Heimskringla - 23.07.1930, Blaðsíða 1
Bov. K. Pétm^on '
45 Homie 8t. —
DYERS & CLEANERS. LTD.
SenditS fötin yöar meö pósti.
Sendingum utan af landi sýnd
sömu skil og úr bænum og á
sama veröi.
W. E. THURBER, Mgr.
324 Young Str., Winnipeg.
DYERS & CLEANERS, LTD.
Er tyrstir komu upp n. 11 aö
afgreiöa verkiö sama daglna.
Lita og hreinsa fyrir þá sem
eru vandlátir.
W E. THURBER, Mgr.
Sími 37061
XH,V. ÁRGANGUR
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN, 23. jOLt, 1930.
NOMER 44
W!I,I.I \ \I W. KENNEDY
Þingmannsefni Conservatíva í Mið-
Winnipeg, syðri.
Nokkur æfiatriði:
Fæddur af írskum og skozkum ætt-
um á bændabýli í Ontario. Nam
skólalærdóm á menntaskólum í On-
tario og siðar við Queen’s háskólann
í Kingston og Manitobaháskólann.
Kom til Winnipeg fyrir tuttugu og
sex árum og hóf þar starf sitt sem
fréttaritari við The Winnipeg Tele-
gram. Áður en tvö ár voru liðin,
var hann gerður að ritstjóra nætur-
útgáfunnar.
Síðan las hann lög og fékk mála-
flutningsleyfi í Manitoba árið 1909,
með háum heiðri, og stofnaði þá
skrifstofu þá, er seinna hefir hlot-
ið nafnið Kennedy, Kennedy & Ken-
nedy, og hann er enn starfandi við.
Var hann árum saman í stríðinu
og hér um bil tvö ár I fremstu skot-
gröfunum í 46. fótgönguliðssveitinni.
Hlaut hann tvisvar heiðursmerki fyr-
ir hraustlega framgöngu á vigvellin-
um og var leystur úr herþjónustu
með majórs nafnbót.
Þingmaðu^ fyrir Mið-Winnipeg
syðri var hann kosinn 1925 með mikl
um meirihluta. I kosningunum 1926
féll hann aftur með litlum minni-
hluta.
Nú stendur yður til boða að kjósa
hann aftur.
Orðsending frá
W. W. KENNEDY
til
kjósenda í Mið-Winnipeg syðri.
Hon. R. B. Bennett, leiðtogi Conservatíva
Conservatíva flokkurinn lítur svo
á, að atvinnuleysið, er nú háir land-
inu, sé svo alvarlegt, að sambands-
stjórnin verði tafarlaust að greiða
fram úr þeim wmdræðum.
Framtíð Winnipegborgar er undir
þvi komin, að iðnaður rísi hér upp,
og með orkuna honum til reksturs
við dyrnar, og vinnulýðinn reiðubú-
inn að taka til starfs, er ótilhlýði-
legt að ekki sé hafist handa, og um
leið og Winnipeg er það til framfara,
sé úr atvinnuleysinu á sama tíma
bætt með því.
Annað atriði er, að byrja á að
leggja vegi, svo hægt sé að ferðast
milli Austur- og Vestur-Canada með
því að fara um Canada sjálft, en
ekki Bandaríkin. Einnig það gefur
tugum þúsunda manna atvinnu.
Að öðru leyti biðjum vér kjósend-
ur að kynna sér stefnu conservatíva
flokksins, eins og Mr. Bennett út-
skýrir hana, og geri þeir það,. erum
vér vissir um að þeir sjá eins og vér,
þýðingu hennar fyrir þetta land á
þessum yfirstandandi tímum.
Yðar einlægur,
JAPAN
Hræðilegur fellibylur geysaði á
lánudaginn var um Suður-Japan og
:óreu, og drap, að því er menn vita
yrir vissu, um 400, en um 1400 menn
afa týnst þar að auki, er menn
yggja að hafi drukknað. Stormin-
m fylgdi hellirigning og vatnsflóð,
r skolað hefir burtu og eyðilagt um
600 heimili. Er tjónið metið svo
liijónum dollara skiftir. Einnig hafa
ýnst um 950 fiskiskip í nánd við
íiushiu og farist fjöldi manna.
Kichard Bedford Bennett er fædd-
ur 3. júlí 1870, i Hopewell Cape, New
Brunswick. Faðir hans hét Henry
J. Bennett. Ættfeður hans, í níu
liði fram, komu til Ameríku áður en
Bandaríkin sögðu sig úr sambandi
við England. Einn af ættfeðrum
hans, Caleb Bennett, átti part af þvi
landi, þar sem stórborgin New York
stendur nú. Þegar frelsisstríðið var
hafið af nýlendumönnum, neitaði
Caleb Bennett að fylgja þeim að mál
um, svíkja sitt föðurland, og flutt-
ist því með öðrum samveldismönn-
um (United Empire Loyalists) úr ný-
lendunum til Canada, sem þá var
kallað British North America. Hafa
allir forfeður Hon. R. B. Bennett
verið ákveðnir ástvinir brezka sam-
veldisins frá byrjun.
Móður sinni segist Mr. Bennett
eiga allt það bezta að þakka, sem
honum hafi gefist í æsku, og jafnvel
til fullorðinsáranna. Hún var af
brezkum ættum eins og faðir hans.
Capt. David Stiles, móður-langafi,
var í miklum metum og ætt hans
fjölmenn.
Faðir hans var alltaf efnalítill, og
gat lítið • sem ekkert hjálpað syni
sínum til æðri menntunar. Varð Mr.
Bennett kennari 16 ára gamall og
vann sig áfram eins og ungir menn
urðu að gera á þeim tímum. Tók
hann strax mikinn þátt í öllum fé-
lagsmálum. Kappræður um stjórn-
mál og öll önnur félagsmál voru hon-
um kær frá því fyrsta. Sem kenn-
ari varð. hann fljótt þekktur, og 18
ára er hann orðinn yfirkennari í
Douglastown, nálægt Catham, N.B.
Þar byrjaði hann að lesa lög hjá Mr.
L. J. Tweedee, er síðar varð fylkis-
stjóri í New Brunswick. Svo fór
hann að nema lög við Dalhousie há-
skólann í Halifax. Tuttugu og þriggja
ára gamall var hann kominn til Mr.
L. J. Tweedee í Catham aftur, sem
félagi hans í lögum.
Hér byrjar hans ferill, sem leiðir
hann fljótlega til almennra virðinga
og viðurkenningar. Hann var ekki að-
eins frábær lögmaður, heldur einnig
sem einn af þeim ungu framtíðar-
mönnum, er marka spor sín í sögu
Canada. Forseti Dalhousie háskól-
ans, Dean Weldon, verður til þess að
benda á hann og mæla með honum.
sem félaga i lögum með senator Jas.
Lougheed í Calgary. Mr. Lougheed
var frægur lögfræðingur og hafði
víðtækt starfssvið hér I Vestur-Qan-
ada á þeim tíma. Mr. Lougheed var
þá einnig leiðtogi conservatíva flokks
ins í efri deild þingsins í Ottawa, er
þá var andstæðingaflokkur Laurier
stjórnarinnar. . Var því nauðsynlegt
fyrir hann að fá sér félaga, sem hann
gæti fyllilega treyst að fara með
“Þér hafið ákveðið fyrir mig, að héðan í frá, eins Iengi og eg hefi
krafta og heilsu, skuli eg helga alla mína hæfileika og tíma, helga
allt það bezta sem eg hlaut i viiggugjöf, helga aliar þær auðlegðir,
sem guð hefir lagt mér í skaut, í þjónustu lands og þjóðar, ásamt
þeim mikia flokki, sem eg hefi nú verið heiðraður með að veita for-
ustu og leiðsögn.
Það hefir verið sagt, og ekki rangiega sagt heldur, að eg væri
rikur maður. ..Það er satt. En eg hefi orðið það fyrir óþreytandi
starf mitt hér í vesturlandinu, sem eg líka skulda svo mikið; og
það sem meira er, eg lít á auðlegð rína sem það pund, sem mér
hefir verið afhent til þess að brúkast i þarfir þjóðarinnar, án nokk-
urs ótta um framtíðina, þvt að enginii einn maður getur af-
kastað þessu mínu heiðursstarfi, eins og á að gerast, ef yfir honum
hvílir skuggi skulda og annara ábyrgða. ..Það sem eg er, og það
sem eg á og hefi umráð yfir, fylgir mér og verður framlagt af mér
í baráttunni fyrir heill og hamingju lands og þjóðar.”
(Hon. R. B. Bennett, 13. október, 1927, þegar hann var kosinn
leiðtogi conservatíva flokksins.)
stórmál og flytja þau, ekki einungis
í Vestur-Canada, heldur einnig fyrir
hæstarétti Canada og fyrir leyndar-
ráði Breta heima á Englandi. Mr.
R. B. Bennett varð svo heppinn, að
verða fyrir valinu, og sýnir þetta
hversu mikils álits og trausts hann
nýtur, þá aðeins 26 ára gamall.
Arið eftir, 1897, fer hann til Cal-
gary í félag með Sir James Laugheed
og er félagið nefnt Laugheed and
Bennett.
Nú op'nast nýir vegir og svið, þar
sem Mr. Bennett er kallaður inn á
til starfa og ráðsmennsku.
1898 er hann kosinn á löggjafar-
þing Norðvestur héraðanna (North-
west Territories), og situr þar þang-
að til 1905, að héruðunum er skift á
milli Alberta og Saskatchewan.
Fjórum árum síðar var hann kosinn
á þing i Albertaf og sat þar til 1911,
að hann sagði því af sér til þess að
sækja um þingsæti i sambandsþing-
inu í Ottawa. Vann hann sigur og
var þá einn af þeim fremstu er börð-
ust á móti viðskiftasamningi Laur-
ierstjórnarinnar við Bandaríkin, og
j fylgdi Sir Robert Borden að málum,
! að fella stjórnina og koma conserva-
tívum að, við þær kosningar.
Þegar Sir Robert Borden tók við
völdum 1911, varð Mr. R. B. Bennett
| einn af fremstu og færustu mönnum
i á Þingi, sakir mælsku og dugnaðar.
j Vann hann þar mikla virðingu og
j traust hinna eldri og beztu þing°
manna, og þegar stríðið mikla skall
á 1914, var hann af stjórninni kjör-
inn Director General of National Ser-
vice.
Þegar Sir Robert Borden myndaði
samsteypustjórnina 1917, með lib-
eral flokksmönnum, neitaði Mr.
Bennett að fylgja foringja sínum að
málum. Kvaðst ekki geta séð neitt
grætt með þeirri breytingu, svo
lengi sem liberal flokkurinn, undir
leiðsögn Lauriers, sameinaðist ekki
allur, með foringja sínum, 1 því að
vinna einhuga og einróma stríðið.
Fyrir þessar ástæður sótti hann ekki
1917 og fór vestur til sinna lögfræð-
isstarfa í Calgary. Var hann þar til
1921, að Hon. Arthur Meighen, sem
þá var orðinn forsætisráðherra Cán-
ada, (af þvi að Sir Robert Borden
sagði af sér), bað hann að koma og j
bauð honum stöðu í ráðuneyti sinu I
sem dómsmálaráðherra.
1 kosningunum, er fram fóru 1921,
með þessa nýju ráðherra og að af-
loknu striði, féll Meighenstjórnin og
einnig Mr. Bennett I Calgary. Varð
þetta fall Bennetts aðeins af vangá
nokkurra vina hans sjálfs, sem sé að
þeir mörkuðu miða hans með penna
og bleki í stað blýnants, sem lögin
ákveða. Hann var aftur kosinn
bæði 1925 og 1926, og hefir setið á
þingi síðan fyrir Vestur-Calgary
kjördæmið. i
Eins og allir muna, féll Rt. Hon.
Arthur Meighen i kosningunum 1925.
Var þá af þingmönnum kosinn bráða-
birgða Ieiðtogi á þingi, Mr. Guthrie
frá Ontario. En í október þann 12.
og 13. ,voru saman komnir í Winni-
peg, Man., 1700 menn og konur úr
öllum fylkjum landsins, til þess að
kjósa sér nýjan leiðtoga og mynda
sér nýja stefnuskrá. Var það flokks-
þing óefað hið fjölmennasta, sem
menn muna eftir í sögu þjóðarinnar.
Það var síðla dags þann 13.
október 1927, að þessi mikli þing-
heimur, 1700 menn og konur, kusu
Hon. R. B. Bennett í einu hljóði sem
leiðtoga conservatíva flokksins I
Canada.
HON. KOBT. ROGERS
er þingmannsefni conservatíva í Suð-
ur-Winipeg í þessum kosningum. Mr.
Rogers er svo þekktur fyrir starf-
semi sína í opinberum málum, bæði
sem ráðherra opinberra verka í Mani-
tobafylki og hjá Borden stjórninni að
um hann er óþarft að fjölyrða. Er
nafn hans tengt við sum helztu fram-
faraspor þessa lands. trtnefningarfund
ur hans var fjölmennari en dæmi eru
til um nokkurn útnefningarfund, og
spáir það strax góðu um kosn-
ingu hans.
Heimskringla skorar á alla is-
lenzka kjósendur að veita þingmanns
efnum conservatíva óskift og ein-
dregið fylgi á mánudaginn kemur, þ.
28. þ. m.
JAMES HERBEKT STITT ^
er i Selkirk kjördæmi sækir undir
merkjum conservatíva, hefir átt svo
jmiklum vinsældum að fagna á fund-
' um sínum, að honum er talin kosn-
ingin vís. Hann er eitt hið mesta
llipurmenni ,er hægt er að hugsa s^r,
fjölhæfum gáfum gæddur, og einurð,
| og prýðis vel máli farinn.
KANADA
Haglél og ofsastormur gekk yfir
mið- og vesturhluta Saskatchewan
aðfaranótt fimtudagsins í síðustu
viku og olli stórkostlegum skemmd-
um bæði á uppskeru og hverju sem
fyrir varð. Varð og nokkur óskundi
bæði í Manitoba og Alberta, þótt
veðrið væri þar eigi jafn mikið. —
Tjón er metið um eina miljón dollara.
* * •
Lokið er nú nefningum í þingsetu
fyrir Winnipeg og St. Boniface, og
sækja 11 þingmannsefni um fjögur
þingsæti borgarinnar og þrír í St.
Boniface. Af umsækjendum í Win-
nipeg eru þrír conservativar: Hon.
Robert Rogers í Suður-Winnipeg;
William Walker Kennedy lögmaður,
í Mið-Winnipeg syðri, og Mr. Mat-
hew Robert Blake læknir, í Norður-
Winnipeg. Tveir liberalar sækja:
John S. McDiarmid, viðarkaupmað-
ur, í Suður-Winnipeg og Joseph
Thorson lögmaður, í Mið-Winnipeg
syðri. Af sameignarmönnum sækja:
Martin I. Forkin, í Mið-Winnipeg
nyrðri, og Leslie Morris í Norður-
Winnipeg; og af verkamönnum þrír:
Chas. A. Tanner, i Suður-Winnipeg:
James Shaver Woodsworth, í Mið-
Winnipeg nyrðri, og Abraham A.
Heaps, í Norður-Winnipeg, og loks
einn óháður canservatív; Thomas
Gargan í Mið-Winnipeg nyrðri.
1 St. Boniface bjóða sig fram:
Edgar Honswell Cooke, vélfræðingur,
af hendi conservatíva; John Power
Howden, læknir, fyrir liberala, og
Edward Hansford fyrir verkamenn.
Lokið er nú að fullu Aefningum fyr-
ir sambandskosningarnar, og hafa alls
verið tilnefnd 545 þingmannsefni, fyr-
ir 245 þingsæti landsins. Er það 17
mönnum fleira en við almennar kosn-
ingar 1926, en 37 mönnum færra en
við kosningarnar 1925.
Tveir hafa verið kosnir i einu hljóði
án nokkurs gagnsækjanda. Eru það
þeir Robert Gardiner, foringi sam-
einaðra bænda i Alberta, og Henri
Bourassa, gamall foringi þjóðernis-
sinna i Quebec. Hann var endurkos-
inn í einu hljóði á mánudaginn fyrir
Labelle, Quebec. Milli flokkanna skift-
ast frambjóðendurnir sem hér segir:
Liberalar 222 (23 fleiri en árið 1906);
conservatívar 231 (tveim færri en
1926); Framsóknarflokkurinn 7 (árið
1926 hafði hann 20 frambjóðendur);
liberal-prógressivar 12 (níu færri en
1926); sameinaðir bændur 11 (einum
færra en 1926); bændur í Saskatche-
wan 9; óháðir 33 (8 fleiri en síðast),
og loks 9 kommúnistar.
kvæma legu fyrir flugleið, sem þeir
hafa nú i undirbúningi. Hefir verið
gerður út leiðangur undir yfirstjóm
H. G. Watkins, er búist er við að
taka muni um 14 mánuði, til þess að
rannsaka og kortleggja flugleið frá'
Englandi til Canada, yfir Færeyjar,
lsland og Grænland. Er fullyrt af
sumum stjórnmálamönnum hér, að
jafnvel Canadastjórn sé einnig mikið
að hugsa um að kaupa Grænland í
svipuðu skyni.
Viðvíkjandi þessum lausafregnum
má geta þess, að bæði hefir forsætis-
ráðherra Dana lýst því yfir, að þessi
kaup hafi aldrei komið til tals við
Breta, og einnig hefir Canadastjórn
neitað því ,að hún sé nokkuð riðin
við slík kaup, eða hefði látið sér
detta þau í hug.
borganir af þjóðarskuldum 587 milj.
dollurum.
VILJA BRETAK
KAIIPA GRÆNLAND ?
1 New York Times 19. þ. m. stóð
svohljóðandi grein frá fréttaritara
blaðsins i Washington:
Vakið hefir mikla athygli meðal
stjórnmálamanna hér sá orðrómur,
að Bretar séu að leitast við að ná
kaupum á Grænlandi, að öllu eða
einhverju leyti, eða ef kaupin ganga
ekki saman, að fá þá með samning-
um fótfestu i landinu.
Þó að alla vissu fyrir þessum
samningum skorti, þá dylst mönnum
ekki hitt, að Grænland hefir hag-
BANDARIKIN
______________________* *
Fjármálaráðuneyti Bandarikjanna
hefir nýlega gert upp reikningana
fyrir síðasta fjárhagsár, og reyndist
tekjuafgangurinn að nema 184 milj-
ónum dollara. Virðist markaðshrun-
ið síðasta haust og þar af leiðandi
verzlunardeyfð, eigi hafa haft mikil
áhrif á tekjuskattinn, því að haan
varð 80 miljónum dollara meiri en í
fyrra, en ef til vill eiga afleiðingarn-
ar eftir að koma í ljós á næsta árs
fjárlögum. Samkvæmt skýrslu And-
rew W. Mellon, fjármálaritara, voru
tekjur alls á fjárhagsárinu $4,178,-
000,000, útgjöld 3,994,000,000 doUar-
ar. Tekjuskatturinn nam 2,411 milj.
dollurum, tollar 587 miljónum og af-
Fyrir skömmu síðan stigu 20 verk-
fræðingar frá Rússlandi af skips-
fjöl við Ellis-ey og báðust landsvist-
ar í Bandaríkjunum með þeim fors-
endum, að þeir ætluðu sér að dvelja
þar tíma til að kynna sér ameriska
vélmenning og iðnaðaraðferðir, og
hverfa síðan heim aftur og nota
þekking sína Soviet-Rússlandi til efl-
ingar. Mjög þótti landtökubeiðni
þessara manna varhugaverð föður-
landsvinum suður þar,. af þvi að
þetta voru “bölvaðir bolshevikar”, og
var rannsóknarnefnd sett í málið, er
eftir langar vifilengjur gerði Rúss-
um þann kost, að fá landvist um
stund með því að þeir með svardög-
um og 500 dollara veði hver, hétu
því, að verða sem fyrst er þeir gætu,
lærdóms síns vegna, á brottu úr
Bandaríkjunum. Tók nú heldur að
linast skelkur manna við Bolshevika
þessa, er svo rammlega hafði verið
um hnútana búið, en i því bili kem-
ur “bulla” frá páfa, heilögum Piusi
XI., sem alvarlega varar Bandaríkin
við aff láta “villu” bolshevismans
breiðast út um land sitt á þessum
erfiðleika- og atvinnuleysistímum, og
er það tákn um það, hvernig sam-
vizka þessa blessaða föður og guðs-
ráðsmanns nær til endimarka jarðar.
Tóku menn nú enn að ýfast við
Bolshevikum, og lögðu margt mis-
jafnlega viturlegt til málanna. Þessi
ummæli eru höfð eftir Charles F.
Sorenson, aðal framkvæmdastjóra
The Ford Motor Co.: “Ef þeir rauðu
E. H. COOK
þingmannsefni conservatíva í St.
Boniface, er vélmeistari og vinnur
hjá C. N. R. jámbrautarfélaginu.
Hann hugsar málin út í æsar, áður en
hann leggur mikið til þeirra, enda
nýtur hann mikils trausts hjá þeim
er hann þekkja bezt. írtlitið er því
gott fyrir honum í þessum kosning-
eru jafn eldfimir og sprengihættir og
af er látið, svo að fáeinir þeirra geta
sett allt landið í* uppnám, þá hlýtur
sannarlega eitthvað að vera bogið
við allt okkar stjómarfar.” Ford-
félagið, sagði hann, að ekkert væri
hrætt við stjórnmálaflokk sameign-
armanna, enda hefðu þeir fjölda
þeirra í vinnustofum sínum.