Heimskringla - 18.02.1931, Qupperneq 8
8 BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 18. FEBRÚAR, 1931.
Fjær og Nær
8M RÐI K HJÓNABANDSINS.
lega að sjá “Snurður hjónabandsins”
á mánudagskvöldið kemur í sam-
komusal Sambandskirkju.
• • •
er leikinn var á mánudags og þriðju-
dagskvöldið núna í vikunni, Vgrður
leikinn í þriðja sinn á mánudags-
kyöldið kemur, þann 23. þ. m.. Hef- j
ir leikflokkurinn orðið við beiðni
margra, sem ekki gátu komið þessi I
kvöld, að endurtaka hann einu sinni.
Leikurin ner prýðilega vel leikinn og
svo hrífandi alt í gegn, að maður
bíður með gftirvæntingu eftir hverju
atriði. Ahrifamestur er hann þó
fyrir það, hvað hann er hlægilegur
frá upphafi til enda, og skrítilega er
sú manneskja gerð, er getur varist
að hlæja meira eða minna við að
horfa á allar snurðurnar i leikn-
um. Hvern sem langar að gleyma
þunga dagsins og gera sér létt i
huga eina kvöldstund, ætti sannar-
THEATRE
Phone 88 525
Sargent and Arlington
Thur., Fri„ Sat. This Week
LAl'GHS! — THILLS! — Pl'Ji!
See America Thi^st
Added: Comedy
Tbe Indinntt Are í'oininu:** (11)
Omvald Cartoon
Nkkuð af ritgerðum, sem send-
ar hafa verið Heimskringlu til birt-
ingar, verða rúmleysis vegna að bíða
næsta blaðs. Eru hlutaðeigendur
beðnir vglvirðingar á því.
• • •
Frónsfundur verður haldinn ann-
aðkvöld, þann 19. febr. í Goodtempl-
arahúsinu.
• • •
Brynjólfur Þorláksson hefir söng-
æfingu i samkomusal Sambandskirkj
unnar næstkomandi laugardag. For-
eldrar eru beðnir að áminna börnin
um að sækja æfinguna.
• • •
ólafur Asgeir Eggertsson leik-
stjóri lézt í gær á almenna sjúkra-
húsinu í Winnipeg. Banameinið var
lungnabólga. Hann var 55 ára gam-
all. Verður hans náar minst síðar.
• • •
Hr. Brynjólfur Hólm lézt að heimili
sinu, 776 Home St., Winnipeg, s.l.
mánudag. Hann var 59 ára að aldri;
skilur eftir konu, eina stjúpdóttur og
tvö börn af fyrra hjónabandi, upp-
komin. Hann dó úr lungnabólgu. —
Jarðarförin fer fram frá Fyrstu lút-
ersku kirkju n.k. föstudag.
Mon., TueM., Wed., Next Week
THE TALK OF THK TOWX
“WILD COMPANY”
Added
Comedy — Nevvw — Featuretten
THOMAS JEWELRY CO.
627 SARGÉNT AVE.
SIMI 27 117
Allar tegundi'r úra seldar lægsta
verði. — Sömuleiðis water
man’s Lindarpennar.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
Heimasími 24 141
UNCLAIMED CLOTHES SHOP
Karlmenna föt o k yfirliafnir, Mnittuft
eftir mðll. Niöurlioricanir haf fallifi flr
Kiidi. ok fötln Mejant frð #11.75 til $24.50
upphafles:a Melt ð $25.00 og upp I #00.00
471£ Portage Ave.—Sími 34 585
Inflúensa hefir gengið undanfarið
í bænum. Hefir fjöldi manna legið
í henni og gerir enn.
» • •
Næsta sunnudag flytur séra Rún-
ólfur Marteinsson guðsþjónustu á
þessum stöðum: Betel, Gimli, kl.
9.30 f.h.; í kirkju Víðinessafnaðar
kl. 2 e. h.; í lútersku kirkjunni á
Gimli kl. 7.30 e.h.
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Service
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima sími 87136
Expert Repair and Complete
Garage Service
Gas, Oils, Extras, Tires,
Batteries, Etc.
Bridgman Electric Co.
Winnipeg — Furby og Portage — Sími 34 781
RAFLAGNING Á GIMLI
Látið oss gera raflagniilguna í húsunum hjá yður
og kaupið hjá oss ljósaáhöldin. Verk og vörur á ódýr-
asta verði.
Vér skulum með ánægju veita upplýsingar um
kostnaða áætlun hvenær sem er. Lítið inn í búðina hjá
oss, við hliðinaá símastöðinni á Gimli og talið við herra
J. Ásgeirsson.
“KINGFISHER”
6ILL NETTING
Made by JOSEPH GUNDRY and CO. LTD.
BRIDPORT, ENGLAND.
ESTABLISHED OVER 250 YEARS.
BEST QUALITY LINEN GILL NETTING
SUPER QUALITY SEA ISLAND COTTON
FÁIÐ OKKAR PRÍSA ÁÐUR EN ÞÉR KAUPID
Office and Warehouse: 309 Scott Block Winnipeg.
W. Flowers,
SALES REPRESENTATIVE
PHONE 86 594
Miss Charlotte E. Barber heldur
skemtisamkomu í Sambandskirkjunni
I Riverton miðvikudaginn 25. febrú-
ar þ. á. Miss Barber er graduate
of National School of Elocution,
Philadelphia, Pa.; Winner of Class
Honors 1921—23, og hefir hin beztu
mgðmæli blaða og einstaklinga, þar
sem hún hefir farið. Til aðstoðar
Miss Barber og til tilbreytingar
skemta hr. Gústaf Sigurgeirsson,
Baritone, Mrs. T. R. Thorvaldson.
Soprano, og fleiri.
IÐUNN.
Iðunn 4. hefti 14. árgangs er kom-
ið vestur; mjög læsilegt að vanda.
Efni: Kristján Andrésson: Frá
heimsstyrjöldinni miklu (með mynd).
Halldór Kiljan Laxness: Nýja Is-
land (saga); G. Geirdal: Flugið
(kvæði); Sigurður Skúlason: Ferða-
minningar, (3 myndir); Helgi Pét-
urss: Frægasta hókin og hin nýja
líffræði; Per Hallström: Fálkinn
(saga), Magnús Asgeirsson þýddi;
Sig. Einarsson: Þrjár bækur (3
myndir); A. H.: Ennýall (mynd);
Jakob Jóh. Smári og A. H.: Ritsjá.
Crtsölumaður Iðunnar, Magnús
Peterson, 313 Horace St., Norwood,
biður vinsamlegast alla þá kaupend-
ur, sem enn hafa ekki goldið fyrir
þenna árgang, að minnast þess að
andvirði ritsins er fallið í gjalddaga.
og að standa sér skil á því hið
bráðasta.
• • •
Guðsþjónusta verður haldin í hinni
Fyrstu íslenzku hvítasuimulqfrkju,
603 Alverstone St., á sunnudaginn
kemur, kl. 3 e. h. og kl. 7.30 e.h.
Allir velkomnir. — Fyrir hönd safn-
aðarins, Páll Jónsson.
FALKAFLUG.
Fálkar 6 — Geysir 3.
Geysismenn léku vel, en þó léku
Fálkarnir betur. Jón S. Bjarnason
ver höfn sína af miklum fimleik,
svo að skothríð Geysismanna var
öll til ónýtis ger.
Var heldur ekki sóknarlið né varn-
arlið aðg'erðalaust. Gengu þau svo
fast fram, að Geysismenn sýndust
allir sundurliðast; ruddist Ingi Jó-
hannesson hvað eftir annað í gegn-
um lið þeirra, og honum fast að baki
voru þeir Albert Johnson og Karl
Hallsson; bar þá og heldur ekki lít-
ið á Robert Jóhannesson í áhlaup-
um. Þá sjaldan að Geysismenn
komust fram fyrir miðsvell, mættu
þeim Eggert Bjarnason og Kjartan
Johnson með hressilegri búkvörn.
Lágu liðsmenn oft á svellinu marg-
ir i senn, þegar áhlaupin voru sem
snörpust. 1 einu af þessum áhlaup-
um skarst Albert Johnson illa á
úlflið af skauta, og gerði það hann
óvígan til áhlaupa, þvi umbúða þurfti
við ;en það aðeins herti á Fálkun-
um, enda urðu þeir ofaná í þessari
viðureign, og jafnir fyrir fyrsta
pláss í sambandinu.
Víkingar 5 — Natives 0
Natives voru liðfærri og töpuðu
eftir harða orustu. En ekki létu
þeir undan síga fyr en í fulla hnef-
ana. Arni Jóhannesson lék prýði-
lega vel fyrir Natives og Wally
Biarnason lék af sinni vanalegu
snild. En það varð þó ekki nóg til
að stöðva hinar snörpu árásir Vík-
inga, því Víkingar notuðu búkvörn
i meira lagi, þá yfir bláu rödina
kom, og tók ,hún móð mikinn úr
Natives. Ingi Ingimundarson og
Bill Goodman voru sem klettar í
hafihu og rendu Natives þar oftast
í strand. Brutust þeir líka oft í
gegnum lið Natives með Arnold
Arnason í broddi fylkingar, og gerðu
glundroða mikinn í liði þeirra, svo
þeir gátu lítt við ráðið, og skutu
þeir oft í höfn, en hafnnefna, sem
Natives höfðu, var lítt sæmandi því
hrausta liði og hefði átt að fá leð-
urmedalíu í setuna fyrir lélega fram
komu. Aftur á móti var hafnvörð-
ur Víkinga ósigrandi, sem og voru
bakverðir, er sverja sig mjög í vlk-
ingakynið.
A. G. M.
Veroníka.
Þau gengu inn í borðsalinn og
var nú sezt að snæðingi. Borðið var
alsett dýrum réttum og margbreytt-
um. Kaus jarlinn af öllu því sem
þar var á borðinu, aðeins rifsteik og
soðin jarðepli. Talbot lézt smakka
1 á öllum réttunum. Veroníka ein
sýndi starfi hins fræga bryta fulla
viðurkenningu. Hún sat þögul að
mestu leyti þá fimm stundarfjórð
unga, sem máltíðin stóð yfir. Stund
um hlustaði hún á jarlinn og Talbot,
en — því miður — snerist hugur
hennar aðallega um Ralph. Skyldi
hann hafa orðið fyrir vonbrigðum
eða orðið reiður — nei, það er of
fjarri sanni að skógarvörður geti
reiðst — þótt hún efndi ekki lof-
orð sitt.
Þeir frændumir töluðu um stjóm-
mál, ýmsa menn og málefni. En það
er sjaldan talað svo um m'enn, að
ekki slæðist hneykslissögur með, og
hvað eftir annað gaut jarlinn aug-
unum til Veróníku, en hann hafði
enga ástæðu til að óttast, því að
“hreinum er alt hreint”. Þar að
auki var Veróníka svo annars hug-
ar, að hún gaf viðræðum þeirra
engan gaum. Hún var að hugsa um
hlnn einkennilega unga mann, sem
átti svo bágt með- að muna eftir
stéttamismuninum á skógarverði og
heimasætunni á Lynne Court.
Að lokum báru þjónamir eftirmat-
inn inn á borðið, og fóru stilt og
hljóðlega. Kjallarameistarinn setti
tágflösku með hinu fræga og dýra
Lynne portvíni á það og var á hon-
um hátíðasvipur. Veróníka stóð þá
upp og varpaði öndinni af feginleik
yfir því að mega fara. Hún gekk
inn í dagstofuna.
"Við skulum ekki vera of lengi,”
sagði Talbot ofur lágt, um leið og
hann opnaði dyrnar fyrir hana. “Ef
til vill verðum við svo hamingju-
samir, að fá að heyra yður spila
svolítið fyrir okkur?”
Veróníka kinkaði kolli og brosti.
Hún mundi hve káidur og lítillætis-
legur hann hafði verið við hana síð-
ast, þegar hann kom að Lynne
Court.
“Eg skal bæði spila og syngja fyr-
ir yður,” svaraði hún. “Að dansa
ætti víst illa við; eða er ekki svo?”
Talbot sneri aftur til sætis síns.
Jarlinn hafði sígið dýpra niður I
stólinn, sem hann sat á. Hann
horfði fast á Talbot. Augnaráðið
var kuldalegt og athugandi.
“Hvað mikið er það, Talbot?”
spurði hann mjóróma og háðslegur
á svipinn.
Talbot brosti og beit á vörina.
Það var nauðungarbros.
“Þér hittið alveg á naglahaustinn
Sir.”
. Jarlinn strauk hvítu holdgrönnu
hendinni yfir blóðlausar varirnar.
“Tíminn er of dýrmætur til þess
að honum sé eytt,” mælti hann.
"Auðvitað fór eg nærri um það, að
þú mundir ekki hafa heiðrað okk-
ur” —,Talbot tók eftir orðinu okk-
ur — “með komu þinni, nema því
aðeins að þú hefðir erindi. Og er-
indið er vanalega peningar.”
Talbot krosslagði fæturnar og lézt
brosa.
“Svo eg sé jafn hreinskilinn og
þér, herra minn, — fjárhagur minn
er slæmur núna,” sagði hann.
Jarlinn smakkaði á vínglasinu.
"Já, látum okkur sjá. Eg lofaði
þér fimm þúsund pundum á ári.
Það er nú ekki svo lítið, Talbot.”
“Nei, herra minn, alls ekki, en
þér hafið enga hugmynd um, hve
maður í minni stöðu þarf að kosta
miklu til.”
“ó jú, eg hefi það,” hreytti jarl-
inn út úr sér kuldalega og tilfinn-
ingarleysislega. “Þú gleymir því, að
eg sjálfur hefi verið í sömu stöðu
og það með miklu minna fé undir
höndum. Mér er það ráðgáta hvað
þú gerir við peningana. Þú hefir ekki
heimili fyrir að sjá, Nei, þú ert ekki
þess háttar maður. Eg-afsakaðu
— óska stundum að það væri svo.
En það myndi eyða um of tíma þin-
um. Já, eg veit ekki hvað þú ger-
ir við þá. Fyrirgefðu forvitnina.
Eg játa, að eg hefi engan rétt til að
hnýsast í það. Eg hefi einungis
þau hlunnindi, að eg á að láta hinn
tilvonandi jarl af Lynborough hafa
nóg fé til að lifa eins og honum er
samboðið. Hvað mikið viltu, Tal-
bot. Það er eiginlega ein spuming-
in.’
Þetta napra, kalda háð og kæru-
leysi var sem vandarhögg á Tal-
bot. En hann lét þó ekki á neinu
bera.
“Eg hefi orðið fyrir býsna miklum
útgjöldum nýlega. Eg er hræddur
um, að eg verði að biðja yður um
tvö þúsund pund, Sir.”
“Já, já, því ekki það,” sagði jarl-
inn með glæðværð, sem augsæilega
vissi á illt. “Eg skal gefa þér ávis-
un áður en þú ferð. Hvenær verður
það? A morgun líklega.”
“Já, eg á að halda ræðu annað
kvöld.
“Einmitt það. Eg skal hiðja Ver-
óníku að útbúa ávísunina í fyrra-
málið. Já, meðal annars, úr því1
eg mintist á Veróníku, Talbot, er
bezt að eg segi þér, að eg samdi
erfðaskrá mína hér um daginn. Eg
arfleiddi Veróníku að aleigu minni,
að hverjum skilding, sem eg get lát-
ið ganga til hennar.”
Hann dró augun í pung of horfði
með arnhvössu augnaráði á frænda
sinn. Talbot lét sér ekki bregða.
Andlitið varð þó enn hvítara en
ella, sérstaklega kringum nasahoi-
urnar.
“Einmitt það, Sir, tautaði hann.
“Já, eg gerði einmitt það,” sagði
jarlinn og glotti að þeim áhrifum,
sem hin hvössu augu hans höfðu
séð að orðið höfðu á Talbot. “Þvi
ekki það? Hún hefir auðsýnt mér
trygð og hollustu. Hún er náskyld
mér. Eg veit að þú sérð ekki eftir
þeim peningum. Tekjurnar hafa
aukist síðustu árin, það verður nóg
handa þér. Eg hefi látið dálítið af
tekjum mínum fyrir, og sé ekki ann
að en að þú getir það, alveg eins
Frítt við kvefi
yfir veturinn
UmlurNnmleK n*fer* tll ln-ns n* In-knn
kvef, lu-flr nti funilin verih.
KeyniA hnnn frltt.
Ef þú kvelst af kvefköstum þegar
kalt er o grakt í lofti ef þér finnst
þú komlnn aö köfnun, þá skrifið taf-
ariaust Frontier Asthma félaginu og
bitSJiS um þetta unúralyf frítt. ÞaS
gerir ekkert til hvar þú ert eöa hvort
þú hefir nokkra trú á meSulum eSa
ekki, skifaSu eftir því. Ef þú hefir
allan þin naldur af þessum kvilla kval
ist o greynt allt sem þér dettur í hug
án bata, og þó þú hafir fyrir löngu
gefiC upp alla von, þá samt skrifaSu
eftir lyfi voru frítt.
FREE TRIAL, COUPON
FRONTIER ASTHMA CO.,
291K Frontier Bldg., 462 Niagara St.
Butfalo, N. Y. mm
Send free trial of your method to:
Og eg.”
Talbot lygndi aftur augunum.
Hjartað barðist í brjósti hans eins
og eimreið, sem ér beitt fyrir of
þunga lest. Honum virtist alt
dansa fyrir augum sér. Hann hafði
altaf búist við að erfa séreignir
jarlsins, og nú var honum sagt, að
þær ættu allar að renna til stúlk-
unnar, sem hann hafði aðeins talið
yfirráðskonu.
“Þér hafið fullan rétt til að verja
fé yðar sem yður lízt, Sir,” sagði
hann loks. Hann var ekki viss um,
að sér hefði tekist að láta ekki
hera á vonbrigðúnum og hatrinu, er
ólgaði í brjósti hans.
“Alveg rétt, öldungis rétt,” sagði
jarlinn. Hann þagnaði eitt augnablik
skygði hönd fyrir augu og horfðl
fast á unga manninn. Talbt heyrði
hann ekki segja neitt, en varir hans
hræðust þó og hann var að tala
við sjálfan sig:
HREINLÁTASTA OG
HOLLUSTUMESTA MJÖLKURSTOFA
1 WINNIPEGBORG
Eign Winnipegbúenda og rekin af þeim.
Hreinlæti í meSferð allra afurSa og stjórnsemi.
Veldur framgangi vorum og vexti.
SÍMI 201 101
“Þér getið slegið rjómann —
en ekki skekið mjólkina’’.
MODERN DAIRY LIMITED
ÍSLENDINGAMOT
Þjóðræknisdeildarinnar <Trón,,
FIMTUDAGSKVÖLDIÐ 26. FEBRÚAR 1931
í GOODTEMPLARAHÚSINU
SKBMTISKRÁ:
1. Ávarp forseta.
2. Piano Solo .............. Mrs. H. Helgason
3. Einsöngur ........... Mrs. K. Jóhannesson
4. Ræða .................... Séra G. Árnason
5. Fiðluspil............Ungfrú H. Jóhannesson
7. Einsöngur .....,........... Sig. Skagfield
8. Kvæði ................. Lúðvík Kristjánsson
9. Einsngur ............. Mrs. K. Jóhannesson
10. Kvartett .... undir umsjón B. Guðmundssonar
11. Veitingat
12. Dans til kl. 1.30 f. h.
Inngangur $1.00 — Byrjar kl. 8.00
H-O-C-K-E-Y
SENIOR & JUNIOR
50c and 75c — Admission — 35c and 50c
Come and see the best hockey in years.
Extra tickets for lucky number winners.
MONDAY — THURSDAY — SATURDAY
Amphitheatre Rink
PHONE 30 031