Heimskringla - 02.07.1930, Side 8
8. BLAÐSÍÐA
heimskringla
WINNIPEG, 2. JCrLl 1930.
Fjær og Nær
Séra Bcnjamín Kristjánsson flyt-
ur guðnþjónustu í Plney n.k. sunnu-
dag þann 6. júli, kl. 2 e. h.
* * *
Allir íslenzkir Goodtemplarar í borg
inni og nágrenninu ætla að sameina
sig á “picnic” til Gimli 13. júlí.
• * •
Eitt orð hefir fallið úr fimmta
vísuorðinu i VI. flokki Hátíðaljóða
Davíðs Stefánssonar. Ljóðlínan á að
vera á þessa leið: I þúsund ár bjó þjóð
við nyrztu voga. Þetta eru menn
beðnir að athuga.
* • •
Þann 28. júní s.l. lögðu Mr. og
Mrs. Victor Jónasson af stað héðan
■ úr bæ í skemtiferð vestur til Seattle.
Búast þau við að verða þrjár vikur
i burtu. Þau fóru í bíl.
• m m
George F. Long verkfræðingur og
frú hans frá Chicago, hafa dvalið um
tima hér i bænum, í heimsókn hjá
foreldrum Georgs, Mr. og Mrs. B. M.
Long, 620 Alverstone St. I síðustu
viku ók Georg með foreldri sín vest-
ur til Argyle og suður til Duluth og
þaðan norður til Port Arthur. Heim
til sín til Chicago lögðu hjónin aft-
ur i dag.
• • •
Guðjón Bjarnason frá Pembina, N.
D., var staddur í bænum s.l. viku.
Sagði hann allt bærilegt að frétta úr
sinni byggð. Þurka kvað hann hafa
verið æði mikla, en með síðustu rign-
ingu hefðu uppskeruhorfur batnað
jnjög. Mr. Bjarnason var hér á Is-
lendingadagshátíðinni, og sagðist
hafa, sem fleiri, skemt sér vel. Og
svo stóran hóp Islendinga hafði hann
ekki um langt skeið séð saman kom-
inn, sem þar.
• • •
Á Rose hreyfimyndahúsinu er síð-
ari hluta þessarar viku sýnd mynd-
in: “Son of the Gods”. Dick Barth-
elmess og Constanee Bennett leika
aðalhlutverkin. Eru þessar persón-
ur svo vel þekktar, að allir, sem á
myndahús hafa komið, vita, að þar
er mikla skemtun að hafa, sem þau
eru bæði. Heimsækið Rose þessa
viku, og njótið ánægjulegrar kvöld-
stundar þar.
• * •
Fyrra þriðjudag lézt í Minneota,
Minn., öldungurinn Joseph Johnson,
87 ára að aldri, og var jarðsunginn
frá lútersku kirkjunni i Westerheim
á fimtudaginn var af séra Guttorrr.i
Guttormssyni.
Jóseph heitinn var fæddur á Hól-
um I Vopnafirði á Islandi 2. febrúar
1843, sonur Jóns Sigurðssonar og
Ambjargar Arngrímsdóttur, er þar
bjuggu. Var hann lengi vinnumað-
ur hjá séra Halldóri á Hofi í Vopna-
firði og fluttist vestur um haf árið
1879 og kom þá beint til Minneota.
Giftist hann þar 1889 eftirlifandi
ekkju sinni Stefaniu Sigurðardóttur,
og bjuggu þau um 40 ára bil í West-
erheim, en fluttust árið 1913 til Min-
neota. Varð þeim eigi barna auðið,
en tóku fósturson, Tom Johnson, er
féll í styrjöldinni miklu. Joseph
Johnson hafði verið blindur síðustu
fimm ár æfi sinnar og bar það vel. —
Hann var dugnaðarmaður og vinsæll
með afbrigðum.
• • •
Islendingadagshátíðin í Winnipeg
var mjög vel sðtt og heppnaðist yf-
irleitt ágætlega. AUt að 1200 Is-
iendingar munu þarna hafa verið
samankomnir og var það stærri hóp-
ur en um nokkur undanfarin ár hef-
ir sótt Islendingadaginn. Það sem
sérstaka nægju veitti gestum dags-
ins, var fyrst og fremst hinn ágæti
söngur karlakórsins undir stjórn
Björgvins Guðmundssonar. Þá var
og ánægjulégt að horfa framan úr
sætunum á málverk hr. Fr. Sveins-
sonar af Þingvelli, á framþili skál-
ans. Sýning fornmannanna Clfljóts
«g Gríms og Þrumuguðsins Þórs og
FjaUkonunnar, þóttu ágætar, enda
var nýlunda að sjá það allt. Ræð-
nrnar og kvæðin voru éinnig með
skemtilegasta móti. Hina miklu að-
sókn að deginum í ár, er auðvitað að
þakka því, að hátíðin hafði sérstaks
atviks að minnast, þúsund ára af-
mæli Alþingis. Sá mérkisviðburður
í sögunni og minning hans hefir vak-
ið Vestur-Islendinga til sterkari þjóð-
ræknismeðvitundar en nokkuð annað.
Er það nú skylda Islendinga að sjá
um, að sá neisti kólni.
Kvæðin sem flutt voru, eru birt í
þessu blaði og fyrirlestur séra Krist-
ins ólafssonar. Aörar ræður og á-
vvrp verða birt síðar.
• * *
Þakkarávarp.
I tilefni af 35 ára Sambúð okkar i
hjónabandi, og burtflutningi frá
Mountain, N. . D., þar sem við hjón
höfum átt heima í nærri 50 ár, var
stærsti salur bæjarins lýstur og
prýddur, þar setn um 350 af vinum
okkar og vandamönmrm gerðu okk-
ur eftirminnilega ánægjustund. Alls-
konar veitingar voru fram bornar.
Söngur, bæði einsöngur og marg-
raddaður, var um hönd hafður ásamt
ræðum. Síðan voru okkur afhentar
rausnarlegar peningagjafir, frá kven-
félaginu á Mountain, stúkunni Freyju
og stúkunni A. O. U. W. No. 25, og
frá öðrum sérstökum vinum okkar
og kunningjum, sem lögðu fram
skerf til að gleðja okkur hjónin.
Samkomunni stýrði séra Haraldur
Sigmar af sinni venjulegu snilld og
lífgandi fyndni, sem heldur fjöldan-
um í ánægjulegu samræmi.
Að endingu biðjum við gjafarann
allra góðra hluta að endurgjalda all-
ar þessar velgerðir, þar sem við finn-
um vanmátt okkar í því efni.
Með alúðar kveðju frá
Mr. og Mrs. H. H. Reykjalín.
* • •
A skotspónum.
"A skotspónum” er skrambi smellin
skemtibók, ef rétt er tekin.
Þanka-hressing þeim, sem ellin
þjakar og lífs er stormum skekinr..
Finnst mér hún eins og góður gestur
— glaðsinna, i máli léttur —
til mín kominn sé og seztur
sagnafrjór, með kýmnis-glettur.
Bak við glens og gamanyrði
gægjast skarpar ályktanir;
mörgum það er mikils virði,
mat sem þunnum eru vanir.
Þökk 'fyrir liprar lausafréttir
lands um mál og þjóðlífs trosið.
Hógvært gaman lifið léttir.
Lof sé þeim er vekur brosið.
Þorskabítur.
• • m
Vörugæði vinna ávalt.
Það er nokkuð eftirtektarvert á
þessum samkeppnistímum, sem við
lifum á, að cigarettu framleiðandi
skuli finnast, sem leggur allt í söl-
urnar fyrir að búa til góða vöru. Þó
önnur félög gefi kaupbætur með ým-
iskonar premíum, hafa framleiðend-
ur Buckingham cigarettanna sífellt
neitað tilboðum í þessa átt, en hafa
i þess stað lagt alla áherzlu á gæði
vörunnar.
Að sala á vörunni hefir ekki minnk
að við þetta, sést bezt á því, að
Buckingham cigarettur eru seldar
meira en nokkur önnur cigarettu-
tegund.
Vegna þessarar almennu eftir-
spumar eftir Buckingham Cigarett-
um, höfum vér myndið klúbb, Buck-
ingham Boosters’ Club, sem menn
ganga i og stuðla að því að sem
flestir viti um ágæti Buckingham
vindlinga — og fá meðlimir gjöf
nokkra fyrir. Þessi klúbbhugmynd
hefir fengið góðar undirtektir, og
ættu þeir sem félagar vilja gerast,
að skrifa “The Booster Secretary,
Tuckett Limited, 171 Market Ave.
East, Winnipeg, Man.
HVAÖ ER BLÓM?
Skyldi nokkur vera, sem ekki skil-
ur hvar orðið Vínlandsblóm þýðir?
Já, einn að minnsta kosti, ef dæma
á eftir grein er birtist í Heimskringlu
12. júní, með fyrirsögninni “Fundur-
inn”, eftir einhvern Jóhannes Eiríks-
son.
Greinin dæmir sig sjálf og þekking
aumingja mannsins.
Hann sýnist ekki hafa borið skyn á
það, að skógarland Vestur-Canada
hefir verið fram til þessa í höndum
sambandsstjórnarinnar, en ekki Mani-
tobastjórnarinar. Col. Stevenson er
og hefir verið í þjónustu sambands-
stjórnarinnar, og er það þess vegna
algerlega rangt að hann hafi verið að
tala um Manitobastjórn.
Mr. Eiriksson finnst að Mr. Hooper
hafi verið einkennilegur maður, og ei
það mjög eðlilegt, því Mr. Hooper er
viðurkenndur gáfu og menntamaður
Hefir hann sjálfsagt talað langt fyrir
ofan skilning Mr. Eiríkssonar.
Ekki, getur greinarhöfundur gefið
mér meiri heiður, en skín út úr grein
hans, þar sem hann gefur í ljós, að
Col. Stevenson hafi fyllilega skilið til-
gang félags vors; og er hann svo góð-
ur að gefa mér þann heiður, að leggja
á mig sama mælikvarða og þessa
gáfu- og mentamenn'
Að við þrir — eg meðtalinn —
skyldum hafa rætt það mál, er hann
hafði ekkert vit á að dæma um.
En því er maðurinn að láta al-
ménning vita hve skilningssljór hann
er?
Hvað þekkingu mína snertir á [
skógrækt, þá skal eg viðurkenna að
sú þekking er mjög takmörkuð. Þess
meira sem eg les, og þess meira sem
eg grennslast eftir skógargróðri, þess
sárar finn eg til þess, hve litið eg
veit.
Mér nægir þó, að þessir mætu
menn, Col. Stevenson, Mr. Hooper,
hr. Sig. Sigurðsson búnaðarmála-
stjóri, og aðrir mætir menn, skilja |
tilgang minn og áhugamál.
Blóm er sá partur af jurt, sem!
framleiðir fræ, hvert tré, er fram-1
leiðir fræ, ber blóm. Engin jurt nær I
sínum fullþroska, nema hún hafi i
blómgast og borið fræ.
Orðið blóm, þýðir líka það bezta,
það fegursta, það fullkomnasta af
hverju sem er.
Þegar maðurinn hefir náð fullþroska
lífsins, þá er hann i blóma sinum.
Svo er með allt líf, málefni eða hvað
sem er. Þegar það hefir náð sínum
fullkomlegleika, þá er það í sínum
blóma.
Fagrar hugsanir eru líka blóm.
Skáldið segir:
“Þá er það víst að beztu blómin gróa
í brjóstym sem að geta fundið til.”
Félagið Vínlandsblóm er ungt, og
er stofnað aðallega til þess að hjálpa
til við endurreisn skógargróðurs á
Islandi, í samvipnu við áhugasama
menn þar. En einnig til að vinna að
verndun og viðhaldi skóga hér I
landi.
Vínlandsblóm hefir mætt mót-
spyrnu, þótt það sé ekki gamalt. En
af hvaða ástæðum, er oss óljóst.
Björn Mugnússon.
428 Queen St.,
St. James, Man.
[ nema hvað farið var að fúna framan i
af nefbeininu. Skallinn var alveg
I hreinn og allar tennur heilar.
• * •
Rvík 31. maí.
Islands minnst í Þýzkalandi. — Þ.
11. maí hélt borgarstjórnin í Lybeck
hátíð til minningar um 1000 ára af-
mæli Alþingis. Hátíðin var haldin í
ráðhúsi borgarinnar, og hafði “Nor-
ræna félagið” þai forgöngu alla.
Sveinn Björnsson sendiherra í Höfn
og Zahle sendiherra Dana og Islend-
inga í Berlín voru þarna viðstaddir.
Prófessor Neckel hélt þarna fyrir-
lestur um íslenzkar bókmenntir, og
likti meðal annars saman stíl þeirra
Snorra Sturlusonar og hins víðkunna
þýzka rithöfundar Emil Ludwigs. —
Ungfrú Gagga Lund söng íslenzk
lög og frú Hermína Sigurgeirsdóttir
Kristjánsson aðstoðaði. Að endingu
hélt Sveinn Björnsson ræðu og þakk-
aði fyrir heiður þann er íslenzku
þjóðinni væri sýndur með hátíð þess-
ari, og óskaði borgarbúum Lybeck
og einkum “Norræna félaginu” allra
heilla.
ljóð eftir Davíð Stefánsson voru sung
in. Sveigar voru lagðir á leiði amt-
mannanna Bjarna og Stefáns Thorar-
ensen. Iþróttasýning fór fram. Ræð-
ur voru haldnar: Jónas Jónsson
dómsmálaráðherra, Einar Árnason
fjármálaráðherra, Sigurður Guð-
mundsson skólastjóri, Valtýr Ste-
fánsson ritstjóri og Þórður Gunn-
arsson, Höfða. — Hagstætt veður.
Á Akureyri hófst hátíðin kl. 9 um
morguninn (seinni daginn). Skrúð-
ganga í kirkjugarð og sveigar lagðir
á leiði skólastjóranna Hjaltalíns og
Stefáns Stefánssonar.
Kl. 11 var morgunverður fram
borinn. Söngur, ræðuhöld. KI. 7 át-
veizla, sem stóð yfir í 5 klukkustund-
ir. Ásgeir Sigurðsson ræðismaður
afhjúpaði mynd af Hjaltalín, er mál-
að hafði Jón Stefánsson, gefin skól-
anum af gömlum gagnfræðingum.
Hátiðaljóðum eftir Huldu skáldkonu
var úthlutað. Mælt fyrir ótal minn-
um. Að síðustu dans stíginn fram
undir morgun.
Hátíðin var tilkomumikil og virðu-
leg.
• • •
Rvík 1. júní.
var með “Hvidbjörnen”, er ætlar til
Grænlands, m. a. Rechnitzer flota-
stjóri, C. Schaffelitzky de Muckadell
barón, V. A. Purschel fólksþingmað-
ur og Larsen ritstjóri.
• • «
Rvík 1. júní.
Gunnar Gunnallsson rithöfundur
hefir verið kjörinn heiðursfélagi í al-
þjóða rithöfundafélaginu P. E. N.-
klúbbnum I London. Jafnframt hef-
ir honum verið boðið að koma til
London scm heiðursgestur einhvern-
tíma á veiri komanda. Er Gunnari
hér sýnd mikil sæmd, því að heiðurs-
félagar i klúbb þessum eru aðein3
frægustu rithöfundar í hverju landi.
THOMAS JEWELRY CO.
Tjrsmíði er ekki lærð á einu eða
tveimur árum. 25 ára reynsla
sannar fullkomna þekkingu.
Hrenslun $1.00 Fjöður $1.00
Waltham Pr $12.00
Póstsendingar afgreiddar tafar-
laust.
CARL THORLAKSON
úrsmiður.
627 Sargent Ave., Winnipeg
Frá Islandi
Rvík 29. maí.
Slys á togara. — Togarinn “Þór-
ólfur kom hingað í gær, með fjóra
menn slasaða. “Þórólfur” hafði á
mánudaginn verið að veiðum vestur
á Hornbanka, og var vonzkuveður og
mikill sjór. Sjö hásetar voru við
aðgerð á þilfari. Brotsjór reið yfir
skipið og sópaði öllu lauslegu af þil-
farinu. Mennirnir köstuðust aftur i
þilfarið og meiddust fjórir þeirra og
tveir allmikið. Sá sem mest hafði
meiðst er Jón Jóhannsson (fyrrum
skipstjóri) frá Bíldudal. Hann hafði
skorist allmikið á andliti. Sveinn
Sveinsson, Sellandsstíg 14, meiddist
allmikið u fæti, og hini rtveir, Arsæll
Sumarliðason og Guðjón Jónsson,
höfðu maríst töluvert. Þeir Jón og
Sveinn voru fluttir á sjúkrahús. Var
ætlun skipstjóra á Þórólfi að fara
inn á Isafjörð, en veðrið var svo
vont að ekki var tiltækilegt að fara
þangað.
• • •
Rvik 29. maí.
Mannabein fundin. — 1 hitteðfyrra
haust var verið að grafa fyrir stein-
steypuvegg að bænum Stóru-Sand-
vík I Flóa. Komu menn þá niður á
beinagrindur — hauskúpu og hálslið
tveggja manna. Voru bein þau mjög
fúin og þess vegna látin um kyrt.
En. á miðvikudaginn var, var á
þe3sum stað . farið að grafa fyrir
hlöðu, sem þar á að byggja, og út
frá því umróti komu menn niður á
7 beinagrindur, er láu hlið við hlið,
mjög skaddaðar flestar, en sást þó
hvernig þær sneru.
Menn halda þar eystra, að það sé
áreiðanlegt, að hér sé um mjög forn-
an grafreit að ræða, og að sá graf-
reitur sé ókunnur.
Vita menn, að hér var áður bæna-
hús það hið forna, sem getið er um
í jarðabók Árna Magnússonar (1702),
en segir þá að það sé niðurlagt, og
orðið nú að geymsluskúr, og að hætt
sé að jarða þar fyrir löngu.
Kirkjugarður gamall er þarna, en
hann er svo sem 12 faðma frá því,
sem þessar leifar hafa fundist.
Beinagrindurnar lágu samhliða og
var svo sem tveggja feta bil á milli
þeirra.
Þær voru mjög fúnar flestar, sást
varla votta fyrir öðru en hauskúpum
og hryggjaliðum. En yzta hauskúpan
sem fannst, var ósködduð að mestu,
Rvík 31. maí.
Islendingasögurnar. — Eins og
kunnugt er. á að fara að gefa út Is-
lendingasögurnar á dönsku. — Kem-
ur fyrsta heftið út hjá Gyldendals-
forlaginu daginn fyrir Alþingishátið-
ina. I því hefti eru: Egils saga, end-
ursögð af skáldinu Johs. V. Jensen,
og Laxdæla, sem Thöger Larsen hef-
ir endursagt og lauk við rétt fyrir
andlát sitt. Hinar sögurnar koma út
seinna og vinna að útgáfu þeirra
Knud Hjortöe, Hans Kyrre, Ludvig
Holstein og Vilhelm Andersen. Auk
þess veita þeir prófessorarnir Jón
Helgason og Bröndum Nielsen aðstoð
sina við útgáfuna. — Sögurnar verða
prýddar myndum, teiknuðum af Jó-
hannesi Larsen málara, sem hér var
einu sinni á ferð og mun koma hing-
að upp í sumar til þess að viða að
sér efni i fleiri teikningar. Gunnar
Gunnarsson rithöfundur hefir farið
lofsamlegum orðum um útgáfufyrir-
tækið, dönskum blöðum.
• * •
Skógræktarfélag Islands var stofn
að á Akureyri 11. f.m. Er ætlas1 til
að það verði landsfélag með deildum
víðsvegar um landið. I stjórn voru
kosnir: Jón Rögnvaldsson garðyrkjú-
maður, Jónas Þór framkvæmdasj. og
Bergsteinn Kolbeinsson bóndi á Leifs-
stöðum.
• • •
Borgarnesi 2. júní.
óþurkatíð að undanförnu í hérað-
inu. Grasspretta ágæt. Skepnuhöld
eru góð yfirleitt. Þó hefir allmargt
af lömbum veikst og drepist í Sveina
tungu.
Unnið er að viðgerð á veginum yf •
ir Ferjukotssýkið, sem skolaði burt
í flóðunum í vetur. Verkið er erfitt
enda miðar viðgerðinni hægt áfram.
Iveruhús úr steini er verið að
steypa á Smiðjuhóli í Álftaneshreppi
og 'Hrafnkelsstöðum í Hraunhreppi.
Lán voru tekin til þessara fram-
kvæmda úr bygginga- og landnáms-
sjóði.
* * •
Skólahátíðin á Möðruvöllum og
Akureyri.
Akureyri 2. júní.
t Fimtíu ára afmælishátíð Gagn-
fræðaskólans var haldin dagana 31.
mai til 1. júní. Fyrri daginn fóru
hátíðahöldin fram á Möðruvöllum og
var þar saman komið um 600 manns.
Skólauppsögn fór fram og útskrifuð-
ust 15 stúdentar og 52 gagnfræðing-
ar. Guðsþjónusta var haldin og steig
séra Sveinn Víkingur í stólinn. Frið-
rik Rafnar var fyrir altari. Hátíða-
Dánarfregn. — Islendingurinn Ingi
mundur Eyjólfsson ljósmyndari er
nýlega látinn í Osló. Ingimundur sá.l
var mesti merkismaður, var það t.
d. að frumkvæði hans, að stofnaður
var sjóður I Osló, sem skyldi hafa
það markmið að koma upp Islend-
ingahæli í Osló, þar sem allir Islend-
ingar hefðu greiðan aðgang.
* • •
Rvík 1. júní.
“Hvidbjörnen”, danska eftirlits-
skipið kom hingað á uppstigningar-
dag, en stóð aðeins stutt við, fór aft-
ur í gær. Verður það til eftirlits
við Grænlandsstrendur í sumar, en
í haust mun það taka við strandgæzlu
hér við Island, meðan Fylla fer til
Danmerkur. Knud Danaprins er
meðal sjóliðsforingja á skipinu.
hann nýlega kominn úr langri ferð
til Austurlanda, og hafði aðeins dval-
ið skamma stund heima, er hann
Iagði af stað með Dronning Alexand-
rine” til Færeyja, þar sem “Hvid-
björnen” lá, og þar tók hann við
stöðu sinni. Margt annað stórmenn-
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Service
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima sími 87136
Expert Repair and Complete
Garage Service
Gas, Oils, Extras, Tires,
Batteries, Etc.
Lesið Kaupið og borg-
ið Heimskringlu
ROSE
Sargent and Arlington
Phone 88 525
Thur., Fri., Sat., This Week
Passed General
with CONSTANCE BENNETT
100% Talking
from the Famous Novel
By REX BEACH
Hailed everywhere as the finest
Screen Achievment in Twenty
Years.
Added
“TARZAN THE TIGER”
All-Talking Comedy—Cartoon
Mon., Tues., Wed., July 7-8-9
(General)
Victor McLaglen
Fifi Dorsay, — El Brendel
—in—
Another Fox Movietone. All-
“Hot For Paris”
Talking Laugh Riot. Even bet-
ter than “Cockeyed World”.
Heitt vatn ódýrara
Nægilega mikið af heitu vatni ávalt við hendina.
Hið sérstaka vatnshitunartilboð vort er talsvert lægra en
vanaleg hitun með gasi.
Heimili, sem nú hafa gas, geta fært sér tilboð vort i nyt og
þannig haft hvenær sem er nægilegt af heitu vatni, með svo litl-
um tilkostnaði að hverfandi er.
Símið 842 312—842 314 eftir frekari upplýsingum.
Winnipeg Electric Company
“YOUR GUARANTEE FOR GOOD SERVICE”
JWJAV/JWJlXt
King stjórnin leggur gerðir sínar
HÚN HEFIR
1. Jafnað misklíðarefnið milli lands
og fylkjastjórnanna út af auðs-
uppsprettum landsins og afhent
þær fylkjunum.
2. Fullgert Hudsonsflóabrautina.
3. Komið aftur á Crows Nest samn-
ings flutningsgjaldinil, þrátt fyr-
ir mótspyrnu íhaldsmanna.
4. Lækkað verð á áhöldum, sem not
uð eru til akuryrkju, námuiðnað-
ar, viðurtekju, og fiskiveiða.
5. Endurskoðað The Grain Act, og
kosið nýja eftirlitsnefnd í með-
höndlun kornviðskiftanna, og
komið í veg fyrir blöndun betri
korntegundanna.
undir dóm
yðar
Engin stjórn hefir afkastað
meira landinu til framfara.
í sögu landsins er ekki hægt
að benda á þvílík framfara-
spor hjá nokkurri stjórn.
Aldrei hefir byrði skattgreið-
andans eins veri ðlyft af herð-
,um hans og aldrei hefir kaup-
gildi canadiska dollarsins ver-
ið hærra.
i 8-
9.
10.
11.
12.
h
IIÚN HEFIR
Samið lög er banna innflutning
áfengis til Bandarikjanna frl
Canada, er alstaðar hefir verið
rómað.
Gert mögulegt að selja canadiskt
hveiti.
Komið á betri viðskiftum við
umheiminn með tollstefnu sinni
og á þan nhátt aukið kaupgildi á
heimsmarkaðinum.
Löggilt ellistyrkslög.
Séð fyrir bráðustu þörfum her-
manna úr stríðinu mikla.
Gert Canada að þjóð.
Komið þjóðbrautakerfinu á fast
ar fætur, og snúið tapi á starf
rækslu þess upp í gróða.
.
Canada er tryggara með King — KmfþinSatnsXi
rtcrtxtm,
rsar&xtm
trSxmarSxmmrSam
Publication authorized by E. G. Porter, Portage la Prairie.