Heimskringla - 27.11.1929, Blaðsíða 2

Heimskringla - 27.11.1929, Blaðsíða 2
*. BLABSIÐa HEIMSKRINGL A WINNIPEG, 27. NÓV., 1929 i suðurveg Þœttir úr Spánarför norrœnna iðnaðarmanna 1929 (Framhald) Daginn eftir söfnuðust allir saman í hinu “danska húsi” á sýningunni. Þaö var einlyft steinhús lítið, og minnir helzt á vörugeymsluhús. Voru Danir mjög óánægðir yfir þessu húsi sínu. Þar var ekki neitt innan- stokks, aðeins brúðan “Mette,” sem klædd var dönskum þjóðbúningi. Hún hafði vakið mikla athygli og umtal i blöðunum. Einhver ræðuhöld fóru þarna fram. Var svo farið til sýn- ingarhallar þeirra, sem Danir, Svíar, Norðmenn o. fl. hafa umráð yfir. Sýndar voru framleiðsluvörur og listiðnaður þessara þjóða, og sköruðu Svíar þar fram úr. Vakti á þeirra sýningu sérstaka athygli meir en mannhæðarhátt símtæki í glerumgerð, sem var nokkurskonar miðstöð, og sást i því hvernig símasambönd tæk- ist eða gerðist. Einnig var þar á allstórum gólffleti upphleypt land- kort af Svíþjóð, er sýndi hvar hin- ar ýmsu framleiðsluvörur voru unn- ar. Kort þetta var haglega gert, til dæmis voru raflýstir vitar með ströndum fram, o. s. frv. Norðmenn höfðu þarna greiðasölu og veittu hart brauð, öl. o. fl. Var mér sagt, að Spánverjar litu hálf undarlega út, er þeir sætu þarna og dyfu brauð- inu niður í ölið og tyggðu það grafal- varlegir. Væri einhver munur að sjá þá í bæjarhluta sínum yfir Mal- agavíni. Saltfisknum norska var náttúrlega mjög á loft haldið, ásamt öðru er þarna var til sýnis. Fær- sprottinn af því, að á einum veggnum var stórt landabréf af Grænlandi, sem ísland, vegna hnattstöðu sinnar, hlaut einnig að vera á. Ekki veit ég, hvort allir sýningargestiiv hafa mis- skilið þetta þannig. Hjá nokkurum Dönum leiðrétti ég misskilninginn— Athyglisverð var svissneska sýningin, sem einnig var þarna. Var úr- og gullsmiði þeirra framúrskarandi og réttnefnd dvergasmíði. Mér var það þegar ljóst, að eng- in tiltök voru að skoða vandlega alla sýninguna, vegna þess hve tíminn var naumur. Heldur varð maður að láta sér nægja það helzta. Þá var og það, að margt var svo hvað öðru líkt, sem sýnt var frá hinum ýmsu löndum, að upptalning og sundurlið- un er óhugsandi. Sýningin er og að mörgu leyti þannig, að manni finst hún ruglingsleg. Þó að til dæmis eitt land hafi sérstaka sýningarhöll, rekst maður- á eitt og annað frá því landi á tveim eða fleiri öðrum stöð- um. Þetta veldur því að varla er auðið að fá heildar yfirlit yfir sýn ingu hvers lands út af fyrir sig. Rétt er að gefa hallar þeirrar, er mest ber á þegar genigið er inn á sýn- ingarsvæðið, og sagt er lauslega frá áður. Upp að henni liggja mörg steinþrep, en til þess að ofþreyta ekki gestina, var hægt að ganga inn á sjálflíðandi tröppur, sem lyftu mönn- um upp brekkuna. Kostaði þetta nokkura aura og var mikið notað, er heitt var í veðri. I höll þessari er spænskt þjóðminjasafn. Sérstaklega ber þar mikið á kirkjugripum, perga- ments-handritum (guðsorða- og nótna bókumý. Eru bækur þesar skjall- hvítar og á þær ritað af hreinustu snild. Þá eru þar höklar og önnur eyingar höfðu, í sambandi við dönsku 1 messuklæði í hundraðatali, og allt sýninguna, nokkura skápa með salt- j unnið af miklum hagleik. . Afsteypur fiski og fallegar myndir frá eyjunum eru þar af heilum dyraumbún- á veggjum uppi- Ymislegt var í ag; kirkna, sem bera vott um mikið sal þessum frá Grænlandi. Margir j Hstfengi. Mikið er og af allskonar Danir héldu, að í sambandi við græn- hernaðartækjum og smíðisgripum. Ienzku sýninguna væri eitt og annað ; Konungsvagn er þar mjög gullrekinn frá íslandi. Var sá misskilningur meg þrennum gullbúnum aktýgjum, :— . ... --- i hvorttveggja kostaþing. Þá er á j safni þessu fyrir komið nokkurskon- ar “leiksviðum” og á þeim sýnd í gibs-steypu atvik úr sögu þjóðarinn- ar. Tilsýndar virðast menn og mál- leysingjar vera lifandi, svo vel er frá þessu gengið, og svo vel er upplýsing þarna hagað, að engum blandast hug- j ur um, að Spánverjar eru snillingar á þvi sviði. — Sýningarhöll þessi, sem er bæði stór og falleg verður ekki niður rifin að sýningunni lokinni, heldur notuð sem stúdentabústaður. Annars eru flestar sýningarhallirnar reistar aðeins til bráðabingða. — Rétt við höll þessa er bygging allstór. Þar er sýnd nýrrí tíma málaralist. Koma á þeirri sýningu fram flestar “stefn- ur” innan málaralistarinnar. Lang- Þér sem viljið að börnin yðar séu vel /rísk Látið þau drekka meira af gerilsneyddri CITY MILK Hin bezta líkamsfæða er fáanleg er eitt af því sem allir skoða, sem á sýn- inguna koma. Það er mikil hring- mynduð húsaþyrping. Er þar sýnd byggingalist hvaðanæfa af Spáni. FIús þessi eru flest þrjár eða fjórar hæð- ir. Inn í húsagarði þessum eru einnig byggingar og turnar með ýmsu sniði. Þar eru veitingahús og sölu- búðir. I veitingahúsunum eru hljóð færaleikendur og dansmeyjar frá ýms- um stöðum af landinu. Er þarna oft glatt á hjalla þegar kvelda tekur. Vin er veitt þayna í könnum með tveim stútum. Er annar víðari og um hann helt á könnuna, úr þeim mjórri er svo helt í munn sér. Er könn unni haldið í armlengd frá andlitinu, og þannig drukkið úr henni. Spán- verjar drukku úr könnum þessum af mikilli list, en ég og fleiri sem þetta reyndum, getum ekki hrósað okkur af drykkju á þennan hátt, enda var Spánverjum sýnilega skemt, er þeir sáu viðvaningana hella úr könnum þessum yfir andlit sér og brjóst. — Stúlkurnar, sem þarna dönsuðu, höfðu auðvitað “kastaniettur” í höndum, sem þær notuðu af mikilli list, og þótt þær sýndust dauflegar og áhugalausar í upphafi dansins, hvarf það smám saman, og er á leið varð dansinn tryldari og tryldari og að lokum minti það helzt á hvirfilvind. — Margar byggingar í bæ þessum voru fallegar, en nutu sín miður vegna þess að þær voru áfastar öðrum. Á Austurlanda- og Afríku-sýning- unni var einnig lif og fjör. Rétt við innganginn er skemtiskáli. Þar voru bumbur barðar og dansað ofboðs lega. Hávaðinn af bumbuslættinum var óviðfeldin. Danskonurnar gerðu hann enn verri með stappi og ólátum. Þær voru klæddar í dulur og af- skræmdar í andliti. Sjálf sýnin^- in var í skeifumyndaðri, lágri bygg- ingu, og voru þetta sölubúðir og verkstæði. — Allavega litur lýður rann á eftir manni með vörur, sem voru til sölu. Unnið var þarna að vefnaði o. fl. Garður var við sýningu þessa með þéttlimuðum trjám, heid- ur skuggalegur. Þar var komið fyr- ir á víð og dreif allskonar úttroðn- um villidýrum, en fuglar og apar I héngu í trjánum. — Sýning þessi var heldur óvistleg og ekki tilkomumik- il, en gefur sjálfsagt góða hugmynd um, hvernig heimafyrir er hjá þeim, er að henni stóðu. Vert er að geta um hinn mikla og ágæta íþróttavöll (Stadium). Hneig- ist nú hugur Spánverja, sérstaklega kvenna mjöig að íþróttum, og á sunnu dögum er mikið um að vera á íþrótta velli þessum Því miður hafði ég ekki tækifæri til að vera þar við í- þróttasýningu, því að um það leyti fór ég að sjá nauta-at, sem ég get síðar. Yniislegt merkilegt er að sjá í iðn- mest ber þar á myndum eftir spánska aðarbyggingunum. Til dæmis var Danir og Tékkar höfðu sýnt skósmíða-vélaverkstæði. Þar voru um 30 mismunandi vélar að listamenn. enn ekki hengt up myndir sínar, og stóðu þeirra herbergi auð. Hinn svonefndi “spánski bær” er TIL ÍSLANDS 1930 Símatilkynning er nýkomin frá aðalskrifstofu Canadian Pacific í Montreal að hið ágæta íí SS MEUTA” (15,200 TONN) hafi verið valið til þess að flytja þá er fara til íslands að ári á vegum hinnar opinberu hátíðarnefndar íslendinga Siglt Frá Montreal kl. 10 f.h. 11. Júní Nefnd yðar, er þessu hefir nú fengið ráðstafað vill brýna fyrir yður, að— Sérstök lest er fengin frá Winnipeg til Montreai. Sérstakar skemtanir verða um borð á lest og skipi. Svo margir hafa nú tryggt sér far með niðurborgunum, að enginn efi er á því að ferðin verður hin veglegasta. Sérstök vildarkjör háfa fengist meðan dvalið er í Reykja- vík—$52.80 í 14 daga að meðtöldu fæði og húsnæði. Fulltrúi nefndar yðar, sem nú er staddur í Reykjavík, er að semja um aukaferðir um landið fyrir heimfarendur að lokinni hátíðinni. Eftir kaupum á farbréfum, upplýsingum og öllu aðlútandi ferðinni snúi menn sér til— W. C. Casey, General Agent, Can. Pac. Steamships. R. G. McNeillie, General Passenger Agent, Canadian Pacific Railway, eða J. J. Bildfell, formanns Heimfararnefndarinnar, 708 Standard Bank Bldg., Winnipeg. Canadian Pacifíc Sama Atlætið — Canadian Pacific — Á Sjó og Landi verki, og var hægt að fylgjast með. hverniig skór voru gerðir, frá þvi er sniðiö efnið var afhent við fyrstu vélina, til þess er skórnir fullgerðir voru látnir í öskjur, sem markaðs- vara. — Allskonar vefnaðarvélar voru sýndar þarna að starfi, og unnu Spánverjar að þessu, enda voru vél- arnar spanskar. Mikið var um alls- konar vélar frá Þýzkalandi, og einn- ig voru sýndar þaðan margar fyrir7 myndir (model) af járnbrúm — hag- leikssmiði. Nokkuð var af flugvél- um, járnbrautar- og eimvögnum, og miðkafli úr allstóru skipi, í fullri stærð, var i einni sýningarhöllinni. Kynsturinn öll voru af bifreiðum. Enn má geta um japanskt postulín, serbneskan útsaum, sænska bókagerð óg bókband, austurrísk hljóðfæri, frakkneska fatatizku o. s. frv. Ann- ars er frá öllu svo vel genigið, að sama framleiðsluvara frá fleiri en einni þjóð, er ekki unt að gera upp á milli. Munurinn verður að ko'ma fram í reyndinni.— Nokkuð fór ég um til að skoða sjálfa borgina, Barcelona. Til dæm- is hlýddi ég messu í dómkirkjunni. Þar heyrði ég prest syngja, er hafði hvað fegursta baritone rödd, sem ég hefi heyrt. Kirkjan er mikil got- nesk bygging og forn, stóð bygging hennar frá því í lok 12. aldar fram um »miðja 15. öld, eða um 150 ár, og var þó eigi lokið við smíði turna hennar, og er ekki enn. (Framhald) Glímuflokkur Armenn- inga Kominn heim frá útlöndum með sigri og scemd Glímuflokkur “Armanns” kom hingað með “Brúarfossi,” seint í fyrrakveld. Hér höfðu verið gerðar ráðstafanir til að fagna flokknum vel, eins og honum sæmdi, en vegna þess hvað skipið kom seint, fórst þetta fyrir — því miður. Lúðvík Guðmundsson skólastjóri, sem var opinber fulltrúi flokksins á allri förinni, ætlaði að halda hér fyr- irlestur í gær um ferðalagið, en tími vanst ekki til að auglýsa fyrir- lesturinn, svo að hann ferst fyrir að þessu sinni, þar sem Lúðvík verður að halda lieim til sín í dag. í ráði var einnig að gltmusýning yrði hér svipuð og glímusýningunum var hagað erlendis, en það ferst má- ske lika fyrir, vegna þess, að suntir glímumannanna þurfa að hverfa heim hið bráðasta eftir svo langa burt- veru. Hér í blaðinu hefir verið skýrt nokk uð frá utanför Ármenninganna, og verður betur skýrt frá henni seinna. Þá er og í ráði að gefinn verði út útdráttur úr öllum blaðaummælum um sýningarnar, og að úrklippur úr blöðunum, sem töluðu um sýningarn- ar verði hafðar til sýnis á einhverjum góðum stað, þar sem almenningur get- ur gengið að þeim. Mbrgunblaðið hefir átt tal við glímumennina og spurt þá frétta. I stuttu máli sagðist þeim svo frá: —Gera má ráð fyrir að um 18 þús. manna hafi komið alls á sýningarnar í Þýzkalandi, en að um 15 miljónir manna hafi lesið greinir blaðanna og j séð myndir af íþróttaflokknum, því . að í hverri borg fluttu blöðin grein- ar eða myndir, eða hvorttveggja, um okkur, og þar sem sum þessara blaða hafa allt að hálfri miljón kaupenda, og að það voru á annað kundrað blöð, sem töluðu um okkur, mun þetta ekki of ætlað. Auk þessa lét kvikmyndafélagið “Ufa” taka kvikmynd af okkur og sýna hana um vikuskeið í öllum kvik- myndahúsum sinum um þvert og endi- langt Þýzkaland. Er ekki gott að gizka á hve margir hafa kynst okkur þar. 1 Jena var einnig tekin af okk ur kvikmynd fyrir safn, en hún var líka sýnd opinberlega allvíða. (Báð- ar þessar kvikmyndir munu koma hing að áður en langt um líður). Þegar því er rætt um hvaða kynningu þýzka þjóðin hefir haft af íslenzku glím- unni og Islandi fyrir för okkar, má ekki aðeins miða við það hve margir komu á sýningar okkar. Mikils- metnir Þjóðverjar höfðu einnig þau orð um, hvað eftir annað, að ekki vissu þeir til að ísland hefði nokkru sinni verið kynt betur í Þýzkalandi (og út á við) en með þessari utan- för “Ármenninga.” Morgunblaðið fékk nokkrar blaða- úrklippur, þar sem getið er seinustu, sýninga flokksins í Þýzkalandi og sýningarinnar í Leith. Fer hér á eftir útdráttur úr þeim ummælum. "Trierisc'he Volksfrc«nd (Trier) segir: “Fimleikar þeirra fóru fram með leikandi hraða viðstöðulaust í margar mínútur og án þess að talið yrði. Auganu var það (hrein) nautn að fylgjas’t með þessum full- komnu og sumpart mjög erfiðu æf- ingum, sem hinir íturvöxnu Islend- ingar notuðu til þjálfunar líkamæ sínum......... ....Það er ekki unt að lýsa einstök. um atriðum glímuleiksms, en ólgandi (sturmische Beifall) fagnaðarlæti á- horfendanna voru bezti vitnisburður- inn um hin djúpu áhrif og hrifningu, sem viðureignin vakti.” “Dresdener Neueste Nachrichten" segja: “.....Vér sjáum fyrir oss frá- munalega vel þjálfaða líkami, sem Þessi Blái Bekkur DOMINION Búinn til í Kanada Notaður um viða veröld trygging yðar, þegar þér ð rubber skófatnað . Hvernig farið þér að þekkja góða rubber skó úr, frá þeim sem lakari eru? Jafnvel sérfræðingar geta það stundum ekki, nema með því að taka skóinn í sundur. Til þess að þér fáið þekkt þá strax úr og þér sjáið þá, höfum vér merkt allan hinn betri skófatnað vorn með bláum rubber bekk sem á er Ietrað nafnið “Dominion.’’ Þetta er merki þess að skórinn er búinn til úr úrvals efni—ber auka- þykkt á öllum þeim stöðum þar sem skór slitna helzt—að hann þolir meira slit og er þægilegur fyrir fót- inn: Leitiö að bláa bekknum, þegar þér kaupið rubber skófatnað. Hann tryggir yður beztu kaupin fyrir pen- ingana. Vörur Dominion Rubber Co., Ltd. Hitað hafa heimili í Winnipeg síðan “82” D. D.Wood& Sons, Ltd. VICTOR A. WOOD HOWARD WOOD LIONEL, E. WOOD President Treasurer Secretary (Plltarnir aem öllum reyna aö þAknant) KOLogKÖK « Talsími: 87 308 Þrjár símalínur CANADIAN NATIONAL RAILWAYS JARNBRAUTA OG SKIPA FAR- BREF TIL ALLRA STAÐA í HEIMI Sérstakar Ferðir Til Ættjarðarinnar Ef þú ert aö ráðgjöra aö fara»heim í vetur þá findu farseðlasala Canadian National Rail- ways. Þaö borgar sig fyrir þig. Canadian National umboösmenn eru reiðubúnir að að- stoöa þig í öllu þar að lútandi. Það verða margar aukaferðir heim til ættlandsins á þessu hausti og vetri og Canadian National Railways selur farbréf á öll Atlanzhafs línuskipin og gengur frá öllum samningum þar að lútandi. Odýr Farlbréf yfir IDesetmilser til Allra Mafns4a@a Attu Ættingja Heima á Gamla Landinu sem Yilja Komast til Canada? FERÐIST ÁVALT MEÐ CANADIAN NATIONAL RAILWAYS SJE SVO, og þú ætlar að hjálpa þeim til að kornast ’hingað til lands há líttu inn hjá oss Vér önnumst allar slíkar ráð- stafanir. ALLOWAY & CHAMPION JÁRNBRAUTA UMBOÐSMENN UMBOÐSMENN ALLRA LlNUSKlPA FJELAGA. 667 Main Street, Winnipeg Sími 26 361 Forþegum mætt við lending á útleið og hcimleið

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.