Heimskringla - 08.03.1917, Side 3
WINNIPEG, 8. MARZ, 1917.
HEIMSKRINGLA
BLS. 3.
Patmore’s áreiðanlega útsæði, tré, smáviður, piöntur
SAMSAFN NO. 1.
Samanstendur af 22 tegundum af voru áreiðan-
lega kál útsœði í pökkum og únsum. 2VÍ! pd.
af útsæði þessu fyrir $1.25, burðargjald borgað.
/ SAMSAFN NO. 2.
15 pakkar af áreiðanlegu iitsæði fyrir 25 cents,
burðargjald bOI‘gað.
SAMSAFN FYRIR BÆNDUR NO. 3.
Samanstendur af: 1 ptmd Mangel, 1 pd. Sugar
Beet, 1 pund Swede, Vá pund Carrot, Va pund
Kale og 4 pund Rape — í alt 8 pund, fyrir
$3.00, burðargjald borgað.
PERENNIAL SAMSAFN.
Varanlegur gamaldags blómagarður fyrir 75c.
Frá Hávöxnum Hollyhocks og Foxgloves, til
hinna lágfættu Forget-me-not, mun þetta
blómasafn blómgast hvað eftir annað á hverju
ári þangað til seint á haustin. 1 safni þessu
eru einnig blóm sem þessi:—Iceland Poppy,
Sweet Wiiliam, Pinks, Cantérbury Falls og
mörg önnur.
20 pakkar, burðargjald borgað. .....75c.
(Vanavert5 $1.50)
BLÓMASAFN FYRIR SKÓLAGARÐINN.
55 pakkar af beztu blóma tegundum og marg-
víslegum kál-ávöxtum
fyrir ........... $1.00, burðargjald borgað
Vér erum flti*01umenn fyrlr MesfirN. Sutton
Soum, aíí HeaflinK A EiiKlnndi. Vér Llnt-
nm S verftskrA vorrl hlfi heimHÍneKa útMirtSl
Imvsmh féliiKM — Helt f lokuðum pökkam
fyrir 10 eent hvern.
The Patmore Nursery Co., Ltd., sbXtoónmsask.
Skrifið í dag eftir
Verðskrá vorri fyrir 1917
í henni er listi yfir allar þolbeztu og áreiðanleg.
ustu kálmatar og blóma útsæðis tegundir, yfir
aldini, trjávið, smávið, grös, fóður tegundir
ýmsar og útsæðis kartöplur.
Með mörgum og góðum myndum og útskýring-
um sáning og öðru viðvíkjandi.
Fyrir $10 meðfylgjandi borgun með pöntun-
inni sendum við ,burðargjald borgað,
til hvaða staðar sem er:
50 Currant ogr Gooseberry Bushes, beztu tegund.
100 Raspberry Plants, beztu mismunandi tegundir
12 Pium og Fruit tré, ung og hraust tré, 2 til 3
fet á hætS, og 12 Rhubarb rætur.
Alt ofantalií fyrir ...................$10.00
Vér höfum ræktaíi í blóma húsum vorum og
bjót5um til sölu—
500,000 Caraganas, 1 til 3 fet á hæt5.
255,000 Native Maple, 1 til 3 fet á hæt5.
6,000 Ontario Maple, 2 til 6 fet á hæt5.
12,000 Native Ash, 1 til 8 fet á hæö.
150,000 Russian and othrer poplar, allar stært5ir.
50,000 Lilac, 1 til 3 fet á hæt5.
115,000 Russian Golden Willow, allar stæröir.
5,000 Crab apple and Plum Trees, og stórt upp-
lag af þolgót5um aldinum, fögrum smávit5,
plöntum, o.s.frv.
22—26
Patmore Nursery Co. Ltd., Brandon.
Please send me Colleetion No.......
as advertised in The Heimskringla, for which
I enclose $...........................
NAME .................................
ADDRESS...............................
Islenzkur frömuður.
Þessi orð skrautritar Þ. Þ. t>or-
steinsson yfir mynd þeirri, sem hann
ihefir nýlega málað af Vilhjálmi
Stefárissyni norðurfara. Eg hefði
kunnað betur við, að orð þessi
hefðu verið “Vestur-íslenzkur fröm-
uður.” Þá hefði þau kastað ljóma
á okkur Vfestur-íslendinga! Og
hefði mátt þau til sanns vegar færa,
því Vilhjálmur Stefánsson er Vestur-
Islendingur.
Þessi Vestur-íslendingur, sem
fæddist í iheiminn í Huldárhvamml
í Nýja-íslandi, er nú orðinn einn af
frægustu mönnum heims. Ekkert
fréttablað er svo smátt eða svo af-
skekt, að ekki sé hans þar getið
þegar frá ihonum fréttist. Og ekk-
ert íslenzkt nafn hefi eg séð enskin-
um ganga eins vel að stafa. Ein-
stöku sinnum hefi eg þó séð það
Vilhjálmar, fyrir Vilhjálmur cn ald-
rei gleymir enskurinn að hafa essin
tvö í enda nafnsins. Vilhjálmur
Stefánsson er búinn að stympla
þessi tvö ess á m'eðvitund allra
manna og þjóða! Þau verða íslenzkt
einkenni hans í gegn um söguna.
Af þessum manni hefir nú íslenzki
listamálarinn okkar hér í Winnipeg,
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, málað
mynd. Var getið um hana lítillega í
síðasta blaði. Og þetta er ekki ein-
göngu andlits mynd af Vilhjálmi
Stetfánssyni, heldur cinnig neðan
undir myndinni málaður fæðlngar-
staður hans, Huldárhvammur í
Nýja-íslandi og er mynd sú í sama
lit og aðalmyndin. Fast við mynd-
ina af Viihjálmi eru við hvert horn
hennar skipamyndir f skrautlit, af
fjórum landnámum íslendinga:
“Ingólfur sér ísland,” “Leifur hepni
finnur Vínland,” “Eiríkur rauði
finnur Grænland,” “Vilhjálmur yfir-
gefur Karluk — á leið til landsins
nýfundna.” — En utan um alla
myndirnar, sem hér hafa verið upp-
taldar, er rammj úr allskonar smá-
myndum í skrautlegum lit. Smá-
myndir þær í heildinni lætur Þor-
steinn tákna “tengitaug ættland-
sins.”
Myndin af Viihjálmi er góð og
máluð eftir seinustu mynd af hon-
um. Maður starir á hana hugfang-
inn. Það er gáfumaðurinn og skáld.
ið Vilhjálmur Stefánsson, sem þar
mætir augum manns. Augnaráðið
er eitthvað dreymandi — enda er
ckki ótrúlegt að draumdfsin hafi
átt stóran þátt i að heilla Vilhjálm
norður í heimskautalönd. Stað-
festuliegur og einarðarlegur er þó
svipurinn. Eg fæ ekki betur séð en
Þorsteini hafi hepnast mynd þessi
ágætlega í alla staði.
En í mínum imga er það smá-
mynda umgjörðin utan uin mynd-
ina af Vilhjálmi og myndina af fæð-
iugaretað hans, sem er aðal lista-
■verkið. Myndir þær votta hæði
hugvit og listfengi málarans.
Rúm leyfir hér ekki að bmr
séu allar taldar upp — þær eru 36 í
alt. Efst er mynd af Gimli-bæ. Svo
em myndir af tveimur skipum:
Eimskip íslendinga. Ferðalög fyr
og nú: Uxar dragandi æki og tveir
menn með poka á bakinu og brun-
andi eimlest til hliðar. Svo er mynd
af Unga íslandi og “Fálkinn” þar
sýndur sitjandi á klettasnös. Svo
eru myndir af þremur fossum á ís-
landi: Goðafossi, Gullfossi, Skógar-
fossi. Myndir af Geysi og Heklu.
Mynd af forn-íslenzkum sagnritara,
sem situr með fjaðra-penna sér f
hönd og skritfar. Vestra fyr og nú:
Maður sýndur á fleygiferð á hest-
þaki, en til hliðar maður með tal-
sfma við eyrað. Maður sýndur að
slá með orfi og ljá, en ti'l hliðar
sýndur maður sitjandi á sláttuvél.
Mynd af bjálkakofa, en fyrir ofan
hana er mynd af “Nýja húsinu,”
stóru og skrautlegu. Framtíðar-
draumur fslands: hrunandi eimlcst.
Ein myndin er af íslenzkum bónda-
hæ á íslandi, sem stendur undir
fjallslilið. — En liér og þar innan
um myndirnar eru skrautritaðir
vísupartar eftir ýms skáld og verð-
tir þetta mjög viðeigandi við mynd-
irnar.
Vostur-íslendingar ættu að kaupa
þessa mynd og Táta hana prýða
stofur sínar. Myndin er sterk-ís-
lenzk og hlýtur að ryfja upp endur-
minningar í liugum allra sannra ís-
lendinga.
“íslendingar viljum við allir vera.”
Framtíðarlandið.
Eftir
Ágúst H. Bjarnason.
Já, móðir vor ein á að bíða! Og
þó veit maður aldrei og sízt nú,
hverju fram kann að vinda. Enn
er allt f uppnámi í heiminum og
dýrtíðin ætlar oss lifandi að drepa,
þó einna helzt daglaunamenn og —
emhættismenn þessarar þjóðar! —
Því að hinir, framleiðendurnir og
kaupsýslumennirnir, komast allvel
af og sumir ágætlega. En það tjáir
nú ekki um þetta að tala, og ein-
hvern tíma léttir þessum ósköpum
af. En hvert eigum vér þá að stefna
og hvernig eigum vér helzt að ko-ma
ár vorri fyrir borð, vér íslendingar?
Engu verður spáð í eyðurnar, og
enginn veit, hverju fram kann að
vinda. Þótt vér séum hlutlausir,
sitjum vér með verzlun vora og við-
skifti eins og milii tveggja elda, eða
jafnvel tveggja varga, og er viðbúið,
að annarhvor eða háðir grandi oss.
Englendingar, þessir "verndarar
smáþjóðanna,” er þykjast vera, hafa
að nokkru leyti bannað oss verzl-
unarviðskifti við sig eina og þá helzt
þannig, að vér seljum þeim vöru
vora ódýrari en aðrir! Og er vér
hlýðum þessu, sem vér, lítilmagnar-
nir, auðvitað verðuin að gera og
siglum skipum vorum til Englands,
já, þá koma kafbátarnir þýzku upp
úr hafinu og hóta að sökkva skip-
um vorum! — Það er vandlifað í
henni veröld. En hvað eigum vér
þft að gera?
Eins og allir þeir, sem eru minni
rnáttar, verðum vér auðvitað að
beygja af og láta undan síga. En
hvert eigum vér þá að halda, livert
eigum vér að beina verzlun vorri og
viðskiftum? Vér verðum að fara að
hugsa fyrir oss sjálfir, því að ekki
geta Danir verndað oss eða styrkt.
Vér verðum l>vi að fara að reyna að
spiia upp á eigin spýtur.
En þá er víst réttast að athuga
fyrst legu vora á hnettinum. Hún
er nú, eins og allir vita, næsta und-
arleg, þótt norðlæg sé og vér lifum
á hjara veraldar. Þegar hnöttur-
inn er klofinn til helminga, eins og
gert er stundum á landabréfuin, þá
er eins* og ísland sé skift hnífjafnt
rnilli Ameríku og Evrópu, eins og
oss l>egar af náttúrunna.r hendi sé
ætlað að standa með sínn fótinn
í hvorri heimsálfu, að verða tveggja
heima börn! Og hver veit nema vér
eigum eftir að verða þetta, verða
einskonar óhjákvæmilegur millilið-
ur milli Ameríku og Evrópu. Það
mundi tryggja oss bæði sjálfstæði og
vaxandi velgengni. En hvernig má
það verða?
Hingað kom um árið maður frá
Ameríku, sem var danskur að ætt
en hafði þó dvalið langdvölum
vestra. Hann hét Lorenzen og hafði
verið prófessor við háskólann í New
York, að mig minnir, en var nú
kominn hingað til þess að kynna
sér háskóla vorn og hag hans, ef
Jiann gæti greitt eitthvað úr fyrir
honum. úr því varð nú lítið, enda
naumast á öðru von, og maður
þessi virtist hafa miklu gleggra auga
fyrir öllu verklegu en andlegum á-
hugamálum, enda var hann sjálfur
verkfræðingur.
Oft dáðist hann að því, hversu
oss íslendingum hefði farið fram í
verklegu tilliti nú síðari árin; hann
hafði nefnilega komið hér einu sinn
áður endur fyrir löngu, sem sjáliði
á einu varðskipinu danska. Og
einna mest gaman þótti lionum að
ganga hér með höfninni, alla leið
innan frá Kirkjusandi, þar sem
fiskurinn er verkaður, fram hjá
Iðunni, ullarverksmiðjunni, inn á
Sláturfélagslóðina til þess að athuga
kjötframleiðsluna og svo alla leið út
á “batterríið” eða Jörundar-vígi,
sem nú er að hverfa fyrir hafnar-
virkjunum. Þar nam hann helzt
staðar, benti yfir til örfiriseyjar og
sagði: “Sko, þarna er staðurinn,
þarna eiga kornforðabúrin og myln-
urnar að vera! Og þarna er fram-
tíðar-borgarstæðið!” En þá benti
hann út á melana.
Eg var meira en lítið hissa, þegar
eg heyrði þetta fyrst; en þessi út-
lendingur kom mér i skilninginn
um, að hér var um mikla framtíðar-
möguleika að ræða.
Því er nefnilega svo farið, að það
er mestu vandkvæðum bundið að
flytja út íhveiti og kornvöru síð-
sumars frá Ameríku til Evrópu. —
Það er svo hætt við, að hitni í
kornvörunni og hún eyðileggist á
leiðinni; en eins og kunnugt er, er
Ameríka enn sem komið er eins-
konar kornforðabúr og hveiti-
skemma Evrópu. Og nú eru Amer-
íkumenn að leggja Hudson-flóa
brautina meðal annars til þess að
geta komið korni sínu eins norðar-
lega og unt er, svo að það skemmist
síður, áður en það kemst á ákvörð-
unarstaði sína í Evrópu; en Hud-
sonflói liggur liér um bil á sömu
breiddarbaugum og ísland, þó
nokkuð sunnar, og er þó ekki ís-
laus nema þrjá til fjóra mánuði árs,
júlí — óktóber. Þótt kornið sé nú
flutt út frá Hudsonflóa, l>á er enn
hætt við því að það liitni í því i
skipunum á hinnj löngu leið frá
Ameríku til EvrÓpu. En segjum nú,
að við fyndum einhverja millistöð,
einhverja stiklu í miðju Atlanzhafi.
ísland liggur nú einmitt miðja
vega milli Ameríku og Evrópu og
nógu norðarlega til þess. Hví þá
ekki að tflytja kornið hingað, þá fáu
sumarmánuði, sem Hudsonflóinn er
ólagður, og mala það hér? Og
ÖrfirLsey, eyjan sem liggur öðru meg-
in við Hafnarkjaft Reykjavíkur, er
einmitt staðurinn, sem maðurinn
benti á. En þá f-ngjum vér íslend-
ingar svo að segja ókeypls eða í
kauphætur sem vörumiðlar korn-
forðahúr inn í landið og island yrði
um leið að hveitiskemmu Evrópu.
Vér færum þá að flytja hveiti og
korn til Englands og annara landa,
þegar engin hætta væri á því leng-
ur, að það skemdist.
Og enn fleira gætum vér hugsað
oss að fá með hættum og auknum
saingöngum vestur um haf. Það
mætti einnig húa til olíugeyma
(svonefnda tanks) á örfirisey og
víðar. Og þá gætum vér sprengt af
oss höft þessa dásamlega “íslenzka”
steinolíufélags, sem hefir nú undan-
farið verið að reyna að spenna
skollagreipar sínar umhverfis land-
ið. Og ótal margt fleira mætti fá
frá Amei’íku.
Þarna er þá staðurinn! Þarna er
framtiðar forðabúrið okkar, en þó
einkum eftir að höfnin er komin.
En nú ríður á því að bæjarstjórn
Reykjavíkur glopri ekki þessum
blettimim eiivs og svo mörgum öðr-
um úr höndum sér, að hún geri
hvorki að leigja hann né selja félög-
um eða einstökum mönnum, nema
þá til skamms tíma, fyrri en þetta
kemst í framkvæmd. Og þá á
Reykjavfkurbær sjálíur að eiga
þenna dýrmæta blett.
Skip vor eru farin að snúa stöfn-
um sínum til Ameríku og verzlunar-
samhöndin að aukast með ári
hverju. óðar en varir fara ef til
vill flutningaskipin miklu að sigla
hingað. Þá er um að gera að vera
til taks, hafa staðinn til rétt við
hafnarkjaftinn, og svo nóg að flytja
héðan aftur vestur um haf. Og svo
verzlunaraamhönd og greiðar sam-
göngur á háða hóga við Ameríku og
Evrópu. Þá gæti farið svo, að ls-
land yrði einskonar miðstöð verzl-
unarinnar milli Amerfku og Ev-
rópu, líkt og Liverpool á Englandi
er nú. Þá væri oss borgið. Þá yrði
ísland framtíðarlandið.
(Iðunn)
Samninear milli Kelly og
stjórnarinnar.
Hinn 23. sögðu blöðin að samning-
ar hefðu komist á milli Kelly og
stjórnarinnar um að gjöra út um
málin milli stjórnarinnar annars-
vegar og Kelly gamla og sona hans
annara vegar.
f nokkra mánuði hefur þetta verið
á leiðinni, og hefur W. A. T. Sweat-
man lögmaður fyrir hönd Kelly’s og
dómsmálaráðgjatfi Hon. A. B. Hud-
fiiiaA «jaq .iiíiiii[.iiíujfiC^s nj[Bi[ jb uos
að koma sér saman um það hvernig
þetta s’kyldi gjörast. Málið kemur í
einskonar gjörð og kýs hvor hliðin
sinn gjörðarmann, ,en báðir máls-
partar koma sér saman um odda-
manninn og er tilnefndur hygginga-
meistari Mr. Robert MacDonald í
Montreal. Úrskurður gjörðarmanna
á að binda þrætumál þessi.
Liggur viS sulti í stórborgum
Bandaríkjanna.
Það kann mörgum að finnast það
undarlegt og ótrúlegt að sulturinn
skuli ógna mönnum f hinu ríkasta
landi heimsins og blöðin skuli upp
úr þessu fara að tala um stjórnleysi
og uppþot. En það er tvent sem
þessu veldur. Fyrst er það að verð
á matvælum er orðið svo hátt að
mikill þorri hinna fátækari manna
í borgunum geta ekki keypt það,
geta ekki keypt nóg til að fæða kon-
una og börnin. En svo er líka ann-
að sem þessu veldur, en það er að
heilir hópar vagnlesta eru strandað-
ir á brautum og komast ekki áfram
með allar tegundir matvæla. Og
ofan á þetta bætist það að gróða-
brallsmennirnir kaupa matvælin í
stórslumpum og halda þeim svo til
að skrúfa upp prfsana og eru þann-
ig sannkallaðir böðlar þjóðarinnar.
Eru svo mikil brögð að þessu að
einn Senatorinn í Washington,
Thomas frá Colorado vill láta taka
fyrir kverkar mönnum þeim sem
þannig sprengja upp matvælin og
valda dýrtíð í landinu. í Chicago
hafa menn verið hræddir við upp-
þot og anarki ekki einungis í þeirri
borg heldur mörgum öðrum, en í
New Y'ork og fleiri borgum ganga
konur og mæður í þúsundatali um
stræti borganna og heimta hót á
þessu. í New York heimtuðu þær
að borgarstjórnin keyfti miljón
dollars virði af fæðutegundum hin-
um helztu til að selja með skaplegu
verði þeim sem ekki gætu keyft mat
handa familíum sínum.
O. T. Johnson.
1>AÐ BORGAR SIG FYRIR YKKUR
Þeir, sem ætla sér að ganga á verzlunarskóla í vetur,
geta sparað sér peninga, e( þeir finna ráðsmann
Heimskringlu áður en þeir semja um kenslu.
KAUPIÐ
Heimskringlu
Nýtt Kostaboð
Nýir kaupendur aö blaðinu, sem senda oss
fyrirfram eins árs andvirði blaðsins, oss að
kostnaðarlausu, mega velja um þRJÁR af
af eftirfylgjandi sögum í kaupbætir ;
‘Sylvía”
‘Hin leyndardómsfullu skjöl”
‘Dolores”
»1/ f r II
Jon og Lara
‘Ættareinkennið”
“Bróðurdóttir amtmannsins”
««V / •«
Lara
“Ljósvörðurinn”
‘‘Hver var hún?”
“Kynjagull”
Sögusafn Heimskringlu
Eftirfarandi bækur eru til sölu á Heimskringlu, — með-
an upplagið hrekkur. Sendar póstfrítt hvert sem er:
Sylvía ....................... $0.30
Bróðurdóttir amtmannsins ...... 0.30
Dolores ....-•................. 0.30
Hin leyndardómsfullu skjöl..... 0.40
Jón og Lára ................. 0.40
Ættareinkennið................. 0.30
Lára........................... 0.30
Ljósvörðurinn.................. 0.45
Hver var hún?.................. 0.50
Kynjagull...................... 0.35