Heimskringla - 10.05.1917, Blaðsíða 8
8. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 10. MAI 1917
! / Vlac’s Theatre ! j
— 1 j MIÐVIKUDAG g FIMTUDAG, 9. og 10. MAÍ — ELLA HALL í “HER SOUL’S INSPIRATION” í 5 þáttum og tveir gamanleikir. , FÖSTUDAG og LAUGARDAG, 11. og 12. MAÍ — “VOICE ON THE WIRE” og aðrir góðir leikir. MÁNUDAG og ÞRIÐJUDAG, 14. og 15. MAÍ —CLARA KIMBALL YOUNG í “NAUTNIR LIFSINS” 5 þátt- um og CHARLÍE CHAPLIN COMEDY Matinee á Mánndaginn 14. Maí
Viðskifta dálkur
skif a, þótt spássíur hafi verið
sniðnar burtu.
Með þessu móti vonÆtist eg til, að
ge'a gcrt alla ánœgða, sem láta sig
mynd þessa nokkru varða, enda
var það og er það tilg.angur minn
—bœði l)ð, sem myndina hafa
keypt, en kynnu betur við aðra al-
gengari mynd, og eins hina, sem
hafa ivaft löngun til að eignast
spjaldið sökum smámyndarma, en
hafa ekki keypt það vegna þess
þeir vildu að önnur andlitsmynd
af Yilhjáhni ’hefði verið þar.
Eg býst ekki við að verki þessu
verði lokið fyr en um miðjan júní,
í fyrsta lagi, og verður það þá strax
tilkynt í ísl. vikublöðunum.
732 MeGee St., Winnipeg,
5. maí 1917.
Au^lÍMÍngnr af ým.su tnKÍ.
1 þennan dálk tökum vér ýmsar aug-
lýsingar, nit5urrat5aó undir vitSeigandi
yfirskriftum, t. d.: Tnpat5, FunditS, At-
vinrni (illH.t'). Vinna óskuNt, llfiMnæói,
Húm ok iönd til nöíu, Kaupakapur, og
svo framvegis.
Itiojnrfólk—Auglýsit5 hér Húm og her-
horgl til ieign. Húm til höíu. HfiNmunir
tll nöIu. Atvinnu tiibotS o.s.frv.
Itændur—Auglýsiö í þessum dálki af-
urðir búsins, svo sem smjör, egg o.sfrv.
Bæjarfólk vill kaupa slíkt frá bændum,
en þarf bara aö vita hvar þat5 fæst.
Auglýsiö hér einnig eftlr vinnufólki, og
margt annað má auglýsa.
Þessar auglýsingar kosta 35 ct«. hver
þumlungur; reikna má 7 línur í þuml.
Engin auglýMlng tckin fyrir minna
en 25 cent.—BorgÍMt fyrirfrnm.
Allar augl. vert5a at5 vera komn-
ar á skrifstofuna á hádegi á þriöjudag
til birtingar þá vikuna.
ATVINNA.
Fréttir úr bænum.
Jöhann Jóelsson frá San Franc-
iseo í Californíu, er nýlega komiiwi
til borgarinnar.
Mathias Thórðarson frá Selkirk
var á ferð hér í síðustu viku. Hann
sagði alt gott að fréíta frá Selkirk.
lvar Jónasson frá, Langrut'h,
Man., var á ferð hér þessa viku. Fer
hann heimleiðis aftur á föstudag-
Inn.
Mrs. R. J. Lang, að 569 Maryland
St., fór ofan til Nýja ísiands fyrir
helgina og dvelur þar hjá ættingj-
um og vinum þangað til seint í
þessari viku.
Kvenfélag Tjaldbúðarsafnaðar er
að undirbúa Bazar, er haldast á
þann 25. og 26. þ.m. Sérlega vel
vandað til hans.
Djáknanefnd Skjaldborgarsafnað-
ar er að ,sfofna til skemtisamkomu,
sem haldin verður 21. maí.. Fer þar
fram myndasýning og músík af
beztu tegund: nákvæmar auglýst
næst.
Friðrik Laxdal, sonur -Daniels
heitins Laxdal, lögmanns í Cavali-
er í Norður-Dakota, sem heyrir til
varðmannasveit ríkisins, hefir ver-
ið settur til að g.aingast fyrir lið-
söfnuði í Cavalier County.
Gunnar Cunnarsson f Penibina,
som nýlega seldi eign sína þar. eins
og getið var hér i blaðinu, hefir
tvær síðustu vikurnar verið að
skoða land, sem ihann hefir ritað
sig eiganda að. Hefir hann þegar
þyrjað að cfna til húsagerðar.
Detta er eina mílu frá Caliento,
austur af Emerson.
Vér viljum minna lesendurna á
myndasýningu þá, sem stúkan
Skuld heldur þann 16. þ.m. og sagt
er frá á öðrum stað í blaðinu.
John Tait, sem flestir hér þekkja,
hefir lofað að skemta við þetta
tækifæri með upplestri og söng.
íslendingar ættu að fjölmenna á
samkomu þessa.
Verzlunarmannafélag hér í bæn-
um nefnist Canadian Credit Men’s
Association, og heldur ársfund sinn
18. maí kl. 7 að kveldi í Fort Garry
gistihöllinni. L»ar hefir prófessor
Osborne, sem l>á verður aftur kom-
inn úr Bandaríkjaför sinni, verið
ráðinn til að flytja erindi um ferð
sína. Á undan fundinum verður
miðdegisverður.
Uinginennafélag únftara heldur
fund á venjulegum stað laugar-
dagskveldið 12. maí; verður spiiað
og leikið sér; ættu meðlimir að
fjölmenna.
Miðvikudaiginn þann 16. þ.m.
verða sýndar ‘ íslenzkar myndir í
efri sal Goodtemplara undir um-
sjón stúkunnar Skuld. Fred.
Swanson skýrir -myndirnar, sem
allar eru hver annari betri. Enn
fremur verður þar eitthvað meira
á prógrammi og dans á eftir. —
Ágóðanum ,af samkomu þessari á
að verja til styrktar bláfátækum
barnaman.ni, sem legið hefir á
sjúkrahúsi hér í aiian vetur. Ósk-
andi er því að Islendingar hlynni
að þessu fyrirtæki með því að fjöl-
menna á samkomunni.
Föstudagskveldið 4. þ.m. setti
stórtemplar þessa meðlimi í -em
bætti f stúkunni Heklu:
F.Æ.T.: ólaf Bjarnason.
Æ. T.: Árna Sigurðsson.
V. T.: Guðbjörgu Patrik.
R.: Guðm. Gíslason.
A.R.: Thorbjörn Tómasson,
F.R.: B, M. Loing.
&.: Sig Björnsson.
K.: Hallfríði Sigurðsson.
D.j Vaigerði Magnússon.
A.D.: Línu Gillis.
V.: Georg F. Long.
Ú.V.: Guðm. Guðmundsson.
Gefið af frú Láru Bjarnason til
Jóns Sigurðssonar félagsins, $4.00.
Hér með kvittað ineð þökkum.
Skyr og rjómi, hvorttveggja ný-
komið utan. úr svæit, verður tií sölu
í Jóns Bjarnasonar skóla, 720 Bev-
erley 'str., á föstudagskvöldið í
þessari viku. Nóg fyrir alla, þó
stór fjöldi komi.^ Einnig selst þar
kaffi með brauði. Búist er við, að
sönglistin verði þar til að skemta
eftir föngum. Ágóðanum . verður
varið til að kaupa eitthvað af því,
som skólann, vanhagar mest um.
Komið, Winnipeg-íslendingar, og
hafið “glaða stund” hver með öðr-
um, Menn komi hvqnær sem er
eftir 7.30.
Söngsamkoma sú, sem Tjaldbúð-
arsöfnuður hefi lengi verið ,að efna
til, er nú ákveðið að haldin verði
fimtudaginn 17. þ.m. Davíð Jónas-
son, söngstjóri, hefir æft flokkinn
og má búast við vandaðri skemti-
skrá, sem flest bezta íslenzka söng-
fólkið kemur fram á. Ættu sem
flestir að gera sér að skyldu, að
sækja slíka samkomu, söngfóikinu
til maklegs heiðurs og viðurkenn-
ingar.
Sfðastliðið haust tóku Good-
templarastúkurnar Hekla og Skuld
það að sér, að halda uppi fána
hins íslenzka þjóðernis og berjast
fyrir viðhaldi íslenzkrar tungu.
Menn voru kjörnir í nefnd til að
sjá um fyrirlestrahöld í því skyni.
Fyrirlestrarnir áttu að verða 12 á
vetrinum, en urðu að eins tveir.
Fyrir skömmu komu fram óánægju-
raddir á Skuldarfundi yfir illa
unnu starfi þjóðræknisnefndarinn-
ar. Nefndarmenn báru það fyrir
sig, að ómögulegt hefði verið að fá
menn til fyrirlestra; þeir hefðu
reynt við alla íslenzku prestana i
Winnipeg, en enginn þeirr.a þózt
liafa tíma til slíks, nema séra Guð-
mundur Árnason, sem ætíð er
reiðubúinn að hjálpa mönnum og
málefnum. En vonandi er, að aðr-
ir íslenzkir prestar hér hafi betri
tfma til að sinna þessu seinna,
enda myndi það verða flestum
gleðiefni.
R. J. Davíðsson,
-----o-----
Endurprentun Vilhjálms
myndarinnar.
Eg er íslendingum vestra þakk-
látur fyrir það, hversu vel þeir
hafa, í heild sinni, tekið tilraiun
minni með myndaspjaldið ný-út-
komna, sem helgað er Vilhjálmi
norðurfara Stefánssyni.
Margir hafa samt óskað eftir, að
og hefði ekki valið þessa seinustu,
dökku .andlitsmynd af Vilhjálmi
til að setja á spjaldið, þótt ýmsir
hafi -þar sömu skoðun og eg.
Um þetta er mér einum að
kenna.
Mér fanst sjálfsagt, að sýna sein-
ustu mynd.
Fjölda fólks sýnist annað. Það
óskar eftir .ainnari og “vanalegri”
myind af frömuði sínum.
Upplagið af þassari mynd hafði
eg svo 'lítið, að þar sem eg ætla mér
að senda myndir hoim til Islands,
þá þarf eg að láta endurprenta
það. Á því spajldi verður sýnd
önnur og “alþýðlegri” mynd af
Vilhjálmi, þó smámynda-umgjörð-
in og Huldárhvammsmyndin verði
hinar sömu, neima litum máske
breytt.
Allir, sem keypt hafa og kaupa
eldri útgáfu myndarinnar, þangað
til hin nýrri er út komin, geta skift
á eldri myndinni fyrir þá yngri, ef
þeir æskja þess, hjá útsölumönn-
um myindarinnar, eða hveiaum sem
þeir hafa pantað hana hjá, án alls
kostnaðar, nema þeim fáu centum,
er purðargjald nemur, þegar uin
pósísending.ar er að ræða.
Þótt rnyndin hafi verið sett í
umgjörð, þá er mjög auðvelt að ná
henni úr og setja nýju myndina í
stað þeirrar eldri, þar sem stærðin
verður nákvæmlega sú sama, og
myndunum eins veitt móttaka tii
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson.
Ársfundur íslendingadagsins í
Winnipeg var haldinn á föstudag-
inn var í sainkomusal Goodtempl-
ara. Á fundinum var samþykt
með ölluin atkvæðum, að íslend-
ingadagur væri haldinn þetta ár,
og eftirfylgjandi 6 menn voru kosn-
ir í íslendingadags nefnd í stað
þeirra, sem úr henni gengu:
Thordur Johnson, Hannes Péturs-
son, Árni Anderson, Hjálinar Berg-
iraan, Arngrímur Johnson og Fred.
Swanson. Þessir menn sitja í nefnd-
inni eitt ár lengur: Dr. B. J. Brand-
son, Paul Bardal (yflgri), Sigurður
Björnsson, H. Methusalemsson, J.
J. Swanson og Th. S. Borgfjörð. *—
Séra Rögnv. Pétursson kom með
þá tillögu á fundinum, að fundar-
gjörningum af öllum ársfundum
íslendingadagsins í Winnipeg frá
byrjun væri safnað saniian og þeir
svo prentaðir tveir og þrír í einu á
hverju íslendingadags prógrammi;
þannig myndu þeir geymast og
prógrammið verða eigulegra í alla
staði. Úrslit í þessu máli urðu
þau, að þriggja manna nefnd var
kosin til þess að safna öllum þeim
fundargjörningum, sem hægt væri,
og sem legði svo skýrslu þessu við-
vikjandi fyrir næsta ársfund Is-
lendingadagsins. Kosnir í nefnd
þessa voru: B. L. Baldwinson, séra
Rögnvaldur Pétursson og O. S.
Thorgeirsson.
Blaðið “Bacifie Skandinaven”,
sein gefið er út í Portland, Ore.,
getur þess nýverið, að einkasonur
hins merka. landa vors, Barða
Skúlasonar lögmanns, hafi gengið
í Bandaríkjaberinn. — Pilturinn
heitir Hrólfur og er að eins 16% árs
gaimall, og því langt fyrir neðan
herskyldu aldur, sem er 21 árs, en
blaðið segir hann þroskaðan sem
tvítugan pilt og áhugi ihans hafi
verið svo mikill á því að komast í
herinn, að foreldrarnir hafi látið
að óskum hans, og telur blaðið
það lofsvert onjög, þar sem piltur-
inn sé augasteinn foreldranna. — í
sambandi við þetta minnist blað-
ið á hina frægu forfeður vora, vík-
ingana, og segir, að enn þá sé ekki
aldauða forna hreystin og hetju-
andinn hjá afkomendunum, og
hvetur þá .aif norrænum kynstofni,.
sem hérlendir eru, að ganga í her-
inn.
Það verður auglýst f blöðum
bæjarins næsta föstudagsmorgun
hvernig inýafstaðin próf hér við
háskólann hafa gengið. Síðdegis
sama dag fer skóiauppsögn fram,
en við hana verður öilum lær-
dómisgráðum háskólans útbýtt.
Skólauppsögn þessi verður að því
leyti markverð, að svo margar
stúlkur taka burtfararpróf, —
seytján, er stúndað hafa nám við
háskólarm, og auk þess 12, er
stundað hafa nám við Wesley Col-
lege, og er ein þeirra íslenzk, Ásta
Austmann. Sumir kennaranna eru
þegar komnir brott úr bænum,
annað hvort til Austur-Canada eða
suður til Bandaríkja, til að eyða
þar sumarfríinu.
f Minneota Mascot sést að G. A.
Dalmann, kunningi Heim.skringlu
að fornu fari, sem haft hefir á
hendi eftirlit eftirlit með olíusölu i
þjónustu ríkisins nú síðastlðin tvö
ár, hefir orðið aó láta af þeim
starfa og annar verið settur f stað
hans. Tekur blaðið fram, að ekki
sé það vegna þess að G. A. Dal-
mann hafi ekki verið ágætur eftir-
litsmaður fypir hönd fflns opin-
bera. En ástæðan sé sú, að ríkis-
stjórinn, er hafi skipað hann í
stöðuna, h.afi verið demókrati, en
sá, er nú sitji oð völdum, sé repúb-
líki.
fræfilíÍMlep: þckklnj?. H6k
mefJ myndum, 92 vlríl
Eftir Dr. Parker.
Ritut5 fyrir unga
pilta og stúlkur, ung
eiginmenn og elgin
konur, fet5ur og mæ75
ur. Kemur í eg fyrir glappaskotin
sít5ar. Inniheldur nýjasta frót51eik. Gull-
v’æg bók. Send I ómerktum umbútium,
fynr $1, burt5argjald borgat5. Bókln á
ekki sinn líka.
ALVIN SALES CO.
Dcpt. «HW P. O. Box 5«, Wlnnlpeg
VANTAR “Caretaker” fyrir stór-
hýsi á Broadway; 4 herbergja íbúð
frítt og góð mánaðarborgun. —
Heimskringla ýísar á.
VANTAR roiskna konu til að
hafa eftirlit með sjúkling. Mjög létt
vinna og gott heimili; umsækjend-
ur snúi sér til 659 Wellington avc.
VANTAR iriann til að stjórna
verziun og líta eftir iandi. Þarf að
kunna ensku og hafa nokkra æf-
ingu í búðarstörfum. — Long Dis-
tance Telephone t búðinni.—Þetta
er 22 mílur frá Winnipeg. Heims-
kringla vísar á.
TÆKIFÆRI fyrir dreng, ekki
yngri en 15 ára, að læra aktýgja
smíð. Stöðug atvinna.—S. Thomp-
son, West Selkirk, Man.
Drengur, 15 ára eða eldri, getur
fengið að læra prentiðn hjá O. S.
Thorgeirssan, 674 Sargent Ave.
t F/uttur
Joseph M.Tees agent fyrir Beztu Píanó og Phono- graph hljóðfæri, hefír flutt verzlun sína frá 206 Notre Dame Ave. til 325 Portage Ave
beint á móti pósthúsinu -
— .
Nýtt verzlunar
námsskeið.
Nýjir stúdentar mega nú byrja
haustnám sitt á WINNIPEG
BUSINESS COLLEGE.— Skrilið
eftir skólaskrá vorri með öllum
upplýsingum. Munið, að það
eru einungis TVEIR skólar i
Canada, sem kenna hina ágætu
einföldu Paragon hraðritun, nfl.
Regina Federal Business College.
og Winnipeg Busineas College.
Það er og verður mikil eftirspurn
eftir skrifstoíu fólki. Byrjið því
nám yðar sem fyrst á öðrum
hvorum af þessum velþektu
verzlunarskólum.
GEO. S. HOUSTON, ráSsmaður.
Silki Pjötlur
í rúmábreiður (crazy patoh-
work). Stórt úrval af stóruim
silki aíklippum, af öllum lit-
um. Stór “pakki” fyrir 26c,—
6 fyrir $1.00, sent póstfrítt. —
Útsaums Silki
miiamun/andi lengdif, ýmsir
litir. 1 únza fyrir 25 eenuts.
SPECIALT/ES CO.
P.O. Box 1836 Winnipeg
»■ »T T .. . .. .. ■ ■— * ■. e
™! DOMINION BANK
Horal Notre Doae of Hhrrbrooke
Street,
Hatntietau oppb__________ ea.ooe.eoe
TaraeJOSur______________ 97,000.000
Allar rliinlr. „ _________*7*,000,000
Vér ðskum eftlr vlUeklftum vem-
lunirmanna os ábyrtrjumst ab gefa
þetm fullnægju. Bparlsjðbsdelld vor
•r sú stærsta sem nokkur bankl bef-
lr I borginnl.
lbúendur þessa bluta borgarlnnar
ðska aTI sklrta vlB stofnum sem þelr
vlta að er algerlega trygg. Nafn
vort er fulltrygglng ðhlutlelka.
Byrjið sparl Innlegg fyrlr sjálfa
your, konu og börn.
W. M. HAMILTON, Ráðtmaðoi
PIIO.NE GARRY S4Sa
COSMG£
Fimtudagskv. 17. Maí
Verður haldinn í
Tjaldbúðarkirkjunni
undir umsjón Mr. D. Jónassonar
P R O G R A M
CHORUS—And the glory of the Lord........Handel
SOLO—Peaceful was the night...............Verdl
MRS. P. S. DALMANN
DUET—Selected...........................
MISS FRIDFINNSON, Mr. O. EGGERTSON
SOLO—Selected...........................
MISS M. ANDERSON
CHORUS—The Marveluos Work...............Ilayden
Soloist: MRS. P. S. DALMANN
SOLO—Cradle Song...................Frita Ivreinler
MISS H. HERMANN
CHORUS—Dagur er lit5inn.........M. G. Magnús.Hon
SOLO—Selected...........................
MISS O. QUAST
DUET—Selected...........................
MISSES THORVALDSON og HERMANN
CHORUS—I Waited For The Lord........Mendelssohn
(Duet by Mrs. Dalmann og Miss Hinriksson)
SOLO—Mad Scene (from Lucia)............Donizettl
MRS. P. S. DALMANN
TRIO—Praise Ye (fram Attila)..............Verdi
Miss THORVALDSON, Messrs. CLEMENS og JONASSON
CHORUS—IN These Delightful Pleasant Groves ....
INNGANGUR: 50c. fyrir fullort5na og 25c. fyrir hörn.
!
WILLIAMS & LEE
7 64 Sherbrooke St., horni Notre D,
Gera við
Hjólhesta og
Motorcycles
Komið með þá og látið setja þá í
stand fyrir vorið.
Komið inn til okkar. — Allskonai
viðgerðir fljótt af hendi
leystar.
Sérstök Kjörkaup
Jp'p Ro.ee—White, Pink,
Blðmln Crimson, þroskast frá sæöl tli
fulls blóma á bverjum tlu
áliyrg.t vikum.
Plxle Plantai—Undursamleg-
aV m. ustu blóm ræktuö. Þroskast
frá sæöi tll plöntu á 70 kl,-
Bækl- stundum.
Shoo Pliy Plant.—Samt Iykt-
ingur laus; en flugur haldast ekkl I
húsum þar blðm þetta er.
ókeypls Blðmgast fagurlega tumar
og vetur.
Weather Plant—Seglr rétt
fyrlr um veöur mörgum
stundum á undan. Ber ang-
andl blómskrúS.
Dept. “H” P. O. Box 8«,
ALVIN SAL.ES CO„ WINNIPEG
" ■■ ■■
r í ^ TIL ^ Sumarsins J
Pantið nú IS til sumarsins. Hitinn er í nánd. Gjörið samninga um að láta oss færa yður ísmola á hverjum morgni. — Bæklingur með verðskrá fæst, ef þér komið eða símið: Ft. R. 981.
The Arctic /ce Co. Ltd. 150 Bell Ave. 201 Llndaciy Bldg.
...
Tannlækning
VIÐ höfum rétt nýlega fengitS tannlæknir sem er
ætta'Sur frá NortSurlöndum en nýkominn frá
Chicago. Hann hefir útskrifast frá einum af
stær*tu skólum Bandaríkjanna. Hann hefir afSal um-
sjón yfir hinni skandinavisku tannlækninga-deild vorri.
Hann viðhefir allar nýjustu uppfundningar vitS þatS
starf. Sérstaklega er litiíS eftir þeim, sem heimsækja
oss utan af landsbygtSinnL
SkrifitS oss á ytSar eigin tungumálL Alt verk
leyst af hendi metS sanngjömu vertSi.
REYNIÐ OSS!
VERKSTOFA: TALSÍMI:
Steiman Block, Selkirk Ave. St. John 2447
Dr. Basi/ O’Grady
átSur hjá Intemational Dental Parlors
WINNIPEG