Heimskringla - 18.03.1925, Síða 4
4. BLAÐSlÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 18. MARZ 1925.
■ffiíehnskrinxslei
(StofnnTS 188«)
Krmnr flt fl hverjam mhivlknderi
EIGENDUR:
VIKING PRESS, LTD.
853 o* 855 SARGENT AVE.. VVINfiIPKG,
Talsfml: N-6537
Vor« blaBsins er »3.00 Argangurinn borg-
lst fyrirfram. Allar borganir sendist
THE YIKING PRESS LTD.
SIGPÚS HALLDÓRS frá Höfnum
Bitstjóri.
JAKOB F. KRISTJÁNSSON,
Ráðsmaður.
UtanflNkrlft tll blaflmlnat
THB VIKING PRESS, Ltd^ Box 8105
UtanflNkrlft tll r||NtJrtranói:
EDITOK HKIMSKKINGLA, Uox 8105
WINNIPEG, MAIV.
“Heimskrlngla Is pablished by
The Vlkinx Preaa L.td.
and prlnted by
CITY PRINTING Æ PUBLISHING CO.
853-855 Sareent Ave., Wlnnipeg, Man.
Telephone: N «537
Seinni part dagsins, er brtt. viö tmnan lið b~),
haföi verið samþykt, kom tillaga frá J. Gillies,
Brown, studd af B. B. Ólson, að samþykkja
nefndarálitið með áorðruMn breytingum. Var
hún samþykt með öllum greiddum atkvæðum og
málið þar með afgreitt af þinginu.
Þá er þriðji liður c) hafði verið samþyktur
var ákveðið að fresta fundi til kl. 2 e. h.
WINNIPEG, MANITOBA, 18. MARZ 1925.
Sjötta Ársþing
ÞJOÐRÆKNISFELAGS íslendinga
1 VESTURHEIMI.
Frh.
Fundur var settur að nýju, fimtudaginn 26.
febrúar, kl. 11.30 f. h.
Vara.ritari las upp fundargerð síðasta fund-
ar og var hún samþykt með þeim breytingum, að
grein sú, er svo hljóðar: “Þá las Björn Pétursson
upp athugasemdir yfirskoðunarmanna, og fundu
þeir að hinu óheppilega fyrirkomulagi á bókfærslu
embættismanna félagsins, sérstaklega skjalavarðar
og fjármálaritara, og töldu nauðsynlegt að breyta
bókfærsluaðferðinni”, — breytist á þá leið, að
orðin “skjalavarðar og” falli burtu, þar eð að-
eins er tekið fram í skriflegum athugasemdum
yfirskoðunarmanna í ár, að bending yfirskoð-
unarmanna í fyrra: Um “breyting á bókum og
bókfærslu fjármálaritara. Og heimköllun
eldri árgöngum tímaritsins og innköllun ógold.
inna skulda fyrir það”, hefði aðeins að litlu leyti
verið tekin til greina á liðnu ári.
Þá las Mr. Björn Pétursson upp álit nefnd-
ar þeirrar, er sett var til þess að gera tillögur um
reikningsfærslu og viðskifti félagsins, samkvæmt
bendingum yfirskoðunarmanna, og ýmsra þing-
manna, og svo um löggildingu þess. Lagði nefnd.
in fram álit sitt í 3 liðum.
1 fyrsta lagi: a)að löggilda félagið við fyrstu
hentugleika, b)að haga öllum bankaviðskiftum
samkvæmt bendingum yfirskoðunarmanna, og c)
að féhirðir setji veð, er frkv. nefnd félagsins
ákveði sanngjarnt.
• I öðru lagi: a)að fjármálaritari taki upp
bókfærslu er sýni nákvæmlegai aðstöðu hvers ein.
staklings og deildar við áramót, enda sé skýrsla
hans yfirskoðuð, b'að fjárm.ritari skrifi ölium
meðlimum er skuldað hafa sig úr félaginu
þessu ári aðeins, og bjóði þeim að borga $1.00,
og séu þeir þá nýjir meðlimir.
/ þriðja lagi: a)að skjalavörður ábyrgist fé-
laginu öll skjöl, bækur og aðrar félagseignir, sem
hjá honum séu varðveittar, og af honum með
teknar og setji hann veð hvert ár alt að $2,000
—, en félagið greiði þann kostnað, er af því leið.
ir, b)að allar félagseignir hjá skjalaverði séu vá.
trygðar sanngjarnlega á hverju ári. Ákveði fé-
lagsstjórnin upphæðina og borgi kostnaðinn, og
c) að allar bækur sendar til Islands séu undan.
þegnar þessum skilyrðum.
Nefndarálitið var rætt lið fyrir lið.
TiIIaga kom frá B. B. Ólson, studd af H.
Bárdal, að samþykkja fyrsta lið a). Var það
gert eftir stuttar umræður. — Kom þá tillaga frá
Bj. Magnússyni um að fela stjórnarnefnd félags-
ins að löggilda það á þessu ári, ef hún sæi sér fært.
En samþykt var að vísa því atriði undir ný mál.
Kom tillaga fram um það síðasta fundardag, frá
sírá Rögnvaldi Péturssyni, að fela frkv.nefnd
félagsins, að löggilda það á þessu ári. Var hún
studd og samþykt með öllum greiddum atkvæð-
um.
Fyrsti liður b) var samþyktur með öllum
greiddum atkvæðum, og sömuleiðis fyrsti liður
c).
Þá var samþyktur með öllum greiddum at-
kvæðum annar liður a), um bókfærslu fjármála.
ritara.
Við annan lið b) kom brt.tillaga frá síra
Rögnvaldi Péturssyni, þess efnis, að vísa honum
aftur til nefndarinnar, að hún orðaði hann öðru.
vísi. Var sú brtt. samþykt með miklum meiri
hluta atkvæða. Lagði nefndin liðinm aftur ó-
breyttan fyrir þingið, seinni parts dagsins. Kom
þá tillaga frá J. Húnfjörð, studd af Jóni Jóna.
tanssyni, að samþykkja hann óbreyttan. Gerði J.
J. Bildfell þá brtt. þar við, studda af H. Bárdal,
að frkv.nefnd félagsins sé falið málið til með.
ferðar. Urðu töluverðar umræður um það, en
brtt. loks samþvkt með 23 atkvæðum gegn 6.
Þriðji liður a) var samþyktur með öllum
greiddum atkvæðum. Sömuleiðis þriðji liður b)
og þriðji liður c). ,
Klukkan 2.15 e. h. sama dag var fundur aft-
ur settur og fundargerðin frá síðasta fundi lesin
upp og samþykt breytingalaust í einu hljóði.
Þá las Mr. Páll Bjarnarson frá Winnipeg
upp álit nefndar þeirrar er sett hafði verið til
þess að gera tillögur um tilhögun íslenzkukenslu
á íslenzkum heimilum í Winnipeg. Var álitið í
þrem liðum.
Tillaga kom fram frá Bjarna Magnússyni,' og
var samþykt í einu hljóði, þess efnis, að skifta
fyrsta lið í þrent. Samkvæmt því lagði þá nefnd-
in það til:
/ fyrsta lagi: a)að halda áfram íslenzku-
kenslunni í heimahúsum undir umsjón félags-
nefndar og “Frónsdeildar”. b)að flytja laugar.
dagsskólakensluna á vetrum, til þeirra tveggja
mánaða á sumrin, er alþýðuskólum er lokað, c)
að veita $20—$30 verðlaun á prófum, þeim er
fram úr sköruðu um islenzkukunnáttu.
/ öðru lagi: að þar sem nauðsynlegt sé að
fá íslenzku viðurkenda námsgrein í æðri skól-
um (Highschool) fylkisins, þá sé vinnu haldið
áfram í þá átt, unz því takmarki er náð.
I þriðja lagi: að þar sem komið sé á góðan
rekspöl, fyrir aðgerðir forseta og stjórnarnefnd-
ar félagsins með að fá íslenzku viðtekna sem
námsgrein í háskólum (University) þá skuli því
máli fylgt kostgæfilega til fullnaðarúrslita.
Fylsti liður a) var samþyktur í einu hljóði.
Við fyrsta lið b) kom brtt. frá síra Rögnvaldi
Péturssyni, studd af síra Jónasi Sigurðssyni, þess
efnis að halda skyldi áfram laugardagskenslu á
vetrum, en þar að auki skyldi henni haldið áfram
á sumrum. Urðu töluverðar umræður með og
móti, en að lokum var brtt. samþykt með öllum
þorra atkvæða.
Síra Jónas A. Sigurðsson gerði tillögu studda
af Birni Péturssyni, áð samþykkja fyrsta lið c
óbreyttan. Sigfús Halldórs frá Höfnum gerði þá
brtt., að leyfa að veita alt að $50. — verðlaun,
þar eð miklu meiri nauðsyn bæri til þess að hlynna
aö íslenzkukenslunni hér i Winnipeg en annar-
staðar.
Brtt. var feld með miklum meiri hluta at-
kvæða og tillaga síra Jónasar siðan samþykt með
öllum greiddum atkvæðum.
Annar liður nefndarálitsins var samþyktur
með öllum greiddum atkvæðum.
Þriðji liður var og samþyktur með öllum
greiddum atkvæðupi. Gat síra R. Pétursson þess
í sambandi ’við hann, að vér værum ver settir í
Manitoba, en í Saskatchewan, því þar veitti há-
skólinn í Saskatoon þeim kenslu, er óskuðu þess,
hjá Þorvaldi prófessor Þorvaldssyni. Síra Jón.
as A. Sigurðsson kvað og vera kost á íslenzku.
kenslu við háskólann í Seattle.
Gerði síra Jónas A. Sigurðsson þá tillögu, en
Sigfús Halldórs frá Höfnum studdi, að sam.
þykkja skyldi nefndarálitið með áorðnum breyt-
ingum. ,
Var það samþykt með öllum greiddum at.
kvæðum, og það mál þannig afgreitt af þinginu.
Þá las hr. Jakob F. Kristjánsson upp álit
nefndar þeirrar, er gera skjyldi tillögur um bóka.
sáfnsmálið. Kváðu þeir þann manninn, er þeir
hefðu ætlað að leita ráða hjá, vera veikan, svo
að þeir væru Sjálfir ekki allskostar ánægðir með
tillögur sinar. Leyfðu þeir sér þó að leggja fyrir
þingið:
I fyrsta lagi: að þar eð ótiltækilegt> sé að
stofna bókasafn án þess að tryggt sé húsrúm,
en erfitt að fá það nú, þá mætti reyna að leita
ti! Carnegie bókasafnsins hér, að það varðveiti
bækur félagsins og ábyrgist þær, enda taki það
íslenzkan starfsmann að safninu, og heimili hon.
um nægan tíma frá öðrum störfum, til þess að
halda góðu lagi á íslenzku bókunum.
I öðru lagi: Komist félagið að þessum samn.
ingum, heimili þingið væntanlegri nefnd að leita
til útgefenda og rithöfunda um bókagjafir, og
ennfremur að nota, alt að $200. — á næsta ári til
bókakaupa.
/ þriðja lagi: Takist nefndinni ekki þetta,
skuli hún íhuga aðra möguleika og leggja álit
sitt um þá fyrir næsta þing.
Samþykt var að ræða hvern lið fyrir sigl
Sigfús HaHdórs frá Höfnum benti á það
dæmalausa hirðuleysi um bækur, jafnvel enskar,
er ætti sér stað á Carnegie safninu. Klemens
Jónasson vildi að sem mestu af gömlum, sjald-
gæfum íslenzkum bókum, er nú væru að farast
hér vestra, yrði bjargað á þetta fyrirhugaða safn.
Við fyrsta lið kom brtt. frá síra Jónasi A.
Sigurðssyni þess efnis, að hann skyldi hljóða svo:
“Með þvi að nefndin álítur ótiltækilegt að
stofná bókasafn, án þess að því sé trygt húsnæði,
leggur hún til að kosin sé 3. manna milliþinga-
nefnd til þess að athuga málið.
Þessi brtt. var studd og samþykt með öllum
greiddum atkvæðum gegfn 2.
Við annan lið gerði ^Sigfús Halldórs frá
Höfnum þá brtt. að hann skyldi falla í burtu. Var
hún studd af síra Jónasi A. Sigurðssyni. Brtt.
við brtt. kom frá sira Rögnvaldi Péturssyni studd
af Birni Péturssyni, að í stað liðsins komi nýr
annar liður, er hljóði svo: ‘'Nefndin leggur til að
væntanlegri 3. manna milliþinganefnd sé falin
varðveizla þeirra bóka, er bókasafninu kann að
áskotnast”. Var þessi brtt. við brtt. samþykt með
öllum þorra atkvæða.
Við þriðja lið nefndarálitsins, kom sú brtt.
frá síra Rögnvaldi Péturssyni, studd af sira Jón.
asi A. Sigurðssyni, að liðurinn falli í burtu, en
i stað hans komi hinn upprunalegi annar liður
nefndarálitsins, með litlum breytingum, er hljóði
svo: “Takist milliþinganefndinni að komast að
samningum á húsrúmi fyrir bókasafnið, felur
þingið nefndinni, að fara þess á leit við útgefend-
ur og rithöfunda, í nafni félagsins, að gefa því
bækur, og að sjá um það eftir megni, að forða
dýrmætum íslenzkum bókum hér vestra frá glöt-
un. Ennfremur heimilar þingið nefndinni að
ijota alt að $200.00 á næsta ári til þess að kaupa
þær bækur, sem ekki fást gefnar, og hún álítur
nauðsynlegar”.
Þessi brtt. var samþykt með öllum greiddum
atkvæðum.
Þvinæst var nefndarálitið samþykt, með
áorðnum breytingum, með öllum greiddum at-
kvæðum.
Þá var milliþinganefndin kosin, og var hún
skipuð þeim Páli Bjarnarsyni, Arnljóti B. Ólson
og síra Rúnólfi Marteinssyni.
Var þetta mál þannig afgreitt af þinginu.
Þá lá næst fyrir málið um varnarsjóð Ingólfs
Ingólfssonar.
Lýsti framsögumaður nefndarinnar, er í það
hafði verið sett, Árni lögmaður Eggertsson því
yfir, að álitið væri til, en nefndin kysi að biða
þar til allir nefndarmenn væru viðstaddir.
Síra Jónas A. Sigurðsson óskaði þess, að
álitið kæmi samt fram, og síra Ragnar E. Kvaran
óskaði þess að stjórnarnefndin skýrði þinginu
frá Ingólfsmálinu.
Ivar Hjartarson kvað nefndina hafa komið
sér saman um að leggja ekki álitið fram nema
allir nefndarmenn væru viðstaddir, og Árni lög-
maður Eggertsson kvaðst álita það persónulega
móðgun við sig, ef málið yrði skýrt, eða kæmi
fram á undan nefndarálitinu.
Var málinu því skotið á frest, og samþykt
tillaga frá Jakob F. Kristjánssyni að taka fyrir
Ný ntál.
Las forseti þá fyrst upp ávarp Jóhannesar
glímukappa Jósefssonar, og tillögur hans um ís.
lenzka glimu, stílaðar til ársþings Þjóðræknisfé-
lagsins. Tekur hann það fram að glíman sé hin
eina al.íslenzka iþrótt; og eins og íslenzk tunga
hafi verið og sé hið lífgefandi magn þjóðernis
vors og eðlis, svo sé og hin íslenzka glíma falin
í skauti ættgengra vona vorra, um heiður, karl-
mensku og drengskap íslenzkra manna. Leggur
hann til að Þjóðræknisfélagið gangist fyrir
stofnun glimufélaga meðal Vestur.íslendinga, og
veiti nauðsjmlega liðveizlu málinu til trygg.
ingar.
Verði tillaga þessi samþykt lofar hann að
leggja til $100.00 á hverju ári í tíu ár, er verja
skal til verðlaunagripa handa íslenzkum glímu.
möynum, því aðeins þó, að glímt verði um verð.
launin á mótum í sambandi við árlegt þing Þjóð.
ræknisfélagsins og undir þess umsjón.
Þessu bréfi hr. Jóhannesar Jósefssonar var
tekið með dynjandi lófaklappi. Var samþykt að
setja 3. manna nefnd til þess að íhuga málið, og
í nefndina kosnir Jakob F. Kristjánsson, H. Bár.
dal og Jón Húnfjörð. Kom nefndift fram með
tiilögur sínar daginn eftir, sem hér fylgir:
/ fyrsta lagi: að þingið samþykki tillögu
Jóhannesar Jósefssonar.
/ öðru lagi: að fela þriggja manna milli.
þinganefnd stofnun glímufélags í Winnipeg og
víðar.
/ þriðja lagi: að'þingið skori á deildir að
íy'gja, þeirri nefnd af alefli.
/ fjórða lagi: a$ frkv.nefnd félagsins sé fal-
ið að veita forstöðu glímumóti í sambandi við
þingið ár hvert.
/ fimta lagi: að þingið veiti milliþinganefnd.
inni alt að $100.00 í þarfir þessa máls.
/ sjötta lagi: að fela forseta að þakka Jó-
hannesi, í nafni félagsins hið höfðinglega boð,
og tilkynna honum, að því sé tekið.
Var sámþykt að ræða nefndarálitið lið fyr.
ir lið.
Töluverðar umræður urðu um fyrsta lið,
en að lokum var hann samþyktur með tillögu
frá síra Jónasi A. Sigurðssyni, studdri af Birni
Péturssyni.
Við annan lið kom fram breytingartillaga
frá Birni Péturssyni um að kjósa 5 menn í milli.
þinganefnd, en ekki 3. Var sú brtt. feld með 20
atkvæðum gegn 15, og liðurinn síðan borinn upp
og samþyktur.
Þriðji liður, var samþyktur, samkvæmt til_
lögu frá B. B. Ölson, sfuddri af G. Húnfjörð.
Fjórði liður var samþyktur i einu hljóði.
Um fimta lið urðu langar umræður unz
Björn Pétursson gerði tillögu um að slíta þeim;
studdi Dr. Sig. Júl. Jóhannesson. Var hún sam.
þykt, og liðurinn síðan borinn upp og samþykt.
ur í einu hljóði.
Sjötti liður var samþyktur í einu hljóði.
Þá var nefndarálitið alt borið undir atkvæði
og samþykt með öllum greiddum atkvæðum.
Þá var samþykt tillaga frá Árna lögmanni
Eggertssyni, studd af J. Gillies, að fresta kosn.
ingii milliþinganefndar til síðari hluta dags, þar
eð eigi fengust nægilega margir útnefndir. Var
það gert og gengið til kosningar um þá fjóra:
Jakob F. Kristjánsson, Sigfús Halldórs frá
Höfnum, Jón Tómasson og Eirik Is.
feld. Voru lyinir þrír ^fyrstnefrhdu
kosnir í milliþinganefndina og málið
þannig afgreitt af þinginu.
Þá kom fram tillaga frá Sigfúsi
Halldórs frá Höfnum þess efnis, að
tekin skyldi á dagskrá (hugmynd
Guðmundar Húnfjörð, um að íslenzk
um Winnipeg-börnum sé komið fyr_
ir á íslenzkum sveitabæjum í sum-
arfríinu. Var það samþykt með öll-
um greiddum atkvæðum.
Guðm. Húnfjörð gerði tillögu um,
að kjósa í þetta mál 5 manna milli-
þinganefnd, skipaða 3 konum og 2
körlum. Var hún studd og samþykt.
Samþykt var að fresta kosningu í
nefndina til næsta dags þar eð svo
fáir voru eftir á fundi. Var svo gert,
og hlutu þá kosningu: Mrs. P. S.
Pálsson, Mrjs. H. iDaviðs^on, Miss
Ingibjörg Björnsson, Sigþirður Odd-
leifsson og Jónas Jóhannesson. Var
það mál þannig afgreitt af þinginu.
Þá var samþykt að fresta þing-
fundi til kl. 9.30 f. h. næsta dag.
Um kvöldið kl. 8 var samkoma
haldin, Islendingamót, fyrir tilstilli
deildarinnar “Frón”, í Goodtemplara.
húsinu.
Forseti “Fróns”.deildarinnar, síra
Rúnólfur Marteinsson, flutti stutt á-
varp og bað gesti og aðkomumenn
velkomna á þetta mót.
Þá lék hr. E. Oddleifsson á saxo-
phone og aðstoðaði ungfrú Fríða
Long við píanó, og þótti góð skemt.
un.
Þá las síra Rúnólfur Marteinsson
upp snjalt kvæði, hrynhendu, eftir
síra Jónas A. Sigurðsson. Hafði
höfundurinn ort það fyrir “Frón”,
við þetta tækifæri, eftir beiðni deild-
arforsetans. Var gerður mikill róm.
ur að kvæðinu, unz höfundurinn var
kallaður fram og fagnað að • öllum
ásjáandi.
Þá söng karlakór, undir stjórn
Halldórs Thórólfssonar, og þótti vel
takast.
Þá bauð forsetinn velkominn á
ræðupallinn skáldið og rithöfundinn
Einar H. Kvaran, og var honum fagn-
að með dynjandi lófataki. Erindi sitt
nefndi hann “íslenzkt þjóðerni í
Vesturheimi”, qg var það samið og
flutt af þeirri afburðasnild, sem mönn
um mjög sjaldan á æfinni auðn.
ast að verða aðnjótandi, enda létu
fundarmenn þakklæti sitt og fögnuð
lengi í Ijósi.
Þá söng Sigfús Halldórs frá Höfn
um nokkur lög, og lék Tryggvi
Björnsson undir á píanó.
Næst kom fram á ræðupallinn Dr.
Sig. Júl. Jóhannesson til þess að lesa
upp frumsamið kvæði, ort í tilefni
af þessu þjóðræknisþingi. Bað hann
þingheim fyrst leyfis að mega segja
nokkur orð í óbundnu máli. Var það
upphaf og endir máls hans, að allir
Vestur.Islendingar ættu að samein.
ast um Þjóðræknisfélagið. Goodtempl
arar ættu fyrst að gefa félaginu hús
sitt; Islendingadagurinn ætti héreft-
ir að haldast undir umsjóm Þjóðrækn.
isfélagsins og stjórnarnefndar þess;
íslenzku kirkjurnar ættu að renna
saman í eina kirkjudeild, þar sem þó
hver-deild og hver einstíaklingur væri
frjáls sinnar skoðunar, — undir væng
Þjóðræknisfélagsins; Jóns Bjarnason.
ar skólinn og Gamalmennaheimilið
ættu einnig að leggjast undir umsjón
félagsins, og að lokum ætti að gefa
Þjóðræknisfélaginu bæði íslenzku
blöðin, að þeim yrði steypt saman
eitt blað, er félagið héldi út. — Var
gerðþr hinn( mesti rómur að máli
læknisins, og óx fögnuðurinn og
glaumurinn í salnum um allan helm.
iug við hverja tillögu, unz þakið ætí.
aði af að keyra við síðustu tillög-
una. Að fagnaðarópunum lægðum,
las læknirinn kvæði sitt og hlaut mik.
ið lof fyrir.
Þá söng karlakór Halldórs Thór.
ólfssonar aftur.
Þvínæst las sifa Ragnar E. Kvar-
an upp “Brot úr gamanbréfi”, eftir
Jónas Hallgrímsson, og var að hin
bezta skemtan.
Þá var leikið á hljóðfæri, banjo
og píanó, af þeim Mr. W. Bello, og
ungfrú Fríðu Long. Var það síðasta
atriðið á skemtiskránni, og gerður að
þvi góður rómur.
Síðan var gengið í kjallarasal
Goodtemplarahússins. Dignuðu þar
borð undir hangikjöti og rúllupylsu.
sneiðum, kleinum, pönnukökum, og
öðru góðgæti. Urðu menn að fara
ofan í tvennu lagi, því matur var
framreiddur fyrir 200 manns í einu,
DODD’S nýrnapillur eru bezta
nýrnameðalið. Lækna og gigt,
bakverki, hjartabilun, þvag-
teppu, og önnur veikindi, sem
stafa frá nýrunum. — Dodd’a
Kldney Pills kosta 60c askjan,
eða 6 öskjur fyrir $2.50, og fást
hjá öllum lyfsögum, eða frá.
The Dodds Medicine Co., Ltd.
Toronto, Ontario.
t ’
en um eða yfir 400 manns voru á
samkomunni.
Þar næst var dansað í efri salnurra
til kl. eitf um miönætti. Var þá þess-
ari samkomu slitið, og allra mál aö
hún hefði bezt verið á vetrinum.
Frh.
Stjörnufræðisdeild Harvard há-
skólans hefur nýlega gefið út yfir
lit yfir athuganir sínar á Magel-
lanic stjörnuskýunum á suðurhimn-
inum, í þremur bindum. Er það eink-
ar fróðleg skýrsla og skemtileg-
Stjörnufræðin hefur á síðustu fáum
árum að mun aukið þekkingu á þess-
um stjörnuklasa, og er þessi Har-
vard skýrsla yfirlit yfir alt það,
sem mönnum hefur tekist að læra
um þessi ský, auk þess sem skóla-
deildin hefur sérstaklega lagt fyrir
sig að uppgötva þeim viðvíkjandi-
* # •
Þessi svokölluSu Magellasic ský,
eru i augum stjörnufræðinga, eitt-
hvað það tilkomumesta sem auganu
mætir á himinhvolfinu. Þegar fyrst
hófust siglingar um suðurhöfin,
fluttu sjómenn heim með sér fregnir
um býsn þau, sem sæust á suður-
hvolfinu, hinum ljómandi krossi, sen»
suðurheimskautið vísaði að, og þess-
um skýjum, sem krossinum fylgdi-
Draga þau nafn af Magellan, sem sá
þau, er hann fyrstur manna sigldí
umhverfis hnöttinn. Þó er ætlað, a5
arabiskur ferðalangur hafi fyrstur
séð þau einhverntíma á 10. öldinni.
Gaf hann þeim heitið “hvíta yxnið”-
Sir John Herschel varði miklum
tíma til athugana á þessum skýjum,
en þó er það aðeins síðan ljósmynda-
ismíðir fullkomnuðust, að nokkuð
verulegt þeim viðvíkjandi hefur kom
ið í ljós. \
* * •
Hvorttveggja skýin eru eggmynd-
uð, og fyrirbera augað sem þoku-
móða. Athuganir Híarvard ákólans
hafa leitt í ljós, meðal annars þaö
sem fylgir;
Fjarlægð minna skýsins frá jörð-
inni er 31 kílóparsecs. Einn kíló-
parsec er þúsund parsecs, en parsec
er sem svarar 19 miljón miljónir, eða
19 triljónir mílna. 31 kílóparsecs er
því 589 kvadrilíónir mílna, en sú
vegalengd er sex þúsund milón sinn_
um lengra en fjarlægð sólar frá
jörðinni. Þó glóir það svo skært á
hvolfinu, að auga siglingamannsins í
suðurhöfum dregst ósjálfrátt að því.
Þvermál þess er 2 kílóparsecs, eða
sem svarar 50 sinnum eins langt og
frá jörðinni til stjömuklasa þess er
Hyades nefnist. Af þeim hundruð-
um þúsunda stjarna (sólna), sem
þetta ský mynda, eru 300 svo feiki-
lega stórar, að hver um sig er fimtíu-
þúsund sinnum bjartari en sól vor.
Tvö hundruð og sextíu þúsund af
minni stjörnunum í þessum klasa eru
hver um sig yfir hundrað sinnutn
bjartari en sól vor. Skal því ekki
furða, þó fjarlægðin sé talsverð, að
það sé nokkuð tilkomumikið að sjá.
Stærra skýið, sem ekki glóir eins
bjart og hið minna, er í nokkuö
meiri fjarlægð, eða sem svarar 34
kilóparsecs — 655 kvadriliónir mílna.
Þetta ský er svo stórt ummáls, að væri
það í þessum hluta geimsins, með sól