Heimskringla - 13.03.1929, Page 5
WINNIPEG, 13. MARZ, 1929
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSlÐA
er metin, sem hún verður kunnari
út um heim. Eg endurtek því, a8
hér er um þýðin'garmikiö þjóffrœknis
starf að ræða.—
Og þakka ber einnig, ef satt er
sem mér er sagt, að þessi veglega
kirkja á Victor stræti, hafi verið lán
uð gegn mjög litlu endurgjaldi fyrir
þetta mót, og mun hr. A. C. John-
son ræðism. hafa átt góðan þátt í
því.
Því vil ég nú við bæta, að þegar
samkomunni var lokið í kirkjunni,
var ég boðinn á heimili Mr. og Mrs.
T-hor. Brand. Tók þar við annað
“program,” sön'gur og hljóðfæraslátt
ur, er hélst fram yfir miðnætti. Þar
sungu þau ungfrú Rósa H,ermanns-
son og hr. Sigfús Halldórs, með að-
stoð ungfrú Bjarnason, er einnig
skemti okkur með yndislegum piano-
leik, og Björgv. Guðmundssonar.
Stundin sú skrifast tekjumegin i bók
minninganna, og þar efst á síðu.
Ásgeir I. Blöndahl.
---------x--------
Opið bréf
sannnefni höfundar áminnstrar grein
ar í Heimskringlu.
Mér þykir mjög leitt að þurfa að
gjöreyða þessari kenningu, yðar. Þér
hljótið að hafa komist að þessari
niðurstöðu fyrir einhverja skekkju í
röksemdarfærslunni. . Því Bruce
Sanders er mjög svo áþreifanlega lif-
antji, og það vildi svo til að hann
var skírður Bruce, og að föðurnafn
hans var Sanders.
Eg vissi ekki að maður þyrfti að
-6enda fæðingarvottorð sitt og mynd
af sér, til þess að sanna persónulega
tilveru sína, er maður ritar í íslenzku
blöðin. En af þvi að ég er brjóst-
góður, þá gríp ég tækifærið, til þess
að leiða yður í allan sannleika, og
vona að þér hafið ekki ásakað ein-
hvern fornvin yðar fyrir höfundskap
inn að grein minni. Verið svo vænn
að hugfesta þetta. Eg vona að þessi
opinberun valdi yður ekki nókkru
meini né andvökum. En mig !ang
ar til þess að láta yður hér með
vita, að ég mun á næstunni rita aðra
grein um sama efni. Fyrirsögnin
verður “Afrck Heimfararnefndarinn
ar.” Verið svo vænn að vera við-
búinn.
(Frh. frá 1. síðuj.
|:ringlu fyrir nokkrum mánuðum.
Það hefir auðsjáanle'ga verið slysni
fyrir mig, að hafa ekki tækifæri á
því að leita ráða hjá yður um það
hvað rétt væri í þessu máli. En
það er langt síðan að mér lærðist að
hugsa fyrir sjálfan mig og ég vonast
til að halda því áfram. Nú skal ég
gera yður ljóst, minn virðulegri gagn
rýnandi, hvers vegna ég rita yður
þetta bréf.
Eftir að þér hafið fordæmt grein
mína með frekar meinlegum orðum,
án þess að sýna fram á réttmæti slíks
orðbragðs, komist þér að þeifri nið-
urstöðu, að Bruce Sanders sé ekki
Þegar dæma skal, er hyggilegt að I
tilfæra einhverjar setningar úr igrein
þeirri, er dæmast skal,»til þess að
sýna í hverju henni skeikar. Yður
virðist hafa sést yfir þessa staðreynd,
er þér rituðuð bréf yðar til ritstjóra
Heimskring'iu. Þér skundið blátt
áfram gagnleið og áfellist dr. Péturs-
son, Mr. Kvaran og mig án þess að
sýna fram á hvar við í raun og veru
vorum svo hneykslanlegir.
Þér vitið að menn gleypa ekki við
slikri röksemdarfærslu nú á dögum.
t
Yðar einlægur,
Bruce Sanders.
Aths.—Svo mikið moldviður hefir
nú staðið um heimfararmálið og í
Föstudaginn 15. Mars
• :r .__ i...
Greiðið atkvæði með
Lögunum um Sýningu
Hin fyrirhugatSa árlega sýning í Winnipeg mun
draga fólk í tugum þúsunda til borgarinnar. Og
því fylgja peningar, vinna, og velmegun fyrir Win-
nipeg. I>ó lögin um sýninguna veröi samþykkt,
kostar þaö hvern skattskyldan borgara ekki meira
en svo, ab nálega engu nemur.
West Kildonan svæöiö, er af sérfróöum mönn-
um taliö eitt allra ákjósanlegasta sýningarsvæöi,
sem nokkur bær í Vesturlandinu á. ]>aö er aöeins
þrjár og hálfa mílu frá bæjar ráöhúsinu og því
fljótfari?5 þangaö á strætisvögnum. SvæÖi þetta
er yfir 96 ekrur at5 stær?5, og er frá náttúrunnar
hendi svo úr garöi gert, aö þar er hægra en ann-
arsstaöar at5 halda stórfengilega og sómasamlega
akuryrkju og iÖnatSarsýningu.
Greiðið atkvceðiföstudaginn 15.
Marz með Sýningarlögunum
Greiðið atkvœði með
West Kildonan svæðinu
WINNIPEG EXHIBITION ASSOCIATION
SJÁIÐ!
Peningum yðar skilað
aftur og 10% að
auki ef þer eruð
ei ánægðir með
RobínKood
FIiOUR
ÁBYGGILEG PENINGA TRYGGING f HVERJUM POKA
DYERS A CLKANERS CO., LTD.
gjöra þurkhreinsun samdægurs
Bæta og gjöra vi?5
Sfml 37061 Winnipeg;, Man.
sambandi við það, að vafalaust væri
æskilegast fyrir alla aðilja, að þær
deilur mættu niður falla. En oss
þykir vænt um þessa yfirlýsingu frá
Mr. Sanders, sökum þess, að jafn-
skjótt og grein hans birtist í Heims-
krin’glu í sumar, var það fullyrt af
ýmsum hér í Winnipeg. og haft eftir
sumum helztu kaffihúsamælskumönn-
um og knattleikastofuspekingum, ís-
lenzkum, að áreiðanlega myndi
“Bruce Sanders” vera gerfinafn er
einhverjir “Heimskringlumenn” hefðu
brugðið vfir sig sökum ragmennsku,
eða annara ógöfugra hvata, og rit-
stjóra þessa blaðs þá til dreift, með-
al annara. Mr. Stephen Thorson á
áreiðanlega, þar vér til vitum, enga
sök í þvi að þessi orðrómur hófst.
En þetta hefir eðlilega borist Mr.
Thorson til eyrna, og þá sjálfsagt
sent fullvrðing, eins og líklega flest-
um hér nærsveitis, þótt Mr. Sand-
ers, sökum fjarVeru sinnar, hafi
eðlilega ekki getað gert sér grein
fvrir því hvernig þetta komst á
gang,—Ritstj.
•-------x--------
Frá Islandi
Norska vikublaðið “Urd” gen'gst fyr
ir samskotum til þess að reisa hálf-
mvnd af Ölafíu Jóhannssdóttur í
Osló á aöaldegi alþingishátíðar Is-
lendinga 1930. Forgöngu í fjár-
söfnunarstarfseminni hefir frú Inga
Björnsson. Styttuna hefir gert
Kristinn Pétursson. Er ráðgert að
reisa hana í fátækrahverfi Oslóar.
þar sem Ölafía heitin inti svo mikið
og fagurt starf af hendi í þágu þeirra,
sem bágast áttu. ,—Alþýðubl.
Minningarhátíðin nyrðra
Þess hefir áður verið getið hér í
blaðinu, að í ráði væri, að efnt yrði
til veglegra hátíðahalda vorið 1930
á Möðruvöllum o'g Akureyri í minn
ingu þess, að þá hefði gagnfræða-
skóli Norðlendinga starfað um hálfr
ar aldar skeið. — Eins og kunnugt er,
hóf skólinn starfsemi sína á Möðru-
völlum í Hörgárdal og var þar fram
yfir aldamót. En þá brann skóla-
húsið til grunna og varð þá að ráði,
að skólinn yrði flu'tur til Akureyrar.
I gær var fundur haldinn um mál-
ið. Hafði verið boðað til hans af
5 ritstjórum hér í bæ, gömlum læri-
sveinum skólans. Fundinn sóttu
um 70 menn. Skýrði Sigurður
Guðmundsson, skólameistari á Akur-
eyri, fyrir fundarmönnum, hvað vak-
að hefði og vekti fyrir fundarboð-
öndum og forgöngumönnum þessara
ráðgerðu hátiðahalda. Meðal ann-
ars sagði hann, að svo væri ráð Jyr-
ir gert, að gefið yrði út ítarlegt og
sem allra vandaðast minningarrit um
50 ára starfsemi skólans, en auk þess
færi fram hátíðahöld á Möðruvöllum
og Akureyri. Þar gæti ganilir vin-
ir fundist og rifjað upp fornar ntinn
in'gar. Mætti margt gott standa af
þeim samfundum og kynningu manna
viðsvegar af landinu, en minningar-
ritinu væri ætlað að verða veglegur
og varanlegur minnisvarði um hálfr-
ar aldar starfsemi skólans.
Fundarmenn voru allir á einu
máli um það, að stofna bæri til
minningarhátíðarinnar. Var kosin
7 manna undirbúningsnefnd og hlutu
kosningu: Ásgeir Sigurðsson, aðal-
ræðismaður, Pétur Zóphóníasson,
fulltrúi, og ritstjórar þeir, er að
fundarboðinu höfðu staðið. Ásgeir
Sigurðsson var kjörinn formaður
nefndarinnar. Mun önnur nefnd
verða kosin nyrðra, en skólameistar
inn á Akureyri verður samverkamað-
ur beggja nefndanna og sjálfsagður
ráðgjafi um um undirbúning og fram
kvæmdir.
--------x--------
Dánarfregn
Eftir 20 daga legu á almenna
sjúkrahúsinu hér í Winnipeg, andað-
ist þar, 26. febr., húsfreyja Kristín
Magnúsdóttir Einarsson, eiginkona
Árna Einarssonar að Clarkleigh,
Man. Innvortismein sem hún hafði
lengi þjáðst af, varð banamein henn-
ar. Kristín var ættuð úr Snæfells
nessýslu, kom til Ameríku um árið
1893, og giftist Árna Einarssyni ár-
ið 1896. Áttu þau um hríð heima
i grend við Lariviere, Man., en árið
1899 fluttu þau á landið, þar sem þau
hafa búið síðan, einar þrjár mílur
norðvestur af Clarkleigh. Þau eign-
uðust fimm börn. Lifa fjögur
þeirra öll fullorðin, dg auk þeirra ein
fósturdóttir. Þau eru: Mrs. Lilja
Bjarnason, Wynyard, Sask.; Mrs.
Hólmfríður Fines, Riceton, Sask.;
Albert, bóndi í nágrenni við föður
sinn; Friðgeir, heima og Mrs. Elin-
borg Bedford (fósturdóttir), Killar-
ney, Man.
Kristín sál. var jarðsungin af séra
Rúnólfi Marteinssyni, sunnudaginn
3. marz, og voru gömlu nágrannarn-
ir þar viðstaddir.
Kristin var myndarkona og krist-
in. Hún var glaðlynd og gestrisin,
annaðist heimili sitt og ól upp börn
sin með snild, enda eru þau öll mann
vænleg með heilbrigða lífsskoðun.
Að henni er mikill söknuður.
R. M.
WONDERLÁND
“The Haunted House” heitir mynd
sem sýnd er á Wonderland þessa
viku. Er hún svo margbreytileg að
efni, bæði dularkent og hlælgileg, að
öllum hlýtur að geðjast að því, að
sjá hana. Þá er myndin í byrjun
næstu viku, “How to Attract Men,”
eigi síður skemtileg, eins og nafnið
í raun og veru ber með sér.
Frú Helga og hr. Helgi Bjarnason,
frá Kinosota, Man., komu hingað
til bæjarins fyrra þriðjudag. Munu
þau hafa í hyggju að setjast að hér
i bænum, um nokkurt skeið að
minnsta kosti.
Hnfn leyfl frfl SninlmnilNNtjflrn ('nnnilii iir- eru MkrflMettir uniltr vfltryKftnrlflttum Mnnitolin, SaMkntehe-
wan, Alherta ok llrUish Columhia.
The Wawanesa Mutual Insurance Co.
Stærsta elds-ábyý^ðarfélag í Canada
FJÁRHAGSREIKNINGUR Árslok 31. des. 1928
TEKJUR
Peningar, verðbréf, etc...$1,118,732.31
Eignir, óborgaðar ............55,858.74
Ábyrgðar skírteini ....... 1,503,201.40
2,677,792.45
ÚTGJÖLD
Varasjóður fyrir ógoldnum
ábyrgðum .................$146,972.46
Tap — gert ráð fyrir ....... 19,782.18
Reikningar óborgaðir ............ 76.59
Verndarsjóður þeirra er
ábyrgðir eiga .. 2,510(961.22
2,677,792.45
C. D. CORBOULD, C.A.
Trúið þér á samvinnu? Tþe Wawanesa Mutual er bezta dæmið af farsælli sam-
vinnu í Vestur-Canada sem stendur. I>að hefir sparað félagsmönnum sínum 50% af
ábyrgðum þeirra í 30 ár og verðskuldar þvf stuðning yðar.
Peningar í sjóði að frádregnum útgjöldum eru $1,007,760.32.
Allt verndarfé vátryggjenda $2,677,792 45 —sem er $191,000.00 meira á árinu 1928
en árinu áður.
Ný viðskifti á árinu 1928 — $61,948,173.00.
Allar ábyrgðir í gangi $152,282,509.00—oghafa á árinu 1928 aukist $17,746,246.00.
Síðastliðin sjö ár hefir umsetning félagsins aukist rúmlega 54% og féð umfram
skuldir aukist yfir 220%. Ekkert annað eldsábyrgðarfélag getur sýnt slíkan við-
gang. Ábyrgðir vorar í Vestur Canada, eru meiri en nokkurs annars félags.
Það er umboðsmaður fyrir Wawanesa í héraði yðar. Kaupið ábyrgðir hjá hon-
um.
Head Office, WAWANESA, MAN.
FARIÐ TIL ÍSLANDS 1930
r
a
1000 Ára Afmælishátíð
Alþingis íslendinga
Canadian Pacific járnbrautarfélagiS og Canadian Pacific gufuskipafélagiS óska aS tilkynna
Islendingum, aS þau hafi nú lokiS viS allar mögulegar ráSstafanir viS fulltrúanefnd Al-
þingishátíSarinnar 1930 vestan hafs, viSvíkjandi fólksflutningi í sambandi viS hátíSina.
SKIP SIGLIR BEINT FRÁ
MONTREAL TIL REYKJAVfKUR
Farþegja sem fýsir að heimsækja staði í Evrópu, eftir hátíðina, geta það einnig
{ ferðinni.
Þetta er óvanalega gott tækifæri til aS sigla beint til
Islands, og til þess aS vera viSstaddur á þessari þýS-
ingarmiklu hátíS 1930. YSar eigin fulltrúar verSa
meS ySur bæSi til Islands og til baka.
Notið þetta tækifæri og sláist í förina, nieS hinum stóra
hópi ísléhdinga, sem heim fava.
Til frekari upplýsirsga viSvíkjandi kostnaSi o. fl.
snúiS ySur til:
W. C. Casey, General Agent, Canadian
* Pacific Steamships.
R. G. McNeillie, General Agent, Canadian
Pacific Railway.
Eða
J. J. Bildfell, formanns Heimferðarnefndarinnar,
708 Standard Bank Bldg., Winnipeg.
Canadian Pacific
Umkringir jörðina
Sérstakar Lestir
fara frá Winnipeg til Montreal
í sambandi við skipsferðirnar.
Sérstakar Skemtanir
er verið að undirbúa á lestum
og skipum fyrir þá sem hátíð-
ina sækja.