Heimskringla - 05.07.1917, Page 8
& BLAÐ6ÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 5. JÚLl 1917.
Fréttir úr bænum.
Mrs. S. A. Sigurðsson frá Skál-
holt P.O„ var flutt á almenna spít-
alann hér á hriðjudaginn var.
Mrs. S. Sigurðsson, Lundar, hefir
afhent féhirði- Rauðakross sjóðs
ins $12 frá kvenfélaginu Prækorn.
Jivenfélagið Björk að Lundar hefir
gefið $10 í hjálparsjóð Belgíu.
Hill bygðinni. Hann kom til þess
að leita sér lækninga við sjón-
depru hjá dr. Jóni Stefánssyni, sér-
fræðingi. Pór hanh heimleiðis aft-
ur á föstudaginn var.
Uin miðja síðustu viku komu frá
Gimli hingað til borgar jiau Pálmi
Lárusson og kona hans. Þau eru
nýgift. Lögðu þau af stað héðan
til Kyrrahafsstrandar og verða í
skemtiferð þessari um mánaðar-
tíma.
Miss Sigrún I. Helgáson, B. A.,
skólakennari, kom ihingað til borg-
ar 1 byrjun ^síðustu viku. Um
miðja vikuna lagði hún af stað
vestur til Kyrrahafs strandar.
Laugardaginn }iann 14. þ.m. verð-
-ur hinn árlegi íþróttafundur
haldinn að Lundar, Man. Ágætt
Tirógram af íþróttum. $300 heitið f
verðlaunum; dans að kveldinu.
Lundar Ladies Base Ball Team
hýður hverju öðru boltafélagi
kvenna í iandinu að keppa við sig.
í>að verður gaman að vera á Lund-
ar þann dag.
Vér fengum nýlega pöntun frá
Bantry, N.D., fyrir sögubókinni
“Hver var hún?”, en bréfið var
nafnlaust. Vill bréfritinn senda oss
nafn sitt?
Halldór Stefánsson frá Holar,
Sask., sem dvalið hefir við nám hér
i vetur á Jóns Bjarnasonar skóla,
hélt heimleiðis í byrjun vikunnar.
' ■
Síra Friðrik J. Bergmann fór suð-
■ur til Dakota á mánudaginn til j
J>ess að vera viðstaddur járðarför
Jónatans Hallgrímssonar, sem þar
er nýlátinn. Síra Friðrik bjóst við
að koma til baka aftur í lok þess-
■arar viku.
Byvindur Sigurðsson, sem heima
& á Alverstone str. hér í bænum,
varð fyrir því slysi nýiega, að bif-
reiðargrind datt ofan á hann, er
hann var að vinna í einu bifreiðar-
werkstæðinu hér. Meiddist hann
töluvert á höfði og höndum, en er
nú samt á góðum batavegi. Dr.
Brandson stundaði hann.
J. J. Gillies lagði af istað vestur
til Saskatchewan í byrjun vikunn-
ar. Hygst hann að ferðast þar um
sem umboðsmaður fyrir The Win-
nipeg Piano Co. Hann er þaulvan-
ur þeim starfa og íslendingum að
góðu kunnur.
Fallinn segja ensku blöðin ís-
lendingin Hjalta ögrnundsson héð-
an úr bænum. Horfinn segja }>au
-vera S W. Sigurðsson, sem einnig er
talinn að vera frá Winnipeg; hann
inun áður hafa át heima í Glen-
boro, Man.
Jakob Vopnfjörð, sem haft hefir
mjólkursölu f undanfarandi ár hér
Tétt fyrir utan borgina, hefir nú
selt búslóð sína og leggur af stað
með fjölskyldu sína í skemtiferð
vestur að hafi. Hann bjóst við að
verða þar vestra um þriggja mán-
aða tíma. Sem gott dæmi þess, hve
mjólkurkýr eru nú í háu verði, má
geta þess, að kýr hans seldust $92
tiver til jafnaðar, og nokkrar árs-
gamlar Holstein kvfgur seldust
á $105 til j'afnaðar.
Jón Stefánsson bóndi að Stony
Hill, Man., kom snögga ferð til bæ-
arins rétt fyrir sfðustu helgi. Var
hann að heimsækja ýmsa kunn-
ingja sína hér. Hann átti heima
hér í Winnipeg í fjölda mörg ár,
áður en hann byrjaði búskap við
Stony Hill.
Til borgarinnar kom í sfðustu
viku Bergmann Jónasson frá Stony
Þann 21 maí síðastl. lögðu af
stað frá Ness P.O. í Nýja íslandi
bændurnir Guðmundur Helgason,
fsleifur Heigason og sonur ísleifs
til Prince Rupert í British Colum-
bia. Þeir höfðu í hyggju að stunda
fiskiveiðar þar vestra ef arðvænlegt
tækifæri gæfist. Fjölskyldur þeirra
fara seinna.
Þann 10. síðastl. mán. fóru einnig
vestur til Prince Rupert bræðurn-
ir Jónatan og Helgi Helgasynir og
Helgi Eiríksson—allir frá Nes P.O.
f Nýj'a íslandi.
Eimreiðin hefir mér nú verið
send til útsölu af útgefandanum,
Dr. Valtýr Guðinundssyni. Þeir,
sem vilja, geta því hér eftir fengið
þetta vel þekta og vinsæla tímarit
hjá mér. Verð: $1.20. árg.
Finnur Johnson.
^>668 McDermot Ave., Winnipeg.
Phone: Garry 2541.
Hraðskeyti kom frá Árna Egg-
ertssyni á föstudaginn var. Segir
hann J. J. Bildfell kosinn í stjóm-
arnefnd Eimskipafélags lslands til
tveggja ára. Sjálfur er Árni með-
limur nefndarinnar annað ár til.—
Arður, sem borgast til 'hluthafa nú,
er 7 prócent, sem má telja gott,
þegar tekið er tillit til skaðans við
Goðafoss slysið og margvfslega
teptra ferða. — Útlit er fyrir, að
Vestur-íslendingum gefist kostur á
að kaupa fleiri hluti, og ættu þeir
að nota sér það tækifæri rækilega,
þegar það gefst.
Frétt í enskum blöðum segir, að
landa vorum, Lieut. Hallgr. Jóns-
syni hafi veizt sá heiður, að vera
sæmdur Military Medal af konung-
inum sjálfum í Buckingham kast-
I alanum. — Hallgrímur var einnig
sæmdur heiðurskrossi í fyrra sum-
ar fyrir góða framgöngu með sveit
sína.
Eiríkur B. 'Stephansson frá Elf-
ros, Sask., og Þorbjörg Einarsson
frá Pembina, N.D., voru gefin sam-
an í hjónaband þ. 3. þ.m. af séra
Rúnólfi Marteinssyni, að heimili
lians 493 Lipton str. Ungu hjónin
lögðu af stað samdægurs til Pem-
bina, þar sem foreldrar brúðarinn-
ar búa. Eftir nokkra dvöl þar
syðra fara þau vestur til Elfros og
setjast }iar að á bújörð brúðgum-
ans. — Heimskringla óskar þessum
ungu og efnilegu hjónum til allra
heilla.
Blaðið í Glenboro segir, að rignt
hafi þar töluvert í byrjun síðustu
viku og hafi jörð við þetta blotnað
til muna. Regn þetta hefir verið
Argylebúum kærkominn gestur,
Til bókavina!
Eg hefi nýlega fengið til sölu
“Sálarfræði”, eftir Próf.Ágúst
H. Bjarnason, dr. phil. Bókin
er í bandi og kostar $3.50. Þar
eð mér voru send að eins tíu
eintök, ættu þeir, sem vilja
eignast þessa ágætu bók, að
panta hana sem fyrst.
M. PETERSON,
P.O. Box 1703,- Winnipeg.
Tannlækning
VIÐ höfum rétt nýlega fengiíS tannlseknir *em er
ættaður frá Norðurlöndum en nýkominn frá
Chicago. Hann hefir útakrífast frá einum af
staeTitu skólum Bandaríkjanna. Hann hefir aðal um-
sjón yfir hinni skandinavisku taimlœkninga-deild vorrí.
Hann viðhefir allar nýjustu uppfundnmgar við það
starf. Sérstaklega er litið eftir þeim, sem heimsækja
oss utan af landsbygðinnL
Skrifið oss á yðar eigin hmgumálL Alt verk
leyst af hendi með sanngjörpu verðL
REYNIÐ OSS!
VERKSTOFA: TALSÍMI:
Steiman Block, Selkirk Ave. SL John 2447
Dr. Basi/ O’Grady
áður hjá Intemational Dental Parlors
WINNIPEG
því þurkar hafa háð stórum upp-
skeru bænda þar þetta ár. Við
regn þetta birtir töluvert yfir upp-
skeru 'horfum, og segir blaðið, að
ef veður haldist gott úr þessu, þá
sé ekki ómögulegt að Argyle bænd-
urnir fái að minsta kosti 15 busliel
af hveiti til jafnaðar af ekrunni
næsta haust.
Messufall—í fjarveru séra Rögnv.
Pétursonar verður eigi messað liér
f Únítara kirkjunni á sunnudag-
inn kemur.
íslendingadags nefndin biður
allar ísl. koriur að festa í minni,
að nefndin heitir þremur verðlaun-
um fyrir fallegustu karlmannsisokk-
ana heimaunna, sem henni berast
fyrir 2. ág. Sokkarnir ganga til
223. herdeildarinanr. — Hr. Sigurð-
ur Björnsson, 679 Beverley stræti,
tekur þakksamlega á móti sokkum
úr öðrum áttum. Tilgangurinn er
sannarlega góður.
Messað verður í Únítara kirkj-
unni á Gimli næsta sunnudag þ.
8. þ.m. Byrjar kl. 2. R. P.
fþróttanefnd fslendingadagsins
biður alla þá, er íþróttum unna,
að muna eftir því, að á hátíðinni
verða kapphlaup 100 yds, lang-
stökk, jafnfætis, kapphlaup ein
míla, hástökk og langstökk (hlaup-
ið til), stökk á staf; íslenzkar glím-
ur, knattleikur kvenna; barnasýn-
ing, aflraun á kaðli. Öllum boðið
að koma og reyna.
Söngsamkomur vestur í Saskat-
chewan.
Þær Mrs. P. S. Dalmann, söng-
konan góðkunna hér í bænum, og
ungfrú María Magnússon, hafa á-
kveðið að halda söngsamkomur á
eftirfylgjandi stöðum, sem hér
segir:—
Foam Lake, mánudag 16. Júlí.
Leslie, þriðjudag 17. Júli.
Elfros, miðvikud. 18. Júlí
Mozart, fimtudag 19. Júlí.
Wynyard, föstudag 20. Júlí.
Somkomur þessar verða auglýstar
þar véstra í blöðunum og nánar
hér í næsta blaði.
Hér með viðurkenni eg undir-
skrifuð, að hafa meðtekið frá I.O.F.
félaginu, fyrir milligöngu stúkunn-
ar fsafoid Nr. 1048, Winnipeg, $768
(sjö hundruð sextíu og átta doll.j
sem ifullnaðarborgun á ábyrgðar
skírteini mansins mfns sál., Bené-
dikts Jónssonar. Mér er ljúft að
láta í Ijós innilegt þakklæti mitt
til embættismannanna í stúk. ísa:
fold fyrir umsjón þeirra (fg fyrir-
höfn, ekki einungis f þessu atriði,
heldur æ og æfinlega á liðnum
tíma og í sjúkdómsraunum hips
látna. — Með beztu þökkum og
óskum til hlutaðeigenda.
Wynyrad, 27. júní 1917.
(Mrs.) Anna B. Jónsson.
Vilhjálms-myndin nýja .er nú
prentuð og er til sölu og skifta hjá
útsölumönnum og undirrituðum.
—Þorsteiim Þ. Þorsteinsson, 732
McGfee stræti, Winipeg.
25 ára afmælishátíð
Foam Lake bygðar
þeim það prýðilega úr hendi. Þess-
ar ræðurvoru fluttar: Séra Rögnv.
Pétursson: Islenzkt landnám; Dr.
Sig. Júl. Jóhanneson: Minni bygð-
arinnar; Jón Veum kaupin.: Forn-
ar endurminingar og W. H. Panl-
son þingmaður: Minni landnáms-
kvenna. Þá voru og lesin 2 kvæði:
Minni ísl. bygðarinnar við Foam
Lake, eftir skáldið Þorst. Þ. Þor-
steinssoni og Minni hinna látnu,
eftir Dr. Sig. Júl. Jóhanensson.
Samkomunni sleit með dansi, er
stóð fram undir morgun.
Útdráttur af ræðunum verður
birtur í næstu blöðum, ef til næst.
CONCERT
og DANS
verður haldinn af
Mrs. S. K. HALL Sioprano
Mr. PAUL BARDAL, Baritone
Mr. C. F. DALMAN, Cellist
Mr. S. K. HALL, Accompanist
Á eftirfylgjandi stöðum :
Argyle, Brú Hall, mánudag
9. Júlí
Árborg, fimtudag
12. Júlí.
Aðgangur, 50c.—Börn 25c.
KENNARA vantar við Geysir
skóla, nr. 776, fyrir 8 mánuði, frá 1.
sept. 1917 til 31. des. og frá 1. marz
1918 til 30. júní. Tilboðum, sem
óskað er eítir og tilgreina kaup,
æfingu og mentastig, verður veitt
móttaka af undirrituðum til 14.
júlí 1917.
Th. J. Pálsson, Sec-Treas.,
38—41 Árborg, Man.
Ef eitthvað gengur að úrinu
þínu, þá er þér beit að senda
það til hans G. THOMAS. Hann
er í Bardals byggingunni og þú
mátt trúa því, að úrið kastar elli-
belgnum í höndunum á honum.
_______________________________/
Nýtt verzlunar
námsskeið.
Nýjir stúdentar mega nú byrjs
hsustnám sitt & WINNIPEG
BUSINESS COLLEGE.— Skrifið
eftir skólaskrá vorri með öllum
upplýsingum. Munið, að það
eru einungis TVEIR skólar í
Canada, sem kenns hins ágsetu
einföldu Psragon hraðritun, nfL
Regina Federal Business College.
og Winnipeg Business CoUege.
Það er og verður mikil ettirspurn
eftir skrifstefu-fólki. Byrjið þvi
nám yðsr ssm fyrst á öðrum
hvorum af þsssum velþektu
verzlunsrskólum.
GEO. S. HOUSTON, ráZsmaZar.
™ DOMINION BANK
Hornl Notro Dooc og Ihcrbrookc
•tNft
Miðvikudaginn þann 27. júnf síð-
astl. héldu búendur við Poam Lake
hátfðlcgan f minnigu um, að þá
voru liðin 25 ár frá því að fyrstu
Islendingar settust að þar í bygð-
inni. Það var isumarið 1892, að
þangað fluttu 5 búendur og sett-
ust að á svæði því, er liggur milli
Foam Lake og Kristnes pósthúss.
Voru það þessir: Sveinn Halldórs-
son, Ingim. Eiríksson, Gísli Bíld-
fell, Stefán Ólafsson og Bjarni Ja-
sonson. Fjölgaði búendum smám
saman frnm undir aldamót, en þó
var bygðin fámenn og strjál upp
að árinu 1903. En þá byrjaði inn-
flutningur í stórum stýl, og bygð-
ist á fáum árum afarstórt svæði
vestur,—vestur fyrir Quill vötn,
svo að nú er svo talið, að nýlenda
þessi muni vera ein. stærsta ísl.
bygðin hér vestra.
Hátíðahaldið hófst upp úr há-
degi undir stjórn Jóns Janusson-
ar, skrifara Foam Lake sveitar, og
var komið saman að félagshúsinu
Bræðraborg, er stendur í miðri
gömlu bygðinni. Veður var hið
bezta um morguninn en votviðri
mikil höfðu gengið þá í fulla viku
á undan og voru vegir því með
versta móti, svo eigi varð bifreið-
um komið við; dró það mikið úr
aðsókninni. Hafði fólk vestan úr
bygðinni og alstaðar að ætlað
að koma, en varð að sitja heima
vegna ófærra vega. Þó komu sam-
an þar-um 400 manns.
Til skemtunar voru fyrst sýndar
ýmsar íþróttir og leikir. Var þá
byrjað á söng og ræðuhöldum.
Með söng skemti karlmanna-
söngflokur frá Leslie bæ, og fórst
HSfaSstSll ■»»».„________SS.SSS.SaS
TarullSif_____________________I7HMM
▲Uar dcrmlr_____________STS.SBS.SSS
Vír áakum aftlr vltleklftum v«n-
liuruiu es Sbyrgjumrt K« |Kt
(ullaezju. BtaruJIMtlU ver
er rú itanta itm mekkar kmoki kef-
Ir 1 kersiaml.
fkúemSur kesem klntm korsmrlmmaar
éakm m» eklftm vtS ntetiam ra þelr
Nmfs
rlS etetemi
ntm mS ar mlferlevm trrmm. Ifmfm
vort er fmUtrycslas éhiutletkm.
BjrrJiS e*mrl ImmlecK fjrrlr ajálfm
jrSur, kemm og bðrn.
W. M. HAMILTON, Rátswatw
PHONS QARRT MM
HRAÐRITARA
OG BÓKHALD-
ARA VANTAR
Það er orðið örðugt að fá
æft skrifstofufólk vegna
þess hvað margir karlmenn
hafa gengið í herinn. Þeir
sem lært hafa á SUCCESS
BUSINESS College ganga
fyrir. Success skólinn er sá
stærsti, sterkasti, ábyggileg-
asti verzlunarskóli bæjarins
Vér kennum fleiri nemend-
um en hinir allir til samans
—höfum einnig 10 deildar-
skóla víðsvegar um Vestur-
landið; innritum meira en
5,000 nemendur árlega og
eru kennarar vorir æfðir,
kurteisir og vel starfa sín-
um vaxnir. — Innritist hve-
nær sem er.
The Success
Business College
Portape oíí Edmonton. WINNIPEG
“Margt smátt gerir
eitt stórt”
Látið oss hjálpa yður til þess, að spara ‘cent’-in —
þau draga sig fijótt saman og verða að ‘ dollars.’
v-^ jjÚ dýrtfðar alda, sem hefir verið
að færast yfir veröldina nú í
seinni tíð, er farin að gera vart
við sig um þvert og endilangt
þetta land. En vegna þess vér
notuðum tækifærið og keyptum miklar
birgðir af alls konar vörum, meðan þær
voru í lágu verði,- látum vér viðsiftavini
vora njóta hagnaðarins af innkaupum vorum.
í næstu tíu daga seljum vér 3,000 yards
af léreftum (prints) sem nú eru 18c til 20c.
virði yd., að eins á 15c. yardið.
Þessi léreft eru voðfeld og efnisgóð og 32
þumlunga á breidd.
Nýkomið í verzlanir vorar járnbrautar-
vagnhleðsia af grænu kaffi. Þetta kaffi er
að útliti hið álitlegasta Brazilíu kaffi, sem
vér minnumst að hafa séð um ianga tíð.
Allir. sem eru þess megnugir, ættu að kaupa
nóg af því til ársins.
Vort verð að eins 20c. pd. eða 5 pd. $1.00
Santos kaffi brent, 23c., eða 4/2 pd. $1.00
Sigurðsson,
Thorvaldson Co.,
LIMITED
Gimli, Arborg, Hnausa og
Riverton, Manitoba
Athugið! Lesið!
Við höfum ætíS miklar birgðir af vörum
á hendi.: Matvöru, álnavöru alls konar skó,
hveiti, fóður, harðvöru, þakspón og bygg-
ingar pappír. Erum nýbúnir að fá vagn-
hlass af alls konar olíu.
Einnig höfum við net, blý og “korka” fyr-
ir fiskimenn, og æskjum viðskifta þeirra.
Við kaupum líka á hæsta verði og borgum
í peningum allar afurðir bænda.
Vörur okkar allar seljum við á mjög sann-
gjörnu verði.
Komið, sjáið og reynið. Við gjörum ykk-
ur ánægða.
Lundar Trading Co., Ltd.
Verzlanir að LUNDAR og CLARKLEIGH, Manitoba
MarteLs
Ljósmynd-
arastofa
264 1-2 Portage Ave.
tXppi yfir nýju
5—10 og 15 conta
búðinni
EIN AF ELZTU
LJÓSMYND ASTOFUM
BÆJARINS.
Látið okkur taka myndii ai börnum yðar eða yður sjálfum
—til reynslu. Við ábyrgjumst verk okkar, hvort sem myndirnar
sru smáar eða stórar. — Peningum fúslega skilað aftur, ef við
getum ekki gert yður ánægð,—
PRISAR VORIR MJÖG LAGIR SAMFARA GÓÐU VERKI.
Martel Stuc/io, 264i/2 portage avenue