Heimskringla - 28.08.1929, Page 8
S. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 28. ÁGÚST, 1929
Fjær og nær
Séra Þorgeir Jónsson messar aö
Árborg næstkomandi sunnudag 1.
september, kl. 2 e. m. SafnaSar-
fundur verður haldinn eftir messu.
Rev. R. J. Hall flytur messu í
Sambandskirkju á sunnudaginn kem-
ur, kl. 11 f. h, —Að kveldinu 'verður
og messað á venjulegum tima.
Séra Benjamín Kristjánsson flytur
mcssu í Pincy, Man. á sunnudaginn
kemur, 1. september, kl. 2 síðdegis.
Á laugardaginn var bauö Heim-
fararnefndin til hádegisveröar á Royal
Alexandra Hotel, dr. Vilhjálmi Stef-
ánssyni og ásamt honum ýmsum full-
trúum opinberra stofnana í Winnipeg-
borg og Manitobafylki, stjórnarnefnd
Þjóðræknisfélagsins og, Mr. Ch. An-
derson, förunaut dr. Vilhjálms frá
norðurskautsferð hans, þeim er fyrst-
ur sá Meighen Land, síðustu eyju eöa
landskika, sem fundist hefir á norður-
hveli jarðar; er Mr. Anderson nú í
fyrirlestraferð dr. Vilhjálms og ann-
•ast myndvarpsvélina. Voru rúmlega
tuttugu manns í samsætinu. Sam-
sætinu stýrði Guðmundur dómari
Grímsson, er mælti fáein orð fyrir
heiðursgestinum. Heiðurgestinn á
vörpuöu Dysart dómari; Mr. Dafoe,
aðalritstjóri “Free Press;” Mr. Flet-
cher, varakennslumálaráðherra Mani
tobafylkis; Mr. J. T. Thorson, M. P.,
og De Lury, prófessor við málm-
fræöadeild Manitobaháskóla, og eftir-
litsmaður nánia í Manitobafylki. Mr.
Sigfús Halldórs frá Höfnum söng
tvisvar, islenzk þjóðlög, með aðstoð
ungfrú Þorbjargar Bjarnason, og
skýrði þau stuttlega fyrir hinum ensku
mælandi gestum. Og að lokum flutti
heiðursgesturinn stutta, en sérlega á-
heyrilega og skemtilega ræðu þar
sem hann vék að því hlutverki sínu,
er hann heföi tekist á hendur með
fyrirlestrarferð sinni á vegum Ohau-
tauqua í sumar: að opna augu Kana
damanna fyrir þeim stórkostlegu auð
æfum er þetta mikla Iand bæri í skauti
aðallega þeir hlutar þess, er skóla
bækurnar teldu eyðilönd og gagns-
laust helgrindahjarn..
Á mánudagskveldið hélt All Souls
söfnuður og Sambandssöfnuður í
Winnipeg samsæti Rev. R. J. Hall, frá
Swansea í South Wales, sem hér er
staddur um þessar mundir, eins og
skýrt hefir verið frá. Ræður héldu
Dr. M. B. Halldórsson, Mr. Puttee,
Mr. Ransome og Rev. Philip Péturs-
son, en Mrs. P. S. Dalman, Miss
Nora Hawkins og Mr. Sigfús Hall-
dórs frá Höfnum skemtu með söng.
Heiðursgesturinn þakkaði með ítar-
legri og hjartnæmri ræðu, er hann
flutti af mikilli mælsku, enda er hann
Irlendingur að uppruna. Síðan var
sezt að ríkulegum veitingum, er fram
voru reiddar, og skemtu menn sér
fram undir miðnætti.
Björgvin Guðmundsson tónskáld, A.
R.C.M., byrjar aftur kennslu nú um
mánaðamótin. Ættu sérstaklega
þeir, er nokkuð eru á veg komnir í
hljómfræði ekki að setja sig úr færi
að leita til hans, þar sem völ er á
svo ágætri tilsögn í þeim efnum.
Kvöldboð að heimili dr. og frú M.
B. Halldórsson, 45 Alloway Ave. hér
í bæ, sátu á föstudagskveldið var
læknisfrú Sigríður Galbraith frá
Cavalier, N. D.; dr. Vilhjálmur
Stefánsson; prófessorsfrú Rygh, frá
Berkeley, Cal.; hr. Th. Halldórson,
Winnipeg; séra Magnús J. Skaptason;
ungfrú Hildur Halldórson, frá Up-
ham, N. D.; Guðmundur Grímsson
dómari, og hr. Sigfús Halidórs frá
Höfnum. Frú Inga Þorláksson frá
GuII Lake, Sask., systir dr. Vilhjálms,
er hér var stödd með frú Gaibraith,
varð því miður gð senda afboð, sökum
lasleika.
Þau systkin, frú Galbraith og hr.
Th. Halldórson, og einnig Grímson
dómari og dr. Halldórson, eru kunn-
ingjar dr. Viihjálms frá æskuárunum
í N. D., en langt síðan að dr. Vil-
hjálmur kom á þær stöðvar. Var
þar margt upp að rifja af gömlum
endurminningum, og skildust menn
eigi fyr en góð stund var af mið
nætti. —
Prófessor Thorbergur Thorvaldson
og frú hans komu hingað til bæjar-
ins um miðja síðustu viku á leið til
Evrópu. Verða þau árlangt í ferð
inni, sem fyrst er heitið til London
á Englandi, en síðan til Berlínar, þar
sem prófessorinn býst við að dvelja
á efnarannsóknarstofu að mestu leyti
í vetur. Héðan fóru þau hjón á
mánudagsmorguninn.
Á sunnudagskveldið var sátu kveld-
verð hjá Dysart dómara og systur
hans dr. Vilhjálmur Stefánsson; dóm-
arafrú Mathers; Joseph T. Thorson,
M. P. og frú hans, og Guðmundur
Grímsson dómari frá Rugby, N. D.—
Dysart dómari og dr. Vilhjálmur eru
háskólabræður frá Harvard háskóla.
Sígríður Galbraith, læknisfýú frá
Cavalier, kom hingað til bæjarins á
fimmtudaginn var og með henni frænd
konur hennar, Mrs. Ryg'h og Miss
Hildur Hajldorson. Einnig var í
ferð með þeim frú Inga Þorláksson frá
Gull Lake, Sask., er dvalið hefir um
tima sunnan landamæra. Mun hún
aðallega hafa komið til þess að sjá I Guðmundur Grimsson dómari frá
bróður sinn, dr. Vilhjálm Stefáns- Rugby, N. D., frú hans og tveir syn-
son, er hann var hér staddur i fyrir- ir komu hingað til bæjarins á mið
lestrarferð. Heinileiðis hélt þetta vikudaginn var til þess að heilsa upp
ferðafólk á mánudaginn var.-*- | á ganila kunningja, sérstaklega dr
Vilhjálm Stefánsson, en þeir Guð-
NOTIÐ YÐUR VELl mundur dómari og dr. Vilhjálmur
eru skólabræður og fornvinir. Frúirl
fór suður aftur á mánudaginn ásamt
! sonum þeirra hjóna en Mr. Grímsson
Hr. W. H. Paulson, fylkisþing-
maður Wynyardkjördæmis kom hing-
að til bæjarins snögga ferð í vikunni
sem leið til þess að sitja Heimfarar-
nefndarfund.
Næstkomandi sunnudag 1. septem-
ber, flytur séra Jóhann Bjarnason
þessar guðsþjónustur;
Á Betel, Gimli, kl. 10 f. m.
í lútersku kirkjunni á Gimli kl. 3
eftir miðdag.
I lútersku kirkjunni að Árnesi kl.
8 e. h.
Einnig verður séra Jóhann við
sunnudagaskólabyrjun á Gimli þann
dag kl. 1.30 e. h.
Séra Jóhann Bjarnason flytur
guðsþjónustu í Piney, á venjuleg-um
tíma og sta8, anpan sunnudag, 8.
september.
Síðastliðinn laugardag 24. þ. m.
voru þau Hjálmur V. Thorsteinsson
og ungfrú Aðalbjörg G. Helgason
gefin saman í hjónaband af séra Þor-
geiri Jónssynif Ungu hjónin ru
bæði ættuð frá Gimli, og framtíðar-
heimili þeirra verður þar fyrst um
sinn.
Af þeim hjónum Ásmundi P. Jó-
hanssyni og frú Sigríði hafa ættingj
um þeirra hér og vinum borist þær
fregnir, að Asmundur er rétt nýlega
lagður á stað heim til Islands, en
frú Sigríður varð eftir í Kaupmanna
höfn, á hressingarhæli þar, sér til
heilsuibótar. Er utanáskrift hennar
nú:
Dr. Christiansens Sanatorium,
Lille Strandvej 18,
Köbenhaven, Danmark.
Hr. Ragnar H. Ragnar píanókenn-
ari, sem stundað hefir kennslu í
Medicine Hat, Alta., undanfarin tvö
ár, flytur hingað til Winnipeg nú um
mánaðamótin og sezt að við píanó-
kennslu. Verður það nánar auglýst
siðar hér í blaðinu.
STILES & HUMPHRIES
VÖRU ÚTRÝMINGAR
Afsláttar
Söluna
miklu
FIT-RITE
Karlmanna-
fatnaður
Vér höfum týnt úr fatn-
að til fljótrar sölu. Mikið
úrval af hæzt móðins
Twfjed og Worsted fatn-
aði, ný sniðin og saumuð
eftir nýjustu tízku. í>au
eru sönn kjörkaup og á
meðal þeirra föt er kosta
$35.00.
dvelur hér fram undir vikulokin.
Mr. Sveinn Thorvaldson kaupmaður
fra Riverton, kom hingað til bæjar-
ins í vikunni sem leið, aðallega ti!
þess að sjá bróður sinn, Þorberg
prófessor Thorvaldson og frú hans,
áður en þau fóru til Evrópu. Dvaldi
hann hér fram um helgina.
Umboðsmaður stúkunnar Heklu, H.
Skaptfeld setti eftirfarandi meðlimi
í emibætti fyrir yfirstandandi árs-
fjórðung:
F. Æ. T.—Jón Marteinson
Æ. T.—Stefaníu Eydal
V. T.—'Salome Backman
R.—Gísli P. Magnússon
A. R.—S. B. Benediktson
F. R.—B. M. Long
G. —Joh. Th. Beck
K.—Helga Johnson
D.—Alla Guðmundsson
A. D.—Stefania Sigurdson
V.—Sigfús Árnason.
BÚLAND TIL SÖLU
Eða leigu, gott tækifæri fyrir dugleg-
an mann er vil'l stunda skepnurækt, og
koma sér þar fyrir er hann getur rekið
hana í stórum stíl. Öþrjótandi haga
ganga, uppsprettuvatn og fyrirtaks
engi er á landinu. Landið er einnig
gott til akuryrkju. Upplýsingar um;
söluskilmála veitir undirritaður eig- j
andi.
SIGURJÖN BJÖRNSSON,
1060 Dominion St., Winnipeg.
Sími 38 138.
WINNIPEG ECECTRIC RY.
Það er mannlegur breiskleiki að j
kvarta yfir því sem á móti blæs, en j
geta sjaldnar hins. Það er eigi ó-
títt að menn heyrist kvarta yfir þeim
verðmun sem orðinn er hjá þvi sem
var í gamla daga. Allt var ódýrara
þá, segja menn, og kaupgildi doll-
arsins meira. Þetta er satt. Síðan
1913 hefir innkaupsverð stigið um
50 af hundraði. Það virðist því
eigi ástæðulaust að kvarta, einkum
sé á hitt ekki litið að kaupgjald hef-
ir stigið meir en að sama skapi. Það
sem sjaldnast heyrist er að ein vöru-
tegund, er meira er notuð en nokkuru
sinni áður, — nefnilega rafafl —
hefir lækkað um 2/3 frá því sem hún
var 1913.
Framleiðsla rafafls var afar dýr,
og verðið því afar hátt. I Winnipeg
var rafafl þá framleitt með kolum.
En með notkun vatnsafls varð fram-
leiðsla ódýrari, og varð Winnipeg
Electric félagið fyrst til þess að nota
það. Þá var eftirspurnin lítil en
hefir síðan aukist og verðið farið sí
lækkandi. Fyrir 20 árum var naum-
ast það heimili í Winnipeg er notaði
rafáhöld af nokkurri tegund, en nú
munu þau fá, er ekki hafa fleiri en
færri. Fyrir þetta mætti menn þó
vera þakklátir, þegar þeir líta til
baka.
I
WONDERLAND
Winnipegs Coziest
Suburban Theatre
Þessir nemendur Stefáns Sölvason-
ar pianokennara stóðust vorprófin
við hljómlistaskólann í Toronto, er
haldin voru í júní i vor:
Introductory Gradc:—
Hazel Goodman —honors.
Elcmcntary Grade:—
Thelma Hallson,—first class
honors.
Florence Jóhannsson—first class
honors.
Sigriður Eirikson,—honors.
Alma Johnson,—honors.
Intermediate Grade:—
Mrs. W. Benson,—Pass.
FRÁ ISLANDI
Ágúst útsala
Loðkápum Nýjum
Loðbryddum Kápum
10% og 20%
Sparnaður
yfir ágúst
Munið — aðeins fáir dagar
eftir.
Vægir lánskilmálar
King’s Ltd.
‘‘House of Credit’’
394 Portage Ave.
(Næst Boyd Byggingunni)
THUR.—FRI.—SAT. (This Week)
REGINALD DENNY IN
‘CLEAR THE DECKS’
JOHNNY MACK BROWN IN
“Annapolis”
Chapt. 5—“Final Reckoning”_
MON.—TUES.—WED., Next Week
—Big Holiday Program—
WALLACE BEERY
In Zane Grey’s Great Novel
“STAIRS of SAND”
ADOLPHE MENJOU IN
“Marquis Preferred”
“Lightsöf India”
(All Coloured)
SPORTLIGHT—South Sea Sages
^MESSUR OG FUNDIR |
í kirkju Sambandssafnaðar j
[ Messur: — á hverjum sunnudegi
kl. 7. e.h.
Safnaðarnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuði.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kver.félagið: Fundir annan þriðju
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn; Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
iSunnudagaskólinn:— A hverjum
j sunnudegi kl. 11—12 f. h.
Alex Johnson kornkaupmaður og
frú hans lögðu nýlega í skemtiferð
til Detroit, New York og Chicago.
Búast þau við að verða um mánuð
í ferðinni eða jafnvel lengur.
Þann 19. þ. m. andaðist að heimili
sínu í Edmonton, Alta., Stefán Oliver,
sem lengi átti heima í Selkirk, Man.,
og var mörgum kunnur bæði í Selkirk
og Winnipeg. — Banamein hans var
magakrabbi. Hafði hann verið veik
ur af iþeirri meinsemd ár eða meira.
Hingað komu í síðustu viku Mr
Sig. Anderson; Einar Einarsson, odd-
viti, og Stefán Árnason sveitarskrif *>
ari frá I’iney, Man., ásamt Mrs. Ein-
arsson og Mrs. Árnason. Snéru þau
heimleiðis aftur um helgina eftir að
hafa hlýtt á dr. Stefánsson, og eftir
að sveitarráðsmennirnir höfðu lokið
erindum sínum í þágu sveitarinnar á
stjórnarskrifstofunum.
$19
Einnig eru öll önnur föt
á sérstöku affalla verði.
STILES &
HUMPHRIES
261 PORTAGE AVE.
Rétt við Dingwalls •
Mr. B. B. Olson frá Gimli kom
hingað til bæjarins um miðja vikuna
sem leið og dvaldi fram undir helg-
ina. Er heilsa hans nú aftur með
betra móti við það sem verið hefir.
Siðastliðinn laugardag lézt að
heimili sonar síns, að Ste. 22 Mary-
land Apts., ekkjan Guðríður Þor-
leifsson, 64 ára að aldri. Jarðarförin
fer fram kl. 11 f. h., fimmtudaginn
29. þ. m., að Lundar," Man. Séra
H. J. Leó jarðsyngur. Hin fram-
liðna lætur eftir sig sex börn; þrjár
stúlkur og þrjá drengi.
Lesendur eru beðnir að athuga
auglýsingu frá hr. Stefáni Sölvason
píanókennara, sem hér er prentuð á
ööðrum stað í blaðinu.
ROSE Theatre
Sargent at Arlington
The West End’s Finest Theatre
THUR.—FRI.—SAT. (This Week)
“THE
BELLAMY TRIAL”
With—BEATRICE JOY —
BETTY BRONSON
Added Feature for Sat. Mat. Only
BUCK JONES IN
“Blood Will Tell”
"TIGER’S SHADOW” No. 7
ALSO COMEDY
MON.—TUES.—WED.,
SEPT. 2—3—4
Special Matinee Labor Day
PART TALKING PICTURE
“THE
FLYING MARINE”
With BEN LYON and
SHIRLEY MASON
On The Same Bill—COMEDY
—A TALKING FEATURETTE
and NEWS
Seyðisfirði 3. ágúst
Öræfingar telja ólíklegt, að Skeið-
arárhlaup verði í sumar. Áin annars
feikna vatnsmikil og fellur á miðjum
sandi. Hún er ófær og hindrar teng
ing símaþráðarins, en að öðru leyti
komst símasamband á sunnanlands í
gær.
Heyskapur gengur ágætlega allstað-
ar á Austurlandi og hirt eftir hend-
inni. Votengi lélega sprottið á
Flj ótsdalshéraði, en túnaspretta á-
gæt.
Þorskafli dágóður og sildveiði ágæt
víðsvegar á Austfjörðum. Síldin stór
og feit. Sumir hafa þegar saltað
svo sem einkasöluleyfi hrekkur til.
Horfir því til vandræða um veiði
vegna vöntunar bræðslustöðvar, þegar
söltunarleyfi er svo takmarkað, það
er aðeins 1500 tunnur á öllu Austur-
landi. Almenn óánægja yfir því.
Stefán Sölvason
byrjar kennslu fyrir pianonemendur
2. September
Kennslustofan er að
868 Banning Street Sími: 89 511
Látið ekki tjóðra yður í eldhúsinu
Nýtízku vinnusparnaðar áhöld og gas leysa húsmæður nú á
dögum úr eldhúsánauðinni.
Leyfið oss að sýna yður hinar nýju undursömu framfarir með
gas notktin, og raftækjum er gerðar liafa verið.
Kosta lítið — viðhaldið ódýrt — seld á vægum borgunarskil-
málum.
---Heimsœkið hinn nýja áhaldaskála vorn í-
Power Byggingunni — Portage og Vaughan st.
WIHHIPEC^ BLECTBIC compamy
“Your Guarantee of Good Service”
THREE STORES: Appliance Department, Power Building; 1841 Portage
Ave., St. James; Cor. Marion and Tache, St. Boniface.
^"^“^^SMsooossoeoosiooöooooosooooeooooícscowBooeeooosoossoooooosoosoooosoíosoí
Bus/ness Training Pays~—
especially
Success Training
More than 2700 employment calls for our graduates were
registered with our Placement Department during the
past twelve months and more than 700 in May, June
and July of this year.
FALL TERM NOW OPEN
DAY AND EVENING CLASSES
I
If you cannot enroll then you may start at any time.
Our system of individual instruction makes this possible.
WRITE, PHONE OR CALL
CORNER PORTAGE AVE. AND EDMONTON St.
WINNIPEG MANITOBA