Heimskringla - 08.11.1917, Side 3
WINNIPEG, 8. NOV. 1917
HEIMSKRINGLA
3. BLAÐSIÐA
uppreístarmönnum ró.. efiir þessi
hermdarverk. Fóru þeir þá og fálu
sig utan oæjarins. Y borgin þá
aftur rænd af fólkinu í nágrenn-
inu. Ætlaði það með því að hefna
dauðaib iskupsins á bæj'arbúum.
Konungurmn tók ýmist í tauma
biskupsvaldinu eða bæjarbúum i
vil, þangað til 1239. Frelsi Laon-
borgar var upp úr því ekki þröng-
vað af neinum, þangað til árið 1331,
þegar sveitarstj 'rn þar var afnuin-
in. 1 hundrað ára stríðinu gerðu
Búrgundar árás á borgin^ og tóku
herekildi. Þeir gáfu hana aftur
Englendingum eftir krýningu
Karls VII.
1 styrjöldinni 1814 reyndi Napó-
leon til að hrekja Bluecher úr
bænum. 1 stríðinu milli FVakka og
bjóðvcrja 1870 sprengdi frakknesk-
ur vertofræðingur upp púðurekál-
ann í borgarvirkinu rétt um leið
og þýzka herliðið óð inn í bæinn.
i'jöldi fóltos lét líf sitt. Dómkirkj-
an og gamla biskupshöllin stoemd-
ist. Á dögum stjórnarbyltingar-
innar frakknesku glataði Laon
þeim heiðrl að vera biskups að-
»etur.
l*að er gott að láta viðburðina,
soin nú eru að gerast, kenna sér
eitthvað. Mannkynssagan, som
8’erst hefir á þeim stöðvum, er orðið
hafa ný heljarslóð á vorum dögum,
setti að renna upp í huga manna.
Enginn ætti að lesa svo um þá at-
burði, sem eru að gerast, að hann
ekki verði einhvers fróðari. Menn
œtti að ganga fram og aftur um
þossar orustuslóðir og gera sér 'sem
ljósasta gein þass, sem þar er mark-
vert, og hefir verið fyrr á tírnum,
elns og góðir ferðamenn.
Ósigur Itala.
Sá atburður, sem alt annað hefir
yfirgnæft þessa síðustu viku októ-
bermánaðar er ósigur sá, sem Italir
hafa beðið fyrir Þjóðverjum og
Austurrítoismönnum. t>að Mtur út
fyrir, að afar mikill undirbúning-
ur af liálfu Þjóðverja hafi átt sér
stað allan síðast liðinn mánuð.
Rússar eru ekki lengur ægilegir f
huga Þjóðverja. Allar hemaðar til-
raunir hafa nú verið lagðar iniður
af Rússum að heita iná og þá hefir
Þjóðverjum fundist bezt að láta
þá eiga sig um tíma og nota tæki-
færið’ til að korna rothöggi á eitt-
hvert stórveldið annað í hópi sam-
herja. Þá voru ítalir næstir til að
verða fyrir því. Þarf ekki að ganga
að því gruflandi, að Þjóðverjar
liafa verið ítölum afarreiðir, síðan
er þeir rufu bandalagið við þá og
gengu í lið með óvinum þeirra.
Nú var tækifærið gott að hefna sín.
Enda voru Austurríkismenin
toomnir í krappan sjó. Italir hefði
haft ráð þeirra f hendi sér, of þeir
hefði verið látnir einir um hitu.
Að lítoindum hefði Austurrfkis-
menn samið frið áður langt hefði
liðið og gengið að þeim friðarkost-
um sem Itaiir hefði boðið. En nú
tatoa Þjóðverjar til sinna ráða ig
<lraga fjölda herliðs af austur-
herstöðvuuum og senda suður, her
Austurrfkismanna til eflingar. Nú
hafa þeir gert elna mestu árás, sem
þeim hefir nokkuru sinni iiepnast
að gera, síðan er innrásin var ger
á Fratokland og síðan Hindenburg
gerði sína miklu innrás í Rúss-
land.
Þjóðverjar gerðu áhlaup sitt um
»ama leyti og Frakkar; það hófst
24. okt. í þeim ihluta Mundíu fjalla,
sem kendur er við Julius Sesar.
Þar hittu þeir fyrir vinstra fylking-
ararm ítala. Það hittist svo á,
hvort sém verið ihefði tilviljan ein,
að rétt um sama ieyti segir stjórn
Itala af sér. Ef til vill hafa Þjóð-
verjar rent grun í að það var í að-
sigi oig hún myndi vera í öngum
sínum. Það var vistaskortur í
iandinu, sem virðist hafa verið or-
sök þess, að hún sá sér ekki fært
lengur að bera stjórnarvandann og
sú ólga í þjóðlífinu, sem ávalt verð-
ur því samfara.
ítalir sáu þegar þann kost einan
að draga sig frá Bainsizza-slétt-
unni, sem þeir hafa smám saman
verið að leggja undir sig með afar-
miklum tilkostnaði og erfiðleikum.
Mannafla höfðu óvinir þeirra marg-
faldan, svo að fjórir voru á móti
hverjum einum Itala, eftir því sem
fregnir segja. Afstaða ítölstou fylk-
inganna varð voveifleg þar sem
Þjóðverjar og Austurríkismenn
sóttu að með svo óvígan her að
norðan.
En um leið sóttu óviniirnir af al-
efli í áttina til Gorizia, og á stutt-
um tfma fellur borgin í hendur
þeirra. Að það var með svo fljót-
um svifum, segja síðustu fregnir að
orsakast hafi af heigulshætti nokk-
urra herdeilda í annarri aðaldeild
ítalska ihersins. Foringinn, sem
þar réð yfir, heitir Luigi Capelle. 1
þessarri feikna atlögu er sagt, að
Þjóðverjar og Austurríkismenn
hafi tekið ektoi færri en 100,000
fanga og eiinar 700 fallbyssur.
Ilt er tilhugsunar með fangana
svo marga, því ekki er fangavistin
góð. En ítalir hafa mannafla mik-
inn að sagt er til hermensku og
verði etotoi framhaid af viðburðum
þessum það, að Þjóðverjum hepn-
ist að buga meginher Itala alger-
lega, sem ektoi er að vita nema kom-
ið geti fyrir, verður tiltölulega auð-
veldara fyrir ítali að ná sér eftir
missi svona margra manna, en það
verður að bæta l>að tjón, sem þeir
iiafa beðið með að verða af með
failbyssur svo margar.
Sá þýzkur foringi, sem frægðina
fær fyrir þenna imikla sigur, er von
Mackensen. Eru allar lítour til að
honum takist að komast með her
sinn yfir 'slétturnar allar vestur af
Gorizia. Hann sýnist geta íarið
með her sinn yfir mitoiar fjarlægðir
á örstuttum tíma. Haldi bann á-
fram að gjöra það, eins og verið hef-
ir síðan er áhlaupið hófst, eru allar
líkur til að hann taki enn miklu
fleiri fanga en orðið er og miklu
meira af hernaðargögnuiri. Italir
standa þar svo undur illa að vígi.
Þeir verða að fá svo að segja öll
sín kol frá bandalagsþjóðunum.
Þeir hafa kepst við að senda þeim
kol, því annars er þeim þess varn-
að að smíða nokkur ihernaðar-
gögn í veiiksmiðjum sínum. En
slík hernaðargögn bæði til sóknar
og varnar, eru éngu síður lífsnauð-
syn í hernaði nú á dögum en mik-
ill maninafli, nema að fremur sé,
eins og nú er fyrir löngu kunnugt
orðið.
Tilgangur Þjóðverja er vitaskuld
sá, að vinna nú algeran bug á Itöl-
um, eins og þeim hefir tekist af á-
stæðum, sem ekki þarf að nefna,
gagnvart Rússum. Bæði eru lík-
indi til að þeir komi þá fram með
ný friðartilboð, og svo má búast
við, að þeir hrúgi þá herafla 'sfnum
öllum, mönnum og skotvélum, sam-
an vestan megin á móti Frökkum
og Englendingum.
Hepnist þeim þá að koma fram
vilja sínum eins vel og þeim hefir
tekist í þetta sinn gegn ítölum,
verður friðurinn þýzkur, eins og
leiðtogar þeirra hafa talað um frá
upphafi vega. En næsta ólíklegt
er, þrátt fyrir allar þessar 'sigur-
vinningar á Italíu, að þeim verði
toápan úr því tolæðinu. Léti allar
þessar bandaþjóðir, sem nú eru
orðnar nær tuttugu, Þjóðverja
vinna úrslitasigur nú, eftir að ekki
er lengur hægt um það að tala, að
allir sé óviðbúnir, nema Þjóðverjar
einir, segði eg fyrir mitt leyti, að
samherjum væri það mátulegt.
Það iiggur svo sem í augum
uppi, að annar eins ósigur og sá,
sem Italir hafa beðið, hlýtur að
lengja stríðið meira en lítið. Orð
Northcliffes lávarðar, töluð fyrir
skemstu, ifá nýja merkingu: “Þetta
stríð er að einis byrjað. Engar
staðhafnir er enn unt á að benda,
Royal
Crown
Soap’s Ltd.
GóSSar Jólagjafir — ÓKEYPIS !
/
/
N V R PREMIULISTI ÚTKOMINN!
Vér erum nú að senda út vorn nýja mynda- /
bækling um FRIAR premíur fyrir Royal /
Crown sápu umbúðir. Ef þú færð ekki .' Royal Crown
eintak fljótlega, þá sendu oss nafn y' 0£Winnipég
þitt og áritun á meðfylgjandi /
eyðufonmi. «/ Kæru horrar, — Sendið
mér yðar nýja myndabæk-
a' lint ™ *
The Royal Crown, Ltd.
WINNIPEG
S l>nK um Fríar prcmfur.
y
/ Nafn........................
/
m / Áritun.
sem gefi rétt til að ætla, að skamt
sé eftir til stríðsloka. Á Þýzka-
iandi er alt í góðu lagi,—neana keis-
arinn.”
Lengi, eftir. þvf senn við má búast,
verða nú ítalir að sætta sig við
ef þeir geta veitt óvinum sfn-
um viðnám, einhvers staðar á
sléttum sínum, unz þeir aftur hafa
safnað svo iherliði og hergögnum,
að þeir geti hafið þá írækilegu
framisókn, er þeir hingað til hafa
háð gegn Austurríkismönnum.
Það getur munað svo sem missiri
eða heilu ári í mesta lagi.
Þýzka iherstjórnin veit, að þjóðin
heima fyrir er að verða býsna ó-
þolinmóð yfir framhaldi stríðsins.
Henni er nú líka ljóst, að meiri al-
vara muni verða úr þátttötou
Bandaríkjanna í stríðinu, en þeir
bjuggust við f fyrstu- Svo hefir
l>etta verið aðferðin frá upjíhafi, að
siá citthvert rothögg að hausti, svo
þeir stæði betur að vígi gagnvart
þjóð sinni heima fyrir, sem borga
verður alt fé og fjörvi.
Það er líkt því, sem haft er eftir
gamla Smuts, foringjanum frá Suð-
ur-Afríku, er hann talaði um ít-
alska ósigurinin í Cardiff á Eng-
landi þann 29. okt.:
“Árás Þjóðverja gegn Itölum er
endurtekning þess, sem átt hefir
sér stað ihaustin að undaníörnu.
Þið munið að fyrsta haust styrjald-
arinnar börðu þeir á Serbíu. Þeir
urðu með einhverju iað glæða
vonir fólksinis, til þess að komast
gegn um veturinn. Það var eins
með þá og Salóme og Jóhannes
skírara. Þeir koinu með höfuð
Serbíu á fati. Haustið 1916 komu
þeir með höfuð Rúmenfu á fati, og
nú isjáum við þá hiamast gegn
Itölum.
“ítalir eiga f alvarlegum herkjum,
en ekki til að örvænta yfir. Italfa
veit, að samherjar hennar standa
með henni til lyktia. Við munum
ekki sjá höfuð hennar á fati.
Mig skyldi ekki furða, þó ástralski
þoginn kæmi Þjóðverjum f koll aft-
ur. Stríðið var ektoi útkljáð f
Serbíu og ekki í Rúmeníu. Og það
verður ekki útkljáð á Italíu.
“Á aðal herstöðvunum eru Þjóð-
verjar stöðugt að lúta í lægra
haldi. Hvað eftir annað eru þeir
hraktir af Frökkum og Englend-
inguim.”
Auk Gorizia hefir her Miðveld-
anna tekið borgirnar Cividale og
Udine, báðar meikar borgir. Síð-
arnefnda borgin hefir verið höfuð-
aðsetur ítölsku herstjórnarinnar.
Það er all-stór borg og telur nú
einar 40 þúsundir manns, með hér-
aðinu í kring.
Sagt er, að þegar vinstri fylking-
ararmur ítala lét undan fyrsta á-
hlaupi ihafi það verið sökum þess,
að Þjóðverjar notuðu iniýja og ó-
þekta gastegund. Að minsta kosti
höfðu ítialir ekki vanist henni.
Gastegund þessi hefir þær verkan-
ir, að þeir fá óþolandi kláða um
andlitið, sem fyrir verða. Það freist-
ar hermannanna til að taka af sér
grímuna, en þá hefir gasið drep-
andi áhrif.
Nú hefir nýtt ráðuneyti verið
myndað á ítalíu og heitir sá pró-
fessor Orlando, sein hefir hlotið það
hlutskifti að verða foreætisráð-
iierra. Hann hafði verið mjög
hlyntur lilutleysi ftallu, áður en
ftalir stoárust í leikinn. Lfkindi eru
til að hættan, sem land og þjóð nú
er í, verði til þess að hernaðarhug-
urinn með þjóðinni verði meiri en
ekki minni og hér eftir einmitt auð-
veldara að eiga við þann mótþróa,
sem átti sér stað í landinu. Þjóð-
frelsi ftala er nú meira en nætur-
gamalt og það þarf naumast að
gera því skóna, að hernaðarhugur-
inn bili eiirs og með Rússum.
Borgin Gorizia eða Gorz.
Hún liggur í Austurríki og nefna
Austurríkismenn hana Gorz, en á
ftölsku heitir borgin Gorizia. Hún
er höfuðborg í krúnulandi því í
Austurríki, er Gorz nefnist og
Gradisca. Borgin liggur 390 mílur
suðvestur frá Vínarborg eftir járn-
braut. Árið 1900 var íbúatalan þar
25,432 manns. Tveir þriðjungar íbú-
anna eru ftalir, svo von er, að ítöl-
um finnist, að hún eigi að heyra
þeim til. Einn þriðjungur íbúanna
eru að mestu Slóvenar og Þjóð-
verjar.
Borgin er prýðis vel sett og út-
sýn fögur og hrffandi. Hún stend-
ur á vinstra bakka Isonzo-fljótsins,
f dal einum frjósömum. Hún er 35
mílur norðvestur frá Triest með
járnbraut. Hún er aðsetur erki-
biskupsins. Þar er dómkirkja, sem
þykir mjög merkileg, reist á 14. öld.
Þar er líka hin marg-prýdda kirkja
lieiiags Ignatiuss, reist á 17. öld af
Kristsmunkum.
Hæð ein gnæfir yfir borgina og á
hæðinni stendur borgarkastalinn
gamli. Þar sátu Görz-greiíarnir
forðum. Nú er kastaiinn að mestu
leyti notaður til bermannastoála.
Þar er veðurblíða hin mesta á vetr-
um og vcgna hennar er borgin vetr-
arbústaður fjölda fólks, víðs vegar
um Norðurálfu. Hefir borgin verið
nefnd Níkea Austurríkis.
Bærinn er prýddur mjög yndis-
legum lystigörðum, fullum blómst-
ur skrauts suðurlanida. Á hæð
einni norður af bænum liggur
klaustrið Castagnavizza. í klaust-
ur kapeiiunni liggja leiifar Karls X.
Frakka konungs (d. 1838), síðasti
konungur af ætt Burbona. Þar
hvílir einnig hertoginn af Angou-
leme (d. 1844), sonur Karls, og her-
toginn af Chambord, »em lézt 1883.
Sjö mflur norður frá Gorizíu ligg-
ur fjailið Monte Santo og er 2,275 fet
á hæð. Þangað sækja miklir her-
skarar fóiks, því á fjallinu stendur
gömul pílagríma-kirkja. Iðnaður
talsverður er í bænum. Eru þar
vefnaðarverkstæði mikil, sem vefa
bæði úr bómull og silki. Þar er
sykurgerð alLmikil og ölgerð. Einn-
ig er mikið gert af munum úr leðri
og svo nefnt 'sóldaggarvfn ku'nma
bæjarbúar að gera, er þykir fyrir-
taks gott. Þar er líka heilmikil
verzlan með alls konar viðarverk,
garðávexti, aldini og vín. Um Gor-
izia er fyrsta sinni talað f hyrjan
11. aldar og fekk hún stofnskrá sem
bær 1307. Um miðaldirnar allar
var stærsti hluti íbúanna Þjóð-
verjar. Nú er borgin að lang-
mestu leyti ítöisk.
Ítalir tóku Gorizia 9. ágúst 1916
og var borgin aftur tekim af Mið-
veldunum 25. okt. 1917.
Bærinn Cividale del Friuli.
1 fyrndinni var bær þessi nefnd-
ur Forum Julii. Hann liggur i Fen-
eyja-fyiki, í Udine-héraði, 10 mílur
norðaustur frá borginni Udine
með jármbaut. Ibúatala var þar
árið 1901,-4,143. En í héraðinu öilu
voru 9,061. Bærinn liggur við Nati-
sone ána og er í henni foss rétt við
bæinn, sem þykir íyrirtaks fagur.
í bænium eru töluverðar listaleifar
frá 8. ötd. Dómkirkjan er frá 15. öld
og í henni áttstrendur himinn með
upphieyptu bíldiiöggvaraverki úr
marmara, uppi yfir iskínarfonti frá
8. öld, sem þó síðar hefir verið
nokkuð breytt. Háaltarið í kirkj-
unni er alt úr hreinu silfri að fram-
an og var það smíðað árið 1185.
Listasafn er þar og á því forn-
gripir frá Rómaborg og Langbarða-
landi. Dýrmæt handrit eru þar líka
geymd. Listaverk eru þar úr gulli,
silfri og fílabeini, sem áður mun
iiafa lieyrt dómkirkjunni til. Litla
kirkjan, sem nefnist Santa Maria
in Valle, er frá 8. öld og í henni alls
staðar listfengar skrautmyndir frá
11. og 12. öld. Þar er djöfuls brúin,
Ponte del Diavolo, sem liggur upp
að kirkju heilags Marteinis. 1 henni
er altari frá 8. öld með híldhöggvara
verki, sem gert var eftir fyrirskip-
unum Ratchis, Langaharðakon-
ungs. Paulus Diaconus, sagnaritari
Langbarða, sem uppi var á dögum
Karlamagnúsar, var fæddur í Civi-
dale. Þar var lífca fædd ágæt leik-
kona í nýrri tíð, Adelaide Ristori,
fædd 1822, dáin 1906.
Rómverski bærinn eða sveitarfé-
lagið (municipium), er nefndist
Forum Julii, var stofnaður annað
hvort af Júlíusi Sesar eða Ágústusi,
lfklega um sama leyti og lijóðvegur-
inn, sem nefndist Via Iulia Aug-
usta, og lá í gegn um Utina, nú
Udine, þar sem stefnt var í norður.
Eftir að Aquileia og Iulium Carnis-
um ientu í afturför, varð bærinn
lielzta þorp i Friuli-héraðinu, sean
gefur bænum nafn. Aquileia-feð-
urnir bjuggu ihér frá 773 til 1031. Þá
iiurfu þeir aftur til Aquileia. og
loks til Udine 1238. Þessi síðasta
tilbreyting orsakaðist af ágreiningi
milli Cividale og Udine, sem að
lyktum varð til þess, að báðir bæ-
irnir urðu háðir Feneyjum, annar
1419, hinn 1420.
Engin verð=
hækkun á 3
j Þegar allir hlutir
OVllTYI svo mjög í verSi,
C&I Ulli síSan stríðiS hófst, þá hlýtur
það að vera ánaegjuefni fyrir
þá, sem meta gott kaffi, að vita, að engin
verðhaekkun hefir átt sér staS á Red Rose kaffi
á þremur árum, — og aukin sala á Red Rose
kaffi á þeim tíma sýnir, aS verSiS er metiS.
Fólk alstaSar virSist nú brúka meira kaffi
en áSur. — Red Rose Te er drjúgt vegna yfir-
burSa í gaeSum, — en Red Rose Kaffi er baeSi
gott og billegt—hvorttveggja kostir, sem meta
má, nú á þessum stríSstímum.
Red Rose Coffee
Aðal-iðnaður bæjarins er silki-
spuni. En auk þess er þar línvefn-
aður og bómullar, hatta og papp-
írsgerð. Þar er inokkur verzlan með
hamp og hör. Járnbrautir tengja
bæinn við umihverfið.
Uppruni Udine horgar er óljós.
Hún er að sönnu á þjóðbrautinni
Via Iulia Augusta, sem áður er
nefnd, en engar sannanir eru fyrir
hendi um, að bærinn hafi verið til
í fornöld. Á miðöldum varð lvann
blómleg og fólksmörg borg. Á ár-
unum 1222 og 1238 gerði Berthold
patríarki hana að höfuðborg
Friuliihéraðsins og 1420 féll hún til
Feneyja. Árið 1752 var hún gerð að
aðsetri erkibiskupsins.
(Framh. á 7. bls.)
----o------
Fréttabréf.
Borgin Udine.
Hún heyrir til erkibiskupsdæmi
Femeyja á ftalíu og er höfuðborg í
héraðinu Udine, sem iiggur á miili
Feneyja-flóa og Mundíufjaila, 84
mílur með járnbraut norðaustur af
Feneyjum. Árið 1906 voru í borginni
taldir 25,217 íbúar, en 40,629 í hérað-
inu öllu. Gömlu virkisgarðarnir um
bæinn voru rifnir fyrst síðast á 19. |
öld. Kastalinn gamli, sem eitt si'nin j
var aðsetur Aquileiu-feðranna og
nú er notaður sem prísund, varj
reistur af Giovanni Fontana 1517, i j
stað annare kastala, sem brunnið
hafði f landskjálfta 1511. Dómkirkj-
an er í rómömskum stíl og í henni
eru margir ihugðnæmir munir, sem
eru vitnisburður um þá list, er
þarna átti eitt sinn heirna. Þar
var einn af lærisveinum Raphaels,
að nafni Giovanni da Udina.
Á helzta skrautvelli bæjarins
stendur borgarhöllin, reist 1448—
1457. Hún er í gotneskum Feneyja-
stíl, og mjög haglega endurbætt
eftir eldsvoða 1876. Gegnt henni er
klukkuturn, í líkingu við þann,
sem stendur á Piazza di San Marco
í Feneyjaborg. Á skrautvellinum
er standmynd, líkneski friðariuB,
til endurminningar um friðinn 1
Campo Formio 1796.
Spanish Fork, Utah,
27. okt. 1917.
Herra ritstjóri:— •
Síðan eg skrifaði þér seinast, hef-
ir lítið skeð af verulega söguiegum
viðburðum. Tíminn iíður áfnam
fremur rólega, og inndæít hefir
tíðarfarið verið í alt haust. Snjór
eða regn hefir ekki gert vart við
sig enn þá; hefir því öll nauðsyn-
leg haustvinna gengið í Ibezta lagi,
Oig uppskeran varð mikið góð yfir-
leitt á öilu, sem sáð var til og vana-
lega er uppskorið hér um slóðir.
Verð á öllum mögulegum hlutum
er hátt og gott, atvinna sæmiieg
og 'heilsufar fremur gott. Yfirleitt
er því líðan vor á meðal í bezta
lagi.
Hinn 11. septemiber síðasti. and-
aðist að heimili foreldra sinna hér
í bænum unglings pilturinn Valter
Guðmundsson, sonur herra Guð-
mundar Eyjóifssonar og konu hans
Ingibjargar Jónatansdóttur, hjóna
hér í Spanisth Fork. Hann var
rúmra 26 ára að aldri, fæddur 2.
maí 1891, dugnaðar og myndar pilt-
ur, ótovæntur.
Lfka andaðist að heimili sínu hér
í bæ, hinn 28. sama mánaðar, sept-
ember, bóndinn Ketill Eyjólfsson,
föðurbróðir hinis fyrnefnda. Hann
var 52 ára að aldri, fæddur á Is-
landi 7. október 1865, sonur Eyjólfs
bónda Guðmundssonar á Eyrar-
baktoa á Vatnsnesi í Húnaþingi,
Ketilssonar frá Móbergi. Hann
lætur eftir sig ekkju, tvo bræður og
fjórar systur, og 10 börn, næstum
öll í ómegð.
4--------------------------------V
Ketill var dugnaðar og iharð-
neskju maður, eins og hann átti
kyn til að rekja, og komst furðu vel
áfram, þrátt fyrir slæmt slys, sem
hann heníi fyrir 16 eða 17 árum
síðan, að hann varð undir járn-
brautarlest og misti við það hægri
fótinn upp að miðju læri, og varð
síðán að ganga á korkfæti, sem oft
inun hafa verið erfitt við staut og
snúninga í baráttunni fyrir lífinu.
En hann bar sinn kross með frá-
bærri hreysti og þolinmæði og
sýndist komast áfram næstum eins
vel og þeir, sem hafa heilbrigða
báða fætur. Dauðamein hans á
endanum var nýrnaveiki.
Öllum öðrum löndum vorum iíð-
ur bæriloga, utam Sigurði bónda
Árnasyni; hann hefir nú legið
rúmfastur um tveggja ára tíma,
þjáður af gigt og máttleysi ihægra-
megin í öllum líkamanum, og eru
það mikil viðbrigði, skoðað frá
umliðna tímanum, því Sigurður
var á yngri áruin sínum inesta
hraustmenni og burðamaður mik-
ill, og um langt skeið einn af vor-
um beztu dugnaðar og fyrirmynd-
ar bændum í Spanish Fork.
Um stríðið þýðir ekkert að tala,
það sést og heyrist ntjg um það
daglega. Einlæg.t er samt verið að
kalla vora ungu menn til þess
starfa. Á imeðal landa vorra, eða
öllu heldur af fslenzkum ættum,
hefi eg heyrt getið um 5, sem til
herþjónustu hafa verið kallaðir;
gengu tveir af þeim í sjóliðið sem
sjálfboðar, tveir fengu undanþágu
um hríð, vegna þess þeir voru
kvongaðir og höfðu fjölskyidur til
að sjá fyrir; en einn varð að fara í
landherinn, og er nú sem stendur
í “Camp Lewis, Washington”. En
allir ifrá 21'—31 ára urðuáð skiá-
setjast, svo búist er við að margir
þeirra verði einnig að fara, þegar
toallið kemur. Skal eg síðar geta
um nöfn þeirra og ætterni.
Með vinsemd,
E. H. Johnson.
Ný og undraverð
uppgötvun.
Eftir tlu Ara tllraunir og þungt
erfiði hefir Próf. D. Motturas upp
götvað meðal, sem er saman
blandað sem áburður, og er á-
byrgst að lækna hvaða tilfeili
sem er af hinum hræðilega sjúk-
dómi, sem nefnist
Gigtveiki
og geta allir öðlast það.
Hví að borga lækniskostað og
ferðakostnað í annað loftslag, úr
því hægt er að lækna þig heima.
Verð $1.00 flaskaan.
Póstgjald og stríðsskattur 15c.
Einika umboðsmenn
MOTTURAS LINIMENT CO.
P. 0. Box 1424
(Dept. 8) Winnipeg, Man.
Hafið þérborgað
Heimskringlu ?
HRAÐRITARA
OG BÓKHALD-
ARA VANTAR
Það tr orðið örðugt að fá
seft skrifstofufólk vegna
þess hvað margir karlmenn
hafa gengið í herinn. Þeir
sem lært hafa á SUCCESS
BUSINESS College ganga
fyrir. Success skólinn er sá
stærsti, sterkasti, ábyggileg-
asti verzlunarskóli bæjarins
Vér kennum fleiri nemend-
um en hinir allir til samans
—höfum einnig 10 deildar-
skóla víðsvegar um Vestur-
landið; innritum meira en
5,000 nemendur árlega og
eru kennarar vorir æfðir,
kurteisir og vel starfa sín-
um vaxnir. — Innritist hve-
nær sem er.
The Success
Business College
Pttrtage oic Ednonton
WINNIPEG