Heimskringla - 19.11.1930, Blaðsíða 1

Heimskringla - 19.11.1930, Blaðsíða 1
DYERS & CLEANERS, LTD . SPECIAL Men’s Suits Dry * aa Cleaned & PressedI iUU (Cash and Carry Price) Delivered, $1.25 Buttons Tightened, Replaced and all Minor Reparirs Free *)ort DYERS & CLl?ANERS, LTD. SPECIAL Ladies’ Plain Silk (T4 AA Dresses Dry Cleaned 3 I iUU & Finished (Cash and Carry Pricel Delivered, $1.25 Minor Repairs Free XLV. ARGANGUR. WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 19. NÓVEMBER, 1930 NÚMER 8 Veitið lífinu viðtöku. R»«a flutt á Þakklætishátíð Sam- bandssafnaðar, 10. nóv. 1930, af sr. Benjamín Kristjánssyni. Forseti! ^5ðir samkomugestir! Naumast mun finnast nokkurs- staðar í mannkynssögunni fátækt og börmungum lýst átakanlegar en í dagbók William Bradford, sem var ®inn af pílagrímafeðrunum, er sigldu með “Mayflower” vestur yfir At- •antshaf að áliðnu sumri 1620 og sett ust að Plymouth nýlendunni í Massa- chusetts. Ef menn og konur hafa nokkru sinni þjáðst, ef neyð og ó- höpp hafa nokkru sinni lagst þungt á varnarlausa lítilmagna, þá fékk þessi fátæki landnemahópur í Plymouth að kenna á andstreymi hamingjunn- ar- Einangrun, hallæri og hungur, drepsótt og dauði, ofsóknir rauð- skinna, allt steðjaði að þeim í einu fyrsta veturinn. Arfsögnin segir, að svo fast hafi sorfið að þeim, að hver þeirra hafi að lokum ekki fengið nema fimm grjón til að nærast af & dag. En samt sem áður, þegar þeirri helft landnemanna, sem lifði af hinn fyrsta vetur og fyrsta sumar, heppnaðist að fá það mikla uppskeru, að þeir sáu fram á að þeir mundu geta haldið í sér lifinu næsta vetur °g á þann hátt f ramlengt þessa eymd- ar tilveru. þá héldu þeir þakklætis- hátíð og lofuðu guð. Aldrei hefir þekkst í mannkyns- sögunni dæmi um annað eins, að fólk sem lifði í ítrustu neyð og sárustu hörmung, stofnaði til þakklætishá- ^íðar. Einmana og fráskildir umheim- lnum, óra langt frá öllum bjargráð- Urn. umkringdir fláráðum vilimönn- Uöi, hefja þeir þakkarbæn. Lang- dregnir af hungri og þjáningum og hreð skrælnaðar kverkar, hefja þeir fagnaðarsöng. Þeir lyfta tárvotum augum frá nýorpnum gröfum ástvina sinna til himins og andvarpa lofgerð tjl skapara síns: Vér þökkum þér, og lofum þig, drottinn- Og þann dag nefndu þeir síðan þakkargerðardag, og niðjar) þeirra héldu hann til minningar um þá og þá náð, sem guð hafði auðsýnt þeim. Þetta var árið 1621. Liðugum tveimur öldum slðar, árið 1860, er þakklætishátíðin ennþá haldin í landi pílagrímanna, með sama innileik og auðmýkt hugarfarsins, þótt vellíðan v®ri þá ólíkt meiri og farsæld almenn- ari- Afkomendur píliagrímanna héldu áfram að þakka guði fyrir ávöxt jarðar með sömu lotningu og holl- ustu og feður þeirra gerðu, og þótt Sjafir þær, sem þeir þágu, væru meiri og ríkulegri, var þaKkargerðarbæn þeirra jafn einlæg og innileg þrátt fyrir það. En tvær kynslóðir hafa gengið um Sarð síðan þetta var, og á þeim tíma hefir margt breyzt. Almenn hag- sæld og auður hefir vaxið hröðum skrefum. Amerikumenn eru orðnir su Þjóð, sem talið er að lifi við full- homnust þægindi og hlotið hafi mest veraldargæði að jafnaði allra þjóða 1 réttu hlutfalli við þetta hefir vaxið veizlukostur sá, sem þeir bera á borð á Þakklætishátíð sinni, því að enn halda þeir þakkargerðardag. En þakkargerðarbænin hefir horfið. Turkeyinn er borinn fram í hennar stað. i stað guðsþjónustunnar eru komnir fótboltaleikir, hnefaleikar og aðrar fátæklegar skemtanir- Varla mun vera kveðið of sterkt að orði Þótt sagt sé, að fjöldi fólks hafi litla hugmynd um, hvers vegna þessi lög- hoðni helgidagur er haldinn. Þetta hátíðarhald, fyrrum og nú virðast í fljótu bragði tvær undar- legar og ósamrimanlegar andstæður En þegar nánar er að gáð, er ósam- ræmið eigi eins mi kið og það virðist, enda er mannlegt eðli jafnan sjálfu sér likt. Ef til vill berum vér vort hlutskifti ekki ver en þeir sitt, Því að eins og hið forna íslenzka spakmæli segir: það þarf sterk bein til þess að þola góða daga. —: Auð legð, vald og hóglífi er örðugra að þola og bera göfuglega, en nokkru sinni sára fátækt og drepsóttir. — Þetta er eitt af furðulegasta sann leika lífisins. En reynslan hefir jafn an orðið þessi, að mótlætið heflr hert menn og stælt til dáða, en hóg híið eða of mikið meðlæti, spillt mönnum til ofmetnaðar eða kæruleys is' Það fer svo oft fyrir mönnum sem of ungir taka út arfhluta sinn eins °S glataða syninum í dæmisög- sín, ganga ekki í sig fyrr en öllum arfhlutanum er sóað, og þeir eru aft- riki, sem ur farnir að eta draíið með svínun- jörðu. um. Meðan alt leikur í lyndi er jafnvel örðugt að gera sér í hugarlund neyð- ina eins og hún er til sárust. Og þó vitum vér, að hún er til svo víða, et' eigi i voru landi, þá í öðrum. Eigi er lengra en ár síðan að sex iniljón- ir manna dóu úr hungri austur í Kína. Það er álíka margt fólk og tveir þriðju hlutar Canadabúa. Vér hefð- um orðið vör við það, ef það hefði gerst hér og rétt i kringum oss. En þó að heilt úthaf væri milli vor og þeirra, þá var þetta samt sem áð- ur staðreynd, jafn átakanleg og voða leg og þó hún hefði gerst í þessu landi. Sársaukinn er jafnmikill og eymdin, hvoru megin Kyrrahafsins sem hann er. En af þessu getum vér skilið, þó víða virðist oss þröngt í búi á meðal vor, hversu þakklát vér megum vera samt sem áður fyrir þá blessun, sem þetta land hefir lagt oss í skaut, í samanburði við þjáninguna miklu hinumegin við hafið. Og það eru eigi aðeins og fyrst og fremst náttúrugæð- in, sem hér eru meiri og ríkari — það er þekkingin og reynslan, sem nú er meiri en nokkru sinni áður, og gert hefir þessa þjóð hæfari að sjá sér far- borða og skyggnari á ýmsu þau gæði, sem stuðla ættu að því að auka ham- ingju lífsins og fögnuð yfirleitt. Auk þeirra hluta, sem Marteinn Lúther telur í fræðum sínum heyra undir hugtakið daglegt brauð, svo sem klæði, fæði, hús, heimili, akur, fénað og öll gæði, góð landstjórn, góð veðr- átta, friður, trúir nágrannar og því um líkt, — þá höfum vér nú fyrir þekkingu og vísindi, öðlast svo margt sem fortíðin hafði enga hugmynd um, og ástæða væri til að þakka, svo sem aðferðir til að lina þjáningar, varn- armeðul við drepsót,tum, sjúkrahús og hæli ýmiskonar. Vér höfum öðl- ast margskonar tæki til að létta stritinu af herðum vorum og gera oss lífið þægilegt og ánægjulegt, svo ótal margt, sem of langt yrði upp að telja. En samt sem áður er undirstraum- urinn í lífi voru bölsýni og vanþakk- látir, — og það vanþakklæti er ef til vill arfur frá gamalli erðakristni. Þvi að alla tíð frá dögum frumkirkj- unnar, hefir kristnin verið bölsýnni og vanþakklátari fyrir þetta líf, en nokkur heiðindómur. Hversu vel sem lífið lét að meinlætamönnum hinnar kaþólsku kristni, hversu dá- samlegt sem það var, er fyrir augun bar, hversu grænn skógurinn og un- aðsleg sólarupprásin, hversu heillandi niður vatnanna og söngur fuglanna, og hversu blíð og fórnfús ást mann- anna, þá afneituðu þeir þó öllu þessu og klæddust sekk og ösku og hrópuðu að allt væri hégómi- Þetta líf væri stutt og til einskis nýtt nema til þess að gera yfirbót. Það væri eins og næt ■ urvaka. Jörðin væri táradalur og bú- staður ranglætisins. Vér lifðum að- eins fyrir komanda líf, og það eitt gæti sætt oss við þessa eymdartil- veru. * Þessi afstaða, sem svo lengi hefir verið afstaða kristninnar til þessa lífs, sem vér lifum hér og þekkjum bezt, er eigi afstaða þakkargerðar- innar. Hún er afstaða vanþakklæt- isins. Og oss er óhætt að kveða sterkara að orði. Hún er blindni og fávizka. Hún er illur og rangur grundvöllur undir öllu voru lífi. Hún er svikráð við lífið sjálft, og hlýtur því æfinlega að hefna sín með því að eyðileggja lífið og brjóta það í mola. Enginn maður hefir nokkru sinni þekkt neitt betra en lífið sjálft, eins og vér getum /lifað því hér, hvorki Dante, Goethe eða Jesús Það var Jesús, sem sagði: Guðsríkið er hið innra með yður”. Ríki Platós var og af þessum heimi, en ekki öðrum. Paradísir Dante og Miltons eða Opin- berunarbókarinriar eru draumalönd, sem hvergi nærri hafa nokkurt að- dráttarafl fyrir ímyndunarafl heil- brigðra manna, á við það sem lífið sjálft hefir, hið jarðneska líf. Og líf ið sjálft er oss dýrmætt ,einmitt af því að það á hvorttveggja, ljós og skugga, sorg og gleði .fögnuð og sárs auka. Enginn mundi verða hamingj unnar var, nema af því að hún styðst við bakgrunn þjáningarinnar. Eng- inn mundi verða hlátursins var, nema af því að hann rís upp úr djúpi al vörunnar. Maðurinn er hin eina vera sem veit dauða sinn, og eina vera sinni gert sér í hugarlund það himna- i TILRÆÐI VIÐ FOR- ekki gæti líka orðið á Og ef vér viljum nokkru sinni verða þess um komin, að öðlast eilíft SÆTISRAÐHERRA JAPANA. Föstudaginn 11. nóvember var Yuko Hamaguchi forsætisráðherra Japana særður hættulega af skoti á aðal- líf og æðra en þetta, sem vér lifum járnbrautarstöðinni í Tokio. Var hann á leiðinni til Okayhama til að vera þar staddur við heræfingar, sem áttu að byrja þar sama dag undir yf- irumsjón Hirohito keisara, Þegar hanr^ kom upp á járnbrautarpallinn með fjóra lögregluþjóna sér til fylgd- ar, ruddist að honum ungur æsinga- maður að nafni Sagoya með marg hér, þá verðum við fyrst að verða þess makleg að lifa þessu lífi. En vér munum aldrei erfa eilíft líf með þvi að fyrirlíta þetta jarðneska líf, sem áreiðanlega er einn hluti eilífð- arinnar. Og hvernig gætum vér nokkru sinni verðskuldað ódauðleik- ann, með því að mögla og kveina yf- ir þessu stutta lífi, sem oss er gefið 1 hleypu í hendi og skaut hann í mjöðm hér á jörðu. Skáldið Edward Ever- j ina, svo að leið yfir hann og hann ett Hale hefir í einu af fegurstu , féll. Var flugumaðurinn tekinn þegar kvæðum sínum ritað þessa áskorun í stað og hafður i hald en forsætis- til meðbræðra sinna og gert hana að einkunnarorðum sínum: Veitið lífinu viðtöku! Þiggið gjafir þess með þakklæti, án þess að kveina eða kvarta um þær. Veitið sjóninni viðtöku! Frá sólar upprás til dagseturs, eru augu vor stöðugt að opinbera oss dularfulla og dásamlega hluti, sem orðið geta oss óendanlegt umhugs- unar- og fagnaðarefni. Jafnvel í HVEITISAMLAGIÐ LÆKKAR FVRSTU NIÐURBORGUN I annað skifti frá því í júlí s.l. hefir Hveitisamlagið fært niður fyrstu borgun á hveiti, nú í síðara skiftið úr 55c niður í 50c á mælinn af fyrsta flokks hveiti kominn til Fort Wil- liam. Gekk þetta verð í gildi 1. nóv. s.l.. Niðurfærslan er afleiðng af stöðugu hruni á hveitimarkaðinum. Fór des. hveiti 1 54 y2c mælirinn á markaðinum í Winnipeg s.l. þriðju- dag. NEYTIR HVORKI AFENGIS NJE TÓBAKS 1 blaðinu “International Record”, sem gefið er út af einum fremsta manni Goodtemplarareglunnar á Eng ráðherra fluttur á sjúkrahús. Hafa verið gerðar ýmsar tilraunir til að bjarga lífi hans, og þykir það ekki jlandi- Guy Hayler, er þeim orðum vonlaust að hann lifi af áverkann. !farið um stjórnarskiftin í Canada i Hamaguchi forsætisráðherra er sextugur að aldri og er talinn gegn maður, hlynntur friði og af almenn- ingi nefndur “ljónið”. Hafði hann tvisvar verið fjármálaráðherra áður en hann tók forsætisráðherratign 2. júlí 1929 og myndaði þá ráðuneyti á einum degi. Er. hann forseti Min- seita flokksins, og er yfirleitt talinn næturmyrkrinu opinbera þau oss. að vera einn hinn merkasti stjórn- dýpt og dásemd stjörnugeimsins. j málamaður Japana. Þau opinbera oss minnstu hugsan- ir vina vorra, sem vér lesum út úr svipbrigðum þeirra, brosum þeirra eða tárum. Þau birta oss alla feg- urð og ljóma hins lifandi lífs. Veitið heyrninni viðtöku. Hvílík upp- spretta himneskrar sönglistar er öll tilveran! Rödd þrumunnar og kvak dúfunnar eru jafn kærkomnir tónar í hörpu lífsins, niður hrynjandi vatna og gjálfur öld- unnár við ströndina. Málrómur þeirra, sem vér elskum, er hin æðsta gjöf, jafnt og ódauðleg tónverk snillinganna. Þökkum fyrir heymina, og lofum drottinn tónanna, þvi að jafnvel þótt eyru vor verði dauf munu söngvar æskunnar halda áfram að endurhljóma í sál vorri, og veita inn í hana síungum straumi eilífð- arinnar. Veitið ljósinu viðtöku ,sem sjálft er ímynd og opinberun alls sann- leika. Hljóðinu, sem hleður loftið töfrum, og ilm og fegurð útsprunginnar rósar. Veitið kærleikanum viðtöku frá föður og móður, frændum og ást- Er þetta í annað sinn, sem ráðist hefir verið að forsætisráðherrum Japana á brautarstöðinni í Tokio. Hið fyrra sinn var 4. nóvember 1921, þegar Kei Hara, þáverandi forsætis- ráðherra, var rekinn í gegn þar á staðnum, svo að hann dó af nokkr- um mínútum seinna. VIÐ EFNIÐ. Vopnahlésdags ræða Hoovers for- seta var á engan hátt uppbyggilegri né efnlegri nlálefni friðarins, en slíkar ræður þjóðhöfðingja eru vanar að vera.. Að vísu benti hann á Lund- únafundinn sem nokkra tilstuðlun þess, að dregið væri úr flotasmiðum stórveldanna þriggja, og gat þess að ýmiskonar samningar og sáttmálar, sem þióðirnar ýmist nú þegar hefðu gert eða mundu gera sín á milli, hlytu að vinna mjög að því, að binda hend- ur þeirra, svo að þær væðu ekki svo greitt hver í hárið á annari; auk þess væri alþjóðadómstóllinn og Kelloggs- sáttmálinn einn hinn öflugasti friðar- gætir, sem heimurinn hefði ennþá sam ið sér. En eftir að hann hafði lokið miklu lofsorði á þenna sáttmála, þar sem þjóðimar heita hver annari að sambandi við bindindismálið, að það sé gott til þess að vita, að tíinn nýi forsætisráðherra, R. B. Bennett, neyti hvorki áfengis né tóbaks. Og á framkomu Bennetts sem leiðtoga stjórnarandstæðinga á þinginu í fyrravetur, í sambandi við breytingu á vínlöggjöfinni viðvíkjandi áfengis- smygluninni, lýkur blaðið lofsorði, og þykir það spá góðu um mál bind- indismanna framvegis, 'að conserva- tívar féllust umyrðalaust á lagabreyt ingu frá hendi stjórnarflokksins. BÆ J ARST JRN ARKOSNIN GIN leggja ekki út í stríð fyrir nokkra vinum, þvi að hann er vor æðsta muni, þá afneitar forsetinn honum eða gjöf ’ j aðalefni hans með svofelldri yfirlýs- og veitið viðtöku hverri þeirri kröfu ingu: eða áskorun, sem hvert augnablik ' “Vér sem orðið höfum að ávinna oss gerir til vor, að lifa til sem mestr- sjálfstæði vort, öryggi og frelsi með ar gæfu. I stríði, getum þó aldrei viðurkennt, að Hefjum hvert ár, hverja árstíð og eigi sé til réttlát orsök til stríðs í hvern dag án möglunar, ákveðin í því heiminum. Eigi getum vér heldur að finna alla þá gleði í lífinu, sem j gengið út frá þvi sem gefnu, að rétt- unnt er, og þakka það á þann hátt, lætinu hafi vaxið svo fiskur um hrygg að nota það vel. — Deild III: A. Belechi, Communist. Mrs. H. Green, C P.A. Mrs. A. Hunt, I.L.P. P. Pawlukevich, óháður. C. C. Falconer, óháður. J. A. Nowacki, óháður. Af þessum 14, sem um skólaráðs- stöðurnar sækja, verða 6 kosnir. HVAÐANÆFA. Þegar Spánverjinn Juan Bermudez fann árið 1503 eyjar þær, sem síðar voru heitnar eftir honum, grunaði hann ekki að þær mundu með tíman- um verða aðsetursstaður auðs og ó- hófs amerískra miljónamæringa En þetta mun þó verða tilfellið. Nú er byrjað að reisa þar feikna mikið við- hafnarhótel, sem talið er að kosta muni um 500,000 pund sterling. Hafa enskir byggingafræðingar tekið starf ið að sér, og er talið að við það muni vinna 250 sérfræðingar í 15 mánuði og að 2600 tonn af efni muni verða flutt frá Englandi til byggingarinnar. Er það tilætuunin að útbúa þarna víða leikvelli og hverskonar þægindi fyrir auðuga slæpingja að dvelja við. Eyjan er umkringd grynningum og skerjum og því talsvert varasöm að- siglingar, en veðráttufar milt og ynd- islegt þarna í miðju úthafinu. — Talið er að byggingunni muni verða lokið seint á árinu 1931. lmri. *-------- -------- ° ocm V LIV. —o ------- > að þeir koma ekki til sjálfs ' sem hlær. Og enginn hefir nokkru Þakklæti kugarfarsins er eigi fyrst og fremst kvöð, er vér skuldum guði, heldur hamingja er vér skuldum sjálf um oss, óumræðilegur skilningur á mikilleik lífsins, fórnum þess og feg- urð. Vér skulum í kvöld hugleiða orð hins ágæta skálds, og láta þau vera þakkarbæn vora: Veitum lífinu viðtöku! að óhætt sé að treysta að öllu á við- gang friðarins, og hættá að hafa her til varnar.” PILSUDSKI VINNUR A. Við kosningarnar í Póllandi siðast liðinn mánudag, vann flokkur Pilsud- ski hershöfðingi 247 sæti í þinginu af 444, í staðinn fyrir aðeins 118 sæti er hann hafði þegar þingið var leyst upp í ágúst s.l. En þó að þetta væri mikill sigur fyrir Pilsudski, þá var ... hann þó eigi eins mikill og hann hafði Eftir skyrslum, sem nu berast frá v & landinu helga” virðist Dauðahafið | gert sér vomr um eða hann þóttist nú vera að lifna við. Arið 1926 bauð |við þurfa til þess að gera þær breyt- stjómin í Palestínu erlendum auð-jingar á stjórnarfynrkomulaginu, er 3 3 - - að 1 hann vill koma í krng. Er hann þó DAUÐAHAFIÐ LIFNAR mönnum að gera tilboð í að fá starfrækja námuauð vatnsins, sem talinn er að vera geypi mikill, og fékk | ekki vonlaus um að þær muni ná fram að ganga. Halda stuðningsmenn hers- höfðingjans því fram, að þessar kosn ingar beri ótvírætt með sér velþókn- an þjóðarinnar á stjóm síðustu 4 ára, sem Pilsudski hefir ráðið lögum lofum. Eitt af fyrstu verkum Major Tulloch ásamt stórríku efna- gerðarfélagi brezku (Imperial Che- mical — The British Chemical Com- bine) einkaleyfi á að setja þar niður verksmlðjur stnar tu a«i vlnn. kali; oe vcrtlur a0 ,am|>ykkj« og önnur aolt ur joríu, ■^gmrnna ^ v6rrtunar„mnlng Ivar Krueger, eldspýtnakónginn, þar sem honum er heimiluð einokun á eld- spýtum í Póllandi til 1965, gegn því að landið fái $2,400,000 lán með 6V2% vöxtum. Bæjarstjórnarkosningin í Winnipeg fer fram föstudaginn 28. nóvember n k. Þeir sem ekki eiga kost á að vera í bænum á kosningadaginn, er veitt tækifæri til að greiða atkvæði n.k. laugardag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Atkvæðisbærir eru allir brezkir þegnar, er $100 eiga i fasteign og leigjendur, er á $200 eign búa. Þeir er um kosningu sækja, eru þessir: Borgarst jóraef nl: R. H. Webb, núv. borgarstjóri, C. P.A.* Marcus Hyman, I.L.P. ...... Bæjarráðsmannsefni: ...... Deild I: E. D. Honeyman, C.P.A. C. Rice-Jones, C.P.A. W. B. Lowe, I.L-P. W. A. Cuddy, C.P.A. David Butler, Communist. Deild II: James Simpkin, I.L.P- John O’Hare. F. H. Davidson. Thomas Boyd. M. J. Forkin, Communist. Jas. J Fox, I.L.P.’* A. A. Ryley, C.P.A. G. R. Belton, C.P.A. Ald. McKerchar, C.P.A. Deild III: R. Calof, C.P.A. W. N. Kolisnyk, Comm. H. E. Evett. M. A- Gray, I. L. P. T. D. Ferley. j. F. Palmer. W. B. Simpson, I.L.P- Sam Lewis. Dr. Sedgjak. Col. Dan McLean. Wm. Jessiman, C.P A. N. T. Skidmore, óháður. Af þessu sést að 26 manns sækja um bæjarráðsstöður er aðeir menn eiga kost á. 1 þessum kosningum verður einnig greitt atkvæði um fjörgur fjárveit ingafrumvörp, er að þessu lúta: að brúa yfir C.P.R. járnbrautina á Sher brook stræti, sem kostar 1,760,000 dollara, að gera brú yfir C.P.R- jám- brautina á Salter stræti, sem kostar $1,72$,000, og að auka við miðstöð- arupphitunarkerfið, sem kostar $750 000, að bæta við útbúnað lögreglu- stöðvar bæjarins, er kostar $56,000 Sá atburður vildi til að 544 Henry Ave. hér í bænum, að maður nokkur, líklega ítalskur, Satelli að nafni, ruddist inn í eldhús til húsfreyjunn- ar með marghleypu í hendinni og skip aði henni að kyssa sig á auga lifandi bragði, ella mundi hann skjóta hana. Samt sem áður vildi konan ekki taka þessum afarkostum og stökk út og í næsta hús og fónaði lögreglunni, sem brátt kom á vettvang og setti mann- inn í tugthúsið. Hörmulega má þessi manngarmur vera staddur,. að geta ekki fengið nokkum kvenmann til þess að sýna sér bliðu, nema með þess um óyndisúrræðum, og jafnvel ekki með þeim. Amanullah fyrverandi konungur í Afghanistan dvelst nú sem stendur Tyrklandi, og er i mestu fjárhags- vandræðum. Hann hefir skorað á fyrverandi hershöfðingja sinn og nú- verandi ríkisstjóra í Afghanistan, að leyfa sér að selja fasteignir sínar og drottningarinnar þar í landi. En Na- dir Shah hefir neitað honum um þessa bón og tilkynnt honum, að allar eign ir hans séu seldar og andvirðið kom- ið í ríkissjóðinn, og þaðan hafi það raun og vem verið komið áður. — Annars segist Nadir ekkert skilja i því að Amanullah sé i fjárþröng, þvi hann hafi haft með sér úr landi 6- grynni auðæfa — gimsteina, er voru eign krúnunnar, og ef hann hafi selt þá, hljóti hann að hafa fengið milj- ónir fyrir þá. Ennfremur segir Na- dir að Amanullah hafi á ríkisstjóm- arárum sínum lagt stórfé inn á er- lenda banka og hafi átt að verja því fé til þess að koma upp iðnaði í Afghanistan, en úr því hafi aldrei orðið. er af á vatnsbotninum. sagt að Standard Oil félagið sé nú að rannsaka olíunámur, þar sem Sódóma og Gómorra áttu að hafa staðið í gamla daga. Má því búast við all- háværu iðnaðarlífi þarna í næstunni. Fyrir skömmu síðan var og stofn- að félag með $150,000 höfuðstól til að koma upp vetrardvalarstað á norðurströnd vatnsins. Heitir félagið “Dead Sea Shipping and Hotels Co.” Hafa þeir, sem kannað hafa staðinn, látið mjög af fegurð hans og heil- næmi. Vísindamaður nokkur hefir látið þá skoðun í ljós í ritgerð, sem mjög hefir vakið athygli, að ef fólk hætti að kyssast, þó ekki væri nema svo sem í tíu ár, mundi verða hægt að útrýma tæringarsjúkdómi gersam- lega. En mörgum mundi þykja þessi kostur harður aðgöngu. Um skólaráðsstöðurnar sækja þessir Deild I: Israel Levi, Communist. G. E. Miles, C.P.A. B. B- Smith, annað sinn. Mrs. Jessie Kirk. Deild II: M. W. Stobart, 2. sinn. S. Simkin, Communist. G. C. Coulter- A. A. MacDonnell, I.L.P. *) Stafirnir fyrir aftan nöfnin þýða útnefningu af: C.P.A.—Civic Progress Assocation; I L.P.—Independent La íbor Party. FRÁ ÍSLANDI. Sigurður Sívertsen prófessor kosinn I vígslubiskup. Rvik 26. okt. 1 gær voru talin atkvæði, sem bisk- upi hafði borist um kosningu vígslu- biskups í hinu forna Skálholtsstifti. Kosningabærir voru alls 77 (starf- andi andlegrar stéttar menn), en 64 greiddu atkvæði. Atkvæði féllu þannig, að Sigurður próf. Sívertsen hlaut 34 atkv. Næstir honum voru: Guðmundur Einarsson prófastur í Mosfelli, með 10 atkv.; séra Þorst. Briem á Akranesi með 9 atkv.; og Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur í Reykjavík með 8 atkv. Eitt atkv. fengu hver um sig þeir Árni Bjöms- son prófastur í Hafnarfirði, Friðrik Hallgrimsson, Reykjavík, og Sigur- geir Sigurðsson prófastur á Isafirði. Sigurður prófessor Sívertsen er því kosinn vígslubiskup í hinu foma Skál holtsstifti. Ungmeyjafélagið Aldan er að und- irbúa samkomu, sem haldin verður i kirkju Sambandssafnaðar mánudag- inn 1. des. n. k. Verður vandað til samkomunnar á allan hátt. Nákvæm- ari umgetning ásamt auglýsingu birt ist i næsta blaði.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.