Heimskringla - 08.06.1927, Page 7
WINNIPEG 8. JÚNÍ 1927.
HEIMSKRINGLA
7. BLAÐSIÐA.
Yiss merki
um nýrnaveiki eru bakverkir, þvag-
teppa o g þvagstelnar. GIN PILLS
lækna nýrnaveiki, meí því atS deyfa
og græba sjúka pa.rta. — 50c askjan
bjá öllum lyfsölum.
Þorsteinn Pétursson.
óöalsbóndi á Miöfossum.
Hann lézt, eins og áður hefir ver-
iÖ skýrt frá, 3. marz siðastliðinn.
Banamein hans var hjartabilun. —
Þorsteinn var fæddur 9. marz 1864, á
Grund í Skorradal. Foreldrar hans
voru merkisihjónin Pétur Þorsteinsson
d. 26. jan. 1907, og Kristin Vigfús-
dóttir, dáin 4. marz 1923. H'eimil-
isins á Grund hefir lengi veriö til
góös getið. Þar ólst Þorsteinn upp
viö hinn bezta bæjarbrag. Var hanti
hiö þriöja í röðinni. af 10 börnum
þeirra hjóna, er náöu fulloröinsár—
um. Eru nú á lífi systur hans sjö
og bræður tveir, þeir merku bændur
Bjarni á Grund og Vigfús á Gull-
berastöðum.
Þegar Þorsteinn var á blómaskeiö;
var ihann talinn mesta iglæsimenni og
mjög um iþróttum búinn. Hann var
víkingur til verka, snar og þrek—
mikill, skjótur í hreyfingum, liöugur
og kappsamur. Hann var lengi bezti
glímumaður þessa ihéraðs, og hlaut
fyrstu verölaun fyrir þá íþrótt á hin
um fyrstu 'héraösmótum ;Boirgfirð—
inga. Var hann þó þá af léttasta
skeiðj, og átti viö æföa menn og
ólúna, en bar þó langt af. Söngmaö
ur var hann góöur og lék á orgel.
Var hann einn fyrsti maður, sem
spilaði í kirkju viö messugerð hér
i efri hluta héraösins. Þótti ungum
mönnum gott að binda viö hann
bræöralag, þar sem gleði, siösenti og
g'óðar listir voru hans förunautar.
Átti hann snemma marga vini, er
hann sleit aldrei tryggð viö.
Vorið 1891 kvæntist Þorsteinn ung
frú Kristinu Kristjánsdóttur frá
Akri á Akranesi. Er hún mikil mynd
arkona og af góÖu bergi brotin.
Byrjuðu þau búskap sem leiguliöar,
•á Bakka í Melasveit, en námu þar
tkki yndi og fluttu upp i Skorradal.
Urðu þau fyrst um sinu aö sætta sig
þar við hin sömu kjör og búa á leigu-
jÖrðum. 1897 tóku þau Mið-Foss til
ábúðar og fengu þá jörð keypta
btlu siðar. Tók þá fjárhagur þeirra
að blómgast. Þar hafði áður verið
leiguliðabúskapur og bar jörðin þess
menjar á allan hátt. Sáust þar mann
v>rki fá utan torfkofar litlir og rúst-
arlegir. Lítið 'kotbýli var í túnfæti
jarðarinnar. Keypti Þorsteinn þaö
líka og lagði það við jörö sina. —
Þykja nú öllum, sem muna hin tötur-
legu býli, umskiftin mikil og auðsæ,
er litið er heim á þenna vel hýsta
bóndabæ. "^>ar ber allt vott um fram-
farir, sem vel eru sniönar viö þarfir
og þægindi og um leið allt vel í hóf
stillt eftir gjaldþoli og getu. Allt er
bætt og byggt af arði búsins, en ekki
vasast með skuldafé, sem teflt sé i
tvísýnu. Þorsteinn var sannur fyr-
irmyndarbóndi í því, að þræða þá
braut, sem tryggilegust hefir reynst
til þjóðþrifa. Lagði hann meiri á-
herzlu á það, aö tryggja hverja
skepnu vel með miklu og góöu vetr-
arfóðri, heldur en hitt, að auka svo
mjög fénaðartöluna. Atti hann þr-i
allan sinn búpening alinn vel og arð—
samann.
Meðal þeirra íþrótta, er Þorsteinn
lék frá æsku var tanining hesta. \'ar
hann nianna glöggskyggnastur á eöli
þeirra og upplajf. Kunni hann jafn-
an hin beztu tök á þvi að beygja þá
með góðu móti til auðsveipni og
hlýöni og auka listgildi þeirra í fjöri
og fögrum limaburði. Þóttu engin
meömæli jafntrygg, ef um sölu reiö-
hesta var aö ræöa, sem þau, að þeir
voru aldir og tamdir af Þorsteini
Péturssyni, og kæmu frá hans hendi
til kaupenda. Þá gat hver maður
treyst því, aö í allri meðferð hans
voru engin mistök. Þorsteinn hafði
nranna læzt vit á þyí að meta til
sannvirðis bæöi sauöfé og hesta. Var
hann því allt frá ungdómsárum vai-
inn ’af ýmsum fésýsljumönnum til
þess að kaupa bæði fé og hesta fyr-
ir þeirra hönd. Báru allir hið fyllsta
traust til hans í þeim efnum, og
kepptu menn mjög um það að fá hami
f>rir kaupstjóra. Kunni hann gáö
skil á þvi, aö þræða meðalveg’nn
milli íkaupanda og seljanda. Var
hann þá, sem jafnan, skjótur og skor
inorður og lét engan raska sannfær-
ingu sinni, enda var hann aldrei
neinn veifiskati.
Mið-Fossar eru við þjóðleið þá,
sem liggur úr efrfhluta Borgarfjarð-
arhéraðs til Selevrar og Akraness.
og um hlaðið er braut sú, er liggur
til Hvanneyrar og Hvítárvalla. Sú
venja er nú þrjátíu ára görnul, eða
uieð öðrum orðum, jafngöimtl búskap
þessara góðu hjóna, að hafa viö—
komustað á heimili þeirra. Kom þá
sá mikli hlýleiki og alúð, sem þar
var aö mæta, ekki einungis frant við
menn þá, sem að garöi bar, heldur
vortt þaö fyrst og fremst hestarnir.
sem unihyggja var borin fyrir. Að
gefa þeim laufgrænt hey, ef gras
skorti, það var ávalt metið mest af
öllu. Því næst stóð öllutn opin htts
og góður greiöi. sem engum leiöst
aö iborga. Vel voru tnenn minntir
á það, að viðstaðan mætti aldrei vera
skemmri en svo, að allir hestar hefðu
fengið nægju sina áður en farið var.
Við þá ráöstöfun máttu allir vel una,
enda líða stundir fljótt meöal hinna
greindu og glöðu.
EF Þp ÁTT KUNHIWGJA
a ÆTTLANDINU
SEM ÞIG LANGAR TIL AÐ
HJÁLPA TIL AÐ KOMAST
VESTUR HINGAÐ, KOMDU
OG TALAÐU VIÐ OSS. VJER
GETUM GERT ALLAR RÁÐ
STAFANIR því VIÐVÍKJANDI
Alloway & Champion, járnbraut-agentar
(W7 Mnlii Street, Wimilpeg;. (Síml: 861)
UMBOÐSMENN allre SKIPAFÉLAGA
e#a nnfiltJ jftur til hvattn auent* sem er
QANADIAN [\J ATIO NAL
Farseðlar
frnm o*; aftur
«11
allra staða
í veröldinni
“Justicia” Private School
and Business College
Portoge Ave., Cor. Parkview St., St. James, Winnipeg. |
Auk vanalegra námsgreina veitum við einstaklega góða tfl- I
sögn í epskri tungu málfræði og bókmentum, með þeim til- )
gangi að gjöra mögulegt fyrir þá sem frá öðrum þjóðum j
korna að láta í ljós beztu hugsanir sínar á fósturmáli sínu
Enskunni, eins vel og innfæddir geta gjört.
Heimskringla mælir með skóla þessum, og selur “Scholar- t
ships” átækifærisverði. Þetta tilboð gildir aðeins til 31. ágúst.
Það kostar yður ekkert að biðja um frekari upplýsingar.
Fjögur eru börn þeirra hjóna,
öll uppkomin, mjög mannvænleg á
allan hátt og prýöis vel geíin. Eru
þau: Pétur bóndi i Gröf í Lunda—
reykjadal; Elísabet yfirsetukona í
Hes1(þingum, Rristján og Þorgeir.
Þrjú þau síðasttöldu eru öll ógift
heima í föðurgarði.
Jarðarför Þorsteins fór fram 17.
marz síðastliðinn. Voru þá aurar
miklir og vatnavextir, en héraösbúar
létu ekkert slíkt standa i vegi fyrir
þvi, að auglýsa þakklætisvott og vin-
arhug með heimsókn á heimili hans,
þar sem flestir þeirra höfðu áður
notið margra ánægjustunda. Voru
þar saman komnir margir málsmet-
andi menn úr tólf hreppum héraðsins,
og áttu ýmsir þeirra aö sækja yfir
langar og torsóttar leiðir. Meöal
þeirra var Bjarni bóndi i Skánev
með söngflokkinn. “Bræðurna”, sem
hann hefir lengi stýrt. Hafði flokk-
ur sá átt oft áður igóðu að mæta á
þessu ágæta heimili. Auk þess sendu
fjarlægir vinir hluttekningarmerki á
niargan hátt. Þorsteinn var jarðað-
ur á Hvanneyri. Fór það allt fram
nteð hinni mestu rausn og prýði á
þessu landsins höfuðbóli.
Þorsteinn var sómi sinnar stéttar,
og mttn minning hans lengi lifa og
verða i heiðri höfð.
Kr. Þ.
—Vörður.
----------x-----------
Ný bók.
H<k'c/í Rigdomme og dcrcs
Udnyttelse. Af Matth. Thor-
darson. — Hagerups For-
lag. Kbh. 1927.
I hvert skifti sem landi voru er
sýndur sómi, eigum vér að gleðjast,
eins þegar það er landi vor, sem nteð
einhverjum gerðum sinum bendir á,
að hér fæðist og lifi menn, sem geta
unnið verk á einu eða öðru sviði, sem
fárra er nteðfæri.
Hr. Matthías Þórðarson hefir nú
látið bók þá um fiskiveiðar frá sér
fara, sem áður hefir verið frá sagt
í ísl. blöðunum, að væntanleg væri.
Bókarinnar hefir nú verið getið í
nær 30 dönskum blöðum og er henni
hvarvetna hælt, sem merkilegri bók
og ihinni fyrstu á þessu sviði, er rit-
uð hefir verið á dönsku, en hvergi
er slept að geta þess, að höfundurinn
sé íslenzkur.
Þeir fylgjast þá að bræðurnir, ann
ar þeirra (Björn) ver doktorsritgerð
sina við háskóla Islands og verður
hér hinn fyrsti doktor í lögum; hinn
(Matthias) lætur um sama leyti verk
frá sér fara, sem lengi mun halda
nafni hans á Jofti, og rnun að öllum
)I íWindum verða gTundy,öIlur anrtarn
tnerkilegra rita.
Bók M. Þ. er að »iestu leyti rituð
fyrir Dani, enda hafa þeir lagt fram
riflegan stvrk til útgáfunnar. En
hún er einnig fyrir aðrar þjóðir, svo
sem ntarka ntá af þvi, að reynt hefir
verið að sentja við höf. um að henni
væri snúið á ensku og þýzku. Lik-
indi ertt til, að M. Þ. hefði ekki ver
ið veittur styrkur til að gefa út slíka
bók hér. Sumir kynnu að hafa efast
um, að ihann væri til þess fær. Nú
hefir hann sýnt hvað hann getur. —
Hartn er nú að safna í rit um fiski-
veiðar útlendinga hér við land, allt
frá miðöldum og fram á vora daga;
á hvaða máli sú bók verður rituð, er
ókunnugt. Ef til stæði að semja
fiskiveiðasögu Islands, þá bendir hin
nýútkomna bók á manninn, sem leita
ætti til. Hún er þannig rituð, að
ánægja er að lesa hana, og þannig
eiga hækttr, sem kostað er til miklu
fé, að vera ritaðar, að þær séu ekki
laigðar á hylluna hálflesnar. Djúpt
og víða hefir MattHias orðið að
grafa og sýna það heimildir þær, er
thann getur um í formálanum.
Einkunnarorð bókarinnar eru orð
Eiríks af Pommern: “Mit Haab
staar til Havet” (Von mín er á haf-
intt).
Bókjn er 352 b’aðsíður í stóru
broti og í henni eru yfir 150 myndir.
Henni er skift i tvo aðalkafla. —
Fyrri kaflinn er sögulegs efnis, um
fiskiveiðar og verzlun Hollendinga,
Breta, Islendinga og Dana á miðöld
unum, um félaigið Lund i Farsund,
saga hvalveiðanna og fleira.
Siðari kaflinn segir frá fiskveið-
um yfirleitt, fiskiskipum, veiðarfær-
'tm, fiskislóðum, fiskirannsóknum oig
tilraunum, m. a. við Grænland, há—
j karla- og hvalveiðum, seilveiðum
o. fl.
Síðast í bókinni er lýsing á alls—
konar nýtízkuvélum, kælihúsum og
kælirúmum i ‘skipum,1 iþurkunarvélf
um o. s. frv.
Þar er kafli um fiskverkun, salt-
fisks og síldarverzlun, sildarbræðslu-
verksntiðjur, klak og fiskimannaskóla,
I bókinni eru myndir af Jóni Sig—
urðssyni, Tryggva Gunnarssyni, Thor
Jensen, Hallgrinti Jónssyni í Guð—
rúnarkoti á Akranesi, og fleiri Islend
ingurn. Mynd er þar af einum ís—
lenzkum skipstjóra. Birni Ölafssyni
á Mýrar-húsum.
Af þessari bók ntá margt læra, og
hún hefir það fram yfir margar slik-
ar bækur, að hún er laus við að vera
þur. Þeir ntunu margir verða, sem
hana lesa.
Ritstjóri Bornholm Avis segir um
ihana 26. febrúar 1927: "Þessa bók
ættu allir kaupmenn og fiskfrámleið
endur aö eiga og æskilegt væri að
hún væri notuð í ^verzlunarskólum og
fleiri skólum til skýringa, leiðbein^
inga og stuðnings við kennslu i þjóð
hagsfræði”.
Sumum mun virðast bókin hvatn-
ing til D^pa að byrja stórútgerð, og
þá náttúrlega fylgja öðrum þjóðum
og leita hingað með flota sinn, nota
íslenzkar fiskislóðir m. m. Það má
höf. láta sér i léttu rúmi liggja, því
aðrir eru 'komnir á undan honum að
auglýsa auðæfin hér, og eftir þeim
auglýsingum hefir dyggilega verið
farið. En hver sá vinnur þarft veerk
sem bendir á og gefur leiðbeiningar
um hvernig nota má allt það, sem
hafið gefur mönnum í ríkum mæli.
Bókin hefir vakið eftirtekt viðar
en i Danmörku.
Styrk til að gefa út bókina fékk
hr. Matthías Þórðarson frá Reiersens
sjóðnttm (Reiersen’ske Found) og
sjóð Dansk-islenzka sambandsins.
31. marz 1927.
Sv. E.
—Vörður.
X
átið oss leiðbeina yðu
við verzlunar námið
Þúsundir er fylgt
hafa mínum ráðum
hafa hætt hag sinn
*
og stöðu og verzlun-
artœkiíæri með því
að stunda nám við
D. COOPER, CA
President
pominíon
301-2 New ENDERTON BLDG. (Næst Eaton’)
WINNIPEG
David Cooper, forseti.
Reynsla Alberta sýnir afleiðingarnar af
“STAUPA-SÖLU Á BJÓR”
Albertafylki, þar sem bjór er seldur í staupatali á hótelum með
fyikisleyfi, veitir oss hina réttu úrlausn áJ bjórsöluráðgátunni.
1 Alberta er áfengi selt í verzlunum áfengissölunefndarinnar,
svo að hönd selur hendi, og bjór, sem að ofan segir, í staupatali á
lögleyfðum stöðum, og ef óskað er eftir, í flöskum, sem sendar
eru heim til kaupanda.
Áfengissöluskýrsla Albertastjórnarinnar yfir árið 1926, sýnir
hundraðshlutföll hverrar áfengistegundar við heildsöluna á árinu.
BJÓR ....... 94.07 hundruðustu
ÞRúGNAVfN .... 2.55 hundruðustu
BREND VfN .... 3,27 hundruðustu
SPfRITUS .....0.11 hundruðustu
Berið nú saman þessar tölur við samskonar tölur í skýrslu
Manitoba áfengissölunefndarinnar, er verzlun rekur tundir þeirri
reglugerð, sem hamlar bjórsölu en léttir undir með sölu á sterkara
áfengi.
Lögregluskýrslan í borgunum Calgary og Edmonton, yfir þá,
sem teknir hafa verið fastir fyrir ofdrykkju sýnir ennfermur:
1921 (á vínbanns
tímabilinu .....
1926 (eftir að staupasölulögin
gengu í gildi) ..... 389
Það er engin ólögleg áfengisverzlun í Alberta, svo teljandi sé,
sökum þess að lögbrjótarnir geta eigi keppt við þá er leyfið hafa.
ÞJER ÆTTUÐ
AÐ HALDA UPPI VIRÐINGU FYRIR LÖGUM OG STfGA Á ALLA
LÖGBROTAVERZLUN ÁFENGISPRANGARA.
AÐ STYÐJA AÐ HÓFSEMI OG DRAGA ÚR OFDRYKKJU
Með því að greiða atkvœði með
BJÓR í STAUPASÖLU
í Manitoba fær enginn að kaupa minna en kassa af bjór í einu, kaupi
hann eina flösku, er hann orðinn brotlegur við lögin. Á þessu fleytast
lögbrotaprangararnir. — Því skyldu menn neyddir til að kaupa kassa,
þegar þeir létu sér nægja með eitt staup?
Þegar STAUPASALA Á BJÓR var aftekin, kom í staðinn:
AUKIN LÖGBROTAVERZLUN Á ÁFENGI.
f AUKIN TOLLSMYGLUN.
AUKIN VfNBRUGGUN f HEIMAHÚSUM.
AUKINN VIRÐINGARSKORTUR Á LÖGUNUM.
f AUKINN LÖGGÆZLUKOSTNAÐUR.
GREIÐIÐ ATKVŒÐIMEÐ STAUPASÖLU Á BJÓR
INSERTED BY THE MANITOBA BREWERS ASSOCIATION
Calgary Edmonton f öllu Alberta fylki
710 672 1922.. ..1715
389 342 1926 ..1148