Heimskringla - 05.08.1925, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 5. ÁGÚST, 1925.
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSÍÐA
ar hingað kom. Hinn sanni
auður einnar þjóðar ætti ekki
að metast í gulli og silfri, lönd-
um og lausum aurum, heldur
í sönnum manndómi þjóðarinn-
ar sona og dætra. Skotland er
hrjóstrugt og fremur fátækt
land, en um margar aldir hafa
synir þess lands verið á meðal
hinna áhrifamestu og framtaks
sömustu manna um allan hinn
enskumælandi heim, og skipað
margfalt fleiri öndvegissæti á
ótal starfssviðum en þeir, í
hlutfalli við fólkstölu, hefðu áitt
að skipa . Hvar sem Skotar eru
bera þeir með sér þau þjóðar-
einkenni, sem stimplast hafa
óafmáanlega á sál þjóðarinnar.
Staðfesta og hyggjuvit, þolgæði
of' áræði einkenna ávalt þá
m’enn, sem ætt sína eiga að
rekja til þeirrar þjóðar. Oft hefir
mér fundist lund Skotans og ís
lendingsins æði svipuð, enda
var í eina tíð töluverður skyld-
leiki á milli þessara þjóða. Og
eitt er víst, að heldur vildi eg
láta setja íslendinga á sama
hekk með Skotum, en með
nokkurri annari enskumælandi
þjóð.
Eitt af því, sem einkennir
Skotann, er það, hve fast hann
heldur í og vandlega varðveitir
a!t, sem skozkt er. En hann
lætur það ekki koma í bága við
það, að vera góður borgari í
því landi, sem hann hefir gert
að kjörlandi sínu. Þetta er at-
rlði, sem Islendingar í þes^u
landi ættu að hafa hugfast. Það
virðist of mikil tilhneiging hjá
sumum til þess að skoða sig
sem útlendinga í framandi landi.
lsiendngar eru það engu meiri
er. hver og einn annar þjóð-
flokkur, sem nú ál hér heima.
Sá -eini kynflokkur, er nú býr
hér, sðft ekki mætti kalla út-
lendinga í sama skilningi og ís-
lendingar eru kallaðir það, eru
Indíánar, því eiginlega áttu þeir
landið frá ómuna tíð, þar til
hvítir menn slóu eign sinni á
það. Þetta land eh fildutigis
eins mikið okkar land eins og
tiokkurs annars aðkomins þjóð
flokks. íslendingar eru borg-
avar þessa lands, og þeirra
horgaralegu skyldur eru fyrst
°g fremst gagnvart þessu landi.
Þeir eru á meðal brautryðjenda
bessarar þjóðar. og það er þeim
sjálfum að kenna, ef nokkur lít-
Ur til þeirra hornauga sem út-
lendinga, er nokkrum öðrum
bjóðflokki standi að baki. En
sú meðvitund verður að vera
sterk í hjörtum vorum, að þetta
er allsendis ónauðsynlegur. —
Eins, lengi og sú meðvitund er
ekki ríkjandi, þá njótum vér
vor ekki til fulls.
Samanburður á gæðum þessa
fands og vors kæra feðrafróns,
ev allsendis ónauðsynlegur. —
Saeði löndin hafa margt til síns
ágætis, og “sínum augum lítur
hver á silfrið”. Þegar maður
Úytur úr einu landi í annað,
Uieð þeirri hugmynd að gera hið
nýja land að heimili sínu, þá
stendur líkt á fyrir honum og
dngum manni, sem kvongast
°S flytur úr föðurhú^um og
hyrjar búskap upp á eigin spýt-
nr annarsstaðar. Skyldur hans
hyrja þá strax gagnvart konu
hans og hinu nýja heimili
hfirra. Hann hefir ef til vill
n^args að sakna úr föðurhúsum,
en hann gleymir því fljótt við
nnihugsunina um það, sem nú
hggur fyrir hendi, og meðvit-
nndina um þá ábyrgð, er á
hann legst. Til eru samt þeir
nngu menn, og þær ungu kon-
Ur’ sem ætíð sjá eftir sínu fyrra
h^mili, og finst það, sem þau
. nafa, aldrei geta jafnast á við
hað, sem þau hurfu frá. Yfir-
mtt þykir ,það lítilmannlegur
hugsunarháttur, þar sem slíkt
kemur í ]jós, og aldrei hafa
Uænn mikið traust á glæsilegri
i'amtíð fyrir .þá, sem þannig
Uigsa. Aldrei er heldur hægt
gera sér miklar vonir um
glæsilega framtíð fyrir þá menn
sem hafa það á meðvitund
sinni, að það land, sem þeir búa
k sé lélegt land, sem þeir eigin-
^e§>a ýr^sra orsaka vegna geti
ekki annað en haft ýmugust á,
því með þannig löguðum hugs-
unarhætti fær enginn maður
notið sín að fullu. Menn, sem
þannig hugsa, gerðu sjálfum sér
og öðrum bezt gagn með því að
leita gæfunnar í öðru landi, þar
sem þeim virðist kringumstæð-
urnar vera hagkvæmari.
Þótt ég haldi því ótvírætt
fram, að þjóðræknisskyldur vor
ar séu fyrst og fremst gagnvart
þeirri þjóð, sem vér teljumst
borgarar með, þá er ekki þar
með sagt, að vér eigum að
gleyma því landi, sem vér sjálf-
ir eða feður vorir komu frá, eða
vér höfum engar skyldur gagn-
vart því landi að rækja. Móð-
irin, sem sendir son sinn frá
sér út í heiminn, til þ'ess að
hann sjálfur ryðji. sér braut til
vegs og frama, hefir jafnan
hluttekningu í stríði hans og
starfi, sigri hans eða ósigri. Þar
sem hann ávinnur sér heiður,
þar er einnig hennar heiður.
Hennar mesta gleði er að vita,
að honum vegni vel. Ef hann
er verðugur sonur, þá veitir
hann henni móður sinni þann
heiður, sem henni ber. Það
erfðafé, sem hffti hefir trúað
honum fyrir, leitast hann við
3Ö ávaxta í sínu nýja landi, í
sínum nýja umheimi. Ef hann
gerir það dyggilega, þá veit
hann að hann er að gera
skyldu sína gagnvart sínu nýja
heimalandi, og líkai Vgagnvart
feðrafróni sínu.
Þegar um erfðafé vors ís-
lenzka þjóðarbrots hér vestan
ha.fs er að ræða, þá er ekki að
tala um auðlegð þá, sem felst
í gulli og silfri, því að af þeim
arfi höfðum vér lítið úr föður^
húsum, heldur miklu fremur þá
auðlegð andans og lundernisins
s« m er miklu dýrmætari. Eg
hefi þegar minst á sumt af því
í lundarfari íslendinga, sem
komið hefir þeim að góðum
notum í baráttu þeirra í þessu
landi. Annað, sem eg vil minn
así á, er sá hæfileiki, sem þeim,
ásamt öðrum norrænum frænd
þjóðum þeirra er gefinn, að
samlagast fljótt og næstum ó-
sjálfrátt þeim þjóðum, sem þeir
taka sér bólfestu hjá. Strax í
fornöld kom þetta f ljós. Vík-
ingarnir fóru um flest lönd
Norðurálfunnar og víða tóku
þeir sér bólfestu og lögðu undir
sig lendur og stór héruð í ýms-
um löndum. En á tiltölulega
stuttum tíma hurfu þeir sem
sérstakur þjóðflokkur, samein-
uðust heimaþjóðinni, þótt því
rær æfinlega að þeir skildu þar
eítir sig varanleg merki þess,
að þar hefðu þeir komið. Lög-
skipað frelsi einstaklingsins,
hvar sem þeir náðu yfirráðum,
er eitt af minnismerkjum nor-
rænna manna. En þessir frænd-
ur forfeðra vorra, er fóru sem
sigurvegarar um mörg lönd
h:ns þá þekta heims, töpuðu
fyr eða síðar sínu upprunalega
þjóðerni. Svo fer einnig um
oss hér í Vesturheimi. Hér
hlýðum vér órjúfanlegu lög-
máli náttúrunnar, sem vér verð
um að lúta, hvort sem oss feil-
ur vel eða illa. Samt er það
óneitanlega skylda vor, að varð
veita af fremsta megni íslenzka
tungu í þessu landi. Eflaust er
íslenzk tunga einn af fjársjóð-
um feðra vorra. Eftir því sem
eg verð eldri, eftir því finst méf
eg sé að læra að meta gullfeg-
urð og dýrmæti íslenzkrar
tungu. Það er skylda vor að
verðveita þenna gimstein í
feðraarfi vorum, og leitast við
eftir megni að stuðla að þVí, að
sem flestir fái notið ánægju af
verðmæti hans og fegurð. Með
það fyrir augum ættum vér að
styðja að því, að hérlendir
menn kyntust frekar sögu vorri
og bókmentum, ef ekki á frum-
málinu, þá í gegnum þýðingar,
því þótt þær séu enn of 'fáar,
þá eru þær samt töluvert marg
ar. Þetta er brýn þjóðræknis-
skvlda, ekki aðeins gagnvart
hinni íslenzku þjóð, heldur og
líka gagnvart þeirri þjóð, sem
véi nú tilheyrum. En þótt ís-
lenzk tunga að miklu leyti tap-
ist niðjum vorum, sem er óneit-
anlega stór skaði, þá verður sá
skaði ekki eins tilfinnanlegur
og hann annars yrði, ef vér höf-
um þá vissu í huga vorum, að
niðjar vorir geymi íslenzkan
drengskap, íslenzkt þolgæði og
þiek, dugnað og djörfung, sem
feðratunga vor hefir um marg-
ar aldir brent inn í sálir ótal ís-
lenzkra kynslóða.
Eitt af því sem Vestur-ís-
lendingum er stundum borið á
brýn, er það, að þeirra andlegi
sjóndeildarhringur sé lítill, að
þe#ir séu þröngsýnir og haldi of'
fcst við gamlar kreddur og sið-
venjmv Um leið og þetta er
sagt um oss íslendinga, þá er-
um vér ósjálfrátt settir á bekk
með þeim frumherjum þessarar }
heimsálfu, sem mestan þátt
hafa átt í að skapa örlög þeirra
þjóða, sem nú búa hér. Hinir j
fyistu ensku innflytjendur til
austurstrandar Ameríku, hinir I
svokölluðu “Pilgrim Fathers”, j
voru þröngsýnir menn, mældir
eftir nútíma mælikvarða. En
mestan þátt áttu þeir í gróður-
sctningu sannarlegs frelsis í
þessari heimsálfu. Það má með
sanni segja,, að hin lifandi og
starfandi trú þeirra yrði síðar
hinn trausti lífskraftur hjá niðj
unum. Tréð dæmist ekki af
rót þess, heldur ávöxtum. Að
halda fast við siðvenjur og erfi-
kenningar feðra sinna , þar til
eitthvað verulega betra getur
komið í þeirra stað, er enginn
löstur, en miklu fremur kostur
lijá hvaða þjóðarbroti sem vera
skal.
Ein af erfikenningum íslend-
inga er löghlýðnin. “Með lög-
um skal land byggja en með ó-
Iögum eyða,” sagði einn af hin- |
um djúpvitrustú forfeðrum vor- i
um. Þrátt fyrir atvik, sem fyr- |
ir hafa komið í seinni tíð, held j
eg að óhætt sé að telja íslend-}
inga á meðal hinna löghlýðn- i
ustu borgara þessa lands, og erj
það þeim til ævarandi heiðurs. *
Eitt af þeim tíu boðorðum, er
svo að segja öll mannleg lög- í
gjöf byggist á, er það sem skip-
ar mönnum að heiðra föður og j
móður. Ef Vestur-íslendingar
heiðra föður og mæður í orðs-
ins fylsta skilningi, þá verða,
þeir að sýna hinn sama dugn- i
að og hinn sama sanna dreng- j
skap, sem hin fyrsta kynslóð j
íslendinga í þessu landi sýndi. j
ekki aðeins í baráttu fyrir sínu}
eigin lífi og hagsmunum, held-
ur líka fyrir því, að þær kyn- }
slóðir, sem á eftir komu, fyndu ‘
veginn ruddann, lífsbyrðina i
léttari og lífskjörin þægilegri.}
en þeir sjálfir höfðu átt við að j
búa. Þeir, sem heiðra föður og j'
móður, hafa líka fyrirheit um
að þeir skuli lifa lengi í land-
inu. Ef einstaklingunum yfir
höfuð vegnar vel, þá er líka vel-
gengni hjá þjóðinni. Þar sem j
heiðruð er minning göfugra íor}
feðra, þar er fengin hin ijrugg- j
asta trygging fyrir velferá þjóð-
ar og þjóðfélagsstofnana. Þeir,
sem hafa lært að meta göfugt,
sturf feðra sinna, munu aldrei i
vera með í því, að rífa niður
það, sem feður þeirra bygðu
upp með atorku og dugnaði, og j
fórnuðu kröftum sínum og;
jafnvel lífi fyrir.
Ef vér Vestur-íslendingar j
heiðrum «tns og vera ber minn-
ingu feðra vorra, sem svo |
dyggilega hafa starfað, og er-}
um trúir þeim hugsjónum, sem |
mestu réðu í lífi þeirra, þá er-
um vér líka sjálfum oss trúir.
Þá erum vér einnig feðrafróni
voru og eigin þjóð trúir, og höf-
'um fullvissu fyrir því, að vér
byggjum grundvöll, sem aldrei
getur haggast, fyrir framtíð
niðja vorra í þessu landi. Þá
hka getum vér haft þá lifandi j
uppörvandi sannfæringu, að
Vestur-íslendingar séu ekki
brotinn kvistur, heldur lifandi,
frjóvguð grein á hinu unga og
fagra þjóðtré, sem hér nú vex
og blómgast með ótrúlega mikl
um krafti og þroska.
Frá Kirkjuþinginti.
Þriðja ársþing hins Samein-
aða kirkjufélags var haldið að
VVynyard, Sask., dagana 25.—
28. júlí. Nákvæmari greinar-
gerð mun síðar birt verða af
störfum þingsins, en þess má
geta, að þeim var fylgt með
hinni mestu athýgli af almenn-
ingi vestur þar.
Þingið var sett af forseta fé-
lagsins, séra Ragnari E. Kvar-
au, með ræðu, laugardaginn 25.
ki. 3 e. h. Entist sá dagur til
þess að koma flestum málum í
nefndir, er störfuðu um helg-
ina og gátu lagt fram málin
undirbúin fyrir þingið að
morgni mánudagsins.
Séra G. Árnason flutti prédik
ua í kirkju Quill Lake safnaðar
kl. 2 e. h. á sunnudaginn. Var
það hin markverðasta ræða.
Svo maígt manna hlýddi á
guðsþjónustu þessa, sem rúm
kirkjunnar frekast leyfði. Var
það svo einnig um alla opin-
bera mannfundi, er efnt var til
í sambandi við þingið, að að-
sóknin var afarmikil.
Hr. Einar H. Kvaran flutti er-
indi kl. 5 á sunnudaginn, fyrir
tilmæli félagsstjórnarinnar, um
þjóðkirkjuna áí íslandi. Vakti
það erindi svo mikla athygli, að
stjórninni bárust hvaðanæfa
fyrirspurnir um, hvort það yrði
ekki gefið út, svo almenningi
gæfist kostur á að lesa það.
Stjórnin hefir nú fengið sam-
þykki höfundarins til þess að
birta það, og verður það gert,
annaðhvort sérprentað eða í
Heimskringlu. .
Að loknum þingstörfum á
mánudag flutti séra Albert E.
Kristjánsson erindi um horfur
fvrir allsherjar kirkjusamein-
ingu íslendinga hér í álfu. Hef-
ir hann, eins og kunnugt er,
borið þá hugsjón fyrir brjósti
um langt skeið og flutt hana
almenningi við ýms tækifæri.
Þótti mönnum njikils um vert
mál hans, þótt greinilega kæmi
það í ljós í umræðunum, sem
fram fóru á eftir erindinu, að
elrki væru allir jafn-bjartsýnir
á framgang þess máls í náSnni
framtíð, sem fyrirlesarinn. Tóku
ýmsir til máls og frá ýmsum
hliðum. Og um það virtust all-
ir sammála, að þetta hefði ekki
einungis verið ánægjuleg kvöld
stund, heldur hefði og margt
skýrst fyrir fundarmönnum í
þessu mikilsverða máli, sem áð-
ur hefði í þoku verið í hugum
manna.
Síðasta erindið, er flutt var í
sambandi við þingið, var erindi
séra Rögnv. Péturssonar um
aldarstarfsemi Únítarakirkjunn-
ar í Bandaríkjunum. Var orð
á því gert, hvílíkur frágangur
hefði verið á erindi þessu, bæði
8,ð máafæri, hugsun og lag-
tækni, að gefa svo frábært yf-
irlit yfir stórkostlegt efni í til-
tölulega stuttu máli. Vonandi
gefst almenningi kostur á að
kynna sér erindi þetta. því þess
er fastlega vænst, að höfund-
urinn verði við þeim óskum
fjölda manna, að birta það hið
bráðasta.
Kirkjuþinginu var slitið
skömmu eftir miðjan dag á
þriðjudag, en að kvöldi þess
dags efndi Quill Lake söfnuður
til hinnar ágætustu skemtunar,
og mátti eigi tæpara standa en
að hin stóra og veglega kirkja
rúmaði þann mannfjölda, er
hana sótti.
Viðstaddur.
ÞJER SEM NOTIÐ
TIMBUR
K A U P I Ð A F
Tha Empire Sash and Door
COMPANY LIMITED
Birgðir: Henry Ave. East. Phone A 6356
Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA.
eíni, sem málskrafsmenn hafa hand-
fjatlaö til dægrastyttingar almenn-
ingi.
Þaö er eitt af lifandi spursmálum
nútímans, sem allir ættu að gefa
gaum. En spursmálið er þannig:
“Er kirkjunni styrkur aö rannsókn-
um dularfullra fyrirbrigÖa ?”
Því játar séra Ragnar E. Kvaran,
e:i séra Jóhann Bjarnason neitar.
Eins og kunnugt er, eru báðir þess-
ir menn ágætlega rökfimir, og ætti
monnum að veröa, ekki aðeins skemt-
un, heldur og hin mesta nytsemi, að
hlusta á þá rökræða þetta einkar
þýðingaspiikla *spursmál.
Yfirleitt\má víst fullyrða, að fólk
hér geri sér mjög rangar og #öfga-
ful'Iar hugmyndir um sálarrannsókn-
ir, og gæti þessi kappræða ef til vill
orðið einhverjum hleypidómi að
fótakefli, eða stuðningur að ein-
hverju leyti leit manna eftir sapnleik-
anum, en eg geri ráð fyrir að hans
séu allir að leita.
Valdi Jóhanncsson.
*
Ur bænum.
Á föstudaginn var komu þau hjón-
in Einar H. Kvaran skáld, og frú
Gíslina, aftur hngað til borgar-
innar, úr langferðalaginu til Kyrra-
hafsstrandarinnar. Mr. Kvaran fór
héðan 7. júní , til Markerville, en
þangað var frú Gíslína komin á und-
an, til systur sinnar, frú Þóru Sveins
son, —sem gift er Jóni bónda Sveins-
syni. Dvaldi Mr. Kvaran þar um
hálfan mánuð og hélt fyrirlestur
þar. Þaðan fóru þau hjón vestur
ti' Vancouver, og áfrant þaðan suður
til Los Angeles, með litlum viðstöð-
um í Blaine, Seattle og Portland. —
Afskaplegur hiti var á leiðinni suð-
ur. I Sacramentodalnum voru t. d.
114 stig í skugga. Til Los Angeles
komu -Jwu hjón 28. júní, og dvöldu
þar og í San Diego næstu 10 daga.
A báðum stöðum hélt Mr. Kvaran
fyrirlestra, og var á tilraunafundum.
Sérstaklega þótti honum fundurinn í
San Diego merkilegur. Fundinn sátu
uui 30 mannj, þar af nokkrir íslend-
ir.gar. Fjöldi radda heyrðist þar í
lofti, utan um miðilinn, sem ekki var
í sambandsástandi (trance). Var af
þessum röddum talað við flesta
fundarmenn, .<etn sannfærðir Voru
um að þar töluðu framliðnir ástvin-
ir sínir. Fyrstu raddirnar, er létu til
síii heyra, töluðu ómengaða íslenzku.
Var það þvi eftirtektarverðara, sem
miðillinn er amerísk kona, sem ekk-
ert kann í íslenzku. — í Los Angeles
vr.r það læknir, er til tilraunafund-
a-ins stofnaði. Bauð hann fjölmenni,
til þess að skýra fyrir þeim, hvernig
lækna mætti geðveiki, er hann hygg-
ur stafa af áhrifum frá öðrum heimi.
Frá Los Angeles fóru þau hjón
með strandbrautinni norður eftir.
Stonzuðu ekki í San Francisco, en
komu til Seattle 11. júlí. Þar flutti
Mr. Kvaran 2 erindi daginn eftir.
Fvrra erindið var -flutt á ensku, í
félagsskap, er mjög nterkur maður,
Dr. Austin, stendur fyrir. Siðara
erindið var fyrirlestur, fluttur um
kvöldið fyrir íslendingum. Daginn
eftir var þeim hjónum haldið veglegt
samsæti. í Blaine hélt Mr. Kvaran
fyrirlestur 14.; á Point Robertsl5.
og i Vancouver hinn 17. júlí. En
19. jiilí hélt kvenfélag Vancouver-
Islendinga þeim hjónum mikið sam-
sæti í húsi Mr. Árna Friðrikssonar.
Markerville komu þau hjón aft-
ur 21. júlí. Var þeim boðið til fagn
aðar þar í félagshúsinu. í Wynyard
hélt Mr. Kvaran fyrirlestur 25. júli,
og annan fyrirlestur flutti hann þar
f\rir kirkjuþ.gestum um þjóðkirkju
íslands. í Leslie talaði hann 29. júlí.
Og hér var harfii á Islendingadaginn
1. ágúst, sem kunnugt er.
“Fanst vður nú vera mikill áhugi
meðal Islendinga, sem þér mættuð,
fyrir sálarrannsóknum ?” spurðum
vér Mr. Kvaran.
“Já, það fanst mér. Alstaðar þar
sem eg kom, fanst mér eg verða var
við vakandi áhuga meðal töluvert
rrikils hluta manna. Og eg gat ekki
atmað en glaðst af þvi, eins og þér
getið skilið, að mér finst “Mjorgunn”
hafa átt töluvert mikið erindi hér
vestur til Islendinga. En annars fanst
mér að öllu jöfnu, sem áhuginn fyrir
þessum málum væri einna mestur í
San Diego og Los Angeles, enda
mun hreyfingin vera lengst komin
þar syðra meðal almennings.
Mr. Kvaran lítur mjög vel út, og
þau hjón bæði, eftir þessa löngu og
erfiðu ferð. Sennilega fara þau frá
Montreal 4. september, á leið til ís-
lmds. Svo nú fer að verða hver síð-
astur fyrir Islendinga hér vestra að
hlusta á það, sem hann hefir að segja,
þessi snillingur í íslenzkri orðvisi og
óþreytandi verkamaður í víngarði
göfugra hugsjóna.
Mr. Friðrik Sveinsson listmálarí
fct vestur til Nepawa nýlega, til þess
að vinna þar við málningar um tíma.
Mr. og Mrs. P. K. Bjarnason frá
Árborg fóru suður til Dakota nú um
hdgina, og búast við að verða þar
í nokkra daga.
Mr. Jón Einarsson frá Glenavon,
Sask., var hér staddur um helgina.
— Hann og fjölskylda hans eru einu
Islendingarnir, sem búsettir eru í
grend við Glenavon.
Mr. og Mrs. Árni Anderson frá
Cavalier, N. D., komu hingað til
bæjarins í fyrri viku ásamt tveim
sonum sínum, til þess að sjá móður
og systur Mr. Anderson, Mrs. M.
Anderson og Mrs. A. H. Smith, að
48 Ellen St. Mrs. Anderson fór
með syni sínum suður, og býst við
að dvelja hjá honum um hríð, og
hinum sonum sínum, Halldóri,
Tryggva og Bjögrvin, er allir búa
í nánd við Hensel.
Fundur
verður haldinn af kjósendum í Gimli
kjördæmi, í samkomuhúsi VíðibygS-
ar, laugardaffskvöldiff 27. ágúst, kl.
8, til að mynda Conservative flokks-
samband í 19. kjördeild.
N. K. BOYD,
forseti Prov. Cons. Organization.
♦"♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
Kappræðan mikla.
Svo kalla eg kappræðu þá, er fyrir
huguð hefir verið nú um alllangan
t:ma, og aðeins, verið beðið eftir
tækifæri að gæti orðið háð. Veit eg
tii þess að margir hafa beðið óþreyju
fullir eftir þeirri sennu. En nú hefir
verið kveðið á urn daginn, þann 14.
ágúst kl. 9l/i að kvöldinu, í samkomu
húsl Víðibygðar. Að þetta sé í
raun og veru svo, skilst þá er kapp-
ræðuefnið er athugað.
Það er ekkert afdankað, útslitið
I Swedish American Line t
♦ t
% HALIFAX eða NEW YORK
Y
Y E/S DROTTNINGHOLM TA"imcE/s STOCKHOLM
T Cabin og þriðja Cabin loLANDS 2. og 3. Cabin
i ÞRIÐJA CABIN $122.50
%
♦♦♦ KAUPIÐ FARBREF FRÁ NÆSTA UMBOÐSMANNI EÐA
t SWEDISH AMERICAN LINE
x
t
470 MAIN STREET,
T
T
t
T
T
±
±
T
±
±