Heimskringla - 04.09.1929, Síða 5
WINNIPEG, 4. SEPT., 1929
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA.
Sem sýnir sig með mynd þessari, er verki nú mjög hraðað við Sjö Systra fossa, af North
West Power Co., Ltd., aukafélagi Winnipeg Electric félagsins. Myndinn sýnir stýflugarðinn er
lagður er yfir fljótið og grunninn þar sem orkustöðvarnar verða reistar.
SJÖ SYSTRA FOSSAR.
Á sextugasta hjónabandsafmæli Daníels Sigurðssonar
og Kristíönui Jörundsdóttur.
Þið tókuð, vinir, móti mér
á mínum hrakningsárum.
Og velgjörð þá mér þekkast er
að þakka æ með tárum.
Sá veit það bezt, sem erfitt á,
hve inndælt er að finna þá,
er draga sviða úr sárum.
Við gleðjumst öll með ykkur nú,
á ykkar merkis-degi.
Þið hafið verið trygg og trú
og traust á lífsins vegi.
Við ykkur brosir himinn hár
og höfuð krýna sextíu ár.
Það margir öðlast eigi.
Og þeim við skulum þakkir tjá
og þeirra minning geyma.
Og beztu óskir öllum frá
að öldnum garði streyma.
Og drottinn ykkur leggi lið
og leiði bæði sér við hlið
til æðstu unaðsheima.
V. J. Guttormsson.
hugmyndagáfur þeirra fá að njóta
sín, þegar eitthvað er upp úr mann-
viti aS hafa, mun það sjást, að hér
eru til hugvitsmenn, jafnvel á borð
við aðra eins snillinga og Edison og
Marconi. Það eitt hefir á vantað
að slíkum mönnum skyti upp, að
hægt væri að gera sér mat úr upp-
finningum. En sem sagt, nú fer
þeta áð breytast og er þvi nauðsyn-
legt, að ísland gangi i einkaleyfis-
sambandið hið allra fyrsta, til þess
að tryggja rétt þegna sinna á þeim
uppfinningum, er þeir kynnu að gera.
Kjerúlf hefir breytt sinni upp-
götvun nokkuð síðan hann fékk einka
leyfi á henni í Danmörku, en þeini
breytingum verður ekki lýst hér. Til
dæmis um það hvernig sérfræðingunt
lízt á uppgötvunina, þykir rétt að
birta hér álit Hvalsöe oberslöjtnant,
fyrverandi forstjóra vopnabúrs danska
hersins. Hann segir svo :
“Danska einkaleyfisnefndin veitir
ekki einkaleyfi á neinar uppfinningar,
er hún álítur að stríði gegn viður-
kenndu náttúrulögmáli, og því álít ég,
að um leið og hún hefir veitt E.
Kjerúlf lækni einkaleyfi fyrir því
áhaldi, sem hann hefir fundið upp,
þá sé það sönnun þess að uppfinn-
ingin sé byggð á réttum grundvelli.
er dó í æsku, og son, Kristinn að
nafni, er lifir föður sinn og býr á arf-
leifð sinni.
M’iðkonan hét Aðalbjörg Jóns-
dóttir. Voru þau saman aðeins fá
ár unz hann varð að sjá henni á bak.
Þeim varð ei barna auðið. Síðasta
konan heitir Sigurlaug Þóranna Guð-
mundsdóttir er lifir mann sinn og
býr hjá stjúpsyni síiium. Eignuð-
ust þau tvö börn er bæði dóu í æsku.
Jóhann og Sigurlaug bjuggu sam-
an í kringum 40 ár. Hjónaband
þeirra var gott og farsælt. Bless-
aði guð efni þeirra. Þau voru
gestrisin, glöð og skemtileg heim að
sækja, og við endalok samverutím-
ans má með sanni segja að hún og
sonur hans eiga heiður skilið fyrir
þá alúð og aðhjúkrun, er þau veittu
i hans langa sjúkdómsstríði, er var
aði nieir en hálft annað ár. Bana-
meinið var afleiðing af slagi.
Jóhann sál. var vel gefinn maður,
bæði til sálar og líkama, vel og kná-
lega vaxinn, fríður maður sinum, að-
laðandi og framkoman djarfmannleig. |
Það mátti segja að hvert verk Jék í j
hendi hans, er hann snerti á; hann !
var góður járnsmiður, enda æfði j
hann það nokkuð heima á gamia
landinu. H'ann var nærfærinn við
skepnur og fór svo vel með skepnur
sínar að fyrirmynd var að.
Hæfileikar Jóhanns sál. voru mjög
áberandi. Hann hugsaði svo frjáls-
mannlega, var svo góður og skemmti
legur, hló svo fallega, talaði svo
skýrt og skilmerkilega, var fyndinn
og orðheppinn, friðsamur og kristi-
lega hugsandi. Hann var góður
lesari og hélt uppi húslestrum í skól-
anum okkar i mörg sumur. Jóhann
heitinn hafði ágæta söng hæfileika;
röddin svo hljómmikil og falleg, svo
fuilkomin og aðlaðandi, að margir
höfðu ánægju af að heyra Jóhann
syngja. Hefði hann á uppvaxtar-
árunum notið söngmenntunar, hefði
hann orðið einn af þessum góðu
söngmönnum, en þá var ekkert tæki-
færi til þess, enda minna gert, að
blúa að góðu fræjunum en nú er gert.
Jóhann sál. var sann frjálslyndur mað
ur í skoðunum, í hvaða máli sem
var. Hann lét samvizku sína ávalt
bera sannleikanum vitni, mildur í dóm
um um aðra, enda álitinn valmenni
af samferðamönnunum, og hélt áliti
og virðingu til síðustu stundar.
Þessi litla og fámenna byggð hefir
misst einn sinn bezta mann. Hann
var líka einn af frumbyggjunum og
einn hinna íslenzku brautryðjenda í
Ameriku. Hans góða sál er kom-
in til vina sinna í öðru Hfi, og búin
að lifa og njóta, búin að líða og
striða hér í heimi.
Það má segja um Jójhann heitinn
er kveðið var um annan:
“Já, fáir þeir reynast þeir sem þú,
í þraut og gleði hreinn,
með drenglynt hjarta tryiggð og trú,
sem tældir aidrei neinn.
Hve sælt þeir heimsins enda ár,
er eilíf byrjar ró,
að hafa engum höggvið sár,
en halda velli þó.”
M. J.
HEIÐARLEGAR viðskiftareglur og sú stefna að
færa út verzlunina smám saman hafa í sex-
tíu ár einkent viðgang þessarar bankastofnanar.
Nú, sem einhver stærsta og öflugasta bankastofn-
un í heimi, styður bankinn allar tegundir stóriðnað-
ar og verzlunar heima fyrir og viðskifti í mörkuðum
utanlands.
The Royal 8ank
of Canada
Eiríkur Kjerúlf og
straummælir hans.
R’vík. 28. júlí 1929.'
Eirikur Kjerúlf læknir er nýlega
kominn hingað og hefir hann að
undanförnu verið að vinna að upp-
götvun sinni um straummæli á skip-
um og athuga um einkaleyfi á henni
í ýmsum löndum.
Hinn 27. maí í fyrra skýrði Morg-
unblaðið frá uppgötvún þessari, sem
er afar merkileg, sérstaklega vegna
þess hvað hún byggist á einföldu
náttúrulögmáli. Beztu uppgötvanir,
eða þær hagnýtustu, hafa jafnan
byggst á því, að einhver hefir tekið
eftir náttúrulögmáli, sem aðrir höfðu
ekki komið auga á, og fundið tök á
að færa mannkyninu það í nyt. I
hinni umgetnu grein Morgunblaðsins
er' uppgötvun þesasri nokkuð lýst, og
myndir birtar til skýringar. Hafði
Kjerúlf þá tekið einkaleyfi á þessari
uppgötvan sinni í Danmörku, og
vegna þess að hann er íslenzkur þegn,
og ísland er ekki í alheiniseinkaleyfa-
sambandinu, verður hann, þrátt fyr-
ir sameiginlegan borgararétt Islend-
inga og Dana, að tryggja sér jafn-
hliða einkarétt hjá öllum helztu
siglingaþjóðum heimsins, ef hann vill
ekki eiga það á hættu að uppgötvun-
inni sé stolið.
Dönsk einkaleyfislög mæla svo fyr-
ir, að engu, sem sé þýðingarlaust,
eða brjóti i bág við náttúrulögmálið,
verði veitt einkaleyfishelgi. En sé
veitt einkaleyfi á uppfinning, gildir
hún til 15 ára óbreytt, og fær jafn-
framt þá friðhelgi, að sé sótt um
einkaleyfi á henni í öðrum löndum,
sem í sambandinu eru, innan árs, þá
skoðast sú umsókn jafn snemma
fram komin og hin fyrsta. Er þetta
hugvitsmönnum trygging fyrir því,
að uppfinning sé ekki stolið frá þeim
og er það aðalkostur sambandsins.
Vér Islendingar höfum átt fáæ hug-
vitsmenn, og fer það máske að von-
um, þar sem þanniig hefir verið á-
statt fram að þessu, og íslendingar
hafa ekki átt þess kost að hagnýta
sér uppgötvanir, þar sem engin véla-
menning hefir verið hér og allt hefir
orðið að sækja til útlanda.' En nú
er þetta að breytast og með auknum
samgöngum færist Island sífellt nær
umheiminum og er nú einmitt að
rísa sú öld að íslenzkt hyggjuvit getur
látið til sín taka. Og það það þarf
eniginn að halda að íslendingar sé
skyni skroppnari en aðrir. Þegar
Eg hefi nákvæmlega athugað áhald
þetta og notkunarreglur þess, og ég
get fullyrt,, að þar sem grundvallar-
hugmyndin að notkun þessa áhalds er
rétt, þá er þetta framúrskarandi góð
(Frh. á 8. bls.J
Okkar verð
er lœgst
AstætSan er sú, a?5 allir eldri bll-
ar eru keyptir þanntg ab vér
getum stabist samkeppni hinna
undursamlegu nýju Ford Bíla,
sem seldir eru svo ódýrt.
BeriÓ saman þetta verb vib
þab sem abrir bjóba:
1925 Touring ............$150
1928 Roadster............$495
1925 Coupe .............$215
1926 Coupe .............$325
1928 Sport Coupe ........$650
1928 Coupe ..............$600
1925 Tudor .............$265
1926 Tudor .............$345
1928 Tudor ..............$650
1926 Fordor Ruckstell
Axle ..................$450
VÆGIR SKILMÁLAR
DOMTNION
Motor Co. Ltd.
FORT & GRAHAM 87 316
EVENINGS 874X1
VINSAMLEGT BRÉF TIL MÆÐRA
I samræmi við þær
breytingar og fram-
farir sem orðið hafa
á síðastl. 52 árum,
hefir
DREWRYS
Er ávalt hefir bruggað
helzta bjór vesturlandsins
—haldið vinsældum sín-
um meðal almennings með
STANDARD
LÁGEH n
fullkomnað hef
ir verið með 52 ára
reynslu með ölgerð.
Nú þegar börnin byrja að
ganga á skólann
VER vonum að þér og fólk yðar hafi haft bæði ánægjulega og hressandi sumarhvíld, og
að heilsa yðar og kraftar, er þér hafið safnað með útiverunni í sólskininu og ferska
loftinu endist yður á næstkomandi hausti og vetri.
Það er ein leið til þess, að þér megið stuðla að því og hún er sú, að þér igefið börnunum,
sérstaklega, nóg af heilsusamlegri og nærandi fæðu — svo sem brauði, smjöri, mjólk og
eggjum. Vér vitum það á þessum “nettleika tímum” er stúlkum, sérstaklega, mjög ant
um að halda vaxtarlagi sínu sem “drengjalegustu” og sannarlega virðum vér þær fyrir það.
En það er ekki skynsamlegt oð fórna heilsunni fyrir það, eða eiiga það á hættu að verða
blóðlítill og magnlaus.
Brauð, til dæmis, er ekki fitandi, sízt hinar léttari og fínni tegundir, svo sem Svisneskt
brauð, brún eða alhveitibrauð. Þau brauð, ef étin skynsamlega, styrkja líkamann og
næra blóðið, og auka mótstöðuaflið gegn kvefi og öðrum smákvillum sem líkaminn á vanda
fyrir. Ennfremur munu læknar segja yður það, að nóg af hvítu brauði og smjöri sé ein-
hver bezta fæðan fyrir börn — auk þess sem hún er með þeim ódýrustu. Soðið brauð og
mjólk með svolitlu af sykri út á er fyrirtaks morgun og kvöldmatur, — léttur — lystuigur
— seðjandi — og nærandi.
Hvað er að segja um Canada Brauð? Allt bakarí brauð er gott og það er ekki auðvelt að
sanna að Canada Brauð sé öðru betra eða bezt. En eðlilega álítum vér að svo sé, fyrir
þá ástæðu að vér kaupum til þess aðeins það bezta sem fæst af hverri tegund, og hrær-
um það og bökum með hinni mestu nærgætni. Vér vitum þess vegna að betra brauð verður
ekki búið til. Því ef svo væri þá myndum vér búa það til.
Þess vegna ef þér eruð ekki skiftavinur Canada Bread, vildum vér vita hvort þér vilduð
ekki vera svo góð að reyna það í viku tíma eða svo? Að því loknu, ef heimilisfólki yðar
fellur það þá haldið áfram að neyta þess; en ef ekki þá reynið annað bakarí. Er það ekki
sanngj arnt ?
Treystándi því að þér viljið vera svo góð að reyna þessar vörur vorar,
Erum vér yðar einlægir,
CANADA BREAD CO., LTD.
P.S. Auk margskonar brauðtegunda
búum vér til óteljandi tegundir af
pie, sætabrauði, kleinum og smákökum.
A. A. RYLEY
Aðal ráðsmaður.
Canada Bread
Loaves and Cakes to Tempt ali Appetites