Heimskringla - 09.10.1929, Side 7
WINNIPEG, 9. OJCTOBER, 1929
HEIMSKRINGLA
7. BLAÐSÍÐA
Grimur Thomsen
(Frh. frá 3. bJs.)
ríkja skiftir hér engu máli; en hitt
er aðalatriöiö aö þetta mál skifti
Ðönum í flokka á árabilinu frá
1848—1864 og jafnvel lengur.
þessum árum er það einmitt, sem
Grímur starfar í utanríkisráöuneyt-
inu. Þetta er frásögn um aðalblá-
þætti málsins; smáatriöin koma hér
ekki viö.
Annað mal var þó, sem að minnsta
kosti hversdagslega, í augum borgar-
anna, skifti fullt eins miklu máli, og
sem óhjákvæmilega flæktist inn í
hitt; þaö var hátterni konungs. Menn
voru í þá daga nýsloppnir
handarjaðri einveldisins, og litu a
konung og fjölskyldu hans meö nokk-
nð sömu augum og fyrr, en voru ekki
enn búnir að læra aö líta á hann
eins og það, sem hann er, — em-
bættismaöur ríkisins. — Það eimdi
eftir af fornum undirtyllu- og skrið-
dýrs-hætti, og menn létu sig því einka-
líf hans sem hann auðvitað átti eins
og aðrir menn, skifta töluverðu. Kon-
nngur hafði fyrst gengið að eiga dótt
ur Friðriks VI., en það hjónaband
hafði ekki blessast. Síðar hafði
hann gengið að eiga hertogadóttur
úr Meckienburg og fór á sömu leið.
í’etta átti rót sína að rekja til margs,
sumpart til ^kapferli konungs, sem
var mjög sundurleitt, og í sjálfu sér
gerði hann lítt hæfan til þeirrar stöðu,
sem hann var í, sumpart til þess, að
hann var alþýðlegri og meira blátt
áfram en gerist um menn, sem eru
svo óheppnir að lenda í hans stöðu,
og hann leit á sig og sitt starf heil-
hrigðari augum en þeir, sem í kring
um hann voru, svo að tiginbornar
konur, með þeim hugsunarhætti, sem
þvi fvlgdi, voru lítt við hans hæfi.
Starfshæfi konungs mun þó í heild
sinni hafa verið mjög takmarkað,
svo að nærri stappaði fullri geðveiki,
enda hefir því verið haldið óspart á
lofti siðan. Vegna látbragðs síns
og fass hafði konungur mikla al-
þýðuhylli, en þó skifti þar nokkuð
um, er hann tók sér fyrir þriðju
konu Louise nokkra Rasmussen, sem
um nokkurra ára skeið hafði verið i
danzhópi konunglega leikhússins. Var
hún af lágum stigum. Móðir henn-
ar hafði verið þvottakona og átt
hana utan hjónabands, en faðir
hennar var stórkaupmaður einn, sem
farið hafði flatt í viðskiftum. Það,
sem lakast þótti, var, að hún hafði
reynst all gjálíf, og hafði hún haft
helzti mikil kynni af prentara nokkr-
um, Berling að nafni, sem hún hóf
til vegs og valda með sér, er hún
gerðist kona konungs. Louise þessi
Rasmussen, sem konungur tók í að-
alsmanna tölu og nefndi greifyrvju
Danner, reyndist konungi hin bezta
kona og sérstaklega við hans ein-
kennilega hæfi. En oddborgararnir,
undan j ekki nerna eðlilegt
" 1 hefði mikil áhrif á mann sinn.
Meðal annars var henni borið á brýn,
að hún drægi sér af borðfé konurtgs.
Vera má, að þetta hafi verið satt,
því hún hlaut að vita hvað við tæki,
er konungs nyti ekki við lengur. Hitt
er og jafnsatt, að er' hún lézt, reynd
ist hún stórauðug, og stofnaði fyrir
En á eyri, sem hún átti, tvö heimili
fyrir fátæk börn og uppgjafa gamal-
menni, og lét þau bera nafn konungs, |
en ekki sitt, og er sú stofnun við
lýði enn í dag. Það var eins og á
stóð, ómögulegt annað en að eðlileg
viðleitni konungs og greifynjunnar til
þess, að henni yrði af öllum tekið eins
og konu konungs sómdi, blandaðist
nokkuð inn í hin málin, sem Dönum
riðu þá á mestu,, og var auðvitað
að greifynjan
Það
urðu þvi ýmsir framgjarnir menn.
sem annars áttu erfitt uppdráttar, til
þess að nota sér þetta til að koma sér
áfram með því að miða sérstöðu sína
til hinna erfiðu utanrikismála nokk-
uð við þarfir greifynjunnar og vilja
konungs. Sérstaklega voru það
frjálslyndir, sem þá nefndust bænda-
vinir, en síðar urðu að vinnstri
flokknum, sem studdu greifynjuna, og
þóttust eiga hauk í horni, þar sem
hún var. Það var að minnsfa kosti
satt, að það var henni að þakka, að
konungur í sínum tíma undirritaði
stjórnarskrána, sér mikið um geð. I
hópi þeirra manna var einnig barún
nokkur , Blixen-Finecke, sem var svili
Kristjáns konungs IX., sem síðar
varð, því að Kristján og kona hans
voru ekki af neitt tiltakanlega háum
stigum, eftir því sem um er að gera
með tiginbornum mönnum. Hvernig
sem á stóð, hvort hefir ráðið öf-
und eða anpað, var barúninn mjög
andstæður Kristjáni svila sinum og
konu hans, sem hefir fengið orð á
sig fyrir stjórnkænsku, en þó að
litlum maklegleikum, því að hún virð
ist hafa verið ýtin kona rétt eins og
gerist og gengur, skaðvæn, eh áhrifa-
mikil, svipað eins og Dagmar keisara
drottning á Rússlandi, sem mikið sams
konar orð hefir farið af af jafnlitlum
ástæðum. Snérist barúninn því á
sveif með greifynjunni. Þessi maður
og Grimur Thomsen, urðu vildarvin-
ir og er mér ókunnugt hvernig á því
stóð.
Eg hefi ekki nent að gá að því,
hvenær Grímur hefir fyrst komist inn
í utanríkisráðuneytið, — það var þó
víst 1848 —, en það er víst, að það
mun snemma hafa vakað fyrir Grími,
að komast áfram á þeirri braut, því
að hann svo að segja einn allra af
íslenzkum samtíðarmönnum sínum,
reyndi að gera sig að veraldarmanni
í þess orðs dýpsta skilningi, og varð
eftir lögmáli mótsetninganna því
einnig þjóðlegastur allra. Hvernig
Grími hefir tekist að komast í ráðu-
neytið í öndverðu, er nú ekki gott að
segja. Það lætur þó að líkum, að
ekki hafi það verið auðvelt fyrir um-
komulausan Islending, eins og það
þar með hin konungsfjölskyldan,
sýndi henni óvirðingu í hvívetna, og J var eftirsótt, en af ýmsum ástæðum
tók konungur því, sem von var, illa. liggur í augum uppi, að Grímur hafi
ASK FOR
DryGingerAle
OR SODA
Brewers Of
country'club*
BEER
GOLDEN GLOW
ALE
BANQUET ALE
XXX STOUT
BR E W E R.'V
OSBORN E & M U LVEY - Wl N NIPEG
PHONES 41-111 45304 5-6
PROMPT.DELIVERY
TO PERMIT HOLDERS
verið framgjarn í góðu lagi. Fyrir
þá, sem á annað borð voru þeim and-
legum efnum búnir, að til greina gátu
komið, hefir á þeim tíma verið heppi-
legast að reyna að smjúga, ef svo
mætti segja undir pilsfaldinn á greif-
ynjunni. Það segir nú sagan, að
Grímur hafi einhvernveginn kynst
konungi, enda var annað erfiðara, eins
og konungur var geði farinn. Það
var því ekki annað líkara en að Grím-
ur hafi, eins og margur maðurinn,
sem vildi komast áfram, leitað áheyrn
ar frú Danner. Það þótti að vísu
ekki vænlegt, að dómi oddborgaranna,
en reyndist framgjörnum mönnum,
sem vildu ganga erindi hennar og
konungs, vænlegt til frama. Ötviræð-
ar gáfur Grínis hafa ekki spillt um
þar. Kunningsskapur við greifynj-
una leiddi og beina leið til konungs, og
þaðan kynni kunningsskapur Gríms
við hann að stafa. Þó að vald konungs
hefði rýrnað mikið við hina nýju
stjórnarskrá, olli það hvað menn toldu
í fyrri tízku um konungsdekur því,
að konungur gat vel komið að manni
ef hann vildi. Þeta mun hafa verið
ástæðan til, að Grímur komst fyrst í
utanríkisráðuneytið. Að Grímur var
gáfaður maður, sem sómdi sér vel,
hvar sem hann var, mun hins vegar
hafa valdið því, að hann hafði sæmi-
legan framgang þar, enda hefir hann
sjálfsagt kunnað að ota sér.
Það hafði lengst af verið mark-
mið greifynju Danner að koma upp
heilu ráðuneyti, sem væri á hennar
bandi. Er talið, að hún hafi gert
margar tilraunir til þess, sem hafi
mistekist. Rétt áður en upphefð
Gríms byrjar aðallega var forsætisráð
herra maður sá, er Hal! hét. Atti
hann litlum vinsældum að fagna hjá
greifynju og konungi,, og tókst þeim
að steypa undan honum í nóvember
1859. Þegar það gerðist var Grímur
löngu orðinn fulltrúi i utanríkisráðu-
neytinu, hvort sem var fyrir tilstyrk
konungs og greifynju, eða fyrir dugn-
að sinn, sem þó sennilega hefir verið,
því ekki voru undan farandi ráðherr-
ar henni hliðhollir. Arið 1859, 22.
des., tók við ráðuneyti, sem kennt var
við Rotwitt nokkurn; var í því utan-
ríkisráðherra Blixen-Finecke barún,
og var þetta ráðuneyti fullkomið
handbendi greifynjunnar. Hvernig
sem vináttu þeirra Grims og Blixen-
Finecke hefir verið varið, þá er það
vist, að þegar ráðuneytið var mynd-
að, var Blixen erlendis. Það hlýt-
ur að hafa verið gamalt aftal, að ef
til stefja kæmi, skyldi Grímur hafa
svör af hans hendi, þvi að Gríms er
Ieitað um þátttöku Blixen i ráðu-
neytismyndun, og fyrir hans hönd
svarar Grímur já. Það virðist vera
eina skýringin að Grímur virðist hafa
verið jafn tryggur þjónn greifynjunn
ar eins og Blixen og honum því
trúað fyrir þessu.
Þegar Rotwitt tók við ráðuneytis
forsæti vildi hann tryggja sér að fá
barúninn í ráðuneytið og snéri hann
sér til Grírns; Rotwitt hefir því hlot-
að þekkja aðstöðu Gríms, en þá vitn-
eskju gæti hann vel hafa haft frá
greifynjunni.
Nú flýtti Blixen sér heim og <ók
við ráðuneytinu 2. des., og ekki leið
á löngu áður en Grmur fékk, ef svo
mætti kalla, ærulaun iðju og hygg-
inda, því að hann var gerður að deild
arritara í ráðuneytinu 27. s. m., en sú
staða jafngilti þvi, sem nú myndi
vera kallað Departemantchef —
deildarstjóri —. Ur þessu er óhætt að
láta heimildarmanninn segja frá, en
hann er Just Johan Hlolten, sem í
langt skeið var í senn starfsmaður
utanríkisráðuneytisins og um leið rit-
ari forsætisráðherra og að því starfi
loknu dómari í hinum sameiginlegu
dómstólum á Egyptalandi, en siðast
héraðsdómari í Hjartarhólmi á Sjá-
landi. Honum segist svo frá:
“Sá, sem hafði eyru utanríkisráðu-
neytisins, var fulltrúi dr. phil. Grimur
Thomsen (27. des. 1859 gerður að
deildarritara í 3. deild utanríkisráðu-
neytisins fyrir verzlunar- og konsúl-
ats-mál), um leið og hinum tveim
pólitízku deildarstjórum, kammerherra
Quaade og levndarsendisveitarráði
Vedel, var stjakað til hliðar í kyr-
þey.”
Hér eftir fylgja nokkur, ekki með
öllu óvingjarnleg orð, um aðstöðu
hins nýja utanríkisráðherra, vegna
þess að hann var kvæntur tiginborinni
konu.
Skömmum 7 vikum seinna vildi
þessu ráðuneyti það slys til, að for-
seti þess, Rotwitt, fékk slag, þegar
hann var að ganga niður stigann í
svokölluðu “Hotel Royal,” og þar með
var saga ráðuneytisins, sem lafði á
honum einum og greifynjunni, á enda,
og saga Gríms i utanríkisráðuneytinu
þar með líka. Heimildarmanninum
segist svo frá:
“Með myndun hins nýja ráðuneytis
(2. ráðuneyti Halls) breyttust hin
innri hlutföll í ráðuneytinu einnig.
Ahrif Gríms Thomsens á stórpólitík-
ina, sem höfðu byggst á fullkomlegu
einkasambandi milli hans og barúns
Blixen, hættu af sjálfu sér, og Thom-
sen var upp frá þessum tíma og þang
að til hann var endanlega leystur frá
embætti í apríl 1866 einskorðaður við
að stjórna verzlunar- og konsúlats-
skrifstofunum.”
Það er ekki hægt að segja, að þessi
höfundur láti á sér skilja, að hann
sé hrifinn af Grími. Það verður þó
að geta þess, að höfundurinn er áður
búinn að kofcia upp um það, að hann
sjálfur sé ákveðinn andstæðingur
greifynjunnar. Hins vegar er það
bersýnrlegt af orðunum, að Grímur
hefir tæplega verið það góður félagi,
að samstarfsmönnum hafi verið vel
við hann, þvert á móti. Það sýnist
eins og hann hafi verið þeim stöðugur
þyrnir í augum. Hvað valda kann
er ekki gott að vita, hinn óvenjulegi
framgangur hans ef till eitthvað, en
alkunnugt er það, að Grímur var al-
mennt mjög tunguskæður maður, sem
stríddi og meiddi á báða bóga, og bar
ekki minnst á því, þegar hann var
kominn heim. Sjálfum hefir Grími
verið það fullljóst, að hann væri ekki
neitt sérlega vel liðinn af samstarís-
mönnum og hirðmönnum, og að þeir
hafi ekki verið honum sem hollastir,
og þótt það miður, ef marka skal
vísuorðin:
en kaldara und rifjum er kon-
ungsmönnum hjá,
kalinn á hjarta þaðan slapp ég.
Er Friðrik VII. andaðist, 1864, var
áhrifum greifynjunnar lokið, og þeirra
manna, er við hana höfðu stuðst, og
var þegar byrjað “að hreinsa til”
og “moka þeim út.” Þetta varð auð
vitað ekki gert í snarkasti, en aðal-
mennirnir hurfu af sjónarsviðinu
þegar í stað. Hinir, sem minni hátt-
ar voru, hurfu óðara, er sæmileg
tækifæri buðust, og í þeirra tölu var
Grímur.
Vegna þess hve utanríkismál sam-
kvæmt eðli sínu eru viðkvæm og
afar mikið bundin við málefnaþekk-
ingu, mannþekkingu og kunningsskap
þeirra manna, sem að þeim starfa, er
annað hægara en að hafa þar mikil
mannaskifti í fljótu bragði, og sizt
var það hægt eins og stóð þá fyrir
Dönum. Snögg og að þvi, er utan
frá séð virðist, ástæðulaus manna-
skifti gátu haft ill áhrif á þá, sem
við var að etja, meðal annars komið
þeim til að halda, að skoðanaskiftum
væri að kenna eða að atferlisbreyting
væri í aðsigi. Það var þvi fram-
in fullkomin breyting á skipulagi utan
ríkisráðuneytisins og svo um hnút-
ana búið, að þeir menn, sem stuðst
höfðu við greifynjuna, lentu utan við
hið nýja kerfi, og bitnaði þetta á
Grirfii. 1866 var hann, 46 ára gam-
all, leystur frá embætti. Aldur hans
þá er í sjálfu. sér nóg sönnun fyrir
þvi, að verið var að losa sig við
hann. Þó var svo látið sýnast, sem
allt væri þetta í vinsemd því að jafn-
hliða var hann gerður að Iegations-
ráði sem ekki er þó nema nafnið
tómt. Það hefði nú mátt ætla, að
manni, sem i jafn virðulegri stöðu
hafði verið, hefði verið auðvelt að
fá fyrstu stöðu við hans hæfi, er losn-
aði, hefði ekki legið þetta á bak við.
Eftir öllu eðli Gríms og háttum þang-
að til virtist og annað hafa legið
honum nær, en að hverfa frá heims-
glaumnum hingað,, ef hann hefði átt
þess úrkostar að komast í veglegar
stöður aftur, ef losnuðu. Hann bíð-
ur þó ekki, heldur hverfur viðstöðu-
laust heim og dvelur hér það, sem
efíir er æfinnar. Þetta verður ekki
skilið öðruvísi en sem afdráttarlaus
játning, frá hans hendi á þvi að hann
ætti ekki frekar frama von erlendis, og
sem fullvissa um að honum hefði vit-
andi vits .verið stjakað burtu fyrir
fullt og fast.
Grími hefir óefað sárnað þetta gíf
urlega, og því flytur hann sig heim
í fússi. Og þó er það víst, að ein-
mitt þetta atvik, sem Grími hefir þótt
hið sárasta, sem hann hafði hent,
(Frh. á 8. síðu).
Ill
Ágætureldiviður
til
Haust - kyndinga
Of snemt að fara að
brenna kolum — en æki af
góðum Arctic eldivið —
(birki, ösp, bökum, greni
og tamarac) er hentugt og
veitir snöggan hita,á svöl-
um kvöldum eða morgn-
um.
ARCTIC..
ICEsFUEL CQLTD.
439 PORTACE AVE.
Of>p<r&te bk/dson's Bay
PHONE
42321
EINSTÖK VÖRUGÆÐI
HEILSUSAMLEGT, ÖBLANDAÐ OG AREIDANLEGT
LYFTIDUFT
TAKIÐ EFTIR: Sendlfi undirrltuVum 2í»c meU pönti og
liér fAití «enda yflur hina fræKU Blue Ulhbon
NatreitÍNluhAk f fösrru hvftu baudl.
BLUE RIBBON LIMITED —
WINNIPEG
VERULEGT TÆKIFÆRI!
HINN NÝJI
ROYAL PRINCESS
RAFMAGNSSÓPUR
ásamt gólfvaxi og gljáólíu fyrir
S4950
eða með
$1.00 niðurborgun og $1.00 afborgun á viku
(Má borgast mánaðarlega ef vill)
Lítið álag fyrir vöxtum.
HREINSUNARTÆKI $8.50 AUKREITIS
Skoðið þessa furðulegu vél í
Hydro Sýningarskálanum, 55 Princess Str.
WuinípeóHijdro,
55-59 lif PRINCESSSI
Phone
24 669
for
Demonstration
MACDONALDS
Fitte Oú
Bezta tóbak í heimi fyrir þá,
sem búa til sína eigin vindiinga.
HALDID SAMAN MYNDASEDLUNUM
mm