Heimskringla - 18.09.1929, Side 5
WINNIPEG, 18. SEPT., 1929
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA.
Luchaire, umsjónarmaður fræöslu-
mála í Frakklandi.
Loks hafa í flestum löndum verið
settar á stofn þjóðnefndir fyrir sam-
vinnu í menntamálum, er stofnunin
í París snýr sér til, hvenær sem hún
þarf aö afla sér skýrslna um eitt-
hvað, er að þessum málum lýtur, og
sendir allt, sem hún gefur út. Var
ein slík nefnd sett á stofn hér á
landi í vor af vísindafélaginu fyrir
forgöngu dr. Björns lögmanns Þórðar
sonar, eins og skýrt var frá hér i
blaðinu fyrir skömmu.
Gangur þessarar alþjóðasamvinnu
í menntamálum er þá þessi: Al-
þjóðanefndin i Genf ákveður verkefn
in og fær þau sérnefndum sínum
fyrst til meðferðar. Síðan tekur
Parísarstofnunin við, og gerir þær
rannsóknir sem þarf og sendir álit
sitt aftur til sérnefndar þeirrar, er
málið heyrir, en hún flytur það fyrir
alþjóðanefndinni á allsherjarfundi.
Þyki henni þá ástæða til, ieggur hún
tillögu um málið fyrir ráð eða þing
Þjóðbandalagsins, þvi nefndin er að-
eins ráðgjafi þess. Samþykki ráð
og þing tillöguna, fer hún aftur til
stofnunarinnar í París, er síðan starf-
ar að því að fá rikin eða stofnanir
þær og fél., sem hlut eiga að máli, til
að hrinda tillögunni i framkvæmd.
Starf það, sem þessar samvinnu-
stofnanir Þjóðbandalagsins hafa með
höndum, er orðið geysi-margþætt.
Allt miðar að þvi að tengja þjóð-
irnar andlegum böndum, greiða götu
nýrra hugmynda til allra þjóða, koma
skipulagi á samvinnu að vísindum,
listum og fræðslumálum og gera
öllum auðveldara starfið i þjónustu
þeirra. Skal hér aðeins bent á nokk
ur mál, er tekin hafa verið til með-
ferðar.
Eftir stríðið mikla, var hagur
þeirra, er fást við andleg störf, svo
bágborinn í ýmsum löndum, að til
vandræða horfði. Hefir verið safnað
skýrslum um þessi efni hvaðanæfa
og gefnir út ritlingar um ástandið í
ýmsum löndum og þá jafnfrarht bent
á ráð til bóta og gerðar ráðstafanir
til að hjálpa þeim löndum, sem verst
voru stödd svo sem Austurríki, Ung-
verjalandi, sumum Balkanlöndunum o.
s. frv. með bókagjöfum, námstyrkj-
um, kennaraskiftum og svo framv.
Þá hefir verið unnið að því að
færa út höfundaréttinn, sérstaklega
að koma því á, að vísindamenn fái
iðgjöld uppgötvana sinna, en fyrir
þvi er ekki séð í löggjöf neinnar
þjóðar. Sá, sem finnur upp nýtt
áhald eða vél, getur fengið einkaleyfi
og grætt á því, en vísindamaður, er
finnur áður óþekkt náttúrulögmál eða
eiginleika einhvers efnis, fær ekkert
fyrir, þó að uppgötvun hans geti haft
ómetanlegar afleiðingar fyrir mann-
kynið, er hún verður grundvöllur
margvíslegra framkvæmda í iðnaði,
jarðrækt, heilbrigðismálum, o. s. frv.
Þykir því meiri nauðsyn til að tryggja
vísindamönnum arð uppgötvana
sinna, sem reynslan sýnir, að hin
bágu kjör, sem þeir eiga við að
búa, eru farin að fæla suma unga og
efnilega menn frá þeirri braut og
beina huga þeirra að arðvænlegri
störfum. Jafnframt hefir verið unn
ið að því, að skýra og færa út höf-
undaréttinn á öðrum sviðum, svo sem
að koma því á, að listamenn fái nokk
urn hundraðshluta af verðaukningu
þeirri, sem verk þeirra fá í hvert
skifti sem þau eru seld, og að tryggja
það að verkum þeirra sé ekki spilt
með breytingum á þeim. Þá er og
stefnt að því, að ríkið fái um skeið
útgáfurétt að ritum, þegar rétti höf-
unda lýkur, og renni arðurinn af hon-
um til stofnana, er styrkja vísindi og
bókmenntir.
Mikið hefir verið unnið að því að
koma á sem beztri samvinnu milli
háskóla, kennara og stúdenta viðs-
vegar um heim og gefin út rit til
að greiða fyrir þeim, er sækja vilja
nám í önnur lönd, svo sem skýrslur
um ýmiskonar alþjóðleg námskeið,
stofnanir er greiða fyrir stúdentum,
um ferða og námstyrki, stúdenta- og'
kennaraskifti, jafngildi prófa og náms-
stiga í ýmsum löndum o. s. frv.
Eitt hið versta fyrir vísindamenn
nú á dögum er að fá yfirlit yfir það
sem út kemur árlega á ýmsum málum
í þeim greinum, er þeir stunda. Til
þess að létta undir í þessum efnum,
hefir alþjóðanefndin gefið út meðal
annars skrá yfir helztu rit, er flytja
bókaskrár og ritfregnir um það, sem
út kemur árlega í hverju landi, i
hverri grein visinda og bókmennta, og
um þær stofnanir, er slíkar skrár
semja og gefa út. Einnig hefir
verið unnið að því, að koma á sam-
bandi milli þjóðbókasafna í ýmsum
löndum, svo að hægt væri að lána bæk
ur og handrit frá einu safni til annars
og láta : té fræðslu um það, hvað
hvert safnið hefir að geyma og hvar
beztur er bókaforðinn til hverrar
rannsóknarinnar.
Á líkan hátt hefir verið unnið að
því að koma á samvinnu milli lista-
safna í ýmsurn löndum og gefin út
rit í því skyni.
Stofnunin í París gefur árlega út
skrá yfir helztu rit, er komið hafa út
í hverju landi árið á undan, og fær
hvert land þar rúm fyrir 40, 20 10
eða 5 rit, eftir því hvað mikið kemur
þar út af bókum.
Loks undirbýr þessi alþjóða sam-
vinna alþjóðafundi vísindamanna i
ýmsum greinum, alþjóðalegar lista-
sýningar o. s. frv.
Á fund þann, er haldinn var i
Genf 18.—20. f. m. hafði alþjóða-
nefndin fyrir samvinnu í menntamál-
um boðað fulltrúa frá öllum þjóð-
nefndum til þess að ræða um sam-
vinnu milli alþjóðanefndarinnar,
stofnuninnar i París og þjóðnefnd-
anna. Var það fyrsti fundur, sem
haldinn hefir verið af þessu tæi, og
greiddi Þjóðbandalagið nokkurn hluta
af ferðakostnaði fundarmanna. Þótti
ekki sæma, að vér Islendingar byrj-
uðum samvinnuna með því, að senda
engann á fundinn og veitti stjórnin
mér góðfúslega nokkurn styrk til
fararinnar. Á fundinn komu full-
trúar frá 28 löndum: Austurriki,
Bandaríkjunum, Belgíu, Brazilíu,
Bretlandi, Búlgariu, Danmörku, Eist-
landi, Finnlandi, Frakklandi, Grikk-
landi, Hollandi, Islandi, Italíu, Jap-
an, Jugoslavíu, Lettlandi, Lithauga-
landi, Luxemhurg, Noregi, Póllandi,
Rúmeníu, Spáni, Svisslandi, Svíþjóð,
Tjekkóslóvakíu, Ungverjalandi,
Þýzkalandi. Auk þess komu þar
fulltrúar fyrir tvær nefndir, sem að
vísu eru ekki þjóðnefndir, én ei'u þó
í þessari samvinnu, sem sé nefnd ukr-
ainskra háskólaborgara í Prag og
katólsk nefnd fyrir alþjóðasamvijjnu
í menntamálum.
Prófessor Gilbert Murray stýrði
fundinum, og fóru umræður fram á
frönsku eða ensku eftir því sem hver
vildi, en jafnskjótt og fundarmaður
hafði flutt ræðu, stóð upp þýðandi
og flutti ræðu hans á hinu málinu
jafnliðugt og þótt hann taiaði fra
eigin brjósti. Var leikni þýðand-
anna í þessu aðdáanleg. Umræðurnar
snérust mest um skipulag samvinn-
unnar og helztu agnúa, sem á því
þótti vera. Þá gáfu og fulltrúar
skýrslu hver um störf sinnar nefnd-
ar og komu jafnframt með þær bend-
ingar, er þeim þótti hlýða. Var
einn af þeim fyrstu (fulltrúi Belgíu)
svo langorður, að samþykkt var að
hver skyldi aðeins tala í tíu mínút-
ur.
Eg hafði auðvitað ekkert að segja
af störfum íslenzku nefndarinnar,
sem er nýstofnuð, og hafði því þær
minútur sem mér voru ætlaðar, til
að koma fram með uppástungu, er
miðar að því að greiða fyrir and-
legri samvinnu á sérstöku sviði. Hún
var sú, að i hverju landi skyldi vera
nefnd manna — helzt þjóðnefndin
fyrir samvinnu í menntamálum eða
deild af henni — er hefði rétt til að
samþykkja þýðingar úr hvaða máli
sem er, enda mætti engin rit þýða
nema með leyfi nefndarinnar. Þegar
þýðingin væri komin út, tilkynnti
nefndin það samsvarandi nefnd í landi
höfundarins, er þá léti hann vita um
þýðinguna. Höfundur fengi engar
tekjur af þýðingunni fyr en útgefandi
hefði fengið útgáfukostnað sinn end-
urgreiddan, en þaðan af skiftist það
sem inn kæmi fyrir sölu bókarinnar,
í þrjá staði, þannig að tiltekinn
hundraðshluti gengi til útgefanda,
annar til höfundar og þriðji rynni i
sjóð, er gengi til að launa starf nefnd
arinnar við þetta. Ríkið skipaði
endurskoðara, er færi yfir útgáfu-
reikninga, þýðinga og gætti þess, að
hver fengi sitt. Ef til kæmi til
mála að höfundur gæti prentað á rit
sitt bann gegn þýðingunni, ef hann
kysi heldur sjálfur að semja við
þýðanda og útgefanda. Á likan hátt
mætti hafa skipulagið um leikrit og
hljómlist.
Ástæður fyrir tillögunni eru þess-
ar:Þegar þjóð er í Bernarsamband-
inu, verður að jafnaði að sækja
um leyfi til að þýða hve litla skáld-
sögu eða ritgerð sem er, en það get-
ur oft verið bæði erfitt og tafsamt,
stundum er ekki unt að vita heimilis-
fang höfundar. Nafn hans finst ef
til vill ekki i neihu höfundatali ef
hann er ungur og óþekktur. Þá
getur og verið erfitt að gera honum
ljóst, að hann geti ekki fengið nema
lítið eða ekkert fyrir þýðingarrétt-
inn. Hverjum höfundi er auðvit-
að hugarhaldið um það tvennt, að
rit hans verði vel þýtt og hann fái
sem mestar tekjur af því, en hann
getur langsjaldnast haft neina vissu
um það, að þýðandinn sé starfi sínu
vaxinn og að þau laun, sem honum
eru boðin fyrir þýðingarréttinn, séu
sanngjörn. Ur öllu þessu ætti skipu
lag það, er ég sting upp á, að bæta.
Nefndin myndi geta séð um það, að
þýðingarnar yrðu svo góðar sem
kostur er á; hver höfundur fengi
að sama skapi mikið fyrir verk sitt
sem það yrði vinsælt; áhætta út-
gefanda yrði minni, er þeir þyrftu
ekki að greiða fyrir þýðingarréttinn
nema útgáfan svaraði kostnaði, og
allt ómakið og töfin að hafa upp á
höfundinum i fjarlægu landi og semja
kostur á að sjá hinn nýja rafgeymi
reyndan í rannsóknastofu ríkisins í
Dyflinni, en þar hefir geymirinn
verið varðveittur síðan uppskátt var
gert um þessa uppfundning. Þeir,
sem kunnastir eru þessu máli, hafa
lýst yfir þvi, að heimulegar tilraun-
ir, sem gerðar hafa verið til þess
að reyna geyminn, hafi heppnast á-
gætlega. ,Nú er aðeins eftir að
reyna, hvort geymirinn muni reynast
jafnvel á sjálfum járnbrautunum,
hvort hann til dæmis þoli titringinn
af járnbrautarlestinni, án þess að afl
hans fari til ónýtis.
Búist er við, að geymirinn verði
reyndur á járnbrautunum einhvern-
tíma í næsta mánuði, og verður þá
fyrst sagt af eða á um kosti hans.
Allir þeir, sem bestan kost hafa átt
á að kynnast þessu máli, eru sann-
færðir um, að geymirinn muni koma
að þeim notum, sem spáð hefir verið
og valda byltingu í samgöngubótum.
Irar bíða úrslita-reynzlunnar með
óþreyju, og ef tilraunin hepnast, þá
mun þessi nýi geymir eiga mikið
erindi til Islands á sínum tíma.
—Visir.
Frá Islandi.
við hann með löngum bréfaskrift- yrkjur.
(Frh. frá 1. bls.)
Ásgeir JónSson verkfræðingur vinn
ur að því í sumar að mæla upp vatns-
svæði Markarfljóts til undirbúnings
fyrir vegagerðir og væntanlegar ný-
um hyrfi úr sögunni.
—Lesb.
Mbl.
Merkileg uppfundning.
Frá þvi er skýrt i nýkomnum ensk-
um blöðum, að írskur maður, Mr.
James T. Drumm, háskólamaður í
Dyflinni, hafa fundið upp merkilegan
rafgeymi, og vænta Irar sér mikils
af þeirri uppgötvun. Þó er öllu hald-
ið stranglega leyndu um gerð þessa
verkfæris.
Fyrir eitthvað tveim mánuðum
skýrði einn af prófessorum Dyflinn- j á> að mikið fáist af fræi (grasfræi
Pálmi EinarSson hefir verið á Aust
urlandi í sumar og unnið þar að mæl-
ingum, aðallega í kringum kauptún-
in, til undirbúnings nýyrkjufram-
kvæmdum.
Sandgrœðslustöðvarnar o. fl. Nýjar
sandgræðslustöðvar hafa verið stofn-
aðar í ár í Axarfirði og Sauðlauks-
dal. — Byggingarnar í sandgræðslu-
stöðinni í Gunnarsholti er nú verið
að ljúka við. Byggingarnar eru úr
steinsteypu, íbúðarhús, fjós, sem tek-
ur um tuttugu nautgripi, og hlaða.—
Spretta í sandgræðslustöðvunum hef-
ir verið góð í sumar og er allt útlit
arháskóla frá því,-að hinn ungi hug-
vitsmaður, Mr. Drumm, væri að smíða
þetta áhald. Og þegar svo var kom-
ið, að líklegt þótti að hinn nýi raf-
geymir gæti valdið byltingu í öllum
flutningum, þá gekkst stjórn írska
fríríkisins fyrir því, að félag væri
stofnað til að hagnýta uppfundning-
una. Fékk hún og leyfi þingsins
til að veita fyrirtækinu styrk, en allt
hlutaféð er röskar 100 þúsundir króna.
Fullyrt er að rafgeymi þenna megi
hlaða með rafmagni á örstuttum
tíma, og ef þær vonir rætast, sem
menn gera sér um hann, þá á að
vera unt að hlaða eimlestar-dráttar-
vél með nægu rafmagni á sjö til níu
mínútum, til þess að hún geti farið
alllanga leið.
Irar eru nú að koma upp stór-
eflis rafmagnsstöð, sem kennd er við
Shannon, og líkja mætti við Sogs-
virkjunina hér á landi, og liggur í
augum uppi, að þessi uppgötvun yrði
Irlandi stórmikilsvirði, ef hún reynd-
ist svo sem ætlað er. Ríkið myndi
þá fá nýja þörf fyrir rafmagn í
stórum stíl til ílutninga, og hagur
virkjunarinnar hlyti að verða tryggð-
ur.
Auk þess myndi uppgötvun þessi
verða bjargvættur irskra járnbraut-
arfélaga, en þau virðast nú hafa
þörf á einhverskonar töfrasprota, er
gæti leyst þau úr fjárhagsvændræð-
unum. — Mönnum hefir talist svo
til, að langferðalestir myndi geta
farið helmingi hraðara en nú, ef þær
væru reknar með rafmagni, og á
skemmri leiðum myndi og sparast
allmikill tími.
Svo sem alkunnugt er, þá er stofn-
kostnaður rafmagnsjárnbrauta all-
mikill, vegna þess, hve dýrt er að
koma upp rafmagnsþráðum yfir braut-
unum. Mönnum hefir reiknast svo
til, að kosta myndi eina miljón ster-
lingspunda að breyta járnbrautinni
milli Dyflinnar og Cork í rafmagns
braut, en ef þessi nýi geymir yrði
notaður, þá segja verkfræðingar að
hann gæti rúmað nóg rafmagn til
þess að knýja þessa lest, og þyrfti
breytingin ekki að kosta nema 80
þúsund sterlingspund.
Talið er vist, að járnbrautafræð-
ingum fríríkisins verði bráðum gefinn *
og melfræi), en það hefir mikla þýð-
ingu fyrir framhaldsræktunina. I
Gunnarsholti hafa verið gerðar tilraun
ir með kartöflurækt og eru vonir um
góðan árangur.. A Sámsstöðum
mun bygg og bafrar um það bil að
verða fullþroska. — Þá hafa verið
gerðar tilraunir með trjáfræssáningu
við Strandarkirkju, en enn er óvíst
um árangurinn af þeim tilraunum.
Frá Korpúlfsstöðnm. Þar fengust
í fyrra um 5000 hestar af töðu og
höfrum, en menn gera sér vonir um
að fá allt að því 7000 hesta í ár.
Nýræktarslétturnar þar hafa aldrei
verið betur sprottnar. Nýjung er
það, að dráttarvél hefir verið notuð
við túnslátt þar í sumar, það er að ■
segja, sláttuvél höfð aftan í lítilli
dráttarvél. Hefir slátturinn gengið
ágætlega með þessu móti og mun
borga sig, þar sem jafnmikið er af
vélslægu landi og á Korpúlfsstöðum.
Dráttarvél þessi, sem að framan get-
ur, hefir einnig verið notuð til þess
að draga snúningsvél. Arangurinn
góður. 1 Þá var fenginn að Korp-
úlfsstöðum í vor svo kallaður mold-
vörpuplógur, sem notaður er við lok-
ræsagerð, og hafa tilraunir með not-
kun þessa plógs gengið vel. Til-
raunirnar voru í stórum stil. Eru
þetta fyrstu tilraunirnar, sem gerðar
hafa verið með þessa plógategund
hér á landi.
Þá hefir eigandi Korpúlfsstaða,
Thor Jensen, látið setja mjaltavélar
í öll sín fjós Dvor. Reynast mjalta-
vélarnar vel.
Byggiqgarnar á Kqrpúlfsstöðum
eru nú vel á veg komnar. Þær eru
samfeldar og gólfflötur 80 metrar
á lengd og þrjátíu á breidd. I bygg-
ingunum eru 160 nautgripa fjós, með
samsvarandi votheysgryfjum, hey-
hlöðu, mjólkurhúsi, verkfærageymslu
og íbúð. Byggingarnar eru alveg
sérstakar í sinni röð, bæði hvað út-
búnað og stærð snertir, ekki eingöngu
á Island, heldur á Norðurlöndum.
—Visir.
son úr Arnarfirði, tveir á litlum vél-
bát, opnum, hlöðnum af kúfiski, á
ferð frá Önundarfirði. Fengu þeir
á leiðinni ofsarok og sjógang, sv»
að báturinn lá undir áföllum. — Guð-
mundur stýrði, en Kristján gætti vélar
innar og stóð í austri. I einu ólag-
inu tók Guðmund út frá stýrinu, og
stýrið með, en maðurinn eða stýriö
hefir þó víst ekki losnað alveg viö
bátinn, því að Kristjáni tókst meö
mesta snarræði að ná í hvorutveggja,
en Guðmundur var þá örendur. Þaö
er nærri óskiljanlegt, bæði hvernig
Kristjáni tókst þetta, og eins hitt,
hvernig hann gat náð landi, einn á
báti í því ofviðri, sem á var, enda
vildi það honum til lífs í lending-
unni, að ein skipshöfn var vakandi,
og tók hún á móti honum. Það er
álit manna hér, að þrekraun sú, er
Kristján sýndi í þessari svaðilför, sé
með afbrigðum mikil. Hann hefir
síðan verið mjög lasinn fyrir brjósti,
hefir sennilega ofreynt sig. Guð-
mundur hafði verið hinn mesti dugn-
aðarmaður, bæði til sjós og lands, og
er að honum hinn mesti mannskaði.
—Morgunblaðið.
Frá Arnarfirði er Morgunbl. skrif-
að: Á laugardagsnótt fyrir hvíta-
sunnu síðastl., voru þeir Kristján
Reinaldsson, pósts á Melstað við
Arnarfjörð, og Guðmundur Lárus-
Okkar verð
er lœgst
Astœ'Öan er sú, a?S allir eldri bíl-
ar eru keyptir þanntg ab vér
getum stabist samkeppni hinna
undursamlegu nýju Ford Bíla,
sem seldir eru svo ódýrt.
Berib saman þetta verb viíl.
þab sem abrir bjóóa:
FORDS
1925 Touring .....$165
1928 Roadster ....$495
1925 Coupe .......$215
1926 Coupe .......$325
1928 Sport Coupe .$650
1925 Tudor........$225
VÆGIR SKILMÁLAR
DOMÍNION
Motor Co. Ltd.
FORT & GRAHAM 87 316
EVENINGS 87411
Hj a Hollins worth’s
Yndislegar
Haust og Vetrar Yfirhafnir
NÚ TIL B0ÐS
L>
f öllum nýjustu haustlitum
og sniðum
Úr efnum svo sem Klæði, Velebloom,
Kosage og Berganzea
'V
Lagðar úlfa og íkornaskinnum, refa ■
fótum, Karakul og frakkneskum
Bifur
Stærðir 14 til 46
/
r/’/'
/m
Verðlagðar á
$39.50 $49.50 $55.00
$59,00 $65.00 $75.00
$79.00 $85.00
Með niðurborgun geymum vér kápuna þangað til
þér þurfið hennar.
Ferðakápur verðlagðar á
$23.75 $39.50 $49.50
$59706'565Í00 $79L00
HOLLINS WORTH E CQ
LIMITED
Specialists inWomeríi ond Mlmrf
Beod
WINNIPEG
S86»nd390 Portag# Avmu*
BOYD BUlLOiNð