Heimskringla - 22.08.1923, Qupperneq 7
WINNIPEG, 22. AGOST, 1923.
HETMSKRINCl. A
7. BLAÐSffiA.
The Dominion
Bank
■MNl NmE DAHI AVM. M
IHBKBHOOKB IV.
Höfuðstóll, uppb......9 9,000 000
VarasjóOur ............9 7,700,000
Allar eignir, yfir ..9120,000,000
Sérvtakt athyglí veitt viðaklft-
tZHH kaupmanna Of WHfaUBBW'
Spnrisjóðsdeildin.
Vextir af lnnstæðufé greiddir
Jafn háir og annarsstaOacr TlO-
gengst
PHONB A Hll.
P. B. TUCKER, Ráðsmaður
-----------------------------—
Vígsla sér Fr .A. Friðr.
(Framliald frá 3. síSu)
eöfnuðurinn ræður til sín, gefur
hann fyrir fram afdráttarlaust
frelsi til þess að halda fram sínum
skoðunum, og fer ekki fram á það,
að sérskoðanir únítara komi að
neinu leyti til greina i kenningum
hans.
Er nokkuð ijótt eða ókristilegt
að gera bandalag við slíkan söfn-
uð?
Allra síst ætti að líta svo á frá
sjónarmiði biskups vors. Ekki ein-
göngu vegna þess, sem þegar hef-
ir sagt — og ætti það samt að vera
nægilegt.
Hvernig er sii kirkja, sem dr. Jón
Helgason er yfir settur, þjóðkirkja
Islands? Lokar hvin Únitara úti
Eg veit ekki til þess, að nokkur
Bnaður haldi því fram að hún hafi
vald til þess. Og það er áreiðnn-
legt að hún gerir ]>að ekki.
Vitanlega eru skiftar skoðani:
um það, hvað flytja megi í prédík-
unarstólum kirkjunnar. Sumir
vilja treysta sem best kenninga-
höndin. I>eir menn ihunu vera til
sem hafa talið óheiir.ilt að halda
frain guðfræðiskoðunum bískups-
ins sjálfs í guðþjónu.stum íslenzkr
ar þjóðkirkju. En þeir menn liafa
pngu fengið ráðið. Tveir af helstu
lærdómsmönnum þjóðkirkjunnar,
biskupinn sjálfur og Haraldur pr^-
fessor Níelsson, liafa tvimæialaust
neitað þvf á prenti, að trúarjátn-
ingar eigi að vera nokurt band á
kennináiarfrelsi . prestanna. Mér
skilst svo, sem öll guðfræðideildin
sé þeim sammála. Dr. Jón Helga-
son hefir verið gerður biskup, án
þess að aftui-kalla nokkurit staf af
sínum fyrri staðhæfingum. Og
prestaheitið er svo rúmt, sem frain-
ast verður á kosið. Svo að það er
feer.sýnilegt, að þeir sem valdið
hat'a haft í þjóðkirkju íslands, iiat'a
verið að girða fyrir útilokunar-til-
, hneigingarnar, jafnvel að því c>
kemur til prestanna sjálfra.
En þegar biskup var beðin að
vígja séra Priðrik A. Friðriksson,
var jafnvel ekki um neinn kenn-
inga-ágreining að tefla, eins og eg
hefi þegar sýnt, heldur eingöngu
um þa'ð, hvort söfnuðir þeir, sem
befðu ráðið pres'tsefnið, inættu
gera bandalag við söfnuð, sem svq
var skipaður, að nokkurir af safn-
aðarmönnum, leikmennirnir, höfðu
tlnftaraskoðartir.
Engin maður heldur því fram, að
leikmenn f þjóðkirkju Islands megi
ekkí hafa únítaaskoðanir. Þeir
geta verið heiðnir. Þeir eru í kirkj
unni samt, ef þeir ganga ekki úr
henni. Þeir iia/a þar óskoraðan
atkvæðisrétt um öll .safnaðarmái,
eru kjörgengir í safnaðarstjórn o.
s. frv.
Enginn vafi getur á því leikið, að
J>ó að það væri alkunnugt um
söfnuð héi' á landi, sem ekki hefði
trngt sig úr þjóðkirkjunni, að hann
hefði allur Únftara-skoðanir, þá
mundi biskup orðalaust vígja prest
til hans. Ef engin prestkosning
hefði farið ]>ar fram, eða prestkosn-
ing ekki orðið Jögmæt, þá mundi
þeiin söfnuði vera skipaður prest-
ur, ef hann fengist nokkur. Það
væri blátt áfram skylda.
Hvernig verður þá þessi strang-
leikur f garð Vestur-islendinga
réttlættur frá íslenzku þjóðkirkju
ejónarmiði? Hvers vegna vill fs-
lenzkur þjóðkirkjmbiskup leggja
á Vestur-íslendinga andlega fjötra
seiH ekki eru til í hans eigin kirkju?
Mér og mörgum öðrum er þetta ó-
ekiljknlegt. Og eg leyfi mér að
mælast til þess að fá eitthvert svar.
Nú kann biskupi að finnast, að
mér komi þetta ekkert við Eg get
ekki verið á þvf máli.
Okkur keinur öllum við, hvað yf-
irvöld okkar, veraldleg og andleg,
gjöra í embættisnafni. — Ekkert
sfður hvað æðsti maður kirkjunnar
gjörir en forsætisráðherrann.
Og það er nú svona um fslenzku
þjóðkirkjuna, að hún stendur á-
reiðanlega veikum fótum hjá þjóð-
inni. Þeir eru orðnir æði margir
sem finst áhrif hennar veva svo lít-
il, að vefasamt sé, hvort hún eigi
nokkurn verulegan tilverurétt. En
svo eru aðrir — og í þeirra hóp er
eg — sem hafa unnað henni, af þvf
að þeim hefir skilist, að
hún vilji vera fr'jálslynd, ef til vill
frjálslyndasta kirkja í heimi. Hagi
yfirmenn hennar sér svo, að frjáls-
lyndið hverfi — þá fer nú að sneyð-
ast um yfirburðina.
Mér finst kenna allt annað en
frjálslyndis f þeirri neitun biskups,
sem séra Eriðrik A. Eriðriksson
skýrir frá. En ef til vill kann bisk-
up að geta réttiætt hana með ein-
hverjum rökum, sem eg hefi ekki
komið auga á.
Eyrir því vænti eg svars.
Bessastöðum, 19. júní 1923.
Einar H. Kvaran.
— Morgunblaðið.
----------xx----------
Grein hr. Einars H.
Kvaran.
Mighálffurðar á grein hr. Einars
Kvaran. Hann hefir auðsjáanlega
langað til að senda gömlum vini
kveðju sína á prenti. Því að það
sem lvann spyr um er hlutur sem
liver maður með hans greind og gáf
um getur sagt sér sjálfur. Þó skal
eg verða við tilmælum ivans uni
svar við grein hans.
Það er hverju orði sannara að eg
var í fyrstu tregur til að vígja séra
Friðrik A. Friðriksson. Ekki af
því, að eg hefi neitt að athuga við
manninn sjálfan. Þótt hann aldrei
liafi verið lærisveinn minn (eins
og hr. Einar Kvaran gefur svo fast-
lega í skyn) þekti eg h.ann vel og
gat ekki liaft og hafði ekki heldur
eftir þeirri ]>ekkingu minni á hon-
um, neitt á móti þvf að veita hon-
um vfgslu. En þótt eg telji mér
siðferðilega skylt að verða við
beiðni safnaða, sem standa á
evangelisk. lúterskum söfnuði
þótt ekki heyri kirkjunni til, urn
vígslu handa prestefnum, sem ráð-
ast til þeirra, þá finn eg ekki neina
slíka skyldu hvíla á mér gagnvart
söftiuðum, sem ekki standa á þeim
grundvelli. Nú hafði mér tjáð sikil-
orður maður, .að söfnuður sá, er í
hlut átti, hefði gert bandalag við
Únítara, en af því hlaut eg að á-
lykta, að hann sem söfnuður væri
orðinn stefnu Únftara fylgjandi og
hefði þá um leið Mfirgefið hinn
evang. lútei'ska trúargrundvöll. En
væri svo komið áleit eg mér hvorki
skylt né heldur rétt af méj' að vígja
þeim prestefni. Því að eg álft ekki,
fremur en Únítarar sjálfir, að
Únítara-söfnuðir standi á evan-
gelisk-lúterskum trúargrundvelli
Eg Tildi því vita vissu mfna áður
en eg veitti vígsluna. Yissuna fekk
eg með skýlaiiisri yfiriýlsingu frá
forseta safnaðarins, er neitar öllu
sambandi umrædds safnaðar við
Úinítara og telur hann vera í fuliri
samhljóðan við evangelisk-lútersku
kirkjuna á fslándi. Að fenginni
þeirri yfirlýsingu vígði eg svo hinn
rnga mann með Ijúfu geði. Hið
sama mun eg gera hér eftir ef sams-
konar beiðni kæmi til mín frá ein
hverjum öðrum söfnuðum, sem játa
sig vera evangelisk-lúterska.
Jón Helgason.
----------XXX----------
A evang. lúterskum
grundvelli.
Eg hefi átjt svo annríkt tvær síð-
ustu vikurnar, að eg hefi ekki get
að þakkað biskupi fyrir svar
lians til mín í Morgunbl. 23. júní s.
1. og góðvildarorð í minn garð. Eg
geri það hér með.
En því miður hefir ekki svai' bisk-
ups aukið skilning minn á því at
riði, sem eg spurðist fyrir um. —
Eg hafði lýst þvi, hvo þjóðkirkja
vor er rúmgóð og frjálslynd. Sú
lýsing hefir ekki að neinu leýtijj
verið leiðrétt né véfengd af biskupi.
Eg spurði, hvers vegna fslenzkur
þjóðkirkju-biekup vildi leggja á
Yestur íslendinga andlega fjötra,
sem ekki séu til f hans eigin kirkju.
Yið þvf fæ eg ekki annað svar
en það, að biskup telji sér ekki
skylt að vígja presta til annara
safnaða en þeirra, sem standi á
evang. lúterskunl grundvelli.
Af ýmsum ástæðum er þetta svar
mér vonbrigði og jafnvel litt skilj-
anlegt.
f fyrsta lagi furðar mig á því,
að skoðanir væntanlegra tilheyr-
enda eigi að ráða virsltum um
vígslu prestsefnis. Mér hefir skil-
ist svo, sem venja sé f kirkjunni,
að það sé trú prestsefnisins sjálfs,
sem eftir er fario, en ekki trúar-
hugmyndir þeirra, sem á hann
kunna að hlýða — að það sé boð-
skapurinn, sein prestsefnið ætlar
að flytja, er biskupar kirkjunnar
taka einkum til greina, en ekki þeir
dómar, sem á boðskapinn kunna að
vera lagðir. Eg get ekki betur séð
en að þetta sé svo gömul venja í
kristninni, að Páll postuli mundi
aldrei hafa fengið ]>á vfgslu, sem
frá er skýrt f 13. kap. Postulasög-
unnar, ef skoðanir væntanlegra til-
heyrenda hans hefðu eingöngu ver-
ið hafðar fyrir augum.
í öðm lagi furðar mig á þvf, að
dr. Jón Helgason skuli leggja svo
mikla áherslu á “hinn evang. lút-
erska grundvöll,” að hann vilji ekki
vfgja prestsefni, ef einhverjum er
þægð í ]>ví, sem hann telur komna
út af þeim grundvelli. Það er ekk-
ert leyndarmál, að sumum hefir
fundist hann vera kominn út af
honum sjálfur. Eg segi ]>að ekki
til þess að brigsla honum. Mér
hefir aldrei komið slíkt til hugar.
Eg S'kíl lúterska kirkju svo, sem
grundvöllur hennar sé svo rúmgóð-
ur, að dr. .1. H. hafi aldrei út af
hoiuim farið — ekki fremur en pró-
fessor Harnaeli og aðrir þýskir
lærdómsinenn, höfundar lveirra
biblfuskýringarita, sem notuð eru
við kenslu í guðfræðideild háskóla
vors. En ]>að er vitanlegt, að af-
staða biskups til trúarjátninganna
og sumra trúarlærdóma kirkjunnar
liefir valdið því, að þröngsýnir
menn hafa viljað neita því, að
hann sé evang. lúterskur maður.
Þar sem nú grundvöllur evangiel.
lúterskrar kirkju er svo mikið
þrætuefni, sem hann er, hafði eg
ekki búist við því, að svo víðsýnn
maður, sem dr. J. H. hefir sýnt sig
'vera, mundi leggja svo mikla ás
herslu á hann. Eg hafði búist við
því, að honurn^mundi vera rfkari
í huga grundvöllur kristninnar,
eins og hann hefir sjálfur litið á
hann, en grundvöllur lúterskunn-
ar. Einn af vorum fegurstu sálm-
um byrjar á orðunum: ‘,‘Eg er krist-
inn”. Hugsum oss að unt væri
bragarháttarins vegna að byrja
hann í staðinn með orðunum: “Eg
er lúterskur”. Mér finst, að ljóm-
inn af þeim sálrai mundi þá fara að
dosfna. Eg hafði búist við því, að
hjá öðrum eins manni og biskupi
vorum væri við prestvfgslu höfð
hliðsjón á efling guðsríkis en hin-
um evang. lútereka grundvelli.
1 þriðja lagi furðar mig á því, að
biskup skuli telja þá menn komna
út af grundvelli evang. lút. kirkju,
sem vilja gera eitthvert bandalag
við Úfnítai-a. Eg hefi. sýnt það f
grein minni í Mbl. 22. júnf s. 1., að
þetta er einmitt það, sem íslenzkir
þjóðkirkjumenn gera, og eg tek
það aftur fram, að þeim ^skilningi
mínum he/ir biskup ekki mótmælt.
Eg get ekki heldur hugsað mér,
að hann telji vin okkar beggja, séra
Friðrik J. Bergmann, hafa verið
kominn út af þeim grundvelli. En
það var séra Friðrik, sem fyrstur
stofnaði til þess bandalags við
Únítara, sem hér er um að ræða.
Annars get eg ekki bundist þess
að láta þess getið, í þessu sam-
bandi, að fmugustur bjskups á
þeim löndum vorum í Vesturheimi
sem telja sig únítara, hlýtur að
stafia af misskilningi. —
v
Eg hygg, að eg tali um það mál
af nokkurum kunnugleik. Þröng-
sýnir menn, eins og þeir, sem hafa
átt örðugt með að þola dr. J. H.
í þjóðkirkju íslands, hneykslast að
sjálfsögðu á þessum Únítörmu
Hann mundi tæpast gera það, ef
hann væri nógu kunnugur. Þessir
'nn eru alveg jafnvel kristnir og
þjóðkirkjumenn hér heima. Ef
laristindómurinn hefði upphaflega
verið boðaður þeim þar vestra af
jafnmiklu vfðsýni, jafnmiklu frjáls-
lyndi og jafnmiklum lærdómi og
komið hefir fram hjá guðfræði-
deild vorri, ekki sfður hjá dr. J. H.
en öðrum kennurum ]>ar, er víst
óhætt að fullyrða, að þeir landar
vorir hefðu aldrei tekið sig út úr
hópi annara kristinna fslendinga
þar, Það hafa þeir Ifka sýnt með
þvf, að sækjast eftir kennimönn-
um frá háskóla vorum. En btskup
veit það jafnvel og aðrir, að haldið
var að þeim allfa/t ýmsum kenn-
ingum, sem hvorki ]>eir né hann
sjálfur hafa getað aðhylst. And-
lega loftslaginu var þann veg hátt-
að, að þessum mönnum fanst ekki
þeir geta átt ]>ar heima. Mig
grunar, að dr. J. H. hefði lfka átt
örðugt með að sætta sig við það,
með ]>eim skoðunum, sem hann
hefir uppi látið. Séra Friðrik J.
Be.rgmann gat það ekki, þegar
fram f sótti> Mér finst, að frjáls-
lyndir íuenn hér lieima eigi að
sýna þessum mönnum bróðurhug,
og að það geti ekki verið rétt að
láta nokkurn söfnuð gjalda þess
með neinum hætti, þó að liann vilji
gera eitthvert bandalag við þá.
Mér þykir fyrir því, að mér finst
eg geta lesið það milli lfnanna f
svari biskups, að hann haldi, að eg
hafi skrifað grein mína (í Mbl. 22.
júní) af einhverri þrætugirni, af
löngun ‘til að senda gömium vini
kveðju mína á prenti”, alveg að til-<
efnislausu. Því fer mjög fjarri, að
mig fýsi að vera í neinum stælum
við hann, eða segja nokkurt orð,
sem honum geti komið óþægilega,
Fyrir langvinna góðvild hans og
Aimra nánustu vandamanna hans
í minn garð, hefi eg ávalt boi-ið
vinarhug til hans, og eg vona að
svo verði það Sein eftir er æfinn-
ar. Og hann hefir veitt svo þung-
um straumum af frjálslyndis-hugs-
unum inn f kirkju íslandk, að eftir
þvf sem eg lít á, verður þakkar-
skuldin fyrir það seint goldin.
Mér finst ]>að, sem eg vakti máls
á, skifta miklu máli, og mér finst
]>að enn. Þeir inenn eru til hér á
landi, sem láta sig trviar og kirkju-
mál miklu varða, en mér finst til-
igangslaust fy.rir mig að eiga orða-
stað við um þaiVefni. Dr. J. H.
er ekki einn þeirra manna. Aldrei
finst raér örvænt um það, að við
getum orðið að einhverju tölu-
verðu leyti sammála, ef við getum
skilið hvor annan. Eg hygg, að
frjálslyndið í trúar- og kirkjumól-
um sé óupprætanlegt í hugum okk
ar beggja. Þessvegna sneri eg mér
til hans með fyrirspurn mína.
Og ekki er þvf að neita, heldur
er rétt að kannast við það afdrátt-
arlaust, að þeirri bliku á lofti hefir
brugðið fyrir á síðustu árum, sem
leggur þá skyldu á herðar frjáls-
lyndum mönnum, er unna kirkju
þessa lands, að vera á verði, þegar
þeir koma arnga á eitthvað það,
sem þeim líst ekki á. Eg gæti til-
fært hitt og annað. En ískyggileg-
ast finst mér það dálæti á dönsku
kirkjunni, sem haldið hefir verið
að oss á síðustu árum. Eg geri mér
enga von um, að kirkjuleg áhrif frá
Danmörku verði fsl. ]>jóðkirkju til
neinnar blessunar, miklu líklegra
að þau gæti riðið henni að fullu
— enda minnist eg þess. ekki, að
afskifti Dana af kirkjumálum vor-
um síðustu árin hafi verið líkleg
til þess að koma neinu góðu til
vegar. Hjá mörgum hafa þau Vak-
ið óhug.
Að ioKum skal eg benda á það,
þó það skifti mjög litlu máli, að
biskup hlýtur að hafa lasið grein
mína í flýti. Hann segir að eg gefi
fastlega í skyn, að séra Friðrik A.
Friðriksson sé lærisveinn hans. Eg
hefi hvergi gefið það í skyp, hvorki
fastlega né lauslega.
Bessastöðum 10. júlf 1923.
Einar H. Kvaran.
------------x-------------
Frá Islandi.
6. júlí.
Fjörutíuára stúdentaafmæli. 1
dag, eiga þessir memi fjörutíuára
stúdentaafmæli: Bjarni Þorsteins-
son prestur á Siglufirði>- Gísli Bryn-
jólfsson læknir í Kaupmannahöfn,
Guðmundur Magnússon próf.
Klemens Jónsson ráðherra, Matt-
hías Eggertsson Grímseyjarprest-
I
jUr, ólafur ólafsson prófastur, síð-
ast prestur í Hjarðarholti í Dölum,
Pálmi Þóroddsson prestur í Hofsós
Sigurður Briem aðalpóstmeistari,
Sigurður H. Kvaran héraðslæknir á
Eskifirði og Dr. Valtýr Guðmunds-
son prófessor.
Þessir eru dánir: Brynjólfur
Kúld cand. phil., Guðmundur B.
Scheving héraðslæknir í Hólmavík
og Oddur Jónsson héraðslæknir á
Miðhúsum. Þorsteinn skáld Er-
lingssón átti og að útskrifast um
leið, en gat það ekki vegna sjúfev
dóms. Hann tók prófið í septem-
bermánuði næst á eftir.
Askorun um framboð. Frá Akur-
eyri var símað í gær, að Björn
Líndal hefði fengið áskorun IVá á
fjórða hundrað kjósenda á Akur-
eyri, að bjóða sig fram til þings.
Til kaupenda
Heimskringlu.
Hér á eftir fer skrá yfir nöfn þeirra, sem góÖfúslega hafa Iofa'5
Heimskringlu að vera uiriboðsmenn hennar, í hinum ýmsu bygðum
íslendinga. Þegar skrá sú hefir verið birt undanfarið, hefir fjöldi
bf vinum blaðsins brugðist við að borga þeim áskriftargjöld sín,' of
er blaðið þeim -vekinnurum sínum mjög Iþakklátt fyrir það. Ef að
þeir, sem nú skulda blaðinu, hé'ldu uppi þeim góða, gamla vana, og
lyndu umboðsmann blaðsins í sinni bygð að máli, um leið og þeir sjá
hver hann er, væri það sá mesti greiði, sem þeir gætu gert blaðinu.
Sumarmánuðurnir eru fjárhagslega erfiðir fyrir blöðin, og vér erum
sannfærðir um, að ef kaupendurnir þektu al'la þá erfiðleika, mundu
þeir ekki draga blaðið á andvirði s:nu.
Innköllunarmenn Heimskringlu:
1 Canada:
Árborg..................... .....G. 0. Einarsson
Árnes ..........................F. Finnbogason.
Antler.............................Magnús Tait
Baldur ..................i.....Sigtr. Sigvaldason
Beckville....................... Björn Þórðarson
Bifröst.......................Eiríkur Jóhannsson
Bredenbury ................Hjálmar 0. Loftsson
Brown......................Thorsteinn J. Gíslason
Churchbridge.................. Magnús Hinrrksson
Cypress River .......‘............ Páll Anderson
Elfros..................... J. H. Goodmundson
Framnes ...................... Guðm. Magnússon
Foam Lake....................... John Janusson
Gimíli ....................... B. B. Olson
Glenboro ......................... G. J. Oleson
Geysir ...................... Eiríkur Jóhannsson \
Hecla .... ,.................. Jóhannes Johnson
Hnausa .... +................... F. Finnbogason
Howardville ................Thorv. Thorarinsson
Húsavík ........................John Kernested
Icelandic River .............Sveinn Thorvaldson
og Thorvaldur Thorarinson
Isafold .......................... Ámi Jónsson
Innisfai'l .. ................ Jónas J. Húnfjörð
. Kandahar ......................... A. Helgason
Kristnes .......................... J. Janusson
Leslie ............................ J. Janussoni
Langrulh ................. Ölafur Thorleifsson
Liilesve ........................ Philip Johnson
Lonley Lake.................. Ingim. Ólafsson
Lundar............................. Dan. Lindal
Mary HiB ............... .... Eiríkur Guðmundsson
Mozart........................... A. A. Johnson
Markerville ........... .... .... Jónas J. Húnfjörð
; * Nes ............................ Páfl E. Isfeld
Oak View .... .............. Sigurður Sigfússon
Otto .... ....................... Philip Johnson
" Piney ........x..................S. S. Anderson
Red Deer ...^................. Jónas J. Húufjörð
ReykjaVík .......................Ingim. Ólafsson
v ■; Swan River ..................... Halldór Egilsson
' Stony Hill ..........,............Philip Johnson ^
Sefkixk...........B. Thorsteinsson og Jón Eh'asson -->4;
/] Siglunes..........................Guðm. Jónsson ■:
” Steep Rock ........................... Fred Snidal
- v ‘ Thornnil ............. ..... Thorst. J. Gíslason
Víðir .............' .... ....... Jón Sigurðsson
t- Winnipegosis .... ................ August Johnson
Winnipeg Beadh ................. John Kernested > ]
i Wynyard ...................... Gúðh Kristjánsson
5r Vogar ................ ,........ Guðm. Jónsson
i;; Vancouver............. Mrs. Valgerður Josephson
I Bandaríkjunum.
>V , Blaine....................Mrs. M. J. Benedictson
Bantry ........................ Sigurður Jónsson
Ediniburg.......................S. M. Breiðfjörð
Garðar ........................ S. M. Breiðfjörð
Grafton .......................... Elis Austmann ■‘•vj
Hállson ........................Árni Magnússon
Ivanhoe ........................ G. A. Dalmann
Los Angeles ................ G. J. Goodmundson
” Milton ...................... Gunnar Kristjánsson
Mountain ‘ ;
Minneota ...................... G. A. Dalmann
Minneapohs ........................ H. Láhisson
Pembina .................... Þorbjörn Björnsson
Point Roberts ..............Sigurður Thordarson
Spanish Fork ................. Einar H. Johnson
Seattle....................Mrs. Jakobína Johnson
Svold............................ Björn Sveinsson
Upham ......................... Sigurður Jónsson
' /
Heimskringla News & Publishing Co.
'Winnipeg, Manitoba. >
P. 0. Bor 3171 853 Sargent Avo.