Heimskringla - 13.03.1929, Page 4
4. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 13. MARZ, 1929
Hcintakringla
(StofnuS 188(1)
Krmur at » hTerJom mldTlkiiint
EIGENDUR:
VIKING PRESS, LTD.
853 »K 855 S AIIGKNT AVE , WIJiiVIPEG
TAI.SJMIl 86*537
V«r» blaUslns er »3.00 Argangurlnn borg-
l»t fyrlrfram. Allar borganlr sendlst
THE VIKING PRESS LTD.
BJGFÚ8 HALLDÓRS Irá Höfnurn
Bitstjórl.
UtanAsbrlK (11 lilatlKlnsi
HK VIKING PltKSS. Utd.. Bol
UtanHskrlft tll rltjltJOrnnSI
ICDITOn HEIMSKKI.VGUA. Bol 3105
WINNIPEG, IIAN.
8105
••Helmskringla is published by
The Vlklng Press LI4.
and printed by
CITV PKINTING A PUBUSHING CO.
853-855 Snrfconl Ave., Wlnnlpe*. Mnn.
Telephonei .86 53 T
WINNIPEG, 13. MARZ, 1929
Rannsóknin
Þótt sjálfsagt væri enn æskilegra, að
rannsóknarnefndin, er skipuð var til
þess að athuga ákærur Taylor hersis.
leiðtoga conservatíva flokksins í Mani-
toba, hefði enn víðtækara valds- og starfs
svið en hún hefir, þá er þó ýmislegt kom-
ið í ljós, sem fróðlegt er fyrir kjósendur
að reyna að átta sig á.
Fyrst það, er markverðast þótti, að
tveir af ráðherrum stjórnarinnar, Mr.
Clubb og Mr. Major höfðu keypt hluti i
Winnipeg Electric, um það leyti er stóð
á samningunum milli fylkisstjómarlnn.
ar og félagsins. Afleiðingin var auðvit-
að sú, að báðir sögðu af sér embættum
sínum. Og þá einnig það, að við það
kreppti svo að stjórninni, að Mr. Bracken
fékk með aðstoð þriggja liberala, þar á
meðal hr. Skúla Sigfússonar þingmanns
Sttl George kjördæmis, frestað þinginu
til 20. þ. m., til þess, að sækja í sig veðrið
og treysta fylkingar sínar, er auk fráfar-
ar ráðherranna riðluðust enn meir við
það, að Mr. W. J. Pratt, þingmaður frá
Birtle, lýsti sig úr stjórnarflokknum. Og
í sambandi við eftirgrennslanina um hluta
kaupin kom þá einnig í Ijós, að um sama
leyti höfðu þeir Mr. Talbot, forseti fyík-
isþingsins, Mr. Haig, einn af þingmönn
um íhaldsflokksins og John Queen, leið-
togi verkamannaflokksins í fylkisþingi,
keypt hluti í félaginu, auðvitað í sömu
trú og ráðherramir: að félagið myndi
hljóta Sjö-systra fossana, og hlutir þess
þar af ieiðandi hækka í verði. Mr.
Queen sagði þegár af sér leiðtogastöð-
unni og öllum trúnaðarstörfum, öðrum,
er hann hefir haft á hendi fyrir flokkinn.
Auðvitað er sök ráðherranna mest.
Þeir einir höfðu tæki á því, að vita með
vissu hvernig sakir stóðu með samning-
ana, en það eru óskrifuð lög, og ekki sizt
t. d. innan brezkra vébanda, að menn í
opinberri stöðu mega ekki grípa tæki-
færið til þess að reyna að hagnast á
nokkurri þeirri vitneskju, er staða þeirra
veitir þeim sérstakan aðgang að; jafnvel
ekki bendla sig við nokkur fyrirtæki, svo
að nokkurntíma geti gmnur fallið á það,
að árekstur, geti hlotist af, milli trúnað-
arstöðu þeirrar, er almenningur hefir
skipað þá í, og einkahagsmuna þeirra á
einn eða annah hátt.
Það má telja alveg víst, að Mr.
-Bracken hafi ekki haft minnstu hug-
mynd um þessar gróðatilraunir ráð-
herra sinna, og er því leiðara fyrir þá, að
leiðtogi þeirra skuli þurfa að súpa seyðið
af ógætni þeirra. En á hinn bóginn tel-
ur ‘‘Winnipeg Tribune” sannað með
ræðu, er innanríkisráðherrann Mr. Stew-
art, hélt nýlega í sambandsþinginu, að
Mr. Bracken hafi þegar verið byrjaður
að leita hófanna við félagið 1927, en ekki
fyrst 1928, eins og Mr. Bracken hefir áð.
ur fullyrt., Myndi það auka mjög á erf-
iðleika Mr. Bracken, ef það sannaðist, að
blaðið hefði í þessu rétt að mæla, sökum
þess, að þá væri, svo að segja, sönnuð
sú ákæra Taylor hersis, að fylkisstjórnin
hefði þegar ákveðið sig einhverntíma á
árinu 1927 og að samningurinn 1928 og
skýrsla sérfræðings Mr. Hogg, er stjóm-
in hefir fullyrt, að stefna sín í málinu
byggist á, hefði í raun og vem aðeins
verið til þess gerð að kasta ryki í augu al-
mennings. Væri nauðsynlegt fyrir Mr.
Bracken að geta hreinsað sig af þeirri
ákæm, og vonandi fyrir flokksmenn
hans, að honum takist það.
Þá hefir það og komið í ljós, að
Winnipeg Electric félagið hefir veitt
fjárstyrk til kosninganna hér í fylkinu
1927, þrem stærstu flokkunum, stjórnar-
flokknum, conservatlívum og liberölum,.
Mun þetta að vísu vera altítt, meðal stór
félaga, en auðsædlega æskilegt, að allir
stjórnmálaflokkar sneiði hjá slíkum gjöf
um, sökum þess, að illkleift er fyrir þá að
forðast þann grun, að jafnan sjái gjöf til
gjalda í slíkum tilfellum, hvort sem það
í raun og veru iiggur til grundvallar eða
eigi, í hverju einstöku tilfelli.
Þá hefir og einnig komið í ljós, að
einn af fyrverandi fylkisþingmönnum,
Mr. J. K. Downes, hefir þegið laun frá
félaginu, meðan hann átti sæti á þingi.
Hefir því auðvitað verið haldið fram, til
afsökunar, að ekki sé það endilega rangt,
að starfsmaður einhvers slíks félagsskap-
ar eigi sæti á þingi. En því miður er
ekki vitanlegt né sýnilegt, að Mr. Downes
hafi þegið laun, sem venjulegur starfs-
maður félagsins, og er þá afstaða hans
lík og ráðherranna, nema sýnu verri, og
hefir vitanlega orðið til þess, að þeir, sem
andstæðir eru samningunum hafa látið
sér detta í hufe, að líkt kunni að vera á-
statt með einhverja fleiri þingmenn, þá
er samningunum hafa greitt atkvæði
sitt, en þar gildir auðvitað þetta sama, að
“á konu Cæsars má jafnvel enginn grun
, ur falla.” Og þessi grunur hefir þá
einnig orðið til þess, að styrkja þá í trú
sinni, er mest hafa lagt upp úr þeim um-
mælum Robson dómara, leiðtoga liberala
í Manitoba, er fram komu í fylkisþing-
inu, skömmu eftir að það var sett, að vel
væri hugsanlegt, að gera mætti samning
inn ógildan, vegna þess að hann gæti á-
litist gerður vera með sviksamlegum for-
sendum (“constructive fraud”) enda
þótt þessi hlutakaup ráðherranna og ann
ara þingmanna hefðu ekki verið af öðru
en ógætni gerð — svo einkennileg sem
mörgum þóttu þessi ummæli Mr. Rob-
son, er mjög var þess fýsandi að fylkis-
stjórnin gerði þessa samninga. En auð
vitað hefir ekkert enn komið í Ijós, er
bendir til þess, að Mr. Robson hafi um
þessi hlutakaup vitað, fyr en þau komu í
ljós fyrir starf rannsóknarnefndarinnar.
Rannsóknarnefndin og lögmenn að-
ilja hafa nú brugðið sér suður til Cali-
forníu, til þess að yfirheyra hinn nýfrá-
farna framkvæmdarstjóra Winnipeg El-
ectric félagsins,4Mr. McLimont, er þar
dvelur sér til heilsubótar. Ómögulegt
er að gera sér í hugarlund, hvort sú för
greiðir nokkuð verulega fyrir rannsókn-
inni eða ekki. Og yfirleitt er ekki auð-
velt að kveða upp fyllilega sanngjarnan
fullnaðardóm yfir stjórninni, né ákærum
Taylors hersis fyr en rannsóknarnefndin
hefir lokið starfi sínu, nema þá að eitt-
hvert það atriði komi í ljós meðan á
starfi nefndarinnar stendur, er varpi al-
veg ótvíræðu ijósi yfir samningana, eða
málið í heild sinni.
En svo mikið hlýtur öllum að vera
Ijóst, (nema þá þeim fáu, ef nokkrir eru,
sem algerlega eru blindaðir af flokks-
fylgi) og að því er séð verður jafnt þeim,
er sjálfan samninginn álíta réttmætan, og
hagkvæman, sem hinum, er jafnan hafa
verið honum andvígir, þótt þeir að ööru
leyti telji Mr. Brackep hafa farist vel úr
hendi fylkisstjórnin, að það var afar ó-
heppilegt Mr. Bracken sjálfum og þá eigi
síður framsóknarhreyfingunni hér í
fylkinu, að hann skyldi eigi strax í fyrra
leggja samninginn undir álit þingsins,
þótt jafnvel hefði verið til þess nauðsyn.
legt að framlenfeja þingtímann. Að það
var ekki gert, hefir leitt af sér þann grun,
að ekki er sýnilegt annað en að stefnt sé
í stóran vanda stjórnarflokknum og liði
framsóknarmanna við næstu kosningar,
jafnvel þótt svo færi, að ekkert kæmi upp
frekar í rannsókninni, er verulegu máli
skiftir, og stjómarflokknum auðnist að
halda meirihluta á þessu þingi, og ef til
vill kjörtímabiiið á enda.
■-----x-------
Sýningin
Á föstudaginn kemur, 15. marz, eiga
Winnipegbúar að skera úr því með at-
kvæði sínu, hvort bærinn skuli veita
$850,000 til þess að haldin verði hér sýn-
ing árlega. Verða þrír fimmtu hlutar
atkvæða að fallast á það, ef það á fram
að ganga.
Hugmyndin er, að bærinn leggi til
sýningarsvæði og byggingar. Er um
tvö stæði að velja, er bærinn á, og verður
atkvæði greitt um það á föstudaginn,
hvem staðinn skuli nota; (þ. e. a. s. þeir
einir greiða öðrum hvorum staðnum at-
kvæði, er vilja koma á sýningunni, hinir
auðvitað ekki.) Fénu á að ná saman
með hlutakaupum einstakra borgara, en
engan ágóða fá þeir af hlutafé sínu fyr
en safnast hefir varasjóður, er nemur
$20,000, eftir að greiddur hefir verið
rek&turskostnaður og afborgun.
Skoðanir hafa skifst um það, hvort
bærinn skuli leggja fé til þessa fyrirtæk
is eða eigi. Flestir munu því samþykk
ir, nema verkamannaflokkurinn. Telja
leiðtogar hans og blöð, að hér sé stofnað
til þess að fleygja peningum gjaldenda í
ráðleysu, vafalaust miðað við þá skoðun
að þessar árlegu svningar muni ekki bera
sig fjárhagslega. Þeirri skoðun til
styrktar hefir verið bent á það, að bærinn
sé enn í skuld fyrir síðustu sýningu, er þó
hafi verið haldin fyrir 15 árum, árið
1914. Nemi sú skuld enn $120,000.00.
Einnig er það fundið hugmyndinni til
foráttu, að gjaldendur eigi algerlega að
standa straum af kostnaðinum en fái eigi
nógu gagngert úrskurðarvald um ráðs-
mennsku fyrirtækisins, því þótt bæjar-
stjórnin eigi að skipa sex menn úr sínum
hópi í framkvæmdarnefndina auk þess að
í henni verði einhverjir fulltrúar hluta-
bréfakaupenda, að þá verði þessir full-
trúar hins opinbera í minni hluta gagn-
vart fulltrúuin gripa landhúnaðar- og
iðnfélaga, í byggð og bæ, er ein myndu
hagnast á slíkum árssýningum.
þessa slysamanns, fékk stjórn
arnefnd Þjóðræknisfélagsins
Árna lögmann Eggertsson frá
Wynyard til að fara norður til
Prince Albert, til þess að
grennslast sem nákvæmast eft-
ir högum fangans og þá einn-
ig því, hvort unnt væri að
nokkru leyti að bæta kjör
hans.
Árangurinn af þessari ferð
var löng og ítarleg skýrsla,
samvizkusamlega og ágætlega
samin, er hr. Á. E. bera hinar
mestu þakkir fyrir og álit, er
fullvissaði þingheim um það,
sem félagið hafði ávalt verið
fullkomlega sannfært um, að
fyrir Ingólf Ingólfsson væri
ekkert betra unnt að gera, og
meira að segja ekkert eins gott,
eins og einmitt að láta hann
vera í friði þar sem hann er, —
og er þó alls ekkert litið til
þeirra stórvandræða, er hver
sá myndi búa sér, félag sem
einstaklingur, er réðist í það
óvit, að hagga við högum
hans. Eina röddin á þinginu,
er ympraði á þeirri — vitfirr-
ingu — liggur næst að segja, ef
af heilum hug var mælt, að
fara að brjótast í því að senda
þenna einstáka slysamann heim
til íslands, ef unnt væri — og
hvorki meira né minna en þjóð
hátíðarárið 1930! — var svo
rækilega kveðin niður, að ekki
er sennilegt að hún stingi höfð-
inu upp afcur, nema þá í einver-
unni, þar sem hún líka á svo á-
kveðinn samastað.
Hvort raunverulegt útlit er fyrir
það, að slíkar sýningar muni geta borið
sig til þess að greiða gjaldendum sann-
gjarnan arð af fé sínu, skal hér ekkert
fullyrt um um. En í fljótu bragði virð-
ist lítt sl^ljanlegt, að þær geti eigi stað-
ið í slíkum skilum, óbeinlínis, ef ekki
beinlínis, þar sem byggingarnar og sýn •
ingarsvæðið verður auðvitað eign bæjar-
ins, er á milli sýninga ætti á ýmsan hátt
að geta gert sér slíka eign arðberandi.—
Að árlegar landbúnaðar- og iðnaðarsýn-
ingar á sumrin og alidýrasýningar á vetr-
um hljóti á ýmsan hátt að verða fylkinu
og bænum til þrifnaðar, getur tæplega
verið vafa undirorpið.. Og víðast mun
staðreyndin vera sú, að þar sem slíkar
árssýningar hafa komist á, vilja menn
ekki framar án þeirra vera. Enda hafa
þær miklu meiri skilyrði til þess að borga
sig, en sýningar sem komið er á, með
margra ára millibili, þar sem að minnsta
kosti byggingum, flestum eða öllum er
oftast aðeins tjaldað til einnar nætur.
-------x—------
Afgangi varnarsjóðsins var
ráðstafað í sérstakan sjóð, er
vitanlega breytir engu um það,
að féð er framvegis í vörzlum
Þjóðræknisfélagsins, er með
nlálið fór, og var það einnig
með vilja alls þingheims, er auð
vitað skiftir engu 'hvar félagið
geymir peningana.
---------x---------
Kveldst. í Winnipeg
(Frh. frá 1. síÖu).
verkinu, að hreinasta unun var á að
hlýða. Tel ég hana hiklaust snillings
efni í fiðluspili. — Þá var pianospi!
M;iss Elizabeth Eyolfson (On the
Mountains, eftir GriegJ ágætlega
spilað. Var mér fögnuður að vita,
að þessi unga stúlka, sem svo fagur-
lega fór með hlutverk ’sitt, er dó‘tir
hins látna, listfenga manns og tón-
skálds: Gunnsteins Eyólfssonar.
Þjóðræknisþing,
hið tíunda, er nýafstaðið sem kunn-
ugt er. Stórviðburðaríkt var það ekki,
en yfirleitt mjög friðsamlegt, þótt marg.
ir hefðu þess ef til vill ekki vænst. Þarf
lesendum því engin kvöl að verða að
stuttri bið, unz þingtíðindin birtast í
blöðunum, eins og venja hefir verið til.
Þó má geta þess, að oss finnst líklegt,
að menn hafi ef til vill betur glöggvað
sig. á því nú, en nokkru sinni áður, hverj-
ar brautir muni auðveldastar og sjálf-
sagðastar, eða máske rétta,ra sagt bráð-
nauðsynlegastar að fél. ryðji sér, ef það
vill gera að vissu þá von um langlífi, er
það vitanlega ber í brjósti. Verður að
líkindum vikið nánar að þessum nauð
synjum þjóðrækni^starfsins hér í blaðinu
áður en langt um líður.
Eitt mál, er fyrir þingið var lagt, er
þó endilega tilhlýðilegt að minnast á,
hið svonefnda .‘"Ingóilfsmál.” Eins og
kunnugt er af þeim miklu blaðadeilum, er
um það hafa staðið síðan í fyrravor, hef-
ir Þjóðræknisfélagið jafnan litið svo á, að
vafalaust hefði það fyrir löngu allt fyr-
ir Ingólf Ingólfsson gert, er því var ætlað
og enda meira, samikvæmt óskum, er
fram komu, eftir að hann var náðaður
frá lífláti. Og ennfremur, að Ing-
ólfur Ingólfsson hafi vitanlega aldrei per-
sónulega átt samskotaféð, eða leifar
þess. En til þess að almenningur fengi
tækifæri til þess að ganga úr skugga um
afstöðu félagsins til Ingólfs, hvort það
hefði vanrækt einhverjar meir eða minna
ímyndaðar skyldur við hann, eða jafnvel
látið nokkuð ógert, er milda mætti kjör
Hvað íslenzka þát'inn snerti,
varð ég síst fyrir vonbri'g'ðum. Eg
hafði heyrt Mt. Halldórs syngja
þjóðiaga gimsteinana okkar áður, og
átti því gott með að greina, að í
þetta sinn var hann ígessinu sínu.
En til þess að þeir, sem þessar linur
lesa, hafi eitthvað j^ieira en mína
sögusögn fyrir augum, leyfi ég mér
að birta hér útdrátt úr ritdómi, er
birtist i stórblaðinu “Tribune,” er ég
sá daginn eftir samkomuna, en það
b!að mun bezt rita um söng
og hljómlist, í langmestu hljómlistar
miðstöð Canada, vestan stórvatna,
(Winnipeg). — “Sex, igamla, ís-
•lenzka þjóðsöngva söng Mr. S. Hall-
dórs frá Höfnum, með .aðstoð urig-
frú Th. Bjarnason. Öll lögin voru
sérlega eftirtektarverð og sum þeirra
yndislega fögur. Hinn angurblíði
norræni undirtónn, gerir allstaðar
vart við sig í norrænni músík. Mr.
'H'alldórs hefir volduga, en hljóm-
fagra rödd, og ágætt vald yfir henni.
(Beitir henni prýðiléga).
—Það væri í sannleika sorglegt ef
þessi fögru eftirminnilegu lög væru
látin veslast upp, og víkja sessinn fyr-
ir jazz gumsinu, er nú sem stendur,
hefir svo langt um of fengið að
ryðja sér til rúms á hljómpöllunum.”
G. H. M.
Þess vil ég geta, að hið islenzka
“performance” var hið eina er fékk
svo sérstæða umgetningu og nokkuð
líkt því svona góða, í ritdómi þessa
stórblaðs, um norræna músík frá
fimrn löndunt.
1 fullan aldarfjórðung hafa
Dodds nýrna pillur verið hin
viðurklenndfu meðujl, við bak-
verk, gigt og bröðru sjúkdóm.
um, og hinna mörgu kvilla, er
stafa frá veikluðum nýrum. —
Þær eru til sölu í öllum lyfabúð
um á 50c askjan eða 6 öskjur
fyrir $2.50. Panta má þær beint
frá Dodds Medicine Company,
Ltd., Toronto 2, Ont., og senda
andvirðið þangað.
En háttvirtir söngmenn, “út um
allt land I” Þessi viðurkenning sem
Mr. Halldórs hefir hlotnast, kann að
þrengja einhverjum fyrir brjósti. Og
minnist ég þess nú, að maður, sem
látið hefir til sín heyra á samkomum
hér í Vatnabyggð, feldi dóm um
söng Mr. Haldórs, stuttann og snyrti
legann, er hljóðaði svo: “Oh, he
can’t sing I” Þessi sami maður
hafði einu sinni þjakað söngelskum
tilheyrendum sínum með að syngja
fyrir þá lag eftir Dvorak, og
“Ö, guð vors lands,” (solo) með ekki
ólaglegri en alveg tilþrifalausri rödd
og túlkun.
Það er ekki auðvelt að verjast
gremju yfir því, að menn sem gefa
sig eitthvað að söng skuli annaðhvort
vera svo skilningslausir urn hljóm-
list og fagra tóna, að slíkir dómar
sem þessi, geti runnið af tungu
þeirra, eða svo “takt”-lausir, að skáka
strípaðri öfundinni um nágrenni sitt.
Hitt er og einnig umhugsunarefni,,
að þeir sem fundið hafa hvöt hjá sér
til að skrifa frétta-“pistla” eða
“pósta”, um allt og ekkert, hafa
gleymt(?) að geta um söngsamkom-
ur Mr. Halldórs og Miss Rósu Her-
mannsson í Vatnabyggðuni, tvö síð-
astliðin sumur. Á þvi leikur þó
enginn vafi, að ungfrú Hermannsson
er ein allra fremsta söngkona íslenzk,
vestanhafs — ög þó víðar sé leitað.
— Og tæplega munu <þeir gleyma,,
sem söng unna — og skilja, er ung-
frú Hermannsson söng “Ave Marja”
og “Kvöldbæn’’ Björgvins, á sam-
komum hér vestra, síðastl. sumar.—
Eða skyldi það ekki hafa ‘‘yljað oss-
innst inn í barminn” — að minnsta
kosti margann móðurbarminn, er
ungfrú Hermannsson söng lagið eft-
ir Björgvin: “Sofðu unga ástin;
mín'?”
“Thé Scandinavian Musical Club”
á þakkir skilið fyrir starf sitt: að.
vekja ábuga og þekkingu hérlendis
á norrænni músík. Og vonandi
verður því starfi haldið áfram, og
það viðurkennt með góðri aðsókn og
vaxandi skilningi fyric því, að í
norrænum tónum felst sál og ‘saga',
sérstæðrar skapgerðar, sem þvi meira
Hressandi
A V O R I N
Það byggir upp líkamann og
ver hann sjúkdómum að drekka
pott af
CÍTY
MILK
IJrein, góð og hressandi — og
afbrags styrkjandi.
V