Heimskringla - 10.02.1926, Page 2
2. BLAÐSlÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 10. FEBR., 1926.
------:----------
Jóhann Vigfússon
Eins og minst var á í íslenzkti
blöðunum 6.- janúar, andaðist Jó-
hann Vigfússon á nýársdagsmorgun,
a.S 532 Beverley St., hér í borg. ÞaS
er orSin eins og föst regla hjá okk-
ur Vestur-Islendingum, aS geta
þejrra meS| fáeinum línuni, sem
flytja burt úr hópnum okkar til
landsins ókunna og' eg sem rita
þessar linur finst það vel ViS eig-
andi, ýmsra hluta vegna.
Jóhann er fæddur í Litlu-BreiSu-
vík, ReySarfirSi i SuSur-MúlasýsIu
á Isíandi 4. . febrúar 1865 og því
næstum 61 árs er hann andaSist,
hann var sonur Vigfúsar Eiri.ksson-
ar GuSmundssonar og Valgerðar
Þórólfsdóttur Jónssonar, móSir Val-
gerSar var Þórunn Rjchardsdóttir
Long af Eskifirði, alt var þetta af-
bragSsvel gefiS fólk og vandaS ti!
orða og verka.
Fimm ára gamall misti Jóhann
föSur sinn var þá móSir hans illa
stödd, meS 7 smá börn og lítil efni.
En hún var kjark-kon'a. og hugurinn
. allur við það eitt aS sjá börnunum
borgiS. tók hún sér þá ráSsmann
Pái Jónsíon, náfrænda Vigfúsar
sáluga og giftist honum nokkru
siðar. MeS þvi eina móti sá
hún sér fært að halda barnahópn-
um saman og sjá um þau sjálf. Jó-
hann ólst þvi upp hjá móSur sinni
og stjúpa símim, sem reyndist honum
eins og góSur faSir, á þeim árum
voru engir barnaskólar í Múlasýsl-
um og þó víðar væri leitað á Islandi,
naut því Jóhann engrar mentunar
nema þaS sem heimiliS gat veitt
honum, en hann var greindur vel,
eins og hann átti kyn til og las því
mikiS, enda nógar bækur og góðar
til á heimilinu, mátti hann þvi heita
vel sjálfmentaSur maður, þó ha.nn
léti litið á því bera. Ungur byrj-
aði hann ag stunda sjó," enda var
það háns aðal átvinna á meðan hann
dvaldi á ættjörðinni, þótti hann lip-
ur sjómaður og afbragðs handlaginn
á aJt sem hann lagSi hönd aS, á sjó
eða landi.
ÁriS 1900 flutti • mest af þeirri
fjölskyldu af landi burt vesttir til
Canada, og settist a.S í Winnipeg.
MóSir hans og stjúpi 3 albræður og
3 hálfsystkini, elzti bróSirinn gift-
ur með' konu og 6 ung hörn. alls 15
mann,s. Það má svo að orSi
kveða, a.ð þessi hópur hafi altaf
haldið saman nema þaS sem dauðinn
hefir nú höggvið stórt skarS i fylk-
inguna.
Þegar hingað kom vestur byrjaSi
Jphann strax að stunda húsasmiSi,,
hafði hann alt af' ha.ft sérstaka löng-
un til að læra það handverk, enda
varð hann ágætur smiður á fáuin
árum, og rak þá iSn til dauðadags,
eSa eins lengi og kraftarnir leyfðu.
Það eitt heyrði eg hann kvarta. und-
an, aS hér væri ekki nógu vel vand-
að verk, hann vildi ekki hálfverknað
í neinu, og að svíkja nokkurn mann
i verki eSa á verki var honum ó-
mögulegt, trúmenskan var a1t af
fyrir framan, hvað sem hagnaðinum
leið.
HaustiS 1900 gekk Jóhann i Good-
templara stúkuna Heklu og vann
stöðugt í henni til dauðadags. Einn-
ig þar var hann trúr eins og stáliS,
og alt sem hann vann fyrir stúkuna
og málefni hennar, á þeim langa
tíma, var meg snild af hendi leyst.
GleSimaSur var Jóhann enginn, en
þægilegur viS samferSafóIkifi og svo
góShjartaður að hann kendi í brjóst-
um alla sem bágt áttu, og marga
ferð fór hann' á sþítala borgarinnar
til að heimsækja veika, gleðja þá og
gjöra þeim gott ef hann gat.
Trúmaður var hann, en hneigSist
ungur aS frjálstrúar stefnunni og
hélt fagt við það til dattðadags, því
hann var aldrei eitt í dag og annaS
á morgun. Hann tilheyrSi Sam-
bandssöfnuði, og vann honttm áf
trú og allri einlægni, enda mintist
séra R. E. Kvaran hans íagurlega í
líkræSunni er hann hélt viS jarSar-
förina. Eg veit að allir sem þektu
•hann bezt eru mér sammála aS þar
kvaddi drengur góSur þepnan heim.
Hann sagSi sjálfur litlu áður enn
hann andaSist: “Eg hefi reynt aS
lifa vel, eg kvíSi alls ekki a.S flytja
burtu, eg trúi því aS betra taki viS.”
Gott væri ef allir gætu sagt meS
sannfæringu þessar setningar þegar
þeir eru aS kvæSja þennan heim.
AlúSar þakkir fyrir samvinnuna
og samveruna, minn kæri frændi og
vinur.
f B. M. Long.
---------x---------
Kraftur fagnaðarboð-
skaparins.
RæSa flutt i Sambandskirkjunni.
24. jan. 1926.
Róm. 1—16.: Eg fyrirverS mig ekki
fyrir fagnaðarerindiS; því aS það er
kraftur GuSs til hjálpræðis hverjum
þeim, er> trúir.
Þessi orS, er eg hefi að textá í
dag, eru þa.u sömu, er'eg hafði aS
inngangsorSum, er eg í fyrsta skifti
flutti prédikun hér í kirkjunni fyrir
tæpum fjórum árum siðan. Hiug-
urinn hefir ósjálfrátt hvarflaS aS
þeim undanfarna daga. Eg veit aS
ySur furSar ekk#t á þvi. • Eg gekk
að þessu starfi með allmiklum kvíða.
Eg þekti hér naumast nokkurn mann
og vissi i raun og veru ekkert um
þetta starf, sem íyrir mér lá, annaS
en það, hve kraftar mínir voru litl-
ir til þess að leysa. það af hendi. Nú
stend eg í dag eins og á öSrum tíma-
mótum, það verður hlé á starfsem-
inni frá minni hálfu, Eg kemst í
burt frá því um skeið, og gefst tæki-
færi til þess aS skoða það í því ljósi,
er fjarlægðin ein getur yfir þaS varp-
aS.
En þaS er tvent, sem eg ekki þarf
að skoða úr' neii^ni. fjarlægS, eSa
þarf nokkurn undicbúning til þess aS
átta mig á. AnnaS er þaS, að niér
er jafnljóst og er eg kom hin^að,
hve mig skortir hæfileika og upplag
til þess að gegna því starfi, er mér
hefir veriS ætlaS. Hitt er sannleik-
urinn i þeim orðum Páls, er eg hefi
valiS mér aS texta. Með hverju
árinu' verSur niér ljósara ,aS þaS e-
sannmæli, að fagnaðarerindi Krists
cr “J<raftur GuSsftil hjálpræSis hverj*
um þeim, er trúir”. Mig langar
því til þess að verja þessari ÍVöId-
stund til þess að ræSa við yður um
sjálfa. undirstöSu þessarar stofnunar,
sem eg kveð nú um stundarsakir.
Mig langar til þess aS tala um hvers-
vegna vér höfuni kirkju.
Því mætti virSast ailðsv.araS, aS
kirkjunni — þessari og öjirum væri
haldiS uppi til þess aS flytja og
IxiSa fagnaSarerindi Krists. Og
það má líka virðast sameiginleg trú
manna, að ástæSan til þess a.ð
það sé boðað sé sú, að
það sé kraftur, a.fl, máttur, serr.
leiðir til hjálpræSis mannanna. En
eftir því sém mér skilst, þá skiftast
leiðirn.ar þar. Oll kristnin er skift
i deildir, af þyí að nrtfnn eru ,ekki
sammála um, hvaö það sé, sem við
vildum nefna "hjálpræði”. l4tta
orS hefir um langan aldur táknað
það ástand, það takmark, er menn
hafa á hverjum tíma séS xSst eða
*
eftirsóknarverðast á lífsleiðinni. F.n
inntak þess hefir breyst eftir þvi
sem hugsanalíf rrta.nnanna hefir
breyst. Hjálpræðið hefir á öllum
tímum verið þau æSstu gæði. sem
menn hefir dreymt um. En drauni-
arnir hafa breVst. Vér belgum þessa
kirkju því, sem vér vitum æðst
i mannlegu lifi. F.g geri ráð fyr-
ir að hið sama vaki fyric öllum
mönnum, er kirkjur reisa og halda
við. Þó eiguni viS ekþi samleiS
með öllum öðrum. • Umtalsefni
mitt mætti því líka orða á þá leið,
að eg ætlaði a.ð leita að því og koma
þvi í orð, sem mér finst þessi söfn-
uSur meina með þvi að vera til.
Sumum er það vafalaust ljóst/ en
ekki öllum 1 ja.fnt. Sumir eru ef
til vill ósammála niér, og {inst eg
leggja áherslu á þaS. sém þeim finst
aukaatriði, en gæta þess eigi nóg,
er fyrir þeini er aðajatriði. ViS
því verður ekki gert, en mig langar
til þess að gera þess einhverja 'grein.
hvernig á þvi stendur, að eg bið yð-
ur aS gefa á þeirri stundu hug yS.ar
allan og óskiftan þeirri ?>sk. aS fé-
lagsskapur okkar megi lifa. og dafna
og bera ávexti meöan þjóð vor er
uppi á þessum hluta veraldarinnar.
Eg hefi haldið því fram, að viS
værum að leita aS því, sem vér teld-
um vera hjálpræSi m.annanna. Efns
og allir trúarlegir félagjsskapir
leitum vér aS því á leiðum trúar-
bragöanna. Og eins og allur
kristinn félagsskapur teljum vér að
fagnaðarerindi Jesú geri hvort-
tveggja, visa. leiðina og hjálpa á-
leiðis.
En hugsunin um aS leita að. hjálp-
ræðinu, hinum æSstu gæSum, er
miklu eldri en kristindómurinn. Hún
er jafngömul manninum. Þega-
fornar þjóSir reistu sér alta.ri á
mörkum úti, óg fórnuðu dýrtim eða
jurtagróðri, þá var þaS vottur um
þaS, að þessir brautryðjendur mann-
légrar hugsunar voru aS Ieita aS
hjálpræðinu. MaSurinn varð þá
fyrst maður er hann lyfti augum
sinum upjj frá jörðinni og tók aS á-
kalla eitthvaS, sem honum var
meir.a, um hin æSstu gæði.
Hver voru hin æðstu gæði, hin
æð.tta hugsjón þeirra tímá? Menn
báöu guSina um sigur yfir óvinum
sínum, gróða af jörðinni, happ á
veiSum og önnur þau gæði, er maS-
ur sá þá umhverfis sig og girntist
•a.S fanga. Hin æðstu gæði bernskú-
ára mannanna voru þeir ytri hlutir,
er þeir þurftu meS ti! þess aS viS-
halda lífinu. Ö1d af öld og um
ónuinatíS var huganum naumast
hærra stefnt. Og alt fram á þenn-
an dag hefir mikill meiri hluti lifs-
magns mannanna veriS beitt til þess
að vinna þessa hluti og biöja um þá.
Okkar öld hefir 1ifaS þau furSulegu
tíöindi, aS sjá, að mennirnir hafa
verið bænheyrðir þvínær til fulln-
ustu. Vor öld hefir séS náttúruna
verða að láta lausa þá dýrgripi, er
•hún hefir frá öndverSu búiS yfir.
Vorir tímar hafa séS þau ógrynni
jarðneskra auSæfa safnast saman á
yfirborði jarSar. að nemur hundraö-
földu þvi. er hundruS alda til forna
dreymdi um a.S til væri. Mennirnir
hafa verið bænheyrðir svo greini-
lega, aS ávextir og öll föng til lík-
amlegs lífs eru rikulega til fvrir a1la
þá menn, er á jörðinni búa. ÞaS
eitt skortir á, aS fa.ri8 sé meS föng-
in af nokkurri skynsemd. Þau hafa
lent í hrúgum og farið þar i súg-
/inn, og svo orSið auöir flákar á
milli. En' viS því verðúr vitaskúld
séð á næstu tímum. Næstu kyn-
slóðir hljóta aS finna sæmilegar að-
ferðir til þess að skifta þeim gjöf-
um, er þeim hafa Ix>rist upp i hend-
urnar. Undir eins og með nokk-
urri alvöru verður snúiS sér að því
verki. þá finst lausnin von .bráöar.
En hvaö gerist þá? Er ma.nn-
kynið ánægt, þó því verði veitt öll
þau gæði. er það þarfnast ti1 þess að
lifa sæmilegu lífi þótt því verði
veitt svo greinileg bænheyrsla, að
engan tnajin skorti þau föng, er til
lifsins uppeldis þarfnast? ViS vit-
um öll, aS svarið getur ekki verið
nenta á eina lund. Þvi lengra sent
maðurinn kemst áfram og nálægist
það að þett.a. verði að veruleika, þess
augl jósara er honum, að aS í þessu
er ekki falið nenta lítlð brot eitt af
þvi, sem hann þráir og biður um.
MeS greinilegra og greinilegra letri
er það ritað á himinn mannkynsins.
að hjálpræðið er ekki fólgið í nein-
um vtri hlutum — jafnmikilsmetnir
og þeir þó eru. þess nteira sent
veitist af þeim, þess hærfa verður
hrópað til himins: gefðu oss hjálp-
ræði! F.n i hverju á þaS að vera
fólgið ?
ASur en eg Jeitast við a.S svara því.
langar' mig til þess aS taka yður meS
mér enn á ný aftur í tima.nn.
Mefin voru búnir að gera þessa
uppgötvun, þótt þeiiu væri hún
ekki að fullu ljós, — að hjálpræSis-
ins væri að leita á öðrum sviöuni
heldur en1 í jarSneskum eignum og
hlútum, löngu, löngu fyrir þessa
öld, er þeim hefir veitt mest af
þeim. Og sú uppgötvun ha.fði ein-
kennileg áhrif á þá. Fyrir meira
en tvöþúsund árum siðan sveipaðist
eins og þunglyndis-alda eða bölsýn-
is yfir allan menningarheim þátím-
ans. Eg befi gert mér þá grein
fyrir henni, að hún hafi staðið i
sámbandi við þessa uppgötvun, #sem
eg hefi minst á. Vitrir menn
fundu, að 'þótt þeim bærist alt upp í
hendtirnar af ytri gæðum. sem for-
feður þeirra og þeir sjálfir höfðu'
beðiS um frá örófi ára. þá væru
þeír svo litlu bættari fyrir þvi. Sál
þeirra var jafn þyrst. sem áður, eftir
því að teiga þann drykk, er henni
svalaði. Þeir fundu ekki drykkinn
og fanst sem “alt væri hégómi’ eins
og Prédikarinn orSaSi þetta. Þeim
virtist, sem þaS hlyti þá einhver
bölvan aS hvila yfir lífinu, fyrst ekki
var hægt aS fá fullnægju, jafnvel
þótt þaS gæfi alt, er mönnum hug-
kvæmdist aS biðja um. Rétt um
sama leyti færist nýtt líf í trú nianna
á framhald lífsins eftir dauSann.
En sú trú fær lit sinn af bölsýnis-
hugmyndum þátímans. Menn leit—
uðu hjálpræSisins, eins og þeir hafa
ávalt gert. Þeir. tóku að trúa, aö
þaS hjálpræði væri eitthvaö, sem
þeir mundu öðlast annars heims,
eða öllu heldur þeir kynnu að eiga
kost á aö sleppa viS tortiming sem
yfir lifinu hvíldi, þegar þangaö væri
komið. HjálpræSiS verSur frels-
un undan 'bölvun þessa heims og
vansælu annars heims, og þaö er
fólgiö í óljósum hugmyodum um
sælu, sem engin getur gert sér grein
fyrir í hverju er fólgin. Þessar
hugmyndir hafa. fylgt með kristn-
inni alla daga, en eru ferignar aö
láni eöa eru leyfar frá eldra hugs®
ana.lífi.
Eins og þér Ö1I vitiS, þá gengur
nú sterk alda yfir veröld alla með
nýrri trú og vissu um framhald
lifsins eftir dauöann. Samt sem
áður hygg eg, aS þessi trú á hjálp-
ræði, sem verandi fyrst og fremst
frelsun frá vansælu þessa heims eöa
annars, sé aS þverra óðfluga. Hún
þverrar mest hjá þeim, sem trúaðir
eru á annað lif. ÞaS hefir gengið
upp fyrir þeim, að þaö hvílir engin
bölvun yfir lífinu. Þeir hafa
skynjað aS lífiS er i eðli sínu gott.
Og þeim nægir ekki hjálpræSiö ann-
ars heims. ESa öllu heldur, þeir
hafa skiIiS, aö það er rangnefni að'
tala um annan heim. ÞaÖ er sami
guSsheimurinn seái menn dvelja í
eftir andlátiö, eins og sá er þeir
dvelja í fyrir þaS. Þeir skilja. lika,
að menn geta fariö á mis við þetta,
sem við köllum hjálpræöi þar,,alveg
eins og 'hér. Og einmitt vonin um
framhald lifsins gerir þetta lif svo
margfalt mikilsverðara í áugum
þeirra. SpursmáliS veröur fyrir
þeiin fyrst og fremst þetta : hvernig
get eg hagaS mér í dag, hvort get
eg snúið mér i dag, til þess að fá
þá svölun, er fullnægji anda ntin-
um, sem mannkyn alt hefir hrópað
eftir og nefnt hjálpTæði. NútiSar-
maðurinn skilur með öllu viti sínu
og öllutn tilfinningum sinunt mál
skáldsins, sem kvaö: “Eins og hind-
in þráir vatnslindir, þráir sál min
þig, ó gtið ! En enn þá hvilir nokkur
óvissa yfir hugmyndunum um það,
hvert*guðs sé að leita og hans hjálp-
ræðis. í
Á vorum tímum hefir ein grein
mannlegs hugsanalifs tekið svo stór-
kostlegum framförum, að fjöldi
ntanna hefir fengið þá trú, aS 'hún
byggi yfir ráSningunni á gátunni:
Vér nefntim þá grein einu nafni vís-
indi. V.isindin hafa áreiðanlega gef-
ið oss nýja jörð, hvort sem þeim
auönast nokkru sinni aS gefa oss
meira. 'Þau hafa. breytt yfirborði
jarðarinnar svo, aS það er óþekkj-
anlegt frá fornri tið. Þau hafa
dregiS saman alt tnannkynið % i til-
tölulega lítinn þnapp með sinum*,
hraðfara flutningstækjum. Þau
hafa opnaS fyrir oss nýja heima,
sem nieð öllu voru lokaðir áSur. Þau
hafa. kent oss a5 skynja þrotlausar,
endalausar raöir sólkerfa og hnatta,
sem imvndtinarafliS er með öílu
niagnlaust aS sjá út yfir. Enginn
yeit nema þar sé bústaöur æöra lífs,
en vér fáum gert oss i hugarlund.
Þau hafa kafað inn i nýja. heima
í efninu. FundiS andardrátt efn-
isins eða æðaslög í sveiflum atoma
og electrona i hinni niipstu ögn, er
augu fá greint. Þau hafa fundiS
líf, seni svó er háttaö að tnannleg
skilningarvit eiga þess engan kost
að greina. Þau 1 hafa kent oss
mikiö áf levndardómunum við að
vernda vort eigiö lif gegn sjúk dóm-
um og heilsuleysi, Þau bnfa gefið
oss sæmilega tryggingu fyrir þvi, að
menning heimsins geti aldrei þurkast
«
út af plágum og farsóttum. Og
þau h.afa dregið upp fyrir o>s þr(>-
unarsögu mannlifsins og alls lífs um
miljónir ára. Það er sem að inenn
hafi staðið höggdofa, og þaS er ekki
kvnlegt þótt mörgum f.ari svo, aö
þeir fái trú á, aS þær aöferöir, sem
öll þessi kraftaverk hafi leyst af
I
'hendi, séu þess megnugar aS leysa
gátuna miklu um það, hvenær mað-
urinn fái frið sínum eigin anda þ. e.
finni svo, aS ekki verði um vilst, í
hverju hjálpræði mannanna sé fólg-
ið. Trúin á þekkinguna eru þau
trúarbrögð, er mikill hluti hinna
fróðustu og vittustu manna verald-
arinnar hallast nú aS. Sú spurn-
ing vaknar þó að sjálfsögöu, hvort
kirkjan geti lagt niður verk sitt, meS
því að vísindin hafi tekiS í sínar
hendur forystuna fyrir mannkynið í
leit þess að hinum æðstu gæöum.
Þessi niöurstaða væri san'narlega
nieira en þess verS aS veita henni at-
hygli, ef reynslan sýndi, að vísindin
hefðu þokað mönnunum nokkuS í
þá átt, sem líklegt væri aS hjálpræöiS
væri aö finna. Svo varlega sé tal-
að, þá er aS minsta kosti margt, sem
mælir á móti þessu. Hinsvegar e'r
margt, sem mælir með því, aS ekki
sé óhugsandi, að visindin verði bana-
ntein allrar menningar og andlegs
lífs á jörðunni. Vér sjáum að
hvei' uppgötvun náttúrunnar og
krafta hennar, sem hægt hefir verið
að ríotfæra í praktísku lífi, hefir /er-
iS notuS til þess að þjá nokkurn
þluta mannkynsins. Vélarnar hafa
svift mann atvinnu og lífi: Öll
þekking efnafræöinnar og eðlisfræö-
innar hefir veriö te’kin í þjónustu
manndrápa og vígaferla. Eg pet
ekki stilt mig um að lofa yður að
heyra nokkur orö et'tir einn af vis-
indamönnunum,, sem helgaS' hafa
þekkingu sína listinni að drepa
menn.
"Garl.a (bakteríu) ófriður var
reyndur lítillega í síöasta striði, og
árangurinn er mjög efnilegur. Að-
ferðirnar, sem notaðar voru, voru að
eitra vatnsból með kóleru og tauga-
veikisgerlum, og að sleppa hundum,
sem sýktir höfðti veriö með hunda-
æÖi, inn í lönd óvinanna. Þetta
er að rninsta kosti efnileg byrjun,
■ sem vonast má eftir að nái ágætum
þroska."
Þetta eri^ visindin, þegar þau
standa einangruö og slitin frá öllu
sambandi við æðri hugsjónir. Pál!
postuli gat þess, að svo gæti far-
ið, að þótt hann ætti alla þekkingu
þá væri hann ekki neitt. Þetta er
dálitiö sýnishorn þess, að þekkingirí
getur verið verri en ekki neitt. Enda
eru sumir mestu vitmenn veraldar-
innar þeirrar skoðunar, aS ef ekki
takist að halda jafnvægi á milli
þekkingarinnar og annara æðri eig-
inleika mannsins, þá niuni marínkyn-
ið eiga sér stuttan og aumlegan ald-
ur. Og þeim finst það fjarstæða
að hugsa sér, að þekkingin ein út af
fyrir sig fái veitt mönnum það
hjálpræöi. er þeir þrá.
Vér sjáum af þessu litla yfirliti,
er eg hefi leitast viS að gera, að
þessar leiðir, er menn hafa leitað
hjálpræðisins eða hinna æðstu gæða
á, geta a.llar brugðist. Þær eru
allar niikilsveröar en ajlar ófullnægj-
andi. Hjálpræðið fæst .ekki á
leiöum hinna vtri gæða. Menn
geta eignast allan heiminn og fyr-
irgert sál sinni. Hjálpræðið faest
ekki með þvi að synda fyrir öll þáu
sker, er trúað er aö vaJdiö gætu ó-
farsæld annars heims. HræSsLan
viS helvíti er tiltölulega beinn vegur
til þess að leiða mann þangaö.
HjálpræðiS fæst ekki meS þekking-
unni einni saman. Sannindalaus
þekking er hræðilegasta aflið, er
einn maður getur búið yfir.
ViS sjáum með öðrum orðuni af
þessu öllu sanian, að þessar leiðir —
sem eg fullyrði að séu aðalleiðirn-
ar, sem menn hafi farið eftir í hjálp-
ræðisleit sinni — eru ekki eingöngu
ófullnægjandi fyrir þá sök, aö mað-
urinn getur verið jafn ófarsæll eft-
ir seni áður, þótt hann fari þær,
heldur eigi síöun af því, að ef ekki
kemur neitt annað til greina, má
hæglega svo til stilla, aö hann glati
dýrmætum verðmætum, sem vér í
brjósti voru finnum, aS sé harms.aga
að eyðileggist. Leitin að verald-
leguin gæðum getur gert menn aS
siðferSilegum smásálunt og auming-
jum. Vansælu hræðslan gétur
gert menn umburöarlyndislausa og
að níöingum, eins og; rannsóknar-
réttur miöaldanna er glöggast dæmi
um, og 'síféld dænti hafa veriS um
það, .að sú hræðsla- hefir valdið þvi,
aS menn hafa meS öllu svikist jundan
skyldum sinum við lífið. Leit-
in í þekkingunni og umfrarrí alt
breyting þekkingarinnar getur orðið
banamein þess, sem er meira. virði
heldur en hún sjálf.
Viö komum þá loks aö þessum
orðum Páls, er eg flutti ySur í upp-
hafi máls ntíns: “Eg fyrirverð mig
ekki fyrir fagnaðarerindið; því þaS
er kraftur Guös til bjálpræðis hverj-
um þeim, er trúir. Hér er þá enn
ein leiöbeiríingip um það, hvernig
hjálpræöisins skuli leita. Páll
hefir fundiö í eigin lifi, a.S fagnaö-
arerindiS varg honum kraftur. Sá
kraftur setti líf hans í sérstakar
stellingar, eða beindi því á braut og
hélt því á biautinni, sem honum
f,anst hann finna sitt hjálpræði á.
Eftir því sem eg skil Jesú og á-
hrif hans, þá held eg ekki, aS hægt
væri að komast öllu nær aS lýsa
þeim áhrifum betur, sem hann hefir
haft á þá menn, sem hafa gefið sál-
ailíf sitt hugsunum hans á vald,
heldur en Páll gerir. Og þess
sjást tvímælalaust merki, að Jesús
hefir sjálfúr litið á starf sitt líkúm
augum. “Eg er kominn til þess
að þér hafið líf, og hafiö nægtir
(þess)”, segir hann. Hann vill
'hjálpa. mönnum til að öðlast þaö líf,
sem verulega er um vert, og aS þeir
hafi nœgtir þess. Það er sem sé
hinn mesti misskilningur, aS allir
menn séu jafn-lifandi. ÞaS eru ekki
nema glæður af lífi í sumum mönn-
um. Þess ör.a.ra seni líf hinna
æðstu hugsjóna streyma í mönnum,
þess meira lifandi eru þeir. Vér
sjáum daglega menn, sem vér vitum
ekki hvort vér éiguni heldur að telja
hálf-lifandi eða hálf-dauð.a. Engin
'hugsun vaknar af sjálfsdáöum, ekk-
ert líf í þeim, sem líkst gæti sið-
ferðilegu hugrekki, engin tilfinning
fyrir því, að þeim komi neitt viö,
annað en það,' sem snertir hinar lík-
amlegu þarfir þeirra sjálfra. Jesús
er þeirrar trúar, að hans boöskapur
muni geta örfaö þessar glæður svo
ti1 -lífs aS þær veröi aS lifandi eldi.
Boðskapur hans er ekki einungis
eins og stormurinn, sem:
“gráfeyskna kvistina bugar og brýt-
ur
og bjarkirnar treystir um leið og
iþú þýtur,”
heklur nær hann í sjálfar rætur
lífsins og veldu.r því að þær draga
til sín næringuna og safna úr jarð-
veginum með margföldum hraöa og
margföldum árangri. Eg benti yö-
ur á að svo Virtist vera um allar þær
leiðir, er ,menn hafa mest notaö
til þess aS íeita að sínu eigin hjálp-
ræði, að sú hætta hvíldi yfir þeim,
að þær gætu orðiö til þess að ýmis-
legt af vgrulegum verömætum lífs-
ins fairu forgörðum. Það er eitt
af ákveðnustu atriöum í kenningu
Jesú, að ef henni sé fylgt, þá sé
engu hægt a.Ö tapa af því, sem veru-
lega sé um vert Hann þykist geta
gert kröfti til þess að hjálpa mönn-
um til þess aö öðlast lífið og nægtir
þess, þ. e. alt það, sem lifið hefir
aö bjóða. liggur opið fyrir þeim er
biður á þánn hátt er hann bendir á
leitar meö hans forystu, og knýr á
dyr lífsins með alvöru.
Þetta eru vissulega miklar full-
yröingar og kröfur þær eru í gtuttu
máli þær, a.ð hjálpræðiö sé veitt
þeim, er lifi lífinu í þeirri trú, sem
Jesús haföi sjálfur.
Hvar er lykillinn að .þéssari trú?
Eftir því sem eg held, þá verður
hvergi komiS * nær grundvdllinum
sjálfum að Hfskoðun Jesú/
heldur en í þeirri stóru fullyrðing
hans, sem mótar hvert orð hans um
önnur efni: Guff cr faffir lífsins.
Það þýðir það, ag alt sem til er
og lífsanda dregur, er eiri stór fjöl-
skylda. Það þýðir það, aS alt
mætist þaö í þesstim brennidepli
sem er hjarta tilverunnar, elska til-
verunnar, svo eg noti mannlegu Hk-
ing.a.rnar vorar yfir mannlega hluti.
En sé þetta sjálf undirstaöa lífsins
þá liggur þaS í hlutarins eSli,^ að
maSur finnur sjálfan sig, hann finn-
ur sitt hjálpræSi í einu og að eins
einu, og þaö er elskan til lífsins. Ef
maöurinn kemst ekki inn á þá leið,
þá er hann að fjarlægjast lífiS og
nægtir þess, fjarlægjast sjálfan sig,
fjarlægjast alt, sem nokkra full-
nægju gefur honuni til hlítar.
Við skuluni reyna að gera oss
grein fyrir hvað þetta þýöir í prakt-
isku lífi. Og viS gerum þaö
hægast með því áð hafa hliðsjón af
þessum leiðum, sem eg hefi veriS aS
gera grein fyrir, að mér virtust
nienn hafa farið í Ieit sinni að
hjálpræðinu.
Menn ihafa leitað að hjálpræðinu
í hinum ytri gjöfum náttúrunnar.
I