Heimskringla - 11.01.1929, Side 5
WINNIPEG, 9. JAN., 1928
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSÍÐA
hann dvaldi viiS endurminningarnar
uin atorku ættfeíiranna. Kotungs
hugsunin var kveSin út úr þjóð-
inni.
I nánu sambandi við hetjudýrkun-
ina stóð erfiljóSagerS skáldsins.
BragSlaus harmagrátur var grunn-
tónninn i erfiljóSi allflestra Isl.
upp aS þsssum tíma. AS lifa sem
auSsveipur meinleysingi og andast
iSrandi,* virtist hæsta takmarkiS,
eftir þeim aS dæma. , Svo flugu
þessir saklausu sauSir úr hörmungum
heimslifsins beint í föSurfaSm Abra
hams, og þar nieö var lestrinum lok-
ÍS. \
ErfiljóS Bjarna voru myndastytt-
ur, mótaSar, steyptar i verksmiSju
veruleikans, og eSlisatorku einstakl-
ingsins. Þess vegna: “æptu menn ekki
eftir nótum,” (Oddur Hjaltalíný, né:
“bundu baigga sína sömu hnútum og
samferSamenn,” EinsiaklingseSliS
gat veriS misbrestasamt, eins og hjá
séra Sæmundi Hólm, en sjálfstæSiS
var þó alltaf eitthvaS skárra en
sinnuleysismókiS á svæfli tízkunnar,
þar sem enginn verSur frá' öSrum
greindur. Bjarni kendi aS þaS væri
ólikt hreystilegra aS lifa til nytsemd-
ar en andast grátandi..........
“Hefir lifaS halur nóg,
hver sem föSurlandi dó,
minning hans hjá niönnum lifir,
þá rnold er komin bein hans yfir.”
og:
“gjörum nýtt eitthvaS góSir menn,
sem gagn ókomnum ljær,
því allir vitum vær,
sá iSni herra (guS) iSjuleysi hatar.”
Þó Bjarni bregíii í mörgu frá
kenningum klerka, var hann eigi aS
síSur eldheitur trúmaSur. I þeim
efnum var hann einnig langt á undan
samtíS sinni. KjökurhljóSiS var
horfiS úr tilbeiSslunni. Hann stóS
fyrir framan hásæti himnanna meS
lotningu en engum ótta. Hann flutti
hænir sem höfSingi en enginn þræll.
GuSrækni hans va'r laus viS fjálg
leik iSrunarofsans. Hann gleymdi
því aldrei i bænagjörSinni, aS hann
var maSur en ekki maSkur.
Bjarni var stórskáld, en ekki aS
sama skapi mikill listamaSur. Hug-
myndaafliS var sískapandi, frumleik-
inn feikilegur. KvæSin virtust
brjótast fram alsköpuS af eldmóSi
áhugans. Hann orti sem innblásinn
spámaSur — innblásinn af heilögum
anda ástarinnar til ættlandsins.
Skáldskapur hans var aSeiríS afrás
þess áhuga, sem í sálinni svall; aSeins
form fyrir þær prédikanir, sem
þurfti aS flytja, en hann stundaSi
skáldskapinn aldrei um sérstaka list
og slipaSi hvorki kvæSi sin né gyllti.
Hann er vist sá eini Islendingur,
sem ótilkvaddur eyddi nokkru af
tekjum sínum til þjóSvegagerSar, en
meS skáldskapnum lagSi hann leiSir
fyrir æskuna inn á framtíSarland
hugsjónanna.
ÞaS varS annara hlutskifti aS
fegra og slétta þær brautir.
(Frh.)
*Þó nieis'ari Jón segSi aS slíkt yrSi
aSein^ til þess aS menn hrykkju upp
meS ennþá meiri andfælum í hel-
vítis kvölum.
Íslandlsvíðvarp í Chicago
Heimskringlu er ánægja aS því aS
verSa viS ósk um birtingu bréfsins
er hér fvlgir:
Harrison Technical High School
Chicago, 2. jan. 1929.
Ríts'jóri Heimskringlu,
Winnipeg, Canada.
Kæri herra:—
ViljiS þér gera svo vel aS leyfa
þessu rúmi í heiSruSu blaSi ySar:
LaugardagskveldiS 12. janúar, kl.
8, verSur útvarpaS frá stöSinni WM
A\ (Chicago Daíly Nevvs) myndlýs-
ingum (radio photologue) um Island.
Þetta útvarpserindi verSur aS mestu
leyti skýring á heilli blaSsíSu af
hrings'kyggSum (rotogravure> mynd-
uni frá Islandi, sem blaSiS, Chicago
Daily Nevvs flytur þann sama dag,
12. janúar. VíSvarpiS fer fram
undir umsjón Istendingafélagsins í
Chicago (The Icelandic Association
of Chicago).
ASal ávarpiS flytur hr. Arni Helga
son, en sá er þeCa ritar, vefSur ef
til vill forseti kveldsins, sem forseti
Islendingafélagsins. ViS bjóSum
hjartanlega öllum löndum vorum.fjær
og nær, aS hlusta á þetta víSvarp
okkar. Hver, sem kynni aS óska
eftir blaSinu, getur fengiS svo mörg
eintök sem hann vill frá undirrituS-
tim meS því aö skrifa honum, aS
2221 So. California Ave., og senda
fimm centa Ixirgun fyrir hvert ein-
tak seni beS.iS er um.
---
MeS bezta þakklæti fyrir aS hjálpa
góSu málefni.
YSar einlægur,
/. 5". Björnson.
----------x-----------
Þakkarávarp
ViS undirrituS álítum þaS ljúfa
og sjálfsagSa skyldu, aS láta opinber-
lega i ljós ástríka og innilega þökk ti!
sveitungja okkar, fyrir driengilega
alúS og niargvislega hjálp í veik-
indum minum (O. H.) sem bæSi hafa
veriS langvinn og þungbær. Þau
byrjuSu í ágúst í fyrra og hafa veriS
viSvarandi siSan svo aS ég héf al-
gerlega veriS frá verkum. Fvrst
nú er mér aS skána þó aS langt eigi
ég i land enn. aS ná fullri heilsu.
Sérstaklega viljurn viS nefna
djáknanefnd MikleyjarsafnaSar sem
færSi okkur peningaigjöf aS upphæS
$61.50; og kvennfélagiS tJndínu sem
gaf okkur $50.00.
Fyrir þetta og alla aSra lijálp auS-
sýnda okkur af mörgurn öSrum,
biSjum viS góöan guS aS launa þeim.
ViS nefnum ekki nöfn þeirra en
gevmum þau í hlýrri og þakklátri
minning til æfiloka.
Hecla P. O., 3. jan., 1929
Krístín Helgason
Olafur Hclgason.
----------x-----------
WONDERLAND
Ken Maynard sýnir sig í heims
frægri mynd er “The Glorious Trail”
nefnist á Wonderland seinni liluta
þessara viku. Um enga rnynd Mayn-
ards er meira talaS en þessa. Þat
kemur hann fram á hestbaki svo
aSdáanlega, aS enginn hefir betur
gert.
King Vidor stjórnandi Metro-Gold-
wyn-Mayer félagsins, sem aSrar eins
myndir ng “The Big Parade,” “La
Boheme" og “Bardelvs the Magnifi-
cenf.” hefir framleitt, hefir bætt
einni stjörnu viS í frægSarheiminn
sinn meS myndinni “The CrovVd.”
A þessari mynd er von til Wondsr-
land næsta mánudag. Er þaS óefaS
ein bezta myndin sem á árinu liSna
hefir veriS gerS. ÞaS er sönn am-
erísk saga, sem inniheldur ekkert er
ekki hefir fyrir menn komiS í har-
áttunni og leitinni eftir gæfu.
Kaupmaðurirm veit að
það er hoM íæða
Erlendar fréttir
BANDARfKIN
Einkennilegt morSmál er til rann-
sóknar í Bandaríkjunum, í York i
Pensylvaníu. Eru þrir menn, John
Blymyer 28 ára; Wilbert Hess 18
ára og John Curry 14 ára ákærSir
fyrir aS hafa myrt gamlan mann,
Nelson D. Rehmeyer til þess aö ná
lokk úr hári hans og brjóta meS því
rammagaldur, er Rehmeyer átti aS
hafa seitt aS föSur Wilbert Hess.
Trúin á galdra er eins mögnuS viSa
þar nySra eins og á svörtustu miS
aldum. Blymyer er sjálfur galdra
maSur. Hárlokkinn sem þeir fél-
agar klipptu af hinum myrta, grófu
þeir á‘ta fet í jörSu. Fullyrtu þeir
aS eftir þaS hefSu álögin horfiS af
Hess hinum eldra, en öllum liSi
þeirn niiklu betur siSan. —
Eins og kunnugt er leikur Coolidge
forseta mjög hugur á því, aS fá auk-
inn flota Bandaríkjanna og þá nátt-
úrlega helztu gæSingum hans líka.
En nú liggur Kellogg-samningurinn
einnig fyrir öldungaráSinu, og litur
helzt út fyrir sem stendur, aS hann
rnuni ná samþykki þingsins. Þykj-
ast margir ekki sjá annaS, en einhver
árekstur verSi þá á milli þeirra, er
auka vilja flotann og þeirra er sam-
þykkja vilja samninginn. Þó er taliS
víst, aö ekki allfáir öldungaráSsmenn
telji hvorttveggja geta fariS sem bezt
saman. 4. janúar hóf Hale öld
ungaráSsmaSur máls á þvt aS nauö-
syn bæri til þess aö auka flotann. Gat
hann þó ekki formlega lagt máliö
fyrir þing þá, þvi hann haföi oröiS
aö lofast til þess aS leyfa Kellogg-
samningnum fyrst afgreiöslu frá öld-
ungaráöinu. En mjög brýndi hann
nauösyn flotaeflingarinnar fyrir öld-
ungaráSsmönnum. KvaS Bandaríkin
þurfa hennar meS sér til varnar ( !) ;
til þess aS vernda kaupskipaflota sinn
(margir myndu spyrja: gegn hverj-
um'?) og til þess aö auka á virSingu
annara þjóöa fyrir Bandaríkjunum( !)
I fyrradag kom Kelloggsamning-
urinn til umræöu. HöfSu margir
spáö hinu mesta rifrildi um hann, en
þvert á móti öllurn spám virtist á-
hugi þingmanna fyrir lionum á hvern
veg sem var, ekki vera neitt sérlega
brennandi, allra sizt aö nokkrar sér-
stakrar niótspyrnu yröi vart. Er
siSan helzt búist viö því aö samning-
urinn nái samþykktuni öldungaráös-
ins, án nokkurra breytinga, eSa aS
nokkuru serstöku tilskildu af liálfu
Bandaríkjanna. Er sagt aS Borah
öldungaráösmaSur, forniaSur iÞan-
rikis viSskiftaráSsins, ínuni og berj-
ast gegn því, aS nokkru sp viö samn-
inginn bætt, eíja honurn í nokkru
breytt.— \
Dr. Hilton Ira Jones, efnafræöing-
ur, er fæst aSallega viö tilraunastart'
semi, flutti nýlega erindi fyrir “Ex-
ecutive Club” í Chicago og sag'Si á-
heyrendum sínum frá nýju eiturgasi,
er hann nefndi cacodyl isocyanide.
Einn an'dardráttur af því sagöi hann
aö vrSi hverjum manni aS bana. MeS
nokkuS miklu af því mætti "bana
heilum hersveituni, eins og maSur
slekkur á kertistýru.” Har.n bæt.i
því viS, aS þaö væri meö há'furn
huga aö hann hefSi orS á þesstr, af
því aS stjórnin heföi látiS þaö vitn-
ast, aS hún vildi ekki umtal um þaS
Hann áleit ennfremur, aS þjóöirnar
myndu nú ekki vera svo gírugar í
þaö, aS nota þetta gas af því aö “ég
held aS þær séu aS reyna aS finna
upp gas, sem gerir menn óvíga en
drepur þá ekki.” Major General A.
A. Fries, sem er yfirmaöur gas-
ófriSarhersveitanna í Bandaríkjunum
neitar þessuni staShæfingum dr. Jones,
aS nokkru leyti. Neitar hann þó
ekki þvi, aS stjórnin sé aS reyna aS
fá fundiö upp gas er ‘gcri rnenn ó-
víga fremur en aS drepa þá, en hann
neitar þvi. aS stjórnin hafi gert til-
raunir til þess aS banna umræöur um
eiturgastggundir.
Annars koma ummæli dr. Jones
prýöilega heim og sailian viö þaS sem
Sir James Ervine, frá St. Andrews
háskólanum á Skotlandi sagöi í er-
indi er hann flutti fyrir Efnafræö
ingafélagi Ameríku í sumar, er hann
sagöi, aö efnafræSingar væru stöö-
ugt aö berjast viö aS finna upp efni,
er væru langt um banvænni en þau,
er notuS voru í ófriönum mikla.
Kvaö hann ómögulegt, liversu sterk-
ar igætur sem hafSar væru á einhverju
landi, aö sjá viö þvi, aö efnafræSingar
þar, og efnafræSisstofur ynnu af al-
efli aÖ því aö leggja grundvöllinn
aö styrjöldum, meö því aö finna upp
æ banvænni eiturtegundir, er gerSu
þeim mögulegt aö hefja ófriö meS
aSeins fárra stunda fyrirvara. Átti
Sir James þar vafahtiö viö Þýzka-
!and þótt hann nefndi engin nöfn
— Er þetta, ofar( á annaö,
d, lag’egt framtíöarútlit, ef áfram
sitja viö völdin hjá hverri þjóS aörir
eins ofvitar og meS þau hafa fariS
síSan á ófriöarárunum, seni þeim
flestupi hefir tekist aS láta yfir sig
anga án þess aö veröa nokkurs vís-
ari um ríkisráösmennskú en áöur.
Fullkomin úrslit eru nú koniin urn
a kvæSafjölda livers forsetaefnis í
Bandaríkjunum í liaust. Hefir
Hoover fengiö 21.429,109 atkvæöi.
Smith 15,005,497 og Nornian Thomas
forsetaefni jafnaSarmanna 267,835.—
Fleiri atkvæbi en' Sniith liafa aöeins
tveir forsetar fengiö áSur: Harding
(1920) 16,152.200 og Coolidge (1924)
15,725,016.
Tloover féklc fleiri atkvæöi nú i
öllum ríkjum, aö undanteknum Rhode
Island, (sem Smith vapn) en Cool-
idge fékk 1924.
Hoover fékk 1,406,488 atkvæöi í
suöurrikjunum 10, er kölluö voru
“The Solid South,” eSa rúmlega
helniingi fleiri en Coolidge fékk 1924
og aöeins 191,169 færri en SmiTi
fékk þar.
Snúth fékk 5,858,144 atkvæöum
fleira en þaö demókratiskt forseta-
efni er flest hefir fengiö áöur (Cox,
1920). Hoover fékk 5.276,909 at-
kvæöum fleira en nokkurt forsetaefni
repúblíkana hefir áSur fengiö.
Stærstan meirihluta fékk Hoover
í Pennsylvaníu — 987,796 atkvæöi
SmLh fékk stærstan meirihluta i
Louisiana — 113,495 atkvæöi.
Hoover fbrsetaefni er nú kominn
heim aftur úr kynnisför sinni til
SuSur-Ameríku. Eru margar get-
gátur aö því leiddar hverniig hann
muni skipa ráöuneyti sitt, en liann
hefir enn ekki látiö hiö minnsta á
sér skiljast hvaS liann ætli sér i því
efni. Margir spá því, aö Borah
muni fá ríkisráöherraembættiS aS
launum fyrir kivendingu sína, er
hann snérist í liS meS Hoover, er
hann haföi boriö á svo ærumeiöandi
sakir áSur í öldungaráSinu, aö alvar-
legri hafa varla heyrst, fyrir fram-
koniu hans á ófriöarárunum.
Fimm flugtnenn undir forystu
Carl Spatz majórs, settu nýlega nýtt
met i þolflugi á flugvélinni “§purn-
armerkiö,” (Question Mark> í Los
Angeles. Flugu þeir 150 klukku-
stundir og 40 mínútur án þess aS
lenda. En þá bi’aöi eitthvaö i vél-
inni svo aS þeir gátu ekki komiö
metinti hærra. OHu fyrir vélina
tóku þeir á flugi. MeS þeirri aS-
ferS áttu Belgíttmenn metiS áöur og
var þaS um 120 klukkutíma.
Island
Jón í Stóradal
er varamaSur Magnúsar heitins
Kristjánssonar ráSherra á þingi, og
tekur sæti hans á næ’sta þingi.
Anna Borg
lék fyrst í þessum rnánuSi i fyrsta
sinn á Konungl. leikhúsinu, i Hol-
bergsleikritinu “Den Stundeslöse.”
ÝMSAR FRJETTIR
Frá Rangún í Burma á Austur-
Indlandi, er símaö 4. þ. m., aS Burma
krefjist skilnaSar frá keisaraveldinu
indverska en heimti sér sjálfsstjórn-
arvald sem sambandsríki í alríkinu
brezka, á borö viS Kanada og Ast-
ralítt, t. d. v— Bttrma er á stærö viS
Manitobafylki (233,727 fermílur) meö
rúmlega 13 miljónum ibúa, og eru
þeir Mongola- -en ekki Hindúakyns.
— ÞingbundiS stjórnskipulag hugsa
þeir sér, verSi litiö viö kröfu þeirra;
meS öldungaráSi og neöri málstofu.
Laugardaginn 5. janúar lézt Nik-
ttlás stórher ogi frá Rússlandi, úr
lungnabólgu aö heimili sínu í Antibes
á Frakklandi, þar sem hann haföi
búiS nokkur undanfarin ár. Nikulás
stórhertogi var um skeiö yfirhers-
hoföingi alls Rússahers í styrjöld-
ir.ni miklu, og áreiöanlega einn af
duglegustu herforingjum þess ófriS-
ar.
Um helminig'ur rússneskra keisar-
sinna, sem eru á víS og dreif um Ev-
rópu fylktu sér um hann sem keisara
efni, er Sovjetstjórnin yröi felld
frá rikjum, sem þeir enn gera sér
vonir um margir hverjir, svo fráleitt
sem þaS viröist. Sagt er, aS hann
sjálfur hafi engar vonir eSa litlar
gert sér um þaS, aö svo myndi nokk-
urntíma fara.
Háskólinn í Kaupmannahöfn, sem
er elzti háskóli í Noröurlöndum, hef-
ir aö þesu veriö eini háskólinn í
Danmörku. Nú hefir annar háskóli
veriS settur á stofn í Aarhus (Arós-
um) höfuöborg Jótlands, og hóf hann
starfsemi sína í haust meS um '60
nemendum. Er háskóli íslands þá
aö minnsta kosti í ár ekki fámennasú
háskóli í heimi. —
Ársfundur kvennfclags Sambands
safnaðar veröur haldinn í fundarsal
kirkjunnar kl. 8 þriöjudaginn 22.
janúar. Kosning embættismanna og
ýmislegt fleira liggur fyrir fundinum.
Félagskonur beSnar aS sækja fundinn.
Guffrún Borgford, (forseti*
S* leina Kristjánsson (ritari)
KAUPIÐ HEIMSKKINGLU
i
i
! =
i;
Upward of 2,000
Icelandic Students
y/croedá.
BUSINESS COLLEGE, Limited
385'/2 Portage Ave.—Winnipeg, Man:
Í
O
I
I
i
i
HAVE ATTENDED THE SUCCESS BUSINESS '
COLLEGE OF WINNIPEG SINCE 1909
/
THE
SUCCESS BUSINESS COLLEGE, Winnipeg, is a strong,
reliable school—its superior service has resulted in its
annual enrollment greatly exceeding the combined year-
ly attendance of all other Business Colleges in the whole
Province of Manitoba. Open all the year. Enroll at
any time. Write for free prospectus.
I
i
m-mmm-o-maKnx