Heimskringla - 28.08.1929, Síða 4
4. BLAÐSIÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 28. ÁGÚST, 1929
^ÉTctmsturingla
(Stofnuð 1886)
Kemur út'á hverjum miðvikudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS, LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsími: 86537
VerS blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist
fyriríram. Allar borganir sendist
THE VIKING PRESS LTD.
SIGFÚS HALLDÓRS frá Höfnum
Ritstjóri.
Utanáskrift til l)laðsins:
Manager THE VIKING PRESS LTD.,
853 Sargent Ave., Winnipeg.
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA
853 Sargent Ave., Winnipeg.
“Heimskringla” is published by
The Viking Press Ltd.
and printed by
THE MANITOBA MINER PRESS
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man.
Telephone: 86 537
WINNIPEG, 28. ÁGÚST, 1929
Gresjutröllið.
Fyrir skömmu síðan birtist greina-
flokkur með þessari fyrirsögn í ‘‘Mac--
Lean's” tímaritinu, eftir W. A. Irwin. Þar
er lýst Hveitisamlaginu, tilkomu þess,
starfrækslu og viðgangi, og helztu mönn-
unum, er að því hafa staðið og standa.
Enda þótt vér vonum,, að flestir lesendur
vorir meðal bænda séu meðlimir Hveiti-
samlagsins, þá hefir oss þó dottið í hug að
jafnvel meðal þeirra kunni ýmsir að finn-
ast, er eigi hafa haft hentugleika til þess
að fræðast nákvæmar um þetta allt, og
sumir ef til vill látið tækifærið til þess
sér úr greipum ganga; ekki rekist á auð-
velda leið að þeirri vitneskju, þótt þeim á
hinn bóginn væri aufúsa í henni. Virtist.
oss því ekki illa til fallið, að birta lesend-
um þann útdrátt úr þessum greinaflokk.
er hér fer á eftir. Væri meira að segja
ekki óhugsandi, að ljósari vitneskja um
þessa hluti mætti glæða áhuga þeirra og
ýfa þá til frekari metnaðar yfir því, að
vera þáttur í svo snörum streng, auk þess
sem það kynni að ýta við þeim, sem enn
standa álengdar, sem áhorfendur aðeins,
svo að þeir skildu heldur betur, eftir en
áður, hvílíkur gróðrarfriður er í skjóli
þessa tröllaukna forvígi kornframleið-
enda.
* * *
—Málið á ekki orð til þess að lýsa þessu
feiknalega gresjutrölli, er heimurinn þekk
ir undir nafninu: Hveitisamlag Kanada.
Tröll, jötunn eða risi eru ekki nægilega
stórfengleg orð til þess að lýsa þessu fer-
líki, er spennir örmum hálfa heimsálfu
og þvert yfir tvö höf.
Samkvæmt skýringum hagfræðinga,
er þetta samlag framleiðenda og víst er
um það, að það er stórkostlegasta fram-
leiðendasamlag, er sagan getur um. En
þetta er gatslitin og litlaus skýring; ámóta
litlaus og saga samlagsins er æfintýraleg.
Ekki varpar hún heldur Ijósi á þá stað-
reynd, að á fimm árum hefir samlagið gert
manninn bak við plóginn að voldugasta
viðskiftamanni landsins.
Líti menn á víðtækni samlagsins og
einvaldsmátt þess þá liggur sú freisting
nærri að kalla það keisaradæmi landbún.
aðarins. En þó er þetta keisaralaust
keisaradæmi. Það er þvert á móti sam-
vinnandi lýðræði, þar sem enginn getur
hrifsað stjórntaumana að nábúa sínum
fornspurðum.
Ef um akurvíðlendi er að ræða, þá
er það stærsti búgarður í heimi, svo vold
ugur búgarður, að hann yfirgnæfir alger-
lega þjóðlönd, sem að landrými og mikil-
vægi standa láta þó nokkuð til sín taka.
Og viðgangur þess veltur ekki á búskapar-
dugnaði meðlimanna, heldur á viðskifta
snilli þeirra á hveitimarkaði heimsins.
Sé lagður á það kvarði stærstu fyr-
irtækja í Kanada, þá kemur það í ljós að
hvorugt hinna voldugu járnbrautarfélaga,
mestu járnbrautarfélaga í heimi, né nokk-
urt annað miljarðafélag í landinu fær
jafnast við það, er um árstekjur ræðir.
En að líkja því við stóriðjuhringaha
og láta þar við sitja, væri að draga af því
spémynd, því það er þeim algerlega ólíkt,
enda er öll tilvera þess mótmæli gegn
“ágóða’’-kerfinu.
Samlagið er fyrirbrigði. sem dæma-
laust er í sögunni. Fyrir sex árum síðan
átti það tilveru sína eingöngu í vitund ör-
fárra hugsjónamanna. Nú hefir það um-
ráð yfir fimmtungi alls hveitiforða heims-
markaðanna. Fyrir fimm árum síðan
byggði það hús sitt og byrjaði búskap að
segja má við hliðina á hinni skipulögðu
kornverzlun, er frá upphafi lagði á móti
því með hnúum og hnefum. Nú á það
fleiri kornhlöðúr en nokkurt hinna sjö
kornverzlunarfélaga. Fyrir fjórum ár-
um síðan leit helzt út fyrir að það færi í
rústir í fjárhagslegum jarðskjálfta. Nú
ræður það yfir meira en helmingnum af
öllu hveiti, sem framleitt er í sléttufylkj-
unum þremur, er flytja út meira korn en
nokkurt annað land í veröldinni.
Upptök Samlagsins
Hveitisamlag Kanada leit fyrst ljós
þessa heims á hinum dimmskýjuðu dög-
um uppskeru og lágverðs-ársins mikla —
eða árið 1923, svo nákvæmar sé til tekið.
Það ár, þegar lægst var verð á hveiti síð-
an 1914, beittu nokkrir ‘‘harðsvíraðir’’ Al-
bertabændur kornvagni sínum fyrir sér-
staka hugsjón og óku áleiðis. Hver
þeirra lagði fúslega af mörkum þrjá dali
í peningum, lögðu þar við lífstíðar trú og
von og loforð í tannfé. Svo búnir hófn
bændurnir nýja plógristu og byrjuðu
hveitiviðskiftin á heimsmarkaðinum. Og
á þann hátt kom hið trollvaxna Hveiti-
samlag Kanada í þenna heim.
Trúarjátning samlagsfélaga er óbrot-
in og auðskilin. Hún er á þessa leið:
Vér bændur viljum með innbyrðis
samvinnu koma á markað því hveiti, sem
vér framleiðum. Samlagsskipulagið er
jafn auðskilið: Bóndinn skuldbindur sig
skriflega, til fimm ára, að selja af hendi
allt sitt hveiti, við kjörna nefnd, fulltrúa
allra samlagsmeðlima í fylkinu. Þessari
nefnd er falið að selja allt hveiti, sem
henni berst samkvæmt samlagssamningn-
um og skila meðlimum andvirðinu að frá-
dregnum sölukostnaði. Einn dalurinn af
þeim þremur, er hver meðlimur greiðir
sem félagsgjald, gefur honum eins at-
kvæðis rétt. Hinir tveir greiða skipulags
kostnaðinn. Að auki eru tvö cent dregin
af hverju mælisverði til kornlyftukaupa.
Samlagshugmyndin fór sem eldur í
sinu um allt Albertafylki. Á svipstundu
svall aldan um allt fylkið, að kalla mátti.
Tvö borgarblöð “Calgary Herald” og
“Edmonton Journal” buðu Aaron Sapiro,
forvígismanni samlagssöluhreyfingarinn-
ar, að koma og taka þátt í fylgisöfluninni.
Kostnaðinn við það greiddu þau úr eigin
vasa. Bankarnir lofuðu lánaveitingum.
Fylkisstjórnin bauð aðstoð sína. All-
staðar voru fjölmennir fundir haldnir.
Allir sem vetlingi gátu valdið fóru á stúf-
ana til þess að safna meðlimum. Bændur
rifu upp með rótum arfgenga sérhyggju
og lofuðu við drengskap sinn að selja
hveitið hinu nýja samlagi. í einni svip-
an gengu 45% af kornekrum fylkisins
í samlaginu á hönd. Nú var það eitt eft-
ir að koma viðskiftaheilanum í hvítvoð-
unginn, og 19. október 1923 var ‘‘Alberta
Co-operative Wheat Producers, Limited’’
hrundið út í iðustraum alheims hveitivið-
skiftanna.
Árið eftir er Saskatchewan samlagið
skipulagt. Það tók skjótum þroska og
meðtóku ekki færri en 46,509 Sask-bænd
ur hið nýja samlags-evangelíum. í Mani-
toba var einnig samlag sett á laggirnai
og árið 1924 voru öll samlögin þrjú reiðu-
búin að taka til höndlunar uppskeru árs-
ins.
Voldugasta bújörð er sagan getur um
Fyrir sex árum síðan, fyrsta árið, er
Albertasamlagið starfaði, kom það á
markað 34,000,000 hveitimælum af 2,250,-
000 ekrum. Nú nemur akurlendi sam.
lagsins 16,190,000 ekrum. Engin smá-
ræðisjörð; nei, svo stór, að sagan getur
ekki um hennar líka. Sextán miljón
ekrur, og þar að auki telur samlagið 12,-
000 meðlimi í Ontario-fylki.
Færi maður frá Winnipeg til dæmis,
þúsund mílur vestur á bóginn þá jafngilti
allt land hálfa þrettándu mílu beggja
vegna við brautina akurlendi samlagsins.
Tuttugu og fimm þúsund ferhyrningsmíl-
ur.— Væri ræman míla á breidd, næði
hún kring um alla jörðina.
Samkvæmt hagskýrslum sambands-
stjórnarinnar eru alls 248,000 bændur í
sléttufylkjunum þremur. Af þeim eru
133,000 samstjórnendur þessa feikilega
keisaradæmis er hér hefir verið lýst; 17,-
500 í Manitoba, 78,300 í Saskatchewan og
37,000 í Alberta. Álitleg fylking, og í
henni fulltrúar allra þjóðflokka í Vestur-
landinu. Og þótt þeir séu “aðeins bænd
ur” þá eru þeir þó allir jafnir innan vé-
banda samlags-lýðræðisins.
Mesta kornlyftukerfi heimsins
Árið 1925 áttu hveitisamlögin þrjú
eitt hundrað kornlyftur til sveita. Meðal
kornlyfta tekur 37,000 kornmæla. Sam-
kvæmt síðustu skýrslum eru nú alls 692
kornlyftur í gresjufylkjunum þremur, og
samlagið á nú 417, er taka alls 52,560,-
000 mæla. Með öðrum orðum: Samlagið
hefir á fjórum árum komist yfir þriðjung
af öllu kornlyftu rúmtæki í Vesturland-
inu. Og allt er þetta fengið fyrir centin
tvö, sem dregin eru frá andvirðisgreiðslu
. samlagsmeðlima.
‘‘Ef samlagið væri ekki staðreynd
myndi það líta út eins og skröksaga,’’
varð brezkum þingmanni að orði, er var
á ferð í gresjufylkjunum í fyrra. Hvern-
ig getur slíkur risi starfað, er rétt aðeins
hefir tekið mjólkurtennurnar, án þess að
velta um sjálfan sig? Og hvernig getur
venjulegur bóndi haft vit á því, að annast
svo giftusamlega jafn stórkostlega stofn-
un?
Maður hlýtur að játa að þetta virð-
ist ráðgáta, í fljótu bragði; þótt það sé
ekki svo dularfullt ef betur er að gáð.
Fyrst og fremst var samlagið ekki skipu-
lagt af “venjulegum bændium,” heldur af
bændum er í þrjátíu ár höfðu gengið í
reynzlunnar harða skóla. Svo ört sem
samlagið þaut úr grasi, þá stóðu þá að
því djúpar rætur.
Kanadiska bóndanum var ekki ó-
kunn breiðfylkingarframsókn að marki
efnalegs sjálfstæðis, og samlagið er að-
eins rökrétt afleiðing þrálátra tilrauna til
stórfelldrar skipuiagningar.
Athugum lítilfjörlegan viðburð frá
þessum hörðu skóladögum, áður en sam.
lagið komst á laggirnar:
Einn góðan veðurdag, haustið 1920
ók ungur bóndi frá Russell í Manitoba,
Tom Crerar að nafni, til bæjarins með
fyrsta hveitivagnfarm sinn, fimmtíu mæla
af úrvalsgóðu og hreinu hveiti “Nr 1 Nor-
thern.’’ “Fimmtíu og níu cent mælir-
inn,” sagði kornlyftustjórinn, er hann
hafði vegið hveitið. Nú var Tom Crerar
gáfaður bóndi og hann vissi að ‘‘Nr. 1
Northern” seldist á 78 cent mælirinn í
Fort William. Hann vissi líka, að flutn-
ingsgjaldið til Fort William var níu cent.
Með öðrum orðum: Kornlyftustjórinn
bauð honum tíu cent minna, en markaðs
verðið var. Hann var fús til þess að
greiða þrjú cent fyrir kornlyftuþjónustu
og höndlun á hveitinu, en fannst ástæöu-
lust að láta rýja sig um sjö cent á hvern
mæli fyrir þetta. Og þegar kornlyftu-
stjórinn sagði honum, að það yrði að
draga nokkuð frá fyrir illgresisfræ, ó-
hreinindi og ryk, rann hinum unga bónda
í skap, mótmælti sem örðugast. Kom-
lyftustjórinn hlustaði á hann með stök-
ustu ró, og bað hann svo að fara til hel-
vítis.
Crerar vissi að ekkert þýddi að leita
til annara kornlyftustjóra. Þeir voru
allir eins. “Farðu heim aftur með fjand-
ans hveitið þitt,” sagði kornlyftustjórinn
og brosti gikkslega.
Crerar seldi hveiti sitt, ók heim og
velti þessu fyrir sér. — Þessi saga er til-
færð úr “Deep Furrows,’’ eftir Moore-
house, ekki af því, að Crerar varð síðar
forstjóri einhvers stærsta kornverzlunar-
félags í heimi, landbúnaðarráðherra í
sambandsráðuneytinu og leiðtogi stjórn-
málaflokks í gresjufylkjunum, heldur sök
um þess, að hún er ljóst dæmi um það
ástand, er knúði á stað þá hreyfingu, sem
Hveitisamlagið á rót sína til að rekja.
Það er ekki lengra að minnast en til
aldamótanna, að bóndinn var eins og
bjargþrota hvítvoðungur í höndunum á
kornlyftufélögunum, er til kornhöndlun-
arinnar kom. Bóndinn varð að ganga
að því verði, sem kornlyftustjórinn bauð,
eða snúa heim aftur með korn sitt. Sum-
staðar reyndu bændur að vinna bug á
þessu með því að byggja kornlyftur með
héraðssamtökum, en þýddi lítið, því von-
laust var að keppa þannig við hin voldugu
félög, er lækkuðu verðið eða hækkuðu
þar sem þeim sýndist.
Svo komu ófriðarárin. Árin 1917
og 1918 var allt hveiti, er selt yar til út-
flutnings selt af “The Wheat Exporting
Company” og verðfest af nefnd er skip.
uð var af Kanadastjórn. Síðar var skip-
uð hveitinefnd Kanada, sem réði alger-
leg höndlun á öllu hveiti er ræktað var í
Vesturlandinu uppskeruárið 1919—20.
Hveitinefndin var nauðungarsamlag,
er náði til allra hveitiframleiðenda í
gresjufylkjunum þremur. Töluverð óá-
nægja spratt í fyrstu af þessari nauðung,
en þegar í gjalddaga koin breyttist óá-
nægjan í sigurgleði. Andvirðið var mið-
að við $2.63 fyrir “Nr. 1 Northern.” En
þá fór kornkauphöllin á stúfana og réðist
á Ottawa árið 1920. Stjórnin
lét undan og Hveitinefndin leið
út af. Bóndinn stóð enn bjarg-
ráðalaus og horfði á hveitiverð-
ið falla úr $2.78 í september
1920, í $1.76 í apríl 1921. Og
í nóvember 1921 var það komið
ofan í $1.11 hver mælir.
Enginn, sem ekki var þá hér
vestra, fær skilið þá beiskju, er
vitanlega hlaut að rísa af þessu
verðfalli. Nokkur hluti bænda
var á því, að stofna samlag sín
á meðal, en flestir hlýddu aðeins
einu herópi: “Hveitinefndin eða
ekkert!" Þegar púðursvælunni
létti var Meighenstjórnin á kné
komin og 65 framsóknarþing-
menn á leið til Ottawa með
samhuga atkvæði gresjufylkj-
anna upp á vasann.
Enn var bardaginn háður á hin
um pólitízka vígvelli. Stjórnar
lögmenn úrskurðuðu að sam-
bandsstjórnin gæti ekkert af
sjálfsdáðum gert, þar sem hún
færi ekki lengur með það sér-
staka vald, er ófriðarlöggjöfin
fékk henni í hendur.
Betur gæti stjórnin ekki gert,
en að fá samþykkt lög, er heim-
iluðu gresjufylkjunum þrem-
ur stjórnvaldaréttindi til þess
að koma á fót þjóðlegri umboðs
sölu á hveiti á samlagsgrund-
velli.
Þessi réttindi voru veitt sléttu
fylkjunum þremur snemma á
árinu 1922 og þegar í júlí, sama
ár, höfðu Alberta og Saskat-
chewanfylki samþykkt lög, er
að þessu lutu. Hveiti seldist nú
neðan við einn dal mælirinn—
borgaði ekki framleiðslukostnað
—en bændur létu þó ekki hug-
fallast. í Manitoba varð engu
tauti viðkomið af pólitízkum á-
stæðum, enda gengu kornverzl.
unarfélögin berserksgang til
þess að koma í veg fyrir það,
að nokkuð yrði aðhafst í þessa
átt í Manitoba. Svo fór, að
Manitobaþingið bar út hugmynd
ina með 24 atkvæðum gegn 21.
Það duldist svo sem engum að
kornmiðlunarhöllin hafði hér
verið á ferðinni.
Greenfield forsætisráðherra í
Alberta og Dunning í Saskat-
chewan reyndu nú sitt ítrasta
til þess að reyna að bjarga ein-
hverju af strandflakinu með
því að koma á laggirnar eins-
konar eftirlitsnefnd í þessum
tveim fylkjum, en sáu að til þess
var engin von, og var nú opin
berlega tilkynnt, að hugmyndin
um Hveitinefndina, sem Vestur-
landið setti til allt sitt traust,
hefði kafnað í fæðingunni.
, (Frh.).
Starfið mikla.
ÞaS er haft eftir hugsandi manni
frá öndverSri nítjándu öldinni, aö
nema fyrir þá, sem á spádómsgáfu
hans trúa, myndi hann setja veður-
spámanninn efst á skrá heimskingj-
anna.
En því skyldum vig skrásetja veSur
spámanninn sem heimskingja? ÞaS
lítilræSi, aS hann tileinkar sér þá
gáfu, aS vera forspár um veSur, er
ekki óræk sönnun þess, aS hann sé
bundinn hindurvitnum. ÞaS þyrfti
fyrst aS sannast, aS hann trySi sin-
um efgin spádómum. Og væri hann
nógu skyni skroppinn og auStrúa ti!
þess, þá er þaS móti líkum, aS
hann væri nógu snjall til þess aS
geta gert sér mat úr auStrú lysthaf-
enda sinna.— Því skyldum viS út-
hrópa van-skynsemi Fosters, og ann-
ara veSurspámanna ? ÞaS má vel
vera, aS þeir séu aSfinnsluverSir, en
ekki heimsku sinnar vegna.
* * *
Bækurnar, sem eiga tilveru sína aS
þakka auStrú almennings, eru legío. !
Bækurnar um útlegging drauma, til
dæmis, eru víSar til en i búSarglugg-
um; þær finnast undir ótal koddum.
Stjörnuspár og bollalestur tilheyra
ekki aSeins fortíSinni. VeSurspá-
dómsalmanakiS slagar hátt upp í
heilaga ritning aS útbreiSslu. Rit-
höfundurinn Swift reyndi meS kald-
hæSni aS snúa hug almennings gegn
stjörnuspámanninum Partridge; en
honum tókst sá starfi litiS betur en
Kíhóti tókst atiS viS vindmylnurn-
ar. Partridge, og postular hans, allt
til þessa dags, eiga þau ítök í hug
auStrúa almennings, aS háSsyrSi og
þyrnikórónur Swifts og annara
granda þeim ekki svo á beri. Hann
(og aSrir sumir hverjir sem hafa á sér
meiri hátignar-blæ) selur vör-
ur sinar þvi aSeins, aS um þær er
beSiS. Eftirspurnin knýr fram vör-
una; og auStrúa almenningur er
óseSjandi, en vörubirgSin ótæmandi
—fyrir þá einu ástæSu, aS verzlunin
borgar sig.
# ¥ #
MaSurinn hefir ætiS veriS, og er
ef til vill í eSli sínu, trúgjarn. Hon-
um er gjarnt til aS gleypa heilt (eins
og hvalurinn Jónas), staShæfingar
og gifurmælgi um hvaS eina, sem er
skilningi hans ofar, hvort um er aS
ræSa annaS líf eSa veSur á komandi
missiri. Hann óttast aS kannast
hreinskilnislega viS skort á þekking
eSa skilningi, og er því ljúfara aS
aShyllast sem vissu þaö sem aS hon-
um er rétt í þeim efnum. Eins og
Milton bendir á, er þaS ekki nóg aS
taka frá ágjarna manninum þaS sem
hann hefir nurlaS saman; hann býr
eftir sem áSur aS ágirnd sinni. Á
sama hátt er þaS tilgangslaust aS
svifta trúgjarna manninn öllum hans
hégiljum ef ekki er um leiS unnt aS
innleiSa hjá honum varúS viS oftrú.
AS svifta hann trausti á stjörnuspám,
veöurspám, huldufólki, eöa hverri
annari trú, sem hann kann aö hafa
þegiö, án þess um Ieiö aS koma honum
til aö hugsa, Oig grunda hugsun sína
á staSreyndum, veröur til þess eins,
aö opna hjá honum dyrnar fyrir
nýrri legíó hindurvitna.
DýrseSliS stendur ennþá mjög föst-
um rótum í manninum. Hugsun
hans er ennþá mjög skoröuö viS
þaS, sem honum er eiginlegt aö at-
hafast sem skepna, —aö metta mag-
an, framfleyta lífinu og sjá afkom-
endum borgiS. Þetta eru aöal lög-
mál lífsins. En sem yfirbygging á
þennan grundvöll hefir hann reist sér
höll óska sinna, og hana skreyta allar
þær vonir sem hann hefir igert sér um
framtíö sína. Hugsun hans nær
nógu langt til aö viSurkenna, og
undrast yfir, sínum eigin yfirburöum
yfir aSrar skepnur, og meS því til-
býr haún sér tilkall til áframhaldandi
lífs eftir dauSa líkamans. Sú von
verSur aS vissu, og meS þeirri vissu
skapar hann sér trúarkerfi um tilhög-
un og eSIi annars lífs. Óskin veröur
aS von og vonin aö vissu, sem skap-
ar sjálfsþótta, en á þann streng hans
leika svo öll þau hindurvitni sem
sjá hag sinn eflast viö aukna trú
hans og trúgirni.
Sjálfsþótti hans lýsir sér hvergi
betur en í því aS hann finnur ósk
sinni staS og réttlætinig í tilveru henn
ar; aö vonin sé sin eigin sönnun og
réttlæting; aS hvaS eina sem óskaö
sé eftir, sé fáanlegt; aö eöli hlutanna
og lífsins sé breytanlegt samkvæmt
ósk um breyting, og sjálf tilveran sé
undirgefin kunnáttu á trú, bæn og
eftirhermum. En allt byggist á
þeirri trú hans, aö heimurinn sé til
oröinn fyrir hann og í hans þágu.
MaSurinn hefir skapaö sér þá trú,
aS vegna þess, aö vitneskja um hið
ókomna sé honum arövænleg, þá sé
slík vitneskja fáanleg. Honum
finnst aS þaS hljóti aS vera einhver
sem viti, geti sagt honum hvaSa hest-
ur muni vinna veÖhlaupiS, eSa hvaS
muni taka viö eftir dauöann; þaS
hljóti aö vera vissir vegir til aS auög-
ast á veöhjólinu, og aö sjá sér borg-
iS í eilífri sælu. Hvers vegna?
Af því hann óskar þess, finnst hon-
um áö hann eigi heimting á því,
og lokar augunum fyrir þeim sann-
! leika, aö heimurinn er ekki tilorö-
! inn aSeins til aS hossa honum á
hnjám sér. Og vegna þess aS hann
heimtar slíka vitneskju, hefir skapaS
markaö fyrir slíka vitneskju, þá hef-
ir veriö dyg.gilega og kappsamlega
unniö aö því, aS veita honum allar
þær upplýsingar, sem hann hefir þráS.
Slík vitneskja er markaSsvara, fram-
leidd eftir kröfum á sama grundvelli
og matvæli, fatnaöur og hvaö ann-
aS, sem maöurinn krefst til viöur-
væris. Páfinn og veöurspámaöurinn
veröa réttlættir á sama grundvelli.
Embætti og atvinnú sina eiga báSir
aö þakka söniu ósk almúgans aö
sagt sé fyrir um framtíöar velgengni