Heimskringla - 05.08.1925, Qupperneq 4
4. BLAÐSÍÐA
t
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 5. ÁGÚST, 1925.
(StofnuS 1886)
Kenaar öt fi hverjnm mittvlkndegl. #
EIGENDURi
VIKING PRESS, LTD.
853 o* 855 SARÍiBNT AVE., WINSIPEQ.
Tnlximl: N-6537
Ver5 blaísins el' $3.00 érgangurinn borg-
ist fyrirfram. Allar borganir sendist
THE YIKING PIiÆES LTD.
SIGPÚS HALLDÓRS írá Höfnum
Kitstjóri.
JAKOB F. KRISTJÁNSSON,
Ráðsmaður.
TTtHnfiMkr1ft tll hlaffMlnfl:
TIIE VIKIXG PRESS, Ltd., Roz 3105
Utanfiflkrlft tll rltfltjfiranu:
EDITOIt HEIMSKRINGLA, Box 3105
WINIVIPEG, MAN.
“Helmskringrla ls publlshed by
The Vlklnsr Pre»fl Ltd.
and prlnted by
CITY PRINTING A PUBLISHING CO.
853-S55 Sarjfent Ave., Wlnnlpejr, Man.
Telephone: N 6537
t
n ■'n' 111 m ' ' i ..... , , ^
WINNIPEG, MANITOBA, 5 ÁGÚST, 1925
Islendingadagurinn
Svo fór sem spáð hafði verið, að ís-
lendingadagurinn, sem haldinn var hér í
Winnipeg 1. ágúst, varð oss og þjóðflokki
vorum til sóma. Það er ekkert blaða-
skrum, heldur almanna rómur, að dag-
urinn hafi farið óvanalega vel úr hendi.
Hjálpaðist alt, að: Hið yndislegasta veður;
nærvera og ávarp vors þektasta og ást-
sælasta rithöfundar og ræðumanns;
ræðuhöld önnur og kvæði áigæt; prýðileg
framkoma Fjallkonunnar og meyja henn-
ar, og síðast en ekki sízt, drengileg sam-
kepni í fögrum íþróttum, er endaði með
glímunni, drengilegustu og fegurstu í-
þróttinni í heimiáum.
Ávörp og kvæði, sem flutt voru, tala
fyrir sig sjálf við lesendur blaðsins. Þess
vegna vildum vér aðeins fara fáum orð-
um um íþróttasýninguna og samkepnina.
Vér leyfum oss að halda því fram, að
metnaður íslendinga hér sé að vakna og
traustið á því, að vér séum svo úr garði
gerðir andlega og líkamlega, að það sé
stórgróði fyrir sjálfa oss og þjóðfélagið,
sem vér eigum að vinna, að vér stöndum
saman svo þétt, að vér daglega finnum
blóðið renna til skyldunnar. Ekkert hnýt
ir unga og uppvaxandi kynslóð betur
saman, en heilsusamlegar og fagrar í-
þróttaiðkanir. Ef vel er með farið, glæð-
ir ekkert meira sjálfstraust, sjálfsvirð-
ingu og samvinnu’í fegurð.
Og þótt enn sé langt til marks, þá fóru
íþróttirnar fram með þeirri prýði, að hjá
mörgum íþróttamönnum, eldri sem yngri,
mun sá vonarneisti hafa vaknað, sem á
stuttum tíma verður að sannfæringareldi,
að þrátt fyrir fámennið sé vinnandi veg-
ur til þess, að ekki líði mjög langur tími
unz eftir íslendingadeginum verði tekið
jafnmikið og hátíðisdegi Skotanna, hinna
dugmiklu skyldmenna vorra. Það munu
fleiri hugsa líkt og einn allra glæsileg-
asti íþróttamaður þessa lands, íslending-
ur, sagði: Svei mér ef eg var ekki orðinn
vonlaus um, að til nokkurs væri að skifta
sér af vestur-íslenzkum málum. En dag-
urinn í dag hefir sannfært mig um það,
að við eigum mikla framtíð fyrir hönd-
um.”
Minni íslands
Ræða Einars H. Kvaran, á íslendingadeg-
inum í Winnipeg 1. ágúst 1925.
v
Eg þakka hjartanlega fyrir þá sæmd
og ástúð, sem íslendingadagsnefndin
hefir sýnt mér, með því að mælast til
þess, að eg kæmi hingað og mintist Is-
lands. Mér dylst það ekki, að þið eruð
með því að sýna hug ykkar til ættjarð-
ar minnar, því að það ræður að líkindum,
að eg muni að minsta kosti vera einn í
hópi þeirra manna, sem tala vilja vel um
Island.
Eg held eg geti ekki stilt mig um að
byrja með því að segja ykkur frá manni,
, sem eg sá í minni fyi^stu ferð til Reykja-
víkur, fyrir réttum 50 árum, þegar eg
var þangað kominn til þess að komast
inn í latínuskólann. Eg geri það til þess
að gera ykkur skiljanlegt, hve ólíkt mér
er nú fariö og honum þá. Hann kom inn
í húsið, þar sem eg hafðist við, og spurði
eftir föður mínum, sem hann sagðist hafa
heyrt að væri kominn til Reykjavíkur;
og hann fór burt, þegar hann heyrði, að
faðir minn væri ekki viðstaddur. Þessi
maður var ver búinn en nokkur annar
maður, sem eg hafði þá séð í Reykjavík.
Hann var í skinnsokkum og mjög forn-
legri buru. Eg spurði, hver þetta hefði
verið, og mér var sagt, að það væri ein-
hver allra lærðasti og gáfaðasti prestur
landsins, maður, sem eg hafði lesið tölu-
vert eftir og kannaðist vel við. Eg furð-
aði piig á því, hvernig hann var til fara,
og hafði eitthvert orð á því. Mér var
sagt, að hann færi æfinlega í sína verstu
garma, þegar hann færi til Reykjavíkur
— til þess að embættismennirnir og kaup-
mennirnir í Reykjavík skyldu ekki halda,
að hann væri að skreyta sig fyrir þeim.
Það er þveröfugt um mig nú. Mér
finst, að hver maður, sem k^mur til ykk-
ar heiman af íslandi, ætti að minsta kosti
að vera í sínum andlegu sparifötum,
meðan hann er hjá ykkur. Það er svo
mikið, sem við Austur-íslendingar eigum
ykkur að þakka. Þið hafið sent okkur
mikið af péningum, en um það er ekki
mest vert í mínum augum. Þið hafið
sent okkur ógrynni af hlýjum og ástúð-
legum hugsunum og af mannviti og
snild. Og þið hafið með atorku ykkar og
vitsmunum, og því gengi öllu, sem þið
hafið aflað ykkur í þessari nýju heims-
álfu, sýnt okkur og veröldinni merkilegt
sýnishom þess, hvað í hinum íslenzka
kynstofni býr. Þið hafið eflt trúna hjá
.pkkur á okkar eigin mátt. Um það er
afar mikils vert. Og mér er óhætt að
fullyrða, að á íslandi er enginn vitmaður,
sem ékki finnur til þessa með þakklætis-
hug.
Eg get ekki staðið hér í dag, áh þess
mér verði það að renna huganum til
fyrsta íslendingadagsins, sem haldinn var
• hátíðlegur í þessari borg fyrir 35 árum.
Eg átti ofurlítinn þátt í því, að til þeirrar
hátíðar var stofnað í öndverðu, og það
er mér mikill fögnuður, að þetta hátíðar-
hald hefir aldrei lagst niður síðan. Það
sýnir jafn-vel og svo margt og margt
annað, hvað djúpir eru hljómarnir í þjóð-
ræknisstrengnum í sáluin ykkar.
Það var bjart yfir þessari fyrstu hátíð.
Veðrið var yndislegt. En það var enn
bjartara yfir henni fyrir þá sök, að í öll-
um deilunum, sem þá fóru fram, urðu
íslendingar í Winnipeg sammála og sam-
taka um þessa hátíð. Því miður var það
ekki lengur en þetta fyrsta ár, að menn
yrðu alveg sammála um þessa hátíð sína.
Deilur komú upp þegar næsta ár um það,
hvern dag hátíðin ætti að vera. Sumir
vildu 17. júní, aðrir 2. ágúst. Það er
óendanlega margt í tilverunni, sem eg
skil ekki, eins og þið getið nærri. Og eitt
af því, sem eg hefi ekkl getað skilið, er
það, að miklu máli skifti um daginn -—
ef/Vestur-íslendingar koma einhvern dag
saman til þess að minnast uppruna síris
og þeirrar þjóðar og þess lands, þar sem
þeir sjálfir, eða feður þeirra og mæður,
eða afar þeirra og ömmur, eða forfeður
þeirra sáu fyrst ljós þessa heims — ef
þeir geta einhverntíma komið saman til
þess að minnast þessa með verulegum
samhug og góðvild hver til annars.
Eg veit ekki, hvort þið lítið á þetta
sömu augum og eg. Eg veit ekki, hvort
einhverjir ykkar þrá erin 17. júní sem há-
tíðisdag ykkar, eða hvort allir sætta sig
að fullu við ágústbyrjunina. En að því
geng eg vísu, að engum ykkar finnist það
óeðlilegt, að við rennum huganum allra-
snöggvast til frægasta íslendingsins, sem
fæðst hefir 17. júní. Nýlega hefi eg rek-
ist á þau ummæli eftir einíivern af vit-
mönnum veraldarinnar — Bandaríkja-
maður held eg, að hann hafi verið — að
sagan af sjálfstæðisbaráttu íslendinga og
úrslitum hennar, sé ein af merkilegustu
sögum í heimi. Víst er um það, að þeg-
ar Jón Sigurðsson hóf baráttu sína fyrir
þrem aldarfjórðungum fyrir sjálfstæði Is-
lánds, þá voru ekki horfurnar vænlegar.
í augum flestra manna, sem nokkuð
vissu un^ baráttu úti um heiminn, hefir
hún víst verið skopleg fremur en annað.
Langflestir íslendingar voru blásnauðir,
allslausir kotungar, og þeir voru ekki
nema eitthvað 60,000. Þeir höfðu ekkert
sín megin nema foman, sögulegan rétt.
Þann rétt fyrirleit hinn málsaðilinn, Dan-
ir, og þeir vildu gera ísland að amti úr
Danmörku. Hvernig áttu íslendingar að
vinna þetta mál? Svo mikil var örbir^ð-
in, að jafnvel Jön Sigurðsson taldi það
ógerning, að íslendingar tækju við fjár-
forráðum sínum, ef þeir fengju ekki
60,000 kr. meira á ári frá Dönum en þeir
voru viljugir til þess að láta af hendi,
þegar þeir voru loksins farnir að slaka
nokkuð til.
Einhvern veginn hefir það farið svo,
að íslendingar hafa unnið sigur í þessari
óvænlegu baráttu. Nú er svo langt frá
því að land þeirra sé amt úr Danmörku,
að þeir eru nákvæmlega jafn-sjálfstætt
ríki eins og Danmörk sjálf. Hugsjónir
Jóns Sigurðssonar hafa ræzt framar en
hann hefir iíklegast sjálfur nokkur tíma
þorað að vona. En sú ódauðlega vizka,
sem hann hefir flutt sinni þjóð, er trú
hans á mátt réttvísinnar og sanngirninn-
ar — að einhvern tíma vinni þær sigur.
— Og hans ódauðlegi heiður er sá, að
hann hagaði sér eftir þeirri trú sinni,
hvað mikið sem á móti blés og í hinum
mestu örðuglefkum — þar á meðal í í-
skyggilegri fátækt um tíma.
Og það væri vanþakklæti að segja
annað, en að hingað til hafi það biessast
íslendingum vel, að hugsjónir Jóns Sig-
urðssonar kómust í framkvæmd. Það er
mikið, sem þeir hafa aðhafst, síðan ís-
land fékk forræði síns eigin fjár. Eg
mintist áðan á 60 þúsundirnar frá Dön-
um, sem við fengum ekki, en Jón Sig-
urðsson taldi með öllu ómissandi. Nú
er svo komið, að um slíka fjá'rhæð er
beðið, eða jafnvel töluvert hærri, fyrir
eina sæmilega góða bújörð á íslandi. Nú
er svo komið, að slíka fjárhæð sækir eitt
botvörpuskip til Englands eftir fárra
daga veiðiskap. Nú er svo komið, að
íslendingar flytja út á síðasta ári vörur
fyrir eitthvað 85 miljónir króna. Þeir
hafa komið upp hjá sér þeirri sjávarút-
gerð og þeirri sjómannastétt, sem hvor
um sig er áreiðanlega með því ágætasta
ög fullkomnasta í veröldinni, og árangur-
inn er nú að koma í ljós. Mikið eiga þeir
eftir ógert í fjárhagslegum efnum. En
eg sé enga ástæðu til þess að efast um,
að þeir muni gera það. Þeir munu byggja
sitt land með þeirri atorku og þeim vits-
munum, sem ekki stendur því að baki,
sem aðrar þjóðir hafa til brunns að bera
í þeim efnum.
En enginn má ætla, að hugur manna
á íslandi stefni eingöngu að auðsafni um
þessar mundir. Það er nú eitthvað ann-
að. Eg efast mjög um, að með alþýðu
nokkurrar þjóðar sé hlýrri hugur til vís-
inda, bókmenta og lista en á íslandi, né
meira kapp eftir hinni æðstu menningu.
Um bókmentirnar er það sérstaklega að
segja, að þjóðin veit það, að það eru þær,
sem hafa, fremur öilu öðru, lyft henni
upp úr þeim örðugleikum og niðurlæg-
ingu, sem hún var komin í um tíma fyrir
fávíslega útlenda yfirdrotnun, svo að
það er ekki undarlegt, að hún vilji hlynna
að bókmentum sínum og varðveita skiln-
inginn á þeim. Það hefir verið sagt, að
á ítalíu beri hver flækingur skyn á söng-
list eins og sérfræðingur í þeirri grein.
Eg hygg, að nokkuð líkt megi segja um
íslenzka alþýðu, að því er til bókment-
anna kemur. Eg held ekki, að nein al-
þýða hafi jafn-mikið vit á bókum og hún.
Og eg held ekki, að alþýða nokkurs lands
sé jafn-elsk að góðum bókum og hún.
í þessu sambandi koma mér til hugar
fjórar stuttar línur í ljóði eftir það skáld-
ið, sem þið þekkið bezt. Sá maður hefir
borið gæfu til að senda okkur heim margt,
sem hefir grafið sig inn í huga manna á
íslandi. Meðal þeirra ljóða er kvæðið,
sem þessar línur standa í:
‘‘Fjarst í eilífðar útsæ
Vakir eylendan þín:
Nóttlaus voraldar veröld,
þar sem víðsýnið skín.”
Það er bjart yfir íslandi um þetta leyti
árs, þegar vel viðrar. Það er nákvæm-
lega rétt, sem skáldið segir, að þar er
nóttlaus veröld. Sumstaðar skín .sólin
um miðnættið; en alstaðar er dagur all-
an sólarhringinn. Og það er verið að
reyna að líkja eftir vorinu í sálum mann-
anna. Það er verið að eyða nóttinni —
nótt þunglyndisins, smælingjatilfinning-
arinnar, magnleysiskendarinnar frá liðn-
um öldum. Það er verið að reyna að veita
yfir þjóðina dagsljósi — degi starfsástar-
innar, þreksins, traustsins, vonarinnar,
trúarinnar á lífið og tilveruna alla. Eftir
því sem eg lít á, er andlegt vor á íslandi
nú.
Og það er líka nákvæmlega rétt, sem
skáldið segir, að “víðsýnið skín” þar. Það
er einmitt víðsýnið, útsýnirnar miklu,
sem meét af öllu einkenna íslenzka nAtt-
úrufegurð. Víða getur verið hrjóstrugt
rétt við fæturna á mönnum. En það er
afar víða á íslandi, að ekki þarf annað
en að líta upp, til þess að fyrir augunum
verði sú dýrð, sem er fágæt í veröldinni.
Hvað sem það nú er, sem fyrir augað ber,
hvort sem það er fannhvítir jöklar, eða
heiðblá fjöll, eða grænar brekkur, eða
grónar grundir, eða glampandi haf, eða
stöðuvötn, eða fossar, eða fljót, þá tekur
það alt á sig töfraskykkju víðsýnisíns.
Það er sannfæring mín, að það sé að
myndast víðsýni á íslandi víðar en um
landið. Með geysihraða er verið að ryðja
burt holtum hleypidómanna, urðum
ófrjálslyndisins og ljúka upp fyrir þjóð-
inni ómælilegri útsýn andlega frjálsra
manna. Aldrei hefir mér verið þetta ljós-
ara en einmitt síðan eg kom hingað til
lands að þessu sinni, og tók að gefa gæt-
ur að því, að í hinu mikla landi fyrir
sunnan ykkur, sem talið hefir
verið sérstaklega land framfar-
anna og frelsisins, er ríkisvald-
iö að lögsækja kennara til refs-
ingar fyrir það, að hann notar
kenslubók, þar sem menn eru
fræddir um þær ályktanir um
uppruna mannkynsins, sem all-
ir vísindalega mentaðir menn
um allan heim telja nú óhjá-
kvæmilegar. Við það að lesa
frásagnirnar um þá málssókn,
hefi eg verið að hugsa um,
hvað það er satt, sem iVþatth.
Jochumsson kveður:
“Ógurleg er andans leið
upp á sigurhæðir.”
Og því eftirtektarverðara er
það og fagnaðarríkara, þegar
einhver þjóð ber gæfu til þess
að gera leið andans upp á sig-
ui hæðir frelsisins sæmilega
greiðfæra.
Eg ætla ekki að tefja ykkur
mtira. Eg veit, að í þessum fáu
oiðum hefi eg ekkert sagt um
ísiand, sém þið vitið ekki. Mér
er það mikið gleðiefni. Mér
hefir verið það mikill fögnuð-
nr að verða þess var, hvað mik-
ið Vestur-íslendingar vita um
ísland. Það stafar auðvitað af
þeirri ríku góðvild og ástúð til
íslands, sem þið Vestur-íslend-
ingar hafið ávalt sýnt að þið
berið til þess lands og þeirrar
þjóðar, sem þið eigið kyn ykkar
aö rekja til. Framar öllu öðru
stend eg hér í dag til þess að
þakka fyrir það hugarfar, og til
þess að biðja ykkur að láta ekki
þann eld kulna út. Eg veit,
eítir plt, sem á undan er geng-
ið, að þið verðið fús á að taka
í huganum undir þá ósk, að ís-
landi megi vegna sem bezt.
--------x---------
Ræða
Flutt á minningarhátíð fslend-
inga í Wpg. 1. ágúst 1925.
af Dr. B. J. Brandson.
Hálf öid er nú liðin, síðan ís-
lendingar byrjuðu fyrir alvöru
að flytja til Vesturheims. Enn-
þá styttri tími er liðinn síðan
þeir voru svo margir í þessari
heimsálfu, að byrjað var að taia
um Vestur-íslendinga. Þótt
hálf öld sé aðeins sem andar-
tak eða eitt æðarslag í sögu
einnar þjóðar, þá er það oft
nægilega langur tími til þess að
breyta algerlega örlögum henn-
ar og beina henni inn á nýjar
brautir. Að Islendingar svo
margir hafa tekið sér bólfestu
í þessari heimsálfu, hefir haft
stórmikla þýðingu, ekki aðeins
fvrir þá, er aðallega áttu hlut
að máli, innflytjendurna sjálfa,
heldur líka fyrir þjóðina, sem
þeir voru upprunalega partur
af. Sú þjóð, sem á ítök í fjar-
liggjandi löndum, fær þaðan
beinlínis og óbeinlínis hagnað.
Sá hagnaður kemur í ljós á
ýmsan hátt, og má skoða sem
hluta af sannri auðlegð þjóðar-
innar.
Mér finst nærri því ómögu-
legt og jafnvel óhugsanlegt, að
reyna að mæla svo fyrir minni
Vestur-íslendinga, að ekki sé
þar minst að einhverju leyti á
hina íslenzku frumherja í þessu
landi. Ef eg væri mælskumað-
ur e?Sa ræðuskörungur, hefði
eg ekki getað kosið mér hugð-
næmara umtalsefni við eitt-
hvert hátíðlegt tækifæri, en að
mæla fyrir minni íslenzkra
frumherja í Ameríku. Oft er
dáðst að hetjuanda víkinganna
hinna gömlu, norrænu forfeðra
vorra, sem sigldu skipum sínum
um þá oft hin ókunnu höf.
Þetta er eðlilegt, og öldungis
rétt, en mér finst að kjarkur og
þrek hinna íslenzku landnáms-
manna, sem hingað sóttu, oft-
ast með tvær hendur tómar,
hafi ekki verið hóti minni en
það, sem átti sér stað hjá for-
feðrum vorum fyrir meira en
þúsund árum. Hlutskifti frum
býlingsins er ætíð örðugleikum
háð, þótt misjafnir geti þeir
örðugleikar verið. Þol og kjark-
ur vorra íslenzku frumbýlinga
var óumræðilega, jafnvel dá-
samlega mikill. Sama þrekið
og þolgæðið, sem forfeður vor-
ir sýndu í baráttunni fyrir líf-
inu á hinni köldu og hrjóstrugu
fósturjörð og hinu stormasama
hafi við strendur landsins,
sýndu þeir einnig þegar hingað
kom. Hér voru tækifærin
fieiri, en þeir höfðu átt að venj-
ast,‘ og oft og tíðum bar þraut-
seigja þeirra og starfsþrek
meira úr býtum, en þeir sjálfir
höfðu búist við. Frumskógarn-
ir og eyðislétturnar ummynd-
uðust á fáum árum í grösug
tún og blómlega akra, bjálka-
kofarnir og moldarhreysi hinna
fyrstu ára breyttust í snotur
og jafnvel fögur híbýli. Ef trl
vill entist frumherjanum ekki
aldur til að sjá nema byrjunina.
Hann sáföi sæðinu, sem aðrir
síðar uppskáru; hann ruddi veg
inn, sem aðrir, er á eftir honum
komu, gátu léttilega gengið, af
því hann hafði yfirstigið mestu
torfærurnar.
Þegar vér lítum til baka og
virðum fyrir oss starf frumbýl-
inganna, þá verðum vér að
epyrja sjálfa oss, hvort sú kyn-
slóð, sem nú er við stýrið, eigi
jafnmikið af þreki og þraut-
seigju, jafnmikla og óbilandi'
von um endilegan sigur, þá er
torfærurnar sýnast stórar. —
Eg vona að svo sé, en stundum
vaknar hjá rnér ofurlítill efi um
það. Ef sá efi er á rökum
bygður, þá er glataður mikill
fjársjóður úr voru dýrmæta,
íslenzka erfðafé. Ekkert ætti
að vera látið ógert til þess að
varðveita íslenzkan dugnað og
kjark hjá þeim, sem nú lifa, og
þeim, sem á eftir oss eiga að
koma. Ekkert er betur til þess
fallið en það, að varðveita sem
helgan dóm í hjörtum vorum
og niðja vorra minninguna um
feður vora og mæður, sem með <
ctrúlegum dugnaði og óbilandi
kjarki ruddu þá braut, sem hin
önnur og þriðja kynslóð íslend-
inga í þessu landi nú ferðast
eftir.
Saga þeirra, sem námu þetta
land frá hafi til hafs, er að
fiestu lík, þó að landnám ætti
sér stað á mismunandi tímum.
Á öllum tímum var slíkt land-
nám örðugleikum undirorpið,
stundum ótrúlega miklum. —
Sagnaritarar og stórskáld
Bandaríkjanna hafa varpað
dýrlegum ljóma yfir hið fyrsta
landnám enskumælandi manna
á austurströnd þessarar heims-
álfu. Ekki er því að neita, að
það landnám hafði stórkost-
lega þýðingu fyrir ekki aðeins
þetta meginland, heldur og ger
; vallan heiminn. Það sæði, sem
þar var sáð, bar ótrúlega mik-
inn ávöxt, til blessunar fyrir ó-
komnar aldir. Þar þróaðist sá
vfsir, er síðar varð að þeim
frelsishreyfingum, er allar sið-
aðar þjóðir nú njóta ávaxtanna
af. Eftir því sem árin liðu, var
braut rudd lengra vestur á bóg-
inn, og svo norðvestur, þar sem
nú er Vestur-Canada.
Það tímabil, sem íslendingar
hafa átt hér heima, samsvarar
svo að segja síðasta kapítulan-
um í brautryöjendasögu þessa
lands. Fyrir þeim, sem nú
koma á eftir, liggur það hlut-
verk, að uppskera það, sem
aörir hafa sáö, að byggja yfir-
bygginguna á þá' undirstöðu,
sem þegar er lögð. Saga þessa
lands mun á sínum tíma viður-
kenna hvern þapn hugsandi
snda, hverja þá byggjandi og
slarfandi hönd, sem lagt hefir
fram sinn skerf til þess að
byggja nýjan heim, þar sem áð-
ur var auðn, og það verður ekki
spurt um hver mest hafi gert,
heldur hver hafi afkastað
mestu, þegar efni og kringum-
stæður eru teknar til greina.
Allir hinir ólíku þjóðflokkar,
sem hér hafa tekið sér bólfestu
eiga einhvern þátt í framþró-
unarsögu þessa lands. Hvað sá
þáttur er og verður stór, er
fyrst og fremst undir því kom-
ið. hvað þjóðarbrotið kom hing
að með mikið af sönnum auði,
og svo hvernig starfað var, þeg