Heimskringla - 07.12.1921, Page 4

Heimskringla - 07.12.1921, Page 4
4. BLAÐSiÐA. HEIMSKRINGLA. WINNIPEG, 7.DESEMBER 1921 HEIMSKRINGLA (StofnaS 18S6) Kemnr flt A faverjnm miKvikudc^l. Útsefendur o* cÍRcndur: THE VIKING PRESS, LTD. 853 o« 833 SARtiENT AVE„ WINNIPEfi, Taliimi i N-S337 VerB blaBxins er 53.0S flr«can«nrlit» bor«- ist tyrlr fram. Allar bortranir sendlat rflBnmannl blaBalna. Ráðsmaður: BJÖRN PÉTURSSON Ritstjórar: BJÖRN PÉTURSSON STEFAN EINARSSON Vtanflakrtft tlt blaBalnni THE VlKINvJ PRESS. Lti, Bax 3171, WtanlpeK. Man. Utanflakrlft tll rltatjflrama EDITOR HEIMSKIUNGLA, Box 3171 Wlnnlffs, Man. The "Helmskrln*la" ls prlnted and pub- lishe by the Viklns Press, I.lmlteð. at 853 og 865 Sargent Ave, Wlnnlpeg, Manl- toba. Telephone: N-S687. WINNIPEG, MANITOBA, 7. DES. 1921. Bókafregn, HeimEugi, Ijóðabók eftir Þ. Þ. steinsson, Winnipeg. Utgefandi: st. Gíslason, Reykjavík. Þor- Þor- Eftir bók þessari hefir margur beðið með óþreyju. það er langt síðan að ljóð fóru fyrst að birtast eftir höfundinn, í blöðum og ritum bæði austan hafs og vestan og er hann fyrir löngu orðinn kunnur þeim er ljóðskáldskap unna hér og heima á ættjörðinni. Það er því í raun og veru ekki framandi gestur er menn í fyrstu taka grunsamlega á móti, sem að garði ber með bótk þessari, heldur gamall vinur, sem víst má telja að fagnað verði, hvenær sem hann drepur á dyr. Ekki má þetta skiljast svo, að flest eða öll kvæði bókarinnar hafi áður verið birt. Heim- hugi er 96 blaðsíður að stærð í stóru broti, og þó að telja megi víst, að það sé ekki nema íítið eitt af öllu því er skáldið hefir ort, mun mega fullyrða, að helmingur eða meira af kvæðunum séu ný og hafi aldrei birst. Lengstu kvæði skáldsins eða drápur eru ekki í bókinni; einnig er þar Iítið eða ekkert af einnar vísu erindum. Það eru veigamestu kvæði skáldsins að drápunum undanteknum sem “Heimhugi” flytur. Og verður ekki ann- að sagt um val kvæðanna, en að það hafi tekist vel. Rusl vísur eða ljóð eru ekki til í bókinni, hvort sem nokkuð Iiggur eftir höf- undinn eða ekki af því tæi. Oss finst vert að minnast á þetta vegna þess, að það hefir verið einkennum í seinni tíð svo skæð fylgja Ijóðasmiða og ljóða-útgefanda, að fást ekk- ert um val kvæðanna, heldur birta alt vont og gott í belg og biðu. Vér munum eftir hve tilfinnanlegt oss var þetta, er síðasta útgáfa Ijóðmæla Bólu-Hjálmars barst oss í hendur; þar varð að leita og blaða aftur og fram til þess að finna hin góðkunnu kvæði skáldsins; þau voru rétt að segja týnd innan um allan urmulinn af kvæðum sem minna voru verð og í bók hans eru nú. Og ef segja má þetta með sanni um kvæði Bólu-Hjálmars, þarf ekki að efa, að kvæðum ananra skálda staf- ar einnig hætta af því. En hjá þessu hefir verið sneitt í “Heim- huga”. Má teljgf það mikinn kost á útgáf- unni. Bæði njóta góðu kvæðin sín betur fyr- ir það og svo eru þau sjálfsagðari að ná til fleiri og bókin. að vera almennara keyþt, þar sem hægt er að selja hana að mun ódýrara fyrir bragðið. En eigi almenningur að háfa bókanna not, má ekki setja honum stólinn fyrir dyrnar með ofháu verði á þeim. “Heim- hugi” kostar $2.00 í kápu, og það má heita aðgengilegt verð og engum um megn; það hefði eflaust verið hægt að hafa bókina helm ingi stærri, en þá hefði Ifka mörgum verið bægt frá að eignast hana, sem nú á þess kost. Þessa hefir alt of Iítið verið gætt á þessum erfiðu, síðustu og verstu tímum. Úr því að verið er að minnast á fyrirkomu- lag útgáfunnar og hinn ytri frágang bókar- innar, skal það hér tékið fram að pappír er í bezta lagi og prófarkalestur góður. Á kápu bókarinnar er mynd af íslenzkum bóndabæ og dala bergvættum og hefir skáldið sjálft dregið hana. Er mynd sú ytra svip bókarinn- ar til mikillar prýði. En hvað er nú um kvæðin sjálf? Það sem oss virðist til kosta mega telja þeim er fyrst og fremst þróttur bæði í hugsun og má!i. Það er ekki hægt að benda á efnislaust kvæði í bókinni; alvara skáldsins er ofmikil til þess, að hann rjáli umhugsunarlaust við yrkisefni sín. Kraft málsins sækir hann til norræn- unnar. Hefir þjóðræknis-tilfinningin auðsjá- anlega ráðið fyrir honum og beint honum brautina að Urða-brunni norræns máls. Er það ekki einungis þróttur málsins á kvæðun- um sem vitni ber um þetta, heldur einnig ^istin. Vér ’þorum hiklaust að segja, að benda megi á heil kvæði og kafla til og frá innan um önnum sem ort eru af list. I fyrsta kvæðinu í bókinni, kvæðinu “heimhugi”, sem bókin ber nafn af, blasir hrein og ó- blandin tilfinning skáldsins til ættjarðarinn- ar svo að segja út úr hverri vísu. Það hefir mikið verið 'ort uim Island. Ljóðm sem skáldin hafa sungið ættjörðinni til eru bæði mörg og fögur. Það má segja að hvert ís- lenzkt síkáld hafi lagt þar til eitthvað af mörkum. Að yrkja eitthvað nýtt um hana, er því ekki á allra færi. Samt á skáldið í kvæðínu Heimhugi setningu eins og þetta: Mér fanst eg geta kyst þinn kalda stein sem kæru, fögru sumarblómin þín. Þetta er hárétt mynd af tilfinningum þeim er í hjörtum þúsunda búa til ættjarðarinnar. Þó hefir enginn dregið hiana fyr. Hún er ný. Samræmið milli orðanna, í hendingum þess- umum og tilfinninga skáldsins er svo gott að myndin getur ekki orðið annað en eðlileg. List skáldskaparins liggur svo mikið í því að sjá þetta samræmi, að án þess er vart um lifandi skáldskap að ræða. En lengi og al- varlega verður að Ieita í fýlssnum meðvit- undarinnar til þess að finna það samræmi. Og það er eins og það sé ekki nema fáum sú gáfa gefin sem til þess þarf. Þeir sem það ifinna hafa nýtt að bjóða og eru því skáld í fullri merkingu. Þ. Þ. Þ. hefir talsvert af þessu góðmeti að bjóða, ekki aðeins í ætt- jarðarkvæðum sínum, heldur í fjölda ann- ara kvæða í bókinni. Af því að kvæðin í “Heimhuga” eru svo valin, er erfitt að benda á hver þeirra séu ; bezt. • Það má telja állan helming þeirra á- (gætan. Kvæðið “Bifröst” er slkáldlegt og fagurt. Hvetur skáldið þar Vesturf-íslend- inga til að halda óslitnu sambandi við “forn- heilagt frelsi” og “fagrar norrænar hugsjón- ir”. “Á braut skaltu ríða í blálundinn fríða,” segir það. Það þarf að vekja útþrána í okk- ur. Bifröst blasir við. Hví ekki að leggja af stað út á hana? Bifröst er útþrá þín, segir skáldið. Hún er íslenzlka sálin þín, líf þitt og blóð sem ættlaild skal prýða til eilífra tíða. Svo mikið finst höf. til norrænunnar koma. Fyrsta vísan í kvæði “Til Islands á Nýári”, er þannig: Árið þitt er árið mitt; ást því barnsins veldur. Lífið þitt er Iífið mitt, ljós þitt hjartans eldur. Kvæðið “Aftan:ön^ur” og “Órar” lýsa heitri þrá eftir því fagra og góða. Vonbrigða kennir að vísu í sumum kvæðunum, en aldr- ei byrgja þau útsýnið til þess göfuga og háa. Skáldið er af kvæðunum að dæfcna fallega hugsandi, fallega trúandi liggur manni við að segja. Það er ástæöa að oss virðist til að halda, að það hafi í því efni orðið fyrir á- hrifum frá Matthíasi Jochumsyni. í ikvæði til Breta yéldis eru þessi erindi: I Byrons óð, í Shelleys söng frá Shakespears þungu líkaböng 1 þér drundi drottins raust, sú raust sem spámanns andinn á sá ?eðsti tónn iem þekkja má, sú elding, sem þeim æðsta frá í arfann neista laust. En brann pifcc hismi, — ijómsins glys, varð heilagt frelsið þjóðar blys í sérhvers sókn og gjörð, þótt gætt þín hafi guðshönd sterk í gegnum flest þín ægi-verk og skrýði rauðum sikliserk þitt sigurnafn á jörð? Nei — innra frelsi einstaklings er afmarkað af löggjöf þings, en ei af andans dáð. En hún er sannur sigur lands sálu Iýðs, — hvers einstaks manns, og dýrri krúnu keisarans og konungs, guðs af náð! Og síðar í þessu kvæði segir.: Hin dýpsta samúð manns til manns á meginlöndum kærleikans — hún er hin eina stjórn — — I kvæðinu “Leikmæíin” eru góðar lýsing- ar af sálarástandi leikkonu. Einnig er kvæðið “Eg reyki,” gott, og þannig mætti lengi telja. Það hafa flest eða öll kvæðin eitthvað til brunns að bera, einhver umhugsunarefni meðferðis. Á eitt kvæði skal enn minst. Það er kvæð- ið “Framtíðarlandið.” Skoðum vér það ekki aðeins eitt af beztu kvæðum í bók þessari, heldur eitt af beztu íslenzku kvæðum sem ort háfa verið. Framtíðarlandið er ísland með norræna eðlið og andann. Að Iýsa efni þessa kvæðis, skal ekki reynt, en sýnishorn af því má gefa, þó auðvitað sé að slík kvæði sem það, ætti ekki að birta öðru vísi.en í heild sinni. Hér er byrjað á fimta erindinu I helgispám norrænna sagna þú sér, að sigurinn mannsandinn vinnur mót úlfanna, jötnanna’ og Hel-sinna hér, sem harmfjötur þjóðunulm spinnur. Á sæili grund í gæfu lund' hann guikötlur eilífar finnur. Til trausts lifa Viðar og Váli sem fyr, j þott Vaiiaöir augum se iaiinn: ! Pá stíga peir Mooi og iVlagni ur hyr með iVljölni, en Þór gistir valinn. iVleó heióa brá ris Baldur þá frá bana í tramtióar-salinn. Þá fólksstjórnin lýstur burt lýðsfjötra þá, sem lama, po kongsbóndin slitni. Pa torseta Baidursson tramtíöin á í regurn dofcnsal en liiitm. Pa biasir vió hun, sú broöur-run, sem bera a hjartanu vitni. í startsriki freisisins fögnuður grær og tnður, sem aidrei mun deyja. Þa hermur tærist svo himnmum nær, aö heynst hvaö guóirnir segja, pví iíhð á til pað Jjós og yl, sem iangsæstu sparnar eygja. Hvert gæfuspor áfram er hjálpandi Hlín og Heimdailur vökumanns-ii ki. Þá fegra á guiiöld 1 íramgengi skín 'hið fornhelga íslenzka ríki. Því gæti þess sá sem þar griðland á, það guðsland sitt aldrei svíki. Hér er ekki sorinn á ferðinni. Bæði þetta og önnur dæmi sem tilfærð eru, eru gott ‘^ýnislhorn af því, hve hrein og smékkleg kvæðin eru í bókinni. Ein bver hefir haldið því fram, að kvæði Þ. Þ. Þ. væru tyrfinn. Meiri misskilning höf- um vér ekki oft orðið varir við en þetta. Kvæði hans kunna að vera sérkennileg dá- lítið og að menn njóti þeirra þá fyrst, er bú- ið er að lesa talsvert af þeim. Þannig koma þau oss að minsta kosti fyrir, að vér höfum því meiri unun af lestrinum sem vér lesum meira éftir skáldið. Þeim svipar til hæglátra en sem maður ann þeim mun meir eftir að vina, sem dálítinn tíma þarf til að kynnast, hafa kynst þeim. Enginn finnur vinum sín- um þetta til foráttu.. Sannleikurinn mun sá, að Þ. Þ. Þ. hefir orðið svo lánsamur að verða fyrir áhrifum Þ. E. og Stgr. Th.; lánsamur segjum vér, 1 því vér ætlum það hendingu eina vera, hverj- ir hafa mest áhrif á aðra. Þýðleikinn í kvæð- unum Dögg, Hljómdísin og fl. o. fl. minna á hinn síðarnefnda. Að kalla slíkan skáldskap ! tyrfinn, er því alt annað en við mætti búast að sagt væri. Þ. Þ. Þ. á þakkir og virðingu skilið fyrir að hafa auðgað vestur-íslenzkar bókmentir með eins góðu tillagi og “Heimhugi” er. Heiman og heim. • Frásögubrot og minningar úi' íslsndsfcrð. (Framh.). Göta’oorg er önnur mest borg í Svíþjóði: og eitt bið elzta manningarsetur á Norður- lönduni. Þar er verzicn mikil og tíðar skipa- j komur.i-’ tíorgin er réisi fvrst árið 1619 og er því nrhl 200 ára gó.nui, aí hinu.u heims- fræga Og-rgóðkunna konungi Svía Gustav Ad- olph, o'g'er ertn sem hún beri menjar nans. Þar hafði þá bygð verið frá því fyrsta er sögur hófust. Borgin stendur í Elfarkvíslum þar sem áður til forna skiftust ríki milli Nor- egs og og Svíþjóðar, suður af eynni Hísing, j við minni Eystri Gautelfar. Er þar nátturu- fegurð mikil innan við skerjagarðinn. Svo segir í fornum sögum að Gautelfi hafi ráðið landaskiftum millum Noregs og Svíþjóðar og var þá við ýmist miðað austur eða vestur Elfu, og þóttust bæði ríkin eiga bygð þá, er lá milli Elfarkvíslanna. Hefir það þá eigi ávalt verið friðsamt. Til er saga um það, að sú sætt gjörðist milli þeirra ÖIafs kon^ngs helga og Ölafs Eiríkssonar Svíakonungs að þeir skyldu hluta um eign þá, hvor þeirra ei.’a skyldi, og kasta til teningum, skyldi sá hafa er stærra kastaði. Báðir kunnu nokkuð fyrir sér þeir nafnar og var Ölafur Haraldsson þótt helgur maður væri, eigi með öllu óvanur teningsspeli, — en þess ber að gæta að heil- agleikur hans var áf hinum gamla skólanum. Gengu þeir þá til og köstuðu teningunum og kastaði Ölafur Svíakonungur fyrr. “Hann kastaði 6 tvö” og mælli að Ólafur konungur þyrfti eigi að kasta. Hann svarar og hristi teningana í hendi sér: “Enn eru tvö sex á teningunum, ok er guði drotni mínum lítit, fur enn at láta þat upphorfa.” Þá kastaði hann og kom upp sex tvö, “ok kvað þá þó fur allt eitt koma mundu.” En Ólafur Nor- egskonurtgur kastaði eigi að síður, og var nú þetta í hið þriðja skiftið að kastað var, og var þá enn sex á öðrum, en annar teningur- inn hraut í sundur í tvö, “ok váru þar á 7 augun, ok hafði ó]afur konungr nú kastað 13, ok eignaðist Svía bygðina.” Aumingja karlinn, hann var Iengi fengsæli í viðskiftum! Með þessu móti féll svo eyjan Hísing undir Noreg en eigi er 'svo að sjá sem þessi sáttiriáli ihafi haldist. Frá Götaborg létu Svíar grafa skipaskurð á árunum 1810—32 norður í Vænir vatn og svo alla leið til Stokkhólms. Var það hið mesta tröllvirki. Er sjálfur skurð- urinn 54 mílna langur og eru í honum 58 flóðlokur, því lyfta þurfti vatninu sumstaðar á þessari leið alt að 200 fet yfir yfirborð Væmi vatnsins. Þetta var fyrir daga járnbrautanna. Eftir skipa- leið þessari eru um 360 mílur veg- ar til Stokkhólms, er farin er á tveimur og hálfum degi. Mikið láta ferðamenn yfir, hvað skemti- legt sé að ferðast með skipum þessa leið. Nýtur náttúrufegurðar- innar svo vel á báðar síður. Má með nokkrum sannindum segja að siglt sé upp heiðar og hálsa og niður hlíðar og djúpa dali. Vér höfum þegar drepið á að samferðahópurinn var stór. Er nú komið var í land lá fyrst fyrir toll- skoðun og því næst, að komast leiðar sinnar, fyrir þá sem vonast gátu tiJ að “taka heima í kveld”. Nokkrir höfðu flutt með sér bif- reiðar, og ráðgerðu að fara sjálf ferða sinna er á þurt land væri komið. Hlölkkuðu þeir eigi minst til ferðalagsins, 'þenna síðasta á- fanga, — að þeysa um bygðir og bæi, yfir leiti og brautir þar sem hvert fótmál vegarins vakti upp fornar minningar löngu liðinna daSa, — bver hóll helgur staður og “þar sérhver hæð var spá- mannsins gröf.” Kvöddum vér því þá, meðal samferðaimannanna er vér höfðuan mest kynni haft af, þarna í tollbúðinni, árnar.di hvert öðru fararheilla, — án öfundar hvor til annars, yfir auðæfunum, ---hinum mestu og beztu — sagna auð og sögufrægð œttlanda vorra hvors um sig. Elzta féð var líka óskiftur arfur, og situr þar enginn yfir annars hlut, en atUir “njóta sem þeir muna.” Því höfum vér og líka jafnan haft ömun af þeim manni sem brýzt fram úr mann- þrönginni og hrópar: “Meistari, skipa iþú bróðir mínum, að hann skifti með mér arfi okkar.” Sá dómari eða skiftaráðandi er ekki enn settur er honum fá skifti. Vér, norrænt fólk, erum ein þjóð — einn þjóðstofn að minsta kosti, ■— kynþátturinn, ef vér túlkum spá- dómana rétt, “er útkvíslast á um gjörvalla jarðkringluna,” söm er saga vor, lífskoðanirnar í allflest- um efnum hinnar sömu, “Söm eru j öll vor sigurljóð og sarr.i vermir ! oss eldur.” í menningarbaráttunni kemur Götaborg mjög við sögu. Við borsina eru kend hin frægu “Götaborgarlög”, er vera virðast hin vitrasta úrlausn á áfengismál- inu er enn hefir fundin verið, og þess utan hin fyrsta skynsamlega og varanlega tilraun að hafa stjórn á tilbúningi og sölu áfengra drykkja í heiminum. Saga bind- indismálsins í Svíþjóð er stór part- ur í menninga-sögu þjóðárinnar. Árið 1829 voru 173,124 vín- brensluhús í landinu, eða til jáfn- aðar eitt fyrir hverja 16 íbúa. Hver jarðeigandi hafði fult leyfi samkvæmt lögum til að brenna vín. Á hverri kirkjujörð var vín- brensluhús og vínsala rekin til á- góða fyrir kirkjuna. En með lög- um er gefin voru út árið 1855 varð stór breyting á þessu. ÖIl þvílík einkaleyfi voru afnumin, á- fengissala takmörkuð og þungur skattur lagður á verzlunina. Þá heimiluðu lögin hverju sveita- og bæjarfélagi fyrir sig að ákveða með hvaða hætti áfengi skyldi vera búið til og selt innan sinna takmarka. Iðnaðarbæjirnir Jönkö- ping og Falun hagnýttu strax þessi lög, fækkuðu vínsöluleyfum, settu þá reglugerð fyrir vínsölunni að meiri hluti verziunarágóðans rann í bæjarsjóð. Aldurstakmörk voru sett hverjum selja mætti og aðrar ráðstafanir gerðar uin þrifnað, matsölu og þess háttar. Tók Göta- borg upp þetta fyrirtkomulag með nokkrum breytingum, þannig að .—Dodd’s nýrnapillur eru bezta nýmameðaliS. Lækna og gigt, bakverk^ hjartabilun, þvagteppu, og örmur veBcindi, sem stafa frá nýrmm. — Dodd’s Kidney PiUs kosta 50c askjan eða 6 öskjur fyr- ir $2.50, og fást hjá öllum lyfsöl. «m tðt frá The Dodd’s Medicine Co. Ltd., Toronto, Ont....... félag myndaðist innan borgarinn- ar er tók uniboð fyrir verzlaninni, gegn því að hafa í ágóða 7 af hundraði en allur gróði þar yfir féll í bæjarsjóð. Með þessu var strax tákmörkuð áfengisnautn, Eigi mátti neyta neins víns á staðn-* um þar sem það var selt, og að- eins mátti selja það vissa tíma dagsins. Ýmsar stórvægilegar um- bætur voru gjörðar á sölu umboði þessu eftir því sem tímar liðu fram er oflangt yrði upp að telja þér, er mentandi og bætandi áhrif höfðu á hugsunarháttinn jafn- | framt því sem þær létu menn í finna til ábyrgðarinnar á neyzlu áfengis. I stað þess að hið opin- bera tæki algerlega ráðin af ein- | staklingnum var ábyrgðin lögð á herðar honum sjálfuim, að hann ; færi svo með það frelsi sem sæmd og drengskapur heimtuðu af hon- um, og virðist það hafa haft hin heilsusamlegustu áhrif. 1 Götaborg var langt um minni drykkjuskap- ur en í hinum svonefndu bann- i löndum, og opinber vínsala fór hvergi fram nema með máltíðum og þá imjög í hófi. Þótt borgin sé eigi nema 300 ! ára gö'mul 'hefir margr á dagá j hennar drifið. Á ríkisárum Karls I tólfta meðan á ófriðnum stóð við Dani, géngu ýmsar hörmungar vf- ir hana, hallæri og brunar. Þá brann og stór hluti hennar árið 1813, og fórst þá mikið af skjala- safni 'hennar. En Svíar hafa jafn- óðum reist hana á ný úr rústum I fegurri en áður. Upp frá höfninni j gengur aðalgata borgarinnar er J heitir Homugatan. Frain með henni I standa helztu sölubúðirnar, gripa- i safn staðarins, Dómkirkjan og ! kauphöllin í krmgum hið svo- | nefnda Gustavs Adolphs torg. Á i torginu stancla, myndastyttur tveggjá átrúnaðargbðá Norður- landa, úr fornum og nýjum sið, | Gústav Adolphs og Óðms. Éru myndastyttur þessar smíðaðáí af tveimur mestu mynhöggvurum j Svíá, er báðir eru fæddir í Göta- j borg, gjörðar a'f hinum mesta hag- i leik. Er mynd Gústavs eftir hinn naíntogaða listamann Bengt Er- land Fogelberg (f. I 786,d. 1854), en Óðinsmyndin fftir Jóhann Pétur Molin (f. 18814, d. 1873). Meðal fegurstu staðanna í borginni má telja “Kungs- parken ’ og listigarð trjárælkt- unarfélagsiiL. Eru báðir þeir garðar alsettir allskonar blómum og trjám, er svo er fyrirkomið að hver blettur ber með sér þá sér- þekkingu ogþann listasmekk er óvíða mun vera ið finna. Ei vér komum inn í garð Trjátæktunar- félagsins og sáum þar alla þá und- ursamllegu gróðrardýrð, flaug oss fyrst í huga: “Karl Linnæus var Svíi”. Var sem nafn hins mikla föður grasafræðinnar væri þar hvarvetna skráð stórum stöfum, og hugsunin varð jafnskjótt ofur eðli- Ieg - - jafn vitur og voldugur andi hlaut að lifa í hugsun og starfi þjóðar sinnar, og það setm meira er og göfugra og fegurra, í lit- skrúði og frjósemi sumargróða föðurlandsins, skrýddur dýrð ak- urliljunnar er langt ber af öllum konungaskrúðum jarðarinnar. “Eg séð hefi ei fyrr svo fagran jarðar-

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.