Heimskringla - 06.08.1930, Side 8
8. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 6. AGtrST, 1930.
Fj ær IS ær
Vel láta heimfarendur, sem til baka
eru komnir ,af hátíðinni á Þingvöll-
um og yfirleitt af ferðalaginu öllu
Af stuttu viðtali við Mr. S. Thorvald
son, er að heiman kom 28. júli ásamt
fleirum, er það að segja, að hann dáð
ist að hinu ágæta skipulagi, sem á öllu
var í sambandi við það feiknastarf
er þjóðin færðist i fang með þessu
hátiðarhaldi. Þó ekki væri nema á
það eitt litið, að flytja um 10—15
þús. manns daglega fram og til bakn
milli Reykjavíkur og Þingvalla á bif
reiðum, er það ærið nóg til að sann
færast um, hvað þjóðin réðist í með
hátíðarhaldinu. Það fóru sem sé
margir heim til Reykjavíkur á hverju
kvöldi og komu til Þingvalla aftur
að morgni. Yfirleitt dáðust Vest
menn að þeim myndarbrag, sem
hvívetna sýndi sig í sambandi við há
tíðarhaldið. Viðvíkjandi viðtökum
Vestur-lslendinga lét Mr. Thorvald-
son í ljós mjög mikla ánægju, og
kvað það auðsæjan og gleðilegan vott
þess, að bræðrabandið væri ennþá
traust milli frændanna beggja meg-
in Atlantsáls. Þakkaði Mr. Thor'
valdson samvinnu Heimfaramefndar
Þjóðræknisfélagsins við Islendinga
heima það, hve heimkoma Vestur
Islendinga var þeim greið og ánægju
leg, og kvað hann með því starfi
hafa verið stígið þýðingarmikið spor
í samvinnuáttina milli þjóðarbrots-
ins hér og heimaþjóðarinnar.
1
Alfarin fór heim til Islands á
mánudaginn var Miss Lína Bjöms
son, eftir tæpra tveggja ára dvöl
hér í landi hjá systur sinni og mági
séra Benjamin Kristjánssyni, 796
Banning St., Winnipeg.
Þjóðminjningardagur Iklendinga
Wynyard, Sask., hinn 1. ágúst s.l.
fór hið bezta fram, og var sóttur af
miklu fjölmenni úr nærsveitunum
Fóru hátíðarhöldin fram í samkomu-
húsi því hinu mikla, sem Wynyard-
búar hafa reist við Quill lake og
rúmar um 1000 manns. Hvert sæti
var skipað að kalla, enda var veður
hið fegursta allan daginn. Einna
mestur hátíðarfagnaður var að söng
flokkum þeim, er B. Guðumunds-
son tónskáld í Winnipeg hafði æft á
stuttum tíma með þeim árangri, að
söngur þeirra mátti heita prýðisgóð-
ur, enda lágu þeir ekki á liði sínu,
að skemta fólkinu sem bezt. Annað
var 30 manna karlakór, en hitt kór
40 kvenna og unglinga. Að loknum
ræðuhöldum, söng og íþróttum, var
dans stíginn langt fram á nótt, unz
stjörnurnar tóku að fölna á himni
yfir hinni breiðu og fögru Wynyard-
byggð.
Islendingadagurinn á Hnausum, 3.
1. mánudag ,var í alla staði hinn
skemtilegasti. Veðrið var ágætt, að
vísu nokkuð mikill sólarhiti, en bó
hressandi svali af og til. Sá múgur
manna, sem þarna var saman kom
inn, og hann var engu minni en í
fyrra, og er þá mikið sagt, gekk því
makindalega og ánægður um grund
irnar, með vatnið lygnt og spegil-
bjart blasandi við auganu á aðra
hönd, en laufskúfaðan skóginn á
hina. Og svo skemti eyranu dill-
andi söngur frá söngflokki byggðar-
innar, undir stjórn B. Þorlákssonar,
og ræður og kvæði frá mælskumönn-
ROSE
THEATRE
Phone 88 525
Sargent and Arlington
Thur., Fri., Sat., This Week.
JOSEPH WAGSTAFF
and LOLA LANE in
“Lets Go Places”
100% TALKING— SINGING
A peek at parties and Holly-
wood Revelry — one of the
years oustanding hits
Added
“TARZAN THE TIGER”
Talking comedy — Micky Mouse
NOTE Ol’R NEW POLICY
Children Any Time
XOC
Except Saturday Nights and
Holiday Nights
Mon., Tues., Wed., Next Week
H. B. WARNER
and LOIS WILSON in
The Greatest Picture of
Their Careers
“THE FURIE8”
100% TALKING
See end hear a mother’s great
fight to hold the love of her son
—a boy who thought her a mur-
deress. As tense as any drama
you’ve ever seen.
Classified Special — No Child-
rens Tickets
um, sem blandaðist undursamlega
3aman við söngfuglaklið skógarins,
sem umlykur að mestu ræðu- og
söngsviðið á Iðavelli. Þeim, sem ekki
getur liðið bærilega á Iðavelli, ættu
að leita sem fyrst læknis, því þeir
ganga ekki heilir heilsu. Og íslenzk-
ari Islendingadag er hvergi hægt að
hugsa sér en þarna fór fram. Allir
töluðu íslenzku og gömul vináttu-
bönd barna gamla klakalandsins voru
þarna endurnýjuð með hlýju handa-
bandi og brosi á vör. I fáum orðum
sagt, sjáum vér hvergi glæsilegri
framtið Islendingadagshátíðarhalds,
en á þessum ný-íslenzka Iðavelli.
* * *
Þann 14. júlí s.l. andaðist í borg-
inni Tacoma, Wash., Magnús Johnson.
Hann var fæddur 4. maí 1858. Faðir
hans var Jón hreppstjóri Magnússon
í Syðra-Skógarnesi, en móðir Krist-
ín dóttir Þarleifs læknis í Bjarnar-
höfn. Um langt skeið dvaldi Magn-
ús heitinn í Piney Valley byggðinni.
Verður hans vafalaust minnst nán-
ar síðar.
* * m
Séra Jóhann Bjarnason messar i
íslenzku kirkjunni í Brandon næsta
sunnudag þann 10. ágúst, kl. 1 e.h.
Islendingar þar í bæ, er sjá þetta,
eru beðnir að láta aðra vita um mess-
una, svo að sem flestir geti verið
viðstaddir. Allir velkomnir.
• * *
“IÐUNN”
2. hefti af yfirstandandi árgangi
Iðunnar er nýkomið hingað vestur,
og hefir þegar verið sent til allra
kaupenda og útsölumanna.
* * *
Undirritaður biður hvern þann, er
einhverjar upplýsingar gæti gefið
um Þorlák Björnsson, frá Reykjavik,
systurson Brynjólfs Þorlákssonar
söngstjóra, sem kominn er hingað
vestur um haf fyrir tveimur árum
og bjó hjá Mrs. Jóhannsson, 747
Beverley St. hér í bænum, unz hann
fór vestur í land seint í júlí í fyrra-
sumar, og hefir ekkert spurst til
hans síðan, að gera sér viðvart hið
fyrsta.
Jón Björgvin Guðlaugsson.
747 Beverley St., Winnipeg.
• • •
Eftirfylgjandi nemendur Mr. O.
Thorsteinsson á Gimli, Man., tóku
próf við Toronto Conservatory of
Music:
Junior Violin:
Jóhannes Pálsson, 73 stig, Honors.
Stefán Guttormsson, 66, pass.
Primary Piano and Theory:
Lilja Pálsson, 90 stig, First class
honors.
Marion Lang, 80 stig, First class
honors.
Jóhannes Pálsson, 75 stig, Honors.
Stefán Guttormsson, 72 stig, hon-
ors.
Sigrún Jóhannesson, 66 stig, pass.
Kristín Benson, 63 stig, pass.
Elementary Piano and Theory:
Sigrún Jóhannesson, 98 stig, first
class honors.
Thomas Philiph, 97 stig, first class
honors.
Steina Jónasson, 95 stig, first class
honors.
Kristín Benson, 94 stig, first class
honors.
Snjólaug Jósepsson, 94 stig, first
class honors.
Lilja Pálsson, 94 stig, first class
honors.
ólöf Jónasson, 88 stig, First class
honors.
Margrét Jónasson, 67 stig, pass.
Margrét Sigurðsson, 67 stig, pass.
Ina Jónasson, 67 stig, pass.
Pearl Sigurgeirsson, 66 stig, pass.
Björg Guttormsson (Violin) 68
stig, pass.
Thorsteina Sveinsson, (Violin) 65
stig, pass.
Svanberg Albertsson (Violin), 64
stig, pass.
Introductory Violin and Piano.
Kathleen Bennett, 86 stig, first
lass honors.
Asta Johnson, 72 stig, honors.
Laura Olson, 68 stig, pass.
Thomas Philips, (Violin), 68 stig,
pass.
Gilbert Sigurgeirsson (Violin), 64
stig, pass.
• • •
A föstudagskvöldið 1. ágúst setti
H. Skaftfeld, umboðsmaður stúkunn-
ar Heklu eftirfarandi meðlimi í em-
bætti fyrir ársfjórðunginn:
F.Æ.T., B. A. Bjarnason.
Æ.T., Guðbjörgu Sigurðsson.
V.T., Bjarney Fáfnis
R., Stefaníu Eydal.
AJt., Stefán Einarsson
F. R., B. M. Long.
G. , Jóh. Th. Beck.
K. Ingibjörgu Hallsson.
D., Valg. Magnússon.
A.D., Þóru Sveinsson.
Sk. R., Sveinbjörn Gíslason.
V., Eyvind Sigurðsson.
Hreinlegan ungan mann, sem vill
læra bakaraiðn, vantar nú þegar. — I
Upplýsingar í Winnipeg Electric
Bakery, 631 Sargent Ave.
KENNARA VANTAR
við Frey skóla nr. 890, fyrir komandi
skólaár. 10 mánaða kennsla. Um-
sækjendur þurfa að vera færir um
að kenna “Grade 9. Tiltakið æfingu
og kaup.
H. B. SKAPTASON,
Sec.-Treas.
P.O. Box 206, Glenboro, Man.
• • »
KENNARA VANTAR
fyrir Arnes skóla nr. 586 næsta
skólaár; átta mánaða kennsla.
Umsækjendur verða að hafa lst
class certificate og góða æfingu. —
Tiltakið kaup.
Tilboð sendist til undirritaðrar
fyrir 9. ágúst 1930.
MRS. TH. PETERSON,
Sec.-Treas.
HVAÐANÆFA
(Frh. frá 1. bls.)
Frézt hefir frá Kaupmannahöfn,
að Danir, sem eiga aðeins tvö stór
herskip, hafi nú ákveðið að hætta
útgerð á þeim báðum, og verður
annað þeirra, Heimdal, rifið, en hitt
Niels Juel, sem nýkomið er frá því
að flytja konunginn til Islands, selt
til Kína. Virðast Danir vera ein-
ráðnir í því að takmarka herbúnað
enda hefir landið lengst af nú á síð-
ari áratugum verið hlutlaust í stríði.
* * •
1 bænum Leon á Spáni voru öldr-
uð brúðhjón gefin saman f hjóna
band hér á dögunum. Brúðguminn
var 82 ára en brúðurin stóð rétt á
áttræðu. Voru þau búin að vera
trúlofuð síðan árið 1887 eða-í 43 ár,
og höfðu þá keypt alla búslóð sína
I með afborgun. En þau strengdu
þess þá heit að gifta sig ekki fyr en
þau væru búin að borga allt upp f
topp, því að þau vildu ekki byrja
búskapinn með skuldabasli. Þetta
gekk að vísu seinna heldur en þau
bjuggust við, en heistrenginguna
efndu þau. Fyrir þvi geta þau nú
byrjað hjónaband sitt skuldlaus að
kalla, og skyldi maður ætla að lifið
hefði þá ekki skákað þeim, svo að
þetta ellihjónaband verði laust við
allt basl.
• • •
1 British Guinea var nýlega skot-
inn gamall krókódíll ógurlega stór.
sem rogaðist með stærðartré á bak
inu. Hyggja menn að fræ hafi ein-
hverntíma hrokkið ofan á bakið íi
honum, og með einhverjum undra-
verðum atburði hafa fest þar rætur.
Ekkert vita menn um hvernig krókó-
dílnum muni hafa líkað þessi gróðr-
arstöð á bakinu á sér.
þegar það hafi fengið tilkynningu
frá rafmagnsstjórn um að tilboðið í
verkið “i princiþ godtages”. —
Síðan voru opnuð tilboð frá Siem-
ens Norsk Aktieselskab, Oslo (Sie-
mens-Schuckert Werke, Berlín) —
Samkvæmt bréfum dags. 23. april
og 9. júlí þ. á. og verktilboði.
Tilboðið er i þrem liðum.
1. tilboð, ísl. kr. 6,644,512.55
2. tilboð, ísl. kr. 7,060,704.25.
3. tilboð, ísl. kr. 6,430,756.55.
Auk þess telur firmað tilboðið geta
tækkað eitthvað vegna lækkunar á
verði á kopar og blýi, ef sú lækkun
helst er pöntun verður gerð.
Hvað snertir fjárútvegun tekur til-
boðið fram, “að firmað hafi til þessa
tíma því miður eigi tekist að fá að-
gengilegt lánstilboð”.
Um víða veröld
Frá Islandi
Sogs vi rk j u n i n.
Rvík 17. júlí.
A fundi rafmagnsnefndar 15. þ. m
voru opnuð tilboð í Sogsvirkjunina.
Um framkomin til'ooð segir svo i
fundargerð nefndarinnar:
Fyrir var tekið að opna tilboð f
Sogsvirkjunina og mættu þá á fund-
inum Paul Smith. fyrir hönd Siem-
ens-Schuckert Werke og Sigurður
Jónsson fyrir hönd Kampmann, Kier-
ulff & Saxild í Kaupmannahöfn.
Þá barst fundinum bréf frá Bræð-
urnir Ormsson, í Reykjavík, með
beiðni um frest.
Þá voru opnuð 2 bréf og 1 sím-
skeyti frá Aktiebolaget Electro-In-
vest, Vesteaas í Svíþjóð og sundur-
liðað tilboð með þrennu móti:
1. tilboð, sænskar kr. 5,125,000.00
2. tilboð sænskar kr. 5,245,000.00.
3. tilboð sænskar kr. 5,135,000.00.
Jafnframt bréf frá Kampmann,
Kierulff & Saxild, þar sem þeir stað-
festa þátttöku sína í framangreind-
um tilboðum.
Hvað snertir f járútvegun tekur til-
boðið fram, að Aktiebolaget Electro-
Invest sé reiðubúið að koma fram
með sundui<liðað peningalánstilboð,
(FVh. frá 5. síðu).
miljónir ára, því sjá megi klettalög
þar og viða annarsstaðar (m. a. á
Norðurlörídunum), sem sjeu að min-
sta kosti 1,500 milljón ára gömul og
þurfi því miklu lengri tíma en al-
mennt sje gert ráð fyrir, til þess
að svo gamlir og harðir klettar
(granít) hafi myndast, ef gert sé
ráð fyrir því, að jörðin hafi fyrst
verið gufuhnöttur og síðan vatns.
En hann segir, að engar jarðfræði-
legar sannanir verði færðar fyrir þvi
að jörðin hafi verið í gufulíki. Hún
hafi eiginlega ekkert kólnað síðan
fyrst verði rakin saga hennar, en
hitinn verið nokkuð misjafn, aðal
lega vegna ísalda. Hann setur fram
þá spumingu, hvort jörðin muni ekki
hafa getað myndast úr köldu efni
einhverskonar smáögnum, eins og
þeim, sem enn berist hingað mill-
jónum saman utan úr geimnum.
töluðu líka vinsamlega um samkomu-
lagið, þótt ekki vildu þeir taka þátt
í því. Sá fyrnefndi gaf McDorfald
gullpennann, sem skjölin voru undir-
skrifuð með, í þakklætisskyni fyrir
fundarstjóm hans.
Hinir nýju flotamálasamningar eru
allmikil skjöl, inngangur og 5 kaflar
í 26 greinum og gilda allir fyrir
Bretland, Bandaríkin og Japan, en
1., 4. og 5. kaSi fyrir Frakkland og
ttalíu þegar formleg staðfesting hefur
farið fram.
Hvert er þá efnið og árangurinn?
Fyrst og fremst stórfeldur fjársparn-
aður fyrir Breta. Flotagjöld bretska
skattþegna minka um 60 — 70 milj-
ónir punda á næstu 6 árum. Sparn-
aður allra þjóðanna er áætlaður 160
—180 miljónir punda. Þegar samn-
ingsákvæðin eru gengin í gildi á
Stóra-Bretland 15 orustuskip og rúml.
541 þús. smálestir annara skipa.
Bandaríkin eiga þá líka 15 orustuskip
og 526 þús. smál annara herskipa og
Japanar 9 orustuskip og 367 þús. smá-
lestir annara herskipa. Erí Frakkar
og Italir skuldbinda sig til þess að
hætta herskipabyggingum í 5 ár, en
ganga ekki að öðru leyti inn á á-
kveðnar flotamarkanir.
Til samburðar skal þess getið, að
Bretar eiga nú 20 orustuskip, Banda-
ríkin 18 og Japanar 10 (auk margra
smærri skipa, sbr. fyrri frásögn).
þar að auki ætluðu þessi ríki að
byggja 26 orustuskip á næstu 6 árum.
En samkvæmt samningunum verð-
ur hætt við smíði þeirra allra og
nokkur af gömlu skipunum eyðilögð
eða tekin úr herþjónustu og notuð
sem skólaskip. Skipin sem eftir
verða eru tiltölulega ný, stór og full-
komin.
Flotamálafundurinn
Skipafækkun og 180 miljóna
punda sparnaður.
Flotamálafundinum í London var
lokið um páskana. Lögrjetta sagði
frá viðfangsefnum hans og undirbún-
ingsstarfi hans um það bil þegar hann
hófst. Hermálin eru þjóðunum þjak-
andi byrði og böl og allir góðir menn
hafa því fylgt með áhuga tilraunum
til þess að draga úr vigbúnaði og
hernaðargjöldum. Flotamálafundur-
inn stóð í 3 mánuði og gekk oft í
þófi og leit stundum út fyrir að alt
samkomulag færi út um þúfur. Að
sumu leyti náðist heldur ekki það
samkomulag sem t. d. McDonald
gerði sjer í fyrstu vonir um, en að
öðru leyti varð árangurinn meiri en
á horfðist um skeið. Aðalárangurinn
var þríveldasamningur milli Breta.
Bandaríkjamanna og Japana, en
Frakkar og Italar sitja hjá að sinni,
en segjast vona, að fult samkomulag
náist síðar. Gert er ráð fyrir því að
annar fundur v*rði haldinn 1936.
Fundinum var slitið í St. James höll
og fluttu aðalfulltrúarnir þar vin-
samlegar ræður, að sumu leyti vin-
samlegri en efni stóðu til eftir á-
ranginum. “Við skiljum fullir af
góðum og starfsömum vilja,” sagði
McDonald. Stimson undirstrikaði
hið vaxandi vinfengi við “hina góðu
nágranna okkar, Japana”. Wakat-
suki sagði að samningarnir væru
merkilegt spor á braut friðar og
framtíðar mannkynsins”. Briand og
ítalski flotamálaráðherrann Girianni
THOMAS JEWELRY CO.
Crrsmíði er ekki lærð á einu eða
tveimur árum. 25 ára reynsla
sannar fullkomna þekkingu.
Hrenslun $1.00 Fjöður $1.00
Waltham trr $12.00
Póstsendingar afgreiddar tafar-
laust.
CARL THORLAKSON
úrsmiður. <
627 Sargent Ave., Winnipeg
MRS. THOR BRAND
726 VICTOR STREET
WINNIPEG
tekur á móti sjúklingum (con-
valescent patients)og annast um
þá á heimili sínu.
Talsími: 23 130
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Service
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima sími 87136
Expert Repair and Complete
Garage Service
Gas, Oils, Extras, Tires,
Batteries, Etc.
AKKERIÐ ÚT
VINDB0RÐA
það hefir komið í veg fyrir
margt óhappið. Að eiga dálitla
peninga uppræð í bankanum er
hið sama og að hafa akkeri úti
á vindborð. Það kemur i veg
fyrir að yður reki upp á sker
efnalegs ósjálfstæðis og alls-
leysis.
Byrjið nú þegar að leggja í
handrák á þessum banka.
$1. er nægileg byrjun til að opna
reikning.
Opið frá 9f. h. til 6e.h.
Laugardögum 6 f.h. til 1. e.h.
Province of Manitoba
Savings Office
Donald St. at Ellice Ave.
or 984 Main St., Winnipeg.
Heitt vatn á lœgra verði
Leitið yður upplýsingar um tækifæris verð vort á gasi til
vatnshitunar. Það minnkar vatnshitunarkostnað yðar.
Símið: 842 312 eða 842 314.
Winnipeg Electric Company
“Your Guarantee of Good Service”
Four Stores: Appliance Dept., Power Bldg., Portage and Vaughan;
1841 Portage Avenue, St. James
Marion and Tache, St. Boniface.
511 Selkirk Avenue.
Om
Nýja íslenzka
brauðbúðin
Cor. SARGENT og McGEE
WINNIPEG
Vönduðustu og beztu brauð og
kökur. Margra ára sérfræðsla
í að búa til giftinga- og afmælis
kökur. Einnig tekið á móti
pöntunum á íslenzkum rjóma-
tertum. Allt tilbúið úr bezta
efni og selt með afarlágu verði.
Kringlur, tvibökur og skonrok
ávalt fyrirliggjandi. — Okkar
hveitibrauð aðeins 5 cent, við-
urkennt að vera hið bezta í borg
inni. Búðin opin alla daga frá
kl. 8 að morgni til kl. 11 að
kveldi, nema á sunnudögum. —
Lokuð allan sunnudaginn.
Virðingarfyllst,
Páll Jónsson.
The Viking Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr-
ir mjög sanngjarnt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega
og fljótt og vel af hendi leyst. Látið oss prenta bréfhausa
yðar og umslög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta.
Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi.
THE VIKIMG PRESS LTD
í
I
! 853 SARGENT Ave., WINNIPEG !
8* Sími 86-537
I
í
4