Heimskringla - 24.08.1916, Qupperneq 8
BLS. 8.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, ÁGÚST 1916
Auction
Sale
Every Second and Fourth Saturday
monthly will be held at Clarkleigh
this year from 2 to 6 p. m.
B. RAFNKELSSON.
Ef eitthvað gengur að úrinu þínu,
þá er þér lang-bezt að senda það til
hans G. Thomas. Hann er í Bardals
byggingunni og þú mátt trúa því,
að úrin kasta ellibelgnum í hönd-
unum á honum.
Föstudag og Laugardag: —
“THE SECRET OF THE SUBMARINE”.
Látið ekki hjá líða, að sjá þenna mjög svo spennandi leik.
Mánudag og Þriðjudag: —
BLANCH SWEET í “1000 dollar Husband”.
Miðvikudag og Fimtudag: —
SWEET KITTY BELLAIRS.
Þetta er heimili “Paramount” myndanna, og allra nýjustu
Charles Chaplain gamanleikanna, sem allir hlæja að.
Fréttir úr Bænum.
Dr. M. B. Halldórsson, frá Souris,
N. Dak., og Druggist J. M. Skapta-
son, Souris, komu snöggva ferð að
sunnan norður hingað. Komu norð-
ur á sunnudaginn í autó og fóru
um Camp Hughes. Þeir fara bráð-
lega suður aftur. Segja ryð mikið á
hveiti suðurfrá.
Eins og auglýst er á öðrum stað
í blaðinu — og hefir verið í undan-
förnum blöðum — óskar félagið
JÓN SIGURÐSSON, I.O.D.E., eftir
að fá sem allra fyrst nöfn og áskrift
allra íslenzkra hermanna, hvar sem
þeir eru, hvort heldur hér eða í Ev-
rópu. Þeim er alveg nauðsynlegt að
fá þetta, ef að hermenn þessir eiga
ekki að verða útundan og afskiftir,
]>egar félagið sendir þeim Jólagjafir
eða annað. Það er illa farið, ef að
vinir þeirra og frændur, sem vita
um verustað þeirra, vanrækja að
láta félagskonurnar vita um hag
þeirra, ástand og heimilisfang, þvf
að það er félagsins vilji og tilgang-
ur, að hjálpa og gleðja, hvar og hve-
nær, sem það getur. Argyle er eina
sveitin, sem hefir sent félaginu fulln-
aðarskýrslu um hermennina ]>aðan.
— Og nú óskum vér, að vinir þeirra,
sem f hernum eru, láti það ekki
dragast, að senda félaginu nöfn og
áritan þeirra. Það tekur langan
tíma, að búa þetta alt undir og
langan tíma að senda, því margur
er maðurinn, sem fer, og má því ekki
draga þetta lengi.
Vinsamiegast vildum vér biðja
menn og konur að vinda bráðan bug
að þessu og senda allar upplýsingar
til: Mrs. J. B. SKAPTASON, 378
Maryland St., Winnipeg, sem er for-
seti Jón Sigurðsson félagsins.
Næsta sunnudag (27. ágúst) verð-
ur ekki messað í Únítarakyrkjunni
en annan sunnudag (3. sept.) fer
þar fram messugjörð á venjulegum
tfma.
GARDEN PARTY.
Jón Sigurðsson, , I.O.D.E., hefir
GARDEN PARTY á OLAFSSON
LAWN, horni MeDermott og Sher-
brooke stræta, fimtudagskveldið 24.
ágúst, kl. 7. Ymsar góðar skeintanir
vcrða ]>ar. Veitingar seldar. Að-
gangur lOc. — Ágóðinn gengur til
glaðningar fslenzkum hermönnum.
Næsti fundur Jón Sigurðssonar fé-
langsins v.erður 5. september kl. 8
að kveldinu í John M. King skólan-
um. Áríðandi óð sem flestar félags-
konur sæki þenna fund, því mikið
starf er fyrir höndum.
Hr. Sigfús Magnússon, frá Duiuth,
Minn., var hér á ferðinni um helgina
Hann er sonur síra Magnúsar sál.
Jónssonar á Grenjaðarstað. Mun-
um vér eftir honum heima, háum
manni, grannvöxnum og í öllu \
snyrtilegum. Nú er hann hvítur fyr-
ir hærum, þrekinn að sjá, en kátur
og fjörugur, og er sem ellin hafi auk-
ið og skerpt alla andlega hæfileika.
Það' var skemtun að sjá Sigfús. —
Héðan skrapp hann norður í Nýja
ísland, en fer svo suður í Dakota, er
hann kemur þaðan aftur.
Kvenfélag Fyrsta iúterska safnað-
arinfe hefir HOME COOKING SALE
]>ann 26. ágúst (næsta iaugardag) á
eftirfylgjandi stöðum:
Wrellington Grocery,
á Wellington og Victor.
B. Árnason,
Sargent og Victor.
Central Grocery,
Ellice og Langside.
Til arðs fyrir Red Cross félagið.
Miss G. Patrick kom vestan frá
hafi á laugardaginn, og biður hún
Heimskringlu, að skila þakklæti til
lslendinga í Vancouver fyrir góðar
viðtökur.
Mrs. G. Jóhannsson og Miss G.
Jóhannsson, frá Hólar, Sask., komu
hingað til Winnipeg nýlega til þess
að sjá Dr. Jón Stefánsson við heilsu-
iasleika Miss G. Jóhannsson. — Vér
spurðum þær um storminn mikla,
og sögðu þær að hann hefði verið
með aftökum, og þó að sumir hefðu
að meira eða minna leyti sloppið
undan haglinu, þá lamdist kornið
úr stöngunum á ökrunum, og varð
af því litlu minni skaði en þó að
haglað hefði.
Mrs. Jóhannsson stóð við glugg-
ann, þegar veðrið skall á. War þar
raunar ekkert haglið, en regnið
var svo mikið, að koldimdi í hús-
inu og sást ekki meira en tvö fet
eða svo út úr glugganum. En vind-
urinn svo mikill, að alt tók á rás,
sem laust var úti.
TIL VINA OG AÐSTANDENDA
HERMANNANNA.
JÓN SIGURÐSSON, I.O.D.E., fé-
lagið óskar þess, að vinir og aö-
standendur hermanna þeirra hinna
íslenzku, sem nú eru farnir, sendi
utanáskrift hvers eins hermanns til
forstöðukonu félagsins Mrs. J. B.
Skaptason, 378 Maryland St., Winni-
peg.— Félaginu ríður á að vita rétta
utanáskrift þeirra og breytingar,
undir eins og þær verða, svo að þær
beðnir að láta þetta ekki undan-
falla.
Málverk.
Allskonar litmyndir
(“Pastel” og olíu-
málverk) fást
keyptar hjá I*or-
ntelnl Þ. I»orNtelnHnynl, 732 McGee St.,
-TalHfml G. 4í>»7.— Ljósmyndum, bréf-
spjaldamyndum o. s. frv. breytt í stór-
ar litmyndir fyrir mjög sanngjarnt vert5.
Efalaust eiga allir einhverja mynd
svo kæra, aö þeir vilja geyma hana
meC lífi því, sem höndin og litirnir
skapa, til minja í stofunni sinni.
Húspláss fyrir litla fjölskyldu að
564 Victor St.
Hr. Magnús Freeman, frá Cold
Springs, Man., kom til borgarinnar
í vikunni á leið heim til sín frá
frá Prince Rubert* B. C. Hann fór
vestur síðastliðinn vetur og dvaldi
þar á ströndinni til þessa. Fiski-
veiði sagði hann góða og verð mcð
bezta móti. Þeir landar, sem hann
kyntist, vinna flestir við fisk; enda
cnga aðra vinnu að fá, þvl að mjög
mikil deyfð er í öllum framkvæmd-
um í Prince Rupert. Magnús hældi
mjög tíðarfarinu á ströndinni, og
kvað sumarið iíkast því, sem bezt
væri á Islandi.
Háttvirti ritstjóri!
Síðan 3. ágúst hefi eg legið hér á
"Camp Hospital”. Varð of nærri þeg- j
ar eldhús okkar fauk í storminum I
3. ágúst. Eg er illa fótbrotinn, og
hefi liðið dálítið. Beztu ráðstafanir
til að hlynna að mér voru gjörðar af
CoL okkar yfir 223. herdeildinni, og
gott á sú herdeild, sem hefir jafn-
góðan læknir og 223. herdeildin.
Með virðingu,
Þorbjörn. Tómasson,
223rd Battalion, A. Comp.
Camp Hospital, Camp Hughes ,
18. ágúst 1916.
EATON’S
VETRAR
HAUST OG
VERDLISTI
UTBYTINGAR
Hefirdu fengid eintak?
Ef ekki, — þér vitið, hvað þessi bók er mikils virði fyrir yður, hvað pen
snertir. Þér vitið, hvað-stóru EATON búðirnar og vöruhúsin eru áre
fljót að afgreiða pantanir, — og sem er enn meira virði: þér vitið, að alt a
sig á gæði EATON vörunnar. Þér vitið, að öll þau hlunnindi, sem
EATON gefur, eru yðar strax og þér fáið Haust- og Vetrar-Verðlista
verður sendur yður samstundis og vér fáum línu frá yður um, að þér óskið 1
Sendu eftir Listanum Strax
> EATON
á EATON
í haust, — með því að verða aðnjótandi
þeirra sérstöku kjörkaupa, sem þessi mikla
verzlun laetur í té, vegna sinna öflugu inn-
kaups-ráðstafana og ótakmarkaða peninga-
valds á heimsmörkuðunum. Gjörist þér
því hluthafar í öllum þeim sparnaði, sem
verzlun við EATON hefir í för
með sér.
^ar og ánúm með beiðni
L um verðhsta vorn, — skrifuð á
fflb póstspjald eða bréfmiða, er
j&Hk a^ sem Þarf’ þess að vér
sendum yður þessa stóru 520
blaðsíðu bók. Þess fyr,
sem þér fáið hana, þess
lengri tíma hafið þér til
iWíwHhMk wK að njóta alls þess
hagnaðar, sem hún
hefir að bjóða.
IMPERIA1
T. EATON C
LIMITED
WINNIPEG
CANADA
Druknun 5 manns frá
Gimli.
Þetta stórkoslega slys vildi til á
Gimii á fimtudaginn 10. ágúst, er
5 manns fóru á byttu frá Gimli yfir
vatnið til Elk eyja, til þess að tína
bláber, og fórust allir. Voru það ný-
gift ung hjón, Mr. og Mrs. Jóseph
Peterson, Mrs. D. Einarsson (systir
Jósephs Peterson) og bræðurnir
Herbert og Alfred Bristow.
Elkeyar eru nálægt 24 mílur norð-
ur af Vietoria Beach, að austan-
verðu við vatnið, og sjást rétt að
eins frá Gimli, þegar gott er veður.
— Þegar fólk þetta lagði á stað, var
vindur all-mikill, og var búist við
því aftur á laugardagsmorguninn.
En er báturinn kom ekki, urðu vin-
ir þeirra hræddir um þau, og var
farið að leita á miðvikudagsmorgun-
inn. í leitina fóru Mr. E. S. Jónas-
son, Miss Steina J. Stefánsson og Mr.
Einarsson og lögðu upp kl. 5 að
morgni í gasolíubát.
Vatnið var ylgið og eftir leit
nokkra hittu þau bát á hvolfi, og
var llkið Herberts Bristow bundið
við mastrið. Hvikan og veðrið var
svo mikið, að þau gátu ekki reist
við bátinn og tóku þau því líkið
eitt heim.
Varð mönnum á Gimli bilt við
fregn þessa. En Mr. Einarson hafði
verið við veiðar úti á vatni og kom
ekki heim fyrri en þann 13. og varð
því ekki af meiri leit fyrst. En þann
15. átti gufubátur að fara að leita
hinna daginn eftir, þann 16.
Alt var þetta ungt fólk og mann-
vænlcgt. Mr. og Mrs. Peterson voru:
hann 28 ára, en hún 17; Mrs. Einars-
son 23 ára. Herbert Bristow 22 ára,
en Alfred 18 ára.
Síðar hafa fundist rekin lík Mr. og
Mrs. Joeph Petersons og Mrs. Einar-
son, og voru hin látnu 4 jarðsungin
á Giinli á sunnudaginn var að við-
stöddu hinu mesta fjölmenni.
Lík Alfred Bristows var ófundið,
er síðast fréttist.
¥—— --------------------------y
TIL LEIGU.
*-----------------------------*
Herbergi til leigu með öllum þæg-
indum í Block í Ft. Rouge, hjá ís-
lenzkum hjónum. Herbergið er stórt
gott fyrir eina eða tvær stúlkur;
sangjörn leiga. Stutt frá strætis-
vögnum. — Hkr. vísar á.
Nýtt verzlunar
námsskeið.
Nýjir stúdentar mega nú byrja
haustnám sitt á WINNIPEG
BUSINESS COLLEGE.— Skrifið
eftir skólaskrá vorri meö öllum
upplýsingum. Munið, að það
eru einungis TVEIR skólar í
Canada, sem kenna hina ágætu
einföldu Paragon hraðritun, nfl.
Regina Federal Busineas College.
og Winnipeg Business College.
Það erogverður mikil eftirspum
eftir skrifstofu-fólki. Byrjið því
nám yðar sem fyrst á öðrum
hvorum af þessum velþektu
verzlunarskólum.
GEO. S. HOUSTON, ráðsmaður.
ENNIS & CO.
Eitt af allra beztu PIANO’S í Canada. Síðan það
fyrst varð til, árið 1886, hefir álit fólksins og aðdáun
á hljómfegurð, traustleika og mörgum öðrum góðum
kostum þess aukist svo mjög, að það hefir verið
skýrt: “Hið hljómfagra Ennis”. —
Þetta Piano er selt á mjög vægum borgunarskil-
málum af
Cross, Golding & Skinner, Limited
323 PORTAGE AVENUE.
Nýjir kaupendur ættu að nota sér kostaboð Hkr., sjá augl. á 7.bls
»♦♦♦-♦-♦■♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦