Heimskringla - 18.09.1929, Side 1
FATAXrPUJT OQ HRRIBfSUIV
Hlíie* Av*. and Simooe Stf.
Hattar hrein«aðlr og endnruýjaOir.
Betrl hreinaun Jafnðdýr.
.rlc unntS 4 1 desl.
ELLICE AVE., and SIMCOE STE.
Wlnnipegr —«— Man.
Dept.
X'UII. ARGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 18. SEPT., 1929
NÚMER 51
HELZTU FRÉTTIR
KANADA
_;_______________________Hí
Frá Ottawa var símag 10. þ. m.,
að samkvæmt skýrslum frá hagstofu
rtkisins væri búist viö að hveitiupp-
skeran í öllu rikinu myndi nema
tæpum 294,000,000 mælum í ár, og
tæpum 270,000,000 í gresjufylkjunum
þremur. Árið sem leið nam hveiti
uppskera alls ríkisins 566,726,000 mæl-
unt, (og er það mesta uppskera er
nokkurntíma hefir fengist í Kanada),
en 544,598,000 mælum í gresjufylkj-
unum. Segir þessi stjórnarskýrsla
að þetta muni verða að vöxtunum
minnsta uppskera, er í Kanada hefir
fengist síðan 1914, er hún nam rúm-
um 262,000,000 mælum. — Til fróð-
leiks skal hér sett tabla yfir það er
fék^t af ekrunni í fyrra, að meðal-
tali og það sem áætlað er að íást
muni í ár af ýmsum korntegundum,
reiknað í mælum:
1929 1928
Aætlað Uppskera
Hausthveiti 26.5 24.5
Vorhveiti 11.1 23.5
Allt hveiti 11.6 23.5
Hafrar 22.8 34.4
Bygg 18.0 27.9
Haustrúgur 5.3 17.3
Vorrúgur 12.5 17.6
Allur rúgur 14.4 17.4
Hörkorn 5.7 9.6
Sömuleiðis flytur hagstofuskýrslan
aðra töblu, er sýnir hina áætluðu upp
skeru allra korntegunda i ár, reikn-
aða í mælum, samanborið við upp-
skeruna er fékkst í fyrva, og er hún
þannig:
, 1929 1928
Áætlað Uppskera
Haust- hveiti 22,066,000 20,054,000
Vorhveiti .... 271,726,000 546,672,000
Allt hveiti.... 293,792,000 566,726,000
Hafrar .... 284,588,000 452,153,000
Bygg ....... 106,201,000 136,391,400
Haustrúgur 10,189,000 . 10,378,000
Vorrúgur .... 4,102,500 4,239,700
Allur rúgur 14,291,500 14,617,700
Hörkorn .... 2,159,000 3,164,400
1 gresjufylkjunum þremur er árs-
áætlunin nú, samanborin við uppsker-
una í fyrra (í svigumj á þessa lei?5,:
Hveiti, 269,471,000 (544,598,000);
hafrar, 142,912,000 (297,660,000);
bygg, 83,858,000 (112,684,000); rúg-
ur, 13,017,000 (13,158,000); hörkorn
2,079,000 (3,519,000).
En í hverju gresjufylkinu fyrir sig
er samanburðurinn á þessa leið:
Manitoba: Hveiti, 31,248,000 (52,-
383,000); hafrar, 30,781,000 (53,376,-
000); bygg, 38,014,000 (52,569,000;
rúgur, 1,368,000 (2,066,000); hör-
korn, 485,000 (804,000).
Saskatchewan: Hveiti, i51,676,-
000 (321,215,000); hafrar, 68,944,-
000 (156,043,000); bygg, 32,983,000
(44,266,000); rúgur 9,053,000 (8,412,-
000); hörkorn 1,521,000 (2,054,000).
Albcrta: Hveiti 86,547,000 (171,-
000,000) ; hafrar, 43,186,000 (88,257,-
000); bygg, 12,861,000 (15,849,-
000); rúgur 2,596,000 (2,680,000);
hörkorn, 73,000 (61,000).
Samkvæmt símskeyti frá Regina i
vikunni sem leið skipa þessir hið ný-
myndaða r'áðuneyti dr. Anderson:
Dr. J. T. M. Anderson, forsætis-
ráðherra; Hon. M. A. McPherson,
dómsmálaráðherra; Hon. W. C.
Buckle, landbúnaðarráðherra; Hon.
J. H. Merkley, fylkisstjóri og vinnu-
og iðnaðarráðherra; Hon. Howard
McConnell, fjármálaráðherra og fer
hann einnig með sveitamál og prent-
Verk fylkisstjórnarinnar; Hon. J. F.
Bryant, ráðherra opinberra verka, og
er í hans umsjá símakerfi fylkisins,
eftirlit með eldsvoðalöggjöf og vá-
tryggingarlöggjöf fylkisins; Hón. F.
D. Munroe, M. D., heilbrigðismála-
ráðherra; Hon. A. C. Stewart, járn-
brauta- og samgöngumálaráðherra;
Hon. R. D. Stipe, ráðherra án em-
bættiskvaður (portfólio), og Hon.
M. W. Smith, ráðherra án embættis-
kvaður.
Samkvæmt venju verða þessir nýju
ráöherrar að leita endurkosningar i
kjördæmum sínum. Fara sumar
kosningarnar frani 7. október, en
aðrar 14. október. Er álitið að lít>-
eralar muni engan frambjóðenda hafa
í kjöri gegn dr. Anderson og majór
McPherson, í Saskatoon og Regina,
og jafnvel heldur ekki í Moose Jaw
og Moosomin, gegn Mr. Merkeley og
dr. Munroe. I hinum kjördæmunum
munu þeir áreiðanlega hafa fram-
bjóðanda í kjöri.
Nýlega víðvarpaði dr. Andersop og
sumir ráðherrar hans frá Regina,
erindi til kjósenda. Kvað dr. An-
derson sér umhugað um, að halda öll
sín kosningaloforð, og eins hinir ráð-
herrarnir. Mr. Stewart kvað gang-
skör myndi verða gerð að því, að
létta undir með suðurhluta fylkisins,
er verst hafði orðið úti af þurkun-
um. Mikið starf lægi einnig fyrir
hendi, að koma vegamálunum í gott
horf. Hafði hann komist að því, er
hann tók við embættinu, að $4,000,-
000 er veittir hefðu verið til vega á
síðasta þingi hefðu allir verið nof-
aðir, og $800,000 betur.
Landðúnaðarráðherrann lagði á-
herzlu á það, að hann myndi herða
á eftirlitinu* með upprætingu illgresis
um allt fyíkið og flestir hinna ráð-
herranna lofuðu aðgerðum til þeirra
endurbóta, er þeir höfðu á stefnuskrá
sinni fyrir kjósendum. Sérstaklega
lofaði dómsmálaráðherrann röggsam-
legit eftirliti með lögunum og að þau
skuli ganga jafnt yfir alla. Hafa
einnig borist fregnir um það, í því
sambandi, að hafin muni sakamáls-
rannsókn ntjög bráðlega á hendur
Gyðingnum Bronfman, þeim er kennd-
ur var mest við vínsmyglun, en hin
fráfarandi stjórn ekki treystist til
^tess að lögsækja né heldur sam-
bandsstjórnin, heldur vísaði hver frá
sér til hinnar. •
Bæjarstjórnarkosningar hér i Win-
nipeg eiga fram að fara 22. nóvem-
ber, og er tilnefningardagur ákveð-
inn 8. nóvember. Kjörtímabil þess
ara bæjarstjórnarmanna er á enda:
Leonard, Kennedy og Farmer í 1. kjör
deild; Davidson, Flye og Hare í 2.
kjördeild og Durward, Blumberg og
Barry í 3. kjördeild. —Fkki vita menn
enn, hvort McLean bæjarstjóri muni
sækja^um embættið i þriðja sinni.
Flogið hefir fyrir að McKerchar
bæjarráðsmaður muni sækja, en þó
því aðeins, að McLean ekki gefi kost
á sér ‘ aftur. Fkki mun heldur neitt
ráðið um það, hvort verkamanna-
flokkurinn muni láta nokkurn af sín
um mönnum sækja um borgarstjóra-
embættið.
Tilkynnt hefir verið opinberlega, að
Brackenstjórnin ætli $725,000 tilopin-
berra verka í vetur, vegagerða og
bygginga, til þess að ráða bót á at-
vinnuleysinu, að því leyti% sem hún
treystir sér til. Af þesasri upphæð
vgrður $225,000 varið til byggingar
geðveikraspítala (viðbætir við spítal"-
ann í Selkirk); $200,000 til þess að
byrja á “Trans-Canada”-þjóðvegin-
um austur frá Whitemouth, áleiðis til
landamæra Manitoba og Ontariofylkja
og $300,000 til þess að byggja nýtt
fylkis-fangelsi. Afréði stjórnin að
bíða með þessar framkvæmdir til
vetrarins, er atvinnuskortur færi að
kreppa að, þegar er hún hafði full-
vissað sig um að vetrarríkið myndi
ekki verða þeim til hindrunar. Byrjað
var á fangelsisbyggingunni fyrir
nokkrum vikum síðan, og verður
fangelsið við Portage avenue, einni
mílu vestur af Headingly. Verður
þar rúm fyrir hér um bil 300 fanga.
Hin fyrirhugaða spítalabygging í
Selkirk á að hafa rúm fyrir 175
sjúklinga.
1 gær mun hafa verið lagt i haf-
með fyrsta kornfarm frá Kanada, frá
endastöð Hudsonflóabrautarinnar,
Churchill höfninni. Fkki er þó
nema um eitt tonn að ræða, flutt í
sekkjum. Er það gufuskipið “Ung-
ava,” er farminn ber. Tekur það
kol í Lake Harbor í Hudsonsundinu
og heldur slðan til St. John á Ný-
fundnalandi, þar sem kornfarminum
verður skipað yfir í gufuskip Hud-
son’s Bay félagsins, “Nescopi,” er
síðan heldur með farminn til London,
og afhendir hann þar Hudson’s Bay
félaginu.
Að þetta sé ekki leikur einn, má
bezt sjá á því, að samkvæmt yfir-
lýsingu frá Mr. Dunning, samgöngu-
málaráðherra í Ottawa, verður bráð-
lega byrjað að byggja kornlyftu ÍJ eríku, þvert um Atlanzhaf.
Churchill, er tekur 2,000,000 mæla
korns, en áður hafði aðeins verið
gert ráð fyrir kornlyftu, er tæki 1,-
000,000 mæla.
Ekki hefir enn tekist að komast
íyrir um upptök eldsins, er eyðilagði
Medway Court um daginn og mest
manntjónið hlauzt uf. En kviðdóm-
endum hefir komið saman um það,
að eigi hafi nægilegar eldvarnir ver-
ið, þrátt fvrir yfirskoðun bæjarem-
bættismanna.
BANDARlKIN
Samkvæmt síðustu hagstofuskýrsl-
um frá Washington er hveitiupp-
skeran í Bandaríkjunum í ár áætluð
alls 786,000,000 mælar. Eru þar af
53,000,000 mælar dúrum hveiti og
164,000,000 mælar vorhveiti. Hitt
allt vetrarhveiti. Hafrauppskeran
er áætluð 1,205,000 mælar; bygg,
304,000,000 mælar, og hörkorn 16,-
000,000. Verður uppskeran sam-
kvæmt þessari áætlun 700,000,000
mælum minni af fóðurkorntegundum
en í fyrra og um 100,000,000 mælum
minni af hveiti.
Frá Friedrichshafen á Þýzkalandi
er símað nýlega, að nokkurnveginn
áreiðanlegt muni vera að ameriskir
fjármálamenn hafi gert samninga við
dr. Hugo Eckener um að stofna til
félagsskapar, er gangist fyrir föstum
Zeppelinferðum milli Evrópu og Am-
Búist
er við að ekki verði ferðir háfnar
fyr en 1931, þar eð Zeppelinskip
verður ekki smíðað á skemmri tima
en 14 mánuðum. Eitt slíkt skip er
nú i smíðum á Þýzkalandi og er þess
vænst að í apríl 1931 leggi fyrsta
loftskipið í reglubundnar ferðir milli
Þýzkalands og Nefw York.
Frá Regina er simað á mánudaginn,
að Hon. A. C. Stewart, samgöngu-
málaráðherra hafi þótzt komast að
raun um það, að Gardinerstjórnin
hafi eytt til vegag'erða $2,030,000
fram yfir það sem þingið hafði heirn
ilað henni eb sú upphæð nam $,3,800,-
000. — Af þessum $2,030,000 höfðu
$730,000 fengist með tilskipun frá
fyllcisstjóra (fylkisráði) en engin
heimild verið fyrir $1,300,000, að
því er Mr. Stewart hermir. Stað-
hæfir hann að mikill hluti vega-
gerðafjársins hafi gengið til kjör-
dæma, er kusu fylgismenn M,r. Gard-
iners. — Mr. Gardiner hefir eigi
fengið tíma til þe^s að svara þessari
ásökun, er blaðið fer til prentunar.
Frá Washington, D. C., er sirnað
14. þ. m., að búist' sé við afarhörðu
•stríði í þinginu út af hinni fyrir-
huguðu tollhækkun. Er sagt að
margir þar séu þegar orðnir þeirrar
skoðunar, að lögin muni ekki ná sam-
þykki þingsins.
Orustan stendur á milli bænda-
sinna og iðnhölda. Fr þó hér ekki
að ræða um baráttu milli lágtolla-
n;anna og' hátollamanna, heldur á
milli hátollamanna og “hærri-tolls”-
manna. Því bændasinnar eru ein-
beittir með háum tolli á landbúnaðar-
afurðum, en vilja aftur á móti vernda
þændur fyrir hinum afskaplega há-
tollum, er iðnhöldar heimta, og sem
myndi gera bændum áhalda- og á-
burðakaup svo dýr, að það æti upp
allan hagnað, er þeir reikna sér af
hækkuðum tolli landbúnaðai;afurða.
Mjög er farið að verða “björnótt”
í Kanada um þessar mundir. Höfðu
sjö járnbrautarverkamenn rekist ný-
lega á tvo hvítabirni við strendur smá-
vatns eins nálægt Churchill. Er sagt,
að þeir hafi skotið annan björninn og
I hafi hann vegið 900 pund.
----- i
Á ársfundi lögmannáfélags Mani-
toba (Manitoba Bar Association) er
haldinn var að Marlborough gistihús-
inu hér í bæ á föstudaginn var, var hr.
Hjálmar A. Bergman, K. C., i einu
hljóði kosinn fofmaður félagsins til
þessa árs. Síðasti fyrirrennari hans
var R. D. Guy, K. C.
Með þeirri breyting er gerð hefir
á járnbrautarsporunum á aðalstrætinu
eru burtu máðar minjar úr fyrri ára
sögu borgarinnar. Hér voru fyrrum
tvö sporbrautafélög, sem fólksflutn-
' inga önnuðust ^ftir aðalstrætinu. Not-
J aði annað félagið hestavagna en hitt
rafmagnsvagna og notuðu sitt hvort
spor, og lágu þau því all fjarri hvort
öðru. Eru nú sporin færð saman.
Á þessu sumri hefir Winnipeg Elec-
tric félagið gert umbætur á á þessu
svæði, svo akvegur hefir breikkað að
mun beggja megin sporanna er gefur
meira rúm á strætinu. Aðrar um-
bætur hefir félagið gert, lengt braut-
ina eftir Corydon avenue yfir á
Stafford, lagt hliðspor eftir Watt
stræti og lengt Notre Dame brautina
frá Midland til Worth strætis. I
allt hafa umbæturnar numið $340,960.
Frétt frá Washington, D. C., herm
ir að Hoover forseti og ráðuneyti hans
muní skora'á ríkisþingið, að sam-
þykkja það, að Bándaríkin gangi í
alþjóða dómstóla sambandið. Hefir
Stinson ríkisráðherra tilkynnt aðal-
ritara þjóðbandalagsins, að ef önnur
ríki gangi að samningsuppkastinu
• eins og það nú er, endurskoðað, að
þá rnuni hann leggja til að Hoover
■ forseti skrifi undir uppkastið og
leggi það síðan fyrir öldungaráðið
til samþykktar. Álítur hann, að
öldungaráðið muni nú álíta, að upp-
kastið & komið í það horf, að Banda-
ríkin geti gengið að því.
Sú breyting er Mr. Stimson álítur,
að öldungaráðið geti gengið að, á
rót sina að rekja til Elihu Root, hins
nafnkunna ameríska lögfræðings, og
er á þá leið, að alþjóðadómstóllinn
skuli eigi leggja neitt til þeirra deilu
mála þar sem Bandaríkin eigi annan
hlut að máli. Áður hafði öldunga-
ráðið krafist þess að Bandaríkin
skyldu hafa algerðan neikvæðisrétt
fyrir alþjóðadómstólnum í 4hverJu
máli, er þeim sýndist. Ekki eru
menn þó í Washington sannfærðir
um að öldungaráðið muni fallast á
þessa breytingu. Borah og Johnson
frá Californíu hafa að þessu barist
mest á móti þátttöku Bandaríkjanna
í alþjóðadómstólnum. Hafa þeir
óttast, að þau næðu eigi fullum rétti
þar, nema hann væri sérstaklega
tryggður sökum óvildar annara ríkja.
■ ■ ' ■" " i — ■ - -■— - ' ■ ■ — ■ '-y
BRETLAIND
*------------------------------*
Brezka stjórnin hefir boðið Sovjet
stjórninni á Rússlandi til spmtals-
funda i því skyni, að taka upp aftur
opinber viðskifti milli landanna, bæði
í verzjunarlegum og stjórnarfarsleg-
um skilningi. Hermir fregn frá
Moskva, 13. sept., að Sovjet-stjórnin
hafi ákveðið að taka þessu boði.
Eigi fulltrúar beggja rikja að mæt-
ast í London. Einhverjar samninga
umleitanir áttu sér stað milli Breta
og Rússa í ágústmánuði, en kom þá
ekki saman um skilmála (að því er
Bretar herma, þá skilmála, er þeir
vildu setja Rússum um að sverja
fyrir fylgisöflunartilraunir á* Bret-
landi).
Norska utanrikisráðuneytið kom
heimboði Breta á franífæri við Sov-
jetstjórnina.
Frá London er símað 13. þ. m.,
að almenn ánægja sé þar i landi yfir
því, að tilkynnt hafi verið að Ram-
say MacDonald forsætisráðherra láti
í haf 28. september, vestur um haf
til Washington, til þess að setjast á
rökstóla með Hoover forseta, i því
skyni að þeir geti lagt einhvern á-
byggilegan grundvöll til samninga um
að bæði ríkin minnki vfð sig víg-
búnað á sjó. Hermir frétt frá
Washington, að Stimson rikisráðherra
hafi látið í ljós beztu vonir um það,
að svo verði samið.
Nokkur undanfarin ár hafa ýmsar
þjóðir keppt um Schneider bikarinn,
er gefinn er til verðlauna þeirri sæ-
flugvél, er mestum hraða nær á 350
kílómetra (217.49 milna) lotuflugi.
Er flughringurinn 50 kílómetrar og
því farnir sjö flughringir í lotunni.
I fyrra unnu Bretar bikarinn, og
setti 'sigurvegarinn, Webster þá nýtt
flugmet, 281.49 mílu enska á klukku-
tíma. Nokkru síðar hækkaði ítalsk
ur flugmaður, majór di Bernardi,
metið í 318.5 mílur.,
I haust kepptu ekki aðrir en Italir
og Bretar. Unnu Bretar bikarinn
aftur og setti H. R. D. Waghorn
flugforingi þá nýtt met, er hann flaug
kappleiðina alla á 39 mínútum, 42 4-5
sek.-, eða 328.63 mílur á klukkustund
inni. En einn flughringinn flaug
hann með svo miklum hraða, að
svaraði til 343.73 m'dna á klukkustund
inni". En þetta met stóð ekki nema
þrjá daga. Þá flaug annar brezk-
ur flugforingi A. H. Orlebar þessa
sömu flugleið með hraða er að með-
altali nam 355.8 mílur á klukkustund,
en einn flughringinn fór hann með
368.8 mílna hraða og er það því hið
nýjasta hraðmet, er sett hefir verið.
Þessi ofsahraði er því markverðari,
sem ekki má nota aðrar vélar í
Schneider kappflugið en þær, er hæf-
ar eru til allra almennra, praktiskra
nota.
Eru nú hraðmetin í lofti og á landi
í höndum Breta. Er sagt að þeir
hafi í hyggju að ná i hraðametið á
sjó líka, og er eldibrandurinn Sir
Henry Seagrave, sá er bílhraðametið
setti á Daytona ströndinni í Florida,
nú farinn suður til Italíu með hrað-
snekkju er hann ætlar að reyna á
móti Itölum og Bandaríkjamönnum,og
máske fleirum, í fyrirhugaðri kapp-
siglingu.
*--------------------------
Þjóðbandalagið.
*—----------------------------*
Frá Genf er simirð 13. þ. m., að
Frakkar og Bretar hafi á samtals-
fundum sínum um tillö.gu Briands,
forsætisráðherra Frakka, um Banda-
riki Evrópu, komið sér saman um að
leggja fyrir Þjóðbandalagið áskorun
um þjóðum, hvort sem þær eru í
þvi skyni að lækka tollgarða um allan
Dr. Richard Beck
Landi vor, dr. Richard Beck, er
gegnt hefir forseta embætti við ensku-
námsdeild Thiel. College, að Green-
ville, P. A., U. S. A., hefir fengið
prófessorsembætti í norrænum bók- ‘
menntum við háskóla Norður Dakota-
ríkis, í Grand Forks. Verður hann
um leiö forseti norrænudeildar há-
skólans. Tók hann við hinu nýja
embætti sínu í bvrjun þessa mánað-
ar.
Dr. Beck tók stúdentspróf í Reykja-
vik o.g kom hingað vestur um haf
1921. Fór hann til Cornell há-
skólans í Bandarikjunum og lauk
þar meistaraprófi 1924 og doktors-
prófi 1926. Kenndi hann enska
bókmenntasögu við St. Olaf College,
i Minnesota í tvö ár, fluttist til Thiel
College 1928 og hefir verið þar síð-
an.
Dr. Beck hefir verið mjög ötull
námsmaður, sem sjá má af þessum
menntaferli hans. Virðist hann ætla
að verða jafn ötull starfsmaður, að
því er dæma rná af allmörgum rit-
gerðum er hann hefir ritað í amer-
ísk tímarit, til dæmis “The Journal
of English and Germania Philology,”
“Scandinavian Studies and Notes,” og
“The American Scandinavian Re-
view,” auk þess sem hann hefir á
síðustu árum ritað í ýms íslenzk
tímarit. Öskar Heimskringla hon-
um allra heilla á framtíðarbrautinni.
Frá Islandi.
Landbúnaðurinir
Eftirfarandi upplýsingar hefir FB.
fengið frá Sigurði búnaðarmálastjóra
Sigurðss^ni:
Á Flóaáveitusvœðinu er spretta
sæmileg, betri en í fyrra, og stafar
það af því, að stiflur og flóðgarð-
ar eru nú fullgerðir víðast hvar, og
náðist því nóg vatn í vor.
Skeiðaáveitan. I vor og sumar hef-
ir verið unnið að þvi, að endurbæta
upptöku vatnsins. Er þvi verki nær
lokið. Á nú að vera fulltryggt, að
menn”geti fengið nægilegt vatnsmagn
hvenær sem er, en á því hafa orðið
misbrestir hingað til, og þvi mis'fella-
samt með sprettuna.
Mjólkurbú Flóamanna. Bygging-
in er nú langt komin og er nú unnið
að því að setja niður vélarnar. For-
stjóri mjólkurbúsins verður Jörgensen
nokkur, danskur maður. Boranir
hafa verið gerðar þar eystra að und
anförnu, til þess að leita að vatni.
Hraunlagið að ofan reyndist vera um
fimm metrar á þykkt, en þá var kom-
ið niður á fasta, samfelda. klöpp, sem
er um tuttugu metrar á' þykkt, en
þar undir eru sand- og leirlög, Qg
hafa menn komið þar á vatnsæðar,
sem að líkindum eru nothæfar fyrir
mjólkurbúið. Búið tekur til starfa
í haust.
Mjólkurbúið á Reykjum er nú kom
ið undir þak og er nú unnið að utan-
hússléttun. Vélarnar eru væntanleg-
ar í lok septembermánaðar. Búið
tekur til starfa í haust eða vetur.
(Frh. á 5. bls.)
heim, þar sem þeir eru nú. Á að
bjóða til þess móts fulltrúum frá öll-
um þjóðum, hvort sem þær eru í
Þjóðbandalaginu eða ekki. Eiga
þeir fulltrúar að veljast bæði úr
flokki stjórnmálamanna og viðskifta-
sérfræðinga. Er skorað á allar
þjóðir að biðajmeð að hækka . toll-
garða sina unz þetta mót sé haldið,
og er þessari áskorun auðvitað sér-
staklega beint til Bandaríkjanna, þótt
óbeinlinis sé. Hinn nafnkunni franski
f jármálamaður, L. Loucheur er höf-
undur þessarar tillögu, sem er öflugt
studd af Hugh Dalton, úr ráðuneyti
verkamannastj órnarinnar brezku.