Heimskringla - 08.04.1925, Síða 7
WINNIPEG, 8. APRÍL, 1924.
HEIMSKRINGLA
7. BLAÐSÍÐA
*—--------------..
The Dominion
Bank
HORNI NOTRE DAME AVE-
oe SHERBROOKE ST.
Höfuðstóll uppb.........$ 6,000,000 ,
Varaajóöur . „..........$ 7,700,000 '
Al*ar eignir, yfir ... .$120,000,000 i
Sérstakt athygli veitt viðskift-
urn kaupmanna og verzlunar-
félag*.
Sparisjóðsdeildin.
Vextir af innstæðufé greiddir
Jafnháir og annarsstaðar við-
gengst.
PHONE A 9253
P. B. TUCKER, ráðsmaður.
-------------------------------
Skemtanir í
sveitum.
Frh.
Skemtanirnar í gamla daga voru
takmarkaöar, og tíðast tengdar við
‘ ákveðin tækifæri — helgar og hátíð-
ir — 0g gamla siðu, er helst ekki
mátti brjóta i bág við. Og við slík
hátíðleg tækifæri átti þaö sér þá oft
stað, eins og áður er getið, að ein.
hverir væru aðkomandi þar sem
skemtunin var.
En heima hjá sér gerði fólk oft að
gamni sinu, þegar tækifæri gafst.
Unglingarnir léku sér á skautum eða
fóru í snjókast, hlóðu snjókerlingar,
spiluðu o. s. frv.
Auk þeirra skemtana sem þegar er
getið, tíðkuðust ýmsir smáleikar, er
tveir tóku þátt í og menn brugðu
fyrir sig, er ekki var öðru til að
dreifa. Vil ég þar minna á hnefaleik,
krók, hræra flautir, rífa hrís, binda
bagga, skera tóbak og hvar býr hún
Nýpa?
Var harðleikríi, því miður, oft við-
höfð í þessum leikjum, enda tilgang-
urinn sá, að fá þann er leikið var við,
til að láta undan og hljóða.
Enn voru tiðkaðir aðrir smáleikar
í mínu ungdæmi, og sumir eru jafn-
vel viðhafðir enn þann dag í dag.
Meðal þeirra skal ég nefna að kveðast
á, geta gátur o. fl. — Þegar kveðist
var á, var vanalega byrjað á þéssari
stöku:
“Komdu nú að kveðast á,
kappinn ef þú getur”, o. s. frv.
Loks má geta um þær gömlu orða-
leiksskemtanir, milli karls og konu,
sem margir kannast við og nefndust:
“að gefa skip”, og “gettu hvað marg.
ir eru árar á borð”. Hafði ungt fólk
gaman að þessu, og lét sér ekki á
sama standa, hver leikslokin urðu.
Þessi minniháttar leikspil, er nú
voru nefnd, eru líklega að “ganga
úr móð”. Þó er ekki langt siðan, að
ég heyrði stúlku láta pilt geta á dálk,
og vitanlega var það hún, er hann átti
að vinna til.
IV. Kvöldvökurnar.
Fyrir 30—40 árum mun sögulest-
or og rímnakveðskapur ihafa verið
all-almennur hér á landi, bæði við
sjávarsíðuna, sérstaklega í verstöðun-
um, og til sveita.
I- ferðasögu þeirra Eggerts Ólafs-
“sonar og Bjarna Pálssonar et að þvi
vikið, að þá, er þeir ferðuðust hér um
landið, 1750—1757, hafði sögulestur
og rimnakveðskapur verið í afturför,
cnda minna gert að því en áður var.
Það má vel vera, að svo hafi verið,
og eitthvað hafa þeir haft fyrir sér í
þessu.
Það er ekki ósennilegt, að dregið
Jiafi úr skemtunum fólksins um og
eftir miðja 18. öl'd, og þar á meðal úr
sögulestri og rimnakveðskap. Árferði
vor oft stirt og afkoma manna erfið
siðari hluta aldarinnar og þetta dró
kjark úr mönnum, svo í einu sem
öðru. Út yfir tók þó þegar móðu-
harðindin geysuðu yfir landið 1783—
1786. Er skiljanlegt að þá hafi oft
verið dapurt og dauft í bygðum
Iandsins og lítið um skemtanir.
Sennilega hefur nú sögulestur og
kveðskapur aldrei lagst niður með
öllu. Likur eru til að þessi gamli
þjóðsiður hafi glæðst aftur nokkru
eftir aldamótin 1800, og einkum þó
eftir 1830. Að minsta kosti sagði mér
gamalt fólk um 1875—1880, að i þess
ungdæmi hefðu sögur verið lesnar og
rímur kveðnar á vökunum.
Maður sem ólst upp austur i Mýr.
dal hefir sagt mér, að á hans ungl-
ingsárum, 1860—1870, hafi litið verið
þar um sögulestur, enda skemtanir
yfirleitt. En um og eftir 1874 verð-
ur breyting á þessu. Þá er farið að
lesa þar sögur viða, og kveða rímur.
Eftir því sem ég kemst næst, og
minnir, mun rímnakveðskapur hafa
verið í minna gengi hér syðra, en
annarsstaðar á landinu, sérstaklega
nyrðra. Dreg ég það meðal annars
af því, að á mínum fyrri árum kynt-
ist ég tiltölulega fleirum Norðlend-
ingum en Sunnlendingum, er voru
góðir kvæðamenn. 1 minni sveit var
litið um rímnakveðskap, og býst ég
við að það hafi staðið í sambandi
við að fátt hafi verið þar um góða
kvæðamenn, eða þeir ekki gefið sig
fram.
Sum rimnalög og rímnabragir voru
hér áður fyr, og eru enn, kendir við
Norðurlandi, t. d. Skagfirska stemm.
an, Vatnsdælingabragir o. s. frv.
Til þess að lesa sögurnar valdist sá,
er til þess þótti bezt fær á heimil-
inu, enda voru þá til á mörgum bæj-
um góðir lesarar. Ef enginn gat eða
fékst til að lesa, var fenginn til þess
maður af öðrum bæ. Stundum fóru
menn um og lásu fyrir fólkið og
og kváðu rímur. Þeir þóttu góðir
gestir þar sem fólk kunni að meta
slikt. En á hinum bæjunum nefndust
þeir flakkarar og vpru mfiður vel
séðir.
Sögurnar sem lesnar voru á kvöld-
vökunuím voru helstar: ’Fornaldar.
sögurnar og þar á meðal Hrólfssög-
urnar, er þótti mikið i varið og voru
alment vinsælar, Noregskonungasög-
ur — Heimskringla — Islendinga-
sögur o. s. frv. Sögur Jóns Thor-
oddsens — Piltur og stúlka og Maður
og kona — voru og mikið lesnar.
Einnig Mannamutiur, Smásögur Pét-
urs biskups o. s. frv. — Þá var og
lesið mikið af allskonar skrifuðum
riddarasögum er einstakir sögufróðir
njenn höfðu safnað og skrifað upp
sér til gamans og dægrastyttingar.
Oft var erfitt að ná i sögurnar. Þær
voru ekki til nema á stöku stað og
þá vitanlega helst hjá bókhneigðu
fólki, er unni sagnafróðleik. Og þeir
er áttu bækurnar höfðu aldrei frið á
sér fyrir bókakvabbi hinnfi. Einna
erfiðast var að ná í sumar Islend-
ingasögurnar. Þær voru margar enn.
þá sjaldgæfari en ýmsar aðrar sög-
ur. — Það var því þarfaverk er Sig-
urðuy bóksaili Kristjárfs^on réðst ]í
að gefa þær út, um 1890 og verður
honum það seint fullþakkað.
Kvöldvökunum sjálfum ætla ég ekki
að lýsa hér. Það hafa aðrir gert,
og gert vel. Fjögur nafnkend skáld
sem ég man eftir hafa lýst þeim í
bundnu og óbundnu máli. Það eru
þau Eggert Ólafsson, Einar Bene-
diktsson í mansöngnum fyrir Ólafs
rimu Grænlendings, Jón Thoroddsen
í Manni og konu og ölína Andrés-
dóttir i Breiðfirðingavisum sínum.
Lýsing þeirra er sannur spegill af
vökunum áður, og eins og ég man
fyrst eftir þeim.
Eggert Ólafsson kveður í “Heim.
ildarskrá” eða “tileinkun sagna/ og
kvæða til kvenna á íslandi”. Hann
segir svo:
Þegar hjá þeim húmar að
og hjarnar Ijós í ranni,
margt þær raula rimnablað
og reka hrygð frá manni.
Drósir jafnt með dygð og ást
dýrum hlýða sögum,
að feðra vorra frægðum dást,
er fyrri voru á dögum.
Sauma, greiða, karra, kljá,
kappið sagan eykur,
spinna, prjóna, þæfa þá,
það er eins og leikur.
A þeim hvergi svefninn sér,
seggir tíðum heyra,
lesarinn þegar letjast fer,
lestu núna meira.
Einar skáld Benediktsson kveður:
Vakan ómar háreyst hér,
hurðu fyrir innan
stakan hljómar. Úti er
utan dyra vinnan.
Saman bekkjast kona og karl
kvæðamanninn heyra,
Gaman ekkert prúðan pall
prýðir annað meira.
Handa allra milli má
margvist skoða tóvið,
banda karlsins fléttu frá
fram í voðarþófið.
Stálið óðar þróttar þungt,
þrumulagi kveður.
Málið góða altaf ungt,
allan bæinn gleður.
lestur í hljóði verða aldrei góðir
lesarar.
V. Skcmlanir nútímans.
Öngum stundin leiðist löng,
léttar mundin vinnur.
löngum undir sagna söng
silkihrundin spinnur.
Situr stokkinn fljóðið frítt,
feimin undan lítur,
flytur hnokkann, brosir blítt,
bláþráð sundur slítur.
Friður haldist. Blómgist bú.
Blessist frúar arinn.
Siður aldinn tengist trú,
tryggist hjúa skarinn.
Jón Thoroddsen segir fyrst frá að-
sókn Þuríðar gömlu. Þar næst lýsir
hann Þorsteini kvæðamanni, föður
Sigrúnar og segir frá komu smalans.
— “Liður nú svo um hríð að allir
þegja í baðstofunni og situr hver þar
sem hann er kominn við sína vinnu.
Því næst ávarpar húsfreyja Þor-
stein. Þykir henni fólkið dauft og
þegjandi og mælist til við hann er
hann hafi lokið við að búa til skaft
á nafarinn, að hann lesi eða kveði
eitthvað fyrir stúlkurnar. Gerir
heimilisfólkið góðan róm að máli
húsfreyju og báðu allir Þorstein
kveða. Er nú fyrst um það rætt,
hvað kveða skuli, og verða ekki all-
ir á eitt sáttir um það. Tekur 'Þor-
steinn síðan af öll tvímæli um það
og hóf að kveða rimur af Úlfari
sterka. *
Þorsteinn kvað hátt og snjalt; það
var hin bezta skemtun; þögnuðu nú
allir í baðstofunni og hlýddu, og var
sem allir yrðu hýrari og kviklegri í
bragði en áður; nálin hjá húsfreyju
gekk tiðara og liðugra. Ástríður
vinnukona kvað undir með Þorsteini,
lagði undir flatt og dillaði og var öll
sem á hjólum; þær Sigríður og Guð-
rún teygðu þriðjungi lengra úr lop-
anum en áður. Sigurði bónda sóttist
og betur verkið, fléttaði hann nú
(reiptagl) miklu hraðar en áður og
hnikti fast 'á við hverja hendingu,
eftir því sem kvæðamaður hóf og
herti á röddinni. Kveður nú Þor-
steinn lengi og vel, og kemur svo að
hann hefir lokið hinni fyrstu rímu;
tekur hann þá hvíld nokkra áður en
hann byrjar næstu rimu og fara kbn-
ur tala um söguna.
Nú heyrist barið eitt eða tvö högg
úti á bæjardyrahurð og truflar það
kveðskapinn. Ekki vill bóndi að
gengið sé til dyra. Segir hann það
ekki sið kristinna manna að knýja
hurðir eftir dagsetur og fara ekki á
bæ og guða á glugga, enda sé það
fjandar og forynjur einar, sem ekki
berji þrjú högg. Fer þá bóndi til
dyra en kemur brátt aftur og kveðst
einskis hafa orðið var, en hundarn-
ir hafi allir hlaupið út með gelti og
spangóli. Þetta þótti mörínum all-
kynlegt, en ræða þó fátt um. Tekur
Þorsteinn enn að kveða og kveður um
hríð og líður á seinni hluta vökunn.
ar”.
Ólínd Andrésdóttir lýsir þannig
kvöldvökunum í Breiðafjarðareyjum:
Hver sér réði rökkruVn í,
rétt á meðan áttum fri;
þá var kveðið kútinn í,
kviknaði gleði oft af þvi.
Skemtanir til sveita nú á timum eru
margar þær sömu og áður gerðist.
Það er farið á skíðum, einkum í snjóa
héruðum landsins, hlaupið á skautum,
glímt, farið í reiptog, leiknir panta-
leikar o. s. frv. Þá er spilað á spil,
engu minna en áður. í sumum sveit-
um hefur spilafiknin aukist til muna
síðustu tvo áratugina, eftir því sem
sagt er. Áður létu flestir sér nægja
að spila um hátíðir og á sunnudög-
um, en nú spila menn alla daga og
vökurnar út. Á öllum mótum og
skemtisamkomum er spilað. Undir
I eins og fyrirlesarinn hefir lokið máli
j sínu, t. d. á námskeiðum, eru spilin
{tekin.
; góðir
Og borið hefur þaö við, að
og gætnir menn hafa verið
fengnir til að hafa eétirlit meS ung-
um mönnum, að þeir ekki spiluðu
meðan á erindisflutningi stóð.
Af spilum, er lítið eða ekkert tíðk-
uðust fyrir 40 árum, má nefna
“Lomber” og “Bridge”. Auk þess
spila margir Vist, Gosa, Kött qg fleiri
spil er algeng voru hér áður.
Síðan um aldamót hafa ýmsar
skemtanir rutt sér til rúms í sveitun-
uin, er áður voru lítt þektar eða ó-
kunnar með öllu. Flestar þær skemt-
anir eru í eðli sinu fjölmertnisskemt-
anir, og stofnað til þeirra með sam-
komum, er boðaðar eru um stærra eða
minna svæði eftir ástæðum. Þær éVu
jafnaðarlega bundnar viií ákveðna
staði, þar sem rúmgóð hús eru á tak-
teinum, eða sérstakur undirbúningur
hefir verið gerður með tilliti til í-
þrótta eða annara skemtana, svo á-
horfendurnir geti séð hvað fram fer.
Slíkur undirbúningur hefir verið gerð
I ur t. d. aö Þjórsártúni og víðtar.
Skemtanir þessar og íþróttamót eru
því mjög frábrugðnar skemtununum
fyrir 40 árum. Þá voru þær alment
j tengdar við heimilin, þar sem-Jieim.
ilisfólkið og fólk aðeins af næstu
bæjum kom saman til að skemta sér.
En nú byggjast skemtanirn'ar á al.
1 menningsmótum, meir og minna fjöl-
mennum.
Þetta, er verulegur munur, á skemt-
unum fyr og nú.
Þær nýtískuskemtanir er ég átti við,
að flutst hafi út um sveitirnar sið-
ustu áratugina eru: ræðuhöld og fyr-
irlestrar, knattspyrnuleikar, sjón-
leikar, flokksöngur og dans. Alt
getia þetta verið góðar skemtanir, þeg-
ar vel er með þær farið. Þær hafa
eins og flest annað borist hingað fyrst
frá útlöndum, og síðan breiðst út um
bygðir landsins frá kaupstöðunum og
sjávarþorpunum.
Eins og þegar var getið, er grund-
völlurinn undir þessum skemtunum,
mót eða samkomur. Á sama mótÍTU
er oft skemt með flestu eða öllu þessu
er nú var nefnt, í ákveðinni röð eða
eftir dagskrá. Það er oft byrjað á
því, að einn eða fleiri menn flytja er-
indi eða ræður. Þá hefjast íþróttir,
söngur o. s. frv., og venjulega rekitr
svo dansinn lestina. Og eftir honum
biður unga fólkið með langmestri ó-
þolinmæði og eftirvæntingu. Það er
eins og dansinn sé í augum margra
kórónan á skemtuninni.
Þessar samkomur og mót nefndust
ýmsum nöfnum, eftir tilgangi þeirra
eða þá því, hver er aðal skemtunin.
Vetrar löngu vökurnar
voru öngum þungbærar,
við ljóðasöng og sögurnar,
söfnuðust föngin unaðar.
Ein þegar vatt og önnur spann,
iðnin hvatti vefarann,
þá var glatt i góðum rann,
gæfan spratt við arin þann.
Teygjast lét ég lopann minn;
Ijóða metinn söngvarinn
þuldi hetju þrekvirkin;
þá var setinn bekkurinn.
Nú eru kvöldvökurnar í hinum
“gamla stíl” að leggjast niður. Sögu-
lesturinn og rimnakveðskapurinn er
viða horfinn, eða óðum að hverfa.
Alt er breytingu undirorpið í þess-
um heimi. — Þeir sem eitthvað lesa
gera það flestir i hljóði. Af því leið-
ir, býst ég við, að lestri manna fer
aftur. Eg hefi heyrt “fín-
ar frúr” og menn í opin.
berum trúnaðarstöðum lesa, og það
var enginn lestur. Þetta fólk var
ekki bænabókarfært, Þeir sem iðka
Sœhwika Skagfirðinga er eitt þess.
ara skemtimóta. Þessi sa'tnkoma hef-
ir verið haldin nú um nokkur ár, um
satna leyti og sýslufundur þar er háð-
ur. Fundurinn stendur venjulega yfir
viku, og mótið líka. Þangað sækir
múgur og margmenni, flest úr Skaga.
firðinum. Margt er þarna um hönd
haft til skemtunar og fróðleiks. Það
eru flutt fræðandi erindi, sýndir sjón.
leikar, sungið, æfðart íþróttir og jafn-
vel leikfimi, dansað o. s. frv. Þarf
ekki neitt að lýsa því, að fólkið
skemtir sér þarna ágætlega, svo sem
nafnið “Sæluvika” bendir til. Og það
sem er bezt og virðingarverðast við
þetta Skagfirðingamót er, að reynt er
eftir megni að sameina gagn og
skemtun.
Námsskeiðin í sveitunum — kvenna
og karla — eru nú í aðra röndina
skemtisamkomur. Þar er einnig reynt
að sameina gagn og gaman. Aðal-
tilgangur þeirra er í raun og veru sá,
að fræða og leiðbeina. En maðurinn
lifir ekki á brauði einsömlu. Gamaniö
er haft til uppfyllingar og — smekk-
bætis.
HEIMSINS BEZTA
MUNNTOBAK
Copenhagen
HEFIR GÓÐAN
KEIM.
MUNNT^AK SEM
ENDIST VEL.
Hjá öllum tóbakssölum.
Skemtanirnar eru venjulega sam-
ræðufundir — þeir geta líka verið
skemtilegir — söngur, spil, iþróttir og
svo lokadagskveldið dans. — Náms.
skeiðin standa yfir 3—6 daga, og eru
oft fjölmenn.
Ungmennafélagamótin eða íþrótta-
mót þeirra eru jafnan vel sótt, hverju
sem viðrar. Þau eru tiðast héraða-
mót, þar sem ein eða fleiri sýslur
taka þátt í þeim. — Aðalskemtunin
eru íþróttirnar. Þar tíðkast og ræðu-
höld og séngur, að ógleymdum dans-
inum.
Þessar samkomur ungmennafélaga
eru jafnaðarlega fjölmennar, einkum
þegar þeim er skipað vel í sveit, og
tiltölulega hægt að' sækja þær langt
að. A íþróttamótin að Þjórsártúni
sækja menn úr sýslunum Austanfjalls
og sunnan yfir fjall og þar á meðal
úr Reykjavík. Á mannflestu mótun.
um þar, hafa verið siðustu árin um
3000—4000 manns, og þegar flest var,
nálægt 5000.
íþróttamótin eru vinsæl um land alt,
jafnvel þó að hluttakari í sjálfum í-
þróttunum sé oft af skornum skamti.
Skemtani^ eru einnig oft í sam-
bandi við fundi ungmennafélaganna
innbyrðis i hvierju eirestöku ,félagi.
Sama er og að segja um fundi lestrar
félaga, kvenféjaga, stúkufundi o. s.
frv. Og skemtanirnar á þessum fund-
urn eða samkomum eru venjulega
hinar sömu; ræðuhöld, söngur, spil og
dans. Það ber og við, að í sambandi
við þessi mót sé stofnað til hluta-
veltu eða “böglakvelds” til ágóða fyr-
ir félagsskapinn á einn eða annan veg,
eða þá i þeim tilgangi að styrkja þarf.
leg fyrirtæki í sveitinni, líknarstarf-
semi eða annað þessu skylt. — Hfiuta-
velta og “böglakveld” þektust ekki upp
til sveita hér áður, svo ég muni eft-
ir. En “böglakveldin” eru oft fjör.
ug og vekja hlátur, enda draga þau
fólkið að sér.
Auk þeirra skemtimóta er nú hafa
verið talin, eru ýms önnur mót eða
samkomur haldnar í sveitunum, af
gefnum tækifærum. Stundum er æfð-
ur söngflokkur er boðar söngskemt-
un, eða knattspyrnufélag er stofnar til
knattspyrnuleiks, eða loks leikenda-
flokkur er sýnir sjónleik með fjöl-
breyttri skemtun á eftir.
Þá ber það og við, að söngmað-
ur úr Reykjavík eða annarsstaðar
frá, bregður sér upp í sveit og syng-
ur “fyrir fólkið”. — En alt kostar
þetta peninga, þó ólíku sé saman að
jafna við það, sem skemtanirnar í
bæjunum kosta.
Þorrablót eru gömul og þjóðleg
samkoma. — En fátíð munu þau hafa
verið í sveitunum fram um síðustu
aldamót, og eru enda enn. í sveit-
unum hér syðra og vestra man ég ekki
eftir þeim. Hinsvegar eiga þau sér
stað við og við norðanlands_ og aust-
an. A Hólum í Hjaltadal hafa þau
verið' stöðugt um langt skeið, og það-
an hafa þa\i líklegast breiðst út utn
Norðurland.
Þegar skemtunum hinna mörgu fé-
laga, hverju nafni sem þau nefnast,
lýkur, þá koma stundum einstakir ung
ir menn til sögunnar, sem þyrstif eru
í dans og aðra gleði, og hóa fólki
saman. Á skemtisamkomum er það
oftaSt dansinn, sem skipar öndvegið,
og þá er nóttin látin ráða. Enda ekki
um ánnað að gera þegar vetrarskemt-
anir eiga í hlut, nema tunglskin sé og
gott veður. Nl.
5. S\
— “Lögrétta.”
------0-----
Frá fslandi.
Rauði króssinn var stofnaður í
Reykjavik fyrir skömmu síðan. Nú
þegar eru á 2. þúsund manns gengnir
í þá deild og fjölgar þeiin óðum. Hér
á Akureyri er sömuleiðis verið að
stofna deild. Hafa á 2. hundrað
manns þegar skrifað sig í deildina.
Bráðabirgðarstjórn er kosin til þess-
að semja lög. Stjórnina skipa: Síra
Geir vigslubiskuþ, Steingr. bæjarfó-
geti og frú, Jón Guðlaugsson settur
bæjarstjóri, frú Júliana-Friðriksdótt-
ir, frú Valgerður Ólafsdóttir, frú
Laufey Pálsdóttir, Jón E. Sig. kaup-
maður, frú Guðfinna Antonsdóttir,
Steingr. Matthíasson, héraðslxknir,
og frú.
Akureyri 12. marz.
1 fyrrinótt lézt hér í bænum úr af-
leiðingum lífhimnubólgu, Gunnar
Antonsson, unglingspiltur 18 ára gam_
all, sonur Antons Tómassonar sjó-
manns og konu hans, hinn mann-
vænlegasti piltur. — 1 gær andaðist á
sjúkrahúsinu, Viktor Magnússon stýri
maður, úr berklaveiki, hinn mesti
efnismaður, tæplega þrítugur. — Þá
er og nýlátinn Kristján Guðmunds.
son, fyrv. sótari, rúmlega fimtugur,
mesti dugnaðar. og eljumaður.
— Dagur.
v
Þ J E R S E M NOTIÐ
TIMBUR
K A U P I Ð A F
Tha Empire Sash and Door
COMPANY LIMITED
BirgSir: Henry Ave. East. Phorte A 6356
Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA.
a4a a4a a4a AAAAAA AA A A A Aáttá^Ai^AA^áAA
▼VtvVT VaV ~a~ ~a~ ~a" ~a~ ~a~ ~a~ ~a’ TaT fVf TaT ~a~ va~ "avva"
t
T
±
T
T
T
T
T
f
V Sími: N 6357—6358
<♦
KOL! - - KOL! ,
HREINASTA og BEZTA TEGUND KOLA. %
BæSi til HEIMANOTKUNAR og fyrir STÓRHÝSI. A
Allur flutningur meS BIFREIÐ.
Empire Coal Co. Limited X
603 Electric Ry. Bldg. T