Heimskringla - 05.07.1917, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 5 JÚLÍ 1917.
HXIMSKRIKGLA
3. BLAÐMÐA
að senda sambaindsherinn sér til,
varnar. Meiri hluti þjóðþingsins
veitti Austurríki fylgi sitt. Prúss-j
land lýsti yfir því, að þetta væri'
beint gegn sambandslögum, og
sleit sig út úr sambandinu. Sagði
síðan stríð á hendur öllum þeim
ríkjum, er veittu Austurríki fylgi,
■og skoðaði alla þá óvini, er ekki
veitti Prússlandi lið.
Stríð það, sem nú hófst, stóð yfir
að eins í sjö vikur. Prússneska
hervélin stóðst eldraunina vel.
Hún var til búin og lét höggið
ríða áður en lið óvinanna var
komið á hreyfingu. 15. júní 1866
lóru fyrstu Iherdeildir af stað. Á
hálfum mánuði var öll mótspyrna
vestur býzkalands buguð. 2. júli
var her Austurríkis algerlega
sundrað í bardaganum við Sadowa
«ða Königgratz. Renydar biðu Itr
alir ósigur, en það varð ekki að
meini.
Napóleon gekk um sættir. En
honum hafði komið algerlega á ó-
vart þessi skyndisigur Prússa.
Meðan samningar stóðu yfir, hélt
herinn prússneski lengra áfram.
En nú var Bisinarck til þess bú-
inn, að koma fram með friðarskil-
mála, er aðgengilegir væri Austur-
ríki.
Af ásettu ráði voru skilmálar
þessir mjög vægir. ítalía skyldi fá
Eeneyjar. Prússland skyldi fá
Slésvík og Holtsetaland. Það var
öumlflýjanleg afleiðing sigursins
við Sadowa. Gamla ríkjasamband-
ið þýzka skyldi uppleyst og Þýzkai-
land skiftast í norður og suður
Þýzkaland. Á norður Þýzkalandi
átti Prússland að hafa íorræði, en
Bæjaraland, Wurtemberg og Bad-
«n að vera fyrir utan, því þaiu
myndi gera sambandið fremur
veikara, en efla það.
Allar þessar kröfur voru með
þeitm hætti, að hvorki Napóleon, né
nokkurt stórveldanna, gat með
gildum rökum mótmælt. Austur-
ríki mátti til með að kannast við,
að skilmálarnir væri vægir. Og
konungur Prússa gat fram komið
með þessar kröfur, án þess að
breyta gegn samvizku sinni og
þeim hlýhug, er hann bar til Aust-
urríkis, sem fyrverandi banda-
þjóðar.
Sigur Bismarcks var alger. Hann
hafði gert eitt veidi úr öllu norður
Þýzkalandi. Hann haíði gert út
um samkepnina milli Prússlands
og Austurríkis. Og sjálfur var
hann helzti maðurinn, er öllu
þessu hafði fengið framgengt, bæði
I augum þjóðarinnar og konungs-
ins.
En öllu þessu hafði hann til leið-
ar komið með þeirri stjórnmála-
stefnu, er hann sjálfur skírði:
Blóð og járn.
-------o------
JOSEPH NICKLIN.
Tæddur 29. nóv. 1894; fallinn 9. apr.
1917 á Vimy Ridge á Frakklandi.
(Undir nafni vaindamanna og
vina hans.)
Að hlustum barst mér sorgarsaga.
Já, svona gengur alla daga:
þegar flest f iyndi leikur,
ljós í húmið breytist skjótt.
Bikar lífs er beiskju þrunginn,
blómin fölna, nýútsprungin,
áður en varir unun ihverfur,
að ber skarpa hélu nótt.
Nú eirðarlaust minn andi þýtur
yfir höf, og ströndu lítur
drifna blóði vina vorra,
í vörn er sýna hreysti. gnægð.
Eyðilagðar borgir, bygðir
brunarústir,—slitnar trygðir—.
Æðistryld því ágirnd veldur,
eigingirni, hatur, slægð.
3>ar streymir blóð sem stórar elfur,
stórþjóð hver og heimur skelfur;
aldrei hefir áður verið
önnur þvílík styrjöld þreytt.
Er það refsing erfðasynda?
önei, fylling valds hugmynda;
eá fær mestrar sæmdar notið,
sem að flesta getur deytt.
Hjartans vin! þar hels að beði
hníga varðst, því förlast gleði.
Ó, hve sárt þín sakna vinir,
sanwistar af förnum stig.
En hvað er dauðinn? Sælan sanna
samt hjá píslum örkumlanna
og við þau lifa langa æfi?—
Lof sé guði fyrir þig.
Þín önd er fiogin frjáls til hæða,
þar framar aldrei þrautir mæða—
og dvelur nú á ljóssins landi,
iffsins skuggamyndum fjær.
Von sú huggar harms í kælu,
að ihittumst við í dýrðarsælu
Síðar meir og saman dveijum
sjálfu drottins skauti nær.
Æfistundin stutt þó væri,
stefnufestu, vinur kæri,
sýndir þú, og hetju hreysti
hels í nauðum. Sof því rótt'
Eftir lífsins stríðið stranga,
stiltur í sem hlauztu að ganga.
Þökk fyrir alt frá æsku tímum!
Elsku vinur! Góða nótt!
Jóhannes H. Húnfjörð.
---------------------------------
Fullkomin meíf
rp || , minni
1 anmœkmng bergon
en annarstaðar.
Dr. J. A. MORAN
Dental Specialist
Union Bank Chambers,
Saskatoon, Sask.
- •
Fjallabardagar ítal 1 0\ [ Þvtt úr tímarit’nu .0» “ Literary iJmest ]
Engin af stríðsþjóðunum hefir átt j höndum saman til þess að gera
það óvinnandi.’
við meiri örðugleika að stríða en ít-
alir. Til þess að komast að óvinun-
um, hafa þeir orðið að klifra hæstu
fjöll, eða kljúfa þau sundur. Ein-
lægt ihafa þeir verið að- klifra ein-
hverja bratta fjallshlíð, en uppi á
fjallsbrúninni hafa óvinirnir verið
og látið fallbyssurnar og maskínu-
byssurnar senda þeim kveðju sina.
Þeir hafa verið við og við umkringd-
ir af hamrabeltum, þar sem hver
hellir var fullur af óvinaliði og hin-
um ægilegu skotvopnum nútíðar-
innar. En með ótakmarkaðri þraut-
seigju og óbilandi festu hafa Italir
samt á endanum yfirstigið alla þessa
örðugleika. Með hestana, vagnana,
stórjbyssurnar og allan sinn herút-
búnað eru þeir komnir upp fjöll-
in, sem lítt klifranleg voru á frið-
artímum. Hersveitirnar ítölsku
eru nú komnar á Oarso hásléttúna
og teknar þar að brjótast áfram til
hæðanna, sem gnæfa yfir borginni
Trieste. Um þessa baráttu Itala
til þess að ná borg þessari, segir
blaðið “The Rocky Mountain
News”, það, sem á eftir fylgir:
“Vér klettafjalla búar ættum að
geta skilið örðugleika þá, sem
samfara voru sókn ítala gegn Aust-
urríki. Um fram aðra ætti okkur
að vera skiljanlegt, hve örðugur
þröskuldur í vegi fjöllin hafa hlot-
ið að vera hinum vösku hersveit-
um þessarar þjóðar. Eyr á árum
gátu Austurríkismenn reist land-
varnar vígi sín þar, sem þeim hent-
ast þótti, og þeir reistu þau í Alpa-
fjöllunum og með fram Isonzo
fljóti. Voru vígi þessi talin ó-
sigrandi.
Þegar öll sagan verður sögð af
hinni hreystilegu fjallasókn íbala,
þá mun alheimurinn dáðst að It-
alíu. Hve litlar sögur hafa frá
þessu borist, er auðskiljaniegt.
Þessir hildarleikir gegn fjöilum og
fjandmanna liði voru langt í
burtu, og af eðlilegum orsökum
gekk áframhaldið treglega. Þegar
flytja þurfti stórskotabyssur upp á
himingnæfandi tinda, sem fjalla-
menn hér fyrrum veigruðu sér við
að klifra, útheimti þetta langan
tfina og óþreytandi kapp. Hver
klettahola geymdi leyniskyttu og
var hættan, sem af þeim stafaði,
eins og hæfileg viðbót við örðug-
leika náttúrunnar. Herferðir Han-
nibals og Napóleons þektu ekki
fleiri tálmanir, en hersveitir ítala á
Trentino svæðinu og við Isonzo
fljótið hafa orðið við að etja síðan
stríðið byrjaði.
Jafnvel á sléttunum umhverfis
Trieste hafa Italir orðið og verða
enn að berjast við þetta tvöfalda
mótstöðuafl, — óvinaherinn og
náttúruna. Af dutlungum sínum
liefir náttúran ofið skurðum, gjám
og sprungum utan um þessa eftir-
sóknarverðu borg, sem hugvit
þjóðverja og andagift hefði tæp-
lega gert betur. Undrun vor yfir
því, hve seinlega ítölsku hersveit-
unum gekk herferðin milli Görits
og Trieste, er af ókunnugleik
sprottin um allar tálmanirnar, sem
í vegi eru.
Að þreyta við aðrar eins tálman-
ir var nærri því ofauki menskum
kröftum, og þegar þetta er tekið
til greina fæst gleggri skilningur á
stríði Ibala.”
‘En í augum ítalíumanna varð
léttir, að etja við örðugleika þessa
og tiltölulega auðvelt í saman-
burði við l>að, sem þeir áður höfðu
átt við að stríða. Áður höfðu þeir
orðið að heyja hildarleikinn hátt
uppi í loftinu. Þeir höfðu orðið að
vega sig upp brattar hliðar hárra
fja.lla, sem engir menn þorðu að
klifra á friðartímum, og fjöll þessi
höfðu verið rammlega víggirt og
hreystilega varin af öflugum óvina-
her. Aðrar stríðsþjóðir gegn Þjóð-
verjum höfðu barist við her; ltalir
höfðu staðið í orustu við fjalla-
tinda. Tind af tindi tóku þeir, og
hafa þokast með þungar byssur og
skotfæralestir upp fjöllin, sem
menn voguðu áður að eins að
klifra með því móti, að þeir væru
bundnir saman. Þeir hafa bygt
brýr frá einum fjallstindinum til
hins; þeir hafa grafið skurði, reist
varnarvirki, rutt vegi, grafið jarð-
göng og bygt veggi 10,000 ft. fyrir
ofan sjávarmál; og alt þetta gerðu
þeir á meðan þeir háðu blóðugt
strið við óvin, sem varðist af öll-
um kröftum.’
Þannig lýsir blað þetta þessum
ægilegu fjalla bardögum. Lesend-
unum eru hér gerðir Ijósir sumir af
helztu örðugleikum ítölsku her-
sveitanna. Jafnframt og þær klifr-
uðu fjöllin eða sprengdu leið sína
gegn um þau, urðu þær að brjóta
á bak aftur eflda óvini. En ckkert
af þessu létu þær á sig fá hið
minsta. Engin tálmun var svo
stór, að ekki sæju þessar vösku
hersveitir einhver ráð við henni.
Áframhald þeirra fékk ekkert
hindrað. Ef þær komu að fjöllum,
sem með öllu voru ófær yfirferðar
utan fuglinum fljúgandi, þá
sprengdu þær þau sundur. Þess-
ar fjallasprengingi ítala voru stór-
kostlegar. Gegn slíkum aðgangi
fengu Austurríkismenn ekki sbað-
ist og leituðu því einlægt undan.
Þegar Italir tóku Göritz voru þeir
komnir úr bardaganum í fjalls-
hlíðunum og teknir að berjast á
jafnsléttu; þeir voru komnir inn á
Carso hásléttuna.
Og þó Oarso hásléttan sé ekkert
lamb að leika sér við, var hún þó
smáræði hjá því, sem Italir liöfðu
áður átt við að stríða. Þarna enf
þeir nú að berjast og einlægt eru
þeir að hrekja óvinina lengra og
lengra. Aðal markmið þeirra er
borgin Trieste, og svo eftir að þeir
hafa tekið hana, að færast lengra
austur á bóginn.
Hildarleikirnir þarna á Carso há-
sléttunni eru stórkostlegir, en þola
þó engan samanburð við hildar-
leikina uppi í fjöllunum. Víða er
háslétta þessi all-geigvænlcg, enda
hefir verið um hana sagt, að hún
sé sá eini ’staður á jörðu, sem guð
hafi ekki skapað.’ Hún er klett-
ótt og uppblásin og hvergi í veröld
getur að líta lanössvæði, sem sé
ófrýnilegra en þessi' háslétta, sem
nú er vígvöllur tveggja öflugra
stríðsþjóða.------
Og þó land þetta sé örðugt yfir-
ferðar, mega ltalir ekki veigra sér
við að leggja leið sína yfir það, ef
þeir vilja komast til borgarinnar
Trieste. Þetta er eina leiðin fyrir
þá þangað.”
“Blaðið “New York Times” bregð-
ur upp eftirfylgjandi mynd af verki
því, sem herinn ítalski tók sér fyr-
ir hendur og það án þess að vera
í minsta vafa með heppilega út-
komu:
‘Þótt Austurríkismenn stöðvi ef
til vill áframhald Itala, þá verður
herferð þessi engu síður mark-
verðasti viðburður ársins. Sókn
þessi stóð yfir í eextán daga, og var
jafn stórkostleg alt í gegn. Frakk-
ar og Bretar hafa verið að sækja
smáhæðir, hóla og hryggi; Italir
hafa verið að klifra fjöll. Frakkar
og Bretar hafa leitað áfram; Italir
hafa leitað upp á við. Frakkar og
Bretar hafa barist á jafnsvæði; It-
alir hafa barist í ægilegum fjalls-
bratta. Nú eru þeir komnir á há-
sléttu og geta haldið áfram — en
hvílík háslétta! Hún er gamalt
jarðelda svæði, samsafn að eld-
gýgum, klettum, hellrum — eins og
þetta sé mynd heldauðs tunglsins.
Hún er nakin, uppblásin, vatns-
laus; aldrei var neinn vígvöllur
mannanna áður líkur þessari stein-
runnu krampamynd náttúrunnar.
Sökum vatnsleysis á þessu svæði
hafa ítalir orðið að byggja rennur
eða vatnsveitustokka jafnótt og
þeir hafa komist áfram. Þetta
eyðikletta svæði, hellra og jarð-
húsa, inngirt og umvafið af gadda-
vír og svo í viðbót varið af stór-
skotabyssum Austurríkismanna,
var ekki árennilegt. Hugvit manns-
ins og náttúran höfðu tekið hér
LANDBÚNAÐUR
OG SVEITAUF
Súrfóður hlöður.
Ekkert kemur sér betur fyrir
bóndann, en að hafa súrfóður
hlöður (Silos). Allar skepnur eru
hamslausar í súrfóðrið og þrífast
vel á því. íslenzkir bændur, sem
ekki hafa súrfóður hlöður, ættu að
taka þetta til Ihugunar.
Engin uppskera er vissari en
uppskera maiskornsins í þeim hér-
uðum, þar sem hægt er að rækta
það. 1 hinum loftheldu súrfóður
hlöðum er hægt að geyma mais-
korn og ihey og annað, þar sem
það þornar ekki og er því næring-
ar bezta og lystugasta fóður.
Þrjár ekrur og sjö tíundu partar
úr ekru undir mais-korni, sem sett
er í súrfóður hlöðúrnar, jafnast á
við mais-korn af 5.3 ekrum, sem er
slegið og hirt með vanalegri að-
ferð.
Ágóðinn fyrir bóndann af súr-
fóður hlöðunum, er margfaldur.
Fáist í uppskeru um 35 bushels af
ekrunni, gerir þessi uppskera um
sjö ton af súrfóðri, og græðir
bóndinn um $11 fyrir að þurfa ekki
að þreskja kornið á aikrinum.
Kvikfjárræktar - bóndanum er
nauðsynlegt að hafa að minsta
kosti eina af hlöðum þessum
(Silos). Með súrfóðrinu (silage)
fær hann hirt skepnur sínar betur
árið um kring. Hann getur hafc
fleiri skepnur og látið þær vera í
betri holdum.
Súrfóður hlöðurnar geyma alla
mais uppskeruna og halda henni
jafngóðri og hún var, er hún hafði
mest gildi sem Tóður, og þetta
þannig handhægt, til brúkunar
bæði á sumrum og vetrum.
Súrfóðrið er hið lystugasta og
bætir meltingu skepnanna á þeim
líma, sem þeim er gefið þurt fóð-
ur, og haldast þar þannig vel og í
góðum holdum.
Það er ókostbærara að geyma
fóðrið þannig, en geyma það þurk-
að eða sem hey.
Súrfóður lilöðurnar gera. bónd-
anum mögulegt að geyma til sum-
ar brúkunar sitt bezta fóður. 'l
hlöðum þessum heldur alt, sem
]>ar er geymt, sínum fyrsta næring-
arkrafti.
Bezta geymslufóður verður mais,
sem sleginn er þegar kornið er
móðnað, en stangirnar og laufin
eru algræn. í súrfóður hlöðunum
geymist þetta svo óþurkað og er
einlægt jafngott og næringar
mikið.
Súrfóðrið er safamikið, lystugt
og fyrirferðar mikið og ágætt fyrir
allar skepnur.
Karfa, sem tekur eitt bushel af
slíku fóðri, er frá 16 til 22 pund
á þyngd.
Betra er að gefi. lítið af fóðri
þessu á hverjum degi allan vetur-
inn, en að gefa mikið af því stutt-
an tfma.
Sérstaklega kemur súrfóðrið sér
vel í apríl og maí, áður en gripir
fara að getai gengið í haga.
Mjólkur kýr.
Enginn mjólkur bóndi getur
verið án þess að hafa eina eða
fleiri súrfóður hlöður, ef liann á
að geta gert mjólkurbú sitt arð-
vænlegt og haft mjólkur fram-
leiðslu sína góða.
Kýr, sem aldar eru á súrfóðri,
framleiða um tuttugu per cent
meiri mjólk en kýr, sem fóðraðair
eru á heyi eða vanalegum korn-
mat.
Kornskamtinn á vetrum má hafa
að stórum mun minni, ef hægt er
að gefa súrfóður.
Súrfóður hlöðurnar eru því sér-
staklega æskilegar fyrir mjólkur-
bóndann og ættu allir þeir bænd-
ur, sem mjólkurkýr hafa, að taka
þetta til íhugunar.
Þetta gerir ýmsan annan kost-
bæran fóðurbætir ónauðsynlegan
á þessum tírnum, nema í sérstök-
um tilfellum.
Kýr þurfa frá tuttugu og fimm til
fjörutíu pund af súrfóðri á dag;
svo fer þetta eftir því, hvað stórar
kýrnar eru, og eins eftir því, hvað
þeim er gefið af öðru fóðri. Árs-
ganúar kvfgur þurfa frá fimtán til
tuttugu pund á dag.
Súrfóðrið er sérstaklega gott fyr-
ir ungar kvígur, gerir meltingu
þcirra betri og þær hraustari í
alla staði.
■-----o-------
SPURNING.
Þegar eg kom í þetta land, heyrði
eg talað um “drotningar eneið,”
nú að líkindum “kongs sneið,” er
lægi fyrir framan lönd manna er
settust að við vatnið. Sneið þessi
átti að vera sextíu fet á breidd frá
hæsta flóðmarki. Ef hún er til, til
hvers er hún ætluð? Má taka hana
fyrir veg, þar sem svo til hagar og
nauðsyn krefst? Heldur sneið
þessi alt af sömu breidd, þó landið
brotni upp af vatnsgangi?
Búandi.
SVar.—Engin slík ræma af landi
heyrir undir konunginn eða stjórn-
ina, nema þar som sérstaklega
stendur á, t.d. þar sem er viðtekin
höfn, lendingarstaður að námum
eða þess háttar. En mönnum, sem
um vötnin fara, er frjálst að lenda
hvar sem er til viðgerðar á bát eða
veiðarfæfum, eða undan óveðri, en
slík lending heimilar ekki þeim
manni nein önnur afnot landsins
noma með leyfi eiganda.
EFTIRMÆLI.
Hinn 19. ágústmánuð síðastlið-
inn (1916) andaðist að heimili sinu
hér í Duluth (6403 Wadena street,
West Duluth) myndarkonan Mar-
grét Gunnarsdóttir Gunnarsson,
eftir stutta en harða lungnabólgu,
er greip hana með taki að kveldi
þess 15. s.m.
Margrét sál. var fædd að Ljár-
skógum í Laxárdalshreppi í Dala-
sýslu á Islandi, en var á öðrum
degi eftir fæðinguna flutt að Leið-
ólfsstöðum í sama hreppi, til hins
velþekta Guðbrandar bóndai Guð-
brandssonar, er þar bjó lengi, fyrst
með fyrri konu sinni, Guðbjörgu
Jónsdóttur, og síðar með seinni
konu sinni Kristínu Bjarnadóttur.
Á Leiðólfsstöðum dvaldi hún
þangað til eftir lát Guðbrandar
sálugai; litlu eftir það fór hún frá
Leiðólfsstöðum og var í vistum í
sama hreppi til þess tíma, að hún
fór til Vesturheims með bróður sín-
um Þorleifi Guðmundssyni sumar-
ið 1883, og staðnæmdust þau í
Winnipeg í Canada. 1 Winnipeg
var Margrét 4 ár, þar til vorið 1887,
að hún giftist Kristinn Gunnars-
syni, ættuðum af Vesturlandi, er
var reglumaður og drengur hinn
bezti. Þau lijón fluttu frá Winni-
peg tveim vikum eftir að þau gift-
ust, og hingað til Duluth, og hafa
jafnan dvalið hér síðan.
Margrét sáluga var greindar-
kona, trygg í lund og staðfastur
vinur vina sinna, enda átti hún þá
í ætt sinni, er voru sagðir vel gefn-
ir menn; þar á meðal má telja
merkisbóndann Jón Markússon að
Spákelsstöðum f Laxárdáilshreppi
í Dalasýslu. Hann átti alþekt
rausnanheimili, er hann stjórnaði
jafnan með dúgnaði og framsýni i
hvívetna; vinir höfðu þeir verið
góðir, Guðbrandur fóstri Margrét-
ar og Jón, svo að varla eru dæmi
til anniars eins, og var það eftir
fyrirlagi Jóns sál. að Margrét ólst
upp á Leiðólfsstöðum
Margrét og maður hennar eign-
uðust fjögur efnileg börn, eina
dóttur og þrjá .sonu. Dóttir þeirra,
Kristín að nafni, er gift manni hér
í bænum, sænskum að ætt; nafn
hans er Gunnar Pedersen. Elzti
sonur þeirra hjóna, Hjálmar Gunn-
arsson, dó árið 1914 og var lát hans
birt í Heimskringlu. Guðbrandur
Byron Gunnarsson er giftur, og er
kona hans af sænskum ættum.
Leon Einar Gunnarsson er ógiftur
enn þá, og er til heimilis hjá bróð-
ur sínum að heimili Guðbrandar
hér í Duluth. öll eru börnin vönd-
uð og vel gefin; bræðurnir vinna
báðir hjá járnbrautarfélagi í Proc-
tor, Minn.
Jarðarförin fró fram 23. ágúst-
mánaðar að viðstöddu fjölmenni.
Margrét sál. var vel þekt af fólki
hér og minnist það hennar sem
merkiskonu þeirrar. er af um-
hyggjusemi og atorku stundaði
köllun sína. starfandi jafnan að
velgengni og vellíðan ástmenna
sinna og vina.
Duluth Minn., í júnímán. 1917.
Vinur hinnar látnu.
Ljómandi Fallegar
Siikipjötlur.
til að búa til úr rúmábreiður —
“Crazy Patehwork”. — Stórt úrval
af stórum silki-áfklippum, hentug-
ar í ábreiður, kodda, sessur og fl.
—Stór “pakki” á 25c., fimm fyrir $1.
PEOPLE’S SPECIALTIES CO.
Dept. 17. P.O. Box 1836
WINNIPEG
Innvortis Bað
-~ — • - ---------------
Eg býst við að þér vitið, að eina
ráðið, sem brúkandi er við hægða-
leysi, er J. B. L. Cascade. — Það er
það eina áhald, sem er læknis-
fræðislega búið til, og vinnur því
verk sitt vel. En svo verðið þér
að kaupia það frá manni, sem
næga reynslu hefir á meðhöndlan
þess og getur sagt yður nákvæm-
lega hvernig með það skal fara til
þess að sem beztum árangri verði
náð. — Það eru fleiri en einn veg-
ur til að brúkia J. B. L. Cascade,
og þá vegi get eg sýnt yður . Lfka
þekki eg alla líkamsbyggingu
mannsins og get því gefið yður
ýmsar góðar ráðleggingar við veik-
indum yðar. — Enginn ætti að
selja þetta áhald, nerna sá, sem hef-
ir næga þekkingu á verkun þess—
varist slíka umboðsmenn.
Kaupið af manninum, sem fyrst-
ur tók að sér sölu á J. B. L. Cascade
í Winnipeg, og sem getur gefið yð-
ur nauðsynlegar leiðbeiningar, —
betur en nokkur annar í Winni-
peg getur gert.
Harry Mitchell, D.P.
466 PORTAGE AVE.
’Phone Sher. 912 Winnipeg
Fyrir Fjós, CirðÍBgar
og Komhlöður notið
Fjós Mál
FARÐU MEÐ CANADIAN NORTHERN BRAUTINNI
KYRRAHAFSSTROND
Strstök numar-farbréf tll
VANCOUVBR, VICTORIA, NEW WESTMIN STER, SEATTLE,
PORTLAND, SAN FRANCISCO, I.OS ANGELES, SAN DIEGO
Til sölu frá 15. júní til 30. september.
Gilda til 31. Október—Vibstaba á leiblnni leyfö.
Sérstök farbréf til
Norbur Kyrrahafa atraxdar
Júni: 26., 27., 30—Júlí: 1. og 6.
í tvo mánubi.
Sérstök farbréf til
Jaspcr I*ark or Mount Robioi
15. Maí til 30. Sept.
TÍL AUSTUR-CANADA
HrlnnferS A OO dJlKum. Somar-frrtllr.
Farbréf frá 1. Júní til S0. heptember
Standard raflýstir vagnar. Sérstök herberxi og svefnvagnar alla
leiC vestur a® fjöllum og hafi og austur til Toronto.
Bœklingar og allar upplýsingar fúslega gefnar af öllum umboös-
mönnum Canadian Northern félagsins, eöa af
U. CREELMAN, G.P.A., Wlnnipeg, Man.
n • / • Vér borgum undantekningarlaust
Kjomi hnsta v»rð. Flutningabrúsar lagðir
tdl fyrir heildiöluverl.
Sætur og Súr . Fljót afgraiösla, góð skil og kur-
1r i teis framkoma er trygð mel þvi að
• Keyptur ▼erzla við
SÆTUR OG SUR
DOMINION CREAMERY COMPANY
ASHERN, MAN, OG BRANDON, MAN.
:: Colvin & Wodlinger ;;
► . .....- i ►
J Live Stock CommitsioB Brakers j
Room 28, Union Stock Yards
Winnipeg, Canada
A. I. WODLINGER
•• Residence Phone; Main 2868 - •
F. J. COLVTN
-► Resídence Phone: Ft.R. 2397
♦ ♦-»•»♦--»♦♦♦♦ ♦♦♦♦,»♦♦ , ♦♦>♦♦♦♦♦ »4
♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦▼■»♦"♦♦♦♦♦♦♦♦♦-»
Hveitibœndur!
Sendið korn yðar f “Car lots”; seljið ekk I 1 smáskömtum.— Ý
Reynið að senda oss eitt eða fleiri vagnhlöss; vér munum
gjöra yður ánægða, — vanaleg sölulaun.
Skrifið út "Shlpping Bills’ þannig:
NOTIFY
STEWART GRAIN C0MPANY, LIMITED.
Track Buyers and Commission Merchants
WINNIPIG, MAN.
Vér vísum til Bank of Montreal.
Peninga-borgun strax Fljót viðaklitl