Heimskringla - 23.07.1930, Síða 5
WINNIPEG, 23. jírLI, 1930.
5. BLAÐSKJA
HEIM5KRINGLA
fyrra “glæpsamlega stefnu” (Vicious
Principle — sjá þingtíðindin) af sam
bandsstjórninni að veita skilding til
ellistyrks, sem hann hefir nú orðið
að leiða í lög, vegna þess, að and-
stæðingaflokkurinn (conservatí var)
mæltu svo eindregið og uppihalds-
laust með því máli, með Bennett í
broddi fylkingar.
• • •
Munið:—
Að verkamenn í Bandaríkjunum
bera það, að King hafi, þegar hann
var þar syðra, unnið öfluglega á móti
þeim.
• • *
Munið:— t
Að Kingstjórnin er völd að því
stórtjóni, er hveitimarkaðurinn og
markaður fyrir flestar búnaðaraf-
urðir hefir orðið fyrir, með við-
skiftastefnu sinni.
• • »
Munið:— ,
Að Kingstjórnin neitaði rétt fyrir
kosningarnar, að hefjast handa með
að gera þjóðvegi í Canada, sem Ben-
nett stakk upp á, til þess að gefa at-
vinnulausum mönnum vinnu, þrátt
fyrir það þó með aukinni umferð um
þann veg, frá Bandaríkjunum, hefð-
ist brátt upp kostnaðurinn, en hefir
nú verið knúin undir þunga kosn-
ingahríðarinnar, á síðustu stundu að
lofa að veita fé til brúargerðar '
Winnipeg!
• • •
Munið:—
Að King hefir neitað að veita 5
cents nokkru fylki, sem hefir con-
servatíva stjórn, hversu háan skatt
til landsins, sem það greiðir.
• • •
Munið, feður og mæður:
Að Kingstjórnin er þess valdandi
að synir yðar og dætur verða að
flýja til Bandaríkjanna til þess að
fá sér atvinnu.
• • •
Munið:—
Að Kingstjórnin lét þúsundir manna j
svelta hálfu eða heilu hungri síðast-
liðinn vetur, í stað þess að veita þeim j
nokkra bráðabirgðar hjálp, á ■ sama
hátt og conservatívar gerðu 1920, er
veittu $1,800,000 til þess.
• • •
Munið:—
Að síðasta fjármálafrumvarp King
stjórnarinnar, er hrein og bein ó-
skammfeilin kosningablekking.
* » •
Munið:— I
Að Kingstjórnin lofaði að endur-
bæta Senatið, en sveik það, þó ekk-
ert væri í veginum, og hans menn
væru í meirihluta í báðum deildum,
og neitaði að eyða tíma þingsins til
að taka málið fyrir, þó conservatív-
ar krefðust þess.
» • •
Munið:—
Að King afhenti Quebecfylki til að
selja gróðafélagi þjóðeignar-orkuver
i st. Lawrence ánni, er nam 100 milj.
dala, og Bennett heimtaði að konung-
leg rannsóknarnefnd væri látin rann-
saka, en sem ekkert var átt við.
• * •
Munið:— /
Að King- heldur að hifnn geti tal-
ið yður trú um það, að hann og fylg-
ismenn hans séu rétt bornir, yfir-
burða sinna vegna, til þess að fara
með völdin og sitja á fundum brezka
ríkisins.
• • s
Munið:—
Að conservatívar sögðu yður fyr-
ir 10 árum síðan, að ef að King-
stjórnin fylgdi fram í verkunum
sumum af þ'ein\ stefnum, sem hún
hampaði mest í kosningunum, þá
hlytu afleiðingarnar að verða erfið-
ir tímar í landinu.
• • •
Munið:—
Að flest af því, sem til sannra
framfara hefir orðið fyrir þetta land,
er conservatívum að þakka.
» » •
Munið:—
Að þegar liberalar hafa brotið
mjög i bág við þjóðmegunarstefnu
Sir John A. Macdonald, hefir það æf-
inlega orðið landinu og þjóðinni til
hins verra.
• * •
Munið:—
Að á það hefir verið bent með góð-
um rökum, að komist Kingstjórnin
nú að völdum, er engin breyting á
tímunum í vændum, og þvi síður,
sem þetta verður hennar síðasta
stjórnartímabil, því húit fellur næst,
ef ekki nú.
* » *
Munið:—
Að viðskiftasamningur Kingstjórn-
arinnar við England, tryggir ekki
sölu á hveiti héðan, vegna þess að
stórkaupmenn þar eru að reyna að
ráða niðurlögum hveitisamlaganna
hér og Bretland kaupir vörur héðan
svo miklu meira nemur en því, sem
þeir selja hingað, og eru þvi í engu
háðir ívilnuninni nýju. Þetta er að-
eins ein af kosningablekkingum King-
stjórnarinnar.
• » •
Munið:—
Að Kingstjórnin getur ekki hald-
ið völdum nema með því að hún sé
studd af öðrum flokkum, er kosn-
ingu ná á allt öðrum grundvelli, en
hún hefir, og að þeir flokkar svíkja
kjósendurna eftir að á þing kemur,
með því að ganga öðrum flokki á
hönd, hvort sem fyrir embætti er að
gangast eða ekki. Kingstjórnin er
ekki nógu ærleg til þess, að standa
eða falla á stefnu sinni, og er ólík-
legt að slíkt verði lengur talið henni
til fræknleiks eða bóta.
* • »
Munið:—
Að liberalar (og Winnipeg Free
Press) segja bóndanum, að framleiða
hveiti ódýrara svo hægt sé að selja
það, sem þýðir að hann eigi að vinna
lengur og harðara og fyrir lægra
kaupi.
• • •
Munið:—
Að King er með auðfélögum Banda
ríkjanna og rýir Canada fyrir þau,
eins og innflutningaskýrslur hans
sýna.
* * m
Munið:—
Að liberalar bregða Bennett um
ríkidæmi og að hann noti auð. sinn
til að vinna þessar kosningar, en
sjálf eys Kingstjómin út fé úr fjár-
hirzlu landsins, úr þínum vasa og
mínum, í tífalt stærri stíl, til þess að
hanga sjálf við völd. Stjórnin virð-
ist ausa út meira fé í þessar kosn-
ingar, en nokkrú sinni hefir gert ver-
ið áður.
i * » »
Ef þér, kjósandi sæll, hafið allt
þetta í minninu, þegar til atkvæða-
greiðslunnar kemur 28. júlí, er engin
hætta á að hún skjátlist yður.
fulikomnunar. Heimsmarkaðurinn er
háður því lögmáli. Einu verzlunar-
umráð ,sem við höfum, eru í okkar
eigin landi, því þar getum við varist
ásælnum keppinautum — með hækk-
un tolla á innfluttum vörum. Það
grundvallaratriði verzlunarsamkeppn-
innar hefir Kingstjórnin ekki skilið
og skilur aldrei!
Eg tala ekki af vanþekkingu um
Canada, hvað mig sjálfan snertir, því
þar hefi eg lengst af dvalið. Eg man
svo langt, að á minum slóðum komu
fyrstu akvegir, sem því nafni mátti
nefna, með conservativum. Þar
runnu þeir á vaðið. Og einhvern
veginn treysti eg þeim nú til þess, að
stofna vegi til betri verzlunar fyrif
Canada.
Lögberg trúir á liberala — og Sig.
Júl. siglir í því kjölfari; þar hefir
hann komist næst átrúnaði og goða-
trú. Einu sinni þóttist hann tals-
maður verkamanna og alþýðunnar—
nú er hann búinn að gleyma þvi öllu.
Canada-lslendingar! Eg treysti
ykkur nú til að hugsa allt vel og
rækilega ,og við komandi kosningar
að greiða atkvæðl eftir beztu . sam-
vizku.
O. T. Johnson.
4250 Fourth St. N.,
Minneapolis, Minn.
Um víða veröld
Islendingar!
Kingstjórnin er alræmd um allan
heim — meira að segja á Islándi.
Eina stjómin er sendir fulltrúa á Al-
þingishátíðina — alla valda ..utan
þings. Canada var ekki til við hinn
stórmerkasta atburð, er skeð hefir í
sögu Islands og íslenzkrar þjóðar,
því enginn fulltrúi mælti þar fyrir
hönd Canada, þings eða stjórnar.
öll önnur lönd sendu þingfulltrúa eða
stjórnarsendiboða.
Sver þetta sig í ætt við állt það,
sem reikna má Kingstjóminni til
hneysu. Vanþekking og vanhugsun
í öllu stjórnarfarslegu. Fimbulfamb
og flaustur — fulltrúar Canada vald-
ir án nokkurrar hugsunar um stjórn-
vizku. Rekið á allt eintómt nafnið
— ekki einu sinni fyrirhugsuð gjöfin
sem Canada á að gefa — þó hér ræði
um stórmerkan viðburð veraldarsög-
unnar. Sá Islendingur, sem ekki sér
þetta eða skilur, verðskuldar ekki
rétt til þess að greiða atkvæði í kom-
andi kosningum. Bandarikin gefa
myndastyttu af Leifi heppna, öli
lönd sæma Island gjofum. Canada,
þar sem meginþorri erlendra Islend-
inga býr, hafði ekki vit á að velja
heppilega og viðeigandi gjöf við
þetta tækifæri.
Líkt er þetta öðru. Vagga liberal-
ismans er*úr þröngu og takmörkuðu
umhverfi. Quebecfylki er kaþólskt
og háð kirkjulegri undirokun. Þar
var liberal flokkurinn í heiminn bor-
inn. Quebecbúar munu greiða at-
kvæði með Kingstjórninni, því þeim
hefir verið kennt að hlýða. Hingað
til hefir Quebec neitað þátttöku i
öllu, sem miðað hefir að velferð Can-
ada sem heildar. Og kaþólska kirkj-
an lætur ekki staðar numið við það
stjórnarfarslega, því nú er hún að
mynda iðnfélög, sem eru á öndverð-
um meiði við öll önnur iðnfélög í
Canada. Skarað eldi að köku ka-
þólsku kirkjunnar, allir aðrir verka-
menn mega deyja drottni sínum.
Við, sem urðum að hrekjast úr
Canada, rennum vonaraugum til
næstu kosninga. Canada er okkar
land, hvar á jarðarhnettinum sem við
dveljum! Við viljum Canada svo
vel, að þeirri stjórn sé steypt frá
vaidastóli, sem orsakaði burtför
okkar úr heimahögum. Og ljúf væri
heimkoman til Canada, ef allt væri
þar breytt til betra. Við krefjumst
ekki annars, en að eiga kost á at-
vinnu og að afla brauðsins í svita
líkamans — sem er ljúfara í Canada
en öðrum löndum, ef allt er eins og
það á að vera.
Við viljum að Canada sé fyrir sig
sjálft, en ekki England eða Banda-
ríkin eða önnur lönd. Hví skyldum
við Canadamenn ekki geta boðið heim
inum byrgin ? England kaupir ekki
Canadahveiti af kærleika til Canada,
heldur af brýnni nauðsyn. Hví að
vera að fara á knén fyrir Englandi
eða nokkru öðru landi ? Canada-
bóndinn framleiðir bezta hveiti í
heimi, og semi bezta hveiti í heimi
fær það sölu á veraldarmarkaðinum.
öll ívilnun við England er þvl
heimska tóm og ónauðsynleg. Can-
ada fellur eða stendur með sínu
hveiti eða öðrum afurðum. Engar
þjóðir verzla við okkur af kærleika,
þvi sú hugsjón er ekki til í verzlun-
arheiminum. Við erum þátttakendur
samkeppninnar og föllum eða stönd-
um eftir okkar eigin möguleikum til
Maðurinn sér í myrkrl.
Hinn frægi hugvitsmaður Marconi
hefir nýlega gert afarmerkilegar til-
raunir, sem vakið hafa alheimsat-
hygli, um þráðlausar orkusendingar.
Hann var staddur á skemtiskipi sínu
“Electra” suður i Miðjarðarhafi og
sendi rafstraum til Sidney í Astralíu
og kveikti þar samstundis á mörgum
rafmagnslömpum.
Mikla athygli vekur líka uppgötv-
un eftir Baird, sem mest hefir starf-
að að fjarsýnistilraunum og náð
undraárangri, svo að menn geta nú
með raftækjum, sést í fjarska eins
og þeir talast við í síma. Hann
kvað hafa fundið áhald til þess að
sjá með í myrkri, án þess að sjást
sjálfur. Enska stjómin á að hafa
tryggt sér þessa nýju uppgötvun.
•
Þekkingin á lífinu og stjörnunum
Skoðun Sir James Jeans
Lögrétta sagði nýlega frá merki-
legri athugun á stórri nýrri reiki-
stjörnu utan við Neptún, sem talin
var yzta stjarna sólkerfisins. Italsk-
stjörnufræðingur 'ullyrðir einnig, að
hann hafi fundið fleiri stjörnur fyrir
utan Neptún. Þess er einnig getið,
að einn merkasti stjörunfræðingur
nútímans, Sir James Jeans, teldi að
að þessar nýju athuganir gætu haft
merkileg áhrif á alla heimsskoðun
manna. En sú skoðun á þessum efn-
um, um uppruna og þróun sólkerfis-
ins, sem stjörnufræðin hefir nú kom-
ist að, er í stuttu máli þessi og er
farið eftir frásögn Sir James:
Jörðin hefir fæðst af sólunni fyr-
ir svo sem tvö þúsund miljónum ára.
Þá var jörðin furðulega ólik þvi, sem
hún er nú. Hún var eins og hnykill
úr ákaflega heitu lofti og ekkert líf
hafði þar neina fótfestu. En smám
saman fór þessi gufuhnykill að kólna,
varð fyrst fljótandi og svo fastur.
Svo fer að myndast á honum föst
skurn, klettar, fjöll, gjár og dalir
koma fram, svipað og nú er. Vatn-
ið, sem eftir er, safnast í höf og ár,
en lofttegundirnar, sem stöðugar eru
verða að gufuhvolfi umhverfis jörð^-
ina. Smátt og smátt verður jörðin
hæfur bústaður fyrir lif, og kemur
það þá að lokum fram, en ekki vita
vísindin neitt um það, hvernig það
hefir orðið, og ekki hvenær, nema eft-
ir ágizkunum.
Það er erfitt að segja, hvenær líf
kom fram á jörðinni, en það hefir lík-
lega ekki verið til nema stutt skeið
af þeim 2000 miljónum ára, sem jörð-
in hefir verið til. Það er sennilegast
að setja æfi lífsins á jörðinni 300
miljónir ára. Allt líf mannsins hefir
því verið eins og augnablik í eilifðinni
Það eru nú um 10 þúsund kynslóð-
ir manna, sem lifað hafa á jörðinni
og líf hinna fyrstu manna hefir senni-
lega verið mjög líkt lífi dýranna.
Veiðar og bardagar tóku mestan tím.».
lífs þeirra, og lítill tími vannst til
andlegra hugleiðinga. En að lokum
fór, maðurinn að vakna af svefni
vitsmuna sinna, og eftir því sem upp
kemur dagrenning menningarinnar
fór hann að finna til þarfarinnar á
fleiri viðfangsefnum en þeim, sem
einungis hnigu að því að fæða sig
og klæða. Hann fór að finna opin-
berun óendanlegrar fegurðar í mann
inum sjálfum og í leik ljóssins á lit-
merlandi sjónum, og hann reyndi að
setja þetta fram í höggnum marm-
ara eða vandlega völdum orðum
Hann fór að gera tilraunir með
málma og plöntur, og hann fór að
prófa áhrif elds og vatns. Hann fór
að taka eftir og reyna að skilje
hreyfingar himinhnattanna, þvi fyrir
þeim, sem lesið gátu rúnir himins-
ins, voru stjörnurnar opinberun þess
að fyrir utan endimörk jarðarinnar
lágu óþekktir heimar, miklu stór-
fenglegri en hún sjálf. Þannig komu
listir og vísindi til jarðarinnar, og
meðal þeirra stjörnufræðin. Við vit-
um ekki hvenær þetta skeði, en það
er engu líkara en að það hafi skeð
í gær, þegar það er borið saman yið
allan aldur mannkynsins. Vísinda-
leg stjörnufræði er varla eldri en
3000 ára. Og það er meira að segja
skemmra síðan þeir Pythagoras Ar-
istarkus og aðrir útskýrðu það, að
jörðin snerist um fasta sól. En eig-
inlega eru stjörnuvísindin miklu
yngri, síðan menn fyrst fóru að
byggja á ákveðnum rannsóknum og
útreikningum og höfðu stjörnukíki.
En það var ekki fyr en 1610, þegar
Galileo beindi kíki sínum í fyrsta sinn
á Júpíter. En á þessum stutta tíma
hefir undra margt komið í ljós, ný-
ir og nýir heimar opnast, nýjar dá-
semdir opinberast manninum. Við
vitum ekki hversu langt sú þekking
nær að lokum, en við megum búast
við meira en okkur dreymir um. Á
þrjú hundruð árum hefir manninum
opnast “óendanleg veröld”. Og enn
á heimkynni hans, jörðin, sennilega
eftir að vera til í meira en 2000 milj-
ónir ára, og stjörnufræðin er ennþá
á einuskæru byrjunarstigi. Við er-
um ennþá eins og nýfædd börn, sem
eru að byrja að opna augun.
Fjarlægðir alheimsins.
Tvær miljónir sólkerfasafna.
Þetta er skoðun vísindanna á upp-
runa og þróun jarðlífsins. En jörð-
in og hennar líf og allt sólkerfið er
að þeirra áliti ekki nema lítið fis í
alheiminum. Það sólkerfasafn (the
galactic system), sem þetta sólkerfi
telst til, er svo stórt, að ummál þess
nemur 220 þúsund Ijósárum, segir
Sir James Jeans. En samt þekkir
stjörnufræðin miklu meiri fjarlægð-
ir í rúminu, eða 600 sinnum meiri.
Nú er verið að smíða nýjan stjörnu-
kíki, sem á að vera á Mount Wilson
stöðinni, og er þegar hann verður
fullgerður, helmingi stærri en sá, sem
nú er stærstur, og vænta menn þess
að þegar hann verður fullsmíðaður,
komi enn ný undur í ljós.
Það er ekki gott að gera sér grein
fyrir fjarlægðum og hlutföllum og
hraða himinhnattanna. Jörðin fer á
hverju ári 600 miljón mílna leið um-
hverfis sólina, með 1200 sinnum meiri
hraða en fljótasta hraðlest. Ef við
hugsum okkur að þetta ferðalag fari
fram í títuprjónshaus, sem er einn
sextándi úr þumlungi, verður sólin
Htil rykögn, 1/3400 hlut úr þuml-
ungi að þvermáli og jörðin þaðan af
minni, svo að hún sæist ekki í sterk-
ustu smásjám. Þó að þéssi litli
mælikvarði væri notaður, væri næsta
stjarna á himninum, Proxima Cen-
tauri, samt i ca. 225 metra fjarlægð.
Og til þess að koma fyrir þó ekki
væri nema 100 næstu stjörnunum við
okkar sól, þyrfti að þenja þessa í-
mynd alheimsins út um mílu á hvern
veg. Þó að þessu yrði haldið áfram
ca. 7000 mílur í allar áttir út frá
títuprjónshausnum, væri samt sem
áður ekki komið út fyrir takmörk
þessa “galactic”-kerfis. En i þessu
sólkerfasafni er jörðin eins og títu-
prjónshaus hjá öllu meginlandi Ame-
ríku.
En heiminum er engan veginn öll-
um lokið með þessu sólnasafni. En
við þyrftum að ferðast svo sem 30
þúsund mílur (enskar) áður en við
kæmum að næsta sólkerfasafni og
reyndum að gera okkur grein fyrir
því á sama hátt. Þar tekur við nýtt
kerfi, líklega dálítið minna og þétt-
ara en "galatic”-kerfið, en annars
fullkomlega sambærilegt við það
Stjörnufræðin þekkir hvorki meira
né minna en tvær miljónir slíkra
kerfa, sem hvert um sig er safn af
stórum sólkerfum með miljónum
hnatta. Með þessu móti, miðað við
okkar sólkerfi eins og títuprjóns, er
alheimslíkanin orðin 4 miljónir mílna
á hvern veg. Þetta samsvarar þeim
fjarlægðum, sem menn geta nú séð í
stjörnukíkjum, en samt vita menr.
að þetta er aðeins brot af öllum al-
heiminum. I 100 þumlunga stjörnu-
kíki má því sjá veraldir, sem þenjast
yfir þúsundir miljóna af stjörnum.
Það er varlega áætlað, segir Sir
James, að stjörnur alheimsins séu á-
líka margar og rykagnirnar í allri
Lundúnaborg. Ef við gætum hugs-
að okkur Almannagjá tæmda að ,öllu
nema sex sandkornum, þá væri samt
meiri sandur í gjánni en stjörnur eru
á himninum. Það eru sem sé ekki
stjörnurnar, sem mest ber á í geimn-
um, heldur tómið á milli þeirra.
Stjörnurnar eru svo strjálar, aðVþað
er eins og áttatíu mílur á milli sand-
kornannaf
Við skulum hugsa okkur, að við
settumst í rúminu einhversstaðar
nálægt sólinni til þess að sjá stjörn-
urnar hreyfast framhjá, með hraða
sem er meira en þúsund sinnum meiri
en hraði járnbrautarlestar. Ef mik-
il stjörnuþrengsli væru í geimnum,
mundum við verða eins komin og i
mesta umferðarasa á miðju stór-
borgarstræti og væri dauðans skamt
að bíða. En sannleikurinn er sá, að
WHO>S BOSS?
Pr°f- Taussig, noted Economist of Hsurvard Uotrersity, and former
Chairman of the United States Tariff Commission, says: “For many
yeara we (the United States) have treated Canada much as a big
bully treats the smaller boy.”
SCARED OF UNCLE SAM
“So perilous do I believe the situation to be....” etc.—Rt. Hon.
W. L. Mackenzie King speaking in parliament, March 14, 1930.
(Unrevised Hansard, Page 637).
stjörnuumferðin í alheiminum er ekki
meiri en svo, að fjarlægðirnar eru svo
miklar á milli stjarnanna þrátt fyr-
ir mergðina, að við þyrftum að hinkra
við í hérum bil miljón-miljón-miljón-
ir ára áður en við sæjum eina stjörnu
fara fram hjá. Með öðrum orðum,
ein stjarna getur öslað áfram í milj-
ón-miljón-miljónir ára, áður en hún
á það á hættu að rekast á aðra
stjörnu. Stjörnurnar renna í blindni
um geiminn, en hætta á árekstrum
er hverfandi lítil í bessum lífsins
skollaleik.
Einstein.
Alheimurinn ekki óendanlegur.
Allar þessar óskapa fjarlægðir og
afarmiklu stærðir hafa ósjálfrátt
leitt huga manna að þeirri hugmynd
að alheimurinn væri óendanlegur.
Það hefir verið sagt margoft fram á
síðustu ár. En þá kom Einstein til
sögunnar með sínar kenningar. Sam-
kvæmt þeim er heimurinn alls ekki
óendanlegur. Samkvæmt afstæðis-
kenningu Einsteins er rúmið að vísu
ótakmarkað, en ekki óendanlegt. Það
hvelfist í sjálft sig ei,ns og kúla, eins
og yfirborð jarðarinnar. Það á að
hafa sýnt sig með tilraunum, að ljós-
geislar bogna á leið sinni um geim-
inn. Ljósið getur farið um geiminn
í stórum bug og komið aftur á sama
stað, af því að rúmið er holt og
hvelft eins og kúla. Þessi beygja á
lögun rúmsins er • einnig samkvæmt
kenningum Einsteins ástæða ýmsra
fyrirbrigða, sem áður voru skýrð
með hinu svonefnda þyngdarlögmáli.
Með því var áður skýrð beygjan á
brautum hnattanna og það, t. d., að
þegar steini var hent upp í loftið, þ4
leitaði hann aftur niður á jörðina eft-
ir meira eða minna boginni línu. Nú
er þessi þyngdarlögmálskenning úr-
elt. Einstein skýrir allar þessar
bognu hreyfingar þannig, að allir
hlutir, smáir og stórir, verði að lagu
hreyfingu sína eftir Jögun rúmsina,
sem er bjúgt — hlutirnir eru aðl
reyna að fara beint í bognu rúml,
Þetta bjúga rúm er að vísu ekki htft
ivenjulega rúm stjömufræðinnar,
heldur stærðfræðilegt rúm, og ef tll
vill alveg ímyndun og kemur fram
við samruna hins stjörnufræðilega
rúms og hins stjörnufræðilega tima
(ár í tímanum svarar til ljósárs t
rúminu) . Afstæðiskenning Einsteina
er nú almennt viðurkennd rétt. En
þar fyrir þarf ekki að vera rétt sú
sérstaka heimsskoðun, er hann hefir
sjálfur dregið af henni, og mun Lög-
rétta síðar segja nánar frá þeim mál-
um. En niðurstaðan er nú þessi:
Stjörnufræðin þekkir nú 2 miljónir
sólkerfasafna. Samt er svo rúmt
um þær, að engar tvær stjörnur
þurfa að rekast á nema með miljón*
miljón-miljón millibili, og þó er rúm-
ið, sem þær hrærast í, ekki óendan-
legt; rúmið er bjúgt, hvolft í sjálft
sig, eins og kúla, og radíus þessa
rúms er áætlaður 84 þúsundir milj-
óna ljósára og það mundi taka 500
þúsund miljón ljósár að ferðast um^
hverfis allt rúmið.
(Lögrétta.)
Daglega
frá 15 maí
Til
30. sept.
LÁG FARGJÖLD
Að fáum vikum liðnum geturðu not-
ið ánægjunnar af að dvelja á hinum
undurskemtilegu stöðum í Kletta-
fjöllunum, á Kyrrahafströndinni, Al-
aska, á vesturströnd Vancouver Is-
land, Austur-Canada eða jafnvel fyr-
ir handan haf.
Á ÞEIM FERÐUM ER MARGT AÐ SJÁ
KYRRAHAFS STRÖNDIN ______AUSTUR CANADA
Um.. þrjár.. ljómandi landslags-
Ieiðir að fara yfir fjöllin.
STAÐIÐ VIÐ A ÖLLUM FRÆG
UM SUMARBtrSTöÐUM
Engar dýrar aukaferðir nauð-
synlegar. Hótel meðfram braut-
unum og mjög fagurt útsýni.
ALASKA
Heimsækið hið dular-
fulla norð^rland á hinu
þægilega Princess skipi
Frá Vancouver og til
baka.
$90
FARBR.TEF GETA VERIÐ UM
VÖTNIN MIKLU
Með $10.00 aukaborgun fyrlr
máltiðir og rúm.
ÞRJAR LESTIR DAGLEGA
The De Luxe Trans-Canada
• Limited
The Imperial The Dominion
VESTURSTRÖND VANCOUV-
ER-EYJAR
Ferð sögulega eftir-
tektarverð og mjög
skemtileg. Frá Victoría.
og til baka
$39
LÁG FARCJÖLD
Komin aftur 31. okt., 1930
til
22. maí til 23. sept.
BANDARfKJANNA
Látið Pacific Agent gefa upplýsingar.
Canadían Pacífic
Stiamship Tickets to and from European Conntrles.