Heimskringla - 21.09.1916, Page 7

Heimskringla - 21.09.1916, Page 7
WINNIPEG, 21. SEPTEMBER 1916 HEIMSKRINGLA, 5M. 7. Bezta hveiti he/msins Það er bragðið af bezta hveiti heimsins í brauði og kökum bún- um til úr PURiTy ( More Bread and Better Bread Grimd og líkn. (Stríðsfréttir eftir konu úr Banda- ríkjunum í blaðinu ‘Outlook). Það er í dálítilli útbyggingu við feykilega stóran spitaia, sem bruna- sár og kal á höndum og fótum er leSknað. Eg sá bar 11 menn (þeir voru þar miklu fleiri), se mÞjóðverj- ar höfðu spýtt á logandi tjöru. (En Bandamenn hafa aldrei viljað sýna Þjóðverjum djöfuldóm. þenna). Þegar þeir komu til spítalans voru fötin brunnin af þeim, og enn voru þeir að brenna. Eg fór ekki af for- vitni að sjá kvalir þeirra, heldur til þess að sjá hina dásamiegu lækn- ingaraðferð og reyna að vekja á henni athygii annara út í frá. Fyrst fórum við þangað, sem þeim var hjúkrað, sem höfðu kalið á höndum og fótum við Yerdun. Þeir höfðu legið þar á verði hreyfingar- iausir dag og nótt, og máttu ekki hræra legg né lið, svo að óvinirnir yrðu þeirra ekki varir. Þetta var á þeim parti hergarðsins, þar sem ó- mögulegt er að grafa neinar víggraf- ir, þvi að landið var alt einn flói. Hefurðu nokkurntíma séð kol- brand á höndum eða fótum? Er það ekki hryggileg sjón? Veiztu hvernig lyktin er? Og sé hann á hönd eða fæti, ])á vferður vanalega að taka hendina eða fótinn af manninum. Ef að þú hefir séð eitthvað af þessu, þá getur þú fengið hugmynd um ]>að, hve dásamlegt það er, þegar eg segi þér, að af öllum þeim tugum manna^ sem sem sendir voru til læknis þessa, þurfti að eins að taka af einum manni fótinn, en af hinum töpuðu fáeinir einhverju af tánum. Og kom það þó vanalega af bví, að þeir höfðu fyrst verið fluttir á aðra spítala, þar sem menn höfðu gömlu lækningaaðferðina við þá og nokk- ur tími varð að líða, áður en þeir komu til læknisins á spítala þess- um. Við horfðum á þá búa um sár þeirra. Það þurfti hugprýði til að horfa á það. Vanaleg sár eru sem einskisvirði á móti þessum. En ei.g- inn maður kveinkaði sér eða kvart- aði um sársauka, því að þeir furidu hann engan. Þess vegna gat eg he-t mig upp og horft á það. Einn hinna særðu manna talaði til mín á ensku. Hann hafði unnið við veitingar á hóteli í New York. Hann taiaðl við mig rólcgur og bros andi meðan hinir hryllilegu særðu fætur hans voru málaðir með hvít- um, vaxkendum vökva (þetta er undralyfið, sem eg ætla að segja frá síðar). Annar særður maður lá á sjúkrabörum, og var að vefja upp umbúðir, alveg eins og þetta snerti hann ekkert sjálfan, á meðan aðrir vorú að gjöra við stúfana á fótum hans. “Er það sárt?” spurði eg. “Ekki vitundar-ögn”, svaraði hann. “En áður en eg kom hing- að--------”. Þarna var fjöldi þeirra, allir með brendar hendur eða fætur. — En allir glaðir og kátir, að hugsa um bata sinn, og allir á batavegi, og enginn þeirra fann til sársauka í þessum voða-skemdu limum sínum. Þjóðverjar spýttu á þá logandi tjöru. Þegar eg fór að spyrja um sárin af logandi tjörunni, þá sagði læknir- inn mér, að það væru hinar grimm- ustu og voðalegustu kvalir, scm nokkur maður gæti hugsað sér, og kvaðst ætla, að cg myndi ekki þola að heyra það, ef þeim væri lýst eins og ]>œr væru. Og þegar eg sá hinn fyrsta skaðbrcnda hermann^ þá ætl- aði eg ekki að trúa mínum clgin augum. Eg gat ekki skiiið, að nokk- ur maður gæti lialdið lifina með önnur eins sár. Eg varð svo æst Og reið, að cg gat ekki stilt mig og hrópaði til lækis- ins, sem næstur var: : “Hví losuðuð þér hann ekki við allar kvalir? —- (Sem þýddi: Hví léztu hann ekki deyja? Og eg sá, að hann skildi, hvað eg meinti). En hann svaraði fljótlega: “Við höfum losað hann við allar kvalir”. — Þér getið máskc ekki trúað því, hvernig hann leit út, þessi manns- mynd; það var ómögulegt, að greina nokkurt andlitsfall hans; augun voru lokuð, varianar og stór stykki úr andlitinu var brunnið, alt inn í bein; allar tennurnar berar og hendurnar svo hryllilegar, að eg get ekki lýst því. — En tíu dögum seinna, var hann farinn að tala. Og nú má fara að greina andlits- föll hans vel og sárin djúpu eru farin að fyllast af holdi, og hvítt og fíngjört skinn er að færast yfir holdið og á enni hans er að eins eitt ör sem ekki er fylt upp, en innan einnar viku verður ekki hægt að sjá nokkurt ör á andliti hans. Eg hefi skoðað allar ljósmyndir af honum, litmyndir, teknar smátt og smátt( frá því er hann fyrst kom særður á spítalann og alt til þessa dags, — en það er mánuður að eins. Það er reglulegt kraftaverk, sem maður sér þar. Og sjálfur sagði hann mér, að hann hefði alls engar kvalir tekið út, eftir að þeir fóru að lækna hann með þessari nýju að- ferð. En sjálf hefi eg séð aðra, sem voru langt til læknaðir eða albata, og einnig séð myndir af þeim dag eftir dag eftir að þeir komu á spítalann, svo að eg get fullyrt það, að þessi maður er ekki eitt dæmi; þeir eru allir eins. Bjargað höndum fiðluleikara. Einn hermannanna hafði verið fiðluleikari áður en stríðið hófst. En nú varu hendur hans svellbólgn- ar, eins og hann hefði belgvetlinga á höndum. Þær voru allar ein blaðra; rauðar sem purpuri og svo grænar undir vaxsteypunni, sem skýldi þeim. Læknirinn spretti með hnífi sínum þvert um ulfliðinn inn úr vax húðinni. Svo bretti hann upp á vaxið og fletti af hendinni, eins og menn fletta liprum glófa af hendi sinni. Maðurinn horfði forvitinn á lækn- irinn á meðan. “Þeii\ hafa lofað mér því”, mælti hann “að eg skuli fá full not handa minna aftur; og eg trúi þeim, því eg hefi séð þá gjöra svo dásamleg furðuverk. Ef að cg hefði ekki reynt það sjálfur, þá hefði eg aldrei getað trúað því, að nokkur maður gæti stöðvað aðrar eins kvalir og eg áður varð að þola, og það eins fljótt og með jafn einföldu móti”. Eg hefði líka aldrei getað trúað því, að aðrar eins hendur gætu nokkurntíma orðið líkar manna- hönduin þegar eg sá myndirnar af þeim eins og þær voru 10 dögum áð- ur. Maðurinn átti að fara af spltal- anum eftir einn eða tvo daga. Og var hann ekki búinn að vera þar fullan mánuð. Við sáum ]>ar annan mann, sem var mjög illa brunninn. Alt holdið af nefinu var brunnið og af neðri hluta andlitsins. Þeir höfðu reynt að græða á liann skinn á öðrum spítala, og þar hafði liann verið i4 vikur og kvalist einlægt, en ekkert batnað. Hann sagði okkur frá þvf sjálfur. H*ann var búinn að vera á þessum spítala í 17 daga. Og nú var hold komið á alt nefið á honum; augun voru opin og nú gat hann talað. — En það bezta af öllu var, að hanp kendi einskis sársauka. Læknirinn sagði okkur samt, að liann væri hræddur um, að hann myndi ör- kuml bera, því að hann kom svo seint til þeirra. Þegar við vorum að fara ofan, komu þar inn tveir menn með særð- an hermann á börum. Þegar þeir settu hann niður, kallaði læknirinn á yngri stúlkuna, sem með mér var. Maðurinn var brendur á höndum og andliti, er fallbyssa ein hafði sprungið. Við sáum fyrstu mynd- irnar af honum eins og vanalega.— Eg ætlaði ekki að geta trúað því, að þar væru myndir af manni þess- um. Ilann hafði verið fluttur þang- að undir eins og hann særðist, og var búinn að vera þar í 15 daga. Eg gat hvergi séð á honum bruna- merki. En þegar eg fór að líta betur eftir honum, sá eg að hárið og augabrýrnar voru rétt að byrja að vaxa. Læknirinn bað mig að snerta á hörundi hans; það var mjúkt eins og é ungbarni. — Menn munu nú spyrja, hver þessi dásamlega uppgötvun sé, og hvert sé nafn þessa heimsfræga mannvinar, sem hafi fyrstur gjört þetta. — En þetta er saga allra upp- fyndinga. Og svo er lækningin svo afar-einföld, og læknirinn hefir hvorki auð eða áhrif stórmenna til að lyfta sér upp. Þetta var svo ein- falt, að eg skildi það eftir litla út- skýringu. Efnin, sem lækna þetta, eru: ‘vax’, ‘paraffin’ og ‘resin’. Þetta er hitað upp til 120. gráðu á Celsius. Þá verður það eins og vatn og á lit- inn eins og hunang. Svo er það tek- ið úr ílátinu, sem það er hitað í, og brúkað undir eins. Þó að menn stingi fingrunum niður í ]>að svona heitt, eins og eg gjörði, þá er þau rétt þægilega volgt, og storknar óð- ara á hendinni, þegar liún er tekin úr leginum, og legst það þétt utan um hvert brot eða hrukku á hend- inni, og er togleðurs-afl í því. Það heldur öllu lofti úti, og þar kemst enginn raki að; en loft og raki eru sem menn vita, orsökin til allra kvala í brendum limum eða holdi manna. Ef að hið brenda hold er ekki á- kaflega tilfinninganæmt, þá má draga vax þetta (sem læknirinn kallar: ‘ambrine’) yfir brunasárin með bursta. Og svo má líka dreifa því yfir með lítilli pumpu. Svo er limurinn vafinn í bómull og ‘gauze’, til þess það springi ekki. Um and- lit er að eins vafið ‘gauze’. • Náttúran er lseknirinn. í fyrstu er vaxhylki þetta tekið tekið burtu á hverjum 12 klukku- tímum og nýtt sett aftur í staðinn. Sjúklingurinn finnur engan sárs- auka, þegar það er burtu tekið. Þegar lengra líður frá, er það látið sitja í 24 klukkutíma. Þegar eg svo spurði læknirinn, hvort þetta væri alt það, sem gjöra þyrfti, þá svaraði hann: “Frú mín góð! Við læknarnir gjörum ekk- ert. Það er náttúran sjálf, sem alt þetta afrekar, þegar hún er látin ein og óhindruð. Við gjörum ekki annað, en að byrgja fyrir öll skað- leg áhrif utan að, og svo grær hold- ið og skinnið, rétt eins og plantan vex undir áhrifum sólarinnar. Það er alt”. — En þetta hefir verið lífsstarf hans, og til rannsókna eyddi hann öllum eigum sínuin og andlit hans var alt hrukkótt fyrir aldur fram, og bar merki um alt, sem hann hafði þolað. En svona gengur það. Hann hafði fundið þessa lækningu við frosna limi og dauða, en fékk sára litla hjálp eða viðurkenningu fyrir, og hefði þó nafn hans átt að vera á allra vörum. Hann er einn af velgjörðamönnum mannkynsins. — Sjálfur æskir hann cinskis. Hið eina, sem gleður hann er að lækna og líkna svo mörgum, sem mögulegt er og stilla kvalir þeirra. Athugasemd. Vér viljum geta þess, að vér getum ekki ábyrgst sögu þcssa. Oss þykir hún reyndar nokkuð “feit” sumstaðar. Vitaskuld hafa meðul lík þessu tíðkast um fleiri áratugi; en vér erum ekki læknir og viljum láta þaÖ liggja a milli hluta, en tókum söguna eins og hún var í blaðinu, sem er eitt af hinum merkari tímaritum Banda- ríkjanna. — Ritstj. Áskorun. Stjórn Bókmentafélagsins hefir á- kveðið, að gefa út helztu rit Jónasar skálds Hallgrímssonar í bundnu og óbundnu máli og kosið til að sjá um útgáfuna, í samráði við forseta félagsins, þá Helga Jónsson, dr. phil. í Reykjavfk, Matthías Þórðarson, fornmenjavörð í Reykjavík og Jón Sigurðsson í Kaldaðarnesi. Til þess, að rit þetta getLorðið sem fullkomnast, eru það tilmæli út- gáfunefndarinnar til allra þeirra, er hafa í höndum eða vita um handrit frá Jónasi Hallgrímssyni, kvæði, sendibréf eða annað, og sömulciðis bréf til Jónasar, að íjá eða útvega nefndinni alt slíkt til afnota, helzt í frumriti, cn ella í stafréttu eftir- ri.ti, og enn fremur önnur gögn, er lúta að æfi Jónasar, sv.o sem frásagn- ir eða ummæji um hann í bréfum samtíðarmanna. Nefndin beiðist þess og, að henni séu látnar í té sagnir eða munnmæli, er menn kynnu að hafa heyrt um Jónas, t. d. um tildrög sumra kvæða hans o. fl., a'lt með tilgreindum heimildum. Allir þeir, sem kynnu að geta rétt nefndinni hjálparhönd f þcssu efni, eru beðnir að senda gögn sín ein- hverjum nefndarmanna sem allra fyrst. Reykjavík, 13. júlf 1916. Sulturion á Þýzkalandi. Rotterdam á Hollandi, 11. sept.— Maximilian Harden, þýzki blaða- maðurinn nafnkunni, sem gefur út blaðið Zukunft, hefir eftirfylgjandi ummæli eftir þýzkum landeigna- manni (agrarian), Oldenburg Jann- schen að nalnS, í blaði sínu: Þýzka þjóðin verður að líða og kvcljast undír þessu blessaða þýzka fyrirkomulagi og stjórn miklu mcira en ef engin stjórn hefði verið og hver hefði mátt sjá fyrir sér og sín- um upp á sínar eigin spftur. Undir- eins og lífsmark sézt á einhvei ju starfi eða fyrirtæki, þá er óðara á stofn komið einveldisfélag sem tek- ur við stjórn allri, leigir stórhýsi, kaupir húsbúnað, lætur taka mynd af sér, og geldur sér f kaup tugi þús- unda dollara. En varan, sem félagið var myndað til að framleiða, liverf- ur af markaðnum og verður alveg ó- fáanleg, nema með svo háu verðí, að örgustu okurkarlar myndu skamm- ast sín fyrir. Og svo kemur meðferðin. Mörg þúsund ton af kornmat hafa cnýt orðið og rotnað í forðabúrum. Milf. ónir tíu fjórðunga vætta af kartöfl- um hafa úldnað af frosti og raka. Feiknin öll af kjöti hefir orðið ó- ætt; ósköpm öll af sykri liafa horf- ið. Kynstur af garðmat og rótar- ávöktum hefir verið keypt dýrum dómum frá Hollandi, en sömu byrgðirnar hafa rotnað og úldnað lieima fyrir. En fita og kjöt hefir með ásettu ráði verið eyðilagt, og mun það aldrei lagast, meðan eins verður farið með svínin, eins og undanfarið hefir átt sér stað. — Það lítur svo út, sem þetta hið marglofaða vísindalega fyrirkoinu- lag Þjóðverja sé ekki í sem þjzt i lagi, eftir áliti þess manns, sem þó er Þjóðverji sjálfur og þykist vita, um hvað hann er að tala. *-------------------------------* íslands fréttir. *-------------------------------* Landskosningarnar. Sömu daufu undirtektirnar u malt land, bvar sem borið er niður. Á Patreksfirði kusu 20 kjósendur af 147 á kjörskrá. A Bíldudal 31 af 130 á kjörskrá. og Tálknafirði 12 af 90 á kjörskrá. á Þingeyri við Dýrafjörð 52 af 212 á kjörskrá. í Viðvíkursveit í Skagafirði kusu, að því er Vísi er tjáð, 20, og í Lýt- ingsstaðahreppi 6^ f Bæjarhreppi í Strandasýslu 10, 1 Staðarhreppi 12; í Torfalækjarhreppi í Húnavatns- sýslu 8. Á Siglufirði 19. — Um kjós- endatölu á þessum st‘ðum er Vlsi ó- kunnugt, en hún er víst hvergi unu- ir 50 en líklega alt að 200 í sumum hreppunum. Má gjöra ráð fyrir, að meðaltal verði ekki meira en 15—20 prósent á öllu landinu. — Utan af landi. — tTr Rangár- vallasýslu er skrifað, að nú séu bændur þar búnir að hirða alt liey, sem þeir hafa losað. Um morguninn 19. ágúst varð vart við jarðskjálfta þar eins og hér. Voru kippirnir 2 all-snarpir, ollu þó engum skemdum, en hræðslu all- mikilli meðal héraðsbúa. Klukkan 11 í kveld (9. ágúst) — verður klukkan 12. Ráðherra hefir með bráðabirgðalögum skipað svo fyrir, að klukkunni verði flýtt um einn klukkutíma, til þess að spara birtuna. — Kemur þetta hálft um hálft flatt upp á menn, og er það hastarlegt, að fá ekki að rífast dá- lítið um það fyrst — að minsta kosti íyrir blöðin. Vísir er ekki enn viss um, að hann sleppi þessu svona alveg þegjandi fram hjá sér! — Hver vill hafa orðið? — Tunnuleysið. — Eithvað er nú farið að rætast úr síldartunnuleys- inu fyrir norðan. í fyrradag kom tunuskip til Kveldúlfsfélagsins á Hjalteyri með 10 þúsund tunnur.—, Síld er nóg enn nyrðra. Einn dag- inn fengu tvö Kveldúlfsskipin 1200 tunur af síld. — Heldrimannafiskur. — Þegar fiskisaarnir bjóða engan fisk á torg- inu, en senda hann í körfuin út uin bæinn, þá er sagt að þeir liafi ekki annað en “heldrimanna fisk”. — Breyting á tíðarfarið virðist nú að vera að koma hér sunnanlands, og eins er fyrir vestan/ Af Patreks- firði var Vísi sagt 8. ágúst að þar hefði verið þurkur þá um daginn og daginn áður. Þá daga var líka þurkur í Dölum. — Hveravatn til áveitu. — Baldvin Friðlaugsson, búfræðingur, veitti hveravatni á engjar á Reykjum í Reykjahverfi. Áveitusvæðið var slegið 1 maílok og var talið; að hey- ið af því hefði orðið nóg til að bjarga öllum kúm í Reykjahverfi. —(Vísir). Michael Alexeieff. Michael Alexeieff er yfirforingi (Chief of Staff) yfir öllum Rússalier í Evrópu að minsta kosti. Hann var nýlega spurður um, hvort Þjóðverj- ar myndu geta hrakið Rússa frá Riga til Pétursborgar. Alexeieff kvaðst lltið vilja um það segja, hvað Þjóðverjar kynnu að geta, því það væri hin mesta fá- vizka af nokkrum hershöfðingja, að meta lítils mótstöðumenn sína. En ef að þeir kæmu, þá myndi verða reynt að taka á móti þeim. Hinn 16. júlí hefðu þeir byrjað kviðu mikla við Lipa-fljótið á Rúss- landi, en þeir hefðu verið hraktir til baka. Og ef þeir reyndu þetta aft- ur einhversstaðar, þá mundi fara á sömu leið. Ekki vildi hann segja, að Austurríkismenn væru alveg yfir- stignir, en mestur móðurinn væri nú úr þeim. Þjóðverjar sagði liann að hefðu styrkt Austurríkismenn þarna á Rússlandi með 20 herdeildum (divi- sions), með 15 til 20 þús. í hverri. En það hefði ekki verið nóg, þó að þeir hefðu þar einnig 2 herdeildir (divisions) af Tyrkjum. Hrakning- Þjóðverja og Austur ríkismanna fyrir Brussiloff kvað hann ljósan vott um það, hvað Rússar gætu, og Þjóðverjar þyrftu enn að senda þangað 400,000 góðra hermanna, ef að þeir ættu að geta staðiö á móti Rússum. “En hvénær kemur þá friðurinn?” spurði fregnritinn Alexeieff. Þá brá hörkusvip yfir andlit herforingjans og mælti hann: “Það er langt til friðar. Hvorugir hafa enn fengið því framgengt, sem þeir hafa verið að berjast fyrir. Það eru engin líkindi til friðar sem stendur. Stríðið verður að ganga sinn óhjákvæmilega gang”. ™E DOMINION BANK Hornl Notre Dome og Sherbrooke Street. HnfutlMtAII upph............- SB.OOO.OOO VnrnnjAhur .................. $T.OOO.OOtl Allar elxulr.................«78.000.000 Vér óskurn eftlr vit5sklftum ver*- lunarmanna oi? ábyrgjumst aó gefa þelm fullnœgju. Sparisjó?5sdelld vor er sú stœrsta sem nokkur banki hef- ir í borginni. Ibúendur þessa hluta borgarlnn&r óska aó skifta vió stofnum sem þelr vlta aö er algerlega trygg. Nafn vort er fulltrygging óhlutieika. Byrjiö spari innlegg fyrir sjálfa yóur, konu og börn. W. M. HAMILT0N, Ráísmaíur PHONB GARRV 3450 MARKET HOTEL 14« 1’rlncfNN Street á móti markatSinum Bestu vínföng, vindlar og aö- hlyning góö. íslenkur veitinga- maður N. Halldórsson, lei'ðbein- ir fslendingum. P. OTONNEL, Eigandi AVinnlpeK GISLI GOODMAN TINSMIDUR. Verkstœtii:—Horni Toronto St. og Notre Dame Ave. Phone Helmlllfl Garry 20S8 Garry 809 J. J. B/LDFELL PASTEIGNASALI. Unlon Bauk T»ih. Floor No. S29 Selur hús og lóðir,. og annað þar að lútandi. títvegar peningalán o.fi. Phone Nlain 2«S5. PAUL BJARNAS0N FASTKIGNASAliI. Selur elds, lífs, og slysaábyrgTJ og útvegar penlngalán. WYNYARD, - SASK. J. J. Swanson H. G. Hlnrlk.son J. J. SWANS0N & CO. FASTEIGNASALAR OG penlnga nilhlar. Talsími Main 2597 Cor. Portage and Garry, Winnlpeg Graham, Hannesson & McTavish LttGFRÆÐINGAH. 215—216—217 CURRIE BUILDING Phone Maln 3142 WINNIPEG Arni Anderson E. P. Garland GARLAND & ANDERS0N L6GFRÆÐIK GAR. Pbone Maln 1661 101 Klectric Railway Chambtri. Talsími: Main 5302. Dr. J. G. Snidal TANNLÆKNIR. 614 SOMERSET BLK. Portage Avenue. WINNIPEG Dr. G. J. Gis/ason PhyNlelan and Surgeon Athygli veitt Augna, Eyrna og Kverka Sjúkdómum. Ásamt innvortis sjúkdómum og upp- skurði. 18 South .'lnl St.. Grand ForLn, N.D. Dr. J. Stefánsson 401 nOVD UUIL.DING Horni Portage Ave. og Edmonton St. Stundar eingöngu augna, eyrna, nef og kverka-sjúkdóma. Er at5 hitta frá kl. 10 til 12 f.h. og kl. 2 til 5 e.h. Phone: Main 3088. Heimili: 105 Olivia St. Tals. G. 2315 f Vér höfum fullar birgðir hrein- { Á ustu lyfja og meðala. Komið á " með lyfseðla yðar hingað, vér f Á gerum meðulin nákvæmlega eftir Á “ ávisan læknisins. Vér sinnum f t utansveita pöntunum og seljum á giftingaleyfi. : : : : " 1 COLCLEUGH & CO. * f .\í»lre llame A Sherhn»oke St«. f j Phone Garry 2«9o—2691 • -’bk •»*- 'w m | •:: - 'zizezr A. S. BARDAL seiur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbVmaður sá bestl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteiua. : : 813 SHERBROOKE ST. Pnone G. '117*1 WINNIPEG jSögusafn Heimskringlu Eftirfarandi bækur eru til sölu á Heimskringlu, — með- an upplagið hrekkur. Sendar póstfrítt hvert sem er: Sylvía $0.30 Bróðurdóttir amtmannsins 0.30 Dolores —■ 0.30 Hin leyndardómsfullu skjöl 0.40 Jón og Lára 0.40 Ættareinkennið 0.30 Lára - 0.30 Ljósvörðurinrt 0.43 Hver var hún? 0.30 Forlagaleikurinn 0.55 Kynjagull 0.35 Sérstök Kjörkaup Ef pantatS er fyrir $1.00 etSa meira, gefum vér 10 prósent afslátt. Og ef allar baekurnar eru pant- aSar í einu, seljum vér þaer á a?S eins þrjá dollara tuttugu og fimm cents ($3.25). Borgun fylgi pöntunum. ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ um, heimilisréttarlönd í anada og Norívestuiií.t. Jinu. Hver, sem hefir fyrir fjölskyldu aU Já eður karlmaður eldri en 18 ára, get- tir tekið heimilisrétt á fjófðung úr section af óteknu stjórnarlandi í Mani- toba, Saskatchewan og Alberta. Um- sækjandi erður sjálfur að koma á landskrifstofu stjórnarinnar, eða und- Irskrifstofu hennar í því héraði. 1 um- boði annars má taka land á öllum landskrifstofum stjórnarinnar (en ekkl á undir skrifstofum) með vissum skil- yrðum. SKYLDl’H:—Sex mánaða ábúð og ræktun landsins á hverju af þremur árum. Landnemi má búa með vissura skilyrðum innan 9 mílna frá heimilis- réttarlandi sínu, á landi sem ekki er minna en 80 ekrur. Sæmilegt iveru- hús verður að byggja, að undantekni* þegar ábúðarskyldurnar eru fullnægð- ar innan 9 mílna fjarlægð á öðru l&ndl, eins og fyr er frá grein*. Búpening má hafa á landinu í stað ræktunar undir vissum skilyróuin. f vissum héruðum getur góður og efnilegur landnemi fengið forkaups- rétt, á fjórðungi sectionar meðfrara (andi sínu. Verð $3.00 fyrir ekru hverja, SKYLDtR*—Sex mánaða ábúð é. hverju hinna næstu þriggja ára eftir að hann hefir unnið sér inn eignar- bréf fyrir heimilisréttarlandi sínu, og auk þess ræktað 50 ekrur á hinu seinna landi. Forkaupsréttarbréf getur land- nemi fengið um leið og hann tekur heimilisréttarbréfið, en þó með vissun skilyrðum. Landnemi sem eytt hefur heimills- rétti sínmm, getur fengið heimilisrétt- arland keypt í vissum héruðum. Verft $3.00 ftyrir hverja ekru. SKYLDUR:- Vecður að sitja á landinu 6 máauðl af hverju af þremur næstu árum, rækta 50 ekrur og reisa hús á landinu, s*em er $300.00 virði. W. W. CORY, Deputy Minister of the Interlor. Blöð, sem flytja þessa auglýslngm leyfislaust fá enga borgun fyrir.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.