Heimskringla - 18.02.1931, Síða 7
WINNIPEG 18. FEBRCAH, 1931.
HEIMSKRINGLA
7 BLAÐSEDA
<<Sameiningin,, og
stöðin “Vorn”
Frh. frá 3. bls.
verða að leggja stund á þessi mál,
eingöngu í Guðs og sannleikans nafni.
Gu ðhefir alt í sinni hendi, menn
og eignir í öllum heiminum. Kald-
ar, kærleikslausar og andlega mátt
vana tilraunir, gerðar á 'eiginn
reikning án Guðs, munu aldftei
sanna nokkuð um Guð sjálfan og
stjórn hans. Guð fer ekkert eftir
því, hvert þeir menn, sem fást við
þessi mál, kallast lærðir eða ó-
lærðir á heims vísu. Hann lítur
aðeins á hugarfarið, tilganginn og
traustið, sem honum sjálfum er
sýnt við rannsóknirnar. Málið er
algerlega í Guðs hendi, en ekki
manna.
Þvi vil eg benda höfundinum á,
að ekki er það hans meðfæri að
dæma um það, hver sé fáfróðastur
1 málum þessum og hver sé gæddur
minstum skilyrðum til viturlegrar
Ihugunar. Látum Guð sjálfan dæma
«m það.
Eg hef þá tekið það fram, að
veraldlegar fterdómsgreinir og vís-
indaleg tæki leiða aldrei sannleikann
I Ijós um guð og stjórn hans, án
Þess hann sé sjálfur með í verki.
Guð fyrst og síðast með styrk sinn
og hjálp í málum þessum. Ekkert
mont og yfirlæti.
Þá kem eg að öðru atriði.
Höfundurinn segir í hneykslis
grein sinni, að stöðin "Vörn” fáist
við "anda-særingar”. "Holt er heima
hvað”. Er manninum nokkuð kunn
ugt um “Varnar”-fundina ? Hvort
hefir hann sjálfur verið á þeim fund-
um, eða ber hann sögumenn fyrir
þessu? Einu gildir um það, en
kann hann ekki betur við að sanna
þetta? Er það ekki drenskaparlítið
að gera það ekki? Allir vita, að
það svertir engan, sem aldrei verður
á. hann sannað. Hitt er vist að það
hverfur heim aftur, og verður drjúgt
búsílag fyrir framtíðina. Sannast
þá máske, að “holt er heima hvað.”
Eg vil benda greinar-höfundinum
og öðrum á, að lesa vandlega skýr-
ingar mínar framan vlð “Ljóð og
Ræður” um samband okkar hér, og
reyna að skilja þær og festa í minni.
Skýringar þær eru ekki gripnar úr
lausu lofti, og hafa sama gildi nú
sem þá. Þær fela í sér undirstöðu
atriði þau, sem sambandið hér er
bygt á. Kemur þar í ljós, að hvað
miklu leyti andasæringar eru lagð-
ar til grundvallar. Vitaskuld geta
deildar meiningar orðið um það,
hvað séu andasæringar, og má vel
vera að greinar-höfundurinn telji
tilbeiðslu Guðs andasæringar, af því
venjulega er talað um Guð sem anda.
Nú vill einn aðal leiðtogi “Vamar”
manna i andlegum málum reyna á
þetta. Bað hann mig áð taka upp
i svar mitt gegn andasæringunni
stutta bæn, sem oft er lesin hér
á undan fundum. Vildi hann svo að
eg spyrði höfund hneykslis-grein-
arinnar, hvert hér sé um andasær-
ingar að ræða. Þetta vil eg gera
fyrir hann, og hljóðar bænin svona:
“Eilífu miskunsami faðir, vér
lyftum hug vorum til þín, og biðjum
þig af öllum vorum andlega mætti
um efling hins góða og göfuga í
hugarfari voru, og um útrýming alls
hins lélega og lága, er vér i gá-
leysi höfum leyft aðgang. Miskun-
sami faðir, gef oss möguleika til að
vinna þau verk, sem þér eru þókn-
anleg, oss sjálfum og öðrum til
blessunar. Gef oss Ijós þíns heil-
aga kærleika, svo vér villumst ekki
af vegi dygðarinnar. Ger oss vit og
viljaþrek til að efla þitt dýrðar ríki
á þessari jörð, himneski faðir, yfir
alla þá, sem nauðstaddir eru. Bless-
aðu ættingja vora og ástvini, og
oss öll. — Amen”. |
Bæn þessa samdi mjög merkur
Islendingur á öðru lifssviði fyrir ná-
lega tiu árum, Skúli Thoroddsen að
nafni; þess skal og getið, að stund-
um er annað lesið, bæði í bundnu
og óbundnu máli, sem er í sama
anda, og verður ef til vill eitthvað
af því prentað síðar þeim til upp-
lýsingar, sem prestarnir hafa ekki
kent að biðja á réttan hátt.
| Nú geta menn ályktað sem þeim
sýnist um það, hvort þessi og aðrar
bænir til Guðs sjálfs séu andasær-
ingar. Komist fólk að þeirri
niðurstöðu, að hér sé um andasær-
ingar að ræða, þá hafa andsæringar
átt sér stað frá upphafi allrar til-
beiðslu æðri kraftar. Ennfremur
séu það andasæringar að biðja Guð
sjálfan, sem öllu ræður, á alt, og
sér öllu lífi fyrir þörfum sínum,
þá eru það sannarlega andasæringar,
að tilbiðja fólk á öðrum lífssviðum,
sem í öllum tilfellum á nóg með
sjálft sig, og megnar ekkert nema
með hjálp Guðs. Hinn góði maður.
sem sumir kalla endurlausnara,
hefir sjálfur staðfest þetta,, að engin
hjálp sé til nema frá Guði. Hann
einn eigi að tilbiðja og honum einum
að þakka, þvi hann sé persónulegur
stjórnari alveldisins og faðir allra.
Nú vil eg spurja höfund hneykslis-
greinarinnar, eins og kennarinn f
guðlegum fræðum og sinni eigin
lífssögu bað mig: Er framan rituð
bæn, og aðrar bænir og vers stílað
til Guðs sjálfs, alt andasæringar ?—
Svar.
Þá furðar greinar-höfundinn á því,
að Þórhallur biskup skuli geta flutt
orð Guðs inn á milli sinna eigin orða,
og vera þó ei betur að sér í málinu
en hann sé. Þess ber að gæta að
nú stendur Þórhallur vel að vígi.
Hann þarf nú ekki að setja orðin
saman, og hann er svo heppinn að
vera læs á sitt eigið móðurmál. Hann
tekur orðin eins og hann sér þau
skráð úti i lofthafi þess heims, sem
hann telheyrir nú. Þetta eru, að
allra viturra manna dómi í öðrum
heimi, ósvikinn orð Guðs sjálfs, sem
óhætt er að birta, en enginn gyðing-
legur skáldskapur. Þórhallur biskup
verður glaður við, og fer með orðin
á þá einu stöð, þar sem hægt er að
birta Guðs eilífu eigin orð rétt. Nú
er honum engin vorkun. Nú þarf
hann ekki að byggja á sandi, sem
rennur í leysingunni undan byggingu
hinnar fyrri röngu trúar, svo hún
hrynur til grunna að vilja og ráð-
um Guðs sjálfs.
Þórhallur biskup hefir og annað
járn í eldinum. Hann er að svara
ádéilu Astvaldar. Mark hans og
mið er að ryðja sannleikanum braut
í sem fæstum orðum, þó greinar-
höfundinum þyki hann of orð marg-
ur.. En þar sjá allir hvar fiskur,
liggur undir steini. Alt er of langt
sem menn óttast. Refurinn sagði
um berin: “Þau eru súr”. Þeir sem
skilja ekki hinn eilífa sannleika Guðs,
segja: “Hann er súr”.
Þá er það oft haft að vopni gegn
eilífðarmálunum, að mál, framsetn-
»o^O'a»o4
Prentun-
The Viking Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr-
ir mjög sanngjarnt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega
og fljótt og vel af hendi leyst Látið oss prenta bréfhausa
yðar og umslög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta.
Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi.
THE VIKING PRESS LTD
853 SARGENT Ave., WINNIPEG
^ £ími 86-537
ing og umræðuefni hinna förnu sé
alt ólíkt þvi sem áður var. Þessi
ákæra er hin órækasta sönnun fyr-
ir því, að ádeilumennirnir bera ekk-
ert skyn á þessi mál. Það er engin
kyrstaða til, og samfara framför
verður skoðana breyting á hinu
eldra.
Greinarhöfundurinn furðar sig
á því, að Guð almátturur skuli opin-
bera sannleikann um margra alda
ósannindi, sem hafa orsakað hið
stórfeldasta tjón i báðum heim-
unum. Honum finst Guð ráðast á
manninn, eða mennina, sem verald-
leg stjórnvizka fól þetta endur-
lausnar starf á hendur. Þetta er
misskilningur. Guð lýsir því bara
yfir í hinum opinberuðu orðum sínum
að þetta endurlausnar starf hafi
aldrei verið til að sínu ráði. Þeir
sem hafa verið tengdir við þetta
starf, eru Guði að þvi skapi kærir
sem þeir efla ríki hans, og er um
þeirra starf sem hverra annara
manna. Misjafnlegt tekst mönn-
um f öðrum heimi að vinna Guði
og sannleikanu'm, eins og hér á jörð-
inni.
Fleiri opinberanir hafa birst en
sú, er Þórhallur minnist á. Til
dæmis skýrir Helgi Hálfdánarson,
prestaskóla-kennari, frá annari, og
er hún á þessa leið:
“Þér, sem úr holdinueruð famir
og komnir í eilifan hcim, látið heims-
búa alla sem einn vita, ef getlð,
að nú eru þeir tímar. að nálgast,
að ekki gegnar fyrir þjóðimar að
búa sig undir strið. Eg þarf enga að-
stoð til að lífláta fólk mitt. Það
gerist án þess, ef haldlð er lengur á-
fram að undirbúa þau.”
Eg get þessarar opinberunar hér,
svo fólki gefist enn meira umhugsun-
ar efni og festi þetta í minni. Nú
vænti eg þess, að það verði kunnugt
um þessar opinberanir, sem mest
þörf er á, áður en langir tímar líða:
Em þær fram komnar að Guðs
sjálfs ráði og vilja? Allir sjá þörf-
ina fyrir þær, og sannleikann, sem
í þeim felst. Guð gerir ekkert hálft,
en um stjórnvizku hans frá upp-
hafi veit enginn maður óðar en
lýður. Þeir sem velíja, geta neitað
Guði um persónulegan tilveru.rétt
en hann stjórnar samkvæmt sinni
vizku jafnt eftir sem áður. Enginn
þarf að kviða, sem gerir hans vilja
og fylgir hans málum.
Það er vel skiljanlegt að fólk
kunni að furða sig á þvi, hvers
vegna þessar opinberanir Guðs skuli
hvergi vera fluttar nema hér, enn
sem komið er. Orsökin er sú, að
enginn áræðir að flytja þær, viti
hann fyrirfram að samband hans
fari rangt með, því mikil ábyrgð
hvilir á þeim, sem orsakar rangan
framburð í þessum málum og öll-
um þjóðafólks á öðrum sviðum hefir
séð opinberanirnar á sinum eigin
tungumálum, en það skortir trú-
verðug sambönd við jarðarbúa til
að flytja þær réttar. Hið öfluga
félag “Varnar”-manna getur hevrgi
starfað nema hér, enn sem komið
er.
Til skýringar þessu skal eg geta
þess, er Guðrún Búason sagði okkur
nýlega. Það var um jólaleitið í vetur
að Sir Arthur Conan Doyle bauð
nokkrum Islendingum og öðrum frá
sínu sviði á fund í London, svo
þeir gætu borið sér vitni um það,
að hann gæti ekki treyst sínum
beztu miðlum. Eftir hinn bezta undir
búning, á þessum miðilsfundi, talaði
Doyle gegnum miðilinn. Boðsfólk-
ið frá hans sviði tók nákvæmlega
eftir hvernig hann sagði orðin, en
svo heyrði það, og holdlegir með-
limir fundarins, hvernig miðillinn
sagði þau, og hafði þ£ð verið nokk-
uð á annan veg. Hafði Doyle orðið
sár. Siðar sá eg getið um nokkur af
þessum orðum miðilsins í blaðinu
“Light”.
Sambandið hér er trygt eins lengi
og við treystum guði sjálfum fjrrir
málinu, og “Vamar”-fólkið alt vinn-
ur honum af trú og dygð. Föðurleg
umhyggja Guðs er fyrir öllu.
Eg er greinar-höfundinum sam-
dóma um það, að oft þjóta upp ból-
ur sýktra trúarskoðana, sem geta
jafnvel varað all-lengi eftir okkar
timatali, sérstaklega feli þær í sér
þá gerla eigingiminnar, að fá mikið
fyrir ekkert.
i
Svo segi eg eins og Cato: “Ceter-
um censeo, Karthaginem esse delend-
am.” Það verður að eyðileggja
•* Nafns pjöld |
rj b
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Blds. Skrifstof usími: 23674 Stundar sérstaklegra lungnasjúk- dóma. Er at5 flnna á skrifstofu kl 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimill: 46 Alloway Ave. Talsfml: 33158 G. S. THORVALDSÖN B.A., L.L.B. Lögfrœðingur 702 Confederation Life Bldg. Talsími 24 587
DR A. BLONDAL 601 Medical Art« Bldg. Talsímt: 22 296 Stundar sérstaklega kvensjúkdóma og barnasjúkdðma. — AtJ hltta: kl. 10—12 « i. og 3—6 e. h. Helmili: S06 Vlctor St. Siml 28 130 WALTER J. LINDAL BJÖRN STEFÁNSSON Islenxkir lögfræOingar 709 MINING EXCHANGE Btdg Stmi: 24 963 356 Main St. Hafa einnig skrifstofur at5 Lundar, 1 Piney, Gimli, og Riverton, Mut, I
DR. B. H. OLSON
Telephone: 21613
210-220 Medlcal Arts Bldic.
Cor. Graharn and Kennedy 8t.
Phone: 21 834
VitJtalstímÍ: 11—12 og 1___5.30
Heimili: 921 Sherburn St.
WINNIPEG, MA*N.
J. Christopherson.
Islenskur LögfræSingur
845 SOMERSET BLK.
Winnipeg, :: Manitob*.
Dr. J. Stefansson
21« MfCDICAL ARTS BLDG.
Horni Kennedy og Graham
Stundar elngðngii aurtna- eyrna-
nef- ov kverka-ajðkdðma
Er atJ hitta fráL kl. 11—12 fv h.
og kl. 3—-6 e. h.
TaUfmii 21834
Heimlll: 688 McMill&n Ave. 42691
A. S. BARDAL
selur likkistur og annast um útfar-
ir. Allur útbúnatJur s»á bemtl.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarha og legstelna.
843 SHERBROOKE ST.
Phoar i 86 607 WINNlPJffiO
Talsfml: 28 889 DR. J. G. SNIDAL TANNLÆKNIR 614 Sumerset Block Portagre Avesse WINNIPEG Bjömvin Guðmundson A. R. C. M. Teacher of Mub4c, Gompositkm, Theory, Counterpoint, Orche*- tration, Piano, etc. 555 Arlington 8t. StMI 71021
i DR. K. J. AUSTMANN 1 MARGARET DALMAN TEACHER OP PIANO
854 BANNING ST.
Wynyard —Sask. PHONE: 26 420
HEALTH RESTORED Lækningar án lyfja DR. S. G. SIMPSON, N.D., D.O., D.C. Chronic Diseases Phone: 87 208 Suite 642-44 Somerset Blk. WINNIPEG —MAN. Ragnar H. Ragnar Pianókennari hefir opnað nýja kenslustofu að STE. 4 NORMAN APTS. (814 Sargent Ave.* TALSIMI 38 295
Brynjólfur Þorláksson Sími: 86 762 670 Victor St. Stillir PIANOS og ORGEL TIL SÖLU AADfHU VERÐI “FUR3ACE" —bæöl vlBttr kola “furnace” litlö brúkaö, ar tll sölu hjú undlrrttuöum. Gott tækifæri fyrlr fólk út 4 landi er bœta vllja hltunar- úböld 4 helmlllnu. GOODMAN A CO. 7M Toronto St. Slml 2884T
MOORE'S TAXI LTD. Cor. Donald and Graham. 50 Cents Taal Frá einum stati til annars hvar sem er í bænum; 5 manns fyrir sama og einn. Allir farþegar á- byrgstir, allir bílar hitatSir. Simi 23 S»6 (8 lfnnr) Kistur, töskur o ghúsgagna- flutningur.
Jacob F. Bjarnason —TRANSFER— Bmggmge and Fnrnltnre MoTÍSg 762 VICTOR ST. SIMI 24.500 Annast allskonar flutninga fram og aftur um bæinn.
fslenzka BakaríiS
hornl McGee og Sargent Ave. Fullkomnasta og bezta bakntng kringlur, tvíbökur og skrólur á mjög sanngjnrnu veröi. Pantan- ir utan af landi afgreiddar móti ávísanir. Winnipeg Electric Bakeries Slml 25170—«31 Sargent Ave. 100 herbergl me5 eba 4n bakn SEYMOUR HOTEL verb s&nnfjarnt Slml 28 411 C. G. Hl'TCHlSON, flguél
Karthagóborg rangra og rotinna Winnlpeg —:— Man.
trúarbragða, eigi aðeins Guðs vegna
og andlegra hagsmuna í framtíðinni, heldur jafnframt til margfaldrar blessunnar fyrir fólkið, sem lifir á jörðinni. Lesið og skiljið skýringar mínar við “Ljóð og ræður”. Sendið, fólk hér vestra, dal fyrir ritið til hr. B. L. Baldwinsonar, 729 Sherhrook St., hr. Kr. Kristjánssonar, 457 Sher- brook St. eða til min undirritaðs. Þá, að endingu, þakka eg höf- undi hneykslis-greinarinnar fyrir að gefa mér kost á, að minnast fram- an ritaðra sannleiks atriða, og Hiemskringlu fyrir að flytja þau sannleiks atriði út til fólksins, Jóhannes Frímann Ste. 20 — 626 Ellice Ave. Winnipeg, Man. MESSUR OG FUNDIR I kirkju SambandssafnaOar Messur: — á hvtrjum sunnudrpt kl. 7. t.h. Sajnaðarnefndin'. Fundir 2. og 4. fimtudagskveld í hveijtM* mánuði. Hjálparnefndin: Fundir fyrate mánudagskveld i bverjn« mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þríVjn dag hvers mánaBar, kl. 8 aB kveldinu. S'öngflokkuriem: Æfingar á hverju fimtudagskveldi. Sunnudagaskólinn:— A hverjtm » sunnudegl, kl. 11 f. h. ,