Heimskringla - 21.11.1923, Síða 4
4 BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGL A
WNNIPEG, 21. NÓV. 1923.
HEIMSKRINQLA
18S#>
fctfinar ftt A hveriua mlAvlkatlefi
EiffeBdnr!
IHE VIKKMG PRESS, LTD.
KU og 855 SARGBNT AVE., WINNIPEO.
TalaAooH N-6537
VerB blaSalaa er 93.00 Argangurlim bocg-
lat tyrtr fram. Ailar borganlr ■endlat
rAfetmamil blabalaa.
STEFÁN EINARSSON, ritstjóri.
H. ELÍASSON, ráðsmaSur.
Ctaaáakrtft t«í blaSatM.
Heimsikrlng:la Nrws Pahllahlng; Co.
T.ocqaa n f
THE VIKI!f« PRBHS, Lti^ Doz 81T1,
Wktnlpe®, 1 Imm.
UtanAakrUt tll rttotjAram
EDíTÖR HEIMSKRINCLA, Box tlH
Wtnnipeg, Man.
The ‘Heimskringla” is printed and pub-
lished by Heimskringla News and
Publishing Co., 853-855 Sargcnt At«_
Winnipeg, Manitoba. Telephone N-6537*
WINNIPEG, MANITOBA, 21. NÓV. 1923.
Andvökur
IY. og Y. bindi.
Eftir Stephan G. Stephansson
Gefnar út í Winnipeg.
Fullra sjötíu ára gamall bíður Kletta-
fjalla skáldjöfurinn Islendingum tvær nýj-
ar Ijóðabækur í viðbót við hin þrjú bindin
af “Andvökum”, sem út voru komin. Er
Ijóðatillag hans þá orðið eins djrúgt að rúm-
máli og þeirra er mest hafa ort á íslenzku,
En ék’ki væri svo stórum augum á það eitt
lítandi, þó að svo mikið Iiggi eftir skáldið.
Hitt er stórkostlegra, að það skuli mega
telja með því allra bezta er ort hefir verið
á tungu vorri.
Kvæðin í þessum nýju bindum eru ort á
árunum frá 1908 til 1923, þ. e. á sextugs og
sjötugs aldri skáldsins. Og samt verður ekki
séð, að aldurinn og líkamjega vinnustritið
sem höfundurinn hefir orðið að hlýta, dragi
að mun flug úr fjöðrum hans. Arnsúginn
heyra menn enn undan skáldvængjum hans
og hauksaugun eru ^ins hvöss og skygn
og áður en hann skimar of heima ofan úr
skeiðvangi skáldaflugsins.
Eitt af því, sem kalla má meistaraverk af
því sem skáldið hefir ort á fyrri árum, er
kvaöðabálkur hans “Á ferð og flugi”. Þó
að söguljóðin og ættjarðarsöngvar hans í
fyrri bindunum Iæsi sig svo um sál Iesarans,
að ekki verði nær því komist, og snildin sé
ógleymanleg, þá má samt tala um þennan
ferðabálk, sem eitt af hans meistaralegustu
▼erkum. Hann er og lengri en önnur góð-
lcvæði höfundarins, og með honum er numið
nýtt land í heimi íslenzkrót bókmenta.
En hví er hér verið að minnast á kvæði,
sem Iesin hafa verið og lærð og dæmd?
Vegna þess, að ef gripið er niður í svipuð
efni í þessum nýju bindum og skáldið hefir
ort bezt um, verður skildleikans brátt vart.
“Ferðaföggur”, heitir all-langt kvæði í hin-
um nýútkomnu bókum. Systkina bragurinn
á því kvæði og á kvæðinu á “Ferð og flugi’ ,
er augljós. Skáldið hlákkar til að geta
skotist, 'þó ekki sé nema skyndiför, vestur á
Kyrrahafsströnd. Það er hressandi að ferð-
ast og sjá eitthvað annað bera fyrir augu,
en það dagsdaglega. En —
“Samt er öllu yndi dreift á bng,
eigi maöur sér ei fleygan hug,
færan út af lötur-brautum Jesta —
LeiTiur slóði væri “Sípíar!”
eetti maður sér ei frárra far
Jæssum flanna, og ferðaiangi rtiesta,”
Og vissulega er hinn “fleygi hugur” með
í förinni, er Stephan G. ferðaSt. I gömlu
kvæði kemst skáldið svo að orði ,að hann
•é kominn á það lag, að ferðaSt þó hann
sitji kyr heima. En hann kann einnig að
▼era heima, þó að hann ferðist, eins og þessi
▼ísa ber með sér: —
"Ú'tþrá og faðmandi og fríð
fjarlægðin, og andrúms-loftin víð,
grípur hönd manns hlýtt og til sín teiðir.
Hvirflar, næstum óvart burt f geim —
Hvar sem ieniir ait er orðið heim!
Eins og ljóð og ljósið út sig breiðir.
Þegar skáldið er lagt af stað og komið
▼estur á fjöllin, er hann búinn að hrista af
gér það, sem hugann batt heima. Hann er
á valdi líðandi stundar —
-------"begar regin-fjöil
opna Iangar leyni dyr í vegginn —
Læikur þarna befir hjörgin flutt,
áin hérna allan daiinn rutt,
Þar sem slútti ófær jökul-eggin.”
|En svo spyr skáldið hver séu nú “brúðar-
Jaun” þessara berserkja, sem ruddu þetta
hraun? Og hann svarar því þannig:
"Pyrlr skuld þá, skáldsins ómakslaun
skáruð svo upp, fyrir ykkar raun:
Pegins unað fegurðinni að vinna —
Fúsum Jiræklóm surnir hafa í y,
þannig þrotið hteði fom og ný —.
stoörð í^jöll og hraun á vegum hinna.”
'^feguTð á fjöllum uppi er víða vel lýst:
“Milli fjalla opnast breiða blá,
brot af himni fallið jörðu á,
djúitið tæra — dalavatn í skorðum,”
en eigi að síður eru sum þessi fjöll varla
þess verð að yrkja um þau. Þau eru sum-
staðar —
— — “loðnar pælur, pottlokaðar sköflum:
Skapraun manns, að skreiðast kringum börð,
skriðu-hlíð — og stundum undir jörð —
Lífið hefir kviksett mann, með köflum!”
Og þá opnast fyrir hugskotssjónum hans
fjöllin á Fróni:
“Eg veit land — þó lægri þyki staður,
leiðin verri, og hægðin miður trygð.
bað á fjöll, sem eru betur bygð.
Drottinn varð þar meiri listamaður.”
af fjöllum er komið,
Kyrrahafsströndinni,
mn 1
segir
Þegar ofan
stórborgina a
skáldið:
“Efra daigsett. Gegnum gráloft hljótt
gióir sjóarborgin út í nótt.
sem é höfði stjörnukerfi stæði
iStunduim hópað eða fest á þræði —
Depia neistum huldir ásar og
undirdjúpin tendra vafurlog.”
Er lýsingin á borginni eða borgarlífinu,
bæði löng og meistaralega sönn. Þó yfir
það alt verði að hlaupa hér, er ekki hægt að
neita sér um að stanza við þessar hending-
ar:
“Gulnar sól við sót og reykjar-ský.
Suðar Löngum veggjaröðum í
Knúðra véla kaldur hjartasiáttur,
Kringum titrar einhver leyninváttur.
Menn og hlutir ganga sem á gióð
gegnum brölt og skræki-lúðra hijóð.”
“Hvílík sóun, bæði á hjarta og hug:
Hégóminn og þetta óðaflug!”
segir skáldið ennfremur um borgar-erilinn.
Kveður hann slíkt minna á stigamenzku, og
að hugsunin sé eintóm málamynd:
Meinloka uin boðorð eða synd.”
Loksins sér hann sléttan bala í borginni:
“Þarna loksins brosir bali mót,
björk og rósir, líf, en ekki grjót:
Horn al’ Eden, engum manni vörðum.
— Annars væri skárst í kirkjugörðum —
Yið höfum frelsað teig af sól og söng
svona inn í miðri borgar þröng.
Og mannlífið sér skáldið fegurra og betra:
“Daginn þann, sem vitið kemst til ralda”
og-------
"Verkfærin — sem mest þarf á að halda
mannleg iðja, vistuð sjálfri sér — ”
gengur til verka.
Á margt hefir nú verið minst í “Ferða-
föggu ’-bálkinum í þessum nýrri kvæðum
Stephans G. Ennþá er þó ekki komið að
síðasta- og, ef til vill, skáldlegasta kaflanum.
Heiíir hann “Með fjörum fram”. Úr fjör-
unni lítur hann yfir landið og hafið, og
verður útsýnið þá hið indælasta:
Hnattaflokksins himin-vangi á
húsmóðir, þér jörðin okkar smá!
Nú hefir sólin dælt úr sjávardjúpi
gufutröf í þoku kyrtil þinn,
þönd á þlæ um sund og dalinn inn.
kollhæð fjalla af kviðsiJfruðuan hjúpi.”
og--------
"Manni er eins og inn í þessum straum
óri í mynd af hálfu gleymdum draum —
Sjór í vostur, víddir lengri en eyigjum!
Gljáslétt þiljan. Þvílík undur sjón!
Þarna firðir, víkur, sund og lón.
Hafið deplað alt nreð biáurn eyjum.”
Þörfina að sjá hafið, segir hann ættgenga
hjá sér, því við hafið hafj hann notið unaðar
heima; og — :
"Það er iíka eins og hugsun hver
stígi upp úr hafi hrein og þTegin.”
og-------
Jafnvel borgarbeðjan sýnist fríð
Brosir húsaröðuð vík og hlíð,
Eins 'og hulduheimur upp sér lýki.
Er sem hafi 1 bezta svipinn sinn
Sveitin 'klæðst og bjóði manni inn,
eéð af væng frá hafsins breiðaibliki,”
Yfir aðeins einn kvæðabálkinn hefir nú
verið litið. Og af því að þetta átti ekki að
vera neinn ritdómur, höfum vér Játið höf-
undinn sjálfan hafa orðið. Geta menn af
>ví dæmt fyrir sig sjájfir. Þyki það, sem til
íefir verið týnt úr þessu eina kvæði, nokk-
urs vert, má af því gera sér í hug, hvað báð-
ar bækurnar hafi að bjóða, er svona mikið
elst í einu kvæði. Á fleiri kvæði, bæði
eins löng og efnisrík, mætti benda. En ef
farið yrði til þess, yrði það æðilengra mál,
en hæfilegt er í stuttri blaðagrein. Úr svo
miklu er þar að velja. Að öðruleyti væri
>að einnig óþarft. Islendingum, hvar sem
eru, er Ijóðagerð eins mesta skáldsins ís-
enzka of kunn til þess. Þeim er það fynr
öngu ljóst, að það sem Stephan G. yrkir, er
>rungið af viti, að skáldskapargáfa hans er
sá vitazgjafi, sem aldrei verður uppskeru
vant í, hvemig sem viðrar. Að fara að
segja þeim, að í þessum nýútkomnu bókum
væri um skáldskap að ræða, sem vert er að
tynnast, væri blátt áfram hlægilegt. Sá,
sem enn er duhnn þess að eiga von á því,
verður það að líkindum ávalt.
I þessum nýju bindum hefir skáldið skift
efninu í níu kafla. Heiþr hinn fyrsti “Veð-
ur vitar”; eru þa2? véðurvísur og er sá
cafli stuttur. Annar kaflinn heitir “Árbæk-
ur”, stakar vísur og stutt kvæði ýmislegs efn-
is. Þriðji kaflinn heitir “Hesta skálar”. Er
hann ljóð um merka menn, félög og kviðl-
ingar við ýmisleg tækifæri. Kafli þessi er
bæði langur, og hvert kvæðið öðru betra í
honum. Fjórði kaflinn heitir “Grafgötur
I honum er kvæði það, sem hér hefir verið
mest vitnað í; er sá kafli helmingur fyrra
bindisins og því lengri en nokkur hinna kafl-
anna. Þar em mörg gullfalleg kvæði. Eitt
heitir “FossaföII”. Þar í er þetta erindi:
“Mig langar hins, eins lengi og fjallið stendur,
að lyfta byrði, er þúsund gætu ei reist,
Og hvíla allar oftaks lúnar hendur
á örmfum mér, er fá ei særst né þreyzt.
Og veltu mína vefa láta og spinna,
minn vatna aga lýja skíran málm,
og sveita-Huidum silki möttul vinna,
og Sindrum hafsins gulli roðinn hjálm.”
Svo mælir fossinn; á mörg gullkorn þessu
lík má bendá í þessum kafla.
Fimti kaflinn heitir “Sögusagnir”. Þar
eru kvæði um Kölska í skáninni hjá Sæmundi
fróða, sem skemtilegt er að lesa, auk annars.
Sjötti kaflinm heitir “Langdvalir”. Er hann
þrír langir kvæðabálkar: Björg á Bjargi,
Kolbeinslag og Jólabylurinn. Sjöundi kafl-
inn heitir “Vígslóði”. Er þar í samnefndur
kvæðabálkur, “Á rústum hmninna halla”, og
fleiri kvæði snertandi líkt efni. Áttundi kafl-
inn heitir “Skráveifur”. Mest smávísur, og
gletnissvör til þeirra er í ritdeilu lentu við
skáldið út af stríðsmálum, og svo nokkrar
vísur og kvæði annars efnis. Níundi og síð-
asti kaflinn heitir “Heimjeiðis”. Eru þar
j kvæði þau, er skáldið orti í ferðinni heim til
j íslands ásamt öðrum kvæðum.
jÞess var minst í byrjun. þessarar greinar,
að það væri bæði mikið og gott safn af
kvæðum, er eftir Stephan G. lægi nú orðið.
Vaknar þá sú spurning, hver eru launin, sem
hann fær fyrir það? Eitthvað má vera, að
hann hafi úr 'býturn borið af sölu bóka
sinna. En svo lítið ætlum vér að afgangs
hafi verið útgáfukostnaði, að lítt sé það
teljandi; hefir það lengst af verið óaðskilj-
anlegt íslenzkri bókaútgáfu. Stritið á dag-
inn og andvökur á nóttum, er þá það eina
sem að stórskáldið ber úr býtum fyrir sitt ó-
metanlega tillag til bókmentanna með sín-
um 5 bindum af Andvökum. Og nú er hann
sjötugur að aldri. Hendurnar, sem fyrir
honum hafa unnið, hljóta að vera farnar að
stirðna. Og hvíldin þó frá stritinu líklega
fjarri eins lengi og skáldið lifir. Myndi það
hafa verið svo með hann, ef hann hefði fyrir
aðra þjóð en íslendinga kveðið? Varla. Eft-
ir sjötugs-aldur hefði skáldgyðjan að líkind-
um ekki þurft að elta hann alla daga út um
skóga, haga eða við heimilisverk og bíða
eftir að hann lyki þar við sitt daglega starf
og strit, áður en hún fengi að syngja fyrir
hann, eins og hann sjálfur kemst að orði í
einu kvæði sínu, ef hann hefði ort fynr em-
hverja aðra þjóð, en þá ljóðelskustu í öHum
heimi! Veit eg það að íslenzka þjóðin er
fátæk og fámenn, þó öllum brotum hennar
sé til skila þ«Idið. En er hún ávalt of fá-
menn eða fátæk til þess, að gera annað, en
að þyggja?
Um ytri frágang þessara nýju binda er það
að segja, að leitast var við að hafa hann að
öllu leyti eins og á hinum fyrri bindum af
Andvökum. Prentunin var gerð hjá Viking
Press féilaginu, og bandið hjá Columbia
Press Ltd. Verð beggja nýjuj bókanna er
$6.001 Ætti ekki aðeins alt upplagið af
þeim að seljast greiðlega, heldur ætti einn-
ig hvert heimili, að eignast skáldverk Steph-
ans frá byrjun, sem nú á það ekki. Áuk þess
sem að það brigði upp ljósi í huga lesarans,
og gerði útsýnið skírara, fegura og meira
bæri það einnig nokkurn vott um að vilja
greiða skáldinu eitthvað af þeirri skuld, er
Islendingar eru í við það.
Þökk og virðing ber skáldinu fyrir sína
miklu og góðu ljóðagerð og hin sígildu bók-
mentalegu áhrif hennar.
‘ EiBtreiðin” 29. árg.
5. —6. hetti.
Þetta er fyrsta bindi Eimreiðarinnar sem
út kemur síðan dócent Magnús Jónsson lét
af ritstjórninni, en Sveinn Sigurðsson cand1.
theol. tók við. Efnisskráin er þessi:
Matthías Jochumsson: Yilhjálmur Morris,
kvæði og æfiágrip með 3 myndum.
Haraldur Níelsson: Eitt af vandamálum
Nýja Te.stamontLs skýringarirmar.
Sveinn Sigurðsson: Rahindranath Tagore,
með mynd.
ólafur ólafeson: Prá Kfna, með ■ mynd-
um.
Yilhjálmur 1>. Gíslason: íslenzk blaða-
menska; hundirað og fimtíu ára minning, með
7 myndum.
Ljöð eftir ýmsa.
Hallgrímur Hallgrímseon: Stúdentalíf á
Garði, með 3 myndum.
Þorsteinn Erlingsson: Staka.
Johan Bojer. Sagan urrf bann Pétur (Sv.
6. þýddi).
Sveinn SigurfSsson: Töfrar loftskeytaona.
J. A.: Um séra Jón Sveinsson.
Sv. S.:, Ritsjá.
Talsvert veigamiklar eru sumar ritgerð-
irnar í þessu bindi, t. d. hin ítarlega og eink-
ar skemtilega grein um Islands-
vininn, Vilhjálm Morris eftir
Matthías. Hefir grein sú ekki ver-
ið prentuð áður og hið ágæta
kvæði um hinn sama ef til vill
ekki heldur, sem birt er í þessu
blaði. Einnig er gildandi fengur
nokkur í greinum H. N. og V. Þ.
G. Við grein hins síðartalda, um
sögur íslenzkrar blaðamenzku
virðist þó hálf undarlegt, að geng-
ið skuli algerlega fram hjá blöð-
um þeim er gefin hafa verið út
af íslendingum Vestanhafs, en
hvert blað annað nefnt, hvort
sem heima eða erlendis er gefið
út á íslenzku. Þetta er þeim mun
meiri ókostur, sem gefið er í skyn,
að með grein þessari sé verið að
gefa stutt og handhægt yfirlit yf-
ir íslenzk blöð á síðastliðnum
150 árum. Hvað sem sagt er um.
vestur-íslenzka blaðamensku, hef-
ir hún þó það til síns ágætis, að
hafa haldið til haga fregnum af
íslendingum í þessari heimsálfu.
Án blaðanna myndu Islendingar
hér gleymdir og týndir fyrir
nokkru. Þýðing blaðanna hér er
því auðsæ. Að öðru leyti eru ís-
Ienzku vikublöðin sem hér eru
gefin út, elzt núlifandi íslenzkra
blaða; annað að minsta kosti.
Samt er erfiðara að halda hér úti
íslenzkum blöðum en heima.
Hefði mátt geta þeirrar baráttu í
sambandi við arðmæðusögu ís-
lenzkrar blaðamensku. Ennfrem-
ur hafa vestanblöðin ékki verið
neinn tiltakanlegur eftirbátur ís-
lenzkra blaða annara sömú teg-
undar, hvorki að stærð né hvers-
konar frágangi öðrum. Og hví þá
ekki að geta þeirra? Yfirleitt sjá-
um vér enga sanngjarna ástæðu
fyrir því, að sleppa vestanblöðun-
um úr “Hundrað og fimtíu ára
minningu íslenzkrar blaða-
mensku”, eins og gert er í á-
minstri grein.
Það sem hinn nýi ritstjóri
Eimreiðarinnar leggur í þetta
skifti til ritsins, virðist vandað
og Iaglegt. I ritdómum sínum er
hann vægur og þykir horfa bet-
ur yið, að .^oýnnast kostanna
fremur en ókostanna. Getur ýms-
um augum orðið á það litið. Þó
þeir séu engan veginn ofmargir
sem minnugri eru á það góða, en
það aðfinslu verða.
En þrátt fyrir þessar athuga'
semdir, vill Heimskringla geta
þess, að henni koma þessi tvö
hefti Eimreiðarinnar fyrir sjónir
sem ein af hinum betri. I efnis-
vali hins nýja ritstjóra virðist
gæta hæfileiks, sem heppilegur
er ntnöfundum, og ritblær hans
er hir.n viðfeldnasti. Ekki sízt
vegna hins síðast talda, er það
spá Heimskringlu, að ritið verði
vinsælt í höndum nýja rit-
stjó'ans.
------------x------------
Dagbókarbrot.
# • j ■
Eftirfarandi dagúókaribrot er dá-
lítil tilraun, aö mála 1 orðuim, aól-
arlag I hitabeltlnu, falleg'asta eólar-
lagið eem höfundurinn rá þar,
næstum ein» fallegt og etundum á
felandl.
Við sitjum nndlr attapþakinu, í
eólskýlinu, fjórir gæðingar Mrs. H.
og götrum miöaftan teið, sem hún
skenkir okkur náðarsamlegast með
eiginhendi. Hópurinn er býsna
mislitur, þó lltill sé. O'Lachlln er
emávaxinn, eldfjörugur Irlending-
ur, rauðhærður og hrokkinhærður,
bláeygður og enareygður, upp-
etökkur og hvatvls. Hann er aðal-
umlboðsmaður “Dr. Williams Pink
Pills for Pale People” í Singapore,
og hefir 1000 diali í fðst laun á mán-
uði, fyrir að ota þessu ailsherjax-
meðali að náunganum. Þarf það
varla frekari skýringar við. Þé er
vinur hans, málafærslumaður frá
Oeylon og heitir Pearson, þó hann
sé Tamil. Tamílar eru dravíðsk
þjóð, sem þúa á súðurodda Vestur-
Indlands'"Ög Öeylon, svartir á hör-
und, en fríðir sýnum og íturvaxnir.
Pearson hefir lögfræðispróf frá
Oami)ridgo- á Englandi og er cinn
af hinuni'-' rnérgu háskólagengnu
Indverjura, sem vegna hinnar æfa-
gömlu indversku menningar þykj-
ast alt vita hetuT en all-
ir aðrir um alla hiuti, milli
himine og jarðar og engan-
DodcPs nýmapillur eru bezta
nvrnameSaliS. Lækna og gigt.
bakverk, hjartabilun, þvagteppu.
og önnur veikindi, sem stafa frá
nvrunum. — Dodd’s Kidney Pills
kosta 50c askjan eSa 6 öskjur fyr„
m‘ ^2.50, og fást hjá öllsnn lyfsöí-
um frá The Dodd’s Med*ci»»#
Cfe.. Ltd., Toronto. OnL
veginn setja ijós sitt undir mæliker.
Óstöðvandi máikvörn er Pearson,
sfmialandi ýmsar heimspekisbábilj-
ur, og um hinn goðumlíka uppruna
Indværjanna, ef stiflan er fcekin úr
honum. Svo er hinn þögli Frakki
Serdan, hetjan frá Verdun, með
hundrað örin og fallega þunglynd-
isbrosið, gæddur þeirri fágætu
gáfu, að geta þagað með manní
stundum saman, þó hann sé lftt
kunnugur manni. Við iiggjum oft
þama f skýlinu á kvöldin, eftir að
hinir eru farnir til húsa, Rggjum
f langstólunum og þegjum. Hann
er þögull að eðlisfari og eg af þvf
eg er hitaveikur og þar af leiðandi
amasamur.
Helliskúr kom meðan við drukk-
um teið, og ball á attapþakinu
eins og vélabyseu-skothríð á stál-
þynnu. Þegar upp stytti fór hús-
freyja heim og með henni Irinn og
Mr. Pearson, til þess að spila “rou-
lette” um fimmeyringa. Þeir eru
mestu epilafuglar báðir.
Við (Serdan liggjum einir eftir,
værukærir og þegjandi eins oig
vant er. Reignsvalur andvari frá
hafinu hjúfrar 1 kókospálmablöð-
unum í 60 feta hæð. RJgningin hef-
ir hreinsað loftið. Hiinininn er
eins og krystalshvelfing upp yfir
okkur. Sólin hraðar sér beint nið-
ur að sjóndeildarhringnum f vcstrf
og dreifir gijáskærum postulínslit-
um yfir h»f og iand, með gullnrf
og gjöfulli hendi.
1 fjarska, í suðaustri skýtur
Tanjong Stapa, næstsyðsti höfðinn
á meginlandi Asíu, kollinum upp
yflr sjávarflötirm. Frá euðaustrf
til suðvesturs þenur Battam-eyjan
sig löng og lág, milli Tanjong
Stapa og Puiau Blakang Mati-eyj-
arinnar bak við dauðann, — eijns
og lásinn f smargðgrænu eyja-
keðjunnl, sem lykur um hina geysi-
stóru skipalegu í Singapors.
Sólin er nú lángt gengin í vestr-
ið. 1 austri er hafið tingrátt, á
Battam-eyjuna slær veikum fjólu-
litum blæ. f hana ber fjöldi af
kínverskum djúkum, með mold-
rauð segl, eem hefja sig upp úr
landskugganum. Það glitrar kulda-
lesa á hvítmálaða olíugeimana á
Samboe-cyjunni, sem sindruðti
kvöldgeislarnir á tröllaukna, hvít-
fægða minnisvarða. Á ytri skipa-
legunni er fjöldi af kola- og farm-
döllum, sumir eins og stirnaðir ó-
freskisdraumar, aðrir spúandi kaf-
þykkum kolamekkinumí upp ÚJr
reykháfnum albúnir I kapphlaupiS
til fjarlægra stranda.
Blakang Mati liggur roykblá f
sólmóðunni f skugganum af trölls-
legum strokkkmynduðum skýstrók,
kolsvörtum og geigvænlegum, ein*
og hann ylli út úr einhverjum nf-
skaplegum gíg rétt á bak við eyj-
una.
Sólin er nú að hnfga til viðar &
bak við Port Canning, elstu vlg-
girðinguna í Singapore, eins og
geysilegur vígahnöttur, sem veltir
eldflóði efnu yfir bæinn. Eldskin-
ið glampar á húsveggjumim, svo
borgin er öll sem eitt eldhaf. Ráð-
hústuminn einn, sem ber í ský-
stóipann mikia stendur sem blá-
grýtissúla úr iniðju eldhafinu.
Bjanna slær á himinlnn í austrf
og suðrf. Og nú steypir Battam
líka purpurakápunni yfi.r sig. Eld-
líkami sólarinnar hverfur nú alveg
á hak við norðuröxlina á Fort
Canning og á sama augnabiiki