Heimskringla - 02.07.1930, Qupperneq 1
DYERS & CLEANERS, LTD.
Sendit5 fötin yðar með pósti.
Sendingum utan af landi sýnd
sömu skil og úr bænum og á
sama verði.
W. E. THURBER, Mgr.
324 Young Str., Winnipeg.
XLIV. ÁRGANGUR________
Vestur íslendingar
sæmdir nafnbótum
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN. 2. JtrLI 1930.
ALÞÍN GISH Á T í Ð A RN EFNDIN
Háskóli Islands hefir sæmt þessa
Vestur-Islendinga doktorsnafnbót í
heiðursskyni, í sambandi við Alþing-
ishátíðina:
I læknisfræði:
Dr. B. J. Brandsson, Winnipeg.
I lögum:
J. T. Thorson, þingmann, Winnipeg.
G. Grimsson dómara, N. Dakota.
Prófessor Sveinbjörn Johnson,
1 heimspeki:
Vilhjálm Stefánsson landkönnuð.
Séra Rögvald Pétursson, D.D., Win-
nipeg.
H. C. Thordarson rafmagnsfræðing
og uppfyndingamann, Chicago.
Halldór Hermannsson bókavörð við
Cornell háskólann.
Jóhannes Jóhannesson Tryggvi Þórhallsson
bæjarfógeti í Reykjavík. forsætisráðherra.
forseti nefndarinnar.
Jónas Jónsson
dóms- og kirkjumálaráð-
herra.
Sigurður Eggerz
fyrverandi ráðherra og
bankastjóri.
Asgeir Asgeirsson,
fræðslumálastjóri og for-
seti sameinaðs þings.
Frá Alþingishátíðinni
Fréttir þær af Alþingishátíðinni, er
borist hafa vestur yfir hafið í skeyt-
um til ýmissa blaða hér hafa verið svo
strjálar og sundurslitnar, að örðugt
hefir verið að ráða til fulls af þeim,
hversu vel hátíðahöldin hafa tekist.
Fylgt var í öllum aðaldráttum dag-
skránni, sem skýrt var frá í hátíða-
blaðinu nýlega. Biskup landsins, dr.
Jón Helgason, flutti bænina fyrir Is-
landi að morgni hins 26. júní, svo sem
til stóð, að öðru leyti en því, að slag-
viðri og rigning hafði verið um nótt-
ina áður og grúfði þokan enn yfir
Skjaldbreið og Hengli, meðan biskup
signdi hinn fornfræga þingstað. Að
guðsþjónustunni lokinni var gengið til
Lögbergs í mikilli hersingu og fór þar
konungurinn, Kristján X., í broddi
fylkingar eins og konungi sæmdi,
enda hefir hann sömu konungsverð-
leika og Sál forðum, að vera höfði
hærri en allur lýðurinn. Næstur á
eftir honum gekk sænski krónprins-
inn, Gustav Adolph, þá ráðherrarnir
íslenzku og fulltrúar annara þjóð-
þinga. Þá biskup landsins með
presta sína í fullum skrúða. Þá stú-
dentar frá Islandi og Norðurlöndum,
alls kringum 1000, sem þar voru
saman komnir. Loks fór alþýða
manna í flokkum eftir héraða skift-
ingu. Þótti skrúðganga þessi mjög
tilkomumikil, enda er gizkað á að
þarna hafi verið saman komið um 35
þúsund mannS alls. Þá var hátíðin
sett á Lögbergi, sungið “Ó, guð vors
lands” og fyrri hluti hátíðaljóðanna
og Alþingi sett af konungi. Síðari
hluta dagsins var tekið á móti er-
lendum fulltrúum og gestum. Töl-
uðu þar fulltrúar frá Þýzkalandi,
Stóra Bretlandi, Bandaríkjunum, Can-
ada, Danmörki^, Finnlandi, Frakk-
landi, Noregi, Niðurlöndum. Svíþjóð.
Czechó-Slóvakiu, Færeyjum, eynni
Man, Manitoba, Saskatchewan, Norð-
Ur-Dakota, Minnesota. Fyrir hönd
Stóra Bretlands töluðu Newton lá-
varður, úr efri málstofu enska þings-
ins, og Rhys Davies úr neðri mál-
stofunni, og eftirlétu Islandi heitið
“Mother of Parliaments”, sem Eng-
land hefir lengi flaggað með sjálft.
Fyrir hönd Canada talaði dr. B. J.
Brandsson, og báðir þeir W. J. Major
og I. Ingjaldsson fyrir Manitoba, og
Wilhelm Paulson fyrir Sakatchewan.
Fulltrúar Finna og Færeyinga töl-
uðu á íslenzku. öllum ræðum var
útvarpað og hátalarar settir upp hing
að og þangað fyrir mannfjöldann.
Annan daginn undirrituðu Islend-
ingar, Svíar, Norðmenn, Finnar og
Danir, með sér vináttusamninga á
Þingvöllum. Hafa þessar þjóðir all-
ar átt margt saman að sælda frá
fornu fari, og er eigi nema gott til
þess að vita, að þær eigist vináttumál
ein við héðan í frá.
Þann dag var Vestur-Islendingum
fagnað sérstaklega að Lögbergi af
forseta efri deildar. Talaði sén
Jónas A. Sigurðsson frá Selkirk, af
hendi Vestur-Islendinga.
Mjög mikla athygli vakti söguleg
sýning, er fram fór á eftir, og glímu-
sýning um kvöldið.
Laugardagurinn fór aðallega í í-
þróttasýningar og samsöngva. Mun
veðrið hafa verið bezt þann dag, en
skemmt ofurlítið hátíðagleðina fyrri
dagana tvo. Að minnsta kosti höfðu
stúdentar í hótunum að flýja Þing-
völl á, föstudaginn, svo illa líkaði
þeim veðrið, og þótti það lítil karl-
hiennska. Norrænt stúdentamót var
háð í sambandi við hátíðina, og ýmis-
Magnús Jónsson
próf. í guðfræði og kirkju-
sögu við Háskóla Islands.
Jón Sigurðsson
frá Kaldaðarnesi,
ritari Alþingisnefndar
Magnús Kjaran
kaupmaður, framkvæmd-
arstjóri nefndarinnar.
Pétur Guðmundsson,
fulltrúi Alþýðuflokksins.
.... — — —- --------7-----■
leg þing önnur.
A sunnudaginn var afhjúpuð bronz-
taflan af Thomasi heitnum Johnson,
sem Manitoba gaf Islandi í hátíða-
gjöf. Hún var afhent af Hon. J. W.
Major með canadiskum yfirsöngvum
og síðan hengd upp í forsal Alþing-
I sitt einvalalið og stefndi á ráðhúsið,
en lögreglan, sem stöðugt hafði haft
vakandi auga á öllum tiltekjum
þeirra, gerði sig nú mjög ófrýnilega
I og gekk í veg fyrir þá með reiddum
| kylfum. Staðnæmdist þá Beattie og
féllst hugur, en þrefaði þó um hríð
ur á viðureignina, og þykir hans
framganga ekki hafa verið sem
skörulegust.
- * » «
Fjörutíu og fimm bæja- og sveita-
félög hafa nú ákveðið að taka þátt í
60 ára afmælishátíð Manitoba 15. júlí
ishússins. Sama dag afhentu þeir
Burtness öldungaráðsmaður og Svein-
björn Johnson styttu Leifs, sem er
gjöf Bandaríkjanna. Las Árni Egg-
ertsson upp þingsályktunartillögu
sambandsþings Canada, að veita Is-
landi einhverja sæmilega heiðurs-
gjöf og skyldi hún verða sniðin eftir
tillögum fulltrúanna, er þeir kæmu
til baka. Þýzkaland gaf landinu full-
komin tæki fyrir vísindalega til-
raunastofu. Sviar gáfu myndarlegt
bókasafn. Noregur sjóð til að kosta
stúdenta við norska háskóla. Dan-
mörk postulínsvasa með myndum frá
Þingvelli og Danmörku. Frakkland
gaf “Sevres”-vasa og sæmdi forseta
Alþingis heiðursorðu. Danskar kon-
ur í Ameríku gáfu brjóstmynd af
Vilhjálmi Stefánssyni, eftir Nínu Sæ-
mundsson myndhöggvara. Fjölda-
margar aðrar gjafir bárust Islandi,
sem oflangt yrði upp að telja. Má
yfirleitt ætla, að hátíð þessi hafi ver-
ið Islandi til mikillar sæmdar og
heilla.
KANADA
við lögregluna um það, að hann
krefðist þess að Webb eða einhver
af englum hans kæmi út og ávarpaði
lýðinn. Leit um stund út fyrir, að
deiian myndi enda friðsamlega. En
loks fóru þó leikar á þá leið, að lýð-
num, sem stóð eins og Björn að
baki Kára, fór að leiðast þóf þetta
og tróðst áfram sem ákafast og
hratt foringja sínum á undan sér
undir högg réttarins þjóna. Fór þá
að þykkna í Beattie og varðist hann
með miklum vaskleik, unz hann var
gripinn höndum. Síðan tók lögregl-
an að berja á mannfólkinu og skorti
þá eigi stór högg og þung, enda voru
þau eigi talin eftir eins og centin,
sem bærinn eyðir daglega til þess að
viðhalda lífinu í þessu fólki, sem
hann skortir forsjá til að fá eitthvert
nýtilegra verk að vinna, en standa
á strætum úti og bölva sínum fæð-
ingardegi. Tókst lögreglunni fljót-
lega að berja úr mönnum kjarkinn,
enda voru þá auðnuleysingjarnir
orðnir höfuðlaus her, þegar Beattie
var fallinn, og brast flótti í liðið.
“Kandidatinn” hafði skriðið út i
hliðargötu og horft þaðan lafhrædd-
í sumar. Mun víðast hvar vera til-
ætlunin, að hafa allan mannfagnað-
inn sem mest að gamaldagshætti, en
þó hafa sumir bæirnir ákveðið að
hafa sögusýningar og skrúðgöngur.
* * »
Hagskýrslur stjórnarinnar í Can-
ada sýna, að á tiu árum, síðan 1921,
hafa fluzt burt úr Canada, mest til
Bandarikjanna, um 1,355,655 manns,
eða næstum þvi tíundi hluti ibúanna.
Arið 1921 var ibúatalan 8,788,000. —
Síðan hafa fæðst í landinu 2,172,622
börn og 938,866 menn dáið. Inn-
flytjendur hafa verið alls 1,130,659,
og hefði því íbúatalan eftir því átt
að vera 11,152,455, en ekki 9,796,800
einsc og nú er, ef allt hefði farið með
feidu.
» • •
Frá Brockville kemur sú fregn 27
júni s.l. að þar hafi borið hræðilegt
slys að höndum daginn áður, er J. P.
King, botnsköfu- og borunarbátur,
sem fékkst við að sprengja upp með
tundri og dýpka á þann hátt botn
St. Lawrence fljótsins, sprakk í loft
upp af eldingu, er slegið hafði niður
—--------------—-------------*
Á miðvikudagsmorguninn s.l. varð
lögregla Winnipegborgar að skerast
í leikinn og tvístra með kylfum hóp,
hér um bil þúsund vinnulausra manna
sem ætluðu að ryðjast inn í ráðhúsið
og hitta Webb borgarstjóra að máli
um vandræði sín. Til þessara aðfara
hafði verið stofnað á þann hátt, að
James Beattie, foringi þessara manna
hafði boðað til útifundar til þess að
ráðgast um vandræðin, og fyllti mann
safnaðurinn nærri því King St., svo
að lögreglan varð að safnast að til
að greiða fyrir umferð. Leslie Mor-
ris, frambjóðandi sameignarmanna
í Norður-Winnipeg, ávarpaði fyrstur
mannfjöldann og síðan hver af öðr-
um unz Beattie sjálfur sté upp í
ræðustólinn og skýrði frá þvi, að
borgarstjóri hefði hvað eftir annað
neitað sér um áheyrn, þegar hann
hefði viljað bera fram fyrir hann
málefni lýðsins. Tók þá mannfjöld-
inn að ókyrrast, en Beattie skoraði
á hann að fylgja sér sem drengileg-
ast inn í ráðhúsið og taka borgar-
stjóra tali, hvort sem hann vildi eða
ekki. Lagði hann síðan af stað með
NÝJAR MYNTIR
Island hefir látið gefa út sérstaka mynt til minningar um 1000
ára afmæli Alþingis, 10 kr., 5 kr. og 2 kr. peninga. Myndirnar að
ofan sýna þessa nýju myntsláttu. Auk þess hafa verið gerð ný frí-
merki, alls 16, eftir uppdráttum islenzkra listamanna af merkum
sögustöðum og sagnaviðburðum. Sérstakt Alþingishátíðarmerki var
búið til með “víkingaskipinu” klettaborg í Almannagjá og miðnæt-
ursólina í baksýn.
í bátinn og farið í sprengiefni það,
sem hann hafði í fórum sínum. Þrjá-
tiu manns lét lífið en tólf varð bjarg-
að með örkumlum og lagðir á sjúkra-
hús.
* * •
Sama dag urðu ýms slys af vatna-
; vöxtum í Vermillon ánni, skamt fra
Sudbury og Capreol, Ont. Járnbraut-
arlest C. N. R. félagsins, No. 4, sem
var á leiðinni frá Winnipeg til To-
ronto, óð út í vatnsflóðið sér að ó-
vörum í nánd við ána, þar sem flætt
hafði yfir sporið, og flutu sjö vagnar
af 9 af teinunum og hálfsukku, og
drukknuðu fjögur börn. Fleiri lest.
ir lentu í þessum ógöngum, og er tal-
ið að alls muni hafa látist um 11
manns á þessum slóðum.
BANDARIKIN
Astralskur flugmaður að nafni
Kingsford-Smith, hefir nýlega flogið
yfir Atlantshafið hér um bil 2000
rnílna leið frá Irlandi, ásamt þrem
öðrum mönnum, i Fokker flugvél.
Hann lagði af stað frá Port Mar-
nock á Irlandi kl. 9.25« eftir enskum
tíma og flaug á 21 klukkutíma til
Horbour Grace á Newfoundland, og
síðan til New York á fimtudaginn.
Flugu þeir þannig um 100 milur á
klukkustund, og héldu stefnunni ör-
uggt, enda hrepptu þeir gott veður
alla leið, nema ofurlítinn storm skamt
frá Cape Race. Þykir þetta flug
hafa verið frækilega af höndum leyst,
því að minnst níu flugvélar hafa
farist á undanförnum árum á At-
lantshafsflugi. Var undirbúningur
fararinnar líka allur í bezta lagi.
* • •
Bandaríkjastjórnin hefir nýlega
samþykkt að borga 74,243,000 doll-
ara fyrir skip þau, stór og smá, alls
94 að tölu, er tekin voru herfangi at'
Þjóðverjum í stríðinu síðasta. Eru
þessar skaðabætur goldnar sam-
kvæmt samningi um stríðsskaða-
bætur frá 1928, og mati á verðmæti
skipa þessara, sem nýlega er lokið.
Borgunarskilmálar eru til 27 ára. Er
mikil gleði á Þýzkalandi yfir því, að
fé þetta skuli greiðast.
*---------------------------->►
BRETAVELDl
i---------------------------*
Sir John Simon og sex meðnefnd-
armenn hans, sem í tvö ár hafa set-
ið á rökstólum og ferðast fram og
aftur um Indland, til þess að líta eft-
ir velferð landsins ög skyggnast eft-
DYERS & CLEANERS, LTD.
Er tyrstir komu upp n ■ I a3
afgreitía verkií sama daglnn.
Lita og hreinsa fyrir þá sem
eru vandlátir
W. E THURRER, áigr.
Sími 37061
NCMER 41
ir þvi í hverri borg, hversu mikið
stjórnarfarslegt frelsi landinu munl
vera hollt að öðlast, hafa nú loks gef-
ið út skýrslu sina í 17,000 eintökum,
400 bls. stórum, og dreift yfir allt
Stóra Bretland fyrir 3 shillinga ein-
takið. Rann skýrslan út, og var les-
in með mikilli gaumgæfni af háum
sem lágum. Enginn hefir komist að
nokkurri niðurstöðu um það, hvaða
boðskap skýrslan hefir að flytja i
aðalatriðum, segir blaðið Morning
Post í skeggræðum sínum um málið.
Leggjast tillögur Simons þó ákveðið
á móti sjálfstæðiskröfum Gandhis og
hans manna. “Takmark brezkrar
stjórnaraðferðar verður að vera það,
að efla til valda sterka stjórn á Ind-
landi, sem ávalt verði skoðað sem
óaðskiljanlegur hluti brezka ríkis-
ins.” Skýrsla þessi vakti hörðustu
andmæli i Bombay, Calcutta og Mad-
ras, þar sem Gandhi flokkurinn hóf
mótmælagöngu og kallaði skýrsluna
“ósvífni gagnvart Indlandi”. Og í
Surat, nálægt Bombay, var líkan Sir
John Simon, brennt hátíðlega á báli,
honum til svívirðingar.
ímsar athyglisverðar upplýsingar
hafði skýrslan að flytja, svo sem það,
að tekjur alls fjöldans af Indverjum
nemi svo sem 40 dollurum á ári, að
allur þorrinn af íbúum fátækrahverf-
anna í stórborgunum, búi við það
húsnæði, að verða að kasast í hrúg-
um í einu herbergi, að aðeins 2,500,-
000 Indverjar af 320 miljónum, séu
læsir á enska tungu, og aðeins 414
miljón þeirra kristnir.
* • •
I nýútkomnu hefti af Empire Re-
view er grein eftir Sir Leo Chiozza
Money, er sýnir fram á, að tala
barnafæðinga á Englandi fari svo
hraðfækkandi, að óhjákvæmilega
hljóti að draga til verulegrar fólks-
fækkunar mjög bráðlega. Er þar að
gerast hin sama saga nú upp úr
heimsstyrjöldinni síðustu, og varð á
Frakklandi eftir Napoleonsstríðin.
Langt er síðan fólksfækkun hófst 4
Irlandi. Siðan 1841 hefir íbúum
landsins fækkað hér um bil um helm-
ing. Sömuleiðis hefir talsvert fækk-
að íbúatala Skotlands á síðari árupa.
Mun mjög miklum útflutningi vera
talsvert að kenna í þessum löndum
báðum. Hins vegar hefir allt til síð-
ustu tíma verið stöðug fólksfjölgun
bæði á Englandi og í Wales. Þ6
voru barnsfæðingar aðeins 111,000
fleiri en dauðsföll árið 1929. Sir Leo
bendir á að árið 1914 hafi íbúar Eng-
lands og Wales verið 37 miljónir, og
að þá hafi fæðst alls 879,000 böm.
Hins vegar hafði fæðst aðeins 640,000
börn árið 1829, þegar fólksfjöldinn
var þó orðinn 39 miljón. Árið 1930
eru barnsfæðingar áætlaðar 625,000.
Stefnir þannig hag landsins í sama
óefni og Frakkar hafa kvartað um
nú um hríð: Færri menn til að alast
upp í hirðuleysi og svelta í atvinnu-
leysi. Færri menn til að siga af stað
í stríð og láta drepa á vígvöllunum.
Fimm miljón gjafvaxta meyjar em
nú á Englandi, sem enginn lítur við.
Piparsveinum fjölgar óðfluga. Gifta
fólkið á ekki nema einn eða tvo
krakka í mesta lagi. Er þetta ekki
í sjálfu sér gleðilegt tákn tímanna?
Til hvers er að fjölga mannfólkinu,
meðan löndin eru ráðalaus að sjá
þeim fólksfjölda, sem þegar er til
staðar, fyrir sæmilegu lífsviðurværi?
Heimspekingar nútímans eru yfir-
leitt farnir að gefa mannkyninu þessa
ráðleggingu: Framleiðið færra fólk
en betra fólk.
* • *
Nýlega hefir verið ákveðið að
hressa duglega upp á hina veglegu
Westminster dómkirkju á Englandi.
Hefir verið ákveðið að skreyta hana
alla að innan með tiglaverki (mosaic)
og er talið að hvert ferfet muni
kosta um 15 pund sterling. AUt
verkið kemur þá til að kosta um
5 miljón pund sterling, og verður
naumast lokið fyr en að 200 árura
liðnum.
Dánarfregn
Símskeyti barst vestan frá hafl
um það, að hinn 28. júní s.l. hefði lát-
ist að heimili sínu í Crescent, B.C.,
Sveinn Brynjólfsson byggingameist-
ari og fyrrum ræðismaður Dana 1
Winnipeg. Hann mun hafa verið 74
ára gamall. Með láti hans er í vaJ
fallinn einn af merkari mönnum þjóð-
flokks vors hér vestra. Verður hana
nánar minnst síðar.