Heimskringla - 30.05.1928, Blaðsíða 4
4. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 30. MAÍ, 1928.
aiOPÚS HALLDÓRS frA Höfnum
Ritstjórl.
Il.nn.krlll tll bloBnlnn:
fHH PKISSS. l,l€l., Bol
tll rlt»tJ«roni.>
BniTOit HEiMSKHH'íGi.A, bm aios
WINNIPKG, MAN.
1105
“HeimakrlHKlo ls publlsJifil by
The VIKIm* Pren* I.tu.
and prlnted by
CITV PHINTING * PUBL.I8HING CO.
■Í33-S53 Suriíent A»e., WlnolpeK, Moo.
Tei<*pb»nf i -H6 !»" *
“V
l^t'imskríngla
(StofnnV 1886)
K**m ur mt á b-r^rfom miHTHsníert'
BIGKNDUR:
VIKING PRESS, LTD.
«33 o«t 835 SARGENT AVE . WINNIPEG
TALSIHIl 80 537
VerS blaOsins er »3.00 Argansurinn borg-
t»t fyrirfram. Allar borganir sendist
THE VIKING PR1»8 I.TD.
WINNIPEG MANITOBA, 30. MAI, 1928.
OPIÐ BRJEF
TIL FISKIMANNA f MANITOBA
Heimskringlu hefir borist bréf það,
er hér fer á eftir, frá Mr. P. H. Ferguson,
ritara samlagssölunefndarinnar, í tilefni
af stofnun fiskisamlagsins, er getið hef-
ir verið um hér í blaðinu. Biður Mr.
Ferguson um að birta það í íslenzkri þýð-
ingu, og er það fúslega gert, og því frem-
ur, sem vér erum bréfritaranum yfirleitt
eammála um ályktanir hans. En svo
hljóðar bréfið í íslenzkri þýðingu:
J
The Co-operative
Marketing Board.
Winnipeg 22. maí, 1928.
* ¥ *
Til Fiskimanna í Manitoba.
Yð*r er þegar kunnugt, af bréfavið
skiftum og umgetningum í blöðum, um
ransóknir þær, viðvíkjandi fiskimarkaði,
er nefnd vor hefir haft með höndum.
Ransókn þessi er gerð í því augnamiði,
að grafast fyrir um það, hvernig, og að
hve miklu leyti, megi bæta núverandi
sölu-fyrirkomulag.
Eftir tvo mánuði, eða svo, verður
sennilega búin til útbýtinga, skýrsla, er
greinir frá árangri þessara fyrirspurna.
Og þótt nefndin sé enn ekki reiðubúin að
gera heyrumkunnar tíllögur sínar, þá get-
ur hún þó sagt þetta: Að oss lízt svo á,
að aðstæður bendi til þess, að samvinnu-
sala sé hugsanleg aðferð til þess, að ráða
fram úr yfirstandandi erfiðleikum; þó
að því til skildu, að nægilegt fjármagn sé
að baki, og ráðin séu í höndum þeirra,
er í raun réttri leggja stund á fiskiveiðar.
Eins og þér sennilega vitið, þá er nú
verið að mynda fiskisamlag fyrir fylkið.
Enn sem komið er, er ekki áætlunum um
fyrirkomulag, né einstök ákvæði, komið í
svo endanlegt horf, að nefnd vor álíti
réttmætt að veita fyrirtækinu fullkomna
viðurkenningu. Samt sem áður lízt oss,
að samvinnufélagsskapur til fiskisölu sé
stuðningsvert fyrirtæki, og verðskuldi
gaumgæfilega íhugun allra fiskimanna.
Með því að hið fyrirhugaða fyrirtæki er
löggilt, í samræmi við lög um samvinnu-
félagsskap, (Co-operative Associations
Act) en samkvæmt þeim eiga allir hlut-
hafar jafnan atkvæðisrétt, þá geta fiski-
menn, ef þeir ganga í félagið, verið þess
ráðandi um stjórn þess, og hlutast svo ti!
um framkvæmdir þess, að þessari iðnaðar
grein verði verulegur styrkur að. Fram-
tíð þess er þessvegna undir fiskimönnum
sjálfum komin.
Virðingarfyllst,
(Undirritað) P. H. Ferguson,
ritari.
AF CRIPASAMLAGINU.
Heimskringla hefir verið beðin að
geta um fund, er nýlega var haldinn að
Lundar, að undirlagi Gripasamlags Man-
itobafylkis, og var þess æskt, að umgetn-
ingin birtist í þessu tölublaði, svo að ís-
lendingar á ýmsum stöðum, sérstaklega
vestan Manitobavatns, en þangað er von
á erindreka samlagsins í næstu viku, geti
áttað sig nokkuð á því, hvað sé að ger-
ast, af samlagsins hálfu, í þeim héruðum,
þar sem einhver rekspölur er kominn á
starfsemi þess. Er blaðinu, sem í félags-
málum er fyrst og fremst samvinnublað,
sérstakt hugðarefni, að geta veitt sam-
vinnustarfseminni slíkan stuðning.
* ¥ ¥
Þessi fundur var haldinn að Lundar,
26. þ. m., og var aðalfundur samlagsins
til þess að kjósa stjómamefnd og tvo
flutningsstjóra (shippers) fyrir sam-
lagsdeildimar í St. Laurent, Oak Point,
Clarkleigh, Lundar, Deerhorn, Eriksdale,
Mulvihill, og Overton héruðum. Fundinn
sóttu fulltrúar frá öllum þessum héraðs-
deildum og mikill mannfjöldi að auki,
— á annað hundrað manns.
Fundarstjóri var kosinn Mr. Hayes,
bankastjóri frá Eriksdale, en ritari Mr. L.
H. Olson frá Oak Point.
Erindreki samlagsins, Mr. P. K.
Bjamason, Árborg, ávarpaði þing-
heim; skýrði frá tilgangi fundarins, og frá
starfsaðferðum samvinnuhreyfingarinnar,
er þessi félagsskapur væri bygður á. Lögðu
margir fundarmenn spumingar fyrir hann
í því sambandi, og veitti hann þeim öllum
úrlausn.
Eftir nokkrar umræður var sam-
þykkt að skifta í tvö umdæmi fymefndum
héruðum, er takmarkast af St. Laurent að
sunnan, og af Camper að norðan, og
innilykja Overton, og þau héruð austan
og vestan járnbrautarinnar, er verzla á
fyrnefndum stöðum. Að þessu sam-
þykktu var sett fundarhlé í fimtán mín-
útur, til þess að gefa kost til að undirskrif
a samninga við samlagið, þeim, er eigi
höfðu getað komið því við áður. Notuðu
margir það tækifæri.
Rétt í því bar að garði Mr. R. Mc-
Phail, forseta Manitobasamlagsins, og
kynti Mr. Bjamason hann þingheimi.
Skýrði hann ítarlega fyrir fundarmönnum
starfrækslu aðalfélagsins, og gat þess,
að nú þegar væru 26 samlagsdeildir lög-
giltar í Manitobafylki. Að loknu erindi
hans var samlagsdeild þessari gefið nafn
og hún nefnd “The Interlake Co-operative
Livestock Producers Ltd.”
Þvínæst var kosin framkvæmdar-
nefnd deildarinnar og hlutu þessir kosn-
ingu: G.F. Windross,Deerhorn,fors.; L.H.
Olson, Oak Point, ritari; A. Gaudrey, St.
Laurent; B. Nelson, Clarkleigh; Á. Magn-
ússon, Lundar; J. Líndahl, Eriksdale; O.
Brandstrom, Mulvihill; E. Mackus, Over-
ton.
Þvínæst vóru flutningsstjórar kosnir:
J. Forsythe fyrir norðuramdæmið og Sk.
Sigfússon fyrir suðurumdætoið.. Enn-
fremur var framkvæmdarnefndinni falið
að skipa flutningsstjóra, ef lögleg forföll
bæru að höndum.
Fyrirspurn var gerð á fundinum við-
víkjandi C-lið 7. greinar samninganna,
hvort framkvæmdamefnd aðalfélagsins
gæti ekki tekið lán, til hvers sem henni
sýndist, á ábyrgð þeirra manna, er skrifað
hefðu undir samningana — gegn veði í
búpeningi þeirra. Svaraði forseti sam-
lagsins því afdráttarlaust á þá leið, að
ekkert slíkt lán væri mögulegt að taka,
án samþykkis hverrar héraðdeildar fyrir
sig, en lántöku hverrar héraðsdeildar ráða
auðvitað meðlimir hennar í sameiningu.
* ¥ ¥
Þess má geta, að Mr. P. K. Bjarna-
son, er boðaði til þessa stofnfundar, í
umboði Gripasamlagsins, hefir einnig kom
ið á deild fyrir Silver Bay, Dolly Bay og
Oak View héruðin. Ennfremur hefir
hann boðað til stofnfundar héraðsdeildar,
að Moosehorn, þriðjudaginn 5. júní næst-
komandi, fyrir héruðin frá Moosehorn og
norður að Gypsumville. Þegar sú deild
er kominn á laggimar, eru komin í sam-
lagið, öll héruð, er liggja að járnbrautinni
sunnan frá St. Laurent, norður til Gyp-
sumville, á brautarenda. Og auk þess
er áður hefir verið um getið, héruðin frá
Inwood, norður til Hogdson.
* * ¥
Það má ýkjulaust teljast, að Gripa-
samlagið er nú komið í það horf, að öll
<
ástæða viröist til þess, að hvetja bændur
til þess að styðja þann félagsskap eftir
megni, og þá auðvitað með beinni þátt-
töku. Er það óneitanlega álitlegur ár-
angur, svo skamman tíma sem 'þessi
félagsskapur hefir starfað, og má vafa
laust mikið þakka framúrskarandi dugn-
aði forseta samlagsins, Mr. R. McPhail,
frá Brandon, og varaforseta og fjármála-
ritara þess, Mr. I. Ingaldson, þingmanns
Oimli-kjördæmis, er íslendingum er svo
góðkunnur fyrir margra ára ötula
starfsemi í þágu samvinnumálanna.
Qm
í
SÍMI 57 348
SÍMI 57 348
I
Dominion Lumber & Fuel
i
i
i
Co. Ltd. !
5
ssosaösassoBeoosoícoooBososeosesooíooeooíö9®1
S
I Þ
essa
Byggin
leggjum vér til alla skápa, framhurSir og 6|r,Se
—einnig allar umgerðir og innanviðu-
Verzlar með allskonar tegundir af Timbri og Efnivið
fyrir byggingar, jafnt smáar sem stórar. Hefir jafnan
á reiðum höndum allskonar eik, fum, gluggakarma o.
s. frv.
Búa til glerhurðir (French Doors) af 0HUI
undum, framhurðir, herbergjahurðir, skápa í ^
íbúðar-stórhýsi.
Vírhurðir einfaldar og breytilegar (Conib'n
glugganet, rafhlóða-umgerðir.
Allur trjáviður þur og vel vandaður.
667 Redwood Avenue
WINNIPEG —MANITOBA.
í
Í
I
Eingöngu sérfræðingar í þjónustu vorn,
gjörða er að verki voru lúta.
ti:
Verkið ábyrgst undanþágulaust.
General Cabinet Mak
tA/in
Sími 26 951 — 215 Henry Ave. —
_
S0000sc09s6080050ö060c6«e000cc«ce0ð*a000öí
Fjær og nær.
Islendingar !
Gleymiö ekki listanámsskeiðinu á
Gimli í haust, þar sem kostur gefst á
tilsögn Emile Walters. Menn á
öllum aldri, þrítuigir, sem fermingar-
börn geta fært sér þaö í nyt. Skrifið
dr. Agúst Blöndal, 806 Victor stræti,
hér í borginni.
Dr. Jóhannes P. Pálsson og frú
Sigríður, urðu fyrir þeirri sorg, að
missa nýlega yngstu dóttir sína, Mar-
gréti, sex ára gamla, óvenjulega gáf-
að og yndislegt barn. Hafði hún
legið lengi á almenna spítalanum hér
í bonginni, þjáð lífhimnubólgu og
blóðeitrun, en lézt að heimili foreldra
sinna í Elfros, mánudaginn 14. maí.
Var hún jarðsungin í Elfros graf-
reit, af séra Haraldi Slgmar, mið-
vikudaginn 16. maí. —Heimskringla
vottar þeim hjónum dýpstu samúð
Málfundafélaigið heldur sinn sein-
asta fund á vorinu kl. 3 sunnudaginn
kemur, í Labor Hall á Agnes
stræti. Verður það skemtifundur
fyrir félagsmenn og nokkra boðs-
gesti. Fjörug skemtiskrá og kaffi
á eftir. Vér óskum að félagsmenn
sæki vel þenna fund.
Nefndin.
Ken Maynard hefir einstakt hlut
vei'k í “Gun Gospel’’ er nú
er sýnt að Wonderiand.
GILLIS QUARRIES
E
3
3
L
3
/■'
STEINN OG KALK: k
f STÓRAR OG SMÁAR BYGGINGAR
Vér höfum lagt til steininn í flestar stórbyggingar er íslendingar hafa bygt-"1
og óunninn steinn. — Aldrei staðið á verkji hjá oss, allir jafnan verið ánægð""
oss hafa skift.
flim'hriBmmfi.Tr-TTi.uimiiiiiimlil^.llII
SÍMI 28 895
RICHARD and SPENCE STR.
WINNIPEG,
IVIA^
“Verzlunin Gömul og vel kynt.
<7=.
J. A. Partridge
41 941
D. C. Halliday
82 310
SÍMI 21 529
"Gun Gospel,” vestræna myndin er
nú er sýnd að Wonderland, snýst um
Ken Mavnard, og leikur þessi af-
iburða leikari allt annað hlutverk en
hann er vanur. Orlagakeskni knýr
hann í klerkaskrúða, og verður hann
bæði að sækja kirkjufundi og sam-
komur í heimahúsum manna, er
er skotvopnum eru vanastir, Kemur
greinilega í ljós reiðmennska Kens.
“Gun Gospel” er gerð eftir sögu W.
H. Hoffman’s.
Mánu- þriðju- og miðvikudag
er sýnd “A Hero for a Night," ag!
leika aðalhlutverkin Glenn Tryon og
Patsy Ruth Miller. Er þetta einhver
hlægilegasta mynd ársins; segir frá
tilraunum manns er lært hefir flug
bréflega, að fljúga yfir Adanzhafið.
Tekst það, en öðruvísi en ætlað er.
Glenn Tryon, gamanleikari Universal,
leikur flugmanninn sprenghlægilega,
hvort sem hann stýrir vélinni eða
bryður hnetur. Patsy Ruth Miller
leikur betur en nokkru sinni áður.
Er skrítið að gamanleiksgáfa hennar
skuli ekki hafa verið uppgötvuð áð-
ur. Myndin er gerð eftir sann-
nefndri gamansögu Harry O. Hoyt’s,
og stýrði William James Craft mynd-
tökunni.
Partridge & Hallida)
9 LMirt
PLUMBERS AND STEAMFITTERS.
Aðgerðir og breytingar fljótt af hendi leystar.
Þeir leggja alla vatnsleiöslu í stórhýsið sem hér er sýnt.
Þeir hafa lagt alla vatns- leiðslu í flest þau stórhýsi er
íslendingar hafa byggt í seinni tíð.
144 LOMBARD STR.
WINNIPEG, MAN.