Heimskringla - 21.04.1920, Síða 4
4. BLASSI9A.
HEIMSKRIN GLA
\7L\NIPEGt> 21. APRIL 1920.
WINNIPEG, MANITOBA, 21. APRÍL, 1920.
Conservativar
hervæðast.
i.
Conservativaflokkurinn hér í fylkinu er nú
kominn á stúfana og farinn að búa sig undir
hina komandi kosnmgahríð. Útnefninga-
fundir hafa verið ákveðnir víðsvegar um fylk-
ið, til að tilnefna merkisbera flokksins í hin-
um ýmsu kjördæmum, því í hverju einasta
kjördæmi verður conservativa-þingmanns-
efni í vali.
Á flokksþinginu í fyrrahaust var, eins og
menn muna eftir, engin stefnuskrá samin.
. Var ákveðið að það skyldi bíða betri tíma, er
nær drægi kosningum. Nú hefir svo verið
gert. Mættu fulltrúar frá öllum kjördæmum
fylkisins hér í borginni á miðvikudaginn var
og komu sér saman um stefnuskrá fyrir flokk-
inn, sem í öllum atriðum er bæði frjálsleg og
víðtæk. Hún er í 14 greinum- Fyrstu tvær
greinarnar eru um skattamál. Vill flokkurinn
afnema beina skatta af landi og breyta því
niðurjöfnunarfyrirkomulagi, sem Norrisstjórn-
in hefir komið á, og mjög óvinsælt hefir reynst
meðal bænda. Flokkurinn vill og afnema
skattanefndina og láta stjórnardeild sveita
málastjórans hafa með þau mál að gera, og
jafna sköttunurti sem jafnast niður á alla, svo
að ein stétt sé ekki ver sett en önnur í þeim
efnum.
Fjármálum fylkisins vill flokkunnn koma
í betra horf en nú er, og afstýra því fjármála-
bralli, sem Hon. Edward Brown hefir innleitt
í fjármálabúskapinn. Mun engin vanþörf
sh'ku, því eins og nú horfir málunum, er Mani-
tobafylki í sama flokki og fjárhættuspilarar,
og er það engan veginn ábyggilegt til fram-
búðar. Conservativaflokkurinn vill koma
festu og ráðdeild í fjármálabúskapinn og
t stjórna honum með sparsemi og hagsýni.
í>á vill flokkurinn eiga vingott við kven
þjóðina. Vill veita henni jafnrétti við karl
mennina í öllum greinum. Það er ekki nóg
að konur og stúlkur hafi kosningarétt og kjör-
gengi, þær þurfa líka að vera jafnar fyrir lög-
unum og karlmennirnir, en það eru þær ekki
T. d. eru hjónaskilnaðarlögin þannig úr garði
gerð, að konan á afar örðugt með að fá skiln-
að frá manni sínum, en auðvelt fyrir hann að
skilja við konuna. Nú vill conservativaflokk
urinn breyta lögunum þannig, að konan get\
fengið skilnað á sama grundvelli og maður
inn, fyrir sömu sakir og með sömu gögnum
Einnig er það ætlun flokksins að láta konur
fá full umráð yfir heimanmund sínum og sér-
eign, og að veita þeim jafnan rétt til embætta
sem karlmönnum. Skipa kvendómara við
unglingaréttinn, og láta löglærða kvenmenn
færa þau sakamál ef hendi hins opinbera, sem
snerta konur. Einnig að kviðdómslögunum
verði þannig breytt, að konur fái setið í kvið4-
dómi- I stuttu máli, conservativaflokkurinn
vill að kvenmaðurinn verði jafnoki karl-
mannsins í öllu á sviði hins borgaralega réttar
og laga.
Mestar umræður urðu á flokksþinginu um
vfnbannslögin, og framkvæmd þeirra í hönd-
um Norrisstjórnarinnar. Voru allir sammála
um, að þeim hefði verið hneykslanlega fram-
fylgt og að úr slíku yrði að bæta. Sumir
voru þeirrar skoðunar, að útrýming vínsins
úr fylkinu með 'öllu yrði affarasælust. Aðrir
vildu að löggiltir vínsalar (vendors) hefðu
söluna með höndum undir umsjón stjórnarinn-
ar; og eins voru nokkrir, sem vildu með öllu
útrýma sterkum drykkjum úr fylkinu<en inn-
leiða sölu ölfanga og léttari víntegunda. En
allir voru sammála um það, að opna ekki hót-
elkrárnar undir nokkrum kringumstæðum.
Svohljóðandi þingsályktun var að lokum sam-
þykt:
“Conservativaflokkurinn er ákveðinn á
móti hótelsölu vínfanga, en Iofar því hátíð-
lega, nái hann völdum, að leita vilja kjósend-
anna við almenna atkvæðagreiðslu viðvíkj-
andi notkun og stjórn vínfanga.”
Ýms önnur mikilsvarðandi mál tók flokks-
þingið til meðferðar. Var það einhuga vilji
manna að hlynna meira að mentamálum fylk-
isins en gert hafði verið að undanförnu, og
að reisa nýja háskólabyggingu. Núverandi
háskóli er fylkinu til háðungar og skamnfhr,
og sannarlega tími til þess kominn að annar
nýr- komi í hans stað. Þá vildu þingmenn
nota vatnsorku fylkisins meira en gert hefði
verið, og koma raffiflskerfi um gervalt fylkið.
Þá var minst á námuauðlegð fylkisins, og talið
sjálfsagt að hlynna sem mest að henni. En
sérstaklega faost þinginu lífsskilyrði að hlúa
sem mest að landbúnaðinum, því á honum
hvíldi vegur og velgengni fyikisins.
Samþykt var að skora á sambandsstjórn-
ina að ljúka sem fyrst við byggingu Hudsons-
flóabrautarinnar, og skuldbatt flökkurinn sig
til að róa að því öllum árum, að byggingu
hennar yrði lokið sem fyrst, því Hudsonsflóa-
brautin færði vesturfylkjunum ómetanleg
hlunnindi, og mundi styðja að framförum
þeirra. Þá var og samþykt að skora á sam-
bandsstjórnina að afhenda fylkinu lönd þess
og landkosti, sem nú væru sanabandseign-
Einnig að koma á fót sérstakri atvinnumála-
stjórnardeild með fullveðja ráðherra.
Margt og mikið var talað um hin ýmsu mál,
sem að framan er minst, en samþyktimar voru
í þá áttina, sem greint hefir verið, og þær em
loforð conservátivaflokksins, komist hann til
valda; loforð, sem verða fullnægt og fram-
kvæmd. t
•
II.
R G. Wiilis, leiðtogi conservativaflokksins,
hélt snjalla ræðu í þingbyrjun. Meðal ann-
i ars komst hann svo að orði: ^“Kosningarnar
em í nánd, en hin pólitíska afstaða er þannig,
að ómöuglegt er að gera sér í hugarlund,
hvernig þær muni fara. Nýir og nýir stjóm-
málaflokkar em að rísa upp á hverju strái, og
flokksriðlunin er svo mikil, að illmogulegt er
að reikna styrkleik flokkanna. Þessar kosn-
ingar eru þær fyrstu hér í fylki, sem kvenþjóð-
in hefir atkvæði í, og gerir það ekki flokks-
línurnar greinilegri. En alt um það em sigur-
horfur conservativaflökksins alt eins góðar og
nokkurs annars flokks. Og það veit eg með
vissu, að þó við fáum máske ekki meirihluta
þingmanna, þá mun Norrisstjórnin falla við
kosningarnar.
Allir hugsandi menn og konur ættu að hafa
áhuga á stjórnmálunum. Þau snerta hvern
og einn meira en hann kanske grunar.
Norrisstjórnin hefir lagt fylkisbúum þungar
skattabyrðar á herðar, og þær þyngjast ár frá
ári. Það er ekki hin minsta ástæða til þess,
að auka fylkisútgjöldin um $5,000,000, eins
og Norrisstjórnin hefir gert, og altaf hefir hún
farið versnandi í þeim efnum.
Það em aðeins tæpir þrír mánuðir til kosn-
inganna. Hafið það hugfast og vinnið sem
góiðir borgarar þessa fylkis fyrir hagsmunum
þess og heiðri. Vinnið fyrir conservativa-
flokkinn, sem nú, eins og áður fyrri, mun
reynast bjargvættur fylkisins og hlíf. Fylkið
ykkur undir merki hans og vinnið vel og
dyggilega, og sigurinn er vor.”
III.
Hinar fjórtán greinar stefnuskrárinnar eru
svohljóðandi:
1. Afnám hnina núverandi beinu skatta á
landi.
2- Afnám skattanefndar fylkisins og laga-
ákvæðisins um niðurjöfnunargrundvöll á 100
prósent peningalegs verðmats, og að koma
skattamálunum undir sérstaka dómþmghá
undir handleiðslu sveitamálastjórnarinnar.
3. Afnám hins óforsjála fjármálabralls, sem
viðgengist hefir í fjármálabúskapnum, og að
koma honum á fastan og ábyggilegan grund-
völl, og að gæta sparneytni og ráðdeildar í
stjórnarbúskapnum.
4. Afnám hinna ýmsu stjórnarnefndar, og
endurreisn ábyrgðarfullrar stjórnar, sem ein
beri fulla ábyrgð framkvæmdarvaldsins.
5. Koma á fót fullkomnu jafnrétti milli
karla og kvenna. Koma því til leiðar, að
kvenþjóðin sé jöfn fyrir lögunum í hjónaskiln-
aðarmálum, erfðamálum, og öðrum þeim lög-
um, sem halla nú rétti hennar. Að konur
verði skipaðar dómarar við unglingaréttinn,
og að konur verði lögmenn hins opinbera í
sakamálum gegn kvenmönnum, og að kvið-
dómslögunum verði þannig breytt, að konur
fái þar sæti.
6. Að styðja að velgengni og eflingu Ian J-
búnaðarins með ráði og dáð.
7. Að bæta vegi og samgöngur.
8. Að vinna að samvinnu milli verkamanna-
stéttarinnar og verkveitenda, með því að
stofna sérstaka atvinnumálastjórnardeild und-
ir stjórn fullveðja ráðherra.
9. Að láta fylkisbua fá kost á að Iáta vilja
sinn í ljós um vínbannslögin með almennri at-
kvæðagreiðslu, samkvæmt fyrirmælum sam-
bandslaganna.
10- Að krefjast af sambandsstjóminni
landa og landkosta fylkisins.
I I. Að vinna eindregið að mentamálum
fylkisins, og að byggja nýjan háskóla fyrir
Mamtoba.
12., Að nota vatnsorku fylkisins og koma
“hydro-electric” leiðslum um alt fylkið.
13. Að aðstoða námuiðnað fylkisins.
14. Að heimta fullgerning Hudsonsflóa-*
brautarinnar.
IV.
Fyrir fimm árum síðan álitu conservativar
hér í Manitoba að stjórnarfar fylkisins væri
orðið slærnt, og gengu því á móti þeirri stjórn,
sem þá var við völdin, þó conservativ væri,
og í lið með andstæðingunum. Flokkn-
um var það fyrir mestu að fylkið hefði góða
stjóm, hver svo sem flokksliturinn væri. Nú
hefir flokkurinn aftur sannfærst um, að slæm
stjórn sitji við völdin, og verri hinni fyrri.
Roblinstjórnin, með öllum sínum göllum,
kunni þó að búa. t Fjárhagurinn var í góðu
lagi og Iánstraust fylkisins ótakmarkað, og
rmklir peningar jafnaðarlega f bönkunum.
Alþýða manna hafði létta skattabyrði og
þurfti ekki að óttast nýja og nýja skatta svo
að segja á mánuði hverjum. Fjárlög stjórn-
arinnar voru venjulegast innan við tekjuvé-
böndin. Framfarir voru um alt fylkið og
menn undu hag sínum vel- Fimtán ára stjórn
conservativa hafði þannig reynst fylkisbúum
giftusamleg, og mesta framfaratímabilið í
sögu fylkisins, því mun enginn neita.
En svo komhrunði, en slíkt kemur fyrir all-
ar stjórnir fyr eða síðar, og á venjulega rót
sína að rekja til þess, að stjómin er orðin “of
gömul” í sessi, og efasemdir og tortrygni hafa
nagað sundur líftaugarnar, og öfugstreymi
tíðarandans dregið svo alt í kaf með sér.
Conservativaflokkurinn gerði hreint fyrir sín-
um dyrum, og Norrisstjórnin settist að völd-
um. I fimm ár hefir hún ríkt með skömm.
ÖH sín fögru og mörgu loforð hefir hún svik-
ið, steypt fylkinu í botnlausar skuldir, og ver-
ið dáðlaus, svikul og þrællynd. Ef stjórnin
hefði verið sparneytin, hefðu þá útgjöldin
vaxið um $5,000,000? Eða ef hún hefði
verið framkvæmdasöm, myndi vínlaga-
hneykslið hafa átt sér stað ?
Þess vegna er það að conservativaflokkur-
inn hervæðist nú fyrir kosningarnar og hygg-
hækkað um 131 og 122 % í París
og úti um land. Meðalhækkunin á
kaupi var orðin um 90% þegar
verðlag hafði hækkað frá 84—
100%. Það verður ekki að svo
stöddu fullyrt, hvort kaupgjaldið
haíði hækkað að sama skapi sem
vöruverð í árslok 1919, en líkindi
eru þó til þess að svo hafi verið.
Þýzkaland.
I ágústmánuði 1919 hafði verð
á matvörum venjulegrar fjölskyldu
hækkað um 240%- Nú mun
hækkunin ekki fara fjarri 300%
Þessar áætlanir eru miðaðar við hið
lögskipaða verð, en ólögleg verzlun
var mjög algeng, svo að í raun og
veru var hækkunin mikið meiri,
Opinber skýrsla eftir prófessor
Cassel segir matvæli hafa hækkað
í verði um 500 % síðan 1914.
Þegar voptiahlé var samið höfðu
vinnulaun karlmanan hækkað um
141 % og kvenna, sem unnu í verk-
smiðjum, um 164%. Síðustu op-
inberar skýrslur, frá áreiðanlegum
heimildum, segja tímakaup hafa
hækkað um 200% í borgum, en
vikukaup aðeins um 132% (lik-
Iega af því að vinnustundafjöldi á
viku hefir lækkað). Sömu skýrsl-
ur segja vinnulaun í Berlín hafa
hækkað um 250% á klukkustund,
en vikukaup hafi hækkað um 300
%. Er auðsætt af þessum tölum
öllum, að kaup hefir ekki hækkað
hlutfallslega við verðlag matvæla.
Bandaríkin.
1 desembermártuði s. I. töldu
opinberar skýrslur matvælaverð
hafa hækkað um 88%.
Kaup karlmanna hefir hækkað
um hér um bil 90% og kvenna um
70%. Hefir þá hækkun kaups og
verðlags nokkurnveginn haldist í
hendur.
^ Svíþjóð.
Matvælaverð (ásamt ljósmeti og
V 9k
|KI DNEY |
mMwsm
kidne^
Dodd’s Kidney Piiis, 50c askjan,
eða sex öskjur fyrir $2.50, fajá öH-
nm lyfsöíum eða frá
The DODD’S MEDICINE Co.
Torooto, Ont.
Canada.
Hér í Canada hefir matvælaverð’
hækkað að meðaltali um 80%.
Kaup karlmanna hefir hækkað
að meðaltali um 85%, en kven-
manna um 65%. Eru því hhit-
föllin milli kaups- og verðlagf-
hækkunar nokkurnvegin hin sömu.
ur að hreinsa stjórnarbælið. Meirihluti þeirra .
þingmanna úr stjórnarflokknum. sem setið i eldsneyti) hafði hækkað um 230
hafa á undanförnum þingum, voru kosnir fyrir | f ,S“;Oopinbfe™m íyrslum; ,f
þá sök að conservativar studdu að kosnmgu frslok 191 *“/*">?* e!"eJUr
þeirra af ráðum og dáð. En þessir sömu þing- j ‘ a var °r 1 ars °
að einum eða tveimur undanskildum, f, 0Pinbe[arr skyrslur um kaup-
i hækkun hara ekki birzt siðan 1
árslok 1918; var þá 144%, en
menn,
hafa reynst auðsveipnar og viljalausar rolur,
sem dansað hafa eftir nótum stjórnarinnar;
verið viljalaus verkfæri og ekkert annað.
' Það er nú tími kominn til þess að skifta um,
og þess vegna hefir conservativaflokkurinn á-
kveðið að hafa þingmannsefni í hverju kjör-
dæmi fylkisins, og berjast af alefli gegn
stjórninni og dilkum hennar. Berjast fyrir
velferð fylkisins og heiðri, fyrir hinu sanna
og rétta; berjast þar til Norrisstjórninni er
hrundið af stóli, og önnur er komin í hennar
stað, sem fær er að stjórna Manitobafylki og
sjá hag þess borgið.
Kosningarnar munu að öllum líkindum fara
fram laugardaginn 10. júlí.
Þá gerast tíðindi með þjóð vorri, og þau
stór.
Kaup og verðlag.
Nokkra undanfarna mánuði hafa kjörnar
nefndir gert ítarlegar rannsóknir á hækkun
lífsnauðsynja og vinnulauna verkamanna í
hinum helztu iðnaðarlöndum heimsins. Stjórn
hvers lands hefir skipað sína nefnd, og hafa
þær lokið störfum sínum og er mælt að stjórn-
irnar ætli nú að athuga þær staðreyndir, sem
fengist hafa.
“Times” birtir neðanskráð yfirlit um þetta
efni frá löndum þeim, sem nú skal greina:
Stór-Bretland og írland-
I lok janúarmánaðar 1920 hafði smásölu-
verð hækkað um 136% síðan 1914. Ef öll
útgjöld verkamanna voru samanlögð, þá
höfðu þau hækkað lítið eitt minna, eða um
125%.
Vinnulaun hafa hækkað á þessu tímabili til
jafnaðar um 120—130%. Áætlanir þessar
eru miðaðar við venjulega viku; en með því
að vinnustundafjöldinn á viku hefir iækkað,
hefir tímakaupið aukist hlutfallslega. At-
vinna er upp og ofan svipuð því, sem hún var
1914.
mun nú að líkindum meiri.
Italía.
I apríl 1919 var hækkun mat-
vælaverðs orðin 181 %. Nýrri
skýrslur hafa birzt frá borginni
Milano, þar sem hækkunin var
orðin 298% í desember 1919- En
lífsnauðsynjar hafa ávalt verið þar
í háu verði, og mun óhætt að gera
ráð fyrir, að verðhækkun í öðrum
landshlutum hafi til jafnaðar verið
240%.
I júnímánuði 1919 var kaup-
hækkun áætluð 183%. Það verð-
ur þess vegna ekki séð, af skýrslum
þeim, sem enn hafa birzt, að verka-
mönnum á Italíu hafi neitt til líka
tekist að hækka kaup sitt í hlutfalli
við vaxandi dýrtíð. Einhver kaup-
hækkun hefir þó orðið þar síðan í
júnímánuði, en áreiðanlegar skýrsl-
ur um harja eru enn ekki fram
komnar.
Danmörk.
I janúarmánuði síðastliðnum
töldu opinberar skýrslur að rnat-
vælaverð hafi hækkað þar um 180
prósent að meðaítali.
Kaup karlmanna hefir hækka
hér um bil um 100% og kvenna
um 75%, eftir skýrslum um ára-
mótin.
i
Frakkland.
Opinberar skýrslur sýna að viðsíðustu ára-
mót höfðu fæðutegundir og Ijósmeti til heim-
ilisþarfa stigið í verði um 185 % í Parísarborg
en um 201 % í öðrum stórborgum.
I árslok 1917 höfðu vinnulaun karlmanna
hækkað um 50—73% í París, en 50—70%
í öðrum landshJutum. Laun kvenna höfðu
Holland.
I desembermánuði síðastliðnum
töldu opinberar skýrslur matvæla-
verð þar hafa hækkað um 201 %,
en kaupgjald um aðeins 75 % fyrir
karlmenn og 50% fyrir kvenfólk.
Noregur.
Opinberar skýrslur sýna að verð-
hækkun á matvælum síðan 1914
hafi numið í50 % að meðaltali.
Sumar fæðutegundir hafa hækkað
upp í 250%, en aðrar, svo sem síld
hafa hækkað tiltölulega lítið í
verði.
Kaupgjald hefir hækkað um 50
—150%, segja skýrslur frá ára-
irfótunum.
REGISTRATIONS OF ELECTORS
Klectorlal DlvNIon of GIMLI.
Notice is hereby given that, pursuant
to the provisíons of “The Manitoha
I Election Act”, it has been determined
to add to, correct and revise the List of
Electors of the several Electoral Divi-
sions in the Province. The date on and
places at which applications for reg-
istrations, for striking names off the
List of Electors, and for the ocrrectio»
of errors, will be received are as foll-
ows:
Monday, May 3, at the Post Office —
Foley.
Tuesday, May 4 at the Post Office —
Husavik.
Wednesday, May 5, at the Town Hall
— Gimli.
T)iursday, May 6,at the Town Hall —
Gimli.
Friday, May 7, at the Store of S.
Wood — Kreuzberg.
Saturday, May 8, at the house of
Thos. Brown —\ 19-19 1E.
Monday, May 10, at the Store of Mike
Gotfried — Village of Meleb.
Tuesday, May 11, at the house of
Franz Ewcies — 22-20-3E.
Wednesday, May 12, at the house of
G. Magnusson — Nes. P. O.
Thursday, May 13, at the house of
Bjarni Peterson — 9-21-4E.
Friday, May 14, at the Store of Geov
Lukaszazuk — Rembrandt.
Saturday, May 15, at the house of M.
Boyazuk — 27-21-lE.
Registration Clerk for the above,
Michael Rajecki — Gimli.
Monday, May 3, at the Good Templars
Hall — Abrorg.
Tuesday, May 4, at the Good Templ-
ar«’ Hall — Arhorg.
Wednesday, May 5, at the house of
Thos, Bjornsson — 22-22-3E.
Thursday, May 6, at the house of G-
G. Martin — 28-22-4E.
Friday, May 7, at the house of Johann
Briem, — Riverton.
Saturday, May 8, at the House of Jo-
hann Briem — Riverton.
Monday, May 10, at the house of Kus-
bzan Shernason — Big Island.
Tuesday, May 11, at Fred Hakonsoi*
— 23-24-4E.
Wednesday, May 12, at the house of
M. Cibuyk — 2-24-3E.
Thursday, May 13, at the house of N-
Peakosk — 2.24-2E.
Friday, May 14, at the house of
M. Jonasson — 20-23-2E.
Saturday, May 15, at the house og
Jos. Weselak — 32-24-lE.
Registrations Clerk' for the above,
Martenson, Hnausa.
Mlchael Kajeckl, Gimll an<l B. Mnr-
(enson, HnauMa. have been appointed
Ragistration Clerks, and will attend
and sit at the 'places and on the dates
named above the hours of ten o’clocíc
A.M. to 12 o’clock noon, from 1 o’cíoclc
P.M. to 6 o’clock P.M. and from 7,30
o’clock P.M. to 9,30 o’clock P.M. except
that in towns and villages, the hours
shall be from nine o’clock A.M. to 9,30
o’clock P.M. with intermission from 1
o’clock P.M. to 2,30 o’clock P.M. anö
from 6 P.M. to 7,30 P.M.
Only such persons whose names are
not not on the last revised List of El-
ectors, but posses the qualification to*
be registered as electors under the pro-
visions of “The Manitoba Election
Act”, need attend the registration sitt-
ings or Court of Revision for the pur-
pose of being so registered. Electors
can ,make application for registration
at any of the places mentioned above.
A C’ourt of RevlMfon will be held in»
Good Templars Hall, Arborg, on Fri-
day. June 4th and at the Town Hall,
Gimli, on Thursday, June lOth.
Commencing at the hour of 11 A.M..
and closing at 5 P.M. with an intermiss-
ion at noon for lunch, to consider all
applications filed with the registration
Clerk, and also the applications of oth-
er persons to have their names added to-
the List of Electors.
Dated at the office of the Provincial
Secretary this 19th day of April, 1920.
J. W. ARMSTRONG
Provincial Secretary .
B.
Fundarboð.
Fundur verður haldinn í Sel-
kirk 28. apríl 1920, af Fiski-
mannafélagmu “U. B. 0- F.”,
og eru allir meðlimir þess fé-
lags beðnir að vera viðstaddir,
/
því áríðandi málefni liggja fyrir
✓
fundinum. f
Nefndin.