guðleif Guðmundsdóttir, frá Vest-
mannaeyjum, er beðin að gefa sig
fram við ólaf S. Thorgeirsson, kon-
súl.
Við foringja-prófin, sem nú hafa
staðið yfir, hafa þeir tekið kapteins
próf H. M. Hannesson lögmaður og
Skúli Hansson fasteignasali, báðir
lieutepantar áður í 223. herdeild-
inni. — Óefað liafa margir landar
tekið æðri og lægri próf, en vér vit-
uin ekki nöfn þeina. Aldrei höfum
vér áður heyrt um það getið, að
nokkur íslendingur fyrri eða síðar
iiafi tekið )>róf l>etta. Vér vildum
gjarnan óska, að fá nöfn þeirra
landa, sem foringjapróf taka í hvaða
deild sem er, því að oss þykir vænt
um þá alla og teljum þá alla vera
þjóð vorri til heiðurs og landi þvf,
sein nú er föðurland okkar.
Mr. óli Johnson, úr Winnipeg,
fyrrum “caretaker” fyrir Union Loan j
and Investmnet Co., kom nýlega að j
sjá oss. Hann er fyrir þremur mán-j
uðum síðan genginn í 108. herdeild-
ina og lætur mjög vel af sér og fé- [
lögurn sínum öllum í deildinni. — |
Þetta er Bradbury deildin, sem [
margir kalla, og er fjöldi Islendinga
í henni. Þeir eru nú yfir vana-
lega tölu hennanna í deildinni, ein
góð 1200, þar sem deildir þessar
teljast fullkomnaðar með 11 hundr-
uðum hermanna. Vér þekkjum fjöl-
mai’ga landa þar, og mun leitun
vera á jafn harðsnúnum og gervileg-
urn flokki manna, hvar sem leitað er
og munu þess sjást merki fyrr eða i
síðar, þegar þeir koma í návígi við j
Þjóðverja.
Mr. Johnson fór frá konu og fjór-
um börnum, og er það ólíkt þeim,
sem heima sitja, þó að barnlausir
séu. En hann, sem margir landarnir
aðrir, sá og skildi nauðsynina að
berjast fyrir frelsið og mannréttind-
in og þá, er honum voru kærastir,
og tók þann kostinn heldur, en að
eiga á hættu, að sitja undir veldi
þýzkra, og sjá þá drepa niður frelsi
og menning lands og lýðs; og er
ekki að undra, þó að mönnum þess-
um þyki leitt, að sjá margan mann-
inn heima sitja, sem ekki einungis
neitar að fara, heldur leggur þeim
ilt til, sem eru að hætta iífi sínu fyr-
ir J)á.
Takið eftir gleðisamkomunni, sem
kvenfélagið “Jón Sigurðsson1’ held-
ur á föstudagskveldið kemur 1 Col-
umbus Hall, horni Smith og Gra-
ham stræta, og hér er auglýst á öðr-
um stað í blaðinu. Það er liklegt,
að ungu mennirnir noti nú tæki-
færið, bæði þeir, sem dansa, og þeir,
sem dansa ekki, og iáti nú ekki
standa á sér. Nú er vorið komið og
sólin skín yfir grænar grundir og
hellir straumum lífs yfir akra sána
og engi gróandi. Og hví skyldi þá
ekki vera lff og fjör hjá mönnum
eldri og yngri. Farið þangað, dreng-
ir, og flytjið burtu með ykkur giað-
ar endurminningar.
Jóhann Soffonías Einarsson, frá
Mary Hill, Man., gckk nýiega í 223.
herdeildina. Hann er 22. ára gamall.
Foreldrar hans eru: Einar Guð-
mundsson og Thorstína Guðmunds-
son, að Mary Hill, Man.
Vér viljum benda á auglýsingu
um annan myndunarfund “Lad-
ies’ Auxiliary’’ 223. herdeildarinnar
og hvetja konurnar að sækja hann.
Þeir segja, að hún sé aðallega að
verða íslenzk 223. herdeildin, og þá
verða þær þrjár herdeildirnar, sem
mikið til verða íslenzkar . Fonseea-
deildin hefir mikinn fjölda Islend-
inga. En nú ætla konurnar í hjálp-
arnefnd 223. herdeildarinnar að
halda annan myndunarfund félat
ins mánudaginn 15. maí, kl. 8.30 e.
m. í fundarsal Somerset skólans, og
væri vel að hann yrði fjölsóttur. —
Vér erum með þeim öllum, sem vilja
hjálpa hermönnunum. Það kann að
þurfa að halda á því, þó að síðar
verði.
Sfra Bjarni Thórarinsson er nú að
fara heim til íslands bráðlega. —
Hann er lengi búinn að vera hér
prestur, fyivst 1 Winnipeg og síðar
hjá Islendingum sunnan og vestan
við Manitobavatn. Fln nú hefir
hann fengið tilboð um góða stöðu í
Reykjavík hjá æskuvini sínum Jóni
Magnússyni bæjarfógeta þar, og á
hann að verða aðstoðarmaður hans.
Síra Bjarni er lipurmenni hið mesta,
fjörmaður og skemtinn og drengur
góður, og hefir ætíð verið í miklu
upjiáhaldi hjá söfnuðum þeim, sem
hann hefir ])jónað. Hann iæt.ur hjr
eftir uppvaxin börn. — Vér óskum
heilla og bamingju með heimferð-
ina, og vonum að hann lendi ekki í
gini Þjóðverja, er hann fer yfir sjö-
inn.
Síra Carl Olson messar í Skjald-
borg á sunnudaginn kemur, kl. 11 f.
m. og kl. 7 e. m.
ANNAR MYNDUNARFUNDUR FJELAGSINS
Ladies Auxiliary of the 223.
Canadian Scandinavian Battalion
verður haldinn í
FUNDARSAL SOMERSET SCHOOL, SHERBROOKE ST.
klukkan 8.30 stundvíslega.
Mánudaginn 15. maí 1916
Þangað eru allir beðnir að koma, sem áhuga hafa fyrir
málefni því, sem félagskonur þessar eru að vinna að.
Jón Sigurðsson félagið
I. O. D. E.
heldur skemtisamkomu í COLUMBUS
HALL, á suðvesturhorni Smith og Gra-
ham stræta, á föstudagskveldið í þessari
viku, 12. maí, kl.8. Skemtanir verða
Vist-spi/ og Dans
Það er mjög áríðandi að allir komi
stundvíslega á tilteknum tíma.
Inngangur 35 Cents
Mrs. H. Skaftfeld látin.
Olga Skaftfeld, kona Hreiðars
Skaftfeld, að 657 St. Mathews St. (La-
vinia), andaðist aðfaranótt mánu-
dagsins, að heimili sínu, úr hjart-
veiki. Hún hafði verið veik all-lengi.
Mrs. Skaftfeld iætur eftir sig eig-
intnann og 5 unga drengi: Olgeir,
12 ára; Júlíus, 10 ára; Vilhjálm, 8
ára; Pál Þórhall, 6 ára, og Ingimar,
5 ára.
Mrs. Skaftfeld var gáfuð kona og
einkar vel gefin; verður hennar
rækilegar minst síðar.
Jarðarför hennar fer fram á morg-
un (föstudaginn) frá Tjaldbúðar-
kyrkju, kl. 2.45.
Vorpróf við Saskatchewan
háskóla.
Við nýafstaðin vorpróf við Sas-
katehewan háskólann skaraði Skúli
G. Líndal langt fram úr sambekkj-
ingum sínum i fyrsta bekk skólans.
Hann vann fyrstu verðlaun háskól-
ans í sínum bekk. Þessi verðlaun
veita vinnanda þriggja ára fría
kenslu við skólann. Að afstöðnu
prófi innritaði Skúli sig í herdeild
háskóla Vestur-Canada.
Tveir aðrir Islendingar, sem eru
ný-útskrifaðir úr “matriculation,,-
deild við Saskatoon Collegiate, Jak-
Ob Líndal, bróðir Skúla, og William
Lundal, eru einnig innritaðir í
sömu herdeild.
Valdimar A. Vigfússon, frá Tan-
tallon, sem í síðastliðin tvö ár hefir
stundað nám við háskóiann í Sas-
katoon, og hefir sérstaklega lagt fyr-
ir sig efnafræði, hefir verið settur
“Assistant" í efnafræði við rann-
sóknardeild háskólans.
Tveir ungir íslendingar Thorbei’g-
ur Thorbergsson, frá Churehbridge,
og Baldur Bergsteinsson, frá Ala-
meda, Sask., skrifuðust upp úr
fyrsta bekk búnaðarskólans við
þessi próf. Báðir hlutu heiðursein-
kunn.
Jón Sigurðsson Chapter
Jón Sigurðsson Chapter, I.O.D.E.,
hélt fund í samkomusal Jobn M.
King skóla þriðjudagskveldið 2. maí
1916. Á fundinuin gengu þessar í fé-
lagið: —
Miss Ali)iia ólafsson.
Mrs. Guðrún Jóhannsson.
Miss Maria ólafsson.
Mrs. Steinunn Halldórsson.
Miss Lilian F. Paulson.
Miss Charlotte A. Paulson.
Miss Halldóra Grímsson. *
Mrs. Geo. Selfe.
Mrs. C. OsL. Chiswell, Gimli.
Alls eru félagskonur nú 71.
Mrs. Chiswiell gaf félaginu $5.00.
Félagið hefir gjört ráðstafanir til
þess, að senda brauð í hverri viku
til íslenzkra fanga á Þýzkalandi, og
eru frændur og vinir hermannanna,
sem nú eru í skotgröfunum, beðnir
að láta félagið vita, hvenær sem ein-
hver frændi þeirra eða kunningi er
fanginn af Þjóðverjum.
Nú koma einlægt margir hinna ís-
lenzku hermanna af landi utan og
eru ókunnugir í borginni, og ætla
félagskonur innan skamms tíma, að
gjöra þeim heimboð að kveldi. Hafa
margar félagskonur boðist til þess,
að taka móti þeim á heimilum sín-
um.
Félagskonur hafa sótt um ]>að til
Ottawa, að mega búa út að öllu
deild eina á heimili eða hæli aftur-
kominna hermanna í Deer Lodge.
WONDERLAND, sem vér íslend-
ingar getum kallað “Undralandið”,
er nú að halda þriggja ára afmæli
sitt hinn 10. maí. Það hefir æfinlega
verið skemtun, að liorfa á leikina á
Wonderiand; en nú á að sýna þar
hina beztu leiki, sem nokkurt leik-
hús getur sýnt í Winnipeg. Það
vorður afmælishátíð þeirra og þó
verður ekkert til sparað, en alt svo
vandað og fágætt og skemtilegt og
hrífandi, sem hægt er að hugsa sér.
Þar verður sýnt: Cbarles Chaplin
í “Shanghaied", í tveim þáttum. —
Einnig fyrirtaksleikur sem kallast:
“The Love Route”.
Komið snemma. Opið frá 2 e. m.
til 12.
Frá 223. herdeildinni.
Eftirfylgjandi hei-menn hafa bæzt
við nýlega í 223. herdeildina:
Frá Camiose, Alta.:
Ptc. Roys.
Pte. Christensen.
Pte. Odegard.
Pte. Engebrechtsen.
Pte. Christensen.
Pte. Olson.
Pte. Dragon.
Pte. Hoyem.
Pte. Abrahamson.
Pte. Grafstad.
Frá Cadogan, Alta.:
Pte Fnley.
Frá Czar, Alta.:
Pte. I>arson.
Frá Cameron, Man.:
Pte. Done.
Port Arthur, Ont.:
Pte. Tuomi.
Pte. Berg.
Pte Lagerstrom.
Frá Sa.skatoon, Sask.:
Pte. Nelson.
Pte. Chooke.
Pte. /fedorozuy.
Frá Birds Hill, Man.:
Pte. Kalamomen.
Frá Winnipeg:
Pte. Smith.
Þetta eru drengirnir, sem seinast
hafa skrifað sig í 223. herdeildina.
Eftir nöfnunum eru þeir flestir eða
allir Skandinavar, Norðmenn og
Svíar og nokkrir Finnar. Vér óskuni
þeim öllum heiila og hamingju og
erum glaðir yfir að sjá þá fylla
flokkinn þeirra, sem ekki vilja láta
hermanna og aðalsmanna vald
Þjóðverja troða undir hælum sér
Canadaveldi. Heilir fari þeir, heilir
komi þeir aftur.
Fimm þúsund hermenn ráðast á
Winnipeg-borg.
Fimm þúsund hermenn með öll-
um vopnum og skotfærum, sem í
alvarlegu stríði væri, réðust á Win-
nipeg á laugardaginn, og ætluðu að
taka borgina; en 108. herdeildin réð-
ist á irióti þeim og varði borgina.
Bardaginn stóð yfir allan seinni
liluta dagsins; en svo fóru ieikar,
að þeir, sem að sóttu, urðu fró að
hverfa. Borgarliðið sendi út sveitir
nokkrar, er skutu á aðkomendur;
náttúrlega skutu hinir á móti, og
var þar barist af hinni mestu
hreysti. Aðkomendur gjörðu sér
víggrafir, ]>egar skothríðin fór að
dynja á þeiin, og þeir komust ekki
lengra. En í bardagalokin fóru allir
hinir særðu menn og dauðu á kreik
og gengu sem heilir væru og þótti
það furða mikil. Og ætla margir, að
Þýzkum finnist þeir erfiðir við-
fangs, ef þeir gjöra þessar konstir,
því að ilt er að eiga við þann, sem
aftur gengur. Þann hinn saina dag
voru hershöfðingjaprófin, og tóku
])á iandar nokkrir æðri próf, en þeir
höfðu áður, og cr fullyrt, að þeir
liafi verið þarna í slagnum.
LAND TIL SÖLU
eða í skiftum fyrir kvikfénað, norð-
vestur fjórðungur af Sec. 32, Twp.
19, H. 3 West; gott land nálægt Lun-
dar, Man.. Hús, fjós og góður brunn-
ur. Verð mjög sanngjarnt.—Suite 1,
Sterling Bank Bldg., Winnipeg, Man.
Til leigu.
gott land ÍÍ4 section) 2 mílur norð-
ur af Winnipeg Beach, hálfa mílu
frá vatni. Landið er inngirt, gott
hús á því, og nógur heyskajiur og
viður. Ágætt fyrir fainilíu sem vildi
byrja búskap og reisa nokkra gripi.
Snúið ykkur til
G. J. Goodmundson,
696 Simcoe St., Winnijveg
CANADA’S FINEST SUBURBAN THEATRE.
AFMÆLI VORT 10. MAÍ
ÞRIGGJA ÁRA GAMALT í DAG.
Til minningar um þenna merkisatburð, ætlum vér að bjóða
fólki hinar stærstu og beztu sýningar í borginni.
Chas. Chap/ain in
” Shanghaied”
Leikur í 2 þáttum.
Einnig einn hinn allra skemtilegasta leik, sem nefnist:
“THE LOVE ROUTE”.
Komið snemma. Opið klukkan 2 e. m. til 12.
TAKID EFTIRI
KOMNIR AFTUR ERU ÞESSIR LEIKENDUR:
Grace Cunard,
Francís Ford,
Eddie Polo,
Marie Walcamp,
Ruth Stonehouse.
Alt ága&tir Ieikendur í hinu mikla “Circus Serial”
Peg O’ The Ring
sem byrjar mánudaginn 15. maí og heldur áfram þann 16 maí.
Þessi leikur er beztur aUra. Missið ekki af honum.
f
X
Fyrirlestrar
Dr. Guðmundar Finnbogasonar t
Dr. Guðm. Finnbogason flytur fyrirlestur sinn um við- ♦
hald íslenzks þjóðernis í Vesturheimi á þeim stöðum og ♦
þeim tíma, sem hér segir:
Lögberg (kyrkjunni), mánudag 15. maí, kl. 1 e. h.
Thingvalla (kyrkju Konkordía-safnaðar), sama dag,
kl. 7 e. h.
Kandahar (kyrkjunni), þriðjudag 16 maí, kl. 2 e. h.
Wynyard, sama dag, kl. 8 e. h.
Mozart, miðvikudag, 1 7. maí, kl. 2. e. h.
Elfros, sama dag, kl. 8 e. h.
Foam Lake (Bræðraborg), fimtudag, 18. maí, kl. 2 eh..
Leslie, sama dag, kl. 8 e. h.
Edmonton, sunnudag, 21. maí kl. 3 e. h.
Markerville, mánudag, 22. maí, kl. 2 e.h.
BORÐVIÐUR MOULDINGS.
ViS höfum fullkomnar byrgSir
al öllum tegundum.
Verðskrá verður send hverjum, sem
æskir þess.
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
Henry Ave. East, Winnipeg, Man., Telefone: 2511
Bögglasölu og Dans
ásamt fleiri skemtunum heldur stúkan HEKLA
Fimtudaginn 18. maí 1916
í Goodtemplarahúsinu.
Góður hljóðfærasláttur við dansinn.
Aðgöngumiðar 25 cents Fríar veitingar.
i