Heimskringla - 24.07.1929, Síða 3
WINNIPEG, 24, JÍJEÍ, 1929
HEIMSKRINGLA
3. BLAÐSÍÐA
Fréttir frá Islandi.
BIFREIÐARSLYS.
Tveir menn bíða bana, og margir
meiðast.
Rvík. 24. júní
'Snemma í gærmorgun vildi þaö
sorglega slys til, að fólksflutningabif-
reiö meS tólf mönnum valt um koll
skamt fyrir ofan bæinn Lögberg
(Lækjarbotna) og biðu tveir menn
bana, en flestir meiddust allmikiö.
Þeir, sem dóu, voru Guömundur
Ölafsson, Rauðarstig, 13, kvænt-
ur maður,sem lætur eftir sig konu og
tvö börn, og Guðmundur Jóhanness-
on, Rauðarástíg 13K. Hann átti fyrir
aldurhniginni móður að sjá, sem nú
fcr á Elliheimilinu.
Meðal þeirra, sem meiddust, var
Þorsteinn Kárason, Laugaveg 103.
Hann var fluttur í sjúkrahús í gær og
leið eftir vonum í morgun. Sigurður
Böðvarsson, Hverfisgötu 43 hand-
leggsbrotnað, og Eyjólfur Guðmund-
sson, Múla við Laugaveg, siðubrot-
naði, Agúst Friðriksson, Hvg. 32B,
brákaðist á öxl, marinn á brjósti og
baki, Ásgeir Torfason, Njarðargötu
41, brákaður á handlegg og marinn um
brjóst og heröar, Sigmundur Þorstein-
sson, Rauðaráárstíg 13D, marðist á
vinstri hlið, Hafsteinn Hjartarson,
Lindargötu 40, meiddist á höfði, en
lítið meiddir eru Jóhann Andrésson,
Barónsstíg 20, og Jón Benediktsson,
Skólavörðustig 36, og bifreiðatjór-
inn.
Þetta bifreiðarslys er eitt hið mesta,
sem orðið hefir hér á landi.
siíðasta fundi, og var algerlega mót-
fallin því, að sá staður yrði látinn
af hendi til þessara nota. En sam-
þykt var tiilaga, þess efnis, að bygg-
inganefnd og veganefnd skyldi litast
um eftir haganlegum stað handa
Þjóðleikhúsinu.
Skrifstofuhús.
Á fjárlögum fyrir 1930 er stjórn-
inni heimilað “að láta reisa byggingu
á Árnarhólstúni fyrir ýmsar skrif-
stofur landsins, ef sýnt þykir að með
því megi lækka til muna kostnað við
skrifstofuhald í Reykjavík, og taka
i því skyni lán alt að 225 þús. kr.
Stjórnin mun nú hafa ákveðið, að
hefja byggingu þessá stórhýsis i
hag bæjarins, að nein hætta geti tal-
ist, að eiga fé sitt i vörslum hans.
Og enn er það að lita, að vextir af
hinu innlenda láni hefði orðið kyrrir
í landinu, og er það ekki lítilfjörlegt
atriði, en vaxtagreiðslur af enska
láninu nema mörg hundruð þúsund
krónum á öllum lánstímanum, og
hverfur það fé út úr landinu.
—Vísir.
Islandsglímuna
í gærkveldi vann Sigurður Thorar-
cnsen. Hafði 7 vinninga; féll að-
eins fyrir Björgvin Jónssyni. Næstur
honum varð Þorgeir Jónsson, með 6
vinninga.—Stefnuhornið vann Jörgen
Þorbergsson. Það er veitt fyrir
fegurðanglímu í sambandi við Islands
glímuna. Nánara verður skýrt frá
glímunni á morgun.
Rvík. 20. júní.
Pétur JónSson söngvari er nú að
flytja búferlum til Berlínar og þykir
Bremenbúum sárt að missa hann, því
Pétur er þar mjög vinsæll. Hafa
þeir heiðrað hann á ýmsan hátt og á
kveðjuhljómleikum, er Pétur hélt
þar um mánaðamótin, síðustu, sást
best í hvað miklu áliti hann er þar
sem listamaður og hve óvenjulegunr
vinsældum hann á að fa'gna. Hefir
það þó ekki síður komið í ljós við
óperusýningar þær, er . hann hefir
sungið :í, í síðasta sinn, og þá sér-
staklega er hann síðast söng Lohen-
grin, Tannhauser, Tritan, Meister-
singer, Radamer og Othello. Skal j
hér aðeins tekið litið sýnishorn af
Idaöadónium um Pétur sem Othello:
“Sýningin á sunnudaginn tók hin-
um miklu “Othello”-sýningum fram
um margt. I aðalhlutverkinu—einu
biiiu allra erfiðasta allra tenorhlut-
verka — á hetjusöngvarinn okkar,
Pétur Jónsson, alveg sérstakan styrk.1
1 því hefir hann sett — og setur enn '
heimsfrœga sö-ngvara í skugga. Þessi l
Othello var — eins og ávalt hjá P. J.
— sannfærandi veruleiki — og þann-
ig hátt upp hafinn yfir það, sem menn
eiga að venjast á leiksviðinu. I
röddinni sameinast dramatiskt afl,
svo að tceplega verður hœrra komist,
og hrein og skær hljómfegurð. Rödd
hans, sem er svo liðug og fullkomlega
fáguð á öllum sviðum, hljómaði ávalt
því bjartar, fyllra og fegurra, því
tneir sem á reyndi.”
Pétur kemur hingað með son sinn
snöigga ferð á sunnudaginn.
—Vísir.
Rvik. 26. júní
Önnur flugvélin,
sem ráðgert er að haldi uppi flug-
ferðum hér innan lands í sumar, er
nú komin hingað. Var unnið að þvi
í gær, að setja hana saman og lyfti
hún sér til flugs um hádegi í dag og
reyndist vel. Á laugardaginn fer
flugvélin sennilega fyrstu för sína.
Verður þá flogið norður um land.
Flugvélin hefir hlotið nafnið “Súlan”,
eins og flugvél sú, sem hér var i
fyrra
* * *
Samþykt var á síðasta bæjarstjórn-
arfundi að sæta lánstilboði vátrygg-
ingafélagsins “Prudential” í London,
um 45 þúsund sterlingspunda lán
handa Reykjavíkurbæ. Lánið er af-
fallalaust, lánstími 15 ár og vextir
6}4% á ári. Heimilt er að endur-
greiða lánið að fullu á 10 árum.
Tillaga Þ. Sv. fór þvi fram, að
hinu enska lánstilboði skyldi hafnað,
en innlent lán tekið að upphæð ein
miljón kr., og áttu ársvextir að nema
7%. Lítill vafi virðist geta á því
leikið, að þetta lán hefði fengist.
Landsmenn munu nú eiga að minsta
kosti um eða yfir 50 miljónir króna
í sparisjóðum, með miklu lægri árs-
vöxtum, en ráðgert er í tillögunni að
greitt skyldi af hinu fyrirhugaða
láni. — Má nærri geta að sparifjár-
eigendur mundi hafa verið fúsir til
að ávaxta fé sitt með þeim kjörum,
sem tillagan ráðgerir, því að ekki er
þó enn búið að fara þannig með fjár-
Önnur heimsókn
Vilhjáims kardinála.
Kirkju- og biskupsvígsla í
Landakoti.
Svo sem kunnugt er ætlar Vil-
hjalmur kardináli van Rossum að
heimsækja ísland í annað sinn í
næsta mánuð og ætlar hann þá að
vígja hina nýju kirkju í Landkoti og
auk þess að veita ármanni (præfekt)
páfa hér, sira Marteini Meulenberg,
biskupsvígslu. Af þessu tilefni sendum
vér tíðindamann vorn til biskupsefnis
til þess að fá nánari fréttir af þessum
atburðum, sem að ýmsu leyti má telja
eins dæmi.
Kardináli kemur, spurðum vér síra
Martein.
Já, svarar biskupsefni, hann kemur
hingað 21. júlí. Það er mikið gleði-
efni, þvi satt að segja vorum vér orð-
nir vondaufir hér um að það gæti
orðið á þessu ári. Þegar kardináli
var hér síðast, hafði hann að vísu
dregist á að homa hingað til þess að
vígja kirkjuna nýju, en bæði er það,
að hann er orðinn roskinn maður, á
75. ári, oig heilsan ekki sem best, og
svo er ferðin hingað bæði löng og
erfið fyrir menn, þótt bæði séu full-
hraustir og ungir, svo að manni fanst
mundi geta brugðist til beggja vona
um komuna, hvað góðan vilja sem
kardinálinn hefði.
En er það ekki einstakt í sinni
röð, að slíkur kirkjuhöfðingi gjöri
sér langa og erfiða ferð til þess að
vigja kirkju jafn lítils safnaðar?
Skáldin okkar hafa fyr og síðar
talað um, að vér séum á yzta hjara
heims og á útkjálka veraldar, svo að
eg þykist ekki niðra hinu nýja föður-
landi minu, þó að ég kalli kirkjuna
okkar hérna útkjálkakirkju. Landið
sjálft, þó útkjálki sé að landfræð-
islegu, er menningarmiðstöð í dýpsta
skilningi þess orðs. En það er eins
og þér segið fátítt, að slíkri kirkju sé
veittur slíkur heiður. Ekki svo að
skilja, að kirkjan sé ekki fullboðleg.
Hún stendur að stærð og gerð ýmsum
smærri erlendum dómkirkjum ekkert
að baki. En ekki nóg með, að kar-
dinálinn komi sjálfur, heldur eru i
fylgd hans margir kirkjuhöfðingjar,
auk hins einginlega fylgdarliðs hans.
Með horium koma biskuparnir Brems
og dr. Muller, er hafa páfasýslu
(vikariat) í Danmörku og Svíþjóð,
ennfremur Richard kórsbróðir, sem er
aðalyfirmaður (general) Maríureg-
lunnar (Societas Mariae), sem eg er
af og héraðsstjóri (porvincial) í hen-
ni dr. Hupperts. Þetta fylgdarlið
kardinála gefur mjög góða hugmynd
um eðli kaþósku kirkjunnar. Herra
Brems er Belgur, dr. Muller er
Þjóðverji, síra Richard er Frakki og
dr. Hupperts er Hollendingur, —kirk-
jan er alþjóðleg. Kirkjuvigslan fer
fram 23. júlí og er sú athöfn bæði
löng og með fornu sniði, en gullfalleg
þeim, sem þekkir og skilur.
En svo á einnig að vígja yður bis- |
kupsvígslu ?
(Frh. á 7. síðu)
NAFNSPJOLD
| DYERS & CLEANBRS CO., LTD.
grjöra þurkhreinsun samðægurs
Bæta og gjöra vit5
ni 37061 Winnlpeg1, Man.
HEALTH RESTORED
Lækningar án lyfja
DR. S. G. SIMPSON, N.D., D.O., D.C.
Chronic Diseases
Phone: 87 208
Suite 642-44 Somerset Blk.
WINNIPEG —:— MAN.
Björgvin
Guðmundsson
A.R.CM.
Teacher of Musác, Composkion,
Theory, Counterpoint, Orches-
tration, Piano, etc.
555 Arlington St.
SIMI 71621
A. S. BARDAL
selur líkkistur og annast um útfar-
ir. Allur útbúnatiur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvartia og legsteina.
843 SHERBROOKE ST.
Phone: S6 «07
WINNIPEG
T.H. JOHNSON & SON
CRSMIÐIR OG GiILLSALAR
f RSMiÐAR OG GULLSALAR
Seljum giftinga leyfisbréf og
giftinga hringja og allskonar
gullstáss.
Sérstök athygli veitt pöntunum
og viBgjörtSum utan af landi.
333 Portagre Ave. Phone 24637
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
llaggage and Farnlture Hovlng
66S AUVERSTONE ST.
SIMI 71 898
Eg útvega kol, eldiviti meS
sanngjörnu vertSi, annast flutn-
ing fram og aftur um bæinn.
Dr. M. B. Halldorson
401 Bojd Bldg.
Skrifstofusími: 23674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er aí5 finna á skrifstofu kl 10_12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talsfml: 33158
STUCC0
SEM ÁBYRGST ER
The TYEE STUCCO WORKS gefur þér fimm ára
ábyrgð á Tyee Stucco þegar notað er samkvæmt þeirra
ráðleggingum.
Þó ábyrgðin nái aðeins til fimm ára, er auðvitað
varan góð alla æfi þína.
Skrifið eftir nöfnum þeirra plastrara
sem nota það samkvæmt þessari á-
byrgð.
Tyee Stucco Works
ST. BONIFACE
MANITOBA
DR. K. J. AUSTMANN
Wynyard —Sask.
WALTER J. LINDAL
BJÖRN STEFÁNSSON
Islemkir lögfræðingar
709 Great West Perm. Bldg.
Sími: 24 963 356 Main St
Hafa einnig skrifstofur að Lund-
ar, Piney, Gimli, Riverton, Man.
DR. A. BLÖNDAL
602 Medical Arts Bldg.
Talsími: 22 296
Stundar sérstaklega kvensjúkdóma
og barnasjúkdóma. — AtS hitta:
kl. 10—12 f. h. og 3—5 e. h.
Heimlli: 806 Victor St. Sími 28 130
Dr. J. Stefansson
216 MEDICAL ARTS BLDG.
Horni Kennedy og Graham
Stundar cingOugu anglna- eyrna-
nef- og kvcrka-sjfikilOitiii
Er ati hitta frá kl. 11—12 f h
og kl. 3—5 e. h.
Talsfmf: 21834
Heimili: 638 McMillan Ave. 42691
I.n-knaftvfsanlr — Elnkaleyfls
nietföl
ARLINGTON PHARMACY
LIMITED
800 Snrgenr Ave. Slmi 30120
TakiÖ þessa auglýsing metS yt5ur
og f áit5 20% afslátt á me'ðölum,
ennfremur helmings afslátt á
Rubber vörum.
G. S. THORVALDSON
B.A., LL.B.
Lögfræðingur
702 Confederation Life Bldg,
Talsími 24 587
1
DR. B. H. OLSON
216-220 Medlcal Arts Bld«.
Cor. Graham and Kennedy St.
Phone: 21834
VÍÖtalstími: 11—12 o g 1_5.30
Heimili: 921 Sherburn St.
WINNIPEG, MAN.
Telephone: 21 613
J. Christopherson,
Islenzkur lögfræðingur
845 Somerset Blk.
Winnipeg, Man.
Sœtiska íshúsið.
Síðasti vetur var svo mildur um
land allt, að hvergi náðist ís til muna
'í frystihús, og ekki geta botnvörpu- j
skip stundað ísfiski héðan, nema með
því móti að fá ís frá Englandi. — j
Ln úr þessu mun þó rætast, þegar j
líður á sumarið, með því að nú er J
verið að koma upp frystitækjum í \
sænska íshúsinu.
Stjórnin hefir nú keypt handa rík- 1
inu jarðirnar kross, Velli og Reyki1
nieð Reykjahjáleigu og Reykjakoti,'
allar í Ölfusi. A fjárlögum næsta
ars er stjórninni heimilað að kaupa
jarðir þessar, og verja til þess alt |
að 100 þúsund krónum.
Rvík. 23. júní.
Þjóðlcikhúsið.
Stjórn Þjóðleikhússjóðsins hafði
spurst fyrir um það hjá bæjarstjórn,
bvort fáanlegur mundi undir Þjóðleik-
húsið skemtigarðurinn við Lækjar-
g°tu, norðan barnaskólans. Bæjar- 1
stjórn hafði málið til meðferðar á
HÁTÍÐAFERÐIN TIL ÍSLANDS 1930
Nú er búið að ákveða HÁTÍÐISDAGANA Á ÞINGVÖLLUM fyrir Alþingishátíðina, —
26. TIL 29. JÚNÍ að báðum meðtöldum.
ÞAÐ ER ÞVf RJETT ÁR TIL STEFNU, OG SÁ TfMI LfÐUR FLJÓTT, ÞANGAÐ TIL
LAGT VERÐUR AF STAÐ FRÁ WINNIPEG TIL REYKJAVÍKUR. Það veitir því ekki af
að fara að búa sig undir ferðina. Hin liagkvæmustu kjör viðvíkjandi fargjöldum, fyrir
væntanlega heimfarendur, með hinum ágætu járnbrautarlestum og skrautlegu skipum
CANADIAN PACIFIC
félagsins, fást nú með örlítilli niðurborgun er menn ættu nú að tryggja sér sem fyrst.
$245.80 FRÁ WINNIPEG TIL REYKJAVÍKUR OG TIL BAKA AFTUR.
Farbréfagildi til árs.
ÞETTA VERÐUR EINA TÆKIFÆRI ÆFINNAR fyrir fjölda marga Islendinga að
heimsækja æiskustöðvar, frændur og vini, og samfagna með þjóðinni á þessum einstak-
asta og söguríkasta hátíðisdegi hennar. Húsnæði, fæði og þjónustu, hefir Heim
fararnefnd Þjóðræknisfélagsins samið umfyrir ferðahópinn þegar heim kemur.
NEMUR SÁ KOSTNAÐUR AÐEINS $52.80í HÁLFAN MÁNUÐ meðan á hátíðahaldinu
stendur á Þingvöllum og í Reykjavík.
Skrifið yður fyrir farbréfi sem fyrst og sendið niðurborgun. Peningarnir verða
geymdir og afhentir yður ef eitthvað kemur fyrir svo þér getið ekki farið.
Eftir kaupum á farbréfum, upplýsingum og öllu
aðlútandi ferðinni snúi menn sér til
W. C. Casey, General Agent, Canadian
Pacific Steamships.
R. G. McNeillie, General Passenger Agent,
Canadian Pacific Railway.
Eða
J. J. Bildfell, formanns Heimferðarnefndarinnar,
708 Standard Bank Bldg., Winnipeg.
Canadian Pacific
Umkringir jörðina
TalMfmi: 28S80
DR. J. G. SNIDAL
TANNLÆJKNIR
614 SomerMet Bloek
Portnjje Avenue WIXNIPEG
TIL SÖLU
A ÓDfRU VERÐI
“PURIVACE’» —bæíl vlíar os
kola “furnace” lftitS brúkaH, er
tll sölu hjá undirrfitufcum.
Gott tækifæri fyrir fólk út á |
landi er bæta vilja hitunar- f
áhöld á heimilinu.
GOODMAN &. CO.
786 Toronto St. Slml 2SS47
CARL THORLAKSON
Ursmiffur
Allar pantanir með pósti afgreidd-
ar tafarlaust og nákvæmlegu. —
SendiJS úr yíar til aSgerfia.
Thomas Jewellery Co.
627 SARGENT AVE.
Phone 86 197
dr. c. j. houston
\ DR. SIGGA CHRISTIAN-
SON-HOUSTON
GIBSOIV BLOCK
Yorkton —Sask.
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
854 BANNING ST.
PHONE: 26 420
Þorbjörg Bjarnason
L.A. B.
Teacher of Piano
and Theory
726 VICTOR ST.
StMI: 23130
MESSUR OG FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Safnaffarnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuði.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvcnfélagið: Fundir annan þriðju
dag hvers njánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn: Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn:— A hverjum
sunnudegi kl. 11—12 f. h.
E. G. Baldwinson, L.L.B.
LÖRfræíinKur
Resldenee Phone 24206
_ Offlre Plione 24963
708 Minine Kxchangre
33« Mnln St.
WINMPEG.
100 herbergi meJ eöa án batis
SEYMOUR HOTEL
verö sanngjarnt
Slml 28 411
C. G. HUTCHISON, elgandl
Market and King St.,
Winnlpeg —Man.