Heimskringla - 08.11.1917, Side 1
------------------------------—
Royal Optical Co.
Elzta Opticians i Winnipeg. Við
höfum reynst vinum þínum vel, —t
gefOu okkur tækifæri til atJ reyn-
ast þér vel. Stofnsett 1905.
W. R. Fowler, Opt.
XXXII. ÁR.
WINNIPEG MANITOBA, 8. NOVEMBER 1917
NOMER 7
Styrjöldin
Ófarír ftala.
Sóknin gegn ítölum heldur áfram
Ok virðist ekkert vera á henni lin-
að. Eins og skýrt var frá í sífrasta
blaði bjuggust ítalir til varnar
með fram Tagliamento íljótinu og
l>ar út frá, en áður langt leið voru
l>eir hraktir þaðan og eru nú á
undanhaldi lengra inn í land sitt.
Sókn Þjóðverja og Austurríkis-
manna er nú á 160 mílna svœði og
virðist ítölum ihvergi mögulegt að
koma við öflugu viðmámi. Ekki er
l>ð ihaldið að þeir muni enn vera
1 haettu að bíða algerðan ósigur
°k kemur öllum fréttum saman um
l'að, að enn fái þeir hagað undan-
haldi sínu með góðu skipulagi og
r®glu. Englendingar og Frakkar
hafa þegar sent þeim nokkurn llð-
8tyrk, sem talið er sjálfsagt að verði
®ukimm eftir l>ví sem möguleikar
íramast leyfa. Einnig hafa byssur,
stórar og smáar, verið sendar O'g
skotfœra birgðir í stórnm stýl.
®andaþjóðirnar hafa allan hug á
að reynast ítölum nú vel og munu
vafalaust láta þeim í té alla þá
l>iálp, sem þeim er unt.
Sagt er að sendinefndir hafi ver-
ið sendar, bœði frá Englandi og
í’rakklandi, til Italíu og munu þær
Kera alt, sem í þeirra valdi stendur
til þess að hvetja ítali til varnar
aðstoða þá. Lloyd George,
^tjórnaráðherra Englands, er for-
hiaður sendinefndarinnar brezku,
en Painleve, stjórnarformaður á
^rakklandi þeirrar frönsku.
Frá vestur-vígstöðvum.
Pandamenn haía ekki legið á liði
sinu ú vestur-vígstöðvumum í
Seimni tíð og hafa unnið hvern sig-
Urinn af öðrum, bæði í Belgíu og á
^■"akklandi. Er haldið að Þjóð-
v°rjar inuni nú vera í undirbúningi
að yfirgofa Belgíu alveg áður langt
líður og virðist margt benda til
að þeir muni nú hafa þar svipað
hndamhald í huga og Atti sér stað
á Frakklandi siðast liðið vor. 1
tjiege ihéraðinu og víðar eru þeir
að 'leggja f eyði verkstæði sín og
tæpiega er hægt að skoða þetta
annað en vott þess, að þeir muni
hafa í hyggju að yfirgefa staði
l>essa bráðlcga.
Á þriðjudaginn var bófu Bretar
Vk Canadamenn nýja sókn í Belgíu
f þetta sinn var aðal-áhlaupið
kert ú milli Ypres-Roulers járn-
hi'autarinnar og Poeleapelle og
Westroose vatmsins. Þrátt fyrir
reKn og forarleðju brutust Bretar
og Canadamenn þarna áfrain og
varð Þjóðverjum nauðugur einn
hostur að hörfa undan á öllu þessu
svæði. Herdeildirnar frá vestur-
'tylkjum Canada gátu sér bezta
orðstýr f viðureignum þessum og
vonandi getur Heirmskringla síðar
birt bréf frá eimhverjum af íslenzku
hennönnunurn, sem f orustu þess-
ari hafa verið. Þessi seinasti sigur
^nadamanna á þessu 'svæði er
l'ýðingarmikill og er þetta annar
stórsigur þeirra síðan þeir tóku að
Rækja gegn Passchendaele hæðun-
Uln; í þetta sinn hröktu þeir Þjóð-
Verjana út fyrir hæðir þessar á
einum stað og tóku þar af þeim
i'arngerð vfgi. Staði þessa vörðu
nerdeildir krónprinzins frá Bava-
ríu að þetta úrvalslið Þjóðverja
skyldi bíða ósigur fyrir Canada-
jnönnum sannar bezt, hve harð-
°ngir og röskir Camada hermenn-
jrnir eru. Sir Douglas Haig, æðsti
nerforingi Breta á vesturkantinum,
•sendi Canada herdeildunum þaJrk-
arskeyti eftir orustu þessa og lauk
a bær miklu lofi fyrir þeirra hraust-
e^u framgöngu.
1 lok síðustu viku hófu Frakkar
Rókn mikla á svæðinu á milli Oise
si{iPaskurðsins og Corbeny héraðs
°K fengu hrakið Þjóðverja alla leið
að Ailette ánni. Á undanhaldinu
sPrengdu Þjóðverjar upp allar
nýr, eein ]>arna eru yfjr Ailette
ana. __ Sííðan 23. okt. hafa Frakkar
ekið af Þjóðverjum 422 stórskota-
>ys»ur og 720 vélabyssur. Haldið
er’ að þessi seinasti sigur Frakk-
muni leiða til þess, að þeir
Ifði' f>or,í,r'na Laon éður langt um
inustu fréttir segja, að banda-
da'i11 llafi tci<‘ð borgina Passchen-
e e fyrir austan Ypres, en að svo
BwnU flafa ekki borist um þetta
C r freenir. Svo virðist, sem
rada herdeildirnar hafi tekið
borg þessa eftir harða sókn og
stranga og á samia tfma eiga her-
sveitirnar brezku að hafa brotist
fram og tekið af Þjóðverjum marga
staði. Verða nánari fréttir um
þetta í næsta blaði.
Frá austur-berstöðvum.
Hersveitum Breta ‘hefir gengið vel
í Mesópotamíu í seimini tíð. Hófu
iþær nýlega sókn mikla upp með
Tigris fljótinu fyrir norðvestan
Bagdad og urðu Tyrkir þar undan
að hrökkva á stóru svæði. Eru
Bretar nú komnir um 100 mílur
upp með fljótinu frá borginni
Bagdad.
Sömuleiðis hafa Tyrkir einnig
farið halloka ifyir Bretum sunnan-
vert í Palestínu og eins fyrir Rúss-
um í strandanherbúðunum við
Svartalhafið. Tóku Bretar borgina
Beersheba og er haldið að þeir
muni óður en langt líður ná á sitt
vald strandarborginni Gaza. Sagt
er að þeir hafi tekið 2,429 fanga af
liði Tyrkja í viðureignum þessum
og 207 fyrirliða. Brynvagnarnir
brezku komu nú að góðum notum,
skriðu þeir yfir alt, sem fyrir var og
vann kúlnahríð óvinanna ekki á
þeim hið minsta. Þegar Tyrkir sáu
að ekkert fékk stöðvað ófögnuð
þenna, urðu þeir skelkaðir mjög
og lögðu á flótta.
Slagur í Norðursjó.
Slagur átti sér stað nýlega á milli
brezkra herskipa og þýzkra á Norð-
ursjónum, í vík einni á milli Svf-
þjóðar og Danmerkur. Lauk við-
ureign þessari þannig, að einu all-
stóru herskipi var sökt fyrir Þjóð-
verjum og tíu varðskipum. Hafa
Bretar enn einu sinni sýnt siðferð-
islega yfirburði sfna yfir Þjóðverja,
því þeir björguðu af skipum þess-
um öllum þeim mönnum, sem
mögulegt var að ná til. — Þegar
Þjóðverjar nýlega söktu f Norður-
sjó níu kaupskipum sænskum og
norskum og tveimur brezkum her-
skipum, reyndu þeir ekki að bjarga
einum einasta manni, en skutu til
agn.a björgunarbátana, sem hlaðn-
ir voru fólki, konum og körlurn.
Kosningadagurinn ákveðinn.
Stjórnin hefir nú tilkynt, að
næstu 'sambandskosningar fari
fram 17. des. n.k., en útnefningar
þingmannaefna eiga að fara fram
19. þjn. Gildir þetta fyrir öll fylkin
nema Yukon fylki, en þar fara út-
nefningar fram 31. des. og kosning-
ar fjórum vikum seinna. Þingið á
að kalla saman aftur 28. febr. 1918.
Þessar komandi kosningar verða
ólíkar öllum öðrum undangengn-
um kosninguim í sögu þessa lands.
í fyrsta sinni hafa nú konur at-
kvæðisrétt til sambandskosningai—
allar þær konur, sem nóin skyld-
menni eiga í Canada hernum. Og
af því allir hermenn þjóðarinnar
hafa atkvæðisrétt verða kjörstaðir
settir á fót á öllum þeim stöðum,
þar sem þeir eru — á Frakklandi, f
Belgíu, á Englandi, A estur Indíu
eyjum og víðar. Erlendis byrja
hermennirnir að greiða atkvæði
sín 20. þ.m. og verður atkvæða-
greiðslunni þar þannig hagað, að
henni verði lokið daginn sem kosn-
ingarnar fara fram hér í Canada.
1 öllum kjördæmum út um alt
landið taka skrásetjarar nú tafar-
laust til starfa við tilbúning kjör-
skránna. Samkvæmt kosningalög
unum nýju hafa þeir til hliðsjónar
kjörskrár þær, sem til eru í kjör-
dæmum þessum. Kjörskrár þessar
vorða undirstaðan, sem þeir byggja
á. Munu þeir að eins stryka út
nöfn þeirra, sem af einhverjum or-
sökum ekki hafa nú atkvæðisrétt,
en bæta inn á þær nöfnum þeirra
kvenna og annara, sem atkvæðis-
rétt hafa,—Eftir ágizkun verða um
20,000 skrásetjarar vald'r í alt.
Vafalaust eykst samsteypuistjórn-
inni nú fylgi með degi hverjum.
Alt bendir til þess, að hún rnuni
sigra með miklum meiri hluta í
öllum vesturfylkjunum, Ontario-
fylki og strandar fylkjnnum. Que-
bec fylki er eina fyl’.dð, sem nokk-
urn veginn vfst er að verður alt á
bandi hinis katólska leiðtoga og
a n d stæð i n gs sam s tey p ustj órnar-
innar, Sir Wilfrid Laurier. Kai>
ólskan hefir öll tögi og hagldir í
Quebec og er því ekki að undra þó
fylki það sé á öðru þroskaskeiði en
önnur fylki landsins. Quebec-búar
eru þektir fyrir að v>ra á móti
mörgum framfarahreyfingum — t.
d. réttindum kvenna og vfnbanni.
En fyrn mestu er hægt að telja
það, að margir af ihimum svo nefndu
jafnaðarmönnum og frelsispostul-
um bæði hér í Winnipeg og víðar,
fylkja sér nú undir merki þessara
manna.
Samsteypustjórnin er bygð á alt
öðrum grunni. Enda mun óhætt
að fullyrða, að hún muni sigra með
miblum meiri hluta við komandi
kosningar.
Grimdaræði Þjóðverja.
Nýlega var skýrt frá því hér í
blaðinu, að Þjóðverjar ihefðu sökt
f Norðursjónum níu norskum og
sænskum kaupskipum og tveimur
brezkum hersnekkjum, sem voru
að fylgja kaupskipum þessum. Hafa
nú borist ljósar fregnir af þessu
bæði í norskum blöðum og öðrum
blöðum, sem sýna hve ótrúlega
grimd og mannvonzku Þjóðverjar
hafa sýnt við þetta tækifæri. —
Þýzku herskipin sáust kl. 6 um
morgunimm og var fyrst haldið að
þetta væru brezk varðskip, en þeg-
ar þau voru komin nærri kaup-
skipunum og fylgdar herskipunum
brezku, byrjuðu þau alt í einu að
skjóta. Annað herskipið brezka
sökk nærri því undir eins og varð-
ist þó til þess síðasta. Hinu brezka
herskipinu var sökt rétt á eftir.
Svo létu þýzku herskipin skothríð-
ina dynja á hinum varnarlausu
skipum og söktu þeim ihverju af
öðru. Ekki létu Þjóðverjar sér
heldur nægja að granda skipum
þessum heldur skutu þeir einnig á
björgunarbátana er hlaðnir voru
varnarlausu fólki, sem var að reyna
vinátta hefir þannig myndast á
milll herdeildanna frá þessum stöð-
um. A-20.
Húnar fylgjast með viíburíum
hér í Canada.
Fréttablað fundið á þýzkum
fanga, sem Canadamenn tóku á
vestur herstöðvunum nýlega, sýnir
ihve vel Þjóðverjar fylgjast með öll-
um málum hér í Canada. Blað þetta
flutti ]>á frétt, sem átti að vera frá
Ottawa, að herskyldulögin hefðu
verið samþykt á þinginu og var
blað þetta þó gefið út að eins tveim
dögum eftir að þetta skeði.
Almenn skoðun manna er, að
þessi fundur sanni bezt, hve mikla
þýðingu Þýzkaland leggur f hagn-
að þann, sem herskyldulögin hafi í
för með sér fyrir bandaþjóðirnar.
Reynslan hefir sannað, að Þýzka-
land tekur vandlega eftir öllu í ó-
vinalöndunum og að Húnar veita
hverju merki um aukinn styrk eða
veikleika nákvæma eftirtekt. A-18.
Alaennar fréttir.
CANADA.
Skýrslur Innflutninga- stofunnar
fyrir vikuna, sem endaði 30. okt.,
sýna að innflutningur hefir nú veiv
ið töluvert meiri en um þetta leyti
síðast liðið ár. Þessa viku kornu
582 innflytjendur inm í landið, á
móti 357 í fyrra þessa sömu viku.
Komu innflytjendur með fjárupp-
hæðir, sem námu í alt $68,067. Af
|fólki þessu voru 129 bændur, 24
KEIR ISLENDINGAR, sem tilheyra
* fyrsta flokki herskyldaðra manna,
mega ekki gleyma að skrásetjast fyr-
ir þann 10. þ.m. Gjoíið það í dag.
að bjarga lffi sínu. Norksa blaðið
“Tidenstegn” flytur einna ljósasta
lýsingu á þessum hryllilegu aðför-
um og bæði Norðmenn og Svíar eru
nú Þjóðverjum stórlega reiðir.
Capt. Ronald Amundsen, hinn
frægi nonski landakönnunarmað-
ur, sem fyrstur fann suðurpólinn,
hefir sent þýz ku stjórninni aftur
heioursmerki þau, sem Þjóðverjar
hafa sæmt hann. Þannig vottar
hann þeim gremju sína yfir að-
förum þeirra í Norðursjónum, þeg-
ar þeir í dýrslegu heiftaræði skjóta
niður í ihundraða tali varnarlausa
skipverja, sem kömnir eru út í
björgunarbátana — eru ekki að
veita minstu mótspyrnu, en að eins
að reyna að bjarga lífi sfnu.
HryUiIegar aðfarir í Mexico.
Frá Juarez í Mexico kemur sú
frétt, að á sunnudaginn hafi óald-
arseggir þeir, sem Yilla hershöfð-
ingi stýrir, ráðist á farþegalest þar
nærri og banað 125 hermönnum,
sem með lest þessari voru. Yar lest-
in stöðvuð við Armatierez stöðina
og hermennirnir þar skotnir nið-
ur án þess þeir kæmu minstu vörn
við. Af öðum farþegum var öllu
stolið, meira að segja fötunum, sem
þeir stóðu í og voru þeir svo send-
ir hálf-naktir með lestinni inn til
Juacez. Tvær konur voru skotnar
fyrir að neita að láta af hendi föt
sín.
Félagsh'f herdeildanna.
Herdeildirnar frá Canada stofna
iðulega til vináttu og íélagslífs sín
á milli, bæði á meðan þær eru við
æfinigar og eins á hersvæðunum.
Tveir nánir vinir eru nú í skotgröf-
unum, 25. Nova Scotia herdeildin
og 22. herdeild fransk-canadiskra
manna.
Þessar tvær herdeildir, sem báð-
ar hafa getið sér góðan orðstýr fyr-
ir rösklega framgöngu, stigu um
borð sama daginn á skipinu Sax-
onia og sigldu af stað 20. maí 1915.
Stunduðu þær æfingar samhliða
og fóru í skotgrafirnar á sömu
stundu. Þegar áhlaupið mikla
hófst gegn Courcelette, stukku á
sama augnabliki upp úr skotgröf-
um bandamanna hugprúða her-
deildin frá Quebec og vinir þeirra
og félagar frá Nova Scótia.
Það er alment skoðað vottur um
nánara samband í framtíðinmi
hinna ýmsu parta Canada, að náin
verkamenn bænda og 104 iðnaðar-
menn. Tvö hundruð sextíu og
fimm heimilisréttarlönd voru tckin
í Canada þessa viku.
Merk hjónavígsluathöfn fór fram
í Ottawa þann 3. þ.m. þegar gefin
voru saman í hjónaband þau
Maud Emma Oavendish, elzta dótt-
ir landstjórans í Canada, og Capt.
Angus Mackintosh, úr “Royal
Horse” varðliðinu. Voru um 1200
merkir gestir vistaddir athöfnina
og komu þeir úr öllum pörtum
landsins. Capt. Mackintosh barð-
ist á vígrvellinum 1 byrjun stríðsins
og særðist þar.
Þann seinasta síðasta mánaðar
birti Sir Robert Borden ávarp til
Canada þjóðarinnar og varaði hana
við að láta blekkjast af orðum ó-
hlutvandra manna hvað snerti af-
stöðu samsteypustjórnarinnar.
Kvað hann meðlimi þessarar
stjórnar hafa sökt fyrir borð öllum
ágreiningsmálum flokkanna og
sameinast með það markmið fyrir
augum að gota orðið landi og þjóð
að sem mestu liði. Sagði hann
menn þessa vænta af þjóðinni að
hún gerði slíkt hið sama. — And-
inn f ávarpi Bordens er alt annar
en í yfirlýsingu Lauriers.
-------o-------
B AN D ARIKIN.
Hæli fyrir særða hermenn, eign
Sáluhjálparhersins brann til ösku
þann 5. þ.m. í bænum Patterson, N.
J. í Bandaríkjunum. Sagt er að 18
manns hafi farist í eldi þessum og
enn fleiri meiðst meira og minna.
Á hæli þessu voru að eins aldraðir
og fatlaðir hermenn.
Sagt er að Þjóðverjar hafi nú
stóran flota af loftskipum 1 smíð-
um, sem notast eigi til árása á
strandaborgir Bandaríkjanna. Er
þetta haft eftir merkum lækni, sem
nýlega er kominn til Bandaríkj-
anna aftur úr ferð til Evrópu. Seg-
ir hann að Þjóðverjar muni sigla
loftskipum þessum um þrjár og
hálfa mflu frá jörðu og ætlist þeir
til að geta komist yfir .hafið á 36
klukkustundum. Þó ávinningur
þeirra af herferðum þessum verði
ekki mikill, vilja þeir alt til vinma
að geta skotið hinum “heimska
Bandaríkjalýð” (er þeir svo nefna)
skelk í bringu.
Yfirlýsing Lauriers.
Sir Wilfrid Laurier hefir birt yfir-
lýsingu mikla, sem á að skoðast
“Ávarp til Canadaþjóðarinnai.”
Verður yfirlýsing þessi að sjálf-
sögðu birt orði til orðs í Lögbergi
og Islendingum þar gefinn kostur
á að yfirvega góðgæti það, sem hún
hefir til brunnis að bera. Frá byrj-
un til enda er yfirlýsing þessi
þrungin af fögrum loforðum, þau
reka hvert annað. En það er lengi
hægt að lofa öllu góðu og auðvelt
að tala. Þessi yfirlýsing Lauriers
rná heita endurtekning á stefnu-
skrá liberala árið 1893—sama mærð-
im og því nær sömu loforðin.
Flesta mun reka minni til, að þrátt
fyrir það að stjórn Sir Wilfrids
Lauriers sat að völdum í 15 ár eftir
þetta, gerði hún ekki eina einustu
tilraun til að efna nein af sínum
helztu loforðum. Þegar liberalar
hrökluðust frá völdum, var tollur-
inn sá sami á landbúnaðarverkfær-
um bænda, þrátt fyrir öll þeirra
glæstu loforð.
Ef Sir Wilfrid Laurier hefði viljað
vel gera, átti hann að láta tilleið-
ast að ganga í sambandsstjórnina
og reyna þannig að koma í fram-
kvtemd velvilja sfnum í garð lands
og þjóðar. Þá hefði hamn farið að
dæmi þeirra -liberala, sem mesta og
sannasta þjóðrækni hafa sýnt á yf-
irstandandi tímum. En 'hann gat
ekki fengið sig til þess að stíga
slfkt spor, og afturhald sitt íær
hann ekki afsakað með öðru, en
hve sterklega hann hafi verið því
andstæður að herskylda væri lög-
leidd hér f Oanada. — En hann
forðast eins og heitan eldinn að
minnast á, að hersikyldan var skoð-
uð óumílýjanleg í löndum eins og
Englandi og Bandarfkjunum, lýð-
frjálsustu löndum heims.
Vér höfum skýrt frá þvf rækilega
í blaðinu áður, hvernig Sir Wilfrid
hvað eftir annað reyndi að hnekkja
öllurn tilraunum Sir Robt. Bord-
ens að sameina krafta þjóðarinn-
ar og stofna til samvinnu í land-
inu. Með því að flækja alt og vefja
reyndi hahn af ítrasta megni að
koma samisteypustjórnar tillögunni
fyrir kattarnef, þó allar þeswar til-
raunir h-ans mishepnuðust. Nú er
hann sár-gramur yfir öllu saman
og hugsar á hefndir.
Fagurgali hans um þjóðar at-
kvæði er ekki annað en þýðingar-
laus vaðall. Þátttaka þjóðarinnar í
stríðinu er nú aðal-málið, sem
þjóðin hefir með höndum og alt,
sem bakar ónauðsynlega tímatöí
og óþarfa kostinað dregur úr þess-
ari þátttöu hennar í stríðinu og er
þjóðinni mesti hnekkir. — Um
þetta eru nú flest af helztu blöðum
landsins sammála og birtum vér
hér á eftir ummæli sumra þeirra
um yfirlýsingu Lauriers:
Blaðið Calgary Albertan (Lib.),
segir: “Að ganga til þjóðarat-
kvæða (referendum) nú er jafn-
heimskulegt og ef Frakkar og Eng-
lendingar gengju til þjóðarat-
kvæða um það, hvort þeim bæri
að sendia ítalíu hjálp eða ekki.”
Regina Leader (Lib.) segir: “Sir
Wilfrid Laurier er aJgerlega í mót-
sögn við vilja þjóðarinnar hvað
þátttöku hennar f stríðinu snert-
ir.”
Ottawa Journal Press (Con.):
“Ef Sir Wilfrid ber sigur úr býtum
við komandi kosnin-gar, mun hann
tafarlaust nema herskyldulögin úr
gildi, hvað mikil sem þörí þeirra er.
Engan liðsafla á að senda her-
mönnum þjóðarinnar í nálægri
framtíð — þetta á ekki að gerast
fyr en seint og síðar meir, þegar
búið er að bera herskyldulögin
undir þjóðaratkvæði.”
Toronto World (IndXIon.) segir:
“Quebec fylki er ekiki samhliða öðr-
um fylkjum landsiins í þessu
stærsta alvörumáli þjóðarinn-ar.
Sir Wilfrid gengur alveg fram hjá
þeim sannleik, að valdavogin í
Canada er nú að færast frá Quebec-
fylki til hinna yngri fylkja í Vest-
urlaindinu og að áður en langt
líður -verður alt aðal v-aldið þeirra
megin.”
St. John Standard (Oon.): “Með
þessari stefnu yfirlýsing sinni hefir
Sir Wilfrid Laurier unnið mörg
þúsund atkvæði 1 Quebee fylki, en
tapað enn fleiri þúsundum at-
kvæða í öðrum pörtum landsins.”
Vancouver Sun (Con.): “Það er
ekkert að íin-na f yfirlýsingu þess-
ari, sem ihnekt geti trausti þjóðar-
innar til samsteypustjórnarinnar.”
Fleiri blöð taka í sama strenginn
og verða ummæli sumra þeirra birt
í næsta blaði.
-----o-----
Frá Islandi.
Bftir Vísi, frá 9. ág. til 20. sep.)
Heiðursgjöf Alþingis til Stephans
G. Stephanssonar. —> Á lokuðum
fundi á samein. þingi, sem haldinn
var á laugardagskvöldið (þann 16.
sept.), samþyktu báðar deildir
þingsins að heimila forsetanum að
veita skáldinu Stephani G. Steph-
ánssyni 5,000 króna heiðursgjöf og
telja upphæðina til þiugkosbnr
aðar.
Björgunar tllraunum hþita úr
Goðafossi mun nú lokið og talið ó-
kleift að ná meiru úr skipinu, en
alt lauslegt þegar úr því tekið,
bæði af þilfari og úr skrokknum,
svo sem “spil” öll, vélin, skrúfan o.
s. frv. vSkrúfublaðið eitt hafði ver-
ið svo fast í grjóti, að skrúfan náð-
ist ekki með öðru móti en sprengja
hana frá.
Vatnavexlir hafa verið afsk-apleg-
ir hér sunnanlands núna í rigninga
tíðinni (skrifað 9. ág.), svo að menn
minnast varla annars eins. Á
sunnudaginn braut Hólsá undir
Eyjafjöllum varnargarða og flæddi
yfir tún og engjar næstu jarða og
sópaði burt töðum -af túnum.
Veðrátta er sögð töluvert betri í
Borgarfirðinum síðastþðið sumar,
en átt hefir sér stað aunars staðar
sunnanlands.
Lausn hefir séra Jónas Jónasson
frá Hrafnagili fengið frá kennara
embætti við gagnfræðaskólann á
Akureyri með eftirlaunum. Auk
eftirlaunanna hefir neðri deild al-
þingis samþkt að veita honum
nokkra uppbót.
Stórhýsi þeirra Nathans & Olsens
við Pósthússtræti og Austurstræti
er nú sem næst fullgert og verður
farið að flytja í það úr þessu.
Landsbanki-nn leigir alla neðstu
hæðina og er þegar fluttur Jiang-að,
og hinar hæðirnar munu þegar að
miklu leyti útleigðar fyrir skrifstof-
ur, lækningastofur og eitthvað til
íbúðar. Húsið er hið prýðilegasta
og má gera ráð fyrir, að færri kom-
ist -í það en vilja, þvf staðurinn er
ágætur þarna á allra fjölförnustu
gatnamótum bæjarins. Og spillir
þá ekki, að húsið er alt raflýst, svo
ekki þarf að eiga neitt undir gas-
inu.
Á Au^turstræti er margt manna
á kvöldin, þegar kvikmyndahúsun-
um er lokað og svo var það í gær-
kvöldi. Og í svo miklu margmenni
eru auðvitað alt af margar fallegar
stúlkur. En oft er flagð undir
fögru skinni og á því fékk danskur
unglingur að kenna í gærkvöldi.
Hann sá í hópnum konu svo fork-
unnar fagra að hann tapaði allri
stjórn á sér og ætlaði að faðma
hana að sér. Stújkan vék sér und-
an og hinn ástfangni unglingur
varð enn áfjáðari og gerði aðra til-
raun, en þá var þolinmæði stúlk-
unnar þrotin, og rak -hún honum
löðrung svo að honum lá við falli.
St. G. St. ákáld er á leið hingað
frá Isafirði með vélbátnum “Erl-
ingi” (3. sept.). Stephani var hald-
ið veglegt samsæti á Isafirði og gef-
inn vandaðu göngustafur og fagur-
lega búinn.
Þjóðvinafélagsfundur var hald-
inn í efri deildar sal alþingis 10.
sept. Reikningar félagsins voru
samþyktir og stjórnin endurkosin.
Tryggvi Gunnarsson formaður og
Eirfkur Briem varaformaður.
Þingið samþykti að veita Indriða
Einarssyni 3500 króna eftirlaun.
j ÚRBÆOGBYGÐ
Laugardaginn 3. Nóv. voru þau
Thor Isfeid Jensen frá Elfros, Sask.,
og Elísabet Bjarnason frá Wyn-
yard gefi-n saman í hjónaband «f
séra F. J. Bergmann að heimili hans
259 Spence str.
Benedikt Frímannsson andaðist
á heimili sínu að Gimli, Man., 1.
nóv. síðastl. Jarðarförin fer fram
frá heimili hins látna laugardag-
inn 10. þ.m. kl. 2.30 e. h. — Aðstand-
endur óska að engin blóm verðl
send.