Heimskringla - 28.08.1929, Blaðsíða 5
’WINNIPEG, 28. ÁGÚST, 1929
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA.
hans. Maðurinn sem gerir það að
atvinnu sinni, að segja fyrir um óorð-
in atvik, svo sem vinninga í veð-
hlaupum, eða markaðsverð á korni,
þjónar þrá þeirra, sem til hans
sækja eftir auðfenginni veraldarlegri
velgengni, en páfinn og þeir, er að
syndakvittun starfa, selja markaðs-
vöru sama eðlis, þó með nokkuð öðr-
um hætti sé. Nema fyrir þessa þrá
almúgans, sem vörurnar kaupir, og
trúgirni hans, sem skolleyrum skell-
>r við afsönnun reynslunnar, gæti
hvorugur þrifist.
* * *
Hver algáður maður ætti að vera
nógu hláturmildur, til þess að geta
hrosað er hann hugsar til þess, að
vitneskja fæst keypt um það, hvernig
veðhlaupið muni fara, eða hvaða
markaðsverð á korni muni verða að
vikum eða mánuðum liðnum —vitn-
eskja sem, væri hún ábyggileg,
myndi auðveldlega gera þá, er að
henni búa, auðuga á skömmum tíma.
I’að þarf mikla trúgirni þeirra,
sem leggja fram fé sitt til slíkra
kaupa. Húgsum oss, til dæmis, að
einhverjum auðnaðist að sjá svo fram
i tímann, að hann vissi hvaða verði
korn mvndi seljast í kauphöllinni í
Winnipeg í maí næsta vor. Væri
hann líklegur til að bjóða fyrir þókn-
un hverjum sem hafa vildi þá vitn-
eskju, sem honum hefði hlotnast?
Það lítilræði, að hann býður slíka
vitneskju til sölu, er bending.um, að
hann eigi alls ekki aðgang að henni.
Svu beint virðist þessi skilningur
liggja við, að ég fyndi mig knúðan
til að biðja lesarann forláts fyrir að
minnast á það, væru þessir forspáu
herrar ekki eins ágangssamir með
framboð á vöru sinni eins og þeir nú
eru. Ekki aðeins einstaklingar,
heldur og heil félög gera það nú að
atvinnu sinni (þetta á sérstaklega við
New York, þótt víðar sé pottur brot-
inn), að pránga með vitneskju
(“tips”ý um framtíðarverð á afurðum.
Verzlunin er sögð arðsöm fyrir þá,
sem hana reka, því nógur fjöldi nart-
ar í beituna.
En þó að þessi verzlun sé bæði
brosleg og brosverð, þá hlýtur þó
hver hugsandi maður um síðir að
komast við af meðaumkun og gráta
með Jesú frá Nazaret; ekki yfir trú-
leysi, heldur yfir trúgirni mannanna.
En að endingu hlýtur hann þó að
fyrirlíta, ekki aðeins verzlunina,
heldur og þá, sem að henni standa,
báðum megin við borðið, þá sem selja
og þá sem kaupa; og nær sú fyrir-
litning jafnt til þeirra, sem kaupa
vitneskju (“tips”) um framtíðarmark-
aðsverð á korni í von um veraldlegan
auð til þess að öðlast höfðingjaset-
ur i Tuxedo, og til þeirra, sem kaupa
sér sáluhjálparmeðöl í von um enn
eru ill, vega alls ekki upp á móti
þeim ódæðisverkum, sem sprottið hafa
af fáráðri einlægni. Þörfin hefir
ætíð verið, og er enn í dag, meiri á
því, að kalla réttláta til iðrunar en
þá “óréttlátu.” Einn sjálfbyrgings-
alvitringur, svo sem Kalvin eða
sánkti Ágústinus, getur komið meiru
illu til leiðar, beinlínis og óbeinlínis,
heldur en þúsund viðurkenndir ill-
virkjar.
* * *
StBrf hins sanna trúrofa verður
ekki við eina fjölina felt, — það, aö
leitast við að beina hugsun oftrúar-
manna frá læðing himnanna. Það er
ekki nóg, að svifta hann trú á hið
yfirnáttúrlega, og ganga svo frá
honum jafn móttækilegum fyrir hverj
um þeim hindurvitnasala, sem fyrst
ber að garði — kornkaupa- eða veð-
hlaupamiðlinum, til dæmis. Er trú-
in á syndakvittun páfans eða kunnáttu
veðhlaupaprangarans í eðli sínu rétt-
hærri en trú á galdra og huldufólk?
Við nána athugun verður ekki séð
að trú -manna hafi breytzt að eðli,
þó formið sé annað en þegar Öðinn
skipaði öndvegissessinn.
Starfið heimtar að ekki sé aðeins
veitzt að hinum eða öðrum trúar-
kerfum, þessa heims eða annars,
heldur sé öxin reidd að rótum sjálfr-
ar trúgirninnar. Maðurinn virðist
standa berskjalda fyrir auðtrú og of-
trú á Tivað eina, sem hann ekki skilur,
ef aðeins staöhæfingar um það eru
réttar að honum á yfirvaldslegan
hátt. Að finna meðalið við þeim
veikleika er verkefni fyrir hvern og
einn, sem í einlægni leitar sannleikans
á sviði þess verulega, en það meðal
verður að finna í útbreiðslu á þekk-
ing — 'jjisind;tllegri, beimspe|kilegri
og sálarfræðislegri.
Að leysa manninn úr læðing oftrú-
ar á öllum sviðum hugsunar, er
starfið mikla, sem framundan er
hverjum þeim, sem vill veita ljósi upp-
fræðslunnar inn í alla þá afkima þar
sem enn hjara draugar hjátrúarinnar,
þessa heims og annars.
—L. F.
Gullbrúðkaup.
28. júlí síðastl. var samsæti all-
veglegt og mannmargt haldiö i Lan-
gruth Hall, Langruth, Man., til að
minnast þess að ein öldruð heiðurs-
hjón þeirrar byggðar höfðu þá veriö
50 ár í hjónabandi. Nöfn þeirra
eru: Ólafur Þorleifsson og Guðbjörg
Guðnadóttir.
Fyrir samsætinu stóðu börn þeirra
hjóna og vinir þeirra. Engum
yngri en sextugum var boðið þang-
að; þótti vel við eiga að þeir gledd-
ust með heiðursgestunum það kveld
sem lengst böfðu borið byrði lífsins
og höfðu kynst þeim lengst. Ein
undantekning átti sér þó stað. Sá
sem ritar línur þessar var boðinn
er þangað, því höfuð lians er grátt, þó
hann sé ekki sextugur enn. Getur
hann þvi talið sig bæði ungan og
gamlan eftir atvikum. Var hann og
að hálfu leyti vinnumaður við þetta
tækifæri, því honum var ætlað að
halda ræðu og sjá um að aðrir gerðu
það líka.
Var fyrst sunginn sálmurinn “Hve
gott og fagurt,” sem flestir Islending
ar kannast við frá giftingardegi sín-
um. Var svo borðbæn flutt. Að
henni lokinni var veitingum gerð góð
skil. Þá flutti sá er ritar línur þess-
ar heiðursgestunum ávarp.
Var þar í kvæði “Til pabba og
niömmu,” orkt fyrir hönd barna
þeirra.¥ Var gullbrúðgumanuni
gefinn stafur einn fagur, en konu
hans silfurskál ein, en báðum sameigin
Iega nokkrir gullpeningar og banka
seðlar, er voru færðir þeim í silfur-
skálinni. Ekki man ég hvað upp-
hæðin var stór, en allir fundu til þess
hvað gjafirnar voru verðskuldaðar,
því vinir þeirra hjóna eru margir og
allir minnast þess hve drjúgan skerf
þau hafa lagt til menningar byggð-
arinnar.
Eftir að gjafirnar höfðu verið flutt
ar fram flutti ólafur Guðmundsson
frá Marshland frumort kvæði heið-
ursgestunum. Tók svo við hver
ræðan af annari.
Man ég ekki nöfn allra þeirra er
glæsilegra höfðingjabýli í dýrð hinn-
ar nýju Jerúsalem.
* * *
En þegar saga verzlunarinnar
skoðuð og gagnrýnd, verður það aug-
ljóst, að þeir, sem verzlunina reka
gera það fyrir orðastað og kröfur
hinna, sem kaupa. Hvað sem sagt
verður um þá verzlun, þá verður því
ekki neitað að sálusorgarinn liefir
til orðið, dafnað og þrifist allt frá
fyrstu dögum hugsunarinnar til vorra
tíma, fyrir þá einu ástæðu, að menn
þráðu hann, og sköpuðu honum kjör
og embætti. Hann varð við vilja
þeirra, Oig sagði þeim það, sem þeir
vildu heyra. Óttinn við hið ólþekkta
og ókomna, ásamt girndinni á fram-
tíðar velmegun, krafðist þess, að ein-
hver embættisstæður maður lofaði
þeim launum og fyrirliggjandi hag.
Veðurspámaðurinn og sáluhjálpar-
kaupmaðurinn settu upp baazara síni
fyrir sömu orð og óskir almennings
og nú hafa seitt fram andamiðilinn
og kauphallarspámanninn. Og svo
mikil er trú og trúgirni mannsins,
að fjöldinn af sálusorgurum og sjálf-
sagt einstaka veðurspámaður og mið-
ill, trúa þvi sjálfir, sem þeir prédika
öðrum. Biskuparnir grimmu á mið-
öldunum, sem brenndu fólk unnvörp-
um fyrir vantrú, voru efalaust ein-
lægir í þeirri hugsun sinni og trú,
að slíkt væri drottni þóknanleg fórn.
Enda eru ljótustu og blóði drifnustu
blög veraldarsögunnar einmitt u™ þá
hróka, sem vissastir voru um rétt-
mæti og nauðsyn verka sinna. 111
virkin er frömd voru, og eru, af ¥Birt á öðrum stað hér í blaðinu
illhug og sérplægni, vitandi að þau —Ritstj.
ræður héldu og vil því ekki nefna neitt
þeirra, en allar báru þær skýran vott
um vinarþel og þakklæti.
Tvenns verð ég að minnast sérstak-
lega vegna þess hve fagurt mér virt-
ist það. Kona ein þar i byggð (Mrs.
J. Hannesson) gaf heiðursgestunum
fáeina dali sérstaklega, til minningar
um foreldra sína Erlend og Margrétu
Erlendsson sem dóu siðastliðið ár í
Langruth og höfðu verið vinir gull-
brúðhjónanna. Elska til látinna for-
eldra og vinátta til vina þeirra kom
hér mjög fagurlega í ljós.
Hitt atriðið er kafli úr ræðu eins
sem talaði. Kvaðst hann á frumbýl-
ingsárunum hafa verið eitt sinn úr-
ræðalaus að leita hjálpar til að geta
veitt konu sinni læknishjálp, en um
lífið var að tefla. Var hjálp veitt
þar með glöðu geði, og var þó á
þeim dögum af litlu að miðla. Síðan
þetta skeði eru liðin mörg ár, en auð-
heyrt var á þakkarorðunum, sem sögð
voru, að kærleikurinn til velgerða-
manna á sér djúpar og varanlegar
rætur.
Efnahagur gullbrúðhjóna þessara
mun allgóður, þó ekki geti þau talist
rík. Hitt er víst að þau hafa unnið
fyrir sér og sínurn með iðjusemi og
hagsýni, enda verið mjög samhent í
starfi sínu. Hafa þau þó mörgum
fremur látið hjálp í té bæði mönn-
um og málefnum þeim er þau unnu.
Eitt þeirra er kristindómsmál þar i
byggð. Þeim málefnum hafa þau
unnað og unnið með trúmennsku; ber
hugsunarháttur barna þeirra þess ljós
astan vott.
Berist þessar linur til íslands þyk-
ir mér við eiga að bæta við örfáum
línum um æfi þeirra, svo kunningjar
og vinir á ættlandinu viti við hverja
er átt.
Ólafur Þorleifsson er fæddur 5.
jan. 1850 á Svartagili i Þingvalla-
sveit í Árnessýslu. Foreldrar hans
voru Þorleifur Ölafsson og Guðný
Oddsdóttir er bjuggu þar. Var hún
ættuð frá Reykjum í Lundareykjadal.
Guðbjörg Guðnadóttir er fædd i
Bræðratungu í Biskupstungum 13.
jan. 1851. Foreldrar hennar voru
Guðni Tómasson og Hólmfríður
Magnúsdóttir. Til Ameríku komu
)au Ólafur og Guðbjörg árið 1887.
Dvöldu þau í Winnipeg fyrstu árin
og vann Ölafur þar við smíðar, því
hann er smiður góður. Arið 1894
komu þau til Langruth-bvggðar og
námu þar land (Sec. 30; T. 16; R.
8J. Þar bjuggu þau þangað til
1918. Brugðu þau þá búi og byggðu
sér snoturt iíbúðarhús i Langruthbæ,
og eyða þar æfikvöldinu í kyrlátri
gleði; endurminningar þeirra eru
fagrar er þau líta yfir æfistarfið.
Börn þeirra eru: l)Guðni, verk-
færasali í Langruth, kvæntur Eyjólf-
ínu Gottfred, kennara; 2) Hólmfrið-
ur, kona S. B. Olsons, viðarsala í
Langruth; 3) Maria Sesselja, kona
Hallgr. Árnasonar Hannesson, bónda
Langruth-byggð; og 4J Anna, ógift,
fæst við verzlunarstörf í Winnipeg.
Eru þau foreldrum sínum lík að
ásýnd og innræti og unna þeim mjög.
Persónulega telur sá er ritar þessar
línur sig auðugri mann fyrir að hafa
kynst hjónum þessum. Flestir frum
byggjarnir islenzku sem hann hefir
kynst hafa skilið eftir í huga hans
minningar sem honum er gleði að hafa
eignast. Brjóta þær svo mjög bág
við hugarstefnu nútíðarinnar. Þó
margt sé vitanlega gott i nútíðar
menningu vorri, lærdómur meiri, og
fleiri tækifærin, telur hann lyndis-
einkunnir og hugsunarhátt landnem-
anna flestra eitt hið fegursta og nyt
samasta er hann hefir kynst. — Guð
blessi hjón þessi og veiti þeim fagurt
og friðsælt æfikveld.
—H. J. L.
* * *
Það er í dag, að kröfur tímans kalla
að koma og heiðra góðan bænda-
höld;
Gullbrúðhjónin gengið hafa alla
götuna þá og sigrað nú í kvöld.
Þau mættust ung, á morgni lifdaganna
er muni og ást við hjarta þeirra svaf
en nú var komin tími tilþrifanna,
er tók sér vald og tauminn lausan
gaf.
Heitorð sín þá hátíðlega bundu
og handsöl þeirra voru föst og
traust;
á vegferðinni sannan fésjóð fundu
| og fagna nú er lífsins nálgast haust.
Minningar frá mörgum liðnum árum
mætast hér sem eiga bros og tár,
en gleði og rósemd gráum undir
hárum
getur búið, aldur þó sé hár.
Fjöldi og múgur framsólknina
þreyta
fimmtíu ára hæðinni að ná,
en Engill dauðans hann er líka að
leita
og leyfir fáum gullhæðina að sjá.
Nú er lokið lífstarfinu að þjóna
en líta yfir bæði tíma og gröf;
blessun var í búi þeirra hjóna,
því bæði áttu stóra vöggugjöf.
Þau hafa lengi heimsferðinni haldið
með heiðri og sóma, er gaf þeim ást
og traust,
og þegar loksins þoku lyftist tjaldið
þá er líf, er verður endalaust.
Hvar sem gatan var í veröldinni
vita-ljósið hjá þeirn aldrei hvarf;
nú hlotnast þeim í hárri elli sinni
að horfa yfir fagurt æfistarf.
Eg bið nú guð að blessa stundir allar
brúðhjónanna, er með oss sitja í dag,
í ferðalok, þá fjörbrjóturinn kallar,
að fagurt verði þeirra sólarlag.
—o. s.
Frá Islandi.
Grasvöxtur á túnum ágætur. Flest-
ir búnir að slá fyrri slátt og margir
að hirða. Uthagi er snöggur og
miklir þurkar nú nm tíma.
Fiskur hefir verið hér mikill. Hæsti
bátur (4 menn) búinn að fá 70 skip
pund. Síld hefir verið hér afar
mikil, kom í maímánuði, og hefir
haldist hér siðan og er hér enn, bæði
inni í firði og úti í flóa.—Vísir.
Merkilegt rithandasafn
Helgi Árnason í Safnahúsinu er |
farinn að gefa út póstspjöld með
sýnishornum af frægum íslenzkum
handritum. Fyrsta sýnisihornið er
þegar komið á markaðinn, og er það
upphaf Passíusálmanna, með eigin-
hendi höfundarins, séra Hallgríms
Péturssonar. Mun mörgum leika |
hugur á að sjá.og eignast rithandar-
sýnishorn þessá mikla skálds, og I
þegar fram líða stundir, munu menn
geta eignast mjög verðmætt ■ safn
rithandarsýnishorna fyrir litið verð, |
með því að kaupa póstspjöld þessi.
—Vísir.
Okkar verð
er lœgst
Ástæt5an er sú, at5 allir eldri bíl-
ar eru keyptir þannig at5 vér
getum sta?5ist samkeppni hinna
undursamlegu nýju Ford Bíla,
sem seldir eru svo ódýrt.
Berit5 saman þetta verb vit5
þat5 sem abrir bjóba:
MODEL T
1923 Stake Body .....$125
1921 Express Body ...$350
1926 Stake Body .....$375
1925 Stake Body .....$290
1927 Stake Body .....$485
1925 Light Delivery .$185
1927 Light Delivery ..$325
VÆGIR SKILMÁLAR
Ögnmndur Sigurðsson,
skólastjóri Flensborgarskólans 11
Hafnarfirði varð sjötugur 10. júlí.
Ögnuindur skólastjóri þekkir land I
vort, flestum öðrum betur. Hann var
fylgdarmaður Þorvaldar Thoroddsen
á öllum ferðum hans um Island, og að |
stoðaði hann við þær miklu rann-
sóknir, sem hann gerði í þeim ferðum. I
Rannsóknarferðir Þorvaldar og Ög-
mundar sbóðu yfir í 14 ár, svo að víða
hafa þeir komið og margt hafa þeir
séð.
Síðan ferðum þessum lauk hefir I
Ögmundur verið leiðsögumaður út-1
lendinga í mörg sumur um landið.
Ögmundur hefir verið skólastjóri I
Flensborgarskólans um 20 ára skeið.
Og mun það sannmæli, að honum hafi
farið skólastjórnin óvenjulega vel úr
hendi. Hann hefir aldrei þurft að |
læitk hörku við nemendúr. Þeir
hafa virt hann og elskað og talið I
sjálfsagt að fara að vilja hans í hví- |
vetna.
Hann er frábær kennari. — Hann I
gerir námsgreinarnar skemtilegar og
lifandi, svo að allir hljóta að fylgjast|
með því, sem verið er að kenna.
Hann er talinn einn af beztu ensku- |
kennurum þessa lands.—Island.
Höfn, Bakkafirði, 20. júlí I
Vorið var ágæt hér um slóðir.
Sauðbitrður gekk vel hér við sjóinn
og fjöldi af ám tvílembdur.
KING’S LTD.
Menn er klæða sig vel
kjósa helzt
Blá Vaðmálsfot
Einhneppt eða tvíhneppt
Tvíhneppt vesti, hæzt móðins
ennfremur feldar huxur
$29-50 $3500 $39
.50
Viðfeldnir lánsskilmálar
Vægar afborganir
King's Ltd.
“The House of Credit’’
394 Portage Ave.
Opið á laugardögum
til 10 e. h.
Tomorrow’s C/earance of
EXCHANGED
FURN/TURE
will find many saving values worthy of your considera-
tion. Many of these pieces and suites have been recon-
ditioned and are like new. Early shoppers will select
best values and tíon’t forget you may arrange to
DIVIDE YOUR PURCHASE INTO CONVENIENT
PAYMENTS.
Furnish From Our Exchange Dept. and Save.
10 Porcelain Top Kitchen Tables, || Selection of 8 Davenports and
$33.50
Oak Dining-
$47.50
Range, with
$39.50
$19.75
almost new.
Each............
Kitchen Cabinet,
Special .......
Old English Oak
Buffet ........
8-Piece Fumed
room
Suite ..........
Moffat Electric
high
oven ...........
Canada Pride
Range ..........
Selection of Baby Carriages and
Strollers to go at HALF PRICE.
Velour Couch,
like new ....
5 Only Wicker
Tables, each
2-Piece Black and Gold Damask
Chesterfield ©fiö rn
Suite ................... ^OU.UU
2 Pairs Rose 0E
Portieres. Per pair. yViðv
15 White Enamel Beds; values
up to §4.00
each ..................
Verandah Chair
and Rocker, each . .
Dining-room Suite, Old Ene-
lish, almost
new
Davenettes;
Special
priced up to $32.50.
$5.95 | Special C 1 Sl 7C
C! 1 í 6aCh ....... $ I 9a I O
^ I *<Vv j| 2-Piece Chesterfield Suite,
$97.50
Suite, new-
$59.50
$12.50
$1.95
95s
$2.95
Old Ene-
$95.00
corded
jacquard
3-Piece Davanette
ly uphol-
stered
3-Piece Damask
Suite to
go at ...........
Selection of Hotel and Restaur-
ant Dinnerware specially priced to
clear.
Fumed Oak China Cabinet with
bent glass front.
Special ........
Mahogany Wardrobeg A gjk Cft
with large mirror^^“vðivVI
Large Walnut gnft Pfj
Finished Dresser. . 3pE.53.UU
Selection of Living-room Chairs.
Values to
$12.00 . . .
Large Cut Oak Wall
| Rack
Special
j Roll Top Desk, Single
| pedestal
I style
Chesterfield
$98.75
1 and Restaur-
icially priced to
i Cabinet with
$35.00
149.50
>29.50
oom Chairs.
$5.95
rall
$13.95
igle
$15.75
fh« kaliabli Homo Furmshor*
49aMAIN 6VaEET-PHONE 86667
ASK FOR
DryGincer Ale
ORSODA
Brewers Of
country'club*
BEER
GOLDEN GLOW
ALE
BANQUET ALE
XXX STOUT
DOMINION
Motor Go. Ltd.
FORT & GRAHAM 87 316
EVENINGS 87411
BR E\V E RV
OSBORN E &, MULVEY- Wl N NIPEG
PHONES 4I III 49304 56
PROMPT DELIVERY
TO PERMIT HOLDERS